Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ibanez: Real Madrid er lélegt lið Pablo Ibanez, varnarmaður Atletico Madrid, segist sjaldan hafa séð eins lélega frammistöðu hjá Real Madrid eins og þegar liðin mættust á föstudagskvöld í spænsku úrvalsdeildinni. Ibanez segir með ólíkindum að Atletico hafi ekki náð að vinna leikinn, en hann endaði með 1-1 jafntefli. 26.2.2007 14:00
Totti heldur áfram að klúðra vítaspyrnum Francesco Totti, fyrirliði Roma á Ítalíu, mun halda áfram að taka vítaspyrnur liðsins þrátt fyrir að hafa klúðrað sinni sjöttu vítaspyrnu á leiktíðinni gegn Reggina um helgina. Á sama tíma hefur Totti aðeins skorað úr fjórum vítaspyrnum. Eins ótrúlegt og það hljómar þá ætlar þjálfari liðsins ekki að breyta um vítaskyttu. 26.2.2007 13:00
Ronaldinho: Ég hef aldrei verið í betra formi Ronaldinho, brasilíski snillingurinn hjá Barcelona, kveðst aldrei hafa verið í betra formi og að hann hafi verið staðráðinn í að sýna það í leiknum gegn Atletico Bilbao í gær. Ronaldinho var stórkostlegur í leiknum, en fyrir nokkrum dögum voru birtar myndir sem gáfu til kynna að hann hefði fitnað um nokkur kíló. 26.2.2007 12:28
Adebayor: Ég gerði ekkert rangt Emmanuel Adebayor, framherji Arsenal, kveðst ekki skilja af hverju hann fékk að líta rauða spjaldið fyrir þátt sinn í ryskingunum sem áttu sér stað undir lok bikarúslitaleiksins gegn Chelsea í gær. Adebayor segist ekki hafa gert neitt rangt. 26.2.2007 11:49
Eto'o: Búinn að bíða lengi eftir þessu marki Samuel Eto'o, framherji Barcelona, er mjög ánægður með að vera búinn að finna skotskóna á ný en hann skoraði eitt marka Barcelona í auðveldum sigri liðsins á Atletico Bilbao í gær, 3-0. Eto'o segist hafa beðið lengi eftir þessu marki, en slæm hnémeiðsli héldu honum frá keppni í tæpa fimm mánuði fyrr í vetur. 26.2.2007 11:02
Detroit vann Chicago í endurkomu Ben Wallace Detroit lagði Chicago af velli í NBA-deildinni í nótt, 95-93, í leik sem hafði verið beðið eftir með nokkur eftirvæntingu þar sem Ben Wallace, fyrrum leikmaður Detroit, var að snúa aftur til Motown-borgarinnar í fyrsta sinn frá því að hafa gengið í raðir Chicago fyrir tímabilið. Chris Webber, arftaki Wallace hjá Detroit, tryggði liði sínu sigur á lokasekúndunum. 26.2.2007 11:00
Stenson hafði betur gegn Ogilvy Svíinn Henrik Stenson sigraði á heimsmeistaramótinu í holukeppni sem lauk í Arizona í Bandaríkjunum í gær. Stenson hafði betur gegn Geoff Ogilvy frá Ástralíu í úrslitum, en hann átti titil að verja frá því í fyrra. Stenson fær 100 milljónir króna fyrir sigurinn. 26.2.2007 08:46
Eto´o skoraði í öruggum sigri Barcelona Barcelona er komið með tveggja stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir léttan 3-0 sigur á Atletico Bilbao á Nou Camp í kvöld. Xavi og Samuel Eto´o skoruðu mörk Barcelona í leiknum auk þess sem eitt markið var sjálfsmark. Eto´o var óvænt í byrjunarliðinu í kvöld en Eiður Smári Guðjohnsen sat allan tímann á varamannabekknum. 25.2.2007 22:03
Skallagrímur vann í Grindavík Skallagrímur lætur ekki sitt eftir liggja í toppbaráttunni í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Í kvöld vann liðið nauman útisigur á Grindavík, 84-83, og náði þar með KR-ingum að stigum í öðru sæti deildarinnar. Snæfell er einnig í hópi efstu liða en í kvöld vann liðið góðan útisigur á Tindastóli, 73-104. Tveir aðrir leikir fóru fram í kvöld. 25.2.2007 21:01
Giggs segir Man. Utd. ekki mega slaka á Ryan Giggs, miðvallarleikmaður Manchester United, segist hafa nægilega mikla reynslu til að fullyrða að barátta liðsins við Chelsea um enska meistaratitilinn eigi eftir að þróast í nýja átt áður en tímabilið er á enda. Giggs segir að þrátt fyrir að Man. Utd. sé með níu stiga forskot á toppi deildarinnar séu úrslit deildarinnar fjarri því að vera ráðin. 25.2.2007 21:00
Schalke tapaði óvænt á heimavelli Topplið þýsku úrvalsdeildarinnar, Schalke, mátti þola að bíða í lægri hlut á heimavelli sínum gegn Bayer Leverkusen í dag, 0-1. Þeim til happs náðu helstu keppinautarnir í Werder Bremen aðeins jafntefli gegn Borussia Moenchengladbach og er því forysta liðsins á toppnum áfram fimm stig. 25.2.2007 20:53
Wenger miður sín yfir hegðun leikmanna sinna Arsene Wenger, stjóri Arsenal, harmar hegðun leikmanna sinna undir lok leiksins gegn Chelsea í deildabikarnum í dag, en tveir lærisveina hans var vikið af leikvelli eftir ryskingar. Wenger kveðst þó afar stoltur af spilamennsku síns liðs í leiknum. 25.2.2007 20:37
Meiðsli Terry ekki alvarleg Chelsea hefur staðfest að meiðslin sem fyrirliði liðsins John Terry varð fyrir í úrslitaleik deildabikarsins í dag eru ekki alvarleg. Terry hlaut einungis heilahristing og ætti að verða orðinn heill heilsu eftir nokkra daga. Hann hefur þegar yfirgefið sjúkrahúsið í London sem hann var fluttur á eftir að hafa fengið höfuðhöggið þunga. 25.2.2007 20:32
Eto´o byrjar – Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í byrjunarliði Barcelona sem tekur á móti Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, þvert á spár helstu fjölmiðla Spánar. Í fremstu víglínu liðsins í kvöld er Samuel Eto´o, sem er í fyrsta sinn í byrjunarliðinu síðan í október. Leikurinn hófst kl. 20 og er í beinni útsendingu á Sýn. 25.2.2007 20:16
Zidane spilaði í fyrsta sinn frá því á HM Franski knattspyrnumaðurinn Zinedine Zidane spilaði í gær sinn fyrsta opinberlega knattspyrnuleik eftir að hafa verið vikið af velli í úrslitaleik HM í Þýskalandi síðasta sumar. Zidane spilaði þá í góðgerðarleik í Thailandi og þótti sýna gamalkunna takta. Á blaðamannafundi eftir leikinn neitaði Zidane að svara spurningum um framtíð sína. 25.2.2007 19:15
Sögulegur árangur Dallas Dallas varð í nótt fjórða liðið í sögu NBA til að vinna yfir 10 leiki í röð á þremur mismunandi tímabilum á leiktíð. Dallas vann Denver í nótt og var það 11. sigurleikur liðsins í röð en fyrr í vetur hafði liðið náð að vinna 12 og 13 leiki í röð. Ef mið er tekið af sögunni á Dallas meistaratitilinn næsta vísan. 25.2.2007 18:45
Leikmenn Chelsea tileinka Terry sigurinn Hugur leikmanna Chelsea er hjá John Terry og tileinka þeir fyrirliða sínum sigurinn, en hann var borinn af velli hálf meðvitundarlaus í úrslitaleik deildabikarsins gegn Arsenal í dag. Jose Mourinho hrósaði liði Arsenal í hástert en sagði betra liðið hafa unnið leikinn. 25.2.2007 17:52
HK upp að hlið Valsmanna í DHL-deildinni HK komst upp að hlið Valsmanna á toppi DHL-deildar karla þegar liðið bar sigurorð af Akureyri í Digranesi í dag, 31-23. Framarar unnu öruggan sigur á ÍR, 43-34, og Stjarnan sigraði Fylki í Garðabænum, 27-24, í öðrum leikjum dagsins. 25.2.2007 17:35
Terry fluttur á sjúkrahús John Terry, fyrirliði Chelsea, var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa rotast í viðureign liðsins gegn Arsenal í dag. Að sögn Sky-fréttastofunnar í Englandi þjáðist Terry af ógleði og minnisglöppum þegar hann var borinn af velli um miðjan síðari hálfleik og því var ákveðið að taka enga áhættu. Frank Lampard tók á móti bikarnum í hans stað. 25.2.2007 17:25
Chelsea sigraði Arsenal í deildabikarnum Chelsea tryggði sér nú rétt í þessu enska deildabikarinn með því að leggja Arsenal af velli í úrslitaleik, 2-1. Didier Drogba var hetja Chelsea og skoraði bæði mörk liðsins eftir að Theo Walcott hafði komið Arsenal yfir. Þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið undir lok leiksins eftir slagsmál leikmanna. 25.2.2007 17:05
Vandræðalaust hjá Tottenham gegn Bolton Tottenham átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Bolton af velli í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag en eftir aðeins 20. mínútna leik var liðið komið með þriggja marka forystu. Lokatölur urðu 4-1 og er Tottenham komið upp í níunda sæti deildarinnar. Tveir aðrir leikir fóru fram í Englandi í dag. 25.2.2007 16:58
Drogba búinn að koma Chelsea yfir Didier Drogba er búinn að skora sitt annað mark og koma Chelsea yfir gegn Arsenal í úrslitum enska deildabikarsins. Markið skoraði Drogba á 82. mínútu, með frábærum skalla eftir fyrirgjöf Arjen Robben. Arsenal hefur þó líklega um stundarfjórðung til að jafna leikinn en miklar tafir urðu þegar John Terry var borinn af velli. 25.2.2007 16:44
Inter heldur sigurgöngunni áfram Inter Milan burstaði Catina á útivelli í ítölsku A-deildinni í dag, 5-2, og vann sinn 17. sigur í röð í deildinni. Fjögur markanna komu í síðari hálfleik. Inter heldur 14 stiga forystu í deildinni en Roma er áfram í öðru sæti eftir 3-0 sigur á Reggina. 25.2.2007 16:38
Emil undir smásjánni hjá Viking Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður hjá Tottenham, er undir smásjánni hjá norska úrvalsdeildarliðinu Viking sem vill fá vængmanninn flinka í sínar raðir fyrir komandi tímabil. Egil Östenstad, framkvæmdastjóri Viking, hefur staðfest að félagið hafi spurst fyrir um Emil. 25.2.2007 15:48
Jafnt hjá Chelsea og Arsenal í hálfleik Staðan er ennþá jöfn, 1-1, þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign Chelsea og Arsenal í úrslitum deildabikarsins. Theo Walcott og Didier Drogba skoruðu mörkin í upphafi leiks en fyrri hálfleikurinn hefur verið frábær skemmtun. 25.2.2007 15:43
Átta marka sigur Magdeburg Þýska liðið Magdeburg var rétt í þessu að vinna FCK frá Kaupmannahöfn, 35-27, í Evrópukeppni félagsliða í handbolta. Staðan í hálfleik var 17-16 fyrir Madgeburg en Þjóðverjarnir sigldu fram úr á lokakafla leiksins og tryggðu sér gott veganesti fyrir síðari leik liðanna sem fram fer í Danmörku um næstu helgi. 25.2.2007 15:26
Drogba búinn að jafna fyrir Chelsea Didier Drogba er búinn að jafna metið fyrir Chelsea gegn Arsenal í deildabikarnum úr fyrstu alvöru sókn Chelsea í leiknum. Markið er skráð á 20. mínútu en það sem af er leik hefur Arsenal ráðið lögum og lofum á vellinum. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 25.2.2007 15:20
Arsenal komið yfir í úrslitaleiknum Theo Walcott er búinn að koma Arsenal yfir í leiknum gegn Chelsea í úrslitaleik enska deildabikarsins. Markið skoraði Walcott á 12. mínútu leiksins með góðu skoti úr vítateignum. Forysta Arsenal er fyllilega verðskulduð og hafa hinir ungu leikmenn liðsins spilað Chelsea sundur og saman á upphafsmínútunum. 25.2.2007 15:13
Tevez: Ég náði engu sambandi við Pardew Carlos Tevez, leikmaður West Ham, segir að samband sitt við Alan Pardew, fyrrum stjóra liðsins, hafi verið miður gott og að hann arftaki hans, Alan Curbishley, sé allt annar og betri þjálfari. Tevez fékk ekki mörg tækifæri hjá Pardew en mátti þola 4-0 tap fyrir honum í gær þegar West Ham mætti Charlton. 25.2.2007 14:45
Almunia vill verða markvörður númer eitt Markvörðurinn Manuel Almunia hjá Arsenal telur að úrslitaleikurinn gegn Chelsea í deildabikarnum í dag sé tilvalin vettvangur fyrir sig að sanna tilverurétt sinn í byrjunarliði Arsenal. Almunia hefur verið varamaður fyrir Jens Lehman undanfarin ár en margt bendir til þess að þýski markvörðurinn sé á förum frá Arsenal í sumar. 25.2.2007 14:45
Mourinho: Við megum ekki missa Lampard Jose Mourinho hefur ítrekað fyrir foráðamönnum Chelsea hversu mikilvægt það er fyrir félagið að samningur miðjumannsins Frank Lampard verði endurnýjaður. Mourinho segir Lampard vera einstakan og lýsir afleiðingunum af hugsanlegri brottför hans frá félaginu sem hrikalegum. 25.2.2007 14:45
Anelka gæti klárað ferilinn hjá Bolton Franski framherjinn Nicolas Anelka hjá Arsenal hefur lýst því yfir að hann sé jafnvel reiðubúinn að klára feril sinn hjá Bolton, svo ánægður sé hann í herbúðum liðsins. Stjórinn Sam Allardyce þótti taka nokkra áhættu þegar hann samdi við Anelka fyrir þetta tímabil, en sá franski hefur reynst liðinu afar vel og skorað nokkur mikilvæg mörk. 25.2.2007 14:30
Wiltord bjargaði Lyon Franski sóknarmaðurinn Sylvain Wiltord átti magnaða endurkomu eftir næstum þriggja mánaða fjarveru vegna meiðsla og tryggði Lyon 3-3 jafntefli gegn Sochoux í frönsku úrvalsdeildinni í gær nánast upp á eigin spýtur. Wiltord kom inn á þegar skammt var eftir, en náði að skora mark og fiska vítaspyrnu í viðbótartíma. 25.2.2007 14:00
Þjálfari Grosswallstadt: Alexender vann leikinn fyrir okkur Michael Roth, þjálfari Grosswallstadt, hélt ekki vatni yfir frammistöðu íslenska landsliðsmannsins Alexander Petersson eftir leik liðsins gegn TuS N-Lübbecke í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöldi. Alexander skoraði 16 mörk úr 18 skottilraunum í marka sigri Grosswallstadt, 33-30. 25.2.2007 13:21
Atletico og Real skildu jöfn Real Madrid var stálheppið með að sleppa við jafntefli í viðureign sinni gegn nágrönnunum og erkifjendunum í Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Gonzalo Hugain skoraði jöfnunarmark Real í 1-1 jafntefli þegar um hálftími var eftir en Atletico var mun sterkari aðilinn í leiknum og fór illa með nokkur mjög góð marktækifæri. 25.2.2007 12:15
Stenson og Ogilvy mætast í úrslitum Það verða Svíinn Henrik Stenson og Ástralinn Geoff Ogilvy sem mætast úrslitum heimsmeistaramótsins í holukeppni sem fram fer í Arizona í Bandaríkjunum. Stenson vann sannfærandi sigur á Trevor Immelmann frá Suður-Afríku í undanúrslitum en Ogilvy, sem á titil að verja á mótinu, bar sigurorð af Bandaríkjamanninnum Chad Campbell. 25.2.2007 12:00
Ellefti sigur Dallas í röð Dirk Nowitzki var frábær fyrir Dallas í nótt þegar liðið bar sigurorð af Denver í NBA-deildinni, 115-95. Nowitzki skoraði 31 stig, hirti 11 fráköst og gaf 8 stoðsendingar í þessum ellefta sigurleik Dallas í röð. Enn fremur var sigurinn sá 19. í röð á heimavelli. 25.2.2007 11:34
Ronaldo vill 160 þúsund pund á viku Cristiano Ronaldo vill fá 160 þúsund pund í vikulaun frá Man. Utd. ætli félagið sér að fá hann til að skrifa undir nýjan samning. Þetta fullyrðir spænska dagblaðið Marca í stórri umfjöllun um málið og bætir við að Real Madrid og Barcelona séu reiðubúin að mæta kröfum Ronaldo, auk þess að borga Man. Utd. 40 milljónir punda fyrir portúgalska landsliðsmanninn. 24.2.2007 20:45
Góð úrslit Gummersbach Íslendingaliðið Gummersbach, undir stjórn landsliðsþjálfarans Alfreðs Gíslasonar, er í góðri stöðu eftir fyrri leik sinn gegn spænska liðinu Valladolid í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta. Leikur liðanna á Spáni í dag endaði með 36-36 jafntefli, en síðari leikurinn fer fram í Þýskalandi að viku liðinni. 24.2.2007 20:23
Everton upp í 7. sæti Everton komst upp í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld með sannfærandi 3-0 útisigri á Watford. Manuel Fernandez, Andy Johnson og Leon Osman skoruðu Everton í leiknum. Watford er komið með annan fótinn niður í 1. deild en liðið er sem fyrr í neðsta sæti með 19 stig, einu minna en West Ham. 24.2.2007 20:20
Dida fer líklega til Barcelona Barcelona er komið langleiðina með að semja við brasilíska markvörðinn Dida, en margt bendir til þess að hann yfirgefi herbúðir AC Milan þegar samningur hans rennur út eftir núverandi leiktíð. Carlo Ancelotti, stjóri Milan, segir að samningaviðræður við markmanninn hafi ekki gengið sem skildi. 24.2.2007 20:00
Tekur Eriksson við af Mancini Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að Sven Göran Eriksson, fyrrum þjálfari enska landsliðsins, muni líklega taki við stjórastöðunni hjá Inter Milan eftir núverandi tímabil, af Roberto Mancini. Forseti Inter, Massimo Moratti, er ósáttur með að Mancini skuli ekki hafa skrifað undir nýjan samning við félagið. 24.2.2007 19:30
Eiður byrjar hjá Barcelona á morgun Spænskir fjölmiðlar fullyrða að Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliði Barcelona þegar liðið fær Atletico Bilbao í heimsókn á Nou Camp í spænsku úrvalsdeildinni á morgun. Þjálfarinn Frank Rijkaard er sagður hafa verið ósáttur með frammistöðu Javier Saviola í leiknum gegn Liverpool. Samuel Eto´o og Santiago Ezquerro eru einnig í 18-manna hópi Barca fyrir leikinn. 24.2.2007 19:00
Messi vill Ronaldo til Barcelona Lionel Messi hjá Barcelona vill ólmur fá Cristiano Ronaldo til spænska liðsins frá Manchester United, en portúgalski leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við sölu frá Man. Utd. eftir þetta tímabil. Messi segir Ronaldo vera ótrúlegan leikmann og að það yrði mikill heiður að spila í sama liði og hann. 24.2.2007 18:30
Eggert: Curbishley er öruggur í starfi sínu Stjórn West Ham, með Eggert Magnússon í fararbroddi, hefur frá sér yfirlýsingu eftir tap liðsins gegn Charlton í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem fram kemur að knattspyrnustjórinn Alan Curbishley þurfi ekki að óttast að vera rekinn frá félaginu. Hvorki gengur né rekur hjá West og er liðið nú komið í afar vonda stöðu við botn deildarinnar. 24.2.2007 18:22