Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Engar væntingar skiluðu okkur HM-titlinum Marcello Lippi, ítalski þjálfarinn sem stýrði þjóð sinni til sigurs á HM í Þýskalandi í sumar, segir að litlar væntingar hafi átt stærstan þátt í að Ítalir urðu heimsmeistarar. “Það var engin pressa á okkur og það hjálpaði gríðarlega,” sagði Lippi við ítalska fjölmiðla í gær. 20.11.2006 14:30
Duncan afgreiddi Sacramento Tim Duncan lék sinn besta leik á tímabilinu þegar San Antonio vann þægilegan sigur á Sacramento í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Duncan skoraði 35 stig og hirti 14 fráköst í 108-99 sigri San Antonio. 20.11.2006 13:10
Tevez segist ekki vera á förum frá West Ham Argentínski sóknarmaðurinn Carlos Tevez kveðst ekki vera á leið úr herbúðum West Ham, þrátt fyrir að allt bendi til þess að Eggert Magnússon og félagar gangi frá kaupum á félaginu í dag. 20.11.2006 12:45
Aðgerðin á Shaq gekk vel Tröllið Shaquille O´Neal gekkst undir aðgerð á hné í gær, sem gekk afar vel, að sögn lækna hans. Búist er við því að Shaq hefji endurhæfingu á hnénu strax í dag. 20.11.2006 12:00
Liverpool spilar ljótan fótbolta Jan Kromkamp, hollenski bakvörðurinn sem yfirgaf Liverpool og gekk í raðir PSV í sumar, segir að hans fyrrum félagar á Anfield spili ljótan fótbolta sem gangi út á að gefa langar sendingar á Peter Crouch. Liverpool og PSV mætast í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag. 20.11.2006 11:00
Eiði Smára líkt við Romario Eiður Smári Guðjohnsen, eða “Guddy” eins hann er kallaður á Spáni, segir að mörkin tvö sem hann skoraði gegn Mallorca í gær komi til með að veita honum mikið sjálfstraust. Eiði Smára er líkt við Romario í spænskum fjölmiðlum í dag. 20.11.2006 09:15
Bárður hættur með ÍR Bárður Eyþórsson hefur sagt upp störfum sem þjálfari ÍR í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu ÍR óskaði Bárður eftir því að vera leystur undan samningi af persónulegum ástæðum. 20.11.2006 08:42
Rijkaard ánægður með Eið Smára Eiður Smári Guðjohnsen fær mikið hrós frá stjóra sínum Frank Rijkaard fyrir frammistöðu sína með Barcelona gegn Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Barcelona sigraði 4-1 og skoraði Eiður Smári tvö markanna. 20.11.2006 08:30
KR-ingar lögðu Íslandsmeistarana KR er komið á topp Iceland Express-deildarinnar í körfubolta eftir góðan sigur á Íslandsmeisturum Njarðvík í Frostaskjólinu í kvöld, 75-69. Skallagrímur stökk upp í annað sæti með því að leggja Grindavík af velli á heimavelli sínum, 83-74. 19.11.2006 21:15
Eiður Smári skoraði tvö í sigri Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen átti mjög góðan leik og skoraði tvö fyrstu mörk Barcelona þegar Spánar- og Evrópumeistararnir unnu Mallorca, 4-1, á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. 19.11.2006 20:08
Áhorfendur ruddust inn á völlinn Leikur ADO Den Haag og Vitesse Arnhem í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag var flautaður af um miðjan síðari hálfleik eftir að hundruðir stuðningsmanna ADO ruddust inn á völlinn og létu öllum illum látum. 19.11.2006 19:00
Markvarsla ársins hjá Sörensen? Martin O´neill, knattspyrnustjóri Celtic, segist sjaldan hafa séð eins góða markvörslu og þegar Thomas Sörensen varði skalla frá Lee McCullogh strax á 2. mínútu leiks Aston Villa og Wigan í dag. 19.11.2006 19:00
Eiður Smári í byrjunarliðinu Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem mætir Mallorca á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikurinn hófst kl. 18:00 og er í beinni útsendingu á Sýn. 19.11.2006 18:13
Blackburn og Tottenham gerðu jafntefli Blackburn og Tottenham skildu jöfn, 1-1, í síðari leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Tveir leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í leiknum. 19.11.2006 17:52
Stjarnan upp í fjórða sæti Stjarnan er komið upp í 4. sæti DHL-deildar karla í handbolta eftir góðan sigur á Fylki í Árbænum í dag, 27-24. Fram sigraði ÍR í Breiðholtinu, 40-29. 19.11.2006 17:45
Inter með þriggja stiga forystu Inter Milan er með þriggja stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar í fótbolta eftir leiki dagsins. Hernan Crespo tryggði liðinu 1-0 sigur á Reggina en Roma burstaði Catania, 7-0. 19.11.2006 16:45
Eiður Smári: Mörkin munu koma Eiður Smári Guðjohnsen kveðst handviss um að hann muni vera duglegri við að skora mörk fyrir Barcelona á næstu vikum heldur en hann hefur verið það sem af er leiktíð. Barcelona mætir Mallorca kl. 18 og er leikurinn í beinni útsendingu á Sýn. Eiður Smári verður að öllum líkindum í byrjunarliðinu. 19.11.2006 16:00
Wigan og Aston Villa skildu jöfn Einum leik er lokið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Wigan og Aston Villa gerðu markalaust jafntefli í leik sem reyndist ekki mikið fyrir augað. Kl. 16 hefst leikur Blackburn og Tottenham. 19.11.2006 15:45
Við getum unnið allt Cristiano Ronaldo segir að Man. Utd. hafi burði til að standa uppi sem sigurvegarar ensku úrvalsdeildarinnar og Meistaradeildar Evrópu þegar núverandi tímabili lýkur um mitt næsta ári. 19.11.2006 15:15
Arenas skoraði 45 stig í sigri á Cleveland Gilbert Arenas var sjóðandi heitur og skoraði 45 stig þegar lið hans Washington bar sigurorð af Cleveland í NBA-deildinni í nótt. Sigurganga Utah Jazz heldur áfram og í nótt lá Pheonix í valnum. 19.11.2006 15:08
Robben varar Mourinho við að kaupa Malouda Arjen Robben, hollenski sóknarmaðurinn hjá Chelsea, hefur varað forráðamenn Chelsea við því að kaupa Florent Malouda frá Lyon. Robben nánast hótar því að fara frá félaginu ef franski landsliðsmaðurinn verður keyptur í janúar. 19.11.2006 14:45
Harrington hafði betur í bráðabana Frábær endasprettur Írans Padraig Harrington tryggði honum frækinn sigur á Dunlop Pheonix mótinu sem lauk í Japan í morgun. Harrington sigraði Tiger Woods í bráðabana eftir að sá síðarnefndi hafði farið illa að ráði sínum á lokasprettinum. 19.11.2006 14:15
Barcelona þarf ekki nýjan sóknarmann – þeir eiga annan Messi Mikið hefur rætt og skrifað um nauðsyn þess að Barcelona fái til sín nýjan sóknarmann í fjarveru Samuel Eto´o og Lio Messi. En færri vita að með spænskum ríkisborgararétt Rafel Marques hafa opnast dyr fyrir 17 ára undrabarn í herbúðum liðsins – hinn 17 ára gamla Giovani. 19.11.2006 00:01
Gengið frá kaupunum á mánudag Fjárfestingarhópur Eggerts Magnússonar mun ganga formlega frá kaupum á West á mánudag, að því er breska blaðið Independent heldur fram í morgun. Eggert verður stjórnarformaður, Björgólfur Guðmundsson verður ekki í stjórn og Argentínumennirnir Javier Mascherano og Carlos Tevez fara frá félaginu. 18.11.2006 20:00
Wenger óánægður með varnarleikinn Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, kennir slökum varnarleik sinna manna um jafnteflið gegn Newcastle í dag. Enn einu sinni voru leikmenn Arsenal með skelfilega nýtingu í sókninni. 18.11.2006 20:00
Ferguson hrósar sínum mönnum Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd. hrósaði leikmönnum sínum í hástert eftir leikinn gegn Sheffield United í dag og sagði þá hafa sýnt mikinn karakter með því að tryggja sér sigur eftir að hafa lent undir. 18.11.2006 19:30
Markalaust hjá Middlesbrough og Liverpool Útivallagrýla Liverpool hélt áfram í dag þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Middlesbrough á útivelli í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool hefur nú hlotið tvö stig í sjö útileikjum tímabilsins og skorað í þeim eitt mark. 18.11.2006 19:08
Bayern lagði Stuttgart í toppslagnum Bayern Munchen unnu góðan sigur á Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, 2-1, eftir að hafa lent undir strax á 8. mínútu leiksins. Við tapið féll Stuttgart af toppi deildarinnar en þar situr nú Schalke eftir 4-2 sigur á Engergie Cuttbus. 18.11.2006 18:30
Þýskaland lagði Svía af velli Þjóðverjar unnu öruggan sigur á Svíum, 30-24, í vináttulandsleik í handbolta sem fram fór í Þýskalandi í dag. Þá höfðu Norðmenn betur gegn Dönum, 26-23. 18.11.2006 18:22
Ótrúlegur sigur Vals Arnór Gunnarsson tryggði Valsmönnum dramatískan sigur á Haukum á Ásvöllum í dag þegar hann skoraði sigurmarkið þremur sekúndum fyrir leikslok. Lokatölur urðu 30-29 fyrir Val sem er komið á topp DHL-deildarinnar að nýju. Í DHL-deild kvenna vann Grótta sigur á Fram. 18.11.2006 17:50
Einvígi Man. Utd. og Chelsea heldur áfram Manchester United heldur toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 útisigur á nýliðum Sheffield United í dag þar sem Wayne Rooney skoraði bæði mörk Rauðu djöflanna. Meistarar Chelsea fylgja þeim rauðklæddu eins og skugginn en liðið lagði West Ham á Stamford Bridge, 1-0. 18.11.2006 17:10
Sama gamla sagan hjá Arsenal Ófarir Arsenal á hinum nýja heimavelli sínum, Emirates, halda áfram og í dag náði liðið aðeins jafntefli gegn Newcastle. Arsenal sótti án afláts í leiknum og hefði með réttu átt að skora nokkur mörk en eins og í síðustu leikjum gengur liðið herfilega að nýta marktækifærin. 18.11.2006 17:06
Getum vel unnið án Messi og Eto´o Ludovic Giuly, franski sóknarmaðurinn hjá Barcelona, segir að liðið þurfi ekki á auknum liðsstyrk að halda þótt að Lionel Messi og Samuel Eto´o séu frá næstu vikur vegna meiðsla. 18.11.2006 16:30
Messi hefði átt að fara í aðgerð í sumar Læknir argentínska landsliðsins í fótbolta segir nýlegt ristarbrot Lionel Messi ekki hafa komið sér á óvart þar sem hann hefði verið mjög tæpur í fætinum síðustu mánuði. Læknirinn segir Barcelona hafa hunsað ráð sín. 18.11.2006 16:30
Helgi mætir gömlu félögunum í fyrsta leik Örlögin létu til sín taka þegar dregið var í töfluröð fyrir næsta keppnistímabil í fótboltanum hér heima. Í Landsbankadeild karla mun Fram taka á móti Val í fyrsta leik, en sem kunnugt er fór Helgi Sigurðsson í fússi frá Fram til Vals í síðustu viku. Íslandsmeistarar FH mæta ÍA í fyrsta leik á Akranesi. 18.11.2006 16:15
Hermann og Ívar byrja - Brynjar á bekknum Þrír Íslendingar eru í eldlínunni í leik Reading og Charlton í ensku úrvalsdeildinni sem er nýhafinn. Ívar Ingimarsson er í byrjunarliði Reading en Brynjar Björn Gunnarsson er á bekknum. Hjá Charlton er Hermann Hreiðarsson í byrjunarliðinu. 18.11.2006 15:14
Fulham steinlá gegn Manchester City Heiðar Helguson og félagar hans í Fulham réðu ekki feitum hesti frá heimsókn sinni til Manchester í dag og töpuðu 3-1 fyrir heimamönnum í City. Heiðar kom inn á í hálfleik og lagði upp mark Fulham. 18.11.2006 15:06
Gallas nýtur hverrar mínútu Franski varnarmaðurinn William Gallas er hæsta ánægður í herbúðum Arsenal og segist alls ekki sjá eftir því að hafa yfirgefið herbúðir Chelsea í sumar. 18.11.2006 14:30
Wenger leggur áherslu á stöðugleika Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að lið sitt verði að fá stöðugleika í leik sinn ætli sér það að berjast um meistaratitilinn í vetur. Arsenal mætir Newcastle í dag. 18.11.2006 14:15
Wenger og Ferguson minnast Puskas Margir aðilar innan knattspyrnuheimsins hafa vottað Ferenc Puskas virðingu sína í dag, en þessi fyrrum ungverski landsliðsmaður, oft talinn einn besti leikmaður sögunnar, lést sem kunnugt er á föstudag. Alex Ferguson og Arsene Wenger hafa nú tjáð sig um Puskas. 18.11.2006 14:15
Cannavaro verður valinn bestur Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro verður valinn leikmaður ársins af franska fótboltatímaritinu France Football, að því er Ramon Calderon, forseti Real Madrid, heldur fram. 18.11.2006 14:00
Becks stakk af í brúðkaup Cruise David Beckham er sagður vera kominn í ónáð hjá þjálfara sínum hjá Real Madrid, Fabio Capello, fyrir að mæta í brúðkaup kvikmyndaleikarans Tom Cruise. 18.11.2006 12:42
Ferguson skammar enska fjölmiðla Alex Ferguson hefur komið fyrrum aðstoðarmanni sínum hjá Man. Utd. Og núverandi landsliðsþjálfara Englendinga, Steve McLaren, til varnar. Hann segir McLaren fá ósanngjarna meðferð hjá fjölmiðlum. 18.11.2006 12:37
Utah heldur sínu striki Utah Jazz hélt áfram á sigurbraut sinni í NBA-deildinni og í nótt sigraði liðið Seattle á útivelli, 118-109. Utah er með besta vinningshlutfallið í deildinni; hefur unnið átta af níu leikjum sínum. 18.11.2006 11:24
Shaquille O´Neal þarf í aðgerð NBA meistarar Miami Heat verða án miðherja síns Shaquille O´Neal næstu 4-6 vikurnar eftir að læknar liðsins tilkynntu í kvöld að hann þyrfti í uppskurð vegna hnémeiðsla. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir meistarana, sem hafa ekki byrjað leiktíðina með neinum glæsibrag. 18.11.2006 01:40