Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ákærðir fyrir þrælahald Fjórir menn voru ákærðir í Bretlandi í dag fyrir þrælahald og að neyða aðra menn í þrælkunarvinnu. Þetta kemur fram á vefmiðli CBS. Upphaflega var ólétt kona handtekin auk mannanna fjögurra. Henni var sleppt í dag. 12.9.2011 22:05
Yfirvöld fullyrða að enginn leki hafi orðið Yfirvöld í Frakklandi fullyrða að engin geislavirk efni hafi lekið út þegar sprenging varð í Marcoule kjarnorkuverinu í suðurhluta Frakklands í morgun. Einn maður fórst í sprengingunni og þrír særðust. Samkvæmt frásögn BBC framleiðir verksmiðjan MOX eldsneyti sem notað er til að endurvinna plutonium úr kjarnorkuvopnum en þar eru ekki kjarnaofnar. Sprengingin varð klukkan korter í tíu að íslenskum tíma. Yfirvöld í Frakklandi fylgjast með gangi mála. 12.9.2011 13:21
Mikil flóð á Indlandi Rúmlega milljón manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín í indverska ríkinu Orissa og að minnsta kosti sextán hafa látið lífið í miklum vatnavöxtum á svæðinu. Tæpelga þrjú þúsund þorp hafa horfið undir vatnsflauminn en nú er rigningartímabilið í hámarki. Björgunarsveitir hafa þurft að koma sextíu þúsund manns til hjálpar síðustu daga en samgöngur á svæðinu eru í lamasessi þar sem vegir og brýr hafa skolast á brott. 12.9.2011 13:06
Kjarnorkuslys í Frakklandi Sprenging varð í franska kjarnorkuverinu Marcoule í morgun, samkvæmt frásögnum fjölmiðla þar. Kjarnorkuverskmiðjan er á Gardsvæðinu á suðurhluta Frakklands eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC. Fram kemur á fréttavef Le Figaro að einn hafi farist í sprengingunni og þrír hafi slasast. 12.9.2011 11:49
Herþotur á loft vegna ástaratlota í háloftunum Undarleg hegðun tveggja flugfarþega í Bandaríkjunum í gær olli því að orrustuþotur voru sendar á loft og sérsveit ruddist um borð í flugvélina þegar hún var lent. Atvikið kom upp í gær þegar heimsbyggðin minntist þess að tíu ár voru liðin frá árásunum á tvíburaturnana í New York. 12.9.2011 09:55
Al-Saadi fær hæli í Níger Al-Saadi, einn þriggja sona Múammars Gaddafí, hefur fengið hæli í Níger. Amadou Mourou, dómsmálaráðherra í Níger, staðfesti að Al-Saadi væri kominn til landsins í gær og nú hefur hann staðfest að syninum hafi verið veitt hæli af mannúðarástæðum. 12.9.2011 08:18
Þingmenn missa mánaðarlaun Skuldaþjökuð stjórnvöld Grikklands ætla að leggja á nýjan eignaskatt auk þess sem allir kjörnir fulltrúar í landinu missa ein mánaðarlaun. 12.9.2011 05:30
Sonur Gaddafís farinn til Niger APAl-Saadi, einn þriggja sona Múammars Gaddafí, er farinn frá Líbíu til Níger. Amadou Mourou, dómsmálaráðherra í Níger, staðfesti þetta í gær. 12.9.2011 04:00
Skyldleikinn þykir ótvíræður Tveggja milljón ára gömul bein úr lífveru sem líkist bæði öpum og mönnum virðist hafa verið einn af „týndu“ liðunum í þróun tegundanna frá öpum til manna. 12.9.2011 03:30
Japanir syrgja líka 11. September 2011 markar ekki aðeins þau merku tímamót að áratugur er liðinn frá hryðjuverkunum í New York, heldur einnig að í dag eru nákvæmlega sex mánuðir liðnir síðan jarðskjálftinn skók jörðu í Japan og flóðbylgja skall á landinu með þeim afleiðingum að um 20 þúsund manns létust og eru týndir. 11.9.2011 16:07
Sauðdrukkinn elgur með drykkjulæti í Svíþjóð Svíinn Per Johansson, sem býr í smábænum Söru nærri Gautaborg, heyrði sérkennileg hljóð í vikunni. Hann fór út í garð og sá þá sauðdrukkinn elg sem hafði fest höfuðið á milli tveggja greina eplatrés. 11.9.2011 16:26
Karlmaður myrtur og eiginkonunni rænt af vopnuðum mönnum Bresk yfirvöld hafa varað þegna sína við að fara nærri landamærum Sómalíu og Kenía eftir að breskur karlmaður var myrtur nærri landamærunum og eiginkonu hans rænt af vopnuðum mönnum. 11.9.2011 16:04
Þrælar frelsaðir í Englandi Lögreglan í Englandi bjargaði 24 þrælum úr haldi í morgun. Yfir hundrað lögreglumenn tóku þátt í aðgerðunum sem snéru að þrælahaldi í Bedfordskíri í Englandi. 11.9.2011 15:31
Obama las upp úr Biblíunni Minningarathöfn vegna hryðjuverkanna þann 11. september 2001 í New York fer nú fram. Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, hélt ræðu fyrr í dag, þar sem hann las meðal annars upp úr biblíunni. 11.9.2011 14:46
Tíu látnir eftir sprengjutilræði í Afganistan Tíu eru látnir eftir tvö sprengjutilræði í Afganistan í gær. Fyrri sprengjunni var komið fyrir á vegi í þorpi sem kallast Barmal. Þegar bíl var ekið á sprengjuna sprakk hún með þeim afleiðingum að tvær konur og fjórir karlar fórust. Níu til viðbótar særðust. 11.9.2011 13:03
Nepalskar mýs röskuðu millilandaflugi Músagangur varð til þess að nepalskri flugvél var tvívegis bannað að taka á loft á alþjóðaflugvelli í Hong Kong. 11.9.2011 10:04
Fjórir handteknir grunaðir um hryðjuverk í Svíþjóð Fjórir hafa verið handteknir í Svíþjóð grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk þar í landi. Samkvæmt fréttavef BBC þá var fólkið handtekið í Gautaborg í gærkvöldi. Áður hafði lögreglan meðal annars rýmt listamiðstöð í miðborg Gautaborgar þar sem meira en 400 manns voru samankomnir. 11.9.2011 09:56
Faust fékk Gullna ljónið - Sigurður Skúlason lék aukahlutverk Það var rússneski leikstjórinn Alexander Sokurov sem hlaut gullna ljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í gær. Verðlaunin hreppti hann fyrir kvikmynd sína um Faust. 11.9.2011 09:51
Gætu hafa bjargað diplómatískum samskiptum Egypta og Ísraela Það voru líklega Bandaríkjamenn sem vörnuðu því að milliríkjasamskipti Egyptalands og Ísraels yrðu rofin eftir að mótmælendur réðust inn í sendiráð Ísraels aðfaranótt laugardags. 11.9.2011 06:00
Bresk skólabörn koma vopnuð í skólann - sum lögð í einelti af foreldrum Níu ára gömul börn koma vopnuð hnífum í verstu skólana í Bretlandi samkvæmt viðamikilli könnun sem hefur verið gerð á menntakerfinu í landinu. Niðurstaðan er sláandi og sýnir gríðarlegt agaleysi og getuleysi skólanna til þess að takast á við agavandamál. 11.9.2011 00:00
Hefur áhyggjur af barnabarninu - hann drekkur eins og kálfur Kambódískur afi á við heldur sérkennilegt vandamál að stríða en 20 mánaða gamalt barnabarn hans er farið að haga sér eins og kálfur. 10.9.2011 23:00
Bloggaði um flugáætlun forseta Bandaríkjanna Japanskur flugumferðastjóri hefur verið yfirheyrður vegna gruns um að hann hafi bloggað um flugáætlun flugvélar forseta Bandaríkjanna þegar hann kom í opinbera heimsókn til landsins í nóvember á síðasta ári. 10.9.2011 15:58
Kallaði svæðið í kringum Fukushima-verið „bæ dauðans“ Efnahags- og viðskiptaráðherra Japans, Yoshio Hachiro, sagði af sér í dag, aðeins tveimur vikum eftir að hann var skipaður ráðherra. Ástæðan er sú að hann kallaði svæðið í kringum Fukushima kjarnorkuverið „bæ dauðans". 10.9.2011 15:52
Kvíðalyf hugsanlega dánarorsökin Faðir söngkonunnar Amy Winehouse sagði í gær að kvíðalyf hefðu greinst í blóði hennar þegar hún lést en krufning hefur leitt í ljós að söngkonan, sem lést skyndilega aðeins 27 ára í sumar, hafi ekki látist úr ofneyslu fíkniefna, eins og margir bjuggust við. 10.9.2011 15:43
Á annað hundrað látnir eftir ferjuslys Á annað hundrað eru látnir og fjölmargra er enn saknað eftir að ferja sökk utan við strendur tansanísku eyjunnar Zanzibar í gærkvöldi. 10.9.2011 12:57
Mikill öryggisviðbúnaður í New York Gríðarlegur öryggisviðbúnaður er í New York vegna þess að á morgun eru tíu ár liðin frá hryðjuverkunum þann 11. september árið 2001. 10.9.2011 10:15
Ráðist á ísraelskt sendiráð í Egyptalandi Hópur mótmælenda réðist að sendiráði Ísrael í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, í gærkvöldi og hefur sendiherrann, fjölskylda hans og aðrir starfsmenn sendiráðsins flúið land. 10.9.2011 10:05
„Vampíra“ handtekin fyrir líkamsárás Kona í Flórída var handtekin á föstudaginn eftir að hún réðst á eldri borgara og beit hann í andlitið. Sjálfur lýsti fórnarlambið, sem er 69 ára gamall karlmaður, því þannig fyrir lögreglu að hann hefði sofnað í hjólastjól undir skyggni á veitingastað til þess að skýla sér fyrir úrhellisrigningu. 10.9.2011 10:00
Náttúran fær sömu réttindi og mannfólkið Yfirvöld í Bólivíu hafa lagt fram lagafrumvarp sem mun veita náttúrunni sömu réttindi og manneskju. Lögin bera heitið „Lögmál Móður jarðar“ og er þetta í fyrsta sinn sem svo róttækar breytingar eru lagðar fram í heiminum er varða náttúruvernd. Þetta kemur fram á vef Guardian. 10.9.2011 05:00
Átök hafa harðnað á ný í Líbíu Stuðningsmenn Múammars Gaddafí skutu í gær flugskeytum frá borginni Bani Walid að hersveitum uppreisnarmanna, sem hafa dögum saman hótað því að ráðast á borgina. Uppreisnarherinn, sem hefur að mestu náð völdum í landinu, hafði gefið stuðningsmönnum fyrri stjórnar frest til dagsins í dag til að gefast upp. 10.9.2011 04:00
Tígur í ástarflækju drepinn Kvenkyns tígrisdýr drap vin sinn í dýragarði í Texas í gær. Afbrýðissemi, sem svokallaður ástarþríhyrningur leiddi af sér, er kennt um að sögn Reuters. Það var þriggja ára malasíutígur sem heitir Seri sem drap sex ára gamlan tígur, sem kallaður var Wzui, um klukkan fjögurleytið í gær að staðartíma í El Paso dýragarðinum. 9.9.2011 22:57
Biður Bandaríkjamenn um að vera vakandi "Við biðjum milljónir New York búa og Bandaríkjamanna um að hafa augun og eyrun hjá sér,“ segir Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hún segir að það séu al-Qaeda samtökin sem séu að baki hryðjuverkaógnum sem steðja að Bandaríkjunum nú þegar 10 ár eru liðin frá árásunum þann 11. september 2001. 9.9.2011 19:50
Snarpur skjálfti í Kanada Jarðskjálfti upp á 6,4 á Richter skók Vancouver eyjur í Kanada um tuttugu mínútur í átta í kvöld að íslenskum tími. Upptök skjálftans eru um 290 kílómetrum frá borginni Vancouver, segir á fréttavef BBC. Skjálftinn varð á 23 kílómetra dýpi. 9.9.2011 21:29
Faðir tólf ára stúlku stefnir Facebook Faðir frá Norður-Írlandi hefur höfðað mál gegn samskiptasíðunni Facebook. Ástæðan: Tólf ára dóttir hans neitar að hætta að birta myndir af sér í kynferðislegum stellingum. 9.9.2011 17:00
Hafa áhyggjur af gervihnetti sem er á leið til jarðar NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna segist hafa áhyggjur af stórum gervihnetti sem innan skamms mun falla til jarðar. Stofnunin segir þó litlar líkur á því að fólk verði fyrir braki úr hnettinum. Gervihnötturinn er tuttugu ára gamall og var honum ætlað að kanna efri hluta andrúmsloftsins sem umlykur jörðina. 9.9.2011 15:18
Vinnuslys við Búðarhálsvirkjun Vinnuslys varð í Búðarhálsvirkjun í dag. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli skart starfsmaður þar við vinnu sína. Lögregla of sjúkralið fór á staðinn en maðurinn reyndist ekki alvarlega slasaður. 9.9.2011 15:08
Svigrúm til aðgerða þrengra en þegar skuldavandinn kom upp Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir þörf á kraftmikillri samvinnu til að bæta stöðu skuldsettra þjóða. Hópur sjö helstu iðnríkja heims mun hittast í Frakklandi um helgina til að vinna að samstilltu átaki. 9.9.2011 13:04
Alþjóðleg handtökuskipun gefin út á hendur Gaddafi Alþjóðalögreglan, Interpol, hefur gefið út handtökuheimild fyrir Gaddafi, fyrrverandi leiðtoga Líbíu, Saif al-Islam, son hans, og aðaleinkaspæjara hans. Á vef BBC segir að Alþjóðaglæpadómstóllinn hafi nú þegar fengið handtökuskipunina. Ekki er vitað hvar mennirnir eru. 9.9.2011 10:43
Óttast aðra hryðjuverkaárás um helgina Bandarísk yfirvöld óttast hryðjuverkaárás á landið 11. september næstkomandi en þá verða tíu ár liðin frá árásunum á tvíburaturnana í New York. 9.9.2011 10:00
Rafmagnslaust í Bandaríkjunum Yfir tvær milljónir manna eru nú án rafmagns í ríkjunum Kaliforníu og Arizona í Bandaríkjunum og hluta af Mexíkó, eftir að rafmagn sló fyrirvaralaust út í morgun. Í Kaliforníu slökknaði á tveimur kjarnaofnum og miklar tafir eru á umferð víða. 9.9.2011 09:30
Rannsókn hafin á leka á trúnaðargögnum Lögregluyfirvöld í Danmörku hafa hafið rannsókn á því hvort Skatturinn eða skattamálaráðuneytið hafi brotið persónuverndarlög með því að leka trúnaðargögnum um skattamál Helle Thorning-Schmidt, formanns Sósíaldemókrata, og eiginmanns hennar. B.T. sagði fréttir af því í gær að Thorning-Schmidt hafi nýtt sér persónuafslátt eiginmanns síns, sem er skráður til heimilis í Danmörku, en greiðir þar ekki skatta. Þar af leiðandi hafi Thorning-Schmidt greitt minna en henni bar í skatta á sex ára tímabili. 9.9.2011 05:00
Fundu rústir skylmingaþrælaskóla Mjög vel varðveittar rústir af skóla fyrir skylmingaþræla hafa fundist í Austurríki. Rústirnar eru hluti af 50 þúsund manna borg austur af Vín, sem var í blóma þar fyrir 1.700 árum. Borgin var mikilvæg hernaðar- og viðskiptaborg fyrir Rómverja. 9.9.2011 03:30
Afmælisdagarnir komu upp í lottóinu - vann milljarð Sjötíu og þriggja ára kona frá Kaliforníu í Bandaríkjunum getur þakkað börnum sínum og barnabörnum fyrir að hafa unnið níu milljónir bandaríkjadollara í lottó á dögunum. Því konan keypti miða á hverjum miðvikudegi með afmælisdögum þeirra og viti menn á miðvikudaginn síðasta komu afmælisdagarnir upp. Og okkar kona einum milljarði ríkari. 8.9.2011 23:08
Rússlandsforseti segir nauðsynlegt að auka flugöryggi Auka þarf flugöryggi í Rússlandi, sagði Dmitry Medvedev, forseti landsins, eftir að hann skoðaði slysstað þar sem 43 manns létu lífið í flugslysi í Jaroslavl í gær. Í flugslysinu fórust margir af fræknustu hokkýmönnum í heiminum. 8.9.2011 21:54
Upptökur af hryðjuverkunum opinberaðar Hljóðpupptökur úr flugvélunum sem rænt var þann 11. september 2001 voru birtar opinberlega í dag. Þær sýna glögglega hversu mikil ringulreið ríkti þegar flugvélunum fjórum var rænt. 8.9.2011 21:30