Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Njarðvík vann meistarakeppnina Njarðvíkingar báru sigurorð af grönnum sínum í Keflavík í meistarakeppni KKÍ í Keflavík í kvöld, 94-79, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 46-42. Jeb Ivey var stigahæstur í liði Njarðvíkur með 33 stig, en hirti auk þess átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar. 9.10.2005 00:01
Damien Duff meiddur Írski landsliðsmaðurinn Damien Duff verður frá keppni í nokkrar vikur vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í leiknum gegn Kýpur á laugardaginn og missir því af leiknum mikilvæga gegn Sviss á miðvikudag. 9.10.2005 00:01
Ralf á ráspól í Japan Þýski ökuþórinn Ralf Schumacher hjá Toyota verður á ráspól á Suzuka brautinni í Japan á morgun, eftir að hann náði bestum tíma allra í regnvotri tímatökunni í nótt. Annar varð Jenson Button og Giancarlo Fisichella átti þriðja besta tímann. 8.10.2005 00:01
Guðjón æfur eftir tapið í gær Guðjón Þórðarson, stjóri Notts County, var skiljanlega ekki kátur með sína menn eftir fyrsta tap liðsins á heimavelli á leiktíðinni gegn Boston United í gær og leikmenn hans eiga ekki von á góðu, því hann segist ætla að eyðileggja helgina fyrir þeim. 8.10.2005 00:01
Curry stóðst læknisskoðun Miðherjinn Eddy Curry gekk formlega í raðir New York Knicks í NBA deildinni í gærkvöldi, þegar hann stóðst umfangsmikla læknisskoðun hjá félaginu. Curry spilaði ekki síðustu leikina með Chicago Bulls í úrslitakeppninni í vor eftir að hann greindist hjartveikur og fór frá liðinu eftir að vera skikkaður í DNA próf gegn því að fá nýjan samning. 8.10.2005 00:01
Englendingar komnir yfir Englendingar eru komnir yfir gegn Austurríkismönnum í undankeppni HM, en leikurinn fer fram á Old Trafford í Manchester. Það var Frank Lampard sem skoraði markið úr vítaspyrnu á 25. mínútu eftir að brotið hafði verið á Michael Owen í teignum. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 8.10.2005 00:01
Beckham sá rautt David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, fékk að líta rauða spjaldið á 59. mínútu leiksins við Austurríki, eftir að hafa fengið að líta sitt annað gula spjald. Dómurinn var nokkuð strangur, því austurríski leikmaðurinn kryddaði brot Beckham nokkuð vel og fiskaði hann í raun útaf. Staðan í leiknum er enn 1-0 fyrir England. 8.10.2005 00:01
Castillo var of þungur Mexíkóski boxarinn Jose Luis Castillo mun ekki geta endurheimt WBC léttvigtartitil sinn í hnefaleikum, eftir að honum mistókst að ná réttri þyngd fyrir bardagann við Diego Corrales. 8.10.2005 00:01
Englendingar sigruðu Austurríki Englendingar unnu tilþrifalítinn en mikilvægan sigur á Austurríkismönnum í 6. riðli undankeppni HM í Manchester í dag, en það var Frank Lampard sem skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 25. mínútu leiksins, en enska liðið lék manni færra frá 59. mínútu, eftir að fyrirliðanum David Beckham var vikið af leikvelli. 8.10.2005 00:01
Toshack ánægður með sína menn John Toshack, landsliðsþjálfari Wales, hrósaði sínum mönnum fyrir góðan baráttuanda þegar liðið lagði Norður-Íra 3-2 í hörku leik í Belfast í dag, en Ryan Giggs skoraði sigurmark Wales úr aukaspyrnu eftir að þeir höfðu misst niður tveggja marka forystu sína. 8.10.2005 00:01
Beckham óhress með rauða spjaldið David Beckham var ekki sáttur við að vera rekinn af leikvelli í leiknum gegn Austurríki nú áðan og sagði bæði gulu spjöldin sem hann fékk hafa verið mjög strangir dómar. Sven-Göran Eriksson tók í sama streng, en var sáttur við sigurinn. 8.10.2005 00:01
Valur áfram í EHF keppninni Handknattleikslið Vals er komið áfram í þriðju umferð EHF-keppninnar þrátt fyrir tap gegn finnska liðinu Sjundea í Laugardalshöllinni í dag, 31-28, en Valsmenn unnu fyrri leikinn með sex marka mun. Baldvin Þorsteinsson var markahæstur Valsmanna með 11 mörk. 8.10.2005 00:01
Stjarnan tapaði óvænt Stjarnan tapaði nokkuð óvænt fyrir Víkingi/Fjölni í DHL-deild karla í handknattleik í dag. Leikurinn fór fram á heimavelli Stjörnunnar og lauk með sigri gestanna, 25-23, eftir að staðan hafði verið jöfn í hálfleik, 12-12. Hjá Stjörnunni var Arnór Theódórsson markahæstur með fimm mörk, en Sverrir Hermannsson skoraði sex fyrir Víking/Fjölni. 8.10.2005 00:01
Enn eitt tapið hjá FH Hrakfarir FHinga halda áfram í DHL-deild karla, en í dag tapaði liðið fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum, þar sem úrslitin réðust með dramatískum hætti á lokasekúndunum. Eftir að FH hafði forystu 16-15 í hálfleik, sigur heimamenn fram úr í síðari hálfleiknum og skoruðu sigurmarkið tveimur sekúndum fyrir leikslok. 8.10.2005 00:01
Fyrsta tap Valsstúlkna Kvennalið Vals tapaði sínum fyrsta leik í DHL-deild kvenna í handknattleik í dag þegar liðið lá fyrir FH í Laugardalshöllinni, 26-23. Valur var yfir í hálfleik 14-12, en FH hafði betur í síðari hálfleiknum og vann sinn annan leik í röð, eftir að hafa tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á mótinu. 8.10.2005 00:01
Fjórir nýliðar frá Afríku á HM Mikil dramatík var í Afríkuriðlum undankeppni HM í dag, en eftir leiki dagsins var ljóst að þrjú lönd úr álfunni færu á heimsmeistaramótið í fyrsta skipti í sögunni. Þetta eru Togo, Gana, Fílabeinsströndin og Angóla. 8.10.2005 00:01
Írar halda enn í vonina Írar halda enn í vonina um að komast á HM næsta sumar, en þeir lögðu Kýpur 1-0 á útivelli í dag. Það var framherji Sunderland, Stephen Elliot sem skoraði eina mark leiksins strax á sjöttu mínútu leiksins. Írar geta þó þakkað markverði sínum Shay Given sigurinn, því hann varði stórkostlega í leiknum og þar á meðal vítaspyrnu frá heimamönnum. 8.10.2005 00:01
Skotar töpuðu illa og eru úr leik Vonir Skota um að komast í lokakeppni HM í Þýskalandi eru formlega úr sögunni eftir að liðið tapaði illa 1-0 á heimavelli fyrir Hvít-Rússum í dag. Það var Vitaly Kutuzov sem skoraði eina mark leiksins, en þegar Norðmenn sigruðu svo Moldavíu 1-0 síðar í kvöld, var ljóst að Skotar væru dottnir út úr myndinni. 8.10.2005 00:01
Hollendingar skutu England á HM Hollendingar gerðu Englendingum stóran greiða í dag þegar þeir lögðu Tékka 2-0 á útivelli, en sigur Hollendinga þýðir að enska liðið er öruggt með sæti á HM, hvort sem það endar í fyrsta eða öðru sæti riðils síns. 8.10.2005 00:01
Króatar í toppsætið í 8. riðli Króatar skutust í kvöld í efsta sæti 8. riðilsins í undankeppni HM þegar þeir lögðu Svía 1-0 á heimavelli sínum. Það var Srna sem skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 56. mínútu. Fyrr um daginn sigruðu Búlgarir Ungverja 2-0 með mörkum frá Berbatov og Lazarov. 8.10.2005 00:01
Íslendingar í Meistaradeildinni Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real rúlluðu yfir Tatra Presov frá Slóvakíu í Meistaradeildinni í handbolta í dag, 39-24. Alfreð Gíslason og félagar í Magdeburg sigruðu franska liðið Montpellier 32-28 og lið Sturlu Ásgeirssonar, Arhus, sigraði Merano frá Ítalíu 35-28 á heimavelli. 8.10.2005 00:01
Losuðu sig við Kanana Þó svo að keppni sé ekki hafin í úrvalsdeild karla í körfubolta hafa tvö lið þegar sent sinn bandaríska leikmann heim. Fjölnismenn sendu heim Jason Clark sem hafði til að mynda leikið með liðinu í Reykjavíkurmótinu og þá ákváðu Haukar að segja upp samningi Richard Jeter en hann fór með liðinu í æfingaferð til Serbíu. 8.10.2005 00:01
Fimm leikir á fimm dögum Stefán Arnarsson landsliðsþjálfari kvenna í handbolta hefur valið sextán leikmenn í liðið sem tekur þátt í æfingamóti í Hollandi dagana 11. til 15. október næstkomandi. Ásamt Íslandi leika lið Rúmeníu, Tékklands og Slóvakíu á mótinu ásamt A- og B- liði Hollands. Leikið verður á hverjum degi sem mótið fer fram. 8.10.2005 00:01
Óvíst með Auðun "Það er farið að líta betur út með Gunnar Heiðar en það er enn óvissa með Auðun fyrir þennan leik gegn Svíþjóð," sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari í gær, rétt áður en haldið var til Svíþjóðar. 8.10.2005 00:01
Haukar þurfa að eiga toppleik "Þetta er mjög grimmt lið og þeir eru fljótir að refsa fyrir hver einustu mistök, skora mikið úr hraðaupphlaupum. Það er ljóst að við verðum að eiga toppleik til að eiga möguleika á móti þeim. Ég sá þá spila gegn þessu ítalska liði og þar unnu þeir öruggan sigur," sagði Páll Ólafsson þjálfari Hauka sem leika í Meistaradeildinni í dag gegn Gorenje Velenje í Slóveníu en leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn. 8.10.2005 00:01
Valsmenn áfram þrátt fyrir tap Valur tapaði fyrir finnsku meisturunum í Sjundeå IF með þriggja marka mun, 28-31, í Laugardalshöllinni í gær. Þetta var síðari leikur liðanna í 2. umferð EHF-keppninnar en þrátt fyrir tapið í gær komast Valsmenn áfram þar sem þeir unnu sex marka sigur í fyrri leiknum í Finnlandi 33-27. 8.10.2005 00:01
Enskir geta þakkað Hollendingum Englendingar gátu leyft sér að fagna í gærkvöldi eftir sigur liðsins á Austurríki og enn fremur eftir sigur Hollands á Tékklandi. Þau úrslit þýddu að bæði Pólland og England eru komin áfram á HM þar sem þau tvö lið sem ná bestum árangri í 2. sæti riðlanna komast beint áfram. 8.10.2005 00:01
Sölvi Geir í byrjunarliði Íslands Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson landsliðsþjálfarar hafa valið byrjunarlið Íslands sem mætir Póllandi í vináttulandsleik í Varsjá í dag. Einn nýliði er í liðinu, Sölvi Geir Ottesen, leikmaður Djurgården. Brynjar Björn Gunnarsson verður fyrirliði í fyrsta sinn. Liðið er þannig skipað: 7.10.2005 00:01
Nýtt lið gegn Pólverjum "Undirbúningurinn hefur ekki verið upp á það besta. Það vantar marga lykilmenn og nánast nýtt lið sem hleypur inn á völlinn. Flestir leikmannanna eru ungir að árum og að stíga sín fyrstu skref og oft ná þeir að spila upp fyrir sig í svona leikjum," sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari Íslands, við Fréttablaðið eftir seinni æfingu landsliðsins í gær. 7.10.2005 00:01
Haukastúlkur í undanúrslitin Haukastúlkur eru komnar í undanúrslit Hópbílabikars kvenna eftir 24 stiga sigur á nýliðum Breiðabliks, 76-52, á Ásvöllum en Blikar höfðu unnið bikarmeistarana í fyrri leiknum með átta stigum. 7.10.2005 00:01
Meistarakeppnin um helgina Góðgerðaleikir KKÍ fara fram á sunnudaginn en þar mætast Íslands- og bikarmeistarar karla og kvenna í Meistarakeppninni en sú venja hefur skapast að ágóði leikjanna rennur til góðgerðarmála. Að þessu sinni er það Foreldrafélag barna með axlarklemmu sem fær að njóta góðs af leikjunum. 7.10.2005 00:01
Loksins sigur hjá U-19 Íslenska U-19 ára landslið Íslands vann í dag góðan 2-0 sigur á Bosníu og Hersegóvínu í lokaumferð undankeppni EM, en riðillinn var spilaður í Bosníu. Theodór Elmar Bjarnason og Arnór Smárason skoruðu mörk íslenska liðsins seint í leiknum. Íslenska liðið hafnaði því í þriðja sæti í riðlinum og kemst ekki áfram í milliriðla. 7.10.2005 00:01
Arsenal íhugar kaup á miðjumanni Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er á höttunum eftir miðjumanninum Hossam Ghaly hjá Feyenoord í Hollandi. Hossam er 23 ára gamall Egypti og hefur hann viðurkennt að það væri draumur fyrir sig að ganga í raðir enska liðsins. 7.10.2005 00:01
Leikur Íslands og Póllands hafinn Vináttuleikur Íslendinga og Pólverja í Varsjá er nú hafinn og er hann í beinni útsendingu á Sýn. Fylgst verður með gangi mála í leiknum hér á Vísi. 7.10.2005 00:01
Ísland komið yfir gegn Pólverjum Íslenska landsliðið er komið yfir gegn Pólverjum í Varsjá. Það var Kristján Örn Sigurðsson sem skoraði markið með góðu skoti eftir stundarfjórðung, eftir að hafa fengið frábæra sendingu frá fyrirliðanum Brynjari Birni Gunnarssyni. 7.10.2005 00:01
Pólverjar jafna Það tók Pólverja aðeins tíu mínútur að jafna leikinn gegn íslenska liðinu í vináttulandsleik þjóðanna í Varsjá. Þar var að verki Krzynowek, eftir snarpa sókn heimamanna. 7.10.2005 00:01
Hannes kemur Íslendingum yfir Hannes Þ. Sigurðsson hefur komið íslenska landsliðinu aftur yfir í Varsjá og staðan er því orðin 2-1 fyrir Ísland, þegar skammt er eftir af fyrri hálfleik. Hannes skoraði með þrumuskoti úr vítateignum á 38. mínútu. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 7.10.2005 00:01
Pamarot klár í slaginn með Spurs Franski bakvörðurinn Noe Pamarot er nú farinn að æfa á fullu með liði Tottenham Hotspurs, eftir að hafa verið meiddur á hné síðan í apríl í vor. "Ég er búinn að vera lengi frá og því var það sérstaklega ánægjulegt að ná að fara í gegn um heila æfingu," sagði Pamarot. 7.10.2005 00:01
Þrír leikir í handboltanum í kvöld Þrír leikir eru á dagskrá í DHL-deildinni í handknattleik karla í kvöld og á morgun fara svo fram fimm leikir í karla- og kvennaflokki. Í kvöld taka Þórsarar á móti ÍR, Fylkir á móti Aftureldingu og Selfyssingar taka á móti HK. 7.10.2005 00:01
Pólverjar jafna Pólverjar eru búnir að jafna leikinn gegn Íslendingum í 2-2 í Varsjá. Markið var heldur ódýrt og kom eftir aukaspyrnu pólska liðsins. Það var varamaðurinn Baszczynski sem skoraði mark Pólverja á 56. mínútu, en skömmu síðar hitnaði í kolunum og lá við slagsmálum milli leikmanna á vítateig pólska liðsins. 7.10.2005 00:01
Pólverjar komnir yfir Pólverjar eru komnir yfir í fyrsta sinn í leiknum við Íslendinga í Varsjá. Það var Smolarek sem skoraði markið á 64. mínútu eftir að hann fékk laglega sendingu innfyrir vörn íslenska liðsins og átti ekki í vandræðum með að skora framhjá Kristáni Finnbogasyni í markinu. Þetta var annað mark Pólverja á aðeins átta mínútum. 7.10.2005 00:01
Ísland tapaði fyrir Pólverjum Vináttuleik Íslendinga og Pólverja í knattspyrnu er lokið með 3-2 sigri heimamanna. Kristján Örn Sigurðsson kom íslenska liðinu yfir í fyrri hálfleik og eftir að Pólska liðið jafnaði leikinn, kom Hannes Sigurðsson Íslendingum yfir á ný, en Pólverjar voru betri í síðari hálfleiknum og unnu sanngjarnan 3-2 sigur. 7.10.2005 00:01
Enn hrynur vél hjá Raikkönen Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen þarf að sætta sig við að vera færður aftur um tíu sæti á ráslínu í Japanskappakstrinum um helgina, eftir að vélin í bíl hans gaf upp öndina á æfingu í dag. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kappinn lendir í vandræðum vegna vélarbilunar og má hann illa við því þar sem McLaren er í hörðum slag við Renault um titil bílasmiða. 7.10.2005 00:01
Allt í góðu hjá Wenger og Henry Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að allt sé í himnalagi milli hans og framherjans Thierry Henry, þrátt fyrir að sá síðarnefndi hafi farið fram á að seinka viðræðum um framlengingu á samningi sínum við félagið. 7.10.2005 00:01
Bóndinn heimsmeistari öldunga Jón "Bóndi" Gunnarsson varð í dag heimsmeistari öldunga í kraftlyftingum, en mótið fór fram í Suður-Afríku. Jón keppti í 90 kg flokki og lyfti 302,5 kg í hnébeygju, 200 kg í bekkpressu og 295 kg í réttstöðulyftu. Samanlagður árangur hans var því 797,5 kg. 7.10.2005 00:01