Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Owen yrði mikill bónus Ef Michael Owen myndi spila með Newcastle á þessari leiktíð yrði það “ótrúlegur bónus” að sögn Glenn Roeder, stjóra liðsins. Roeder segir þó afar litlar líkur á að sú verði raunin. 22.12.2006 16:45
Wenger verður pirraður William Gallas, varnarmaður Arsenal, segir að slæm úrslit Arsenal í síðustu leikjum sínum fari í pirrurnar á stjóra liðsins, Arsene Wenger. Gallas segir að leikmenn liðsins verði að líta í eigin barm. 22.12.2006 16:15
Borgar stjórnarformaðurinn úr eigin vasa? Ljóst þykir að það verður mikið kapphlaup um Shaun Wright-Phillips hjá Chelsea þegar leikmannamarkaðurinn opnast að nýju í janúar, fari svo að Chelsea ákveði að hlusta á tilboð í vængmanninn. Mörg lið hafa lýst yfir áhuga á Wright-Phillips og í morgun lýsti Stuart Pearce, stjóri Man. City, því yfir að stjórnarformaður félagsins gæti hugsanlega boðið í leikmanninn með eigin pening. 22.12.2006 14:15
Það þurfa fleiri en Drogba að skora Steve Clarke, aðstoðarþjálfari Chelsea, segir að Didier Drogba verði að fá meiri hjálp frá samherjum sínum við að skora mörk fyrir liðið. Drogba hefur farið á kostum á undanförnu og skorað ófá sigurmörkin fyrir Chelsea. Ljóst þykir að Clarke var fyrst og fremst að beina orðum sínum til Andrei Shevchenko. 22.12.2006 13:30
Hleb segist loksins hafa aðlagast Hvít-Rússinn Alexander Hleb hjá Arsenal kveðst mjög ánægður með hvernig hans mál eru að þróast hjá Arsenal. Hleb segir að það hafi tekið langan tíma að aðlagast lífinu og fótboltanum í Englandi. 22.12.2006 12:25
Barcelona tapaði stigum Sevilla hefur enn þriggja stiga forskot á meistara Barcelona á toppnum í spænsku deildinni eftir að Börsungar náðu aðeins 1-1 jafntefli við baráttuglatt lið Atletico Madrid á Nou Camp. Ronaldinho kom Barca yfir með marki úr aukaspyrnu en Sergio Aguero jafnaði metin fyrir Atletico. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en var skipt af velli eftir 67 mínútur. 22.12.2006 00:11
Irueta hættur hjá Real Betis Javier Irueta, þjálfari Real Betis í spænska boltanum, sagði í dag starfi sínu lausu aðeins nokkrum vikum eftir að hann fékk stuðningsyfirlýsingu frá stjórn félagsins eftir slæmt gengi. Irueta stýrði áður liði Deportivo la Corunia, en hafði verið atvinnulaus í eitt ár þegar hann tók við Betis í sumar. Engar fréttir hafa borist af hugsanlegum eftirmanni Irueta. 21.12.2006 19:30
Benitez hundfúll yfir jólatörninni Rafa Benitez, stjóri Liverpool, vill að jólatörnin í enska boltanum verði skorin niður um helming því álagið á leikmenn sé glórulaust yfir hátíðarnar. Liðin í úrvalsdeildinni spila fjóra leiki á tíu dögum um jól og áramót. 21.12.2006 19:22
Erfiðleikarnir skrifast að hluta á Dowie Richard Murray, stjórnarformaður Charlton í ensku úrvalsdeildinni, segir að hörmulegt gengi liðsins í síðustu leikjum skrifist að hluta til á fyrrum knattspyrnustjórann Ian Dowie sem rekinn var í haust, því það hafi verið hann sem stýrði leikmannakaupum hjá félaginu í sumar. 21.12.2006 18:00
Ronaldinho að fá spænskt vegabréf Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona á von á að fá spænskt vegabréf á næsta ári og mun í kjölfarið búa til pláss fyrir leikmann utan Evrópu í hópi Evrópumeistaranna. Líklegt þykir að það verði mexíkóski táningurinn Giovanni dos Santos, sem nú leikur með B-liði félagsins. 21.12.2006 16:30
Barcelona - Atletico Madrid í beinni á Sýn í kvöld Eiður Smári Guðjohnsen verður væntanlega í byrjunarliði Evrópumeistara Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti Atletico Madrid í beinni útsendingu á Sýn klukkan 20:50. Þetta er síðasti leikurinn í spænsku deildinni fyrir jólafrí og það verður Hörður Magnússon sem lýsir leik kvöldsins eins og honum einum er lagið. 21.12.2006 15:58
Rijkaard tekur upp hanskann fyrir félaga sinn Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, hefur nú tekið upp hanskann fyrir landa sinn og fyrrum liðsfélaga Marco Van Basten, landsliðsþjálfara Hollendinga, eftir að Louis van Gaal fór hörðum orðum um Van Basten í fjölmiðlum á dögunum og sagði hann lélegan þjálfara. Rijkaard lét þann gamla heyra það í gær. 21.12.2006 15:07
Eriksson ekki á leið til Marseille Jose Anigo, yfirmaður knattspyrnumála hjá Marseille í Frakklandi, segir ekkert hæft í þeim fullyrðingum fjölmiðla að félagið ætli að ráða Sven-Göran Eriksson í starf knattspyrnustjóra og segir ekki koma til greina að Svíinn taki við liðinu. 21.12.2006 15:01
Deilur Nistelrooy og Kuyt halda áfram Hollensku framherjarnir Dirk Kuyt hjá Liverpool og Ruud Van Nistelrooy hjá Real Madrid eru litlir vinir og hafa þeir deilt í fjölmiðlum um nokkurt skeið. Nistelrooy sendi landa sínum pillu í gær. 21.12.2006 13:00
Tíu sigrar í röð hjá Inter Ítalíumeistarar Inter Milan unnu í gærkvöld sinn tíunda sigur í ítölsku A-deildinni þegar liðið skellti Lazio á útivelli 2-0 þrátt fyrir að vera manni færri frá miðjum fyrri hálfleik eftir að Zlatan Ibrahimovic var vikið af velli. Esteban Cambiasso og Marco Materazzi skoruðu mörk Inter í gær. 21.12.2006 12:43
Real Madrid kaupir Gago Spænska stórveldið Real Madrid hefur fengið 13,7 milljón punda tilboð sitt í miðjumanninn Fernando Gago samþykkt frá argentínska félaginu Boca Juniors. Þetta tilkynntu forráðamenn Juniors í dag og mun leikmaðurinn fara til Madrid til að skrifa undir samning í næstu viku. Gago er tvítugur og er talinn mikið efni líkt og framherjinn Gonzalo Higuain sem gekk í raðir Real í síðustu viku. 21.12.2006 12:38
Camara verður frá í sex vikur Enska úrvalsdeildarliðið Wigan verður án framherja síns Henri Camara í jólatörninni og fram á nýja árið eftir að í ljós kom að hann er illa meiddur á hné. Búist er við að kappinn verði frá keppni í sex vikur, en þar fyrir utan er Lee McCulloch að taka út þriggja leikja bann svo liðið á aðeins tvo heila framherja fyrir komandi leikjatörn. 21.12.2006 12:32
Real Madrid niðurlægt á heimavelli Stórlið Real Madrid var niðurlægt á heimavelli sínum Santiago Bernabeu í gær þegar smálið Recreativo kom í heimsókn og vann stórsigur 3-0. Leikmenn Real spiluðu hörmulega í leiknum og enginn slakari en nýkjörinn knattspyrnumaður ársins, Fabio Cannavaro. Sevilla er á toppnum eftir auðveldan 4-0 sigur á Deportivo. 21.12.2006 11:51
Ronaldinho náði einni æfingu Brasilíumaðurinn Ronaldinho hefur verið á ferð og flugi undanfarna daga og náði aðeins einni æfingu fyrir leik Barcelona gegn Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikurinn hefst kl. 21 og er í beinni útsendingu á Sýn. 21.12.2006 00:01
Drogba bjargaði Chelsea Framherjinn magnaði Didier Drogba var hetja Chelsea í kvöld þegar hann tryggði Chelsea 1-0 sigur á Newcastle með glæsilegu marki eftir aukaspyrnu, aðeins fjórum mínútum eftir að hann kom inn sem varamaður í síðari hálfleik. Chelsea er því komið í undanúrslit keppninnar. 20.12.2006 21:37
Markalaust í hálfleik Ekkert mark hefur enn litið dagsins ljós í viðureign Newcastle og Chelsea í enska deildarbikarnum eftir fjörugan fyrri hálfleik. Newcastle hefur átt skot í þverslá og vildu margir meina að skot Obafemi Martins hefði farið inn fyrir marklínuna. Þá hefur Andriy Shevchenko átt skot í stöngina á marki Newcastle. Ekkert mark er komið í leik Southend og Tottenham þegar skammt lifir fyrri hálfleiks. 20.12.2006 20:44
Mourinho hvílir lykilmenn Leikur Newcastle og Chelsea er að hefjast í beinni á Sýn nú klukkan 19:45, en athygli vekur að Jose Mourinho hefur ákveðið að hvíla marga af lykilmönnum sínum í leiknum í kvöld. Þeir Frank Lampard, Ashley Cole, Michael Ballack og Didier Drogba sitja allir á bekknum. 20.12.2006 19:36
Cassano og Diarra settir út úr hópnum Miðjumaðurinn Mahamadou Diarra og sóknarmaðurinn Antonio Cassano voru báðir settir út úr leikmannahópi Real Madrid fyrir leikinn gegn Recreativo sem sýndur verður í beinni útsendingu á Sýn í kvöld. Sjónvarpsupptökur náðust af leikmönnunum um helgina þar sem þeir gagnrýndu þjálfara sinn Fabio Capello. 20.12.2006 17:18
17 leikmannaskipti rannsökuð frekar Lord Stevens tilkynnti á blaðamannafundi í dag að 17 af þeim 362 leikmannaskiptum sem rannsökuð hafa verið í spillingarmálinu í enska boltanum verði rannsökuð enn frekar. Lítið markvert kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var vegna þessa í dag, en þar lýsti Stevens yfir óánægju sinni með óliðlegheit nokkurra stórra umboðsmanna. 20.12.2006 15:19
Gat ekki neitað United Sænski framherjinn Henrik Larsson segir að þegar sér hafi boðist tilboð um að ganga í raðir Manchester Unted sem lánsmaður hafi hann einfaldlega ekki getað sagt nei við svona stórt félag. 20.12.2006 14:45
Saha framlengir við Man Utd Franski framherjinn Louis Saha hefur framlengt samning sinn við Manchester United til ársins 2010. Franski landsliðsmaðurinn er 28 ára gamall og gekk í raðir félagsins árið 2004 fyrir 12,8 milljónir punda. Hann hefur skoraði 12 mörk það sem af er leiktíðinni og er óðum að ná fyrra formi eftir erfiða baráttu við meiðsli. 20.12.2006 14:30
Bikarleiknum frestað fram til 9. janúar Stórleik Liverpool og Arsenal í enska deildarbikarnum hefur verið frestað fram til 9. janúar eftir að hann gat ekki farið fram á Anfield í gærkvöldi vegna svartaþoku. Það vekur athygli að það verður annar leikur liðanna á þremur dögum, því þau mætast einnig í þriðju umferð enska bikarsins. Leikur Newcastle og Chelsea í enska deildarbikarnum verður í beinni á Sýn í kvöld klukkan 19:35. 20.12.2006 13:35
Niðurstöður úr spillingarmálinu birtar í dag Lord Stevens, maðurinn sem rannsakaði meinta spillingu í ensku knattspyrnunni í kjölfar sjónvarpsþáttar sem sýndur var í breska sjónvarpinu í sumar, mun í dag afhjúpa skýrslu um ítarlega rannsókn sína í dag. Þar kemur í ljós hvort stjórar í ensku úrvalsdeildinni hafa gerst sekir um að taka við mótugreiðslum frá umboðsmönnum leikmanna og ljóst að mikið fjaðrafok verður í deildinni ef einhverjir verða fundnir sekir. 20.12.2006 13:28
Mourinho biðst afsökunar Jose Mourinho, stjóri Chelsea, baðst í dag afsökunar á ummælum sem hann lét falla um framherjann Andy Johnson hjá Everton um síðustu helgi, þegar hann hélt því fram að leikmaðurinn hefði reynt að fiska vítaspyrnu í leiknum. Forráðamenn Everton tóku afsökunarbeiðninni vel og segja málið úr sögunni. 20.12.2006 13:15
Vil alls ekki missa af leiknum gegn Liverpool Argentínska undrabarnið Lionel Messi hefur ekki spilað með Evrópumeisturum Barcelona síðan í nóvember, þegar hann ristarbrotnaði í 3-1 sigurleik gegn Real Zaragoza. Messi var fyrr í vikunni valinn besti ungi leikmaður heims en hann er nú að vinna í því að jafna sig eftir aðgerð. 20.12.2006 00:01
Ótrúlegur sigur Wycombe á Charlton Þriðjudeildarlið Wycombe Wanderers gerði sér lítið fyrir og sló úrvalsdeildarlið Charlton út úr enska deildarbikarnum í kvöld með 1-0 sigri á heimavelli Charlton, The Valley. Þetta eru sannarlega ótrúleg úrslit, en þrjár deildir skilja þessi tvö lið að. Wycombe er því komið í undanúrslit keppninnar en Charlton er í bullandi vandræðum í deildinni. Hermann Hreiðarsson lék ekki með Charlton í kvöld. 19.12.2006 21:52
Liverpool - Arsenal frestað Leik Liverpool og Arsenal sem fara átti fram í enska deildarbikarnum í kvöld hefur verið frestað vegna þoku. Leikur Charlton og Wycombe verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn þess í stað og hefst nú klukkan 20. Hermann Hreiðarsson er ekki í liði Charlton að þessu sinni. 19.12.2006 19:58
Minningarathöfn um leikmenn Juventus Í dag var haldin sérstök minningarathöfn um leikmennina ungu sem drukknuðu við æfingasvæði Juventus um helgina. Leikmennirnir tveir drukknuðu í vatni við æfingasvæðið og er málið enn í rannsókn, enda voru tildrög þessa nöturlega atburðar nokkuð furðuleg. Leikmennirnir hétu Riccardo Neri og Alessio Ferramosca. 19.12.2006 18:30
Mikil þoka í Liverpool Óvíst er hvort leikur Liverpool og Arsenal í enska deildarbikarnum geti farið fram vegna mikillar þoku sem nú er í borginni. Aðstæður verða kannaðar á ný í kring um klukkan 18 og þá verður ákveðið hvort leikurinn fer fram eða hvort honum verður frestað. 19.12.2006 17:43
McCulloch fær þriggja leikja bann Lee McCulloch, leikmaður Wigan í ensku úrvalsdeildinni, hefur gengist við ákæru aganefndar knattspyrnusambandsins og mun því taka út þriggja leikja keppnisbann fyrir að kýla Chris Morgan, fyrirliða Sheffield United, í leik liðanna á dögunum. 19.12.2006 16:48
Valencia - Mallorca í beinni á Sýn Extra í kvöld Leikur Valencia og Mallorca í spænska boltanum verður sýndur beint á Sýn Extra klukkan 19:55 í kvöld, en leikurinn verður svo sýndur á Sýn að loknum leik Liverpool og Arsenal í enska deildarbikarnum. Annað kvöld verður svo leikur Real Madrid og Recreativo í beinni á Sýn Extra á sama tíma og leikur Newcastle og Chelsea í deildarbikarnum á Englandi sýndur beint á Sýn. 19.12.2006 16:28
Söknum Ballack ekki neitt Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, segir að félagið sakni miðjumannsins Michael Ballack ekki neitt og segir þá gagnrýni sem liðið hefur orðið fyrir undanfarið vera alveg þá sömu og á síðasta ári þegar þýski landsliðsmaðurinn var í herbúðum liðsins. 19.12.2006 16:01
Máli ÍR og KA/Þórs lokið Sameinað lið KA og Þórs frá Akureyri leikur í Landsbankadeild kvenna næsta sumar en ekki ÍR. Þetta úrskurðaði áfrýjunardómstóll ÍSÍ í dag. ÍR vann einvígi liðanna samanlagt 3-2 í september, en tefldi fram ólöglegum leikmanni og því var norðanliðinu dæmdur 3-0 sigur. 19.12.2006 15:17
Liverpool - Arsenal í beinni á Sýn í kvöld Stórleikur Liverpool og Arsenal í enska deildarbikarnum verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:35. Bæði lið gera miklar breytingar fyrir leik kvöldsins. 19.12.2006 15:06
Röber tekur við Dortmund Jurgen Röber, fyrrum þjálfari Stuttgart og Wolfsburg, var í dag ráðinn þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Dortmund í stað Hollendingsins Bert van Marwijk sem rekinn var í gær. Dortmund er í miklum fjárhagserfiðleikum og því bíður Röber erfitt verkefni hjá stórliðinu. 19.12.2006 14:22
Sveinn farinn að æfa með Barcelona Fréttir frá Spáni í dag herma að Eiður Smári Guðjohnsen hafi nú komið átta ára gömlum syni sínum Sveini að hjá yngri flokkum Barcelona þar sem hann mun æfa undir handleiðslu góðra manna. Það er því útlit fyrir að knattspyrnuhefðin sterka í fjölskyldunni haldi áfram og hver veit nema Sveinn feti í fótspor föður síns og afa og verði atvinnumaður í knattspyrnu í framtíðinni. 19.12.2006 14:13
Henry íhugar að spila fimm ár í viðbót Franski framherjinn Thierry Henry hjá Arsenal segist geta hugsað sér að spila fimm ár til viðbótar áður en hann leggur skóna á hilluna. Þetta sagði Frakkinn eftir að hann var kjörinn knattspyrnumaður Frakklands í fimmta sinn í gær, en hann er 29 ára gamall. 19.12.2006 14:02
Everton leggur fram kvörtun vegna Mourinho Forráðamenn Everton hafa nú ákveðið að leggja fram formlega kvörtun vegna ummæla Jose Mourinho knattspyrnustjóra Chelsea á hendur framherjanum Andy Johnson eftir leik liðanna á sunnudag. Mourinho sakaði Johnson um leikaraskap og hafa Everton menn brugðist harkalega við þessu. 19.12.2006 13:50
Hargreaves til sölu? Uli Hoeness, framkvæmdastjóri Bayern Munchen, hefur nú látið í veðri vaka að Owen Hargreaves gæti farið frá félaginu í framtíðinni, en aðeins ef félagið gæti fengið mann í staðinn á viðráðanlegu verði. Hann segir þó að liðið þurfi á enska landsliðsmanninum að halda í næstu umferð Meistaradeildarinnar þegar hann verði búinn að ná sér af meiðslum. 19.12.2006 13:47
Heiðar skoraði í sigri Fulham Heiðar Helguson skoraði fyrra mark Fulham þegar liðið lagði Middlesbrough 2-1 í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Heiðar kom Fulham yfir með marki úr víti eftir 12 mínútur og Brian McBride kom heimamönnum í 2-0 í fyrri hálfleik. Mark Viduka minnkaði muninn fyrir Boro eftir 74 mínútur en lengra komst Boro ekki. 18.12.2006 21:47