Fleiri fréttir

Sonko framlengir við Reading

Miðvörðurinn Ibrahima Sonko hjá Reading hefur nú fetað í fótspor félaga síns Ívars Ingimarssonar í vörninni og framlengdi í dag samning sinn við félagið til ársins 2010. Sonko er 25 ára og hefur nú gert nýjan og betri samning en þann gamla, sem renna átti út árið 2008. Hann hefur spilað 111 leiki fyrir félagið síðan hann gekk í raðir þess frá Brentford árið 2004.

Glazer-feðgar ætla að opna budduna

Glazer-feðgarnir amerísku sem eiga Manchester United, hafa gefið grænt ljós á að opna budduna í janúar til að styrkja leikmannahóp liðsins - að því gefnu að góðir menn finnist. Hópur United þykir nokkuð þunnur og því er ljóst að félagið verður helst að verða sér út um liðsstyrk í janúar fyrir lokaátökin.

Blackburn áfrýjar spjaldi Henchoz

Úrvalsdeildarlið Blackburn hefur áfrýjað rauða spjaldinu sem Stephane Henchoz fékk að líta í 3-1 tapi liðsins gegn Newcastle á laugardag. Henchoz fékk rautt hjá Dermot Gallagher fyrir brot á Obafemi Martins, en Blackburn menn vilja meina að það hafi verið glórulaus dómur. Henchoz fær að vita niðurstöðu málsins á morgun.

LA Lakers lagði San Antonio

Los Angeles Lakers vann í nótt góðan sigur á San Antonio Spurs 106-99 á heimavelli sínum Staples Center í Los Angeles, en lið Spurs hafði unnið fjóra leiki í röð. Kobe Bryant skoraði 34 stig fyrir Lakers og Lamar Odom skoraði 18 stig, hirti 11 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Manu Ginobili skoraði 23 stig af bekknum fyrir Spurs.

Lazio vann grannaslaginn

Lazio gerði grönnum sínum og erkifjendum í Roma litla greiða í kvöld þegar liðið vann 3-0 sigur í grannaslag liðanna í Rómarborg. Tap Roma þýðir að liðið er nú sjö stigum á eftir toppliði Inter Milan, en Lazio skellti sér í fimmta sætið með þessum glæsilega sigri.

Arsenal hefur brugðist Thierry Henry

Ian Wright, fyrrum leikmaður Arsenal, segir félagið hafa brugðist Thierry Henry eftir að hann skrifaði undir nýjan samning við félagið. Henry hefur ekki leikið með Arsenal í undanförnum leikjum og hefur fjarvera hans verið skrifuð á meiðsli, en heyrst hefur að fjarvera hans sé vegna ósættis hans við Arsene Wenger og forráðamenn félagsins.

KR lagði Tindastól

Nokkrir leikir fóru fram í bikarkeppninni í körfubolta í dag og í kvöld og þá var einn leikur á dagskrá í IE deild kvenna. KR-ingar notuðu góðan endasprett til að leggja Tindastól að velli fyrir norðan 94-86 þar sem Jeremiah Sola skoraði 33 stig og þá vann Hamar/Selfoss góðan sigur á grönnum sínum í Þór frá Þorlákshöfn 78-64.

Schalke upp að hlið Bremen

Schalke komst í dag upp að hlið Werder Bremen á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þegar liðið lagði granna sína í Dortmund 3-1. Kevin Kuranyi, Peter Lovenkrands og Christian Pander skoruðu mörk Schalke sem hefur 33 stig á toppnum líkt og Bremen. Ein umferð er nú eftir af þýsku úrvalsdeildinni fyrir vetrarhlé.

Arsenal hafði engan áhuga á að vinna leikinn

Jose Mourinho hrósaði sínum mönnum í Chelsea fyrir að ná að jafna metin gegn Arsenal eftir að hans menn höfðu lent undir á heimavelli í dag, en sagðist mjög hissa á því að Arsenal hefði mætt í leikinn án nokkurs áhuga á að reyna að vinna hann.

Wenger stoltur af sínum mönnum

Arsene Wenger sagðist vera stoltur af sínum mönnum í dag eftir að Arsenal slapp með 1-1 jafntefli frá viðureign sinni við Chelsea á Stamford Bridge. Hann segir að mark Chelsea hefði aldrei átt að standa vegna þess að Ashley Cole hafi brotið af sér skömmu áður en Michael Essien jafnaði leikinn með frábæru skoti.

Auðvelt hjá Inter

Inter Milan náði í dag 7 stiga forystu á toppi ítölsku deildarinnar með auðveldum 3-0 sigri á Empoli, en Roma getur minnkað forskot liðsins með sigri á grönnum sínum í Lazio í kvöld. Hernan Crespo, Zlatan Ibrahimovic og Walter Samuel skoruðu mörk Inter í dag, en vandræði granna þeirra í AC Milan halda áfram eftir að liðið gerði markalaust jafntefli við Torino á San Siro.

Arsenal slapp með skrekkinn

Ekki verður annað sagt en að Arsenal hafi verið með heilladísirnar á sínu bandi í dag þegar liðið náði 1-1 jafntefli við Chelsea á Stamford Bridge. Chelsea hafði mikla yfirburði í leiknum en þurfti engu að síður á einu af mörkum ársins að halda frá Michael Essien til að jafna leikinn eftir að Matthieu Flamini hafði komið Arsenal yfir.

HK skellti Íslandsmeisturunum

HK gerði sér lítið fyrir og lagði Íslandsmeistara Fram 32-29 í DHL deild karla í handbolta í Safamýri í dag. Valdimar Þórsson og Tomas Eitutis skoruðu 10 mörk hvor fyrir HK og Egidijus Petkevicius varði 22 skot í markinu en Andri Berg Haraldsson skoraði 7 mörk fyrir Fram.

Markalaust á Stamford Bridge í hálfleik

Nú hefur verið flautað til leikhlés í leik Chelsea og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni og er staðan jöfn 0-0. Chelsea hefur verið mun sterkara það sem af er og einu sinni hafa varnarmenn Arsenal bjargað á marklínu og svo átti Frank Lampard skot í stöng. Didier Drogba hefur einnig sett svip sinn á leikinn með óþolandi leikaraskap sínum.

AZ og Ajax skildu jöfn

AZ Alkmaar og Ajax skildu jöfn 2-2 í toppslag í hollenska boltanum í dag. Grétar Rafn Steinsson spilaði allan leikinn með Alkmaar í dag en Jóhannes Karl Guðjónsson var á bekknum og kom ekki við sögu í leiknum. Alkmaar er í öðru sæti deildarinnar á eftir PSV Eindhoven en Ajax er í því þriðja.

Stórleikur helgarinnar að hefjast

Leikur Chelsea og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni hefst nú klukkan 16 og eru byrjunarliðin klár. Thierry Henry er ekki í liði Arsenal vegna meiðsla og Robin Van Persie byrjar í stað Freddy Ljungberg. Þá kemur fyrirliðinn John Terry aftur inn í lið Chelsea eftir að hafa tekið út leikbann.

Nelson náði 1200. sigrinum

Don Nelson, þjálfari Golden State Warriors í NBA deildinni, varð í nótt annar þjálfarinn í sögu NBA deildarinnar til að vinna 1200 leiki á ferlinum þegar lið hans lagði New Orleans 101-80. Aðeins Lenny Wilkens hefur unnið fleiri leiki á þjálfunarferlinum en hann á að baki 1332 sigra og er fyrir nokkru hættur að þjálfa.

Quiros sigraði á Dunhill mótinu

Spænski kylfingurinn Alvaro Quiros sigraði nokkuð óvænt á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku sem lauk í dag, en Birgir Leifur Hafþórsson var á meðal keppenda á mótinu en komst ekki í gegn um niðurskurðinn. Quiros lauk keppni á 13 höggum undir pari, einu höggi á undan heimamanninum Schwartzel sem hafði forystu allt fram á lokahringinn.

Telur sig betri en Eric Cantona

Vængmaðurinn Cristiano Ronaldo hefur góða trú á sjálfum sér sem knattspyrnumanni og í dag sagði hann í samtali við News of the World að hann væri betri en sjálfur Eric Cantona sem á sínum tíma spilaði í treyju númer 7 hjá Manchester United.

Cisse kátur

Franski framherjinn Djibril Cisse segist vera kátur eins og lítill drengur yfir því að vera loksins farinn að spila á ný eftir enn eitt fótbrotið. Cisse lagði upp mark fyrir Marseille í gær þegar liðið lagði Monaco í frönsku deildinni en hann hafði þá ekki spilað leik síðan í júní. Cisse er á lánssamningi hjá franska liðinu frá Liverpool.

Yao Ming kláraði Washington

Kínverski risinn Yao Ming fór á kostum og skoraði 23 af 38 stigum sínum í fjórða leikhluta þegar Houston lagði Washington 114-109 á útivelli í NBA deildinni í nótt. Hann hirti auk þess 11 fráköst og varði 6 skot. Gilbert Arenas skoraði 41 stig fyrir Washington í þessum fjöruga leik sem sýndur var beint á NBA TV á Fjölvarpinu.

Sevilla lagði Real Madrid

Sevilla vann í kvöld mikilvægan 2-1 sigur á Real Madrid í uppgjöri liðanna í spænska boltanum. David Beckham kom Real yfir snemma leiks með glæsilegu marki úr aukaspyrnu, en Freddy Kanoute jafnaði fyrir Sevilla og það var svo varamaðurinn Chevanton sem skoraði sigurmark heimamanna með glæsilegri hjólhestaspyrnu 13 mínútum fyrir leikslok. Sevilla fór því upp fyrir Real í annað sæti deildarinnar.

Gott kvöld hjá Íslendingum

Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöl og segja má að þar voru íslensku leikmennirnir áberandi eins og svo oft áður. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 8 mörk og Einar Örn Jónsson 3 þegar hans menn í Minden unnu sjaldgæfan útisigur á Melsungen 27-28.

Pardew hefur enn trú á sínum mönnum

Alan Pardew, stjóri West Ham, viðurkenndi að lið hans hefði verið yfirspilað löngum stundum í dag þegar það steinlá 4-0 gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni. Pardew sagði vandræðaganginn í vörninni skrifast mikið til á þá staðreynd að miðverðir hans í dag hafi aldrei áður spilað leik saman.

Naldo með þrennu í stórsigri Bremen

Leikmenn Werder Bremen voru ekki lengi að hrista af sér vonbrigðin í Meistaradeildinni í vikunni þegar liðið malaði Frankfurt 6-2 á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Brasilíski varnarmaðurinn Naldo skoraði þrennu fyrir Bremen. Stuttgart lagði Bochum 1-0 og Bayern lagði Cottbus 2-1 með mörkum frá Schweinsteiger og Van Buyten.

Mikið fjör í bikarnum á morgun

Á morgun hefjast 16-liða úrslitin í Lýsingarbikar karla í körfubolta með fjórum leikjum. Grannliðin Hamar/Selfoss og Þór Þorlákshöfn eigast þá við í Hveragerði klukkan 16 og klukkan 19:15 mætast Keflavík B og Grindavík í Keflavík, Valur og Skallagrímur í Kennaraháskólanum og Tindastóll tekur á móti KR á Króknum.

Gummersbach og Ciudad áfram

Íslendingaliðið Gummersbach vann í dag sigur á rússneska liðinu Medvedi 32-29 í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta, en leikið var í Þýskalandi. Segja má að leikurinn hafi verið formsatriði fyrir lærisveina Alfreðs Gíslasonar eftir sex marka sigur í útileiknum. Róbert Gunnarsson skoraði 7 mörk fyrir Gummersbach, Guðjón Valur Sigurðsson 7 og varnarjaxlinn Guðlaugur Arnarsson 1.

Ronaldinho tryggði Barcelona sigur

Brasilíski snillingurinn Ronaldinho skoraði eina mark leiksins í kvöld þegar Barcelona sigraði Real Sociedad 1-0 í spænsku deildinni. Barcelona er því enn á toppnum en mátti þakka fyrir að sleppa með öll þrjú stigin í kvöld enda var liðið nokkuð frá sínu besta. Eiður Smári var í byrjunarliði Barcelona en fór af velli um miðjan síðari hálfleik. Nú er að hefjast bein útsending frá leik Real Madrid og Sevilla á Sýn.

Birmingham á toppnum í 1. deild

Birmingham smellti sér í dag á toppinn í ensku 1. deildinni með sannfærandi 3-1 sigri á Preston North End. Gary McSheffrey skoraði þrennu fyrir Birmingham en Derby lyfti sér í annað sætið með 1-0 sigri á lánlausu liði Leeds United á útivelli.

Juventus á toppinn

Juventus smellti sér á toppinn í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði Verona 1-0 í dag með marki frá Mauro Camoranesi. Juventus er á toppnum ásamt Bologna með 28 stig, en Napoli getur komist á toppinn á ný með sigri á Cesena á mánudaginn.

Elvis farinn úr húsi

Steven Pressley, sem kallaður er Elvis á meðal stuðningsmanna skoska úrvalsdeildarfélagsins Hearts, var í dag látinn fara frá félaginu eftir deilur við eiganda félagsins. Mikil ólga hefur ríkt í herbúðum félagsins undanfarnar vikur og ljóst að eigandi félagsins verður ekki vinsælli í kjölfar þess að fyrirliðinn var látinn fara.

Barcelona - Sociedad í beinni á Sýn

Nú er hafin leikur Barcelona og Real Sociedad í spænska boltanum og er hann sýndur beint í lýsingu Harðar Magnússonar á sjónvarpsstöðinni Sýn. Eiður Smári Guðjohnsen er á sínum stað í byrjunarliði Barcelona en síðar í kvöld verður svo á dagskrá Sýnar leikur Sevilla og Real Madrid.

Bolton burstaði West Ham

Bolton burstaði West Ham 4-0 í lokaleiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem þeir Björgólfur Guðmundsson og Eggert Magnússon sátu þungir á brún meðal áhorfenda og horfðu upp á lið sitt tapa enn eina ferðina.

Tottenham burstaði Charlton

Tottenham burstaði Charlton 5-1 í ensku úrvalsdeildinni í dag og því eru Hermann Hreiðarsson og félagar sem fyrr í vondum málum í botnbaráttunni. Liverpool burstaði Fulham 4-0 og Newcastle vann góðan 3-1 útisigur á Blackburn.

Höldum með Arsenal á morgun

Sir Alex Ferguson var mjög ánægður með frammistöðu sinna manna í grannaslagnum í Manchester í dag. United hafði sigur 3-1 og segir Ferguson liðið eiga að hafa reynslu til að verja forskot sitt á Chelsea áfram, en það er orðið 9 stig. Chelsea mætir Arsenal á morgun.

Pearce samur við sig

Stuart Pearce, stjóri Manchester City, er ekki vanur að skafa af hlutunum og það gerði hann heldur ekki í dag þegar hann var spurður út í brottrekstur framherjans Bernardo Corradi fyrir leikaraskap á lokamínútum leiksins gegn Manchester United.

Kiel upp að hlið Flensburg á toppnum

Kiel komst í dag upp að hlið Flensburg á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta þegar liðið skellti Lemgo 37-30 á heimavelli sínum. Logi Geirsson skoraði 4 mörk fyrir Lemgo í leiknum en Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað. Þrír leikir eru á dagskrá í deildinni síðar í kvöld.

Níu sigrar í röð hjá Phoenix

Phoenix Suns vann í nótt sinn níunda leik í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti Boston á útivelli 116-111. Shawn Marion skoraði 29 stig og hirti 12 fráköst fyrir Phoenix en Paul Pierce skoraði 36 stig fyrir Boston.

Tottenham yfir gegn Charlton

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Tottenham hefur 2-1 forystu gegn Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton. Dimitar Berbatov og Teemu Tainio komu heimamönnum í 2-0 en Michael Dawson jafnaði fyrir gestina með sjálfsmarki skömmu fyrir leikhlé.

United vann grannaslaginn

Manchester United lagði granna sína í Manchester City 3-1 í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Wayne Rooney, Louis Saha og Cristiano Ronaldo skoruðu mörk United en Hatem Trabelsi minnkaði muninn fyrir City - sem missti Bernardo Corradi af velli með rautt spjald á síðustu mínútunni. United hefur því náð 9 stiga forskoti á Chelsea á toppi deildarinnar.

Dramatískur sigur Flensburg

Lærisveinar Viggós Sigurðssonar í Flensburg tryggðu sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta þegar liðið vann 10 marka sigur á Celje Lasko á heimavelli sínum 36-26. Celje vann fyrri leik liðanna einnig með 10 marka mun á heimavelli, en þýska liðið fer áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Coppell stjóri nóvembermánaðar

Steve Coppell, stjóri Íslendingaliðs Reading í ensku úrvalsdeildinni, var í dag kjörinn knattspyrnustjóri mánaðarins í annað sinn á leiktíðinni. Reading hefur komið mjög á óvart í vetur og vann sigur á Tottenham, Charlton og Fulham, en tapaði fyrir Liverpool. Coppell var einnig kjörinn stjóri septembermánaðar.

Sacramento - Miami á Sýn í kvöld

Leikur Sacramento Kings og Miami Heat frá því liðna nótt verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 0:25 eftir miðnætti. Þá verður leikur Milwaukee og Memphis sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á Fjölvarpinu klukkan 1:30 í nótt svo það er nóg um að vera á skjánum fyrir körfuboltaáhugamenn í kvöld.

Ronaldo bestur í nóvember

Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United var í dag útnefndur knattspyrnumaður nóvembermánaðar í ensku úrvalsdeildarinnar. United tapaði ekki leik í deildinni í mánuðinum og skoraði Ronaldo tvö glæsileg mörk á þessum tíma. Þetta er í fyrsta sinn sem Portúgalinn ungi vinnur þessi verðlaun, en félagi hans Paul Scholes hjá United hreppti þau í október.

Iverson vill fara frá Philadelphia

Skorunarmaskínan Allen Iverson hjá Philadelphia 76ers í NBA virðist nú loksins vera búinn að fá nóg af því að tapa og nú hafa þær fréttir lekið út í fjölmiðla að Iverson hafi formlega farið fram á það við forseta félagsins að fá að fara frá félaginu.

Sjá næstu 50 fréttir