Fleiri fréttir

Ragna: Þetta var síðasti leikurinn minn

Ragna Ingólfsdóttir er hætt keppni í badminton. Þetta tilkynnti hún eftir tap sitt fyrir Jie Yao á Ólympíuleikunum í London í kvöld. Ragna féll úr leik eftir að hafa barist til síðasta blóðdropa.

Phelps sá sigursælasti allra tíma á Ólympíuleikum

Bandaríkjamaðurinn Michael Phelps nældi í sín 19 verðlaun á Ólympíuleikum þegar hann og boðsundsveit Bandaríkjanna kom fyrst í mark í 4x200 metra skriðsundi karla. Fyrr í dag hlaut Phelps silfurverðlaun í 200 metra flugsundi.

Steven Pienaar aftur til Everton

Suður-afríski miðjumaðurinn Steven Pienaar hefur gengið frá félagaskiptum til Everton. Liverpool Echo greinir frá þessu.

Leik lokið: Ragna úr leik eftir hetjulega baráttu

Badmintonkonan Ragna Ingólfsdóttir beið lægri hlut í tveimur lotum gegn Jie Yao frá Hollandi í tveimur lotum, 12-21 og 23-25, í F-riðli badmintonkeppni Ólympíuleikanna. Ragna hefur þar með lokið keppni á mótinu.

Sænskur framherji til Þór/KA

Topplið Þór/KA í Pepsi-deild kvenna hefur fengið liðsstyrk í titilbaráttunni. Sænski framherjinn Rebecca Johnson hefur gengið til liðs við félagið.

Svíar fóru létt með Breta

Sænska karlalandsliðið í handknattleik lagði það breska með 22 marka mun í A-riðli handboltakeppni Ólympíuleikanna í dag.

Shaneka hetja Eyjakvenna gegn Blikum

Shaneka Gordon skoraði bæði mörk ÍBV í 2-1 útisigri á Breiðablik í 12. umferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Sigurmarkið kom í viðbótartíma en Blikar höfðu ráðið gangi mála lengst af í leiknum.

Umræða um brot Kjartans Henrys

Umdeilt atvik átti sér stað í viðureign KR og ÍA í 13. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu og sýnist sitt hverjum.

Þróttur endurheimtir uppalda leikmenn

Hjálmar Þórarinsson, Sigmundur Kristjánsson og Haraldur Hróðmarsson hafa gengið í raðir 1. deildarliðs Þróttar. Leikmennirnir eru uppaldir hjá félaginu og snúa því aftur á kunnulegar slóðir.

Afríkumeisturunum pakkað saman | Myndir

Íslendingar eru komnir á mikið og gott skrið á Ólympíuleikunum í London eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjum íslenska handboltalandsliðsins. Strákarnir okkar sýndu heimsklassaframmistöðu gegn Túnisum nú í morgunsárið.

Ragna ekki fyrsti Íslendingurinn til að vinna badmintonleik á ÓL

Í kjölfar glæsilegs sigurs Rögnu Ingólfsdóttur á andstæðing sínum frá Litháen á Ólympíuleikunum í London í gær greindu fjölmiðlar frá því að þar með hefði hún landað fyrsta badmintonsigri Íslendings á Ólympíuleikum frá upphafi. Það er hinsvegar ekki rétt þar sem Árni Þór Hallgrímsson fagnaði einnig sigri á leikunum í Barcelona, 1992.

Andy Carroll vill ekki fara til West Ham

Þótt Liverpool og West Ham hafi komist að samkomulagi um leigusamning Carroll til Lundúnarfélagsins er málið langt í frá í höfn. Framherjinn virðist ekki vilja fara til West Ham.

McCartney fékk 190 kr. fyrir vinnu sína á opnunarhátíðinni

Tónlistargoðsögnin Sir Paul McCartney, lék stórt hlutverk á opnunarhátíðinni í London á föstudagskvöld þegar Ólympíuleikarnir voru settir. Engu var til sparað til þess að gera hátíðina sem glæsilegasta en McCartney var ekki stór útgjaldaliður fyrir mótshaldara. McCartney vildi ekki fá greitt fyrir framlag sitt en á endanum var samið um að hann fengi 1 pund eða sem nemur 190 kr.

"Hlægilegt hjá greyið manninum"

Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, gefur ekki mikið fyrir þau orð sem Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, lét falla eftir leik liðanna í Pepsideildinni í gærkvöld. Þar sakaði Þórður, Kjartan um "óþverraskap" þegar sá síðarnefndi steig ofan á hönd Guðjóns Sveinssonar með þeim afleiðingum að 18 spor þurfti til að sauma saman sárið.

Heil umferð í Pepsi-deild kvenna | Breiðablik - ÍBV á Stöð 2 sport

Heil umferð fer fram í kvöld í Pepsi-deild kvenna í fótbolta. Leikur Breiðabliks og ÍBV verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og einnig á Vísi. Breiðablik er í öðru sæti deildarinnar með 23 stig en Þór/KA er í efsta sæti með 28 stig. ÍBV er í fimmta sæti með 19 stig.

Guðmundur: Ég fékk gæsahúð

"Það kom fyrir að ég fékk gæsahúð yfir frammistöðu liðsins,“ sagði landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson eftir frábæran sigur Íslands á liði Túnis á Ólympíuleikunum í morgun, 32-22.

Lennon ristarbrotinn | tímabilið á enda hjá framherjanum

"Ég verð líklega frá í tvo mánuði,“ sagði Steven Lennon í viðtali við Hjört Hjartarson í útvarpsþættinum Boltanum á X-inu 977 í dag. Framherjinn sterki meiddist illa undir lok leiksins gegn FH í gær þar sem að Jón Ragnar Jónsson varnarmaður FH braut klaufalega á Lennon. "Ég verð í gifsi í fjórar vikur,“ sagði Lennon en hann er ristarbrotinn og fjarvera hans er mikið áfall fyrir Fram sem berst fyrir lífi sínu í Pepsi-deild karla.

Snorri Steinn: Þeir áttu ekkert svar

"Þetta var það sem við lögðum upp með. Við byrjuðum leikinn á fullum krafti og vissum að það yrði lykillinn að því að vinna leikinn," sagði Snorri Steinn Guðjónsson, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir sigurinn á Túnis í morgun.

Björgvin Páll: Þeir voru eins og brjálæðingar

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska liðsins, sagði varnarleik Íslands í fyrri hálfleik gegn Túnis hafa verið með ólíkindum. Strákarnir höfðu betur, 32-22, eftir að hafa gert út um leikinn í fyrri hálfleiknum.

Pepsi-mörkin: Markaregnið úr 13. umferð

Þrír leikir fóru fram í gær í Pepsi-deild karla og var 13. umferðin gerð upp í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport. Smashing Pumpkins sá um tónlistina, lagið heitir 1979.

Jakob var langt frá sínu besta í 200 metra bringusundinu

Jakob Jóhann Sveinsson sundmaður úr Ægi var langt frá sínu besta í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í London í morgun. Hann kom síðastur í mark í öðrum riðli á 2:16,72 mínútum. Íslandsmet Jakobs er 2:12,39 mínútur sem hann setti árið 2009 en besti tími hans fyrir leikana á þessu ári var 2:13,84 mínútur.

Vindur hefur áhrif á badmintonkeppnina

Þrátt fyrir að badminton sé innanhússíþrótt þurfa þeir sem keppa í henni á Ólympíuleikunum í London að reikna með meðvindi, mótvindi eða hliðarvindi í sínum viðureignum.

Hefur engar áhyggjur af húsbílavatni

Sérfræðingur hjá Matvælastofnun segir ólíklegt að sníkjudýr berist með erlendum húsbílum í íslenskt vatnakerfi. Hann hefur meiri áhyggjur af kjölfestuvatni skipa.

Hörgá að gefa flotta bleikjuveiði

Á vef Stangaveiðifélags Akureyrar segir frá góðri bleikjuveiði í Hörgá, en í veiðibókina á netinu eru skráðar 211 bleikjur ásamt slatta af urriða/sjóbirtingi og besti tíminn að ganga í garð.

Efri hluti Elliðaánna að koma sterkt inn

Nú er hins vegar að ganga í garð sá tími sumars þegar flugusvæðið á efri hluta Elliðaánna fer að koma sterkt inn, enda kom það í ljós á morgunvaktinni. Þá gáfu Höfuðhylur, Símastrengur, Hraunið, Hundasteinar og Árbæjarhylur allir laxa.

Glæsilegur sigur Rögnu | Myndir

Ragna Ingólfsdóttir mætti í kvöld Akvile Stapusaityte frá Litháen í einliðaleik kvenna í badmintonkeppni Ólympíuleikanna og hafði sigur úr býtum í tveimur lotum.

Banega og bifreiðar eiga ekki vel saman

Ólukka Ever Banega, leikmanns Valencia í spænsku knattspyrnunni, virðist engan enda ætla að taka. Hann ætti í það minnsta að velta fyrir sér öðrum samgöngumöguleikum en einkabifreiðum.

Sjá næstu 50 fréttir