Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nash og Bosh leikmenn mánaðarins í NBA Steve Nash hjá Phoenix Suns og Chris Bosh hjá Toronto Raptors voru í kvöld útnefndir leikmenn janúarmánaðar í NBA deildinni, en þeir verða báðir í byrjunarliðunum í Stjörnuleiknum sem fram fer í Las Vegas síðar í þessum mánuði. 2.2.2007 01:15
Carmelo Anthony ekki valinn í stjörnuliðið Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver var ekki á meðal þeirra leikmanna sem í kvöld voru valdir sem varamenn í Stjörnuleiknum sem fram fer í Las Vegas síðar í þessum mánuði. Talið er víst að þáttaka Anthony í slagsmálunum í New York fyrir nokkrum vikum hafi spilað stóran þátt í því að þessi stigahæsti leikmaður í NBA var ekki valinn í liðið. 2.2.2007 01:05
Óvíst að Owen spili á leiktíðinni Michael Owen segir að vel geti farið svo að hann spili ekkert á þessari leiktíð eftir að hann meiddist alvarlega á hné á HM síðasta sumar. Owen segist fara sér afar hægt í endurhæfingunni og ætlar ekki að taka neina áhættu. 2.2.2007 00:32
Alfreð ósáttur með vinstri vænginn Alfreð Gíslason var þokkalega sáttur við varnarleik og markvörslu íslenska liðsins í leiknum gegn Rússum í kvöld, en öfugt við leikinn við Dani var það sóknarleikurinn sem varð liðinu að falli í kvöld. Alfreð sagði íslenska liðið hafa gefið leikinn frá sér og var ósáttur með frammistöðu leikmanna á vinstri vængnum. 1.2.2007 20:36
Þjálfari Dana: Leikurinn við Íslendinga sat í okkur Ulrik Wilbek, þjálfari Dana, var að vonum vonsvikinn í kvöld eftir að baráttuglaðir lærisveinar hans féllu úr leik í undanúrslitunum á HM eftir maraþoneinvígi við Pólverja. Hann segir leikinn við Íslendinga enn hafa setið í hugum og limum danska liðsins í kvöld. 1.2.2007 23:04
Guðjón Valur: Þeir voru einfaldlega klókari en við Guðjón Valur Sigurðsson sagði Rússana hafa verið klókari í leik kvöldsins og sagði engar afsakanir um þreytu duga til við að útskýra tapið. 1.2.2007 19:22
Óli Stef: Sjaldan séð okkur svona lélega Ólafur Stefánsson var skiljanlega daufur í dálkinn þegar Arnar Björnsson íþróttafréttamaður náði tali af honum eftir leikinn við Rússa í kvöld. Hann sagðist sjaldan hafa séð íslenska liðið jafn lélegt í sóknarleiknum. 1.2.2007 19:12
Birkir Ívar: Hissa á áhugaleysi leikmanna Birkir Ívar Guðmundsson markvörður var hundfúll með frammistöðu íslenska liðsins í kvöld þegar það lá fyrir Rússum á HM í handbolta. 1.2.2007 19:05
Tap fyrir Rússum Íslenska landsliðið tapaði í kvöld fyrir Rússum 28-25 og leika því um 7. sætið á HM í handbolta. Rússar höfðu yfir í leikhléi 16-14, en íslenska liðið komst í fyrsta sinn yfir um miðjan síðari hálfleik. Eftir það tóku Rússar öll völd og tryggðu sér sigurinn með því að breyta stöðunni úr 22-24 í 27-22 sér í hag. 1.2.2007 18:02
Þór Þorlákshöfn skellti Snæfelli Fjórir leikir fóru fram í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld. Þór frá Þorlákshöfn skellti Snæfelli óvænt 81-78, Keflavík vann öruggan sigur á Haukum á útivelli 95-70, Grindvíkingar komu fram hefndum síðan í bikarnum á dögunum og lögðu ÍR í Seljaskóla 93-81og þá vann Skallagrímur 99-77 sigur á Hamri. 1.2.2007 21:48
Pólverjar í úrslit gegn Þjóðverjum Það verða Pólverjar sem leika til úrslita um heimsmeistaratitilinn í handbolta gegn heimamönnum Þjóðverjum. Spútniklið keppninnar vann í kvöld sigur á Dönum í enn einum maraþonleiknum 36-33 eftir tvær framlengingar og hávaðadramatík. Danir leika um bronsið gegn Frökkum. 1.2.2007 21:28
Mourinho fær stuðningsyfirlýsingu Forráðamönnum Chelsea virðist vera nóg boðið af endalausu slúðri bresku pressunnar um framtíð knattspyrnustjórans Jose Mourinho hjá félaginu, því í kvöld birti liðið stuðningsyfirlýsingu við stjórann og fullyrt er að hann fari hvergi á næstunni. 1.2.2007 21:20
Gattuso framlengir við Milan Harðjaxlinn Gennaro Gattuso hefur framlengt samning sinn við ítalska stórliðið AC Milan til ársins 2011 og fetaði þar með í fótspor Clarence Seedorf félaga síns, en þeir koma til með að klára ferilinn hjá félaginu. Tveir lykilmanna AC Milan fóru hinsvegar á meiðslalistann í dag. 1.2.2007 21:11
Meiðsli Cole ekki alvarleg Meiðsli enska landsliðsmannsins Ashley Cole hjá Chelsea eru ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu og mun leikmaðurinn ekki þurfa í uppskurð samkvæmt fyrstu niðurstöðum lækna. Cole skaddaði krossband í öðru hnénu í leiknum gegn Blackburn í gærkvöld, en forráðamenn Chelsea eru bjartsýnir á að hann nái heilsu fyrir lok leiktíðar í vor. 1.2.2007 20:41
Þjóðverjar í úrslit Þjóðverjar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleiknum á HM í handbolta með dramatískum sigri á Frökkum 32-31 í tvíframlengdum og sögulegum leik. Þjóðverjar mæta því annað hvort Dönum eða Pólverjum í úrslitaleik mótsins um helgina. Markus Baur og Holger Glandorf skoruðu 5 mörk hvor fyrir Þjóðverja en Daniel Narcisse skoraði 8 mörk og Joel Abati 7 fyrir Frakka. 1.2.2007 20:12
Króatar spila um fimmta sætið Króatar tryggðu sér í dag leik um fimmta sætið á HM í handbolta þegar liðið vann sannfærandi sigur á ríkjandi heimsmeisturum Spánverja 35-27 eftir að hafa leitt í hálfleik 16-12. Ivano Balic var frábær í liði Króata með 9 mörk en Tomás González skoraði 6 fyrir Spánverja. 1.2.2007 16:00
Magath að taka við Hamburg Þýskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Felix Magath verði ráðinn knattspyrnustjóri botnliðs Hamburg á næsta sólarhring. Þessi tíðindi koma aðeins einum degi eftir að hann var rekinn frá meisturum Bayern Munchen, en mikil uppstokkun hefur verið í þjálfaramálum í þýsku úrvalsdeildinni síðustu daga. 1.2.2007 14:58
Forseti Barcelona hefur ekki áhyggjur af Saviola Joan Laporta, forseti Barcelona, segist ekki hafa áhyggjur af því hvort Argentínumaðurinn Javier Saviola fari frá félaginu í sumar eða ekki, en bætir því við að hann sé afar ánægður með frammistöðu hans í undanförnum leikjum. 1.2.2007 14:35
Torres: Ég hefði auðveldlega geta farið til Chelsea Framherjinn Fernando "El Nino" Torres hjá Atletico Madrid segir að hann hefði auðveldlega geta gengið í raðir Chelsea í janúarglugganum ef sig hefði langað að fara frá uppeldisfélagi sínu á Spáni. Það hafi hinsvegar ekki komið til greina fyrir sig. 1.2.2007 14:29
Markahæstur í mótlæti Snorri Steinn Guðjónsson er sá leikmaður íslenska handboltalandsliðsins sem hefur skorað flest mörk þegar íslenska landsliðið hefur verið undir í leikjum sínum á HM í handbolta. Óskar Ófeigur Jónsson, blaðamaður á Fréttablaðinu, hefur tekið saman skemmtilegan tölfræðipakka um framlag Snorra á HM til þessa. 1.2.2007 13:53
Pearce tekur við U-21 árs liði Englendinga Stuart Pearce hefur verið ráðinn þjálfari U-21 árs liðs Englendinga samhliða því að stýra liði Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Fyrsti leikur Pearce verður vináttuleikur liðsins við Spánverja í næstu viku og svo er Evrópumótið á dagskránni í sumar. 1.2.2007 13:46
Mourinho hefur miklar áhyggjur af Cole Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur miklar áhyggjur af hnémeiðslunum sem Ashley Cole varð fyrir í leiknu gegn Blackburn í gær, en Cole lagðist skyndilega í grasið í miklum sársauka án þess að nokkur kæmi við hann. Hann gengur undir ítarlega læknisskoðun í dag. 1.2.2007 13:42
Fjórða tap Denver í röð Fjöldi leikja fór fram í NBA deildinni í nótt. Denver tapaði sínum fjórða leik í röð í nótt þegar liðið lá fyrir Portland á útivelli. Utah skellti San Antonio og Kobe Bryant sneri aftur með látum eftir leikbann og færði Boston 13. tapið í röð. 1.2.2007 13:20
Kyle Chisholm í ökla aðgerð Kawasaki ökumaðurinn Kyle Chisholm undirgekkst aðgerð á hægri ökkla eftir slæma byltu á æfingum fyrir supercrossið í Phoenix. Kyle er nú með stál plötu og átta skrúfur í ökklanum og má hann ekki stíga í fótinn næstu 8 vikurnar. 1.2.2007 11:37
Stjórnarformaður Leicester City segir af sér Andrew Taylor, stjórnarformaður enska knattspyrnuliðisins Leicester City, hefur sagt af sér eftir því sem greint er frá á vef breska ríkisútvarpsins. Þar eru ástæður þess ekki tilgreindar en sagt að afsögnin hafi ekki áhrif á fyrirhuguð kaup Serbans Milans Mandaric á félaginu. 1.2.2007 10:37
Kobe Bryant funheitur gegn Boston Celtics Kobe Bryant skoraði 43 stig, átti átta stoðsendingar og hirti átta fráköst þegar erkifjendurnir Los Angeles Lakers og Boston Celtics mættust í NBA-deildinni í gærkvöld. Lakers fóru með sigur af hólmi, 111-98. 1.2.2007 09:47
Rússar yfir í hálfleik Rússar hafa yfir 16-14 þegar flautað hefur verið til hálfleiks gegn Íslendingum. Rússar náðu að koast í 16-12 en íslenska liðið náði að laga stöðuna aðeins fyrir hlé. Birkir Ívar hefur verið besti maður íslenska liðsins og er kominn með um 10 skot varin. Sóknarleikur íslenska liðsins hefur verið nokkuð brokkgengur í hálfleiknum og væri staðan eflaust mun verri ef ekki væri fyrir fína markvörslu. 1.2.2007 17:08
Rússar yfir eftir 15 mínútur Rússar hafa yfir gegn Íslendingum 9-7 þegar 15 mínútur eru liðnar af leik liðanna í Hamburg. Birkir Ívar hefur verið mjög drjúgur í íslenska liðinu en Rússar náðu að snúa stöðunni úr 5-7 í 9-7 á skömmum tíma. 1.2.2007 16:48
Arnór kemur inn fyrir Einar Örn Arnór Atlason hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn á ný fyrir leikinn gegn Rússum sem hefst í Hamburg klukkan 16:30. Snorri Steinn Guðjónsson er með flensu en kemur þó til með að spila leikinn og heilsufar Roland Vals Eradze er enn spurningamerki. 1.2.2007 16:06
Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Íslenski boltinn