Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mál Arons skýrast eftir leikinn gegn Sviss Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta segir enga ákvörðun vera tekna með mál fyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar fyrr en eftir landsleikinn gegn Sviss á þriðjudaginn. Aron lét hafa eftir sér óheppileg ummæli um Albaníu á vefmiðlinum fotbolti.net sem hafa dregið dilk á eftir sér. 14.10.2012 14:14
Rúnar Már og Pálmi Rafn kallaðir í íslenska hópinn Lars Lagerbäck þjálfari íslenska landsliðsins í fótbolta tilkynnti á blaðamannafundi eftir hádegið að Rúnar Már Sigurjónsson leikmaður Vals og Pálmi Rafn Pálmason leikmaður Lilleström hafi verið kallaðir inn í A-landslið karla fyrir leikinn gegn Sviss á þriðjudaginn. 14.10.2012 14:06
Katrín hélt hreinu í 55 mínútur en fékk svo á sig tvö mörk Íslensku stelpurnar Kristianstad náðu ekki að hjálpa löndum sínum í LdB FC Malmö í baráttunni um sænska meistaratitilinn í dag þegar Kristianstad-liðið tapaði 0-2 á heimavelli á móti Tyresö FF í 20. umferð sænsku kvennadeildarinnar. Tyresö minnkaði forskot Malmö á toppnum í tvö stig en Malmö-liðið á leik inni. 14.10.2012 13:55
Framtíð Anfield gæti ráðist á morgun Framtíð Anfield, heimavallar enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool, gæti skýrst á morgun þegar borgarráð Liverpool fundar um framtíðarskipulag hverfisins í kringum leikvanginn. Liverpool vill frekar stækka völlinn en byggja nýjan völl á öðrum stað. 14.10.2012 13:30
Ásdís fyrst Íslendinga til að klára Járnkarlinn á Hawaii Ásdís Kristjánsdóttir úr 3SH var meðal 1800 keppenda í þríþrautarkeppninni Ironman eða Járnkarlinum sem fer fram árlega á Havaí. Keppnin er einskonar heimsmeistaramót í þríþraut og þangað koma allir sterkustu þríþrautarmenn og konur heims. 14.10.2012 13:15
Þjálfari Svisslendinga sýndi dómaranum fingurinn Ottmar Hitzfeld, þjálfari svissneska landsliðsins, er líklega á leiðinni í bann eftir að hann sýndi dómaranum fingurinn eftir jafnteflið á móti Noregi á föstudagskvöldið. Hitzfeld segist hafa verið að gefa sjálfum sér fingurinn en það þykir flestum vera veik vörn. 14.10.2012 13:00
Fyrsta tapið hjá Jóni Arnóri og félögum Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í CAI Zaragoza töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar þeir heimsóttu Valencia Basket í dag í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Valencia var líka búið að vinna tvo fyrstu leiki sína og vann leikinn 83-73. Haukur Helgi Pálsson og félagar í Assignia Manresa þurftu á sama tíma að sætta sig við þriðja tap sitt í röð. 14.10.2012 12:30
Katrín Ómars komin í markið hjá Kristianstad Landsliðskonan Katrín Ómarsdóttir sem spilar vanalega á miðjunni með Kristianstad og íslenska landsliðinu er komin í markið hjá sænska liðinu í deildarleik á móti stjörnuliði Tyresö. 14.10.2012 12:29
Lengjubikar karla af stað - þrír leikir sýndir á netinu Lengjubikar karla hefst í kvöld með fjórum leikjum en þetta er í 17. sinn sem Fyrirtækjabikar karla er spilaður og fer hann nú fram með sama fyrirkomulagi og síðasta vetur. Allir leikirnir hefjast klukkan 19.15. 14.10.2012 11:45
Messi: Argentínumenn elska mig nú eins og fólkið í Barcelona Lionel Messi er kominn á sama flug með argentínska landsliðinu og hann er á hjá Barcelona á Spáni. Messi skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Argentínu á Úrúgvæ í undankeppni HM aðfaranótt laugardagsins. 14.10.2012 11:00
Vettel efstur í titilbaráttunni eftir sigur í Kóreu Heimsmeistarinn ungi, Sebastian Vettel, á Red Bull-bíl í Formúlu 1 hafði yfirburði í kóreska kappakstrinum í dag og kom fyrstur í mark og tryggði sér forystu í heimsmeistarabaráttu ökuþóra. Vettel er í kjörstöðu þegar fjögur mót eru óekin. 14.10.2012 09:28
Kobe við liðsfélaga: Þú ert ekki nógu merkilegur til að tala við mig Smush Parker hefur ekki mikið álit á manninum á bak við körfuboltamanninn Kobe Bryant og segir Kobe hafa forðast það að umgangast liðsfélaga sína í Lakers og jafnframt litið niður á þá. Bryant lét það frá sér í blaðaviðtali að Smush Parker ætti ekki heima í NBA-deildinni og það stóð ekki á viðbrögðum frá þessum fyrrum leikmanni Lakers, Cleveland Cavaliers, Detroit Pistons og Phoenix Suns. 14.10.2012 09:00
Kagawa: Hef þurft að passa mig í Manchester Shinji Kagawa tryggði japanska landsliðinu 1-0 sigur á Frökkum í vináttulandsleik á föstudagskvöldið en þessi leikmaður Manchester United hefur byrjað vel hjá enska félaginu og blaðamenn eru þegar farnir að sjá hann fyrir sér hjá félögum eins og Barcelona eða Paris St. Germain. 14.10.2012 08:00
Mourinho um Falcao: Bannað að kaupa Atletico-menn Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, segir ekki koma til greina að kaupa Kólumbíumanninn Radamel Falcao þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar. Falcao hefur farið á kostum á tímabilinu og er kominn með 15 mörk í 9 leikjum með Atletico Madrid og landsliði Kólumbíu. 14.10.2012 07:00
Afmælisveisla hjá Arsenalklúbbnum í dag Arsenalklúbburinn hefur boðað til afmælisfagnaðar í Ölveri í Glæsibæ klukkan 14.00 í dag í tilefni þess að stuðningsmannaklúbbur Arsenal á Íslandi er orðin 30 ára gamall. Selfyssingarnir Kjartan Björnsson og Hilmar Hólmgeirsson, nú bílasali í Reykjavík, stofnuðu klúbbinn 15. október 1982. 14.10.2012 06:00
Maðurinn sem sagði nei við sterunum og hætti frekar að hjóla Nafn Scott Mercier hefur verið áberandi í umfjöllun um lyfjahneykslið í kringum hjólreiðakappann Lance Armstrong og lið hans US Postal. Mercier var sá eini í liðinu sem sagði nei við sterum og hætti frekar að keppa í hólreiðum en að sprauta sig. 13.10.2012 23:30
Allt varð vitlaust þegar Drogba skoraði Senegal á von á þungri refsingu frá FIFA eftir að dómarinn varð að flauta af leik Senegal og Fílabeinsstrandarinnar í kvöld eftir að mikil ólæti brutust út meðal stuðningsmanna Senegal. Þetta var seinni leikur liðanna í umspili um sæti í úrslitum Afríkukeppninnar sem fer fram í byrjun næsta árs. 13.10.2012 22:49
Marvin illviðráðanlegur í byrjun móts Marvin Valdimarsson hefur heldur betur farið vel af stað með Stjörnunni í Dominos-deild karla í körfubolta en hann skoraði 31 stig í sigri á Keflavík í Garðabænum í 2. umferðinni. 13.10.2012 22:45
Oxlade-Chamberlain: Pabbi er búinn að vera að pressa á mig Alex Oxlade-Chamberlain skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark í gær þegar Englendingar unnu 5-0 stórsigur á San Marínó. Hann varð þar með fjórði yngsti markaskorarinn í sögu enska landsliðsins og lék eftir afrek föður síns sem skoraði einnig fyrir landsliðið á sínum tíma. 13.10.2012 22:00
Ian Thorpe: Ég íhugaði sjálfsmorð Ian Thorpe er einn sigursælasti sundmaður allra tíma en í nýrri ævisögu sinni skrifar hann um þunglyndi, alkóhólisma og sjálfsmorðshugsanir á meðan hann var á hátindi ferils síns. 13.10.2012 21:15
Fyrirliði Færeyja: Zlatan var svo barnalegur Fróði Benjaminsen, fyrrum leikmaður Fram og fyrirliði færeyska landsliðsins, lenti í stappi við Zlatan Ibrahimovic í leik Færeyja og Svía í Þórshöfn í Færeyjum í gær en sænski landsliðsfyrirliðinn var orðinn pirraður þegar ekkert gekk hjá Svíum að skora í fyrri hálfleiknum. 13.10.2012 20:30
Walcott óleikfær eftir markvörð San Marínó Theo Walcott verður ekki með enska landsliðinu á móti Pólverjum í undankeppni HM á þriðjudaginn því hann er enn að jafna sig eftir slæmt högg í sigrinum á San Marínó. 13.10.2012 20:00
Heildarstangveiði 39% minni en í fyrra Stangveiðin á nýliðnu sumri var í heild um 39% minni en á árinu 2011 og um 16% undir langtímameðaltali. Þetta kemur fram á vef Veiðimálastofnunar. Skýringa á þeirri miklu lægð sem kom fram í laxveiðinni má að stærstum hluta rekja til lélegs vaxtar í sjó sem aftur bendir til lélegra fæðuskilyrða og aukinna affalla. 13.10.2012 19:36
Aðalsteinn vann Rúnar í kvöld Lærisveinar Aðalsteins Eyjólfssonar í ThSV Eisenach höfðu betur gegn Rúnari Sigtryggssyni og strákunum hans í EHV Aue í þýsku b-deildinni í handbolta í kvöld. Eisenach vann leikinn 26-23 eftir að hafa verið 13-12 yfir í hálfleik. 13.10.2012 19:34
Rakel Dögg spilaði sinn fyrsta leik eftir krossbandsslit Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, spilaði í dag sinn fyrsta leik síðan að hún sleit krossband skömmu fyrir HM í Brasilíu fyrir tæpu ári síðan. 13.10.2012 19:21
Fyrsta tapið hjá TV Emsdetten í vetur TV Emsdetten, lið þeirra Ólafs Bjarka Ragnarssonar og Ernis Hrafns Arnarsonar, tapaði sínum fyrsta leik í þýsku b-deildinni í vetur þegar liðið mætti TSG Ludwigshafen-Friesenheim á útivelli í kvöld. Emsdetten var búið að vinna sex fyrstu leiki sína. 13.10.2012 18:40
Þórsarar á heimasíðu sinni: Velkominn aftur Gummi Þórsarar unnu sinn fyrsta sigur í Dominos-deild karla í körfubolta í gær þegar þeir sóttu tvö stig í Seljaskóla. Líkt og í fyrsta leik Þórsliðsins þá endaði leikurinn í framlengingu en að þessu sinni tókst Þórsurum að landa sigri, 95-92. 13.10.2012 18:15
Þórir og félagar með fullt hús í Meistaradeildinni Þórir Ólafsson og félagar í pólska liðinu Vive Targi Kielce eru að byrja vel í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en liðið vann sex marka heimasigur á Gorenje frá Slóveníu, 30-24, fyrir framan 4200 manns í Kielce í dag. 13.10.2012 17:37
Haukar töpuðu fyrri leiknum með fimm mörkum Haukar töpuðu 30-25 á móti úkraínska liðinu HC Motor Zaporozhye í fyrri leik liðanna í 2. umferð EHF-keppni en báðir leikirnir fara fram úti í Úkraínu um helgina. Leikurinn í kvöld taldist vera heimaleikur Úkraínumanna. 13.10.2012 17:30
Sigurður Egill kominn í sama félag og stóra systir Sigurður Egill Lárusson, knattspyrnumaður úr Víking, er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Val og mun því spila í Pepsi-deildinni næsta sumar. Sigurður Egill er 20 ára gamall vinstri fóta leikmaður sem getur spilað margar stöður á vellinum. Hann var í lykilhlutverki hjá Víkingum í sumar og skoraði 9 mörk á tímabilinu. 13.10.2012 16:45
Valskonur tóku aftur toppsætið af Fram Íslands- og bikarmeistarar Vals eru komnar aftur á toppinn í N1 deild kvenna eftir 11 marka sigur á Stjörnunni í Mýrinni í dag, 32-21. Fram vann Fylki á fimmtudaginn og komst á toppinn en Valsliðið tók aftur toppsætið með þessum sigri. 13.10.2012 16:10
Tveir sigrar í röð hjá bæði Haukum og FH Kvennalið Hauka í handboltanum fagnaði sigri á móti Gróttu í 4. umferð N1 deild kvenna í handbolta í dag. Haukaliðið tapaði illa á móti Val í fyrsta leik en hefur nú unnið tvo síðustu leiki sína. FH-liðið sótti tvö stig á Selfoss og er einnig búið að vinna tvo leiki í röð. 13.10.2012 16:00
Hólmfríður skoraði bæði mörk Avaldsnes Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði bæði mörkin þegar Avaldsnes vann 2-0 útisigur á Voss í norsku b-deildinni í fótbolta í dag. Avaldsnes er með þrettán stiga forskot á toppnum og þegar búið að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili. 13.10.2012 15:39
Umfjöllun: HK - Akureyri 21-22 Akureyri sigraði Íslandsmeistara HK í Digranesi 22-21 þar sem Oddur Gretarsson skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu leiksins. Þjálfari og leikmenn HK var brjálaðir út afleita dómara leiksins í leikslok þar sem þeim fannst þeir yfirsjást línu og tvígrip á leikmenn Akureyrar. 13.10.2012 15:15
Sigrar hjá íslensku strákunum í danska körfuboltanum Íslendingaliðin BC Aarhus og Værlose unnu bæði leiki sína í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. BC Aarhus átti frábæran endasprett í sigri á Randers á heimavelli en Værloese vann sigur í framlengingu á útivelli. 13.10.2012 15:05
Rooney fór upp fyrir Shearer Wayne Rooney skoraði tvö mörk í 5-0 sigrinum á San Marínó í undankeppni HM í gær en þetta var í fyrsta sinn sem hann var fyrirliði enska landsliðsins í keppnisleik. Rooney skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu en hann hefur nú skorað 31 mark í 77 landsleikjum með enska liðinu. 13.10.2012 14:30
Engir leikir hjá Eyjamönnum í dag Handknattleikssambandið hefur þurft að fresta tveimur leikjum í meistaraflokki karla og kvenna í dag þar sem ófært er frá Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HSÍ en vonir stóðu til að nóg væri að seinka leikjunum fram á kvöld. 13.10.2012 13:47
Danir kvarta við FIFA undan kynþáttafordómum í Búlgaríu Danir eru mjög ósáttir með þær móttökur sem varnarmaðurinn Patrick Mtliga frá búlgörskum áhorfendum í 1-1 jafntefli Búlgaríu og Danmerkur í undankeppni HM en leikurinn fór fram í Sofíu í gær. Danir ætlast til þess að málið fari inn á borð hjá FIFA. 13.10.2012 13:45
Ísland og Frakkland með bestan árangur af liðunum i 2. sæti Íslenska karlalandsliðið er í 2. sæti í sínum riðli eftir fyrstu þrjár umferðirnar í undankeppni HM. Íslenska liðið, sem vann 2-1 sigur á Albanía í gær, hefur náð í 6 stig af 9 mögulegum og er einu stigi á eftir toppliði Sviss. 13.10.2012 13:15
Víkingar byrja vel í 1. deild karla Víkingar hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína í 1. deild karla í handbolta og eru eina liðið með fullt hús eftir þrjár fyrstu umferðirnar. Víkingar unnu 25-24 útisigur á Gróttu í gærkvöldi. 13.10.2012 12:37
Ófært frá Eyjum - tveir leikir í dag í hættu Handknattleikssamband Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem kemur fram að tveimur leikjum í meistaraflokki í dag hefur verið seinkað til kl.18 vegna ófærðar frá Vestmannaeyjum. 13.10.2012 12:24
Messi og Falcao á skotskónum í nótt Lionel Messi og Radamel Falcao voru mennirnir á bak við sigra sinna landsliða í Undankeppni HM í nótt. Messi skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Argentínu á Úrúgvæ og Falcao skoraði bæði mörk Kólumbíu í 2-0 sigri á Paragvæ. Báðar þjóðir eru í góðum málum í tveimur efstu sætum Suður-Ameríku riðilsins. 13.10.2012 11:45
Aron Einar má ekki spila á móti Sviss Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, mun ekki spila með íslenska liðinu á móti Sviss á þriðjudaginn. Ástæðan er þó ekki agabann heldur leikbann. Aron Einar fékk sitt annað gula spjald í sigrinum í Albaníu í gær. 13.10.2012 11:00
Webber stal ráspól af Vettel í Kóreu Það var Mark Webber á Red Bull-bíl sem ók hraðast um Yeongam brautina í Kóreu í síðustu lotu tímatöku fyrir kappaksturinn þar. Hann stal ráspólnum af liðsfélaga sínum, heimsmeistaranum Sebastian Vettel, sem hafði verði lang fljótastur fyrstu tveimur lotum tímatökunnar. 13.10.2012 06:17
Besta byrjun Íslands frá upphafi Ísland er með sex stig af níu mögulegum í undankeppni HM 2014 og er það besta byrjun íslenska landsliðsins í undankeppni stórmóts frá upphafi. 13.10.2012 06:00