Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sögur af árásum stuðningsmanna ýktar Forráðamenn West Ham gáfu það út í dag að sögur sem gengu í bresku blöðunum í dag um að stuðningsmenn liðsins hefðu ráðist að Marlon Harewood eftir leik liðsins um helgina væru stórlega ýktar. Sagt var að 15 manns hefðu ráðist að Harewood og hreytt í hann fúkyrðum voru dregnar til baka og sagði talsmaður West Ham að félagið hefði engar áhyggjur af þessu meinta atviki. 12.2.2007 15:57
Kanchelskis leggur skóna á hilluna Rússneski kantmaðurinn Andrei Kanchelskis hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 38 ára að aldri. Kanchelskis gerði garðinn frægan með Manchester United snemma á síðasta áratug og varð tvisvar Englandsmeistari með liðinu. 12.2.2007 15:50
Grönholm sigraði í sænska rallinu Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm á Ford sigraði í sænska rallinu sem fram fór um helgina. Grönholm kom í mark 53 sekúndum á undan heimsmeistaranum Sebastien Loeb á Citroen sem varð í öðru sæti og Finninn Mikko Hirvonen á Ford varð þriðji. Forysta Loeb í stigakeppninni til heimsmeistara er því aðeins tvö stig og stefnir í jafnara mót en á síðasta ári. 12.2.2007 15:19
Samkynhneigð Amaechi veldur fjaðrafoki í NBA Fyrrum NBA leikmaðurinn John Amaechi olli talsverðu fjaðrafoki í heimspressunni fyrir helgina þegar hann tilkynnti um samkynhneigð sína í ævisögu sinni sem kom í hillur á dögunum. Hann varð um leið fyrsti NBA leikmaðurinn til að opinbera samkynhneigð sína, en ekki eru allir jafn hrifnir af yfirlýsingunni. 12.2.2007 13:57
Diarra var nálægt því að fara frá Chelsea í janúar Lassana Diarra, leikmaður Chelsea, hefur nú upplýst að hann hafi verið kominn á fremsta hlunn með að fara frá félaginu í janúar. Diarra hafði ekki fengið mikið að spreyta sig síðan hann kom til Chelsea árið 2005, en hefur staðið sig vel í þeim þremur leikjum í röð sem hann hefur verið í byrjunarliðinu undanfarið. 12.2.2007 13:38
Eto´o neitaði að spila í gær Framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona neitaði að fara inná sem varamaður þegar fimm mínútur voru eftir af leik Barcelona og Santander í gærkvöld. Eto´o er hægt og bítandi að ná heilsu eftir hnémeiðsli, en neitaði að fara að hita upp þegar hann var beðinn um það í gær. 12.2.2007 13:31
Stóðhesta TÖLT veisla á fimmtudaginn! Meistaradeild VÍS heldur áfram næstkomandi fimmtudagskvöld með sannkallaðri töltveislu. Heyrst hefur að nokkrir af bestu stóðhestum landsins muni etja kappi ásamt ekki síðri geldingum og hryssum. Hulda Gústafsdóttir sigraði þessa keppni í fyrra en hún er á nýjum hesti í ár þar sem List frá Vakursstöðum hefur fært sig til annarra starfa ekki síður göfugra. 12.2.2007 07:22
Dwyane Wade kláraði San Antonio Dwyane Wade átti enn einn stjörnuleikinn í gærkvöldi þegar Miami Heat vann góðan sigur á San Antonio Spurs á heimavelli. Cleveland vann góðan sigur á LA Lakers og Boston tapaði enn eina ferðina. 12.2.2007 01:42
Mancini vill flauta tímabilið af Roberto Mancini vill að keppni í ítölsku A-deildinni verði flautuð af og látin hefjast á ný næsta haust á meðan unnið verður að því að koma öryggismálum í lag á Ítalíu. Lið hans Inter er eitt þeirra sem þarf að spila fyrir luktum dyrum um þessar mundir og því vill Mancini að liðið sem er í efsta sæti i dag verið sæmt meistaratitlinum og mótið flautað af. 12.2.2007 01:16
ÍR tekur á móti Keflavík í kvöld Einn leikur er á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld en þar tekur ÍR á móti Keflavík í Seljaskóla. Keflvíkingar hafa verið í vandræðum í vetur og hafa enn ekki fundið taktinn, en ÍR-ingar hafa náð að hrista af sér dapra byrjun og eru nú í baráttu um sæti í úrslitakeppninni í vor. Leikurinn hefst klukkan 19:15. 12.2.2007 17:49
Ancelotti ánægður með Ronaldo Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, var mjög ánægður með frammistöðu brasilíska framherjans Ronaldo sem lék sinn fyrsta leik fyrir sitt nýja lið í dag eftir að hafa komið frá Real Madrid í síðasta mánuði. Ronaldo þótti frískur þann tæpa hálftíma sem hann spilaði og gladdi auga þjálfara síns. 11.2.2007 22:00
Njarðvík vann Snæfell í toppslagnum Njarðvík heldur sínu striki í Iceland Express-deild karla í körfubolta og í toppslag kvöldsins vann liðið góðan sigur á Snæfelli, 77-67, í ljónagryfjunni í Reykjanesbæ. KR og Skallagrímur unnu einnig leiki sína í kvöld og eru skammt undan Njarðvíkingum í toppbaráttunni. 11.2.2007 21:45
Ólafur og Sigfús létu að sér kveða á Spáni Ólafur Stefánsson skoraði fjögur mörk, þar af eitt úr vítakasti, þegar lið hans Ciudad Real burstaði Altea með 30 mörkum gegn 20 í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Sigfús Sigurðsson skoraði þrjú mörk fyrir Ademar Leon sem vann Logrono, 31-27. 11.2.2007 21:00
Alexander með stórleik Alexander Petersson skoraði níu mörk og var langmarkahæsti leikmaður Grosswallstadt sem vann góðan útisigur á Róbert Sighvatssyni og lærisveinum hans í Wetzlar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 27-24. Einar Hólmgeirsson lék ekki með Grosswallstadt vegna meiðsla. Tveir aðrir leikir fóru fram í deildinni í dag. 11.2.2007 20:30
Ronaldinho tryggði Barcelona sigur Barcelona er komið með þriggja stiga forystu í spænsku úrvalsdeildinni eftir að hafa lagt Racing Santander vandræðalaust af velli, 2-0, á Nou Camp í kvöld. Brasilíski snillingurinn Ronaldinho kom aftur inn í lið Evrópumeistaranna og skoraði bæði mörk liðsins. 11.2.2007 19:51
Fara leikmenn Galaxy fram á launahækkun? Fyrirliði LA Galaxy, Peter Vagenas, bandaríska liðsins sem David Beckham mun ganga til liðs við næsta sumar, setur spurningamerki við þær gríðarlegu fjárhæðir sem Beckham mun fá fyrir að spila fyrir liðið. Hann útilokar ekki að einhverjir leikmanna liðsins munu fara fram á launahækkun. 11.2.2007 19:30
Jewell: Dómarinn kostaði okkur sigurinn Paul Jewell, knattspyrnustjóri Wigan, var allt annað en sáttur með frammistöðu dómarans Philip Dowd í leik sinna manna gegn Arsenal í dag og sagði slæma dómgæslu hafa kostað sitt lið sigurinn. Arsene Wenger hjá Arsenal viðurkenndi að Wigan hefði átt skilið af fá að minnsta kostið annað stigið í leiknum. 11.2.2007 19:13
Eggert: Ég er fæddur bardagamaður Eggert Magnússon segir í löngu og ítarlegu viðtali við breska blaðið Guardian sem birtist í gær að hann sé fæddur bardagamaður. Þess vegna muni West Ham berjast þar til í síðustu umferð ensku deildarkeppninar til að forðast fall úr úrvalsdeildinni. 11.2.2007 19:00
Collazo átti ekki möguleika í Mosley Bandaríkjmaðurinn Shane Mosley tryggði vann öruggan sigur á landa sínum Luis Collazo þegar kapparnir mættust í hringnum í Las Vegas í nótt. Hinn 35 ára gamli Moseley sem er þrefaldur heimsmeistari var mun sneggri og höggfastari þó hann sé 10 árum eldri en Collazo. 11.2.2007 18:49
Cuban ósáttur við ummæli Wade Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks í NBA-deildinni, og Avery Johnson, þjálfari liðsins, verja Dirk Nowitzki af öllum mætti eftir að Dwayne Wade, leikmaður Miami, gagnrýndi þýska leikmanninn fyrir skort á leiðtogahæfileikum. Cuban og Johnson skjóta föstum skotum að Wade og segja honum að líta í eigin barm. 11.2.2007 18:30
Ekkert lát á sigurgöngu Inter Mörk frá Adriano og Hernan Crespo tryggðu Inter Milan auðveldan sigur á Chievo í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag en um var að ræða 15. sigur liðsins í deildinni í röð. Engir áhorfendur voru á leiknum, frekar en í þremur öðrum leikjum á Ítalíu í dag. Ronaldo lék sinn fyrsta leik fyrir AC Milan. 11.2.2007 18:11
Frábær endasprettur færði Arsenal sigur Frábær endasprettur Arsenal tryggði liðinu 2-1 sigur á Wigan í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lengi vel leit út fyrir að gestirnir færu með öll þrjú stigin af hólmi eftir að Denny Landzaat hafði komið þeim yfir í fyrri hálfleik, en sjálfsmark og mark frá Thomas Rosicky á síðustu 10 mínútum leiksins tryggðu heimamönnum mikilvægan sigur. 11.2.2007 17:57
Valur og HK unnu bæði leiki sína Staða efstu liða í DHL-deild karla í handbolta breyttist ekkert eftir leiki dagsins því Valur og HK unnu bæði leiki sína í dag. Valsarar höfðu betur gegn Íslandsmeisturum Fram í Safamýrinni, 27-26, og í Digranesinu vann HK ungt lið ÍR með sannfærandi hætti, 36-31. 11.2.2007 17:43
Loksins sigraði Lyon Meistarar síðustu fimm ára í franska fótboltanum, Lyon, vann sinn fyrsta deildarleik í ár þegar liðið vann Lorient í gær, 1-0. Þrátt fyrir að allt hafi gengið á afturfótunum hjá liðinu að undanförnu er Lyon ennþá með 14 stiga forystu á toppi deildarinnar. Fyrirliði liðsins segir mikilvægt að hafa náð sigri fyrir leikinn gegn Roma í Meistaradeildinni í næstu viku. 11.2.2007 17:30
Mickelson og Sutherland efstir fyrir lokadaginn Phil Mickelson og Kevin Sutherland frá Bandaríkjunum hafa forystu fyrir lokadaginn á PGA-mótinu sem fram fer í Pebble Beach um helgina. Þeir félagar hafa leikið á 14 höggum undir pari en Jim Furyk, sem hafði forystu ásamt Mickelson í gær, átti skelfilegan dag í gær og er nú sex höggum á eftir efstu mönnum. 11.2.2007 17:15
Carmelo Anthony valinn í stjörnuleikinn Vandræðagemlingurinn Carmelo Anthony hefur verið valinn í lið Vesturdeildarinnar sem tekur þátt í stjörnuleik NBA-deildarinnar þann 18. febrúar næstkomandi. Það var framkvæmdastjóri deildarinnar, sjálfur David Stern, sem valdi Anthony í leikinn vegna meiðsla Carlos Boozer. 11.2.2007 16:45
Rijkaard: Það komast ekki allir í hópinn Eiður Smári Guðjohnsen á ekki við meiðsli eða veikindi að stríða fyrir leik Barcelona gegn Racing Santander í kvöld heldur kemur það einfaldlega í hans hlut að vera utan hóps í þetta skiptið. Þetta segir Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona. 11.2.2007 16:17
Öruggt hjá Grönholm í Svíþjóð Finninn Marcus Grönholm bar sigur úr býtum í Svíþjóðarrallinu í dag með nokkrum yfirburðum og hleypti franska heimsmeistaranum Sebastian Loeb aldrei nálægt sér. Grönholm jók við forskotið sem hann hafði fyrir síðasta keppnisdaginn í dag og endaði á því að sigra með 53,8 sekúndum. 11.2.2007 15:55
Bolton lagði Fulham af velli Bolton komst upp fyrir Arsenal í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Bolton er nú komið með 47 stig eftir 27 leiki en Arsenal er með 46 stig eftir 25 leik. Arsenal tekur á móti Wigan síðar í dag og getur því náð fjórða sætinu aftur. 11.2.2007 15:16
Isinbayeva setti enn eitt heimsmetið Ólympíumeistarinn Yelena Isinbayeva setti enn eitt heimsmetið í stangarstökki kvenna í gær þegar hún vippaði sér yfir 4,93 metra á árlegu móti sem fram fer í Úkraínu og haldið er til heiðurs Sergei Bubka. Þetta er 20. heimsmet Isinbayevu á ferlinum en Bubka-mótið er haldið innanhúss. 11.2.2007 15:06
Venables: McLaren er fullur sjálfstrausts Terry Venables, aðstoðarþjálfari enska landsliðsins í fótbolta, segir að sjálfstraust Steve McLaren hafi ekki beðið hnekki þrátt fyrir gríðarlega gagnrýni fjölmiðla og almennings í Englandi eftir tap enska liðsins gegn Spánverjum í síðustu viku. Venables segir hins vegar engan taka gagnrýnina eins nærri sér og Venables. 11.2.2007 14:49
Bolton yfir í hálfleik - Heiðar í byrjunarliðinu Heiðar Helguson er í byrjunarliði Fulham sem er 1-0 undir gegn Bolton þegar leikur liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag er hálfnaður. Heiðar spilar í fremstu víglínu ásamt Bandaríkjamanninum Brian McBride. Það var miðjumaðurinn Gary Speed sem skoraði mark Bolton á 23. mínútu úr vítaspyrnu. 11.2.2007 14:34
Allardyce: Hvað er málið með Nolan? Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, skilur ekki af hverju fyrirlið liðs síns, Kevin Nolan, sé sífellt skilinn eftir utan enska landsliðsins. Allardyce telur að með sama áframhaldi sjái Nolan sér ekki annað fært en að fara til stærra félags í Englandi. 11.2.2007 14:05
Gerrard heillaður af nýjum eigendum Liverpool Fyrirliði Liverpool, Steven Gerrard, er himinlifandi með kaup bandarísku auðkýfinginanna George Gillett og Tom Hicks á félaginu og kveðst heillaður af framtíðaráætlunum þeirra. Fyrirliðinn hitti nýju eigendurna á fundi fyrir helgi þar sem þeir lýstu fyrir honum hugsjón sinni og framtíðarsýn. 11.2.2007 13:44
Ronaldo og Rooney eru bestu félagar Portúgalinn Cristiano Ronaldo hefur enn einu sinni lýst því yfir að hann og Wayne Rooney séu bestu vinir, þrátt fyrir uppákomuna á HM í Þýskalandi í sumar þar sem Ronaldo virtist eiga þátt í að Rooney var rekinn af leikvelli í viðureign Portúgals og Englands í 8-liða úrslitum. Ronaldo segir vináttu þeirra hafa styrkst eftir atvikið. 11.2.2007 13:17
Capello hrósar Beckham fyrir frammistöðu sína Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, hrósaði David Beckham í hástert fyrir frammistöðu sína gegn Real Sociedad í gærkvöldi, en Beckham skoraði fyrra mark liðsins í 2-1 sigri eftir að hafa verið óvænt valinn í byrjunarliðið. Capello segist alltaf borið traust til Beckham. 11.2.2007 12:57
Sjötti sigur Detroit í röð Rasheed Wallace spilaði líklega sinn besta leik á tímabilinu og leiddi Detroit til sigurs gegn Toronto í NBA-deildinni í nótt, 98-92. Þetta var sjötti sigurleikur Detroit í röð en Toronto hefur hins vegar tapað síðustu átta leikjum sínum gegn Detroit. 11.2.2007 12:41
Ferguson hrósar breidd leikmannahópsins Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd., segir að sigur sinna manna á Charlton í dag hafi undirstrikað mikilvægi þess að hafa úr stórum hópi leikmanna að velja. Ferguson hvíldi nokkra af sínum bestu mönnum, t.d. Cristiano Ronaldo, en það kom ekki að sök. 10.2.2007 21:00
Beckham sló rækilega í gegn David Beckham kom, sá og sigraði í leik Real Madrid og Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Beckham var öllum að óvörum í byrjunarliði Real eftir að hafa ekki verið í leikmannahóp liðsins síðustu vikur og skoraði fyrra mark Real í 2-1 sigri liðsins. 10.2.2007 20:44
Curbishley segir ekkert falla með sínum mönnum Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, ítrekar að fallbaráttan í ensku úrvalsdeildinni sé síður en svo ráðin, þrátt fyrir að lærisveinar hans og Eggerts Magnússonar hafi beðið lægri hlut gegn Watford á heimavelli í dag. West Ham var miklu betri aðilinn í leiknum en ekkert gekk upp við mark andstæðinganna. 10.2.2007 20:30
Schalke í góðri stöðu í Þýskalandi Schalke er komið með sex stiga forskot á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta en í dag vann liðið góðan 2-0 sigur á Hertha Berlín. Á sama tíma máttu helstu keppinautarnir í Werder Bremen þola skell gegn Stuttgart þar sem lokatölur urðu 4-1. 10.2.2007 20:00
Stjarnan upp í 3. sæti eftir sigur á Haukum Stjarnan lagði Hauka af velli, 31-28, í viðureign liðanna í DHL-deild karla í handbolta sem fram fór í Garðabænum í kvöld. Með sigrinum er Stjarnan komið upp í 3. sæti deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Vals. Síðarnefnda liðið á reyndar leik til góða gegn Fram á morgun. 10.2.2007 19:38
Skiptar skoðanir á Mourinho í Portúgal Fótboltaáhangendur í Portúgal skiptast í tvær andstæðar fylkingar gagnvart Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea, ef eitthvað er að marka skoðanakönnun á vegum eins útbreiddasta dagblaðs Portúgals, Correio da Manha. 43,1% vilja sjá Mourinho taka við starfi landsliðsþjálfara eftir að Luiz Felipe Scolari lætur af störfum sumarið 2008 en 42,2% eru á móti ráðningu Mourinho. 10.2.2007 19:30
Jóhannes og Bjarni spiluðu Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrjunarliði Burnley sem gerði 1-1 jafntefli við Sheffield Wednesday í ensku 1. deildinni í dag. Jóhannes Karl fór af velli á 77. mínútu. Þá spilaði Bjarni Þór Viðarsson síðasta hálftímann fyrir Bournemouth í stórsigri liðsins á Layton Orient í ensku 2. deildinni, en þar er hann í láni frá Everton. 10.2.2007 19:15
LA Galaxy í væntanlegum raunveruleikaþætti í Bandaríkjunum Um það bil 800 manns, hvaðanæva úr heiminum, sækjast nú eftir því að hreppa eitt laust sæti í leikmannahóp bandaríska atvinnumannaliðsins LA Galaxy, en sem kunnugt er skrifaði David Beckham undir samning við liðið fyrir skemmstu. Uppátækið er hluti af væntanlegum raunveruleikaþætti sem býr yfir sömu grunnhugmynd og þættir á borð við Idol, X-factor og So you think you can Dance? 10.2.2007 18:45