Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hefur áhyggjur af Manchester United Fyrrum knattspyrnugoðið Eric Cantona liggur aldrei á skoðunum sínum þegar kemur að knattspyrnu og nú hefur hann gefið það út að Manchester United spili ekki nógu áferðarfallega knattspyrnu og segist óttast að félagið missi sjónar af gömlum og góðum gildum sínum. 18.1.2006 18:15
Ahn mætti ekki til liðsins Suður-Kóreumaðurinn Ahn Jung-Hwan mun ekki fara til reynslu til úrvalsdeildarliðs Blackburn eftir að hann mætti ekki til liðsins eins og til stóð. Umboðsmaður Ahn segir að hann hafi ekki viljað fara til Englands nema vera lofað samningi, en það gátu forráðamenn Blackburn ekki lofað honum nema hafa hann til reynslu fyrst. Ekkert verður því af því að hann fari til Englands eins og til stóð. 18.1.2006 18:00
Gengur illa að landa Samaras Nú virðist sem kaup Manchester City á gríska framherjanum Georgios Samaras frá hollenska liðinu Heerenveen séu í hættu, því stjórnarformaður hollenska liðsins er ekki sagður hafa neinn áhuga á að selja leikmanninn og vill halda honum hjá félaginu út leiktíðina eða jafnvel lengur. 18.1.2006 17:45
Hatton ætlar að berjast við þá stóru Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton hefur nú gefið út hverjir óskamótherjar hans séu fyrir árið 2006, en hann ætlar sér stóra hluti í Bandaríkjunum á árinu eftir að hafa mestmegnis barist við landa sína fram að þessu. 18.1.2006 17:30
Í viðræðum við Celtic Skoski landsliðsframherjinn Kenny Miller er nú sagður í viðræðum við Glasgow Celtic í heimalandi sínu, en hann hefur neitað að framlengja samning sinn við enska 1. deildarliðið Wolves þar sem hann hefur leikið síðan árið 2001. Miller er 26 ára gamall og lék áður með Hibernian og Rangers í Skotlandi. 18.1.2006 17:15
Leikmaður Vicenza missti handlegg Julio Gonzalez, leikmaður Vicenza á Ítalíu, þurfti að láta taka af sér annan handlegginn á sjúkrahúsi í dag eftir að hafa lent í alvarlegu bílslysi fyrir fjórum vikum. Gonzalez var landsliðsmaður Paragvæ og spilaði stöðu framherja. 18.1.2006 16:39
Búast við mestu innkomu í heimi Forráðamenn Arsenal segja að liðið gæti fengið mestu innkomu allra liða í heimi þegar liðið verður komið á nýja Emirates-leikvanginn á næstu leiktíð, en hann mun taka 60.000 manns í sæti og bjóða upp á glæsilega aðstöðu sem gerir það að verkum að peningarnir munu streyma hratt í kassann að þeirra mati. 18.1.2006 16:30
Skorar á Walcott að koma til Arsenal Franski framherjinn Thierry Henry lætur ekki sitt eftir liggja í að reyna að hjálpa forráðamönnum Arsenal að lokka unglinginn Theo Walcott til félagsins frá Southampton. Talið er að slagurinn um framherjann unga standi á milli Arsenal, Tottenham, Chelsea, Liverpool og Manchester United. 18.1.2006 16:00
Vill ekki fara frá Manchester United Franski varnarmaðurinn Mikael Silvestre þvertekur fyrir orðróm sem verið hefur á kreiki um að hann sé á förum frá enska liðinu Manchester United. Silvestre hefur verið orðaður við frönsku meistarana Lyon undanfarið og menn höfðu leitt líkum að því að hann þyrfti að víkja fyrir nýjum leikmönnum sem komið hafa á Old Trafford í janúar. 18.1.2006 15:45
Ísland á svipuðum slóðum Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er sem stendur í 95. sæti styrkleikalista FIFA. Liðið fellur því um eitt sæti síðan listinn var gefinn út í lok síðasta árs og hefur verið á mjög svipuðu róli í eitt ár. Brasilíumenn eru sem fyrr í efsta sæti listans. 18.1.2006 15:30
Andretti í fótspor feðranna Marco Andretti, barnabarn goðsagnarinnar Mario Andretti fyrrum heimsmeistara í Formúlu 1, verður á meðal keppenda í Indianapolis 500 kappakstrinum í ár. Marco er aðeins 18 ára gamall, en þykir mikið efni og hefur nú staðist próf til að fá að vera með í keppninni í maí. 18.1.2006 15:15
Auðveldur sigur hjá Williams Serena Williams átti ekki í erfiðleikum með frönsku tenniskonuna Camille Pin í annari umferð opna ástralska meistaramótsins, eftir að hafa lent í vandræðum með lítt þekktan andstæðing sinn í þeirri fyrstu. Williams sigraði 6-3 og 6-1. "Þetta er nú aldrei eins auðvelt og það lítur út fyrir að vera, en ég vann í nokkrum atriðum sem voru í ólagi hjá mér og eftir það var þetta allt annað líf," sagði Williams. 18.1.2006 14:31
Bobby Zamora skrifar undir nýjan samning Framherjinn Bobby Zamora hefur undirritað nýjan fjögurra ára samning við félagið. Zamora er 25 ára gamall og hefur skorað fimm mörk fyrir liðið í vetur, þrátt fyrir að hafa aðeins átta sinnum verið í byrjunarliðinu. Hann er alinn upp hjá West Ham, en hefur átt stutt stopp hjá Brighton og Tottenham. 18.1.2006 14:26
Þeir ættu að reka Eriksson Stjórnarformaður úrvalsdeildarliðs Wigan, segir að enska knattspyrnusambandið ætti að reka Sven Göran Eriksson í kjölfar nýjasta hneykslisins tengt honum í bresku pressunni og segir að Paul Jewell og Stuart Pearce væru heppilegir eftirmenn hans. 18.1.2006 14:06
Stórleikur Kirilenko of mikið fyrir Toronto Utah Jazz vann sannfærandi sigur á Toronto Raptors í NBA deildinni í nótt 111-98, þar sem Andrei Kirilenko náði fyrstu þreföldu tvennu sinni á ferlinum þegar hann skoraði 18 stig, hirti 16 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Hann varði auk þess 4 skot og stal 3 boltum í leiknum. 18.1.2006 13:47
Missir af leiknum við Manchester United Luis Garcia, sóknarmaður Liverpool, verður ekki með um helgina þegar Liverpool mætir Manchester Unitedí ensku deildinni. Á hann við hnémeisli að stríða sem hafa haldið honum fyrir utan liðið í tveimur seinustu leikjum. 18.1.2006 11:00
Alls ekki á förum til Englands Franski landsliðsmaðurinn Nicolas Anelka, segist ekki vera á förum til enska úrvalsdeildarliðsins Newcastle. Að eigin sögn er hann ánægður í Tyrklandi og vill halda áfram með liði sínu, Fenerbache. 18.1.2006 10:15
Utah - Toronto í beinni Það verður áhugaverður leikur á dagskrá á NBA TV á Digital Ísland í nótt, en þar verða á ferðinni lið Utah Jazz og Toronto Raptors. Bæði þessi lið hafa komið mikið á óvart að undanförnu og verið á góðu skriði eftir dapra byrjun í haust. Leikurinn byrjar klukkan 2 í nótt. 17.1.2006 22:51
Wigan marði Leeds Úrvalsdeildarlið Wigan marði sigur á 1. deildarliði Leeds í enska bikarnum í æsilegum leik á Sýn í kvöld, þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu og vítakeppni. Gylfi Einarsson kom inná sem varamaður undir lok leiksins í liði Leeds, en staðan var jöfn 3-3 eftir framlengingu og þar vann Wigan 4-2. 17.1.2006 22:37
Annar sigur Hattar Lið Hattar á Egilsstöðum vann í kvöld góðan sigur á Hamri/Selfoss í úrvaldsdeild karla í körfubolta 84-74 á Egilsstöðum. Þetta var aðeins annar sigur liðsins í deildinni í vetur og með honum lyfti liðið sér af botninum, en er þó enn í fallsæti. 17.1.2006 22:33
Stórsigur Hauka á FH Haukastúlkur höfðu betur gegn grönnum sínum í FH í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta í kvöld 36-21. Þá unnu Eyjastúlkur auðveldan sigur á HK á útivelli 29-19. 17.1.2006 22:15
Jafnt í hálfleik hjá Leeds og Wigan Nú er kominn hálfleikur í fimm af sjö leikjum sem eru á dagskrá í kvöld í enska bikarnum. Staðan í leik Leeds og Wigan er jöfn 1-1, en leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Utandeildarliðið Tamworth er yfir 1-0 gegn Stoke City og jafnt er hjá Birmingham og Torquay United. 17.1.2006 20:37
Pattstaða í máli Euell Alan Curbishley, stjóri Charlton, segir að kaup Birmingham á framherjanum Jason Euell séu í hættu og segir að Birmingham virðist vera hikandi í leikmannamálum þessa dagana. 17.1.2006 18:30
Leeds - Wigan í beinni á Sýn Leikur Leeds og Wigan í enska bikarnum verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:30. Þá verða Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson í eldlínunni í kvöld þegar Reading tekur á móti WBA. 17.1.2006 18:00
Francis leystur úr banni Bakvörðurinn Steve Francis hefur nú fengið leyfi forráðamanna Orlando Magic til að byrja að æfa með liðinu á ný eftir að hafa verið í banni í þrjá daga fyrir agabrot. Francis neitaði að fara inná völlinn í lokin á löngu töpuðum leik í síðustu viku og var fyrir vikið settur í bann. Hann fór í ferðalag til að hreinsa til í höfðinu á sér og hefur nú lofað að bæta ráð sitt. 17.1.2006 17:30
Vorum hársbreidd frá því að kaupa Ronaldo Luciano Moggi, yfirmaður knattspyrnumála hjá ítölsku meisturunum Juventus, hefur staðfest það sem Cristiano Ronaldo sagði fyrir nokkru, að félagið hafi verið hársbreidd frá því að landa honum þegar hann lék með Sporting Lissabon á sínum tíma. 17.1.2006 16:30
Nýr BMW-Sauber frumsýndur Nýr keppnisbíll BMW-Sauber liðsins í Formúlu 1 var frumsýndur formlega í Valencia á Spáni í dag og hafa forráðamenn liðsins lofað að láta til sín taka á komandi tímabili. BMW skaffaði áður vélar fyrir lið Williams, en hefur nú keypt lið Sauber og hefur sett stefnuna á heimsmeistaratitil innan þriggja ára. 17.1.2006 16:00
Fer í myndatöku í dag Framherjinn Emile Heskey hjá Birmingham þarf að fara í myndatöku í dag þar sem hnémeiðsli sem hann varð fyrir í leiknum gegn Charlton um helgina verða metin. Steve Bruce óttast að hann gæti misst leikmanninn í lengri tíma. 17.1.2006 15:30
Valsstúlkur mæta grísku liði Í morgun var dregið í 16-liða úrslitum áskorendakeppni Evrópu í handbolta og þar varð ljóst að Valsstúlkur mæta gríska liðinu Athinaikos frá Aþenu. Fyrri leikurinn fer fram ytra 10. eða 11. febrúar, en sá síðari hér heima viku síðar. 17.1.2006 15:29
Við getum betur Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona segir að liðið geti gert enn betur en það hefur sýnt á fyrri helmingi keppnistímabilsins á Spáni og fagnar því að liðið þurfi ekki að treysta á neitt annað en sjálft sig til að vinna spænsku deildina. 17.1.2006 15:15
Fór að ráðum Russell og rétti út sáttarhönd Það vakti gríðarlega athygli í gærkvöldi þegar Los Angeles Lakers og Miami Heat mættust á degi Martin Luther King, að fyrrum liðsfélagarnir Shaquille O´Neal og Kobe Bryant töluðust lítillega við og féllust í faðma fyrir leikinn, en þeir hafa verið miklir óvinir undanfarin tvö ár. 17.1.2006 14:45
Rauða spjaldið stendur Áfrýjun Manchester United vegna rauða spjaldsins sem Cristiano Ronaldo fékk í leiknum við Manchester City um helgina hefur verið vísað frá og því mun leikmaðurinn taka út þriggja leikja bann strax. 17.1.2006 14:36
Sleppur við ákæru Alex Ferguson verður ekki kærður fyrir ummæli sinn um Steve Bennett dómara eftir leik liðsins við granna sína í Manchester City á dögunum, þar sem Ferguson var mjög ósáttur við dómgæsluna. Síðar í dag kemur svo í ljós hvort áfrýjun félagsins vegna rauða spjaldsins sem Cristiano Ronaldo fékk í leiknum nær fram að ganga. 17.1.2006 14:15
Ósáttur við Sven-Göran Eriksson David O´Leary er maður sem liggur ekki á skoðunum sínum og hann hafði sitt að segja um fréttina sem skrifuð var um Sven-Göran Eriksson í News of the World um helgina og sagt var frá hér á Vísi í gær. 17.1.2006 13:41
Kominn til Charlton Framherjinn Marcus Bent gekk í dag formlega til liðs við Hermann Hreiðarsson og félaga hans í Charlton, en hann var áður hjá Everton. Kaupverðið er 2 milljónir punda, en gæti orðið 2,5 milljónir háð samningsákvæðum með leikjafjölda og markaskorun. Samningurinn er til þriggja og hálfs árs. 17.1.2006 13:36
Federer byrjar með stæl Tenniskappinn Roger Federer var ekki í vandræðum í fyrstu umferðinni á opna ástralska meistaramótinu í tennis þar sem hann vann nokkuð fyrirhafnarlítinn 6-2, 6-3 og 6-2 sigur á Denis Istomin frá Úsbekistan. Þá átti Martina Hingis frábæra endurkomu og skellti andstæðingi sínum auðveldlega 6-1 og 6-2, en hún hefur verið frá í þrjú ár vegna meiðsla. 17.1.2006 13:31
Tilboðunum rignir inn Forráðamenn Southampton hafa staðfest að félagið hafi fengið tvö formleg tilboð í framherjann unga Theo Walcott og segjast búast við því að fá í það minnsta eitt í viðbót mjög fljótlega. Talið er að Arsenal sé búið að leggja fram tilboð upp á 12 milljónir punda í leikmanninn, en vitað er af áhuga Tottenham, Chelsea og Manchester United. 17.1.2006 13:26
Lagði Boston næsta auðveldlega Detroit Pistons hélt sigurgöngu sinni áfram í NBA-deildinni í körfubolta í gær þegar liðið mætti Boston Celtics í fyrrinótt. Lið Boston reyndist vera lítil fyrirstaða og unnu Pistons sanngjarnan sigur 94-84. 17.1.2006 12:30
Lá við slagsmálum á æfingasvæðinu Stjörnuleikmenn Manchester United, Ruud Van Nistelrooy og Christiano Ronaldo, rifust heiftarlega á æfingu liðsins á mánudag og þurftu liðsfélagar þeirra að skilja þá að. 17.1.2006 11:30
Er ekki á förum í sumar Hernan Crespo; framherji Chelsea, segist ekki vera á förum frá Chelsea á næstunni. Hann blæs á allar sögusagnir sem bendla hann við önnur lið. 17.1.2006 10:45
Ætlar að hætta 2009 Fabio Capello, þjálfari Juventus, hefur látið í veðri vaka að hann ætli sér að hætta knattspyrnuþjálfun árið 2009. ástæðuna segir hann að sé löngun til þess að fá meiri frítíma og ferðast um heiminn. 17.1.2006 10:00
Haukar höfðu betur í toppslagnum Kvennalið Hauka tryggði stöðu sína á toppi Iceland Express-deildar kvenna í körfubolta í kvöld þegar þær lögðu Grindavík naumlega 73-72 á heimavelli sínum Ásvöllum. Helena Sverrisdóttir fór á kostum í liði Hauka og skoraði 33 stig, hirti 17 fráköst og átti 9 stoðsendingar. Jerica Watson skoraði 30 stig og hirti 17 fráköst í liði Grindavíkur. Haukar hafa nú fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar. 16.1.2006 22:15
Real er að rétta úr kútnum Franski miðjumaðurinn Zinedine Zidane segir að Real Madrid sé nú óðum að sýna sitt rétta andlit eftir góðan 4-2 sigur liðsins á Sevilla í gær, þar sem hann skoraði sjálfur þrennu. 16.1.2006 20:15
Kobe og Shaq mætast á ný Það verður enginn smá leikur á dagskrá á NBA TV í beinni útsendingu í nótt, en þar mætast LA Lakers og Miami Heat í síðari leik sínum á tímabilinu eftir að Miami vann uppgjör liðanna á jóladag. Þó mikið hafi verið gert úr einvígi hinna fornu fjenda og fyrrum félaga, Kobe Bryant og Shaquille O´Neal, er ekki víst að mesta andúðin í kvöld verði þeirra á milli. Leikurinn hefst klukkan 03:30 í nótt. 16.1.2006 19:30
Beckham er sannur atvinnumaður Juan Ramon Lopez Caro, stjóri Real Madrid, segir að David Beckham hafi tekið fréttunum af Sven-Göran Eriksson í bresku pressunni um helgina með stakri ró, en í blaðamenn News of the World lokkuðu Svíann í gildru þar sem hann talaði af sér, meðal annars um Beckham. 16.1.2006 18:35