Fleiri fréttir

Jakob Örn: Ætlum okkur titilinn

„Þetta var bara geðveiki. Ég meina fjórar framlengingar. Ég hef aldrei lent í öðru eins," sagði KR-ingurinn Jakob Örn Sigurðarson úrvinda en brosmildur eftir líklega ótrúlegasta körfuboltaleik á Íslandi frá upphafi.

Hörður Axel lék í allar sextíu mínúturnar

Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, setti met í sögu Íslandsmóts karla í körfubolta, þegar hann lék allar 60 mínúturnar í fjórframlengdum leik KR og Keflavíkur í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í kvöld.

Fjölnir einum sigri frá úrvalsdeildinni

Hið unga lið Fjölnis er að gera frábæra hluti á útivöllum í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta en liðið vann fyrsta leik lokaúrslitanna á móti Val í Vodafone-höll Valsmanna í kvöld.

Fylkir vann Gróttu í botnslagnum

Sunna Jónsdóttir skoraði ellefu mörk í 31-25 sigri Fylkis á Gróttu í botnslag N1 deildar kvenna í Fylkishöllinni í kvöld. Sigurinn dugði þó ekki Fylki til að komast upp úr neðsta sætinu því Grótta hefur einu stigi meira.

Valur og Breiðablik gerðu jafntefli í stórleiknum

Valur og Breiðablik gerðu 2-2 jafntefli í Egilshöllinni í kvöld í stórleik Lengjubikars kvenna. Liðin voru fyrir leikinn jöfn með fjögur stig úr fyrstu tveimur leikjum sínum. Blikar eru þó á toppnum þar sem þær eru með betri markatölu.

Gróttumenn komnir upp í N1 deild karla

Grótta tryggði sér í kvöld sæti í N1 deild karla þegar liðið vann auðveldan sigur á ÍBV, 33-12, á heimavelli sínum á Seltjarnarnesinu í kvöld. Grótta er orðið deildarmeistari þótt að ein umferð sé eftir.

Jesse Rosa: Trúi þessu varla

„Þetta er alveg ótrúlega svekkjandi og ég trúi þessu varla enn. Þetta var fáranlegt," sagði Bandaríkjamaðurinn í liði Keflavíkur, Jesse Rosa, eftir leikinn en hann var í losti þegar Vísir hitti á hann.

Íslandsmeisturum hefur ekki verið „sópað" út síðan 2003

Íslandsmeistarar Keflavíkur eiga það á hættu að vera sópað út úr úrslitakeppninni í kvöld þegar þeir heimsækja KR-inga í DHL-Höllina. KR er 2-0 yfir og kemst í lokaúrslitin með sigri í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.15

Guðjón: Verkefninu er ekki lokið

Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Crewe, segir í samtali við heimasíðu félagsins að hann sé ekki farinn að kæla kampavínið þrátt fyrir fínt gengi félagsins undir hans stjórn. Verkefninu sé langt frá því að vera lokið.

Beckham segist geta spilað til fimmtugs

Hinn 34 ára gamli David Beckham er augljóslega ekki á þeim buxunum að leggja skóna á hilluna á næstu árum. Beckham, sem spilar væntanlega landsleik númer 109 um helgina, á sér enn stóra drauma.

Sjálfsagi lykillinn að árangri

John Terry, landsliðsfyriliði Englands, segir að sjálfsagi leikmanna sé lykillinn að árangri með enska landsliðinu sem mætir Slóvakíu í vináttulandsleik á morgun.

Ég er með blessun Wenger

Emmanuel Adebayor segist vera með leyfi frá Arsene Wenger, knattspyrnutsjóra Arsenal, til að spila með landsliði Tógó gegn Kamerún í undankeppni HM 2010 um helgina.

Jón Arnór: Væri huggulegt að sópa Keflavík út

„Ég veit ekki með félaga mína en ég er algjörlega tilbúinn fyrir þennan slag í kvöld. Við ætlum okkur að klára þetta. Það er ekkert annað í boði," sagði KR-ingurinn Jón Arnór Stefánsson við Vísi.

Embla: Þarf stundum að hugsa um sjálfan sig

„Ég hef sett mér ákveðin markmið sem ég held að ég nái ekki með KR. Það er aðalástæðan fyrir því að ég hef ákveðið að söðla um og yfirgefa KR," sagði knattspyrnukonan Embla Sigríður Grétarsdóttir sem er á förum frá KR eftir 11 ára dvöl í Vesturbænum.

Ólafur: Slæmt að missa Brynjar - Davíð í hópinn

Það varð endanlega ljóst í morgun að miðjumaðurinn Brynjar Björn Gunnarsson mun ekki geta leikið með Íslandi gegn Skotum á miðvikudag. Sæti hans í hópnum tekur FH-ingurinn Davíð Þór Viðarsson.

Gunnar Einarsson: Þetta verður stríð í kvöld

„Við erum með bakið upp við vegg og stolt okkar er líka undir. KR-ingar munu ekki labba yfir okkur í kvöld. Það er alveg klárt mál. Þetta verður stríð í kvöld," sagði Keflvíkingurinn Gunnar Einarsson ákveðinn við Vísi áðan.

Hlynur: Subasic var orðinn baggi á okkur

„Ástandið var orðið þannig að hann var orðinn baggi á okkur í stað þess að vera styrkur. Það var ekki hægt að una lengur við óbreytt ástand og þess vegna ákváðum við að reka hann. Við teljum okkur eiga meiri möguleika án hans gegn Grindavík en með honum," sagði Hlynur Bæringsson, annar þjálfari Snæfells, um uppsögn Slobodan Subasic hjá Snæfelli.

Bárður: Hefur verið frábær vetur

Valur og Fjölnir munu í kvöld eigast við í fyrsta leik sínum í rimmunni um hvort liðið fylgir Hamar upp í efstu deild karla í körfubolta.

Subasic rekinn frá Snæfelli

Snæfell hefur sagt upp samningi Slobodan Subasic og mun hann því ekki spila með liðinu gegn Grindavík á morgun.

Birgir Leifur á einu höggi yfir pari

Birgir Leifur Hafþórsson lék á einu höggi yfir pari á öðrum keppnisdegi opna Andalúsíu-mótsins sem fer fram í Sevilla á Spáni. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Pavlyuchenko ánægður hjá Tottenham

Roman Pavlyuchenko segist vera ánægður í herbúðum Tottenham en orðrómur hefur verið á kreiki um að hann vilji fara frá félaginu.

Ísland upp fyrir Finnland

Ísland færðist upp um eitt sæti í það átjánda á styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins en nýr listi var gefinn út í dag.

Van Persie: Reynslan gerir gæfumuninn

Robin van Persie hefur litlar áhyggjur af því að Arsenal nái ekki fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í vor og tryggi sér þar með þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Alonso: Getum náð United

Xabi Alonso, leikmaður Liverpool, telur það mögulegt fyrir sína menn að ná Manchester United að stigum áður en tímabilinu lýkur í vor.

Duff úr leik hjá Írum

Damien Duff verður ekki með írska landsliðinu sem á tvo mikilvæga leiki framundan í undankeppni HM 2010. Duff meiddist á æfingu á miðvikudaginn.

Pabbi hættir á næsta ári

Darren Ferguson segir að faðir sinn, Sir Alex, gæti hætt starfi sínu sem knattspyrnustjóri Manchester United í lok næsta tímabils.

Birgir Leifur enn á topp tíu

Birgir Leifur Hafþórsson er á einu höggi undir pari eftir fyrstu tíu holurnar á öðrum keppnisdegi á Opna Andalúsíu-mótinu sem fer fram í Sevilla á Spáni. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Embla hætt í KR

Embla Grétarsdóttir hefur tilkynnt forráðamönnum KR að hún sé hætt að spila með liðinu.

NBA í nótt: Loks vann Lakers í Detroit

LA Lakers batt enda á níu leikja taphrinu liðsins á heimavelli Detroit er Lakers unnu þar fimmtán stiga sigur í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 92-77.

Kærðu liðin fljótust á æfingum

Liðin þrjú sem voru kærð í gær á Formúlu 1 mótinu í Melbourne í Ástralíu náðu bestu tímum á tveimur æfingum í nótt. Nico Rosberg á Williams var með besta tíma í báðum æfingum.

Beckham: Búinn að lækka fituprósentuna sína úr 13,7 í 8,5

David Beckham mun væntanlega leika sinn 109.landsleik fyrir England á laugardaginn þegar enska landsliðið mætir Slóvökum í vináttulandsleik. Menn í Englandi eru nú farnir að velta því fyrir sér hvort Beckham eigi möguleika á að bæta landsleikjamet Peter Shilton sem lék 125 landsleiki á sínum tíma.

Stjörnukonur skoruðu sex mörk á móti KR

Stjarnan vann 6-1 stórsigur á KR í Lengjubikar kvenna í kvöld. Björk Gunnarsdóttir skoraði þrennu fyrir Garðabæjarliðið. KR-liðið hefur misst marga leikmenn frá því í fyrra á meðan að Stjörnuliðið hefur styrkt sig mikið.

Margrét Lára með þrennu í stórsigri Linköping

Margrét Lára Viðarsdóttir opnaði markareikninginn sinn hjá sænska liðinu Linköping þegar hún skoraði þrennu í í kvöld í 6-0 sigri liðsins á Eskilstuna United í síðasta æfingaleik liðsins fyrir komandi tímabil.

Ronaldo á skotskónum með Corinthians

Brasilíumaðurinn Ronaldo er kominn á fulla ferð með liði sínu Corinthians í brasilíksa fótboltanum og er kappinn farinn að raða inn mörkum í Paulista-fylkiskeppninni.

Kærðu liðin fá að keppa

Toyota. Brawn og Williams Toyota liðin munu öll keppa í kappakstrinum í Melbourne á sunnudaginn. Fjögur önnur lði kærðu þessi lið og vildu meina að búnaður liðanna væri ólöglegur að hluta. Dómarar FIA töldu bílanna löglega.

Fríða Rún náði í silfur á EM á Ítalíu

ÍR-ingurinn Fríða Rún Þórðardóttir varð önnur í 3000 metra hlaupi á EM innanhúss hjá 35 ára og eldri sem er nú í gangi á Ancona á Ítalíu. Þetta kemur fram á heimasíðu Frjálsíþróttasambandsins.

Sjá næstu 50 fréttir