Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sigur í fyrsta leik Anthony og Iverson með Denver Carmelo Anthony spilaði í nótt sinn fyrsta leik með Denver Nuggets eftir 15 leikja bann og þetta var jafnframt fyrsti leikur hans með Allen Iverson. Lengi hafði verið beðið eftir því að þeir Anthony og Iverson spiluðu sinn fyrsta leik saman og þeir ollu ekki vonbrigðum og tryggðu Denver sigur á Memphis. 23.1.2007 11:37
Þetta gerist ekki á hverjum degi Feðgarnir Bjarki Sigurðsson og Örn Ingi Bjarkason spiluðu saman síðasta föstudag þegar Afturelding lék gegn Gróttu í 1. deild karla í handbolta. Þetta er í fyrsta sinn sem þeir feðgar leika saman en Bjarki er þjálfari Aftureldingar, sem situr í toppsæti deildarinnar. 23.1.2007 00:01
Ronaldo fer ekki frítt Spænska félagið Real Madrid segir það alveg ljóst að brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo fari ekki frá félaginu nú í janúar án þess að það fái greiðslu fyrir. Ronaldo hefur verið orðaður sterklega við ítalska liðið AC Milan. 23.1.2007 00:01
Liðið spilaði frábærlega „Mér gekk miklu betur í dag en í þessum hörmulega leik í gær. Ég ákvað að láta boltann rúlla og ráðast gegn frönsku vörninni og liðið spilaði hreint frábærlega," sagði Ólafur Stefánsson, sem gekk svo út að hliðarlínunni og tók í höndina á félaga sínum Degi Sigurðssyni, fyrrum landsliðsfyrirliða eins og sést hér á myndinni. 22.1.2007 21:10
Þetta var eina leiðin Eftir gærdaginn var aðeins ein leið fær, þessi," sagði Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður íslenska liðsins eftir stórsigur Íslendinga á Evrópumeisturum og heimsmeistaraefnum Frakka á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Þýskalandi. „Okkur tókst að snúa við því sem í gær virtist vera vonlaust," sagði Guðjón enn fremur í samtali við Þorstein J., fréttamann Stöðvar 2. 22.1.2007 21:05
Ísland burstaði Evrópumeistara Frakka Íslenska landsliðið í handknattleik vann í kvöld frábæran 32-24 sigur á Evrópumeisturum Frakka í lokaleik sínum í B-riðli. Íslenska liðið hafði yfirburði allan leikinn og sýndi einhvern besta leik sinn á síðustu árum. Liðið fer því áfram í milliriðil með tvö stig í farteskinu ásamt Frökkum, sem hafa ekkert stig. 22.1.2007 20:27
Tindastóll lagði ÍR í framlendum leik Tveir leikir fóru fram í úrvalsdeild karla í körfubolta. Tindastóll lagði ÍR fyrir norðan 103-97 eftir framlendan leik og Snæfell burstaði Hauka í Hólminum 96-71. Þá var einn leikur í kvennaflokki þar sem Keflavík vann öruggan sigur á ÍS 83-65 á útivelli. 22.1.2007 21:59
Úrslit dagsins á HM Það var mikið um dýrðir á lokadegi riðlakeppninnar á HM og frækinn sigur Íslendinga á Frökkum stendur þar klárlega uppúr. Norðmenn þurftu að bíta í það súra epli að missa af sæti í milliriðli eftir tap fyrir frændum sínum Dönum 27-25. 22.1.2007 21:31
Leikjaniðurröðun í milliriðla klár Riðlakeppni HM lauk í kvöld og því er ljóst hvaða lið fara í milliriðla á mótinu. Íslenska liðið tryggði sér góða stöðu í milliriðli með frábærum sigri á Frökkum í kvöld en á meðan tryggðu Danir sér sæti í milliriðli með sigri á Norðmönnum, sem sitja eftir með sárt ennið. Hér fyrir neðan má sjá stöðu og leikjaniðurröðun í milliriðlunum sem hefjast á miðvikudag. 22.1.2007 21:20
Blanco lánaður til West Ham Framherjinn Kepa Blanco hjá Sevilla hefur verið lánaður til Íslendingaliðsins West Ham á Englandi til loka leiktíðar. Blanco er 23 ára gamall og vitað er að Manchester City, Charlton og Everton voru á höttunum eftir honum. Blanko hefur skorað 3 mörk í 9 leikjum fyrir Sevilla á leiktíðinni. 22.1.2007 18:34
Pólverjar skelltu Þjóðverjum Pólverjar gerðu sér lítið fyrir og lögðu heimamenn Þjóðverja 27-25 í fyrsta leik dagsins á HM. Pólverjar tryggðu sér með þessu sigurinn í C-riðli og fara með tvö stig í milliriðil en Þjóðverjar fara með ekkert stig. 22.1.2007 17:54
Neill til West Ham - Warnock til Blackburn Enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn gekk í dag frá sölu á varnarmanninum Lucas Neill til West Ham og hefur nú fyllt skarð hans með kaupum á Stephen Warnock frá Liverpool. Warnock hafði aðeins spilað sjö leiki með Liverpool í vetur og var fyrir aftan þá John Arne Riise og Fabio Aurelio í goggunarröðinni. 22.1.2007 17:39
Henry er besti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar Enski landsliðsmaðurinn Michael Owen segir í viðtali við tímarit Sky sjónvarpsstöðvarinnar að Thierry Henry hjá Arsenal sé besti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. "Ég er alltaf jafn gáttaður á hæfileikum Henry," segir Owen í blaðinu sem kemur út í næsta mánuði. Owen hefur sett stefnuna á að snúa aftur úr meiðslum sínum í apríl í vor. 22.1.2007 17:03
Carew á leið til VIlla í skiptum fyrir Baros Eins og greint var frá í morgun er tékkneski landsliðsmaðurinn Milan Baros nú búinn að ganga frá félagaskiptum sínum frá Aston Villa til franska liðsins Lyon. Félögin hafa í hyggju að skipta á leikmönnum og ef allt gengur að óskum mun norski framherjinn John Carew fara til Villa í staðinn. 22.1.2007 16:58
Nowotny leggur skóna á hilluna Þýski varnarjaxlinn Jens Nowotny hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Nowotny, sem er 33 ára gamall, hefur átt við þrálát hnémeiðsli að stríða undanfarin ár og gerði garðinn frægan með þýska landsliðinu og Bayer Leverkusen. Hann spilaði 48 leiki fyrir þýska landsliðið og var nú síðast á mála hjá liði Dinamo Zagreb. 22.1.2007 15:59
Strákarnir sjá sjálfir um að gíra sig upp gegn Frökkum Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari segir íslensku landsliðsmennirnir sjái sjálfir um að gíra sig upp fyrir leikinn stóra gegn Frökkum á HM í kvöld, því þeir séu allir ósáttir við frammistöðu sína gegn Úkraínu í kvöld. Í viðtali við Ríkisútvarpið í hádeginu sagði Alfreð Frakka líklega vera með annað af tveimur bestu liðunum á mótinu. 22.1.2007 15:17
Mikil bjartsýni ríkir meðal stuðningsmanna íslenska liðsins Stuðningsmenn Íslenska landsliðsins í handbolta létu vonbrigði gærkvöldsins ekki hafa áhrif á sig og svo virðist sem eitthvað af anda stuðningsmannasamtakanna Í Blíðu og Stríðu hafi nuddast í landann að þessu sinni. 22.1.2007 14:43
Verður sagan á bandi Phoenix? Phoenix Suns varð í nótt aðeins áttunda liðið í sögu NBA deildarinnar til að ná tveimur 13 leikja sigurhrinum á sama keppnistímabilinu, en áður hafði liðið unnið 15 leiki í röð frá 20. nóvember til 19. desember. 22.1.2007 13:24
Farsímabann á opna breska Skipuleggjendur opna breska meistaramótsins í golfi hafa gefið það út að áhorfendum verði bannað að koma með gsm síma á keppnina á þessu ári eftir að keppendur kvörtuðu mikið undan þeim á mótinu á síðasta ári. Toger Woods var einn þeirra sem kvartaði yfir því að áhorfendur væru að taka myndir af sér á meðan hann var að keppa og sagði það trufla sig. 22.1.2007 13:11
Þetta verður gríðarlega jafn leikur Ulrik Wilbek, þjálfari Dana í handbolta, á ekki von á að skoruð verði mörg mörk í kvöld þegar hans menn mæta frændum sínum norðmönnum í leik upp á líf og dauða í E-riðlinum á HM. 22.1.2007 12:53
Brand kallar á gamlan ref Heiner Brand, þjálfari þýska landsliðsins í handbolta, hefur kallað gamla brýnið Christian Schwarzer frá Lemgo inn í landsliðshóp sinn vegna þeirra miklu meiðsla sem eru á mannskap hans. Schwarzer er 37 ára gamall og lagði landsliðsskóna á hilluna árið 2004, en hefur alltaf sagt að hann yrði tilbúinn ef til hans yrði leitað. 22.1.2007 12:49
Erfiðast að venjast veðrinu Ekki eru allir útlendingar í ensku úrvalsdeildinni lengi að smella inn í knattspyrnuna þar í landi og á meðan hvorki gengur né rekur hjá framherjanum Andriy Shevchenko hjá Chelsea, hefur Ítalinn Vincenzo Montella farið á kostum í fyrstu leikjum sínum með Fulham. 22.1.2007 12:37
Shay Given verður frá í mánuð Írski markvörðurinn Shay Given verður frá keppni í að minnsta kosti mánuð eftir að hann tognaði á nára í leiknum við West Ham um helgina sem lauk með jafntefli 2-2. Þetta er í annað sinn sem Given meiðist gegn West Ham á þessari leiktíð. Liðið er þó ekki á flæðiskeri statt, því varamarkvörðurinn Steven Harper hefur þegar náð sér af sínum meiðslum. 22.1.2007 12:29
Anelka vill fara aftur til Arsenal Franski framherjinn Nicolas Anelka viðurkenndi í samtali við fjölmiðla í heimalandi sínu um helgina að hann væri vel til í að fara aftur til Arsenal, þar sem hann hóf feril sinn á Englandi á sínum tíma. Þessi ummæli hans fara eflaust öfug ofan í knattspyrnustjóra hans Sam Allardyce hjá Bolton. 22.1.2007 12:22
Fernandes í læknisskoðun hjá Everton Enska úrvalsdeildarfélagið Everton er nú í viðræðum við miðjumanninn Manuel Fernandes hjá Benfica og gengur væntanlega frá lánssamningi við hann í dag ef hann stenst læknisskoðun sem stendur yfir nú í hádeginu. Fernandes er tvítugur og ef hann stendur sig vel fram á vor mun hann væntanlega ganga formlega í raðir Everton í sumar. Hann var áður hjá Portsmouth og spilaði þar 12 leiki. 22.1.2007 12:18
Baros á leið til Lyon Forráðamenn Lyon í Frakklandi segja að nú sé aðeins klukkutímaspursmál hvenær liðið landi tékkneska framherjanum Milan Baros frá Aston Villa. Félögin hafa verið í viðræðum síðan á föstudag og forseti franska félagsins er mjög bjartsýnn á að ná að klára viðskiptin fljótlega. 22.1.2007 12:15
10 milljón punda tilboð í Bale væntanlegt Breska sjónvarpið greindi frá því í morgun að ónefnt félag væri að íhuga að gera 10 milljón punda kauptilboð í velska ungstirnið Gareth Bale hjá Southampton. Félagið hefur tekið það fram að Bale verði ekki seldur fyrr en í fyrsta lagi í sumar og hefur þegar neitað tilboðum á bilinu 6-8 milljónir punda frá félögum eins og Tottenham og Manchester United. 22.1.2007 12:11
United mun halda velli Arsene Wenger segir að titilvonir Manchester United hafi ekki beðið hnekki í gær þrátt fyrir tapið fyrir Arsenal. "United er mjög sigurstranglegt í deildinni og þó tapið fyrir okkur hafi verið þeim mikið áfall, veit ég að liðið mun taka sig saman í andlitinu og halda áfram að vinna. Það er hinsvegar fínt fyrir deildina að allir séu enn inni í myndinni," sagði Wenger. 22.1.2007 12:02
Þrettán í röð hjá Phoenix Suns Phoenix Suns burstaði Minnesota Timberwolves 131-102 í NBA í nótt og vann þar með sinn 13. leik í röð. Amare Stoudemire skoraði 25 stig fyrir Phoenix, Leandro Barbosa 20 og Shawn Marion skoraði 17 stig og hirti 20 fráköst. Randy Foye skoraði 25 stig fyrir Minnesota. 22.1.2007 11:36
Verða að vinna Frakka Eftir tapið gegn Úkraínu í gær er ljóst að Ísland verður að vinna Frakka í kvöld til þess að komast áfram í milliriðil. Ef það tekst ekki fer liðið í Forsetabikarinn og mun mæta þar þjóðum á borð við Kúveit, Grænlandi, Brasilíu og Argentínu. 22.1.2007 00:01
Ligg bara í leti og horfi á HM Davíð Georgsson, handboltamaðurinn efnilegi úr ÍR, hefur gengist undir aðgerð vegna meiðsla á hné. Davíð er aðeins nítján ára en hefur leikið lykilhlutverk með ÍR í DHL-deildinni og skorað mikið. 22.1.2007 00:01
Ævintýralegur fyrri hálfleikur Ísland hefur yfir 18-8 þegar flautað hefur verið til leikhlés í lokaleik liðsins gegn Frökkum í B-riðli heimsmeistaramótsins í handbolta. Segja má að allt hafi gengið upp hjá íslenska liðinu fyrstu 30 mínúturnar, en liðið komst í 5-0 og náði svo tíu marka forskoti undir lok hálfleiksins. 22.1.2007 19:40
Ótrúleg byrjun íslenska liðsins Íslenska landsliðið hefur náð 5-0 forystu gegn Frökkum í leik þjóðanna á HM. Íslensku strákarnir voru um tíma tveimur færri en náðu samt að halda hreinu. Rétt í þessu voru Frakkar að skora sitt fyrsta mark eftir heilar 7 mínútur. 22.1.2007 19:09
Alfreð gerir breytingar Tvær breytingar hafa verið gerðar á íslenska hópnum fyrir leikinn gegn Frökkum í dag. Markús Máni Michaelsson kemur inn fyrir Arnór Atlason og þá hefur Hreiðar Guðmundsson tekið stöðu Rolands Eradze í markinu. 22.1.2007 18:58
Lélegasti leikur Íslands í mörg ár Fyrrum landsliðsmaðurinn Sigurður Sveinsson segist vera í hálfgerðu losti eftir leik Íslendinga og Úkraínumanna í dag. Hann segir leik íslenska liðsins þann slakasta sem hann hafi séð í mörg ár og setur spurningamerki við hugarfar leikmanna í dag. 21.1.2007 20:30
Tap hjá Jóni Arnóri og félögum Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í spænska liðinu Valencia töpuðu naumlega fyrir liði Etosa Alicante 75-74 í ABC deildinni í dag. Jón Arnór skoraði 11 stig á 30 mínútum fyrir Valencia. Liðið er nú í 10. sæti deildarinnar með 9 sigra og 9 töp. 21.1.2007 23:32
Jefferson úr leik Framherjinn Richard Jefferson verður úr leik um óákveðinn tíma í liði New Jersey Nets í NBA eftir að ljóst varð að hann þyrfti að fara í uppskurð vegna ökklameiðsla sem hafa hrjáð hann allar götur síðan í haust. Ljóst er að hann verður frá í að minnsta kosti nokkrar vikur og ekki er ástandið gott fyrir hjá liði Nets, sem hefur valdið stuðningsmönnum sínum gríðarlegum vonbrigðum í vetur. 21.1.2007 23:15
Spútniklið Ungverja lagði Norðmenn Ungverjar tryggðu sér sæti í milliriðlum á HM í síðasta leik mótsins í kvöld þegar liðið skellti Norðmönnum 25-22 eftir að hafa verið yfir 15-13 í hálfleik. Ungverjar lögðu Dani í gær og því verður leikur Dana og Norðmanna upp á líf og dauða á morgun. Gabor Császár skoraði 8 mörk fyrir Ungverja í kvöld og Frank Loke 7 fyrir Norðmenn, en þrír leikmenn fengu rautt spjald í þessum átakaleik í kvöld. 21.1.2007 22:30
Johnson slapp við brot Framherjinn skæði Andy Johnson hjá Everton er ekki ökklabrotinn eins og óttast var í fyrstu þegar hann meiddist illa í leik Wigan og Everton í dag. Johnson var borinn af velli og færður á sjúkrahús, en þar leiddi rannsókn í ljós að hann er óbrotinn. Enn er þó ekki víst hvenær hann getur spilað á ný. 21.1.2007 22:15
Real Madrid í þriðja sæti Real Madrid komst í kvöld í þriðja sætið í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu með mikilvægum 1-0 sigri á Mallorca. Það var Jose Antonio Reyes sem skoraði sigurmark Real beint úr aukaspyrnu undir lok leiksins. Barcelona, Sevilla og Real Madrid hafa nú öll 38 stig í efstu þremur sætum deildarinnar en meistararnir í Barcelona eiga leik til góða. 21.1.2007 21:54
Flugeldasýning í boði Phoenix í kvöld? Fastlega má búast við því að hið frábæra lið Phoenix Suns bjóði áskrifendum NBA TV á Fjölvarpinu upp á skrautsýningu klukkan eitt í nótt þegar liðið tekur á móti Minnesota Timberwolves. Tveir bestu menn gestanna, þeir Kevin Garnett og Ricky Davis, verða í leikbanni og því verður forvitnilegt að sjá hvort liðinu tekst að hanga í Phoenix sem hefur unnið 12 leiki í röð. 21.1.2007 21:46
Haukar völtuðu yfir Hamar Yfirburðir Íslandsmeistara Hauka voru sem fyrr ótrúlegir þegar liðið kjöldró Hamar á heimavelli sínum á Ásvöllum í dag í efstu deild kvenna í körfubolta. Haukar höfðu sigur 107-54 þrátt fyrir að lykilmenn liðsins spiluðu ekki nema rúmlega hálfan leikinn. 21.1.2007 21:33
Njarðvíkingar á toppinn Njarðvíkingar sitja nú einir á toppi úrvalsdeildar karla í körfubolta eftir sigur á liði Hamar/Selfoss í Hveragerði í kvöld 75-69. Á sama tíma töpuðu KR-ingar fyrir Skallagrími í Borgarnesi 93-84 og Keflvíkingar unnu loks sigur þegar liðið skellti Fjölni 102-90 í Keflavík. Þá vann Grindavík nauma sigur á Þór Þorlákshöfn 98-97 í hörkuleik. 21.1.2007 21:23
Góð sárabót fyrir Dallas Einum leik er lokið í NBA í dag en hér var á ferðinni einvígi liðanna sem börðust um meistaratitilinn í fyrra. Þetta var fyrsti leikur liðanna síðan Miami tryggði sér titilinn í sumar, en Dallas kom fram hefndum með góðum sigri á útivelli 99-93 þar sem Jerry Stackhouse var hetja gestanna og skoraði 16 stig í fjórða leikhlutanum. 21.1.2007 21:10
Van Persie úr leik í sex vikur Jöfnunarmark hollenska framherjans Robin Van Persie hjá Arsenal gegn Manchester United reyndist honum dýrt, því í myndatöku eftir leikinn kom í ljós að hann er með brákað bein á ristinni og verður því frá keppni í að minnst sex vikur. 21.1.2007 21:02
Uppgjörið: Ármann-Stjarnan 88-90 | Orri með sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok Körfubolti