Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mourinho: England er best í heimi Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er ekki í vafa um að England sé helsta knattspyrnuland heims og þar langi honum þess vegna helst að vera sem allra lengst. Mourinho segir andrúmsloftið í kringum fótboltann á Englandi vera einstakt. 24.2.2007 17:30
Ekkert gengur hjá West Ham Íslendingaliðið West Ham beið afhroð í fallslagnum mikla gegn Charlton í ensku úrvalsdeildinni og mátti þola 4-0 tap á útivelli. Við tapið fellur West Ham niður fyrir Charlton í deildinni og er nú í 19. sæti í afar vondri stöðu. Liverpool burstaði Sheffield United með sömu markatölu þar sem Robbie Fowler skoraði tvö mörk. 24.2.2007 17:03
John Terry spilar bikarúrslitaleikinn John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur náð undraverðum bata af ökklameiðslunum sem hann varð fyrir í leiknum gegn Porto í Meistaradeildinni í vikunni og hefur verið úrskurðaður leikfær fyrir úrslitin í deildabikarnum á morgun. Terry stóðst læknisskoðun í morgun og verður í byrjunarliði Chelsea gegn Arsenal. 24.2.2007 16:21
Níu leikmenn á skýrslu hjá kvennaliði ÍBV Toppliðin í DHL-deild kvenna í handbolta, Stjarnan og Valur, gerðu engin mistök í leikjum sínum í dag. Stjarnan vann yfirburða sigur á ÍBV, 40-19, og Valur vann tíu marka sigur á FH, 34-24. Aðeins níu leikmenn voru á leikskýrslu hjá ÍBV. 24.2.2007 16:08
West Ham heillum horfið gegn Charlton Það blæs ekki byrlega fyrir Íslendingaliðið West Ham í viðureign liðsins gegn Charlton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þegar flautað hefur verið til hálfleiks er staðan 3-0, heimamönnum í Charlton í vil. Verði þetta úrslitin mun Charlton komast upp fyrir West Ham á stigatöflunni og skilja Eggert Magnússon og lærisveina hans eftir í 19. og næst síðasta sæti deildarinnar. 24.2.2007 15:48
Hermann ekki með Charlton Hermann Hreiðarsson getur ekki spilað með Charlton í leik liðsins gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag vegna meiðsla. Ívar Ingimarsson er eini Íslendingurinn sem er í byrjunarliði síns liðs í dag en hann er í vörn Reading sem sækir Middlesbrough heim. Brynjar Björn Gunnarsson byrjar á bekknum hjá Reading. 24.2.2007 14:50
Verður Drogba í vörninni? Fari svo að annaðhvort Richardo Carvalho eða Michael Essien forfallist fyrir úrslitaleik Chelsea og Arsenal í deildabikarnum á morgun mun sóknarmaðurinn Didier Drogba vera færður í öftustu varnarlínu þeirra bláklæddu. Þetta segir Jose Mourinho, stjóri Chelsea, og bætir við að hann eigi ekki annara kosta völ. 24.2.2007 14:45
Ronaldo tryggði Man. Utd. sigur Cristiano Ronaldo tryggði Manchester United dýrmæt þrjú stig í baráttunni um enska meistaratitilinn í knattspyrnu með því að skora sigurmark liðsins gegn Fulham í dag, tveimur mínútum fyrir leikslok. Lokatölur urðu 2-1, Man. Utd. í vil, eftir að Fulham hafði komist yfir í fyrri hálfleik. Man. Utd. hefur nú níu stiga forystu á Chelsea. 24.2.2007 14:43
Jafnt í hálfleik hjá Fulham og Man. Utd. Staðan er jöfn, 1-1, þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign Fulham og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það var Brian McBride sem kom heimamönnum yfir á 17. mínútu en Ryan Giggs jafnaði metin fyrir toppliðið á 29. mínútu. Heiðar Helguson er á varamannabekk Fulham. 24.2.2007 13:52
Barcelona og Real Madrid kljást um 11 ára gutta Laureano Ludena er 11 ára argentínskur sóknarmaður sem þykir einn efnilegasti leikmaður sem upp hefur komið í heimalandi sínu. Barcelona og Real Madrid eru nýjustu félögin sem bætast í slaginn um undirskrift Ludena, en áður höfðu öll stærstu lið Argentínu fengið hann á reynslu til sín. Fjölskylda leikmannsins segir hins vegar líklegast að hún muni flytja til Evrópu. 24.2.2007 13:45
Makelele óánægður með Abramovich Hinn franski Claude Makelele, einn reyndasti leikmaðurinn í herbúðum Chelsea, hefur gagnrýnt æðstu yfirmenn félagsins, og þá sér í lagi aðaleigandann Roman Abramovich, harðlega fyrir að byggja upp það sem hann kallar “gríðarlega pressu” á leikmenn og þjálfara liðsins. 24.2.2007 13:15
Flensburg burstaði Barcelona Flensburg er í mjög góðri stöðu eftir að hafa burstað Barcelona í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta í gærkvöldi. Flensburg vann 10 marka sigur, 31-21, og er ljóst að spænska liðið þarf á algjörum toppleik að halda í síðari leiknum eftir viku ef það á ekki að falla úr keppni. 24.2.2007 12:50
Kidd með þrefalda tvennu Jason Kidd lét brákað rifbein ekki stöðva sig í viðureign New Jersey gegn Sacramento í NBA-deildinni í nótt heldur náði hann sinni níundu þreföldu tvennu á leiktíðinni í 109-96 sigri sinna manna. Þetta var í 84. skiptið á ferlinum sem Kidd nær þrefaldri tvennu. Fjölmargir leikir fóru fram í NBA í nótt. 24.2.2007 12:30
Laporta: Tapið gegn Liverpool var slys Joan Laporta, forseti Barcelona, kveðst ekki í neinum vafa um að lærisveinar Frank Rijkaard geti farið með öruggan sigur af hólmi þegar liðið sækir Liverpool heim í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Laporta hefur fulla trú á leikmannahóp liðsins og segir tapið á Nou Camp hafa verið “slys”. 23.2.2007 21:30
Njarðvík hafði betur í grannaslagnum Njarðvík endurheimti toppsætið í Iceland-Express deild karla í kvöld með góðum útisigri á grönnum sínum og erkifjendum í Keflavík, 70-83. Þá vann Skallagrímur öruggan sigur á Haukum í Borgarnesi, 122-106, og tryggði stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar. 23.2.2007 21:05
Emerson orðaður við AC Milan Brasilíski miðjumaðurinn Emerson hjá Real Madrid er nú sterklega orðaður við sölu til AC Milan, en hann hefur engan veginn náð sér á strik á Spáni í vetur. Emerson er sagður hafa neitað að spila í sigurleik Real á Bayern Munchen í Meistaradeildinni á þriðjudag og vilja forráðamenn spænska liðsins hann burt. 23.2.2007 20:30
Hooijdonk spilar sjö leiki í Ástralíu Hollenski framherjinn Pierre van Hooijdonk hefur ákveðið að ganga til liðs við ástralska úrvalsdeildarfélagið Perth Glory eftir núverandi keppnistímabil. Hooijdonk, sem er á mála hjá Feyenoord í Hollandi, skrifar undir mjög sérstakan samning sem gildir í sjö leiki og er hann sagður hljóta væna summu fyrir. 23.2.2007 19:30
Materazzi óánægður með Capello Ítalski varnarmaðurinn Marco Materazzi hjá Inter Milan hefur gagnrýnt landa sinn Fabio Capello harðlega fyrir nýleg ummæli sín um ítalska knattspyrnu. Capello, sem nú stjórnar Real Madrid á Spáni, segir enga raunverulega samkeppni vera í ítölsku A-deildinni og því sé hún leiðinleg. Materazzi segir Capello vera að gera lítið úr sjálfum sér með ummælunum. 23.2.2007 18:30
Shevchenko er alveg eins og allir hinir Kerry Dixon, ein af helstu goðsögnum Chelsea, segir að frammistaða Andriy Shevchenko gegn Porto í Meistaradeildinni í vikunni sýni að úkraínski framherjinn sé kominn í sitt besta form. Dixon segir að Shevchenko sé ekkert frábrugðinn öðrum erlendum leikmönnum sem komi inn í ensku deildina – allir lendi í erfiðleikum fyrst um sinn. 23.2.2007 17:30
Button er ekki bjartsýnn Ökuþórinn Jenson Button segir að Honda bíllinn í ár standi öðrum bílum töluvert langt að baki og hann sé því ekki bjartsýnn á góðan árangur á komandi leiktíð í formúlu 1 kappakstrinum. Forráðamenn Honda liðsins höfðu áður gert sér vonir um að berjast um sjálfan heimsmeistaratitilinn á þessu tímabili. 23.2.2007 17:00
Howard gagnrýnir Ferguson Tim Howard, markvörður Everton, hefur opinberlega gagnrýnt fyrrum stjóra sinn Alex Ferguson fyrir stjórnarhætti sína. Howard var aðalmarkvörður Man. Utd. en féll í ónáð eftir að hafa átt nokkra slæma leiki. 23.2.2007 16:43
Inter ætlar að losa sig við Adriano Brasilíski sóknarmaðurinn Adriano verður að öllum líkindum seldur frá Inter Milan í sumar og er talið að forráðamenn ítalska félagsins séu að undirbúa risatilboð í Cristiano Ronaldo hjá Man. Utd, þar sem Adriano mun verða hluti að kaupverðinu. 23.2.2007 16:30
Ívar spilað allar mínúturnar með Reading Ívar Ingimarsson, miðvörður Reading, er einn af einungis 11 leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar sem leikið hefur allar mínúturnar af öllum leikjum, en 27 umferðum er nú lokið. 23.2.2007 16:23
Terry verður ekki lengi frá John Terry, fyrirliði ensku meistaranna í Chelsea, verður kominn aftur í slaginn mun fyrr en talið var í fyrstu eftir að hafa meiðst í vikunni og segir knattspyrnustjórinn Jose Mourinho að hann muni líklega getað spilað um næstu helgi. Hann hefur hins vegar verið útilokaður frá þáttöku í úrslitum deildabikarsins. 23.2.2007 16:10
Mourinho mun aldrei yfirgefa Chelsea Jose Mourinho, stjóri Chelsea, var hinn önugasti á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik Chelsea og Arsenal í deildabikarnum í morgun og brást illa við vangaveltum blaðamanna um að þetta gæti orðið síðasti titilinn sem hann vinnur með Chelsea. Mourinho svaraði fullum hálsi og sagðist aldrei ætla að yfirgefa stuðningsmenn Chelsea. 23.2.2007 16:00
Benitez væntir mikils af Mascherano Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, telur sig hafa gert kjarakaup í Javier Mascherano og segir argentínska miðjumanninn geta slegið rækilega í gegn í ensku úrvalsdeildinni. Mascherano verður enn ein viðbótin í flóru spænskumælandi leikmanna á Anfield og telur Benitez að það muni koma til með að hjálpa honum mikið. 23.2.2007 15:37
Crespo: Vil klára ferilinn hjá Inter Argentínski framherjinn Hernan Crespo vill ljúka knattspyrnuferli sínum hjá Inter Milan á Ítalíu. 23.2.2007 15:26
KR tapaði naumlega fyrir Rosenborg KR tapaði naumlega fyrir norsku meisturunum í Rosenborg, 1-0, á æfingamóti á La Manga í dag. Eftir því sem fram kemur á vef Nettavisen í Noregi áttu KR-ingar fínan leik og hefðu vel getað skorað mörk í leiknum. Það var Alexander Banor Tettey sem skoraði mark Rosenborg. 23.2.2007 14:46
Bremen áfram í 16-liða úrslit UEFA-keppninnar Werder Bremen komst í hann krappann í gær þegar þeir mættu liði Ajax í seinni leik liðanna í 32- liða úrslitum UEFA-keppninar. 23.2.2007 14:35
Ungu leikmennirnir fá að spila Ungu leikmennirnir í liði Arsenal mun væntanlega verða í aðalhlutverki í úrslitaleik deildabikarsins á móti Chelsea sem háður verður á Þúsaldarvellinum í Cardiff á sunnudaginn. Þjálfari Arsenal, Arsene Wenger, hefur notað keppnina sem stökkpall fyrir reynsluminni sveina liðsins og þeir hafa heldur betur nýtt tækifærið. Wenger er ekki sagður ætla að gera miklar breytingar á sínu liði. 23.2.2007 14:23
Ranieri sáttur þrátt fyrir tap Þjálfari Parma, Claudio Ranieri, var sáttur við leik sinna manna þrátt fyrir tap á móti Sporting Braga í UEFA bikarkeppninni í gærkvöldi 1-0. Tap Parma og Livorno í gær þýðir að Ítalir eru án fulltrúa en 16 lið eru eftir í keppninni. 23.2.2007 13:04
Vörnin hjá Munchen í ólagi Bayern Munchen, sem er tólf stigum á eftir Schalke í kapphlaupinu um þýska meistaratitilinn, gæti átt erfitt með að manna vörn sína fyrir leik helgarinnar þar sem þeir mæta Wolfsburg. Tveir leikmenn eru í leikbanni þeir Willy Sagniol og Martin Demichelis, Valerien Ismael er meiddur og Daniel van Buyten er ekki talinn geta leikið vegna meiðsla. 23.2.2007 11:41
Fullkomið kvöld hjá spænskum liðum Öll spænsku liðin í UEFA bikarkeppninni komust áfram í gærkvöldi. 23.2.2007 11:25
Pardew myndi verða kurteis Fyrrverandi stjóri West Ham og núverandi stjóri Charlton, Alan Pardew, segir að hann myndi vera kurteis við Eggert Magnússon ef þeir myndu mætast út á götu. Pardew var sem kunnugt er rekinn úr starfi sínu sem knattspyrnustjóri West Ham eftir að Eggert kom til félagsins. 23.2.2007 11:07
Óánægður með leik Leverkusen Mark Hughes, knattspyrnustjóri Blackburn, var ekki ánægður með leik Leverkusen á Ewood Park í gærkvöld. Liðin skildu jöfn en fyrri leikur liðanna lyktaði með 3-2 sigri þjóðverjanna. 23.2.2007 10:39
Naumur sigur Wizards á Kings Þrír leikir voru í NBA-deildinni í körfuknattleik í gærkvöld þar sem Washington Wizards unnu meðal annars mjög nauman sigur á Sacramento Kings, 109-106. Nokkrar deilur urðu í lok leiksins þar sem Kings töldu að John Salmons hefði jafnað leikinn með flautukörfu. 23.2.2007 09:17
Tímabilið í versta falli búið hjá Wade Dwyane Wade, besti leikmaður NBA meistara Miami Heat í körfubolta, gæti í versta falli þurft að sætta sig við að spila ekki meira með liði sínu á leiktíðinni. Þetta eru niðurstöður fundar hans við lækna liðsins í kvöld, en Wade fór úr axlarlið í fyrrakvöld. 23.2.2007 01:31
LA Lakers hársbreidd frá að landa Jason Kidd Mikið var búið að ræða um lokun félagaskiptagluggans í NBA deildinni nú í kvöld en þá rann út frestur liðanna í deildinni til að skipta á leikmönnum. Svo fór að lokum að aðeins tvenn skipti fóru fram á síðustu stundu, en heimildir herma að tilboð LA Lakers um að fá til sín leikstjórnandann Jason Kidd hafi strandað á elleftu stundu. 22.2.2007 22:04
Roma tapaði fyrir Tel Aviv Jón Arnór Stefánsson og félagar í ítalska liðinu Lottomatica Roma töpuðu í kvöld fyrir Maccabi Tel Aviv á heimavelli í Meistaradeildinni í körfubolta 71-69. Jón Arnór spilaði 14 mínútur í leiknum og skoraði 4 stig. 22.2.2007 22:01
KR lagði ÍR Fjórir leikir fóru fram í karlakörfunni í kvöld og einn í kvennaflokki. Í úrvalsdeild karla vann KR góðan sigur á ÍR 89-81, Snæfell lagði Hamar 83-60, Grindavík lagði Tindastól 109-99 og Fjölnir lagði Þór 102-91 í framlengingu. Í kvennaflokki völtuðu Íslandsmeistarar Hauka yfir Breiðablik 116-74. 22.2.2007 21:56
Newcastle í 16-liða úrslit Enska liðið Newcastle tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með 1-0 sigri á belgíska liðinu Zulte-Waregem á heimavelli. Það var Obafemi Martins sem skoraði sigurmark Newcastle, sem mætir Grétari Steinssyni og félögum í AZ Alkmaar í næstu umferð. AZ gerði 2-2 jafntefli við Fenerbahce í kvöld og fór áfram á útimörkum. 22.2.2007 21:48
Dennis Johnson látinn Fyrrum NBA leikmaðurinn Dennis Johnson sem gerði garðinn frægan með Seattle Supersonics og Boston Celtics á níunda áratugnum er látinn. Johnson var þjálfari Austin Toros í æfingadeildinni í NBA og var bráðkvaddur á æfingu liðsins í dag. Hann var aðeins 52 ára gamall. 22.2.2007 21:30
Blackburn úr leik í Evrópukeppninni Enska liðið Blackburn er úr leik í Evrópukeppni félagsliða eftir 0-0 jafntefli gegn Leverkusen í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum keppninnar á Ewood Park í kvöld. Leverkusen vann fyrri leikinn 3-2 og er komið í 16-liða úrslit. Blackburn fékk nokkur ágæt færi í síðari hálfleiknum en náði ekki að nýta þau og er fallið úr leik. 22.2.2007 19:56
Græddu vel á golftilþrifum Bellamy Það er sannarlega ekkert nýtt undir sólinni þegar kemur að veðbönkum í Bretlandi og nokkrir stuðningsmanna Liverpool högnuðust vel í gærkvöldi þegar þeir veðjuðu á leik Barcelona og Liverpool í Meistaradeildinni. 22.2.2007 19:12
Markalaust á Ewood Park í hálfleik Ekkert mark hefur enn litið dagsins ljós í leik Blackburn og Bayer Leverkusen á Ewood Park, en leikurinn er sýndur beint á Sýn. Þetta er síðari leikur liðanna í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða og hefur þýska liðið 3-2 forystu frá fyrri leiknum. Blacburn nægir því 1-0 sigur á heimavelli til að komast áfram í keppninni. 22.2.2007 18:54