Fleiri fréttir

Ísland tapaði fyrir Trinidad

Íslenska landsliðið í knattspyrnu reið ekki feitum hesti frá fyrsta leik sínum undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar í kvöld þegar liðið lá 2-0 fyrir Trinidad og Tobago í vináttuleik sem fram fór á Loftus Road í Lundúnum. Það var gamla hetjan Dwight Yorke sem skoraði bæði mörk Trinidad, sitt í hvorum hálfleiknum.

Flensburg lagði Kiel

Flensburg vann í kvöld frækinn sigur á Kiel í fjórðungsúrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta 32-28, en leikurinn fór fram á heimavelli Kiel sem er sannkölluð ljónagryfja og fáheyrt er að liðið tapi þar leik. Þetta var fyrri viðureign liðanna og hin síðari fer fram um helgina.

Tap hjá Kostic í fyrsta leik

Íslenska landsliðið skipað leikmönnum undir 21 árs tapaði illa 4-0 fyrir Skotum í fyrsta leik sínum undir stjórn Lúkasar Kostic í kvöld. Íslenska liðið fékk á sig mark strax í byrjun leiks og var undir 3-0 í hálfleik.

Trinidad komið í 2-0

Dwight Yorke er búinn að skora öðru sinni fyrir Trinidad og Tobago gegn Íslendingum í æfingaleik liðanna á Loftus Road í Lundúnum. Markið kom á 54. mínútu úr vítaspyrnu sem dæmd var á íslensku varnarmennina fyrir að bregða sóknarmanni Trinidad inni í teig í skyndisókn.

HK lagði Selfoss

HK lagði Selfoss 37-28 í leik kvöldsins í DHL-deild karla í handbolta. Leikurinn fór fram í Digranesi. Elías Halldórsson var markahæstur í liði HK með 11 mörk, en Vladimir Duvic skoraði 13 mörk fyrir Selfyssinga.

Trinidad leiðir í hálfleik

Staðan í leik Íslands og Trinidad er 1-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés í æfingaleik þjóðanna á Loftus Road í Lundúnum. Það var fyrrum leikmaður Manchester United, Dwight Yorke, sem skoraði markið eftir tíu mínútna leik. Íslenska liðið hefur alls ekki náð sér á strik í hálfleiknum og má þakka fyrir að vera aðeins einu marki undir. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn.

Trinidad komið yfir

Framherjinn magnaði Dwight Yorke hefur komið liði Trinidad og Tobago yfir gegn Íslendingum í landsleik þjóðanna á Loftus Road í Lundúnum. Markið kom á 10. mínútu eftir að íslenska liðinu mistókst að hreinsa fyrirgjöf frá markinu og Yorke var ekki í neinum vandræðum með að hamra knöttinn efst í markhornið framhjá Árna Gauti Arasyni.

Carrick byrjar gegn Úrúgvæ

Miðjumaðurinn Michael Carrick frá Tottenham verður í byrjunarliði Englands í æfingaleiknum við Úrúgvæ annað kvöld í stað Frank Lampard sem er meiddur á læri. Þá mun framherji Charlton Darren Bent byrja í framlínunni ásamt Wayne Rooney. Wayne Bridge mun leysa Ashley Cole af í stöðu vinstri bakvarðar.

Byrjunarliðið gegn Skotum

Byrjunarlið U21 árs landsliðs karla sem mætir Skotum í kvöld hefur verið tilkynnt en þetta er fyrsti leikur liðsins undir stjórn Lúkasar Kostic. Leikurinn hefst klukkan 19.30 að íslenskum tíma og fer fram á Firhill leikvangnum í Glasgow.

Jörundur velur hópinn

Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A-landsliðs kvenna hefur tilkynnt íslenska hópinn sem fer til Englands og mætir þar heimamönnum í vináttuleik á Carrow Road, heimavelli NOrwich þann 9. mars næstkomandi.

Á batavegi eftir meiðslin

Momo Sissoko leikmaður Liverpool er á batavegi eftir meiðslin sem hann hlaut í Meistaradeildarleiknum gegn Benfica fyrir réttri viku. Sissoko meiddist illa á auga en alltaf berast betri og betri tíðindi af Malíbúanum.

Ballack til Chelsea?

Breskir fjölmiðlar hafa mikið fjallað um að Chelsea sé að undibúa stórt samningstilboð handa Michael Ballack hjá Bayern Munchen, en hann verður samningslaus í sumar. Leikmaðurinn sjálfur, sem og umboðsmaður hans vilja þó ekkert kannast við þessar fréttir.

Bent fær tækifæri

Sven-Göran Eriksson hefur látið í veðri vaka að Darren Bent, sóknarmaður Charlton, fái tækifæri með enska landsliðinu á morgun þegar liðið spilar æfingaleik við Úrúgvæ. Þá er búist við að Steven Gerrard verði í byrjunarliðinu og spili í það minnsta 45 mínútur, þrátt fyrir að Rafa Benitez segi hann þurfa hvíld.

Enn meiðist Ashley Cole

Varnarmaðurinn Ashley Cole mun ekki snúa aftur í lið Arsenal á næstunni eftir að hann varð fyrir því óláni að snúa sig á ökkla í leik með varaliði félagsins í gær. Talið er að Cole verði í það minnsta þrjár vikur að jafna sig af meiðslunum, en hann hefur ekki spilað með aðalliðinu síðan í haust vegna fótbrots og meiðsla á læri.

Emil og Helgi í byrjunarliði

Eyjólfur Sverrisson hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands sem mætir Trinidad í kvöld. Þeir Emil Hallfreðsson og Helgi Valur Daníelsson fá í fyrsta sinn tækifæri í byrjunarliðinu. Leikurinn fer fram á Loftus Road í London og hefst klukkan 19:30. Sýn verður með beina útsendingu frá leiknum.

Ekki liðtækur í heimanáminu

Knattspyrnuhetjan David Beckham ætti líklega að halda sig við knattspyrnuiðkun á meðan hann hefur tök á því ef marka má grein í breska blaðinu Mail on Sunday, því þar kemur fram að Beckham treysti sér ekki til að hjálpa syni sýnum Brooklin við heimanámið. Brooklyn er sex ára gamall.

Florentino Perez segir af sér

Florentino Perez, forseti Real Madrid, sagði af sér í kvöld og mun fyrrum Fernando Martin, fyrrum aðstoðarforseti félagsins taka við embætti hans. Real hefur ekki unnið titil síðan 2003 í stjórnartíð Perez, sem þótti réttast að segja af sér þar sem árangurinn hefur verulega látið á sér standa undanfarið.

Hefði gengið af velli með Eto´o

Brasilíumaðurinn Ronaldinho segir að ef félagi hans Samuel Eto´o hjá Barcelona hefði látið verða af því að ganga af velli í leiknum gegn Real Zaragoza um helgina, hefði hann sjálfur farið með honum. Ronaldinho fordæmir harðlega þá kynþáttafordóma sem viðgangast í spænska boltanum og segir tíma til kominn til að binda enda á þá.

Frakkar sigruðu í Mexíkó

Frakkar voru sigursælir í Mexíkókappakstrinum í A1 í gær þegar Alexandre Primat sigraði tvöfalt í keppninni, bæði í sprettinum og aðalkeppninni. Frakkar eru því komnir með 31 stigs forystu á Svisslendinga í mótinu. Þá komust Bretar upp fyrir Brasilíumenn í þriðja sæti stigakeppninnar.

Del Horno fær eins leiks bann

Aganefnd Knattspyrnusambands Evrópu hefur tilkynnt að Asier del Horno, varnarmaður Chelsea, fái aðeins eins leiks bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í leiknum gegn Barcelona í síðustu viku, í stað þriggja leikja banns eins og venja er. Þetta þýðir að Del Horno gæti spilað með Chelsea strax í átta liða úrslitum keppninar ef liðinu tekst að slá Barcelona út.

Því fleiri leikir, því betra

Frank Lampard, leikmaður Chelsea, segist fagna því að spila sem allra flesta leiki og gefur lítið út á þær skoðanir manna að leikjaálagið á Englandi muni koma niður á landsliðinu á HM í sumar.

Semur við Adidas

Knattspyrnusamband Trinidad og Tobago skrifaði nýlega undir fjögurra ára samning við íþróttavörurisann Adidas um að hann yrði aðalstyrktaraðili liðsins á næstu fjórum árum.

Robbie Williams kaupir hlut í Port Vale

Söngvarinn geðþekki, Robbie Williams, hefur keypt umtalsverðan hlut í uppáhalds liðinu sínu í ensku knattspyrnunni, Port Vale. Félagið er skiljanlega ekki með sterka fjárhagsstöðu en forráðamenn liðsins voru mjög ánægðir með framlag söngvarans og töldu það bera vott um hve tryggur stuðningsmaður hann væri.

Hefur áhuga á landsliðinu

Leo Beenhakker, þjálfari Trinidad & Tobago, lýsti því yfir í gær að hef kallið kæmi þá hefði hann áhuga á því að taka við enska landsliðinu í knattspyrnu. Samningur Beenhakker við Trinidad & Tobago rennur út eftir HM en eins og kunnugt er mun Sven-Göran Eriksson láta af störfum sem þjálfari Englands á sama tíma.

Tekur Keane við fyrirliðabandinu?

Robbie Keane er talinn líklegasti leikmaðurinn í írska landsliðinu til að taka við stöðu fyrirliða eftir að Kenny Cunningham hætti að leika með landsliðinu. Keane er aðeins 25 ára gamall, en á að baki fjölda landsleikja. Í kvöld verður tilkynnt opinberlega hver tekur við fyrirliðabandinu á blaðamannafundi fyrir vináttuleik Svía og Íra.

Beckham klár gegn Úrúgvæ

David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, hefur lofað að hann verði klár í slaginn með liðinu fyrir vináttuleikinn gegn Úrúgvæ á miðvikudagskvöldið, en hann fór meiddur af velli í háðlegu tapi Real Madrid gegn Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni í gær.

Ferguson ver ákvörðun sína

Sir Alex Ferguson hefur þótt ástæða til að verja þá ákvörðun sína að hafa Ruud van Nistelrooy á varamannabekknum í sigri liðsins á Wigan í úrslitaleik enska deildarbikarsins í gær.

Roma sló metið

Lið Roma í ítölsku A-deildinni setti í gær met í deildinni þegar það vann 11. leikinn í röð. Ekki skemmdi fyrir að sigurinn kom einmitt gegn grönnum þeirra og erkifjendum í Lazio. Það voru Rodrigo Taddei og Alberto Aquilani sem skoruðu mörk Roma í 2-0 sigri liðsins, sem var án fyrirliða síns Francesko Totti sem er meiddur.

Bannar knæpuferðir

Neil Warnock, stjóri 1. deildarliðs Sheffield United hefur brugðið á það ráð að banna leikmönnum liðsins að drekka á börum eftir að miðjumaðurinn Alan Quinn lenti í uppákomu á krá á dögunum. Bannið gengur þó ekki yfir alla áfengisdrykkju.

Detroit lagði Cleveland

Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Detroit Pistons lagði Cleveland Cavaliers 90-78. Chauncey Billups skoraði 21 stig og gaf 8 stoðsendingar í liði Detroit, en LeBron James skoraði 22 stig fyrir Cleveland. Þetta var 5. sigur Detroit í röð.

Manchester United deildarbikarmeistari

Manchester United er deildarbikarmeistari árið 2006 eftir verðskuldaðan 4-0 sigur á Wigan í úrslitaleik keppninnar í Cardiff í dag. Wayne Rooney skoraði tvö mörk, Cristiano Ronaldo eitt og Louis Saha eitt mark.

Snæfell vann grannaslaginn

Heil umferð var á dagskrá í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. Snæfellingar lögðu granna sína í Skallagrími í Borgarnesi 79-64, Fjölnir lagði Grindavík í hörkuleik 99-98, Hamar/Selfoss lagði Hauka í Hafnarfirði 83-74, Keflavík vann þór 93-87, KR vann ÍR 88-87 og Njarðvík burstaði Hött 120-77 í Njarðvík.

Við töpuðum fyrir heimsklassa liði

Paul Jewell, knattspyrnustjóri Wigan, viðurkenndi að lið hans hefði einfaldlega mætt ofjörlum sínum í úrslitaleik enska deildarbikarsins í dag. Fyrirliði Wigan var þó ekki á sama máli og var hundfúll með 4-0 tapið.

Tileinkuðu Smith sigurinn

Það vakti athygli að leikmenn Manchester United klæddust allir bolum sem á stóð "This is for Smudger" eftir að sigurinn í deildarbikarnum var í höfn í dag, en það var sérstök kveðja til Alan Smith sem meiddist illa á dögunum og gat ekki leikið með liðinu í dag.

Rómarslagurinn í beinni í kvöld

Hinir fornu fjendur í Rómarborg Lazio og Roma eigast við í ítölsku A-deildinni í kvöld og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Sýn Extra klukkan 19:50. Það er jafnan heitt í kolunum þegar þessi lið mætast og til dæmis var allt á suðupunkti þegar liðin mættust síðast í deildinni.

Juve heldur sínu striki

Topplið Juventus vann í dag sigur á Lecce 3-1 í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu. Juventus lenti reyndar undir í leiknum, en þeir Emerson, Kovac og Del Piero tryggðu liðinu sigur. AC Milan lagði Palermo á útivelli með mörkum frá Inzaghi og Shevchenko og Inter heldur þriðja sætinu eftir 3-1 sigur á Udinese. Juve hefur 10 stiga forskot á Milan á toppnum.

United að klára dæmið

Manchester United er komið í 4-0 gegn Wigan í úrslitaleik enska deildarbikarsins. Það var Louis Saha sem kom United í 2-0 á 55. mínútu, Cristiano Ronaldo bætti við þriðja markinu aðeins fjórum mínútum síðar og Wayne Rooney gerði út um leikinn tveimur mínútum þar á eftir.

Mallorca - Real Madrid í beinni í kvöld

Leikur Real Mallorca og Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 17:50. Madrid er enn í baráttu um Meistaradeildarsæti í úrvalsdeildinni, en Mallorca hefur aftur gengið afleitlega og því hlýtur pressan að vera mikil á gestina að klára leikinn.

United leiðir í hálfleik

Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Wigan í úrslitaleik enska deildarbikarsins á Þúsaldarvellinum í Cardiff þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Leikurinn hefur verið mjög fjörugur og skemmtilegur og það var Wayne Rooney sem skoraði mark United á 33. mínútu.

Rooney kemur United yfir

Wayne Rooney hefur komið Manchester United yfir 1-0 gegn Wigan í úrslitaleik enska deildarbikarsins sem fram fer í Cardiff. Markið kom á 33. mínútu eftir varnarmistök hjá leikmönnum Wigan, en liðið missti markvörð sinn meiddan af velli snemma leiks. Það blæs því ekki byrlega fyrir nýliðana í úrvalsdeildinni sem stendur.

Heiðar atkvæðamikill í tapi Fulham

Heiðar Helguson var heldur betur í eldlínunni í dag þegar lið hans Fulham tapaði fyrir Bolton á útivelli 2-1 í ensku úrvalsdeildinni. Heiðar kom sínum mönnum yfir í leiknum á 22. mínútu leiksins með góðum skalla, en varð svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark undir lok fyrri hálfleiksins. Það var svo Kevin Nolan sem skoraði sigurmark Bolton í síðari hálfleiknum.

Liverpool upp að hlið United

Liverpool hefur náð Manchester United að stigum í ensku úrvalsdeildinni efti að liðið lagði Manchester City 1-0 á Anfield í dag með marki frá Harry Kewell á 41. mínútu. Lið City lék með tíu menn síðustu 40. mínútur leiksins eftir að Joey Barton var rekinn af velli með sitt annað gula spjald.

Mosley of mikið fyrir Vargas

"Sugar" Shane Mosley hafði betur á tæknilegu rothöggi í 10. lotu í bardaga sínum við Fernando Vargas í Las Vegas í nótt, en bardaginn var sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Vargas sýndi hetjulega baráttu, en hann varð að játa sig sigraðan að hluta til vegna þess að vinstra auga hans var svo bólgið að hann sá ekki út um það.

Liverpool yfir gegn Manchester City

Liverpool hefur yfir 1-0 gegn Manchester City á Anfield í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var Ástralinn Harry Kewell sem skoraði mark Liverpool skömmu áður en flautað var til hálfleiks

Heiðar í byrjunarliðinu gegn Bolton

Heiðar Helguson er í byrjunarliði Fulham sem heimsækir Bolton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta nú kl. 13:00. Heiðar hefur hægt og bítandi verið að ávinna sér reglulegt byrjunarliðssæti í liðinu á kostnað sóknarmannsins Collins John sem vermir varamannabekk liðsins í dag.

Sjá næstu 50 fréttir