Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Grindavík lagði Njarðvík í framlengingu Grindvíkingar lögðu granna sína úr Njarðvík í rafmögnuðum spennuleik í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld, þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var jöfn 100-100, en Grindvíkingar höfðu betur á lokasprettinum og sigruðu 116-112. 2.3.2006 21:23
Bruce stendur enn með Pennant Steve Bruce, stjóri Birmingham, segir að þó hann kjósi enn að styðja við bakið á Jermaine Pennant, hafi hann ekki endalausa þolinmæði í garð leikmannsins sem hefur verið duglegur við að koma sér í vandræði. 2.3.2006 20:39
Neitar ásökunum um kynþáttafordóma Steve Finnan hjá Liverpool vísar á bug ásökunum á hendur honum eftir leik Liverpool og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á dögunum, þar sem áhorfendur sögðustu hafa heyrt hann hrópa ókvæðisorð af Patrice Evra, leikmanni Manchester United. 2.3.2006 19:49
Heiðar úr leik á Spáni Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason komst ekki áfram á Opna spænska áhugamannameistaramótinu í golfi sem nú stendur yfir. Heiðar lék annan hringinn í dag á 74 höggum, en þann fyrri á 79 höggum í gær og lauk því keppni á 9 yfir pari. Heiðar bar sigur úr býtum á þessu móti fyrir tveimur árum, en var ekki jafn heppinn að þessu sinni. 2.3.2006 19:42
Tiltekt í vændum hjá Real Fernando Martin, sem á dögunum tók við embætti forseta Real Madrid í kjölfar afsagnar Florentino Perez, segist ekki kæra sig um að vera með lið fullt af milljónamæringum sem ekki leggi sig fram á knattspyrnuvellinum. 2.3.2006 19:25
Hiddink næsti þjálfari Rússa? Rússneskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Guus Hiddink, þjálfari PSV Eindhoven og ástralska landsliðsins, muni taka við rússneska landsliðinu eftir HM í sumar. Hiddink hefur meðal annars verið orðaður við stöðu landsliðsþjálfara Englands. 2.3.2006 18:38
Varar við of mikilli bjartsýni Steve Staunton byrjaði sannarlega glæsilega með írska landsliðið í gær þegar hans menn burstuðu Svía 3-0 í æfingaleik á Lansdowne Road í gærkvöld. Staunton hvetur alla til að hafa báðar fætur á jörðinni þrátt fyrir sannfærandi sigur sinna manna, en segir leikinn þó gefa fyrirheit um það sem koma skal hjá landsliðinu sem tókst ekki að vinna sér sæti á HM í sumar. 2.3.2006 18:25
Mamma mía, við erum lélegir Jurgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Þjóðverja, fær það óþvegið í þýsku pressunni í dag eftir að Þjóðverjar voru teknir í bakaríið á Ítalíu í æfingaleik þjóðanna í gær 4-1. Þýska blaðið Bild birti stóra mynd af Klinsmann undir fyrirsögninni "Mamma, mía, við erum lélegir." 2.3.2006 18:15
Bridge verður ekki með gegn Arsenal Forráðamenn Fulham hafa staðfest að varnarmaðurinn Wayne Bridge verði ekki með í næsta leik liðsins gegn Arsenal vegna ökklameiðslanna sem hann hlaut í landsleiknum í gærkvöldi, en þetta á þó ekkert skilt við þau ökklameiðsli sem hann var nýbúinn að jafna sig af þegar hann gekk í raðir liðsins frá Chelsea. 2.3.2006 18:01
Cole verður frá í minnst þrjár vikur Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að bakvörðurinn Ashley Cole verði frá keppni í að minnsta kosti þrjár vikur vegna ökklameiðslanna sem hann hlaut í leik með varaliði félagsins á dögunum. Þá á hann ekki von á að Sol Campbell snúi aftur til keppni fyrr en í fyrsta lagi í enda mánaðarins, en segir að þeim gangi báðum vel í endurhæfingu sinni. 2.3.2006 17:57
Logi með stórleik Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson átti sannkallaðan stórleik í gærkvöldi þegar lið hans Bayreuth bar sigurorð af TSV Tröster 111-105 í framlengdum leik í þýsku 2. deildinni. Logi skoraði 43 stig í leiknum, sem er það mesta sem hann hefur skorað í allan vetur. Hann er nú í hópi stigahæstu manna í deildinni með rúm 18 stig að meðaltali í leik. 2.3.2006 17:34
Stórleikur í Grindavík Heil umferð er á dagskrá í Iceland Express deild karla í kvöld og stórleikur kvöldsins er án efa viðureign grannliðanna Grindavíkur og Njarðvíkur í Grindavík. Keflavík og Fjölnir mætast í Keflavík, Snæfell tekur á móti KR, Höttur mætir Skallagrími, ÍR tekur á móti Haukum og Hamar/Selfoss mætir Þór frá Akureyri. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15. 2.3.2006 17:28
Sheringham nálægt samkomulagi Alan Pardew, stjóri West Ham, segir að samkomulag sé í sjónmáli um að framlengja samning framherjans Teddy Sheringham hjá félaginu um eitt ár. Sheringham verður fertugur í næsta mánuði, en er enn í fantaformi. 2.3.2006 17:23
Vonast eftir HM sæti Miðjumaðurinn Michael Carrick hjá Tottenham segir að galdurinn við frammistöðu sína með enska landsliðinu í gær, þegar hann fékk að spreyta sig í byrjunarliðinu gegn Úrúgvæ, hafi verið að vera eins afslappaður og mögulegt væri. Carrick var nokkuð sáttur við sitt í leiknum og segist vonast til að vinna sér sæti í liði Englendinga á HM. 2.3.2006 17:15
Iverson skoraði 40 stig Allen Iverson verður ekki boðið að taka þátt í æfingabúðum þar sem valið verður í landslið Bandaríkjanna fyrir HM og Ólympíuleikana í körfubolta og í gær svaraði hann því á sinn hátt þegar hann skoraði 40 stig og gaf 10 stoðsendingar í sigri Philadelphia á Houston, þrátt fyrir að vera með flensu. 2.3.2006 16:47
Keane á eftir að verða frábær stjóri Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist viss um að Roy Keane eigi eftir að verða frábær knattspyrnustjóri þegar hann lýkur ferlinum sem leikmaður og segir hann minna sig á sjálfan sig á sama tíma á ferlinum. 2.3.2006 16:45
Fordæmir kynþáttafordóma Sepp Blatter, forseti FIFA, segir að 9000 evru sektin sem Real Zaragoza fékk eftir framkomu áhorfenda liðsins í garð Samuel Eto´o um síðustu helgi sé eins og lélegur brandari og vill að mikið þyngri refsing verði tekin upp gegn kynþáttafordómum. 2.3.2006 16:19
Alfreð laus frá Magdeburg Alfreð Gíslason, fyrrum þjálfari Magdeburg í Þýskalandi hefur nú fengið sig alfarið lausan undan samningi sínum við félagið og er því frjálst að taka við öðru liði þangað til hann tekur við þjálfun Gummersbach á næsta ári. Því má reikna með að Alfreð gangi til viðræðnaa við forráðamenn íslenska landsliðsins, en vitað er að Alfreð er þar efsti maður á óskalistanum.. 2.3.2006 16:04
Líklega á leið til Chelsea Umboðsmaður Michael Ballack hjá Bayern Munchen hefur nú viðurkennt að Chelsea sé lang efst á óskalista leikmannsins og líklegasta liðið til að landa honum í sumar. "Við höfum ekki skrifað undir neitt ennþá, en Chelsea er lang líklegast í stöðunni," sagði umboðsmaður Ballack í samtali við BBC í dag. 2.3.2006 15:55
Ánægður með framlag Cole Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga var yfir sig ánægður með Joe Cole í sigrinum á Úrúgvæ í kvöld og sagði hann hafa borið af öðrum leikmönnum í leiknum. Cole lagði upp jöfnunarmark enska liðsins og skoraði sigurmarkið sjálfur. 1.3.2006 23:06
Ítalir burstuðu Þjóðverja Fjöldi æfinga- og vináttulandsleikja fór fram í kvöld og þar bar hæst að Ítalir burstuðu Þjóðverja 4-1, Brasilíumenn unnu Rússa 1-0, Danir lögðu Ísraela 2-0, Króatar lögðu Argentínumenn 3-2, Írar burstuðu Svía 3-0, Portúgalir sigruðu Sáda 3-0, Holland lagði Ekvador 1-0, Slóvakar lögðu Frakka 2-1 og Senegalar lögðu Norðmenn 2-1. 1.3.2006 22:22
Joe Cole tryggði Englendingum sigur Joe Cole, leikmaður Chelsea, var maðurinn á bak við sigur Englendinga á Úrúgvæ í æfingaleik þjóðanna á Anfield í kvöld. Eftir að gestirnir höfðu komist yfir með sannkölluðu draumamarki í fyrri hálfleiknum, lagði Cole upp jöfnunarmarkið fyrir Peter Crouch og skoraði svo sigurmarkið sjálfur í uppbótartíma. 1.3.2006 22:01
Crouch jafnaði fyrir Englendinga Framherjinn Peter Crouch hefur náð að jafna leikinn fyrir Englendinga í vináttuleik gegn Úrúgvæ sem fram fer á Anfield í Liverpool og er staðan því orðin 1-1. Crouch skoraði sitt fyrsta mark fyrir enska landsliðið með laglegum skalla eftir fyrirgjöf frá Joe Cole. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 1.3.2006 21:48
Sigur hjá toppliðunum Haukar og Fram unnu leiki sína í kvöld í DHL-deild karla í handbolta og halda því fyrsta og öðru sætinu í deildinni. Haukar unnu auðveldan sigur á KA 39-28 og Valsmenn unnu nauman sigur á Fram 30-29. 1.3.2006 21:36
Guðjón Valur skoraði 7 mörk Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 7 mörk fyrir lið sitt Gummersbach í kvöld og Róbert Gunnarsson 4, þegar liðið vann auðveldan útisigur á Wetzlar á útivelli 38-30. Róbert Sighvatsson skoraði 1 mark fyrir Wetzlar. Einar Hólmgeirsson skoraði 6 mörk fyrir Grosswallstadt sem tapaði 27-26 fyrir Delitzsch á útivelli. 1.3.2006 21:17
Englendingar undir í hálfleik Englendingar eru undir 1-0 undir í vináttuleik sínum gegn Úrúgvæ á Anfield í Liverpool, en leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Það var miðjumaðurinn Omar Pouso sem skoraði mark gestanna með þrumufleyg af 30 metra færi. 1.3.2006 21:08
England getur náð langt á HM Diego Forlan, fyrrum leikmaður Manchester United og framherji Úrúgvæ, segir að enska landsliðið hafi alla burði til að ná langt á HM í sumar, en telur að Brasilíumenn muni verja titil sinn frá því árið 2002. 1.3.2006 18:38
Kveðjuleikur Önnu Maríu í kvöld Í kvöld er einn leikur á dagská í Iceland Express deild kvenna í körfubolta þegar Keflvíkingar taka á móti Breiðablik á heimavelli sínum. Leikurinn verður kveðjuleikur sigursælustu körfuboltakonu landsins, Önnu Maríu Sveinsdóttur. 1.3.2006 16:42
Scott í eins leiks bann Melvin Scott, leikmaður úrvalsdeildarliðs KR í körfubolta hefur verið dæmdur í eins leiks bann vegna brottvísunar sem hann fékk í leik KRing og Hamars/Selfoss síðastliðinn fimmtudag. 1.3.2006 16:18
Peter Osgood látinn Knattspyrnuhetjan Peter Osgood sem gerði garðinn frægan hjá Chelsea á árum áður lést í dag, 59 ára að aldri. Osgood hné niður þar sem hann var viðstaddur jarðarför og lést í sjúkrabifreiðinni á leið á sjúkrahús. Osgood var á sínum tíma sterkur framherji og hjálpaði m.a. Chelsea að vinna enska bikarinn og Evrópukeppni bikarhafa í byrjun áttunda áratugarins. 1.3.2006 16:06
Sainz sækist eftir forsetaembætti hjá Real Madrid Hinn fyrrum tvöfaldi heimsmeistari í rallakstri, Carlos Sainz, er alvarlega að íhuga að bjóða sig fram sem næsta forseta knattspyrnuliðs Real Madrid eftir að Florentino Perez sagði af sér á dögunum. 1.3.2006 15:28
Bætt afkoma hjá City Knattspyrnufélagið Manchester City horfir fram á bjartari tíma eftir að afkoma félagsins á síðustu 6 mánuðum sýndi ágætan gróða sem að mestu má rekja til sölunnar á Shaun Wright-Phillips. Þá hefur launakostnaður dregist mikið saman hjá félaginu. 1.3.2006 15:21
Englendingar taka vel á kynþáttafordómum Spænsku leikmennirnir í ensku úrvalsdeildinni hafa bent á að spænsk knattspyrnuyfirvöld ættu að taka sér ensku úrvalsdeildina til fyrirmyndar þegar kemur að því að taka á kynþáttafordómum í deildarkeppninni á Spáni, en áhorfendur þar í landi voru enn í fréttunum um helgina vegna kynþáttafordóma. 1.3.2006 15:08
Vonar að áhorfendur bauli ekki á Neville Steven Gerrard fyrirliði Liverpool og leikmaður enska landsliðsins, vonar að áhorfendur á Anfield muni ekki baula á Gary Neville leikmann Manchester United þegar Englendingar taka á móti Úrúgvæ í æfingaleik í kvöld. Neville er ekki vinsælasti maðurinn hjá stuðningsmönnum Liverpool eftir að hann fagnaði marki United fyrir framan þá í leik liðanna um daginn. 1.3.2006 14:55
Hinrich með stórleik Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Chicago Bulls lagði Minnesota Timberwolves 111-100 á heimavelli sínum, en sigurinn var kostnaðarsamur þar sem liðið missti tvo menn útaf meidda eftir samstuð. 1.3.2006 14:37