Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
"Sýnum hvað við getum og vinnum þessa keppni" Steven Gerrard, leikmaður enska landsliðsins segir að enska liðið eigi að sýna úr hverju það er gert og fara fulla á ferð áfram og vinna heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi í sumar. 11.6.2006 13:55
42 ár liðin síðan við unnum Svía í alvörulandsleik Íslenska handboltalandsliðið hefur aðeins einu sinni náð að vinna Svía í stórmóti eða undankeppnum þeirra. Hér er verið að tala um Heimsmeistaramót, Evrópumeistaramót og Ólympíuleika. Eini sigurinn kom á HM í Tékkóslóvakíu fyrir 42 árum síðan þegar íslenska liðið vann 12-10 í riðlakeppninni. Íslensku strákarnir hafa nú tapað 9 "alvöruleikjum" í röð fyrir sænska landsliðinu. Íslenska landsliðið mætir Svíum í Globen í fyrri leik liðanna í undankeppni HM 2007 klukkan 15.00 í dag. 11.6.2006 13:49
Miðjumenn Brasilíu hrósa ensku miðjunni Brasilíumennirnir Kaka og Emerson gáfu það út eftir fyrsta leik Englendinga í Þýskalandi að þeir teldu liðið hafa eina bestu miðju á að skipa í mótinu. 11.6.2006 13:48
Holland yfir í hálfleik Hollendingar hafa yfir 1-0 gegn Serbum í leik þjóðanna í c-riðli HM. Arjen Robben, leikmaður Chelsea, skoraði markið eftir 17 mínútna leik og hefur verið frábær í fyrri hálfleiknum. 11.6.2006 13:47
Scolari búinn að skrifa undir nýjan samning Þjálfarinn Luiz Felipe Scolari sem gerði Brasilíumenn að heimsmeisturum árið 2002 hefur framlengt samning sinn við portúgalska knattspyrnusambandið til ársins 2008. 11.6.2006 13:39
Hollendingar komnir yfir Arjen Robben er búinn að koma Hollendingum yfir gegn Serbum og Svartfellingum í fyrsta leik dagsins á HM. Markið kom á 17. mínútu leiksins. Hér fyrir neðan má sjá byrjunarlið þjóðanna í leiknum. 11.6.2006 13:22
Fótbolti er skemmtilegur Það er svo geðveikt hreinlega að sjá Fílabeinstrendinga, líktog einhver kallaði þá í dag, samanber Skagstrendinga, baráttulið og héngu í sterkum Argentínumönnum. Ég hef ekki verið mikill aðdáandi Drogba, en mikið andskoti er maðurinn duglegur á vellinum, og allt liðið raunar, sterkir, leiknir og áræðnir í meira lagi, þeir eiga mikið hrós skilið fyrir að gera þriðja leikinn í kvöld að stórkostlegri skemmtun lengstum. 11.6.2006 02:24
Argentína lagði Fílabeinsstrendinga Argentínumenn lögðu Fílabeinsstrendinga 2-1 í opnunarleik c-riðilsins á HM í kvöld. Argentína var yfir 2-0 í hálfleik eftir að Hernan Crespo og Javier Saviola skoruðu sitt hvort markið, en Didier Drogba minnkaði muninn 10 mínútum fyrir leikslok og setti mikla spennu í leikinn. Lengra komst Afríkuliðið þó ekki að þessu sinni, en ljóst er að lið Fílabeinsstrandarinnar er sýnd veiði en ekki gefin í mótinu. 10.6.2006 20:55
Ólæti heima á Englandi Litlum sögum hefur farið af því á HM enn sem komið er að stuðningsmenn enska landsliðsins hafi verið til vandræða í Þýskalandi. Í dag kom hinsvegar til óláta heima í Lundúnum og í Liverpool þar sem nokkur fjöldi fólks hafði safnast saman á torgum og fylgst með leik enska liðsins á risaskjá. 10.6.2006 20:20
Svíar ekki sigursælir í opnunarleikjum sínum Sænska landsliðið í knattspyrnu hefur ætið verið hið frambærilegasta en ef sagan er skoðuð, má sjá að gengi liðsins í opnunarleikjum á HM hefur ekki verið sérlega gott. Liðinu mistókst í dag að leggja lægra skrifað lið Trinidad og Tobago og hafa Svíarnir því ekki unnið opnunarleik sinn á HM síðan árið 1958 þegar keppnin var haldin í Svíþjóð. 10.6.2006 20:05
Fullt hús hjá Valsstúlkum Valsstúlkur eru enn með fullt hús stiga í efsta sæti Landsbankadeildarinnar eftir 3-2 útisigur á KR í dag í hörkuleik. Þetta var fyrsti leikurinn í 5. umferð deildarinnar, þar sem Valur trjónir á toppnum með 15 stig eftir 5 leiki og markatöluna 29-3. KR er í 4. sætinu með 6 stig. 10.6.2006 19:53
Argentína 2-0 yfir í hálfleik Argentínumenn byrja þessa heimsmeistarakeppni sannarlega betur en þá síðustu, en liðið hefur 2-0 forystu gegn spræku liði Fílabeinsstrandarinnar þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í C-riðlinum. Hernan Crespo kom Argentínu á bragðið og Javier Saviola bætti við öðru marki skömmu fyrir leikhlé. Það var Juan Riquelme sem var arkítektinn að báðum mörkum liðsins. 10.6.2006 19:44
Gamarra skoraði 30. sjálfsmarkið Carlos Gamarra, leikmaður Paragvæ, varð þess vafasama heiðurs njótandi í dag að skora 30. sjálfsmarkið í sögu HM og um leið fyrsta sjálfsmarkið á mótinu nú. Þetta er í annað sinn í sögu keppninnar sem þjóð skorar sjálfsmark gegn Englendingum, en Jozef Barmos frá Tékklandi hafði áður gert það árið 1982. 10.6.2006 18:43
Argentína - Fílabeinsströndin Nú er búið að tilkynna byrjunarlið Argentínu og Fílabeinsstrandarinnar fyrir viðureign þjóðanna í Hamburg sem hefst nú klukkan 19:00 og er fyrsti leikurinn í C-riðli. Gabriel Heinze er í byrjunarliði Argentínu og spilar því sinn fyrsta alvöru leik síðan í september á síðasta ári, þegar hann meiddist á hné í leik með Manchester United. 10.6.2006 18:27
Trinidad fagnaði jafntefli sínu við Svía Smálið Trinidad og Tobago náði þeim frábæra árangri að gera jafntefli við Svía 0-0 í leik liðanna í B-riðli HM í dag og fögnuðu leikmenn liðsins ákaft í leikslok á meðan Svíarnir naga sig eflaust í handabökin. Markvörðurinn Shaka Hislop hjá Trinidad var klárlega maður leiksins og tryggði sínum mönnum stig með frábærri markvörslu hvað eftir annað, en liðsmenn Trinidad léku manni færri allan síðari hálfleikinn eftir að Avery John var vikið af leikvelli. 10.6.2006 17:52
Irureta tekur við Real Betis Hinn gamalreyndi þjálfari Javier Irureta hefur verið ráðinn þjálfari spænska úrvalsdeildarliðsins Real Betis. Irureta stýrði síðast liði Deportivo á árunum 1998-2005 við góðan orðstír og gerði liðið m.a. að Spánarmeistara árið 2000. 10.6.2006 17:29
Beckham upp að hlið Robson David Beckham lék í dag sinn 90. landsleik fyrir hönd Englands og komst þar með upp að hlið annars fyrrum leikmanns Manchester United og fyrirliða enska landsliðsins, Bryan Robson. Þá urðu þeir Beckham og Michael Owen áttundi og níundi leikmennirnir í sögu enska landsliðsins til að taka þátt í sinni þriðju heimsmeistarakeppni. 10.6.2006 17:11
Markalaust hjá Trínidad og Svíum Staðan í leik Trínidad og Tobago og Svía er markalaus í hálfleik, þrátt fyrir harða sókn sænska liðsins. Lið Trinidad komst betur inn í leikinn undir lok hálfleiksins, en varð svo fyrir áfalli eftir aðeins nokkrar sekúndur í þeim síðari þegar einum leikmanna þess var vikið af leikvelli fyrir ljóta tæklingu. 10.6.2006 17:04
Lehmann meiddur Jens Lehmann, markvörður þjóðverja er meiddur á ökkla en hann snéri sig í leiknum við Kosta Ríka í gær er Þjóðverjar unnu 4-2. Þjóðverjar eiga næst að spila við Pólland á miðvikudaginn. 10.6.2006 17:02
Höfðum í fullu tré við Englendinga Anibal Ruiz, landsliðsþjálfari Paragvæ, var nokkuð sáttur við frammistöðu sinna manna gegn Englendingum í dag, þrátt fyrir að liðið tapaði 1-0. Hann sagði lið sitt hafa haft í fullu tré við enska liðið eftir sjálfsmarkið slysalega í upphafi leiks. 10.6.2006 16:45
Kenningin segir að Þjóðverjar vinni HM Atli Eðvaldsson, þjálfari Þróttar og fyrrum landsliðsþjálfari Íslands kom með mjög skemmtilega kenningu í gær í þættinum 442 á Sýn. Þar segir Atli að árið 1974 þegar Þjóðverjar unnu HM sem var haldinn í Þýskalandi þá skoraði vinstrifótarmaður og bakvörður fyrsta markið fyrir Þýskaland og var það sjálfur Paul Breitner. 10.6.2006 16:05
Hitinn gerði okkur erfitt fyrir David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, segir að hitinn hafi gert liðinu erfitt fyrir í síðari hálfleiknum gegn Paragvæ í dag og sagði það helstu ástæðu þess að liðið hefði ekki verið sprækara en raun bar vitni. 10.6.2006 16:01
Svíþjóð - Trinidad að hefjast Nú er að hefjast leikur Svía og Trínídad og Tobago í B-riðli HM. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan. 10.6.2006 15:55
Leik ÍBV og KR frestað vegna ófærðar Leik ÍBV og KR sem fara átti fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum nú klukkan 16 hefur verið frestað til klukkan 16:30 á morgun. 10.6.2006 15:48
Eiður við það að ganga í raðir Barcelona? Breska Sky-sjónvarpsstöðin greinir frá því nú fyrir skömmu að Barcelona sé nú aðeins hársbreidd frá því að landa Eiði Smára Guðjohnsen frá Chelsea. Því er haldið fram að Eiður sé búinn að samþykkja þriggja ára samning með möguleika á fjórða árinu. Kaupverðið er þó enn óljóst en sagt hlaupa á 7-10 milljónum punda. 10.6.2006 15:25
Justin Henin-Hardenne sigraði Belgíska tenniskonan Justin Henin-Hardenne sigraði Svetlönu Kuznetsovu 6-4 og 6-4 í úrslitaleik opna franska meistaramótsins í tennis í dag og vann þar með sinn þriðja sigur á mótinu á síðustu fjórum árum. Leikurinn stóð yfir í eina klukkustund og 36 mínútur. Þetta var fimmti stóri titill Hardenne á ferlinum. 10.6.2006 15:14
Eriksson rólegur Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, viðurkenndi að spilamennska liðsins hefði ekki verið sérlega glæsileg í dag, en sagði aðalatriðið hafa verið að sækja öll stigin. 10.6.2006 15:00
Englendingar lögðu Paragvæ í bragðdaufum leik Englendingar hirtu öll stigin í opnunarleik sínum í B-riðli HM í dag þegar þeir lögðu Paragvæ 1-0. Markið kom strax á þriðju mínútu leiksins og var sjálfsmark. Enska liðið var ekki sérlega sannfærandi í leiknum, en náði takmarki sínu og hafði sigur. 10.6.2006 14:52
Landsliðsþjálfarinn hættur Þjóðverjinn Otto Pfister er hættur sem landsliðsþjálfari Afríkuliðs Tógó og við starfi hans tekur fyrrum aðstoðarþjálfarinn Kodjovi Mawuena. Pfister, sem var elsti þjálfarinn á HM, 68 ára, lenti í miklum deilum við knattspyrnusambandið í Tógó út af bónusgreiðslum til leikmanna og sagði af sér í kjölfarið. Fyrsti leikur Tógó á HM fer fram 13. júní og er gegn Suður-Kóreu. 10.6.2006 14:08
Fleiri spænsk lið inni í myndinni Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag að babb sé komið í bátinn í samningaviðræðum Chelsea og Barcelona varðandi hugsanleg kaup á fyrirliða íslenska landsliðsins og fullyrðir að Valencia og annað ónefnt lið sé komið inn í myndina. 10.6.2006 13:59
Englendingar yfir í hálfleik Englendingar hafa enn yfir 1-0 gegn Paragvæ þegar flautað hefur verið til leikhlés. Mark enska liðsins var sjálfsmark frá Carlos Gamarra, sem skallaði knöttinn í eigið net strax á þriðju mínútu leiksins eftir aukaspyrnu frá David Beckham. Englendingar hafa verið með undirtökin í leiknum, en lið Paragvæ var eilítið að vakna til lífsins undir lok hálfleiksins. 10.6.2006 13:45
Þvílíkur opnunarleikur á HM Það var mikið um dýrðir á opnunar degi HM í Þýskalandi. Okkar maður Þorsteinn J var á staðnum og hafði hann meðal annars þetta að segja um stemmninguna á opnunarleiknum: "fánar í regnbogans litum, innfluttur amerískur bjór sem allir Þjóðverjar bölvuðu, en frábær fótbolti." 10.6.2006 13:34
Öskrandi fjör útá götu Gott kvöld, góðir gestir, þvílíkur opnunarleikur á HM, 4-2, og að sitja í þessum helgidómi, á nýja Munchenarvellinum, fánar í regnbogans litum, innfluttur amerískur bjór sem allir Þjóðverjar bölvuðu, en frábær fótbolti. 10.6.2006 13:29
Englendingar komnir yfir Það tók Englendinga aðeins tæpar þrjár mínútur að opna markareikning sinn á HM. Enskir hafa náð 1-0 forystu gegn Paragvæ og var markið sjálfsmark. Varnarmaður Paragvæ varð fyrir því óláni að skalla aukaspyrnu David Beckham í eigið net og liðið varð fyrir öðru áfalli skömmu síðar þegar markvörður liðsins þurfti að fara meiddur af velli. 10.6.2006 13:07
Alonso á ráspól á Silverstone Heimsmeistarinn Fernando Alonso á Renault verður á ráspól í breska kappakstrinum á Silverstone-brautinni á morgun. Alonso skaust naumlega fram úr Michael Schumacher og Kimi Raikkönen á lokasprettinum, en félagi Schumacher, Felipe Massa, náði fjórða besta tímanum. 10.6.2006 13:01
England - Paragvæ að hefjast Nú er leikur Englendinga og Paragvæ að hefjast í beinni útsendingu á S'yn. Byrjunarliðin eru klár og fjölmargir stuðningsmenn enska liðsins á Íslandi eflaust búnir að koma sér vel fyrir við sjónvarpstækin. 10.6.2006 12:55
Sanngjarn sigur Ekvador á Pólverjum Ekvador vann í kvöld sanngjarnan 2-0 sigur á Pólverjum í A-riðli HM. Carlos Tenorio skoraði fyrra mark Suður-Ameríkuliðsins á 24. mínútu og Agustin Delgado innsiglaði sigurinn á 80. mínútu. Tapið er pólska liðinu eflaust mikil vonbrigði, en liðið átti þó lítið meira skilið en það uppskar í leiknum í kvöld. 9.6.2006 20:56
Tottenham hafnar 10 milljón punda tilboði í Carrick Heimildamaður BBC greindi frá því rétt í þessu að úrvalsdeildarliðið Tottenham hefði í dag hafnað 10 milljón punda kauptilboði Manchester United í enska landsliðsmanninn Michael Carrick. Svar Tottenham á að hafa verið á þá leið að United þyrfti að tvöfalda tilboð sitt svo mark væri takandi á því. 9.6.2006 19:59
Ósáttur við varnarmistök sinna manna Alexandre Guimaraes var ekki sáttur við varnarvinnu sinna manna í dag eftir ósigur gegn heimamönnum Þjóðverjum. "Við náðum að jafna leikinn, en svo gerum við klaufamistök og það er alltaf erfitt að fara inn í hálfleikinn marki undir. Við vissum að Þjóðverjarnir yrðu erfiðir, en svo þegar þeir skora þriðja markið eftir skyndisókn, var vitað mál að róðurinn yrði þungur," sagði Guimaraes. 9.6.2006 19:50
Ekvador yfir í hálfleik Ekvador hefur yfir 1-0 gegn Pólverjum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari leiknum í A-riðli HM. Það var Carlos Tenorio sem skoraði mark Ekvador á 24. mínútu með skalla. 9.6.2006 19:48
Mjög ánægður með baráttuna Jurgen Klinsmann hrósaði leikmönnum sínum fyrir góðan baráttuanda í dag eftir að lið hans lagði Kosta Ríka 4-2 í opnunarleiknum. Hann hrósaði ekki síst markaskorurunum Philip Lahm og Miroslav Klose. 9.6.2006 19:27
Ekvador komið yfir Ekvador er nokkuð óvænt komið í 1-0 gegn Pólverjum í leik liðanna í A-riðlinum á HM. Það var Carlos Tenorio sem skoraði markið með laglegum skalla á 24. mínútu. 9.6.2006 19:25
Drogba hugsar málið eftir HM Nokkur orðrómur hefur verið á kreiki á Englandi undanfarna daga um að framherjinn Didier Drogba gæti verið á förum frá meisturum Chelsea. Drogba segist ekki vera að hugsa um að fara frá félaginu, en ætlar þó að nota tímann á HM til að hugsa málið. 9.6.2006 18:45
Byrjunarlið Póllands og Ekvador klár Nú er búið að tilkynna byrjunarliðin fyrir leik Pólverja og Ekvadora í A-riðli sem hefst klukkan 19:00 og er í beinni á Sýn. Leikurinn fer fram á hinum glæsilega Schalke Arena velli í Gelsenkirchen 9.6.2006 18:32
Klose sá fimmti sem skorar á afmælisdaginn sinn Þjóðverjinn Miroslav Klose fagnaði 28 ára afmælisdegi sínum með því að skora tvö mörk í opnunarleik heimsmeistarakeppninnar gegn Kosta Ríka. Klose varð þar með fimmti leikmaðurinn í sögu HM til þess að skora á afmælisdaginn sinn og sá annar í röðinni sem skorar tvö mörk á fæðingardegi sínum. 9.6.2006 17:49
Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn