Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Pesic semur við Fram Miðjumaðurinn Igor Pesic, sem leikið hefur með Skagamönnum undanfarin tvö ár, hefur gengið frá þriggja ára samningi við nýliða Fram í Landsbankadeildinni. Pesic leikur því á ný undir stjórn Ólafs Þórðarsonar sem þjálfaði hann hjá ÍA lengst af. 16.10.2006 16:15
Petr Cech verður frá í hálft ár Tékkneski landsliðsmarkvörðurinn Petr Cech hjá Chelsea gæti orðið frá keppni í allt að hálft ár að mati lækna sem framkvæmdu aðgerð á höfuðkúpubroti hans um helgina. Stephen Hunt, leikmaður Reading, hefur sent Cech skriflega afsökunarbeiðni fyrir að valda meiðslunum og stjóri Bolton hefur boðist til að lána Chelsea markvörð. 16.10.2006 14:46
Baldur Bett semur við Val Knattspyrnudeild Vals hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að félagið hafi gert þriggja ára samning við FH-inginn Baldur Bett. Baldur hefur leikið með FH síðan árið 2000 og á að baki 99 leiki í efstu deild. 16.10.2006 14:35
Sigurður hættur að þjálfa Stjörnuna Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem tilkynnt er að Sigurður Bjarnason hafi látið af störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins og aðstoðarmaður hans Magnús Teitsson sömuleiðis. 16.10.2006 14:12
Ætlar að spila aftur fyrir Rangers Gennaro Gattuso hjá AC Milan segist ákveðinn í að spila aftur með liði Glasgow Rangers á ný áður en hann leggur skóna á hilluna, en þessi magnaði miðjumaður var aðeins 19 ára gamall þegar Walter Smith keypti hann frá Perugia á sínum tíma og gaf honum tækifæri með Rangers. 15.10.2006 22:00
LA Lakers - Phoenix í beinni Viðureign LA Lakers og Phoenix Suns á undirbúningstímabilinu í NBA verður sýnd í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland í kvöld. Leikurinn fer fram í Las Vegas og hefst klukkan hálf tvö eftir miðnætti. 15.10.2006 20:00
Viðræður hafnar um nýjan samning Framherjinn Wayne Rooney er sagður vera kominn í viðræður við forráðamenn Manchester United um framlengingu á samningi sínum. Enn eru nokkur ár eftir af samningnum sem hann undirritaði þegar hann gekk í raðir félagsins frá Everton árið 2004 fyrir 27 milljónir punda. 15.10.2006 19:22
Barcelona lagði Sevilla Barcelona lagði Sevilla 3-1 í spænska boltanum í kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona. Ronaldinho skoraði tvö mörk, annað úr víti og Leo Messi bætti við þriðja marki Katalóníumanna sem skutust á toppinn með sigrinum. 15.10.2006 19:06
Betis - Deportivo í beinni Nú klukkan 19:00 hefst leikur Real Betis og Deportivo í spænska boltanum og er hann sýndur beint á Sýn. Betis er í fallsæti með aðeins 3 stig eftir 5 leiki, en Deportivo hefur fengið 10 stig og er í 7. sæti. 15.10.2006 18:59
Baulað á Jackson í Indiana Átta æfingaleikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA liðna nótt. Áhorfendur í Indiana bauluðu á vandræðagemlinginn Stephen Jackson þegar hann kom inn sem varamaður í tapleik gegn Utah Jazz. 15.10.2006 18:13
Haukar úr leik Haukastúlkur eru úr leik í Evrópukeppninni eftir að liðið gerði jafntefli við ungverska liðið Alcoa 22-22 á Ásvöllum í dag. Ungverska liðið vann fyrri leikinn með fimm marka mun og því er íslenska liðið úr leik. 15.10.2006 17:58
Inter á toppinn Inter Milan skellti sér á toppinn í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag með 2-1 sigri á Catania í dag. Það var Dejan Stankovic sem skorað bæði mörk Inter í dag og eru ítölsku meistararnir þar með komnir með 14 stig eftir 6 leiki og hafa 2 stiga forskot á Roma sem tapaði 1-0 úti gegn Reggina. 15.10.2006 17:39
Bolton í þriðja sætið Bolton skaust í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í dag með því að leggja Newcastle á útivelli 2-1. Newcastle hafði undirtökin framan af og Shola Ameobi kom liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. El Hadji Diouf skoraði hinsvegar tvö mörk á innan við tveimur mínútum í þeim síðari og gerði út um leikinn fyrir Bolton. 15.10.2006 17:24
RIbery vill fara til Arsenal Umboðsmaður franska miðjumannsins Franck Ribery segir leikmanninn hafa fullan hug á að ganga í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal í framtíðinni. 15.10.2006 16:30
Óttast að missa starfið Alan Pardew viðurkennir að hann óttist mjög að verða vikið úr starfi hjá West Ham eftir að liðið seig niður í fallbaráttuna í gær með 2-0 tapi gegn Portsmouth. 15.10.2006 16:00
Viktor Bjarki og Margrét Lára leikmenn ársins Viktor Bjarki Arnarsson úr Víkingi og Margrét Lára Viðarsdóttir úr Val voru í gær valin leikmenn ársins í karla- og kvennaflokki á Íslandsmótinu í knattspyrnu á lokahófi HSÍ sem haldið var á Hótel Íslandi. 15.10.2006 15:00
Cech fór í aðgerð Tékkneski markvörðurinn Petr Cech hjá Chelsea fór í aðgerð í dag vegna höfuðkúpubrots sem hann varð fyrir í leiknum gegn Reading í gærkvöldi. 15.10.2006 14:47
Getafe hefur tak á Real Madrid Stórliðið Real Madrid reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni við granna sína í smáliðinu Getafe í spænska boltanum í gær og tapaði 1-0 á útivelli. Eins og til að fullkomna ömurlegt kvöld fyrir Real, lék framherjinn Ronaldo reka sig af velli fyrir kjaftbrúk í lok leiksins og verður því í banni í næsta leik þegar Real mætir Barcelona. 15.10.2006 11:15
Cech var á sjúkrahúsi í nótt Petr Cech, aðalmarkvörður Chelsea, varði síðustu nótt á sjúkrahúsi eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg í upphafi leiksins gegn Reading í gær, en Carlo Cudicini var leyft að fara heim að lokinni rannsókn í gærkvöldi. 15.10.2006 08:00
Æfur yfir meiðslum markvarða sinna Jose Mourinho var afar ósáttur við framgöngu Stephen Hunt í leik Reading og Chelsea í dag, en honum þótti Hunt brjóta gróflega á Petr Cech með þeim afleiðingum að markvörðurinn lenti á sjúkrahúsi líkt og félagi hans Carlo Cudicini. 15.10.2006 01:07
Ósáttur við færin sem fóru forgörðum Martin Jol þurfti enn að skammast yfir því hvað leikmenn hans fóru illa með færi sín þegar liðið gerði jafntefli við Aston Villa á útivelli í dag. 14.10.2006 21:15
Telur að Watford muni halda sér í deildinni Arsene Wenger segir sitt lið hafa þurft á öllu sínu að halda í dag þegar það lagði Watford 3-0 í ensku úrvalsdeildinni. Hann segir að þó Watford hafi enn ekki unnið leik í deildinni, hafi það alla burði til að halda sér uppi í vor. 14.10.2006 20:00
Fram steinlá í Noregi Íslandsmeistarar Fram spiluðu sinn slakasta leik til þessa í Meistaradeildinni þegar liðið steinlá 35-26 fyrir norsku meisturunum í Sandefjord í dag. Guðjón Drengsson skoraði 6 mörk fyrir Framara, sem verma nú botnsætið í riðli sínum í keppninni. 14.10.2006 18:34
Dýr sigur hjá meisturunum Englandsmeistarar Chelsea unnu mikilvægan 1-0 útisigur á Reading í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Ívar Ingimarsson tryggði Chelsea sigurinn með sjálfsmarki í blálokin á fyrri hálfleik, en sigurinn gæti átt eftir að reynast liði Chelsea mjög dýr. 14.10.2006 18:14
Valur lagði Stjörnuna Valsmenn unnu í dag góðan sigur á Stjörnunni í úrvalsdeild karla í handbolta 30-29 og því er Stjarnan enn án sigurs í deildinni eftir þrjá leiki. Ernir Hrafn Arnarson skoraði 7 mörk fyrir Val og Patrekur Jóhannesson skoraði einni 7 mörk fyrir Stjörnuna. Ólafur Haukur Gíslason varði 17 skot í marki Vals. 14.10.2006 17:39
Bremen valtaði yfir Bochum Werder Bremen skellti sér á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag með því að valta yfir Bochum á útivelli 6-0. Frábært lið Bremen skoraði fimm mörk á síðasta hálftíma leiksins, en á meðan vann Bayern góðan sigur á Hertha Berlín 4-2. 14.10.2006 17:15
Ívar Ingimarsson í sviðsljósinu Íslenski landsliðsmaðurinn Ívar Ingimarsson hefur sannarlega verið í sviðsljósinu í leik Reading og Chelsea, en gestirnir hafa 1-0 forystu þegar flautað hefur verið til leikhlés. Ívar, sem ber fyrirliðabandið hjá Reading, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir aukaspyrnu Frank Lampard undir lok hálfleiksins, en áður hafði Ívar skallað í slá á eigin marki. 14.10.2006 17:06
Ferguson og Jewell hrósa Rooney Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United og Paul Jewell, stjóri Wigan, skiptust á að hrósa Wayne Rooney fyrir frammistöðu hans í sigri United í dag. Rooney náði ekki að skora mark, en leikur hans þótti bera vitni um að hann væri að finna sitt fyrra form. 14.10.2006 16:13
Ívar í byrjunarliði Reading Ívar Ingimarsson er að venju í byrjunarliði Reading í dag þegar liðið tekur á móti Englandsmeisturum Chelsea í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Brynjar Björn Gunnarsson er á varamannabekknum. 14.10.2006 16:08
Liverpool og Blackburn skildu jöfn Leikjunum sex sem hófust klukkan 14 í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið. Liverpool þurfti að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Blackburn á heimavelli sínum, en Arsenal vann auðveldan sigur á Watford 3-0. 14.10.2006 15:58
Sandefjord - Fram í beinni á Sýn Leikur norsku meistaranna Sandefjord og Íslandsmeistara Fram í meistaradeild Evrópu verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í dag. Útsending frá leiknum í Noregi hefst klukkan 16:45 og það kemur í hlut hins óviðjafnanlega Guðjóns Guðmundssonar að lýsa leiknum. 14.10.2006 15:45
Ráðgjafi McClaren segir af sér Max Clifford, ráðgjafi enska landsliðsþjálfarans Steve McClaren, hefur sagt starfi sínu lausu. Clifford var ráðinn til að tala fyrir munn þjálfarans í fjölmiðlum og vernda hann fyrir árásum ágengra blaðamanna. 14.10.2006 15:11
Blackburn er yfir á Anfield Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Blackburn hefur yfir 1-0 gegn Liverpool á Anfield þar sem Benni McCarthy skoraði fyrir gestina. 14.10.2006 14:56
Sex leikir í nótt Sex leikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt. Leikur Houston og Atlanta var í beinni útsendingu á NBA TV. 14.10.2006 14:29
Man Utd lagði Wigan Manchester United vann góðan 3-1 útisigur á Wigan í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Wigan náði forystunni með marki úr aukaspyrnu í fyrri hálfleik, en Nemanja Vidic, Louis Saha og Ole Gunnar Solskjær tryggðu gestunum öruggan sigur með mörkum í þeim síðari. 14.10.2006 14:02
Houston - Atlanta í beinni NBA TV sjónvarpsstöðin á Digital Ísland heldur áfram beinum útsendingum frá undirbúningstímabilinu í NBA í nótt, en klukkan 0:30 verður á dagskrá leikur Houston Rockets og Atlanta Hawks. 13.10.2006 22:15
Haukar töpuðu fyrir Alcoa Kvennalið Hauka tapaði í kvöld fyrri leik sínum gegn ungverska liðinu Cornexi Alcoa 31-26 í Evrópukeppninni í handbolta. Síðari leikur liðanna verður einnig á Ásvöllum og þar verður bíður Hauka erfitt verkefni gegn þessu sterka liði, sem komst í undanúrslit EHF keppninnar á síðustu leiktíð. 13.10.2006 21:43
Fjölmiðlar telja Joorabchian líklegri til að kaupa West Ham Breska blaðið The Times fullyrðir í dag að íranski viðskiptajöfurinn Kia Joorabchian sé líklegri en Eggert Magnússon til að kaupa enska úrvalsdeildarfélagið West Ham. Eggert vísar þeim fregnum á bug að 8 milljarða tilboði hans í félagið hafi verið hafnað. 13.10.2006 21:00
Grótta á toppnum Einn leikur fór fram í DHL deild kvenna í handknattleik í kvöld. Gróttustúlkur styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar með auðveldum sigri á HK 32-24 og hefur liðið unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni. 13.10.2006 20:50
Paul Grant að taka við Norwich Paul Grant, aðstoðarknattspyrnustjóri West Ham, verður tilkynntur formlega sem nýr knattspyrnustjóri 1. deildarliðs Norwich á mánudaginn. Norwich mun væntanlega greiða úrvalsdeildarfélaginu eitthvað fé fyrir Grant, en á heimasíðu Norwich segist hann fagna því að taka frábæru félagi sem ætli sér stóra hluti. Grant spilaði 75 leiki fyrir Norwich á sínum tíma. 13.10.2006 19:45
Aftur keppt á Spa á næsta ári Forráðamenn Belgíukappakstursins hafa náð samkomulagi við Bernie Ecclestone um að endurvekja keppnishald á Spa-brautinni þar í landi, en ekki var keppt á brautinni í ár eftir að mótshaldarar fóru á hausinn. Brautin hefur verið endurbætt fyrir um 25 milljónir dollara og verður keppt á þessari sögufrægu braut á ný í september á næsta ári. 13.10.2006 19:00
Schumacher heiðraður í Brasilíu Þýski ökuþórinn Michael Schumacher tekur um næstu helgi þátt í sínum síðasta kappakstri á ferlinum þegar lokamót ársins fer fram í Brasilíu og þar verður hann heiðraður sérstaklega af knattspyrnugoðsögninni Pele. 13.10.2006 18:15
Lætur blaðamenn heyra það Sir Alex Ferguson er búinn að fá nóg af nornaveiðum fjölmiðla á Wayne Rooney og segir þá njóta þess að velta sér upp úr erfiðleikum hans á knattspyrnuvellinum. 13.10.2006 17:45
Andy Johnson bestur í september Framherjinn Andy Johnson hjá Everton var í dag kjörinn leikmaður septembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Johnson skoraði fjögur mörk í fjórum leikjum fyrir þá bláu í september og hefur alls skorað sex mörk í deildinni. 13.10.2006 17:17
Tony Mowbray tekur við West Brom Enska 1. deildarfélagið West Brom réði í dag Tony Mowbray í stöðu knattspyrnustjóra. Mowbray stýrði áður skoska liðinu Hibernian frá Edinborg og tekur nú við West Brom að Bryan Robson sem hætti störfum í síðasta mánuði. 13.10.2006 17:15