Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Davids með brákaðan fót Úrvalsdeildarlið Tottenham Hotspurs hefur orðið fyrir nokkru áfalli, því miðjumaðurinn Edgar Davids verður líklega frá í nokkrar vikur eftir að í ljós kom að hann er með brákað bein í öðrum fætinum. Martin Jol knattspyrnustjóri er þó bjartsýnn á að Davids verði fljótur að ná sér. 24.1.2006 20:00
Fótboltaveisla á Sýn í sumar Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu 2006 fer fram í Þýskalandi 9. júní - 9. júlí nk. Sjónvarpsstöðin Sýn mun sýna beint frá öllum leikjum keppninnar, 64 talsins, auk þess að sýna fjölda annarra viðburða er tengjast HM 2006 og sjónvarpsþætti, bæði innlenda sem erlenda. 24.1.2006 19:39
Fílabeinsströndin sigraði Líbíu Didier Drogba, leikmaður Chelsea, var á skotskónum í dag þegar Fílabeinsströndin lagði Líbíu í leik liðanna í Afríkukeppninni í dag, 2-1. Með sigrinum tryggði liðið sér farseðilinn í fjórðungsúrslit keppninnar. 24.1.2006 18:22
Ítarleg rannsókn hafin varðandi leikmannakaup Richard Scudamore, yfirmaður ensku úrvalsdeildarinnar, hefur tilkynnt að forráðamenn deildarinnar hafi hleypt af stokkunum ítarlegri rannsókn á öllum leikmannakaupum sem fram fóru í deildinni á síðasta ári með það fyrir augum að útrýma orðrómi um að ólöglegar greiðslur hafi átt sér stað til að hjálpa einstaka liðum að komast yfir ákveðna leikmenn. 24.1.2006 17:30
Lærisveinar Jewell tilbúnir í slaginn Paul Jewell, stjóri Wigan, hefur gefið það út að lið Arsenal megi eiga von á miklu stríði í kvöld þegar liðin mætast í síðari leik sínum í undanúrslitum enska deildarbikarsins á Highbury. Wigan vann fyrri leikinn 1-0 og nægir því jafntefli í kvöld. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og hefst útsendingin klukkan 19:30. 24.1.2006 17:15
Ágangur fjölmiðla gerði útslagið Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, segir að ágangur fjölmiðla í landinu hafi verið helsta ástæða þess að hann vildi hætta að þjálfa liðið eftir HM í sumar. Þetta sagði Eriksson á blaðamannafundinum sem hann hélt í dag. 24.1.2006 17:08
O´Shea meiddur í 4-6 vikur Varnarmaðurinn John Oshea hjá Manchester United verður frá í einn til einn og hálfan mánuð eftir að í ljós kom að hann er með brákuð rifbein. O´Shea hlaut meiðslin í leiknum gegn Burton Albion á dögunum og þurfti að fara meiddur af velli í leiknum við Liverpool um helgina vegna meiðslanna. Fyrr í dag varð ljóst að Paul Scholes getur ekki spilað meira með liðinu á leiktíðinni. 24.1.2006 16:31
Almenn ánægja með nýjan Ferrari Ferrari hefur nú forlega frumsýnt nýja 2006-bílinn sinn sem hefur fengið heitið 248. Bíllinn var ekinn í fyrsta sinn á Mugello-brautinni á Ítalíu í síðustu viku og var Aldo Costa, hönnuður bílsins var mjög ánægður með útkomuna. "Ég er í skýjunum yfir því hvernig bíllinn er að koma út," sagði hann. 24.1.2006 15:15
Di Canio aftur í bann Paolo Di Canio, leikmaður Lazio í ítölsku A-deildinni, hefur aftur verið dæmdur í eins leiks bann af ítalska knattspyrnusambandinu fyrir að heilsa að fasistasið í deildarleik í síðasta mánuði. Hann þarf auk þess að greiða sekt upp á 10.000 evrur, en hefur nú lofað að hætta þessum uppátækjum. 24.1.2006 15:00
Það var alltaf möguleiki að hætta eftir HM Sven-Göran Eriksson hélt blaðamannafund í dag þar sem hann útskýrði sína afstöðu í kjölfar þess að í gærkvöld komst hann að samkomulagi við enska knattspyrnusambandið um að láta af störfum eftir HM í sumar. Eriksson segir að alltaf hafi legið fyrir sá möguleiki að hann hætti á þessum tíma. 24.1.2006 14:36
Allardyce talinn líklegasti eftirmaður Eriksson Leitin að nýjum landsliðsþjálfara Englendinga er nú hafin eftir að ljóst varð að Sven-Göran Eriksson hættir eftir HM í sumar. Sam Allardyce, stjóri Bolton, þykir einna líklegastur til að hreppa starfið, en einnig hafa þeir Steve McClaren hjá Boro, Alan Curbishley hjá Charlton og Martin O´Neil, fyrrum þjálfari Celtic koma einna helst til greina í því sambandi. 24.1.2006 14:15
McGrady skoraði 41 gegn Bucks Tracy McGrady skoraði 41 stig fyrir lið sitt Houston í góðum sigri liðsins á Milwaukee á útivelli í nótt 97-80. Houston hefur gengið skelfilega í vetur og hefur liðið að mestu verið án þeirra McGrady og Yao Ming, en McGrady undirstrikaði mikilvægi sitt fyrir liðið í nótt. Michael Redd skoraði 21 stig fyrir Milwaukee. 24.1.2006 13:45
Scholes ekki meira með á tímabilinu Miðjumaðurinn Paul Scholes getur ekki leikið meira með Manchester United á tímabilinu eftir að sérfræðingar greindu hann með augnsjúkdóm. Scholes hefur ekki geta spilað síðan hann varð fyrir höfuðhöggi um áramótin, en honum hefur nú verið gert að taka því rólega í þrjá mánuði, þar sem hann sér tvöfalt með hægra auganu. 24.1.2006 13:27
Hefur fullan stuðning leikmanna Leikmenn enska knattspyrnuliðsins Newcastle United, hafa komið til varnar þjálfara sínum, Graeme Souness og segjast styðja hann heilshugar. Þrátt fyrir það virðist sem að starf hans hangi á bláþræði eftir tap helgarinnar gegn Blackburn. 24.1.2006 12:15
Fögnuður hluti af leiknum Gary Neville, fyrirliði Manchester United, segir að hann hafi ekki farið yfir strikið í fögnuði sínum gegn Liverpool á sunnudaginn. Þegar Rio Ferdinand skoraði sigurmarkið hljóp Neville að áhangendum Liverpool og fagnaði óspart, Liverpool-áhangendum til lítillar gleði. 24.1.2006 10:45
Sharapova komst áfram í undanúrslit Rússneska tenniskonan Maria Sharapova, komst í dag áfram í undanúrslit á opna ástralska meistaramótunu í tennis sem fram fer í Melbourne. Sigraði hún andstæðing sinn, Nadiu Petrovu, 7-6, 8-6 og 6-4. 24.1.2006 10:00
Sven-Göran mun hætta eftir HM í sumar Enska knattspyrnusambandið hefur gefið út að Sven Göran Eriksson muni láta af störfum sem þjálfari enska landsliðsins eftir heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Þýskalandi í sumar. Eriksson hefur verið miðpunktur hneykslismála tengdum og ótengdum starfi sínu á undanförnum misserum. 23.1.2006 21:53
Heiðar skoraði fyrir Fulham Landsliðsmaðurinn Heiðar Helguson skoraði eina mark Fulham í tapi liðsins fyrir West Ham á Upton Park í kvöld 2-1. Ferdinand og Benayoun komu heimamönnum í 2-0 í fyrrihálfleik, en Heiðar minnkaði muninn í þeim síðari. Lengra komst Fulham þó ekki í leiknum. 23.1.2006 22:00
Samningur vegna HM á Sýn Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu hefst í Þýskalandi 9. júní í sumar. Allir leikirnir 64 verða sýndir beint á Sýn. Í dag var undirritaður samningur milli Sýnar og fjögurra stuðingsfyrirtækja. Landsbankinn, Iceland Express, Mastercard og Olís verða bakhjarlar Sýnar. 23.1.2006 21:01
Ekki látinn taka pokann sinn Graeme Souness heldur enn starfi sínu sem knattspyrnustjóri Newcastle eftir að hafa átt fund með stjórnarformanni félagsins í dag. Margir voru á því að Souness yrði rekinn í dag eftir enn eitt tap liðsins um helgina, en þeir Freddy Shepherd og Souness áttu aðeins tíu mínútna langan fund eftir hádegið þar sem Souness sagði að þeir hefðu ræðst við á jákvæðum nótum. 23.1.2006 20:30
Arsenal kaupir Mart Poom Markvörðurinn Mart Poom hefur nú skrifað undir samning við Arsenal og er genginn formlega í raðir félagsins eftir að hafa verið í herbúðum liðsins sem lánsmaður frá Sunderland. Poom kemur frá Eistlandi og er annar varamarkvörður Arsenal á eftir Manuel Almunia. 23.1.2006 20:00
Ashton formlega kominn í raðir West Ham Enska úrvalsdeildarliðið West Ham gekk í dag formlega frá kaupum sínum á framherjanum Dean Ashton frá Norwich City fyrir 7,25 milljónir punda. Ashton, sem er 22 ára gamall, stóðst læknisskoðun hjá Lundúnaliðinu í dag og er því kominn aftur í úrvalsdeildina þar sem hann stóð sig ágætlega áður en Norwich féll í fyrstu deildina. 23.1.2006 19:15
West Ham og Fulham mætast í kvöld Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, en það er viðureign West Ham og Fulham sem fram fer á Upton Park í London. Talið er líklegt að gamla brýnið Teddy Sheringham gæti verið orðinn klár í slaginn með West Ham, en eins má gera ráð fyrir því að Heiðar Helguson verði í eldlínunni með liði sínu Fulham. Leikurinn hefst klukkan 20. 23.1.2006 18:45
Nígería vann nauman sigur á Gana Nígería vann nauman 1-0 sigur á Gana í dag í Afríkukeppninni í knattspyrnu. Það var bakvörðurinn Taye Taiwo hjá Marseille sem skoraði sigurmarkið fimm mínútum fyrir leikslok fyrir framan troðfullan El Masry leikvanginn í Port Said. 23.1.2006 18:39
Yfirheyrður vegna blaðaskrifa um helgina Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu var kallaður inn á teppi hjá enska knattspyrnusambandinu í dag eftir að seinni hluti risagreinar um hann í helgarblaðinu News of the World var birtur í gær, en þar á Eriksson að hafa sagt dulbúnum blaðamönnum að spilling ríkti innan enska knattspyrnusambandsins. 23.1.2006 18:15
Minni hagnaður á síðasta ári Manchester United hefur gefið út að hagnaður af rekstri félagsins á síðustu tólf mánuðum hafi verið 46 milljónir punda, en það er um 12 milljónum minni hagnaður en á sama tíma í fyrra. Þetta er rekið til minni sjónvarpstekna sem að mestu skrifast á fall liðsins úr Meistaradeild Evrópu. 23.1.2006 17:30
Pittsburgh og Seattle í úrslit Það verða Pittsburgh Steelers og Seattle Seahawks sem mætast í úrslitaleiknum um ofurskálina í ameríska fótboltanum. Steelers unnu öruggan sigur á Denver Broncos í gær 34-17 og Seattle lagði Carolina Panthers 34-14. Þetta er í fyrsta sinn sem lið Seattle kemst alla leið í úrslitaleikinn, en hann fer fram í Detroit þann 5. febrúar næstkomandi. 23.1.2006 16:45
Samningi Xavier rift Úrvalsdeildarlið Middlesbrough hefur ákveðið að rifta samningi sínum við portúgalska varnarmanninn Abel Xavier, sem féll á lyfjaprófi í haust eftir að sterar fundust í sýni sem úr honum var tekið eftir Evrópuleik. Xavier hefur áfrýjað úrskurði lyfjanefndarinnar, en ekki er búist við að átján mánaða banninu sem hann fékk verði aflétt. 23.1.2006 16:30
Souness verður ekki rekinn Dean Saunders, aðstoðarstjóri Newcastle, vísar fréttum breska blaðsins Guardian í dag á bug og segir að Souness verði ekki rekinn í dag. Gengi Newcastle hefur verið afleitt á leiktíðinni og langt undir væntingum stjórnar og stuðninsmanna. "Blöðin hafa verið uppfull af svona fréttum í margar vikur, en við höldum bara áfram að vinna vinnuna okkar," sagði Saunders. 23.1.2006 16:15
Jón Arnór með 10 stig í sigri Napoli Napoli, lið Jóns Arnar Stefánssonar í ítölsku A-deildinni í körfubolta, vann góðan útisigur á Bologna í gærkvöldi 90-80. Jón Arnór skoraði 10 stig í leiknum og er lið hans sem fyrr í þriðja sæti deildarinnar. Logi Gunnarsson skoraði 26 stig fyrir lið sitt Bayreuth í sigri á Stuttgart 90-76 í þýsku 2. deildinni. 23.1.2006 15:45
Stórleikur Bryant sýndur í dag Söguleg skotsýning Kobe Bryant frá því í nótt, þar sem hann sallaði 81 stigi á Toronto Raptors, verður endursýnd á NBA TV á Digital Ísland klukkan 16 í dag og aftur um klukkan 19 í kvöld. Þetta er kjörið tækifæri fyrir áhugamenn um körfubolta að verða vitni að sýningu Bryant, en þetta var annað hæsta stigaskor eins leikmanns í sögu deildarinnar. 23.1.2006 15:38
Denver skellti meisturnum Það var mikið um dýrðir í NBA deildinni í nótt og þó flestir leikir hafi ef til vill fallið í skugga skotsýningar Kobe Bryant, voru fjölmargir aðrir áhugaverðir leikir á dagskrá. Denver skellti meisturum San Antonio á útivelli og Phoenix tapaði enn einum leiknum sem var framlengdur oftar en einu sinni. 23.1.2006 15:17
Tottenham lánar Ziegler til Wigan Úrvalsdeildarlið Tottenham Hotspur hefur ákveðið að lána svissneska landsliðsmanninn Reto Ziegler til Wigan út leiktíðina, en hinn ungi leikmaður var fyrir skömmu kallaður til baka úr láni frá Hamburg í Þýskalandi. Talið var að hann færi beint inn í leikmannahóp Tottenham á ný eftir Þýskalandsförina, en hann hefur nú verið lánaður til nýliðanna. 23.1.2006 15:15
Nýr McLaren frumsýndur í Barcelona Pedro de la Rosa, æfingaökumaður hjá McLaren, frumsýndi í dag nýjan bíl frá framleiðandanum á æfingabraut í Barcelona á Spáni. Rosa var ánægður með bílinn og sagði hann gefa góð fyrirheit. "Ég er auðvitað bara búinn að taka örfáa hringi á bílnum, en hann lofar mjög góðu," sagði Spánverjinn. 23.1.2006 14:45
Federer marði Haas Roger Federer marði sigur á Tommy Haas á opna ástralska meistaramótinu í tennis í dag og er kominn í undanúrslit á mótinu. Fátt benti til annars en að Federer yrði öruggur sigurvegari eftir að hann vann auðveldan sigur í fyrstu tveimur settunum, en Haas sýndi mikla festu og vann næstu tvö sett. 23.1.2006 14:29
Fagnaðarlætin rannsökuð Fagnaðarlæti fyrirliða Manchester United gegn Liverpool í gær eru nú höfð til rannsóknar hjá lögreglu í Manchester. Gary Neville þótti storka stuðningsmönnum Liverpool með látbragði sínu í gær eftir að félagi hans Rio Ferdinand skoraði sigurmark United gegn Liverpool. Svona hegðun er litin alvarlegum augum á Englandi og talin geta valdið uppþotum milli stuðningsmanna. 23.1.2006 14:00
Leikurinn er á NBA-TV Nú er verið að sýna leik LA Lakers og Toronto á sjónvarpsstöðunni NBA-TV sem finna má á digital Ísland afruglaranum. Kobe Bryant skoraði 81 stig í leiknum sem er það næst mesta í sögu NBA-deildarinnar. 23.1.2006 10:48
Clijsters í 8-manna úrslit Kim Clijsters frá Belgíu er kominn í 8-manna úrslit á opna ástralska meistaramótinu í tennis eftir nauman sigur á Francescu Schiavlone frá Ítalíu í nótt. 23.1.2006 10:38
Kobe Bryant skoraði 81 stig fyrir Lakers Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers, kom sér svo sannarlega á spjöld sögunnar í nótt þegar hann skoraði 81 stig í sigri Los Angeles Lakers á Toronto Raptors 122-104. Þetta er það næstmesta sem einn leikmaður hefur skorað í leik í sögu NBA deildarinnar á eftir 100 stiga leik Wilt Chamberlain árið 1962. 23.1.2006 05:08
Arnar beint í byrjunarliðið Arnar Þór Viðarsson spilaði allan leikinn fyrir Twente sem tapaði 3-2 fyrir Ajax í hollensku úrvalsdeildinni í gær. Arnar gekk til liðs við félagið frá Lokeren í vikunni en mistök hans urðu til þess að Ajax jafnaði á lokamínútunum áður en þeir hirtu öll stigin. 23.1.2006 00:01
Jóhann Birnir á heimleið? Fótboltakappinn Jóhann Birnir Guðmundsson er á leiðinni frá Örgryte í Svíþjóð og gæti snúið heim til Íslands. Jóhann sagði við Fréttablaðið í gær að ef ekkert erlent lið sýndi honum áhuga fljótlega væri líklegast að hann kæmi heim og spilaði hér næsta sumar. Hans gamla félag Keflavík hefur mikinn áhuga á því að fá hann til sín auk þess sem Íslandsmeistarar FH hafa hug á að krækja í Jóhann. 23.1.2006 00:01
Roddick úr leik í Ástralíu Andy Roddick var sleginn út af Opna Ástralska mótinu í tennis en hann tapaði í fjórum settum fyrir lítt þekktum Kýpurbúa. Marcos Baghdatis lék við hvern sinn fingur og vann Roddick sem er í öðru sæi heimslistans í tennis en Baghdatis er aðeins tvítugur að aldri. 23.1.2006 00:01
Ferdinand afgreiddi Liverpool Rio Ferdinand skoraði eina markið á Old Trafford í stórslag helgarinnar í enska boltanum. United er þar með komið með fjögurra stiga forskot á Liverpool. yan Giggs, sem átti snilldarlegu aukaspyrnuna sem gaf mark sagði leikinn í gær hafa verið kennslubókardæmi um hvernig það mætti aldrei gefast upp. 23.1.2006 00:01
Stefni á að spila næsta sumar "Ég er að hjóla og lyfta mikið og svo má ég byrja að skokka í næsta mánuði," Það er talað um að menn geti æft sex mánuðum eftir þessi meiðsli og sá tími er í byrjun júní hjá mér. Ég næ því vonandi nokkrum leikjum í sumar." sagði Sigurður Ragnar í gær. 23.1.2006 00:01
Vörnin skilaði Stjörnunni góðum sigri Leikurinn Stjörnunnar og FH í Ásgarði í DHL deild kvenna í handbolta var nokkuð jafn framan af fyrri hálfleik. Staðan 7-5, Stjörnunni í vil þegar korter var liðið af leiknum. Leikurinn var nokkuð harður og kom það svolítið niður á gæðum handboltans. Staðan í Hálfleik var 11-10, Stjörnunni í vil. 23.1.2006 00:01