Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sannfærði Gerrard um að fara ekki Rafael Benitez, stjóri Liverpool rifjaði það upp í viðtali við BBC um helgina að hann hafi átt sinn þátt í að sannfæra fyrirliða liðsins, Steven Gerrard, um að fara ekki frá félaginu og ganga í raðir Chelsea í sumar. Eins og flestir muna eftir, munaði aðeins hársbreidd að Gerrard færi frá Liverpool. 26.12.2005 10:30
Owen snýr aftur á Anfield Tíu leikir eru á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, annan dag jóla. Þar ber ef til vill hæst endurkoma Michael Owen á gamla heimavöll sinn Anfield, þar sem hann lék lengst af ferlinum áður en hann ákvað að reyna fyrir sér á Spáni og nú síðast í Newcastle. Fastlega er búist við að Owen fá blíðar móttökur á Anfield, þar sem hann var nánast í guðatölu í mörg ár. 26.12.2005 09:45
Di Stefano þungt haldinn á sjúkrahúsi Knattspyrnugoðsögnin Alfredo di Stefano, heiðursforseti Real Madrid, liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Valencia eftir að hafa fengið hjartaáfall yfir hátíðarnar. Di Stefano var á sínum tíma tvisvar kjörinn knattspyrnumaður Evrópu og var mikill markaskorari. Hann skipar stóran sess í sögu Real Madrid og voru flestir stjórnarmenn félagsins mættir til að veita honum stuðning á sjúkrahúsinu í gær. 26.12.2005 09:00
Jones og Hopkins berjast aftur Hinir frábæru hnefaleikamenn Roy Jones Jr og Bernard Hopkins hafa samþykkt að mætast í hringnum í vor, en þeir félagar börðust síðast árið 1993. Þar hafði Roy Jones betur, en eftir það skildu leiðir og þeir urðu báðir óumdeildir meistarar í sinni þyngd í meira en áratug. 26.12.2005 08:45
Farinn frá Southampton Harðjaxlinn Dennis Wise hjá Southampton er sagður hafa yfirgefið herbúðir Southampton í fússi um helgina eftir að ljóst varð að hann yrði ekki ráðinn knattspyrnustjóri félagsins til frambúðar. 26.12.2005 08:30
Hefur samþykkt að ganga í raðir United Spartak frá Moskvu samþykkti í gær tilboð Manchester United í serbneska varnarmanninn Nemanja Vidic, sem væntanlega gengur í raðir enska liðsins eftir áramótin ef hann lýkur læknisskoðun og samþykkir tilboð Manchester United. Vidic er sterkur miðvörður og hefur verið orðaður við nokkur önnur lið eftir að hann lýsti því yfir fyrir skömmu að hann vildi fara frá Spartak. 26.12.2005 08:15
Lítið jólaskap í Kobe og Shaq Annað árið í röð mættust fyrrum félagarnir Kobe Bryant og Shaquille O´Neal að kvöldi jóladags með liðum sínum LA Lakers og Miami Heat. Shaq og félagar höfðu betur í gærkvöldi eins og í fyrra 97-92. Þá mættust liðin sem léku til úrslita í fyrra, Detroit Pistons og San Antonio Spurs í Detroit, þar sem heimamenn höfðu betur 85-70. 26.12.2005 07:00
Ég er fasisti, ekki rasisti Hinn umdeildi Paolo di Canio hjá Lazio á Ítalíu heldur áfram að valda fjaðrafoki með fasistakveðjum sínum á knattspyrnuvellinum og hefur verið sektaður og dæmdur í leikbann í kjölfarið. Sjálfur segist hann aðeins vera misskilinn og hefur nú tekið það skýrt fram að hann sé fasisti - ekki rasisti. 26.12.2005 07:00
Óttaðist að komast ekki á HM Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, viðurkenndi í viðtali um helgina að hann hafi á tímabili óttast að liðið kæmist ekki á HM vegna slakrar spilamennsku. Þetta hafi sérstaklega átt við þegar Englendingar voru rassskelltir í Danmörku og þegar liðið tapaði fyrir Norður-Írum í haust. 26.12.2005 06:30
Toppmöller tekur við Georgíu Þýski þjálfarinn Klaus Toppmöller, sem náði frábærum árangri með Bayer Leverkusen árið 2002, hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Georgíu og mun skrifa formlega undir tveggja ára samning fljótlega. Landslið Georgíu endaði í næstneðsta sæti riðils síns í haust og því var þjálfara liðsins sagt upp störfum í kjölfarið. 26.12.2005 06:15
Garcia fer ekki á EM í Sviss Skyttan Jaliesky Garcia hjá Göppingen í Þýskalandi getur ekki farið með íslenska landsliðinu í handknattleik á Evrópumótið í Sviss í næsta mánuði vegna táuppskurðar sem hann fór í rétt fyrir jólin. Garcia verður því frá keppni í janúar og getur því augljóslega ekki leikið með íslenska landsliðinu. 26.12.2005 06:00
Kobe og Shaq kljást á jólunum Það er engu líkara en að forráðamenn NBA deildarinnar séu með afbrigðum kaldhæðnir, því annað árið í röð mætast fyrrum liðsfélagarnir og erkifjendurnir Shaquille O´Neal og Kobe Bryant í leik að kvöldi jóladags. Leikur Miami Heat og LA Lakers verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn klukkan 20:30 á jóladag. 23.12.2005 21:00
Heinze missir af HM Sir Alex Ferguson hefur látið hafa eftir sér að hann óttist að argentínski landsliðsmaðurinn Gabriel Heinze muni missa af HM í sumar vegna alvarlegra hnémeiðsla sem hann varð fyrir í leik með Manchester United í Meistaradeildinni í haust. 23.12.2005 19:15
Íhugar tilboð í Walter Pandiani Birmingham hefur borist kauptilboð í framherjann Walter Pandiani sem er langt undir þeirri upphæð sem liðið borgaði fyrir hann þegar hann var keyptur fyrir aðeins sex mánuðum síðan. 23.12.2005 18:45
Yfirtaka fyrirhuguð fyrir áramót Hópur fjárfesta sem undirbýr yfirtöku á knattspyrnufélaginu Aston Villa hefur fullan hug á því að klára málið fyrir áramót, en þeir vonast til að kaupa félagið af Doug Ellis fyrir upphæð sem nemur 64,4 milljónum punda. 23.12.2005 18:15
Floro ráðinn til Real Madrid Benito Floro, fyrrum þjálfari hjá Real Madrid, var í dag ráðinn sem yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. Hinn 53 ára gamli Spánverji starfaði sem þjálfari hjá félaginu á árunum 1992-94 og mun í dag starfa með núverandi þjálfara liðsins Juan Ramon Lopez Caro, sem tók við þjálfun eftir að Wanderlei Luxemburgo hætti á dögunum. 23.12.2005 17:30
Gardner orðaður við Charlton Varnarmaðurinn Anthony Gardner hjá Tottenham er nú orðaður við grannaliðið Charlton þegar félagaskiptaglugginn á Englandi opnar í janúar. Talið er að Gardner muni kosta um 2 milljónir punda, en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi í liði Tottenham, þar sem meiðsli hafa gjarnan sett strik í reikninginn hjá honum. 23.12.2005 16:30
Vlaar fer ekki til Tottenham Hollenski varnarmaðurinn Ron Vlaar mun ekki ganga til liðs við Tottenham Hotspurs eins og til stóð og nú hefur landi hans Martin Jol vísað fregnum af kaupunum á bug. Jol var ósáttur við að fréttir af fyrirhuguðum kaupum á leikmanninum lækju í fréttirnar og segir að hann hafi úr fjölda varnarmanna að moða í liði sínu og hafi ekkert við einn í viðbót að gera. 23.12.2005 15:51
Boateng verður frá í átta vikur Hollenski miðjumaðurinn George Boateng hjá Middlesbrough verður frá keppni í átta vikur vegna ökklameiðsla sem hann hlaut í bikarleiknum gegn Blackburn í vikunni. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir lið Boro, því Boateng er lykilmaður í öllu miðjuspili liðsins. 23.12.2005 15:45
Tví-Bent á The Valley í janúar? Forráðamenn Charlton eru sagðir vera að undirbúa tilboð í sóknarmanninn Marcus Bent hjá Everton í janúar, en fyrir í framlínu Charlton er hinn ungi Darren Bent, sem vann sér sæti í enska landsliðshópnum í haust með góðri byrjun á tímabilinu. Framherjarnir tveir eru ekki skildir þó þeir beri sama eftirnafn. 23.12.2005 15:00
Iðrast orða sinna í garð Wenger Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segist sjá eftir því að hafa kallað Arsene Wenger gluggagægir á sínum tíma og viðurkennir að hann mundi taka orð sín til baka ef hann gæti. Þetta viðurkennir Mourinho í samtali við breska blaðið The Sun. 23.12.2005 14:45
Skjóttu mig ef þú vilt verða frægur Argentíska knattspyrnugoðið Diego Maradona komst í hann krappann á flugvelli í Brasilíu í gær, þegar hann reyndi að troða sér um borð í flugvél eftir að hafa mætt of seint. Hann var handtekinn fyrir að vera með leiðindi á vellinum eftir að ljóst var að hann næði ekki fluginu, en þótti móttökur öryggisvarða heldur glannalegar. 23.12.2005 14:15
Belgar ráða landsliðsþjálfara Belgíska knattspyrnusambandið tilkynnti í gær að Rene Vanderwycken yrði næsti landsliðsþjálfari Belga í knattspyrnu. Samningur hans nær til ársins 2008, en hann er fyrrum landsliðsmaður og er 52 ára gamall. Vandereycken tekur við af Aime Anthenunis, sem tekur við þjálfun Lokeren í Belgíu. Vandereycken var áður þjálfari Genk. 23.12.2005 13:45
Ungverjar fyrstu gestirnir á nýja Wembley Nú hefur verið staðfest að Ungverjar verði fyrsta þjóðin til að mæta Englendingum á nýja Wembley leikvangnum í vor, en framkvæmdir við völlinn standa nú sem hæst og eru raunar margir dauðhræddir um að verkið klárist ekki í tæka tíð fyrir úrslitaleikinn í enska bikarnum. 23.12.2005 13:45
Osasuna saxaði á forskot Barcelona Spútniklið Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni minnkaði forskot Barcelona niður í tvö stig í gærkvöldi, þegar liðið vann 2-1 sigur á Atletico Madrid í lokaleik ársins í úrvalsdeildinni. Osasuna vann þar með níunda heimasigur sinn í röð, sem er met, og minnkaði forskot meistaranna niður í tvö stig á toppnum. 23.12.2005 12:45
Skelfilegt gengi hjá Leverkusen Hvorki gengur né rekur hjá liði Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta, en landsliðsmaðurinn Jakob Sigurðarson leikur með liðinu. Liðið tapaði enn einum leiknum sínum í gærkvöldi, nú fyrir Nurnberg 83-80 á heimavelli sínum. Jakob kom lítið við sögu í leiknum, en þetta var níunda tap Leverkusen í síðustu tíu leikjum og ljóst að botnbaráttan er það sem koma skal hjá liðinu ef gengi þess lagast ekki. 23.12.2005 12:30
Souness vill að Shearer verði eitt ár enn Graeme Souness, stjóri Newcastle, vill að fyrirliðinn Alan Shearer hætti við að hætta eftir þetta tímabil og verði eitt ár í viðbót með liðinu. Shearer hugleiddi að hætta eftir síðasta tímabil, en fékkst til að halda áfram og nú eru sömu vangavelturnar komnar upp á borð hjá hinum 36 ára gamla sóknarmanns. 23.12.2005 12:15
Leikmenn United lögðu ekki nógu hart að sér Goðsögnin Sir Bobby Charlton hjá Manchester United segir að ástæðan fyrir lélegu gengi félagsins í Meistaradeildinni, þar sem liðið endaði á botni riðils síns og komst ekki einu sinni í Evrópukeppni félagsliða fyrir vikið, sé að leikmenn hafi ekki lagt sig nógu vel fram. 23.12.2005 12:00
Óviss með að fara til Tottenham Varnarmaðurinn ungi, Ron Vlaar hjá AZ Alkmaar í Hollandi, er ekki viss um að hann vilji fara til Englands og ganga til liðs við úrvalsdeildarlið Tottenham ef marka má heimildir BBC. AZ og Tottenham höfðu samið um kaupverð á leikmanninum, en heimildir herma að hann sé tvístíga með að yfirgefa foreldrahús og flytja til annars lands. Búist er við að Vlaar taki ákvörðun á næstu tveimur vikum. 23.12.2005 11:45
George Burley tekur við Southampton George Burley, fyrrum stjóri Hearts og Ipswich, verður næsti stjóri 1. deildarliðs Southampton, en þetta verður tilkynnt formlega seinnipartinn í dag. Sir Clive Woodward mun gegna stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá félaginu, en Dave Bassett, sem hefur gegnt stöðu knattspyrnustjóra síðan Harry Redknapp fór til Portsmouth, mun fara frá félaginu. 23.12.2005 11:30
Nowitzki og James heitir Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Cleveland vann góðan útisigur á Chicago á útivelli 108-100, þar sem LeBron James skoraði 37 stig fyrir Cleveland, en Ben Gordon var með 22 stig fyrir Chicago. Dallas lagði Sacramento á útivelli 105-95. Dirk Nowitzki skoraði 37 stig fyrir Dallas, en Mike Bibby skoraði 22 stig fyrir Sacramento. 23.12.2005 10:59
Sacramento tekur á móti Dallas Leikur Sacramento Kings og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV í nótt. Staða þessara liða er mjög ólík, því lið Sacramento á mjög erfitt uppdráttar í vetur, liðið fékk til sín marga nýja leikmenn í sumar og svo hafa meiðsli sett svip sinn á leik liðsins. Allt gengur hinsvegar í haginn hjá Dallas, sem hefur náð frábærum árangri þrátt fyrir að hafa enn ekki geta stillt upp sínu sterkasta liði í vetur. 22.12.2005 22:00
Minningarathöfn um Richard Burns haldin í dag Í dag var haldin sérstök minningarathöfn um rallýkappann Richard Burns, en hann lést af völdum heilaæxlis í síðasta mánuði, aðeins 34 ára að aldri. Burns er eini Englendingurinn sem hefur unnið heimsmeistaratitil ökumanna í ralli, en hann náði þeim árangri á Subaru-bíl sínum árið 2001. 22.12.2005 21:15
Krefst þess að fá að fara frá félaginu Hinn 29 ára gamli Mark Delaney hjá Aston Villa hefur farið fram á það opinberlega að vera seldur frá félaginu því honum þykir sem liðið hafi engan áhuga á að gera við sig nýjan samning. Delaney er landsliðsmaður Wales og á aðeins sex mánuði eftir af samningi sínum við Villa, en David O´Leary stjóri Villa, segist ekki vilja semja við hann nema hann komi sér í betra form en verið hefur. 22.12.2005 21:15
Mér verður ekki sagt að þegja Jose Mourinho hefur lýst því yfir að honum verði ekki sagt að þegja og segist muni halda áfram að tjá skoðanir sínar. Þetta segir hann á meðan hann bíður eftir úrskurði aganefndar enska knattspyrnusambandsins vegna ummæla hans um leikmann Wigan, sem hann kallaði svindlara í leik Wigan og Chelsea á dögunum. 22.12.2005 19:30
Bayern mætir Mainz í 8-liða úrslitunum Bayern Munchen tryggði sér í gærkvöld sæti í undanúrslitum þýska bikarsins með sigri á HSV 1-0. Það var enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves sem skoraði mark Bayern í framlengingu. Þriðjudeildarlið St.Pauli sló Hertha Berlin úr keppni með sigri í framlengingu 4-3. 22.12.2005 19:15
Tottenham heldur Mido lengur en áætlað var Enska úrvalsdeildarliðið Tottenahm er við það að ná samningum við egypska knattspyrnusambandið um að fá að halda sóknarmanninum Mido eins lengi og hægt er áður en hann fer í Afríkukeppnina með landsliði sínu. Hann fer væntanlega ekki í keppnina fyrr en fjórum til fimm dögum áður en hún hefst og er það forráðamönnum enska liðsins mikill léttir. 22.12.2005 18:45
Reglur Naismith til sölu Barnabörn Dr. James Naismith, mannsins sem fann upp körfuknattleik árið 1891, hafa nú ákveðið að selja upprunalegu reglurnar sem afi þeirra skrifaði fyrir leikinn á sínum tíma. Þær fást svo sannarlega ekki gefins, því börnin fara fram á tíu milljónir dollara fyrir herlegheitin. 22.12.2005 18:15
Artest verður hjá Indiana fram yfir jól Vandræðagemlingurinn Ron Artest hjá Indiana Pacers verður hjá liðinu fram yfir hátíðar, en forráðamenn félagsins segjast bjartsýnir á að geta skipt honum í burtu strax eftir jól. Artest er sagður hafa dregið kröfu sína um að verða skipt frá liðinu til baka, en þolinmæði Indiana er einfaldlega á þrotum og víst þykir að hann hafi spilað sinn síðasta leik með liðinu. 22.12.2005 17:00
Ciudad Real tapaði fyrir Portland San Antonio Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real töpuðu naumlega fyrir Portland San Antonio í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi 28-27. Ólafur skoraði þrjú mörk í leiknum. Barcelona er í efsta sæti deildarinnar með 28 stig, Portland San Antonio er í öðru sæti með 27 stig og Ciudad í því þriðja með 24 stig. Einar Örn Jónsson skoraði sjö mörk fyrir lið sitt Torrevieja í 29-23 sigri liðsins á Cangas. 22.12.2005 16:52
Tilbúinn að framlengja samning sinn Þýski miðjumaðurinn Dietmar Hamann hjá Liverpool hefur samþykkt að framlengja samning sinn við félagið um eitt ár, en samningur sem hann undirritaði í sumar bauð upp á eins ár framlengingu og búist er við þvi að nýr samningur verði undirritaður fljótlega. Hamann er 32 ára gamall og kom til Liverpool frá Newcastle árið 1999. Hann á að baki 57 landsleiki fyrir Þjóðverja. 22.12.2005 16:45
Æfur út í Barcelona Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er æfur út í forráðamenn Barcelona fyrir að lýsa nýverið yfir opinberlega að félagið ætlaði sér að ná í franska framherjann Thierry Henry frá Arsenal og segir það vanvirðingu við félagið. 22.12.2005 16:30
Tottenham fær hinn nýja Jaap Stam Eins og fram kom í gærkvöldi er enska úrvalsdeildarliðið Tottenham við það að ganga frá kaupum á unga landsliðsmanninum Ron Vlaar, sem kallaður hefur verið hinn nýji Jaap Stam. Mörg lið höfðu verið á höttunum eftir landsliðsmanninum unga, en hann var nýverið settur í leikbann hjá AZ Alkmaar vegna ummæla sinna í kjölfar þess honum þótti félagið hafa hindrað að Ajax keypti hann til sín. 22.12.2005 16:00
Ég yfirgef ekki sökkvandi skip Brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo hjá Real Madrid, segir að leikmenn liðsins verði að sýna samstöðu eftir að þeir töpuðu enn einum heimaleiknum í spænsku deildinni í gærkvöldi. Hann segir jafnframt að hann sé alls ekki á förum frá félaginu. 22.12.2005 15:45
Bíðið með að baula Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að áhorfendur á Old Trafford hafi fullan rétt á að láta liðið heyra það ef það stendur sig ekki á vellinum, en hefur biðlað til þeirra að baula ekki á liðið fyrr en að leik líkur, því það hafi mjög slæm áhrif á liðið ef baulað er á það á meðan á leik stendur. 22.12.2005 15:15