Spánverjar tryggðu sér heimsmeistaratitilinn í dagNordicphotos/Getty images.
Spánverjar tryggðu sér í dag heimsmeistarartitilinn í körfubolta með í fyrsta sinn með óvæntum stórsigri á Grikkjum í úrslitaleik 70-49. Spánverjar léku án síns besta manns, Pau Gasol, en það kom ekki að sök. Gasol meiddist í undanúrslitaleiknum gegn Argentínu, en hann var kosinn maður mótsins eftir leikinn.