Formúla 1

McLaren er að eyðileggja feril Hamilton

David Coulthard hefur áhyggjur af Hamilton hjá McLaren
David Coulthard hefur áhyggjur af Hamilton hjá McLaren NordicPhotos/GettyImages

David Coulthard, ökumaður Red Bull í Formúlu 1 og fyrrum ökumaður McLaren, segir að Ron Dennis og félagar hjá McLaren séu mjög líklega að eyðileggja feril hins efnilega Breta Lewis Hamilton með því að gera hann að aðalökumanni of snemma.

"Það er enginn vafi á því að Hamilton er mjög efnilegur ökumaður, en fyrsti maðurinn sem þú ert borinn saman við þegar þú ert aðalökumaður er félagi þinn hjá liðinu. Það er auðvitað mjög erfitt fyrir Hamilton að vera borinn saman við (tvöfaldan heimsmeistara) Fernando Alonso - og það gæti átt eftir að rakka niður allt það sjálfstraust sem drengurinn kann að hafa," sagði Coulthard, sem sjálfur ók fyrir McLaren á árunum 1996 til 2004.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×