Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sigurður hættur að þjálfa Stjörnuna Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem tilkynnt er að Sigurður Bjarnason hafi látið af störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins og aðstoðarmaður hans Magnús Teitsson sömuleiðis. 16.10.2006 14:12
Ætlar að spila aftur fyrir Rangers Gennaro Gattuso hjá AC Milan segist ákveðinn í að spila aftur með liði Glasgow Rangers á ný áður en hann leggur skóna á hilluna, en þessi magnaði miðjumaður var aðeins 19 ára gamall þegar Walter Smith keypti hann frá Perugia á sínum tíma og gaf honum tækifæri með Rangers. 15.10.2006 22:00
LA Lakers - Phoenix í beinni Viðureign LA Lakers og Phoenix Suns á undirbúningstímabilinu í NBA verður sýnd í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland í kvöld. Leikurinn fer fram í Las Vegas og hefst klukkan hálf tvö eftir miðnætti. 15.10.2006 20:00
Viðræður hafnar um nýjan samning Framherjinn Wayne Rooney er sagður vera kominn í viðræður við forráðamenn Manchester United um framlengingu á samningi sínum. Enn eru nokkur ár eftir af samningnum sem hann undirritaði þegar hann gekk í raðir félagsins frá Everton árið 2004 fyrir 27 milljónir punda. 15.10.2006 19:22
Barcelona lagði Sevilla Barcelona lagði Sevilla 3-1 í spænska boltanum í kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona. Ronaldinho skoraði tvö mörk, annað úr víti og Leo Messi bætti við þriðja marki Katalóníumanna sem skutust á toppinn með sigrinum. 15.10.2006 19:06
Betis - Deportivo í beinni Nú klukkan 19:00 hefst leikur Real Betis og Deportivo í spænska boltanum og er hann sýndur beint á Sýn. Betis er í fallsæti með aðeins 3 stig eftir 5 leiki, en Deportivo hefur fengið 10 stig og er í 7. sæti. 15.10.2006 18:59
Baulað á Jackson í Indiana Átta æfingaleikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA liðna nótt. Áhorfendur í Indiana bauluðu á vandræðagemlinginn Stephen Jackson þegar hann kom inn sem varamaður í tapleik gegn Utah Jazz. 15.10.2006 18:13
Haukar úr leik Haukastúlkur eru úr leik í Evrópukeppninni eftir að liðið gerði jafntefli við ungverska liðið Alcoa 22-22 á Ásvöllum í dag. Ungverska liðið vann fyrri leikinn með fimm marka mun og því er íslenska liðið úr leik. 15.10.2006 17:58
Gummersbach vann Lubbecke Nokkrir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach unnu góðan 37-31 útisigur á Lubbecke. Róbert Gunnarsson skoraði 6 mörk fyrir Gummersbach og Guðjón Valur Sigurðsson 5. Þórir Ólafsson skoraði 2 mörk fyrir Lubbecke en Birkir Ívar Guðmundsson kom ekki við sögu í leiknum. 15.10.2006 17:46
Inter á toppinn Inter Milan skellti sér á toppinn í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag með 2-1 sigri á Catania í dag. Það var Dejan Stankovic sem skorað bæði mörk Inter í dag og eru ítölsku meistararnir þar með komnir með 14 stig eftir 6 leiki og hafa 2 stiga forskot á Roma sem tapaði 1-0 úti gegn Reggina. 15.10.2006 17:39
Bolton í þriðja sætið Bolton skaust í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í dag með því að leggja Newcastle á útivelli 2-1. Newcastle hafði undirtökin framan af og Shola Ameobi kom liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. El Hadji Diouf skoraði hinsvegar tvö mörk á innan við tveimur mínútum í þeim síðari og gerði út um leikinn fyrir Bolton. 15.10.2006 17:24
RIbery vill fara til Arsenal Umboðsmaður franska miðjumannsins Franck Ribery segir leikmanninn hafa fullan hug á að ganga í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal í framtíðinni. 15.10.2006 16:30
Óttast að missa starfið Alan Pardew viðurkennir að hann óttist mjög að verða vikið úr starfi hjá West Ham eftir að liðið seig niður í fallbaráttuna í gær með 2-0 tapi gegn Portsmouth. 15.10.2006 16:00
Grönholm sigraði í Tyrklandi Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm á Ford sigraði örugglega í Tyrklandsrallinu sem fram fór um helgina og hefur því saxað á forskot heimsmeistarans Sebastien Loeb í stigakeppni ökumanna til heimsmeistara. 15.10.2006 15:31
Viktor Bjarki og Margrét Lára leikmenn ársins Viktor Bjarki Arnarsson úr Víkingi og Margrét Lára Viðarsdóttir úr Val voru í gær valin leikmenn ársins í karla- og kvennaflokki á Íslandsmótinu í knattspyrnu á lokahófi HSÍ sem haldið var á Hótel Íslandi. 15.10.2006 15:00
Cech fór í aðgerð Tékkneski markvörðurinn Petr Cech hjá Chelsea fór í aðgerð í dag vegna höfuðkúpubrots sem hann varð fyrir í leiknum gegn Reading í gærkvöldi. 15.10.2006 14:47
Grönholm á sigurinn vísan Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm á Ford Focus hefur mjög gott forskot eftir tvo fyrstu keppnisdagana í Tyrklandsrallinu og útlit er fyrir að hann nái að saxa vel á forskot heimsmeistarans Sebastien Loeb. 15.10.2006 12:30
Getafe hefur tak á Real Madrid Stórliðið Real Madrid reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni við granna sína í smáliðinu Getafe í spænska boltanum í gær og tapaði 1-0 á útivelli. Eins og til að fullkomna ömurlegt kvöld fyrir Real, lék framherjinn Ronaldo reka sig af velli fyrir kjaftbrúk í lok leiksins og verður því í banni í næsta leik þegar Real mætir Barcelona. 15.10.2006 11:15
Cech var á sjúkrahúsi í nótt Petr Cech, aðalmarkvörður Chelsea, varði síðustu nótt á sjúkrahúsi eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg í upphafi leiksins gegn Reading í gær, en Carlo Cudicini var leyft að fara heim að lokinni rannsókn í gærkvöldi. 15.10.2006 08:00
Enn vinnur Calzaghe Joe Calzaghe varði í gær IBF og WBO titla sína í millivigt hnefaleika þegar hann vann sigur á Sakio Bika á stigum í bardaga þeirra í Manchester á Englandi. Sigur Calzaghe var nokkuð öruggur þegar upp var staðið, en þessi mikli meistari þurfti að hafa mikið fyrir honum. 15.10.2006 01:50
Æfur yfir meiðslum markvarða sinna Jose Mourinho var afar ósáttur við framgöngu Stephen Hunt í leik Reading og Chelsea í dag, en honum þótti Hunt brjóta gróflega á Petr Cech með þeim afleiðingum að markvörðurinn lenti á sjúkrahúsi líkt og félagi hans Carlo Cudicini. 15.10.2006 01:07
Ósáttur við færin sem fóru forgörðum Martin Jol þurfti enn að skammast yfir því hvað leikmenn hans fóru illa með færi sín þegar liðið gerði jafntefli við Aston Villa á útivelli í dag. 14.10.2006 21:15
Telur að Watford muni halda sér í deildinni Arsene Wenger segir sitt lið hafa þurft á öllu sínu að halda í dag þegar það lagði Watford 3-0 í ensku úrvalsdeildinni. Hann segir að þó Watford hafi enn ekki unnið leik í deildinni, hafi það alla burði til að halda sér uppi í vor. 14.10.2006 20:00
Fram steinlá í Noregi Íslandsmeistarar Fram spiluðu sinn slakasta leik til þessa í Meistaradeildinni þegar liðið steinlá 35-26 fyrir norsku meisturunum í Sandefjord í dag. Guðjón Drengsson skoraði 6 mörk fyrir Framara, sem verma nú botnsætið í riðli sínum í keppninni. 14.10.2006 18:34
Dýr sigur hjá meisturunum Englandsmeistarar Chelsea unnu mikilvægan 1-0 útisigur á Reading í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Ívar Ingimarsson tryggði Chelsea sigurinn með sjálfsmarki í blálokin á fyrri hálfleik, en sigurinn gæti átt eftir að reynast liði Chelsea mjög dýr. 14.10.2006 18:14
Valur lagði Stjörnuna Valsmenn unnu í dag góðan sigur á Stjörnunni í úrvalsdeild karla í handbolta 30-29 og því er Stjarnan enn án sigurs í deildinni eftir þrjá leiki. Ernir Hrafn Arnarson skoraði 7 mörk fyrir Val og Patrekur Jóhannesson skoraði einni 7 mörk fyrir Stjörnuna. Ólafur Haukur Gíslason varði 17 skot í marki Vals. 14.10.2006 17:39
Bremen valtaði yfir Bochum Werder Bremen skellti sér á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag með því að valta yfir Bochum á útivelli 6-0. Frábært lið Bremen skoraði fimm mörk á síðasta hálftíma leiksins, en á meðan vann Bayern góðan sigur á Hertha Berlín 4-2. 14.10.2006 17:15
Ívar Ingimarsson í sviðsljósinu Íslenski landsliðsmaðurinn Ívar Ingimarsson hefur sannarlega verið í sviðsljósinu í leik Reading og Chelsea, en gestirnir hafa 1-0 forystu þegar flautað hefur verið til leikhlés. Ívar, sem ber fyrirliðabandið hjá Reading, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir aukaspyrnu Frank Lampard undir lok hálfleiksins, en áður hafði Ívar skallað í slá á eigin marki. 14.10.2006 17:06
Ferguson og Jewell hrósa Rooney Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United og Paul Jewell, stjóri Wigan, skiptust á að hrósa Wayne Rooney fyrir frammistöðu hans í sigri United í dag. Rooney náði ekki að skora mark, en leikur hans þótti bera vitni um að hann væri að finna sitt fyrra form. 14.10.2006 16:13
Ívar í byrjunarliði Reading Ívar Ingimarsson er að venju í byrjunarliði Reading í dag þegar liðið tekur á móti Englandsmeisturum Chelsea í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Brynjar Björn Gunnarsson er á varamannabekknum. 14.10.2006 16:08
Liverpool og Blackburn skildu jöfn Leikjunum sex sem hófust klukkan 14 í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið. Liverpool þurfti að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Blackburn á heimavelli sínum, en Arsenal vann auðveldan sigur á Watford 3-0. 14.10.2006 15:58
Sandefjord - Fram í beinni á Sýn Leikur norsku meistaranna Sandefjord og Íslandsmeistara Fram í meistaradeild Evrópu verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í dag. Útsending frá leiknum í Noregi hefst klukkan 16:45 og það kemur í hlut hins óviðjafnanlega Guðjóns Guðmundssonar að lýsa leiknum. 14.10.2006 15:45
Ráðgjafi McClaren segir af sér Max Clifford, ráðgjafi enska landsliðsþjálfarans Steve McClaren, hefur sagt starfi sínu lausu. Clifford var ráðinn til að tala fyrir munn þjálfarans í fjölmiðlum og vernda hann fyrir árásum ágengra blaðamanna. 14.10.2006 15:11
Blackburn er yfir á Anfield Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Blackburn hefur yfir 1-0 gegn Liverpool á Anfield þar sem Benni McCarthy skoraði fyrir gestina. 14.10.2006 14:56
Sex leikir í nótt Sex leikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt. Leikur Houston og Atlanta var í beinni útsendingu á NBA TV. 14.10.2006 14:29
Man Utd lagði Wigan Manchester United vann góðan 3-1 útisigur á Wigan í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Wigan náði forystunni með marki úr aukaspyrnu í fyrri hálfleik, en Nemanja Vidic, Louis Saha og Ole Gunnar Solskjær tryggðu gestunum öruggan sigur með mörkum í þeim síðari. 14.10.2006 14:02
Calzaghe ætlar að jafna met Böðulsins Walesverjinn Joe Calzaghe segist ætla að gæta sín vel á því að vanmeta ekki andstæðing sinn annað kvöld þegar hann ver WBO og IBF titla sína í yfir millivigt gegn Kamerúnmanninum Sakio Bika. Bardaginn verður í beinni á Sýn annað kvöld og hefst útsending strax klukkan 20. 13.10.2006 22:30
Houston - Atlanta í beinni NBA TV sjónvarpsstöðin á Digital Ísland heldur áfram beinum útsendingum frá undirbúningstímabilinu í NBA í nótt, en klukkan 0:30 verður á dagskrá leikur Houston Rockets og Atlanta Hawks. 13.10.2006 22:15
Haukar töpuðu fyrir Alcoa Kvennalið Hauka tapaði í kvöld fyrri leik sínum gegn ungverska liðinu Cornexi Alcoa 31-26 í Evrópukeppninni í handbolta. Síðari leikur liðanna verður einnig á Ásvöllum og þar verður bíður Hauka erfitt verkefni gegn þessu sterka liði, sem komst í undanúrslit EHF keppninnar á síðustu leiktíð. 13.10.2006 21:43
Fjölmiðlar telja Joorabchian líklegri til að kaupa West Ham Breska blaðið The Times fullyrðir í dag að íranski viðskiptajöfurinn Kia Joorabchian sé líklegri en Eggert Magnússon til að kaupa enska úrvalsdeildarfélagið West Ham. Eggert vísar þeim fregnum á bug að 8 milljarða tilboði hans í félagið hafi verið hafnað. 13.10.2006 21:00
Grótta á toppnum Einn leikur fór fram í DHL deild kvenna í handknattleik í kvöld. Gróttustúlkur styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar með auðveldum sigri á HK 32-24 og hefur liðið unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni. 13.10.2006 20:50
Grönholm leiðir eftir fyrsta daginn Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm hefur forystu eftir fyrsta daginn í Tyrklandsrallinu og heldur þar með í veika von um að veita heimsmeistaranum Sebastien Loeb einhverja samkeppni í titilbaráttunni. 13.10.2006 19:50
Paul Grant að taka við Norwich Paul Grant, aðstoðarknattspyrnustjóri West Ham, verður tilkynntur formlega sem nýr knattspyrnustjóri 1. deildarliðs Norwich á mánudaginn. Norwich mun væntanlega greiða úrvalsdeildarfélaginu eitthvað fé fyrir Grant, en á heimasíðu Norwich segist hann fagna því að taka frábæru félagi sem ætli sér stóra hluti. Grant spilaði 75 leiki fyrir Norwich á sínum tíma. 13.10.2006 19:45
Aftur keppt á Spa á næsta ári Forráðamenn Belgíukappakstursins hafa náð samkomulagi við Bernie Ecclestone um að endurvekja keppnishald á Spa-brautinni þar í landi, en ekki var keppt á brautinni í ár eftir að mótshaldarar fóru á hausinn. Brautin hefur verið endurbætt fyrir um 25 milljónir dollara og verður keppt á þessari sögufrægu braut á ný í september á næsta ári. 13.10.2006 19:00
Guðlaugur Arnarsson til Gummersbach Alfreð Gíslason, þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Gummersbach, hefur nú fengið fjórða íslendinginn í raðir sínar eftir að hann gekk frá lánssamningi á Fylkismanninum sterka Guðlaugi Arnarssyni. 13.10.2006 18:45