Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýbirtar upptökur frá deginum sem Kennedy dó Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna birti nýlega upptökur úr forsetaflugvél Bandaríkjanna, Air Force One, frá deginum þegar John F Kennedy var myrtur. Upptakan er 42 mínútna löng. Áður höfðu verið birtar upptökur úr vélinni en þessi 42 mínútna kafli var ekki inni í þeirri upptöku. 31.1.2012 22:06
Ótrúlegt "base-jump" í Singapúr Ótrúlegt myndband sem sýnir ofurhuga stökkva af spilavíti í Singapúr hefur vakið gríðarlega athygli. Byggingin hentar afar vel fyrir „base-jump" en á þaki þess er gríðarstór sundlaug. 31.1.2012 20:42
Fyrrverandi forstjóri RBS sviptur aðalstign Fred Goodwin, fyrrverandi bankastjóri Royal Bank of Scotland, hefur verið sviptur aðalstign. Sky fréttastofan greinir frá þessu í dag. Það hefur verið gríðarlegur þrýstingur á að hann yrði sviptur titlinum eftir að bankinn hrundi í miðri lausafjárkrísunni sem skók allan heiminn árið 2008. 31.1.2012 17:35
Áföllum fækkað um helming Dauðsföllum af völdum hjartaáfalla hefur fækkað um ríflega helming í Englandi frá árinu 2002 ef marka má rannsóknir frá Oxford. 31.1.2012 11:00
Nær engu munaði að brak úr gervihnetti félli á Beijing Nær engu munaði að stórir og þungir málmhlutir úr aflóga þýskum gervihnetti sem hrapaði til jarðar síðasta haust hefðu lent á Beijing höfuðborg Kína með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. 31.1.2012 07:36
Yfir 100 manns slösuðust í jarðskjálfta í Perú Yfir hundrað manns slösuðust í öflugum jarðskjálfta í Perú í gærdag en ekki er vitað til að neinn hafi farist af völdum hans. 31.1.2012 07:27
Romney með sigurinn í höndunum í Flórída Mitt Romney hefur haldið áfram að auka forskot sitt á Newt Gingrich í Flórída en næsta prófkjör Repúblikanaflokksins verður haldið í ríkinu í dag. 31.1.2012 07:21
Bretar og Tékkar höfnuðu reglum um aukinn aga í fjármálum 25 af 27 ríkjum Evrólpusambandsins, samþykktu á leiðtogafundi í gærkvöldi, að taka upp nýjar reglur um aukinn aga í ríkisfjármálum sínum. Aðeins Bretar og Tékkar höfnuðu því að samþykkja hinar nýju reglur. 31.1.2012 07:20
Milljónir af leðurblökum hafa drepist í Bandaríkjunum Leðurblökur í milljónatali hafa dáið vegna sýkingar í norðaustanverðum Bandaríkjunum og hluta af Kanada. 31.1.2012 06:53
Ekki náðist samstaða í Brussel Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins (ESB) hittust í Brussel í gær til að klára viðræður um nýjar reglur sem tryggja eiga aga við ríkisfjármálastjórn í evrulöndunum. Með reglunum vilja leiðtogarnir koma í veg fyrir að evruríki geti safnað óhóflegum skuldum á ný. 31.1.2012 06:00
Sjö ráðherrar utan þjóðkirkju Sjö ráðherrar af 23 í Danmörku eru ekki meðlimir í þjóðkirkjunni þar í landi, að því er fram kemur í Ekstra Bladet. Þetta heyrir til nokkurra tíðinda í sögulegu samhengi. Í síðustu ríkisstjórn, til dæmis settist enginn sem var utan við þjóðkirkjuna í ráðherrastól. Á meðal ráðherranna sjö eru varnarmálaráðherrann Nick Hækkerup og fjármálaráðherrann Bjarne Corydon, sem segist bera fulla virðingu fyrir þjóðkirkjunni. „En ég er ekki trúaður og þess vegna finnst mér eðlilegt að ég sé ekki meðlimur í þjóðkirkjunni,“ sagði hann.- þj 31.1.2012 05:00
Romney talinn sigurstranglegri Kannanir benda til þess að Mitt Romney muni bera sigur úr býtum í prófkjöri repúblikana í Flórídafylki í kvöld. 31.1.2012 04:00
Segjast bjartsýn á viðræður Írönsk stjórnvöld hafa boðið sendifulltrúum Kjarnorkustofnunar Sameinuðu þjóðanna að vera lengur í landinu en þrjá daga, eins og upphaflega stóð til. Þetta er fyrsta heimsókn fulltrúa Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar til Írans frá því stofnunin sendi frá sér skýrslu í nóvember, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að sumar kjarnorkutilraunir Írana geti vart haft annan tilgang en þann, að gera framleiðslu kjarnorkuvopna mögulega. 31.1.2012 03:30
Hlaupkenndum kúlum rigndi í Bretlandi Maður í Dorset í Bretlandi er furðu lostinn eftir að undarlegar bláar kúlur féllu af himnum ofan og lentu í garðinum hans. 30.1.2012 22:19
6 kílóa barn fæddist í Bandaríkjunum Kona í Bandaríkjunum eignaðist stærðarinnar pilt eftir að hafa haft hríðir í 6 klukkustundir. Barnið vó rúmlega 6 kíló en slíkt er afar sjaldgæft. 30.1.2012 21:47
Yfir 100 slösuðust í jarðskjálfta Að minnsta kosti 112 manns slösuðust í Perú þegar að jarðskjálfti upp á 6,3 á Richter skók strönd landsins um sjöleytið að íslenskum tíma í gærkvöld. Skjálftinn varð nærri borginni Ica í Perú. AP fréttastofan segir að 16 íbúðir hafi skemmst í skjálftanum. Hús í höfuðborg Perú, Lima, skulfu í skjálftanum þótt borgin sé í meira en 200 kílómetra fjarlægð. 30.1.2012 17:39
Kuldinn herjar á Evrópu - átján látnir í Úkraínu Kuldatíð er nú í Evrópu og að minnsta kosti átján hafa látist úr kulda og vosbúð í Úkraínu, þar sem mikið hefur snjóað. Í Póllandi er staðfest að tíu séu látnir og andlát af völdum kuldans hafa einnig verið staðfest í Serbíu og Búlgaríu. 30.1.2012 14:53
Sjö ára fangelsi fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk Tveir menn voru í dag dæmdir til sjö ára fangelsisvistar í Osló fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverkaárás í Danmörku. Þriðji maðurinn var sýknaður í málinu en hann fékk þó fjögurra mánaða dóm fyrir að kaupa efni sem nota má til sprengjugerðar. Mennirnir þrír eru allir innflytjendur með landvistarleyfi í Noregi. Skotmarkið í Danmörku voru ritstjórnarskrifstofur Jótlandspóstsins sem á sínum tíma birti skopmyndir af spámanni Múslima, Múhameð. 30.1.2012 13:39
Eftirlitsmenn komnir til Íran Eftirlitsmenn frá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni funda með írönskum þarlendum stjórnvöldum um kjarnorkuáætlun landsins næstu þrjá daga. 30.1.2012 10:00
Risavaxið smástirni úr gulli framhjá jörðinni Risavaxið smástirni, 433 Eros að nafni, kemur nálægt jörðinni í dag en Eros siglir framhjá jörðinni í um 27 milljón kílómetra fjarlægð sem þykir stutt vegalengd í stjörnufræðinni. 30.1.2012 09:50
Uppreisnarmenn hraktir úr úthverfi Damaskus Stjórnarhernum í Sýrlandi hefur tekist að hrekja uppreisnarmenn úr einu úthverfa Damaskus höfuðborgar landsins. 30.1.2012 07:22
Romney eykur forskot sitt í Flórída Mitt Romney hefur aukið forskot sitt á Newt Gingrich í prófkjörsslag Repúblikana í Flórída en kosið verður á morgun, þriðjudag. 30.1.2012 07:17
Heiðursmorð vekja óhug í Kanada Hjón og sonur þeirra hafa verið dæmd í lífstíðarfangelsi í Kanada fyrir svokölluð heiðursmorð. 30.1.2012 06:56
300 mótmælendur handteknir Um þrjú hundruð mótmælendur úr Occupy hreyfingunni voru handteknir í Oakland í Bandaríkjunum í gærkvöldi eftir að þeir höfðu reynt að brjóta sér leið inn í ráðhús borgarinnar og ráðstefnuhús í grenndinni. Lögreglan sprautaði táragasi og kastaði reyksprengjum yfir mótmælenda hópinn sem létu steinum, flöskum og öðrum hlutum rigna yfir lögregluna á móti. Occupy hreyfingin hefur valdið usla í mörgum bandarískum borgum undanfarna mánuði en mótmælin hófust á Wall Street í New York á síðasta ári. 29.1.2012 11:50
Harmleikur í Perú: 27 brunnu inni Að minnsta kosti 27 fórust þegar eldur kom upp á meðferðarheimili í Lima, höfuðborg Perú, í gær. Um tíu eru alvarlega slasaðir en öll fórnarlömbin eru karlmenn. Samvkæmt slökkviliðsstjóra borgarinnar lokuðust sjúklingarnir inni á heimilinu þar sem ekki var hægt að opna hurðirnar innan frá. Slökkviliðsmenn þurftu að brjóta veggi til að bjarga fólki. Eldsupptök eru ókunn en lögreglan rannsakar málið. 29.1.2012 11:44
Undrabarn frá Kína sér í myrkri Nong Youhui er ekki venjulegur drengur, það er nokkuð ljóst. Hann getur nefnilega séð jafnvel í myrkri og í birtu. Í myrkrinu glóa augu hans eins og í ketti en þau eru alveg skærblá. 29.1.2012 11:27
Ætlar að halda áfram jafnvel þótt hann tapi í Flórída Newt Gingrich, fyrrverandi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, tilkynnti í gær að hann hygðist berjast um útnefningu Repúblikanaflokksins alveg fram að landsfundi flokksins í sumar, jafnvel þótt hann myndi tapa fyrir Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóra í Massachusetts, í forvalinu í Florída á þriðjudaginn. 29.1.2012 10:37
Hóta kvenkyns ökumönnum og ræna bílum þeirra Mikið hefur verið um það í Belfast, höfuðborg Norður-Írlands, undanfarið að glæpagengi ganga um götur bæjarins og hóta bílstjórum lífláti í þeim tilgangi að ræna bíl þeirra. 28.1.2012 22:45
Blaðamenn The Sun handteknir Breska lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum götublaðsins The Sun í morgun stuttu eftir að hafa handtekið einn lögreglumann og fjóra starfsmenn blaðsins í tengslum við meintar mútugreiðslur. 28.1.2012 16:08
Tala látinna komin í sautján eftir að lík konu fannst í morgun Tala látinna í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia er nú komin í sautján eftir að björgunarmenn fundu lík konu í skipinu í morgun. Enn er 15 saknað. 28.1.2012 13:19
Vilja forrit sem les Facebook Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hefur leitað til hugbúnaðarhönnuða um að búa til forrit sem geri FBI kleift að leita að ýmiss konar upplýsingum á samskiptavefjum á borð við Facebook og Twitter. 28.1.2012 01:00
Harka færist í bardagana í Sýrlandi á ný Hörð átök hafa verið í Sýrlandi undanfarna tvo daga, einkum í borginni Homs þar sem tugir manna eru sagðir hafa látið lífið, þar á meðal börn. 28.1.2012 00:00
Bæjarstjóri: "Vinsamlegast hættið að senda mér Taco-kökur" Bæjarstjóri í smábæ í Connecticut í Bandaríkjunum biðlar nú til íbúa bæjarins um að hætta að senda Taco-maískökur á skrifstofu sína. 27.1.2012 21:30
Smástirni fer framhjá jörðinni í dag Smástirnið 2012 BX34 fer framhjá jörðinni í dag. Steinninn er um 11 metrar að breidd og verður í tæplega 60.000 kílómetra fjarlægð frá jörðinni. 27.1.2012 14:17
Mótmæla milliríkjasamningi um höfundarrétt Aðildarríki Evrópusambandsins samþykktu í gær milliríkjasamning um höfundarrétt. Samkomulagið kallast ACTA og er því ætlað að takast á við brot á höfundarréttarlögum. 27.1.2012 13:55
Alríkislögregla Bandaríkjanna vill fylgjast með Twitter Alríkislögreglan í Bandaríkjunum reynir nú að þróa hugbúnað sem vaktar upplýsingaflæði á samskiptasíðum. Forritið mun leita eftir orðum, frösum og hegðun sem gæti tengst yfirvofandi hættu. 27.1.2012 12:41
Timeline komin til að vera á Facebook Stjórnendur Facebook sæta nú gagnrýni frá notendum síðunnar eftir að Timeline var gert að stöðluðu prófílsniði. Timeline var opinberað í september á síðasta ári og gátu notendur valið um hvort þeir nýttu sér nýjungina. 27.1.2012 11:14
"Þetta var eins og atriði úr Titanic." Ótrúlegar ljósmyndir sýna brottflutning farþega úr skemmtiferðaskipinu Costa Concordia eftir að skipið strandaði undan vesturströnd Ítalíu 13. janúar síðastliðinn. 27.1.2012 10:54
Farþegar Costa Concordia fá skaðabætur Ítalska fyrirtækið sem á skemmtiferðaskipið Costa Concordia mun greiða farþegum skipsins 11.000 evrur í skaðabætur eftir að skipið strandaði undan vesturströnd Ítalíu. 27.1.2012 10:25
28 látnir eftir bílasprengju í Írak Að minnsta kosti 28 fórust og fjöldi fólks særðist þegar bílasprengja sprakk í Bagdad í Írak í dag. 27.1.2012 09:58
Fundu poka með 16 kílóum af kókaíni í pósthúsi SÞ Diplómatapoki með 16 kílóum af kókaíni fannst nýlega í pósthúsi Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í New York. 27.1.2012 07:09
Vetrarhörkur og blindhríð herja á íbúa suðaustanvert í Evrópu Miklar vetrarhörkur og blindhríð herja nú á íbúa í suðaustanverðri Evrópu með verulegum truflunum á flug-, vega-, og lestarferðum. 27.1.2012 07:07
Fjórir bílstjórar stálu frímerkjum fyrir hálfan milljarð Fjórir bílstjórar hjá dönsku póstþjónustunni hafa verið handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þeir eru sakaðir um að hafa nýtt sér glufu í öryggiskerfi póstsins til þess að stela frímerkjum að andvirði um 23 milljónum danskra króna eða sem svarar til hálfum milljarði króna. 27.1.2012 06:58
Lifði á kjúklinganöggum og var lögð inn Fimmtán ára gömul stúlka í Bretlandi var flutt á spítala vegna fíknar sinnar í kjúklinganagga. Frá tveggja ára aldri hefur stúlkan vart látið annað ofan í sig. 26.1.2012 23:31
Skipuleggur herferð gegn PIP eftir að púðinn rofnaði Bresk leikkona skipuleggur nú herferð gegn framleiðendum PIP brjóstapúðana eftir að hennar eigin ígræðslur rifnuðu. 26.1.2012 22:29