Fleiri fréttir

Forseti Sýrlands heimilar almenna sakaruppgjöf

Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, hefur gefið út skipun sem heimilar almenna sakaruppgjöf í Sýrlandi. Sakaruppgjöfin myndi ná til allra pólitískra andstöðuhreyfinga en mótmæli gegn forsetanum hafa nú staðið yfir í landinu í marga mánuði.

Börnin sungu saman á meðan skotbardagi geisaði úti

Mörtu Rivera Alanis, 33 ára gömlum mexíkóskum leikskólakennara, tókst að viðhalda ótrúlegri ró meðal nemenda sinna þegar skotbardagi hófst fyrir utan kennslustofuna hennar í Monterrey í Mexíkó síðastliðinn föstudag. Hún örvænti ekki heldur fékk hún öll börnin til að syngja saman og náði auk þess að festa atvikið á myndband með farsímanum sínum.

Eitraðar gúrkur: Sænsk kona lést í gær

Sænsk kona lést á sjúkrahúsi í Boras í gær en hún hafði smitast af Ecoli bakteríunni eftir að hafa borðað gúrkur í Þýskalandi. Ecoli faraldur geisar nú í Evrópu en bakterían hefur verið rakin til gúrka sem ræktaðar voru á Spáni.

Stórfótur slær í gegn á YouTube

Nýtt myndband sem sumir vilja meina að sýni goðsagnaveruna Bigfoot, eða Stórfót, fer nú eins og eldur í sinu um Netheima. Ung kona frá Washington ríki í Bandaríkjunum var í göngutúr með vinum sínum í skógi nálægt Spokane og tók upp myndskeið af göngugörpunum. Þegar hún kom heim og horfði á myndbandið sá hún sér til mikillar undrunar stóra apalega veru hlaupa í bakgrunninum.

Enn syrtir í álinn hjá Silvio

Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu á ekki sjö dagana sæla nú um stundir og í gær tapaði flokkur hans kosningum í heimaborginni Milanó. Berlusconi hafði beitt sér persónulega í borgarstjórnarkosningunum í Mílanó en allt kom fyrir ekki og nú hafa vinstrisinnar náð völdum í borginni í fyrsta sinn í tvo áratugi.

Viðræður Gaddafís og Zuma árangurslausar

Jacob Zuma forseti Suður Afríku heimsótti Gaddafí leiðtoga Líbíu í gær til þess að reyna að koma á vopnahléi í landinu og fá leiðtogann til að stíga til hliðar. Viðræðunum lauk án niðurstöðu. Zuma segir að Gaddafí sé tilbúinn til að lýsa yfir vopnahléi en að hann sé ófánlegur til þess að fara frá völdum.

Áfrýjun Mladic tekin fyrir

Stríðsglæpadómstóllinn í Serbíu tekur í dag fyrir áfrýjun stríðsherrans Ratko Mladic sem berst nú gegn því að verða framseldur til alþjóðlega stríðsglæpadómstólsins í Haag. Mladic er sakaður um þjóðarmorð í Bosníustríðinu árið 1995 og var hann handtekinn í síðustu viku, en lögfræðingar hans og læknar segja hann of veikburða til þess að mæta fyrir rétt.

Þýskir afhuga Danmörku

Útlit er fyrir að danskur ferðamannaiðnaður muni skaðast vegna nýrra laga um hert landamæraeftirlit. Margir Þjóðverjar hafa afpantað sumarhús undanfarið, að því er fram kemur í Politiken. Þar sem Þjóðverjar eru þriðjungur gesta í dönskum sumarhúsum óttast rekstraraðilar að tjón geti orðið verulegt. - þj

Herforingjar flýja frá Líbíu

Átta herforingjar frá Líbíu komu fram á blaðamannafundi á Ítalíu í gær, þar sem þeir sögðust hafa sagt skilið við Múammar Gaddafí, leiðtoga Líbíu. Þeir sögðu æ fleiri herforingja vera að hlaupast undan merkjum og nú væri geta hersins aðeins um fimmtungur af því sem hún var.

Rýmdi leikskóla vegna sprengju

Sprengjusveit lögreglunnar í Noregi var kölluð að leikskóla í Ósló í gærmorgun eftir að handsprengja hafði sést á þaki skólans. Fjörutíu börn og 21 starfsmaður voru flutt út úr húsinu á meðan lögregla athafnaði sig.

Ásakanir hafa valdið skaða

Sepp Blatter, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandins FIFA, segir að mótframbjóðandi hans í forsetakjöri, Mohammed bin Hammam frá Katar, og Jack Warner varaforseti hafi valdið FIFA miklu tjóni.

Endeavour á leið til jarðar

Geimferjan Endeavoour er á leið til jarðar. Hún leysti festar frá Alþjóðlegu geimstöðinni í gær. Þetta er síðasta ferð Endeavoour út í geiminn. Hún mun lenda á jörðinni á miðvikudag og þar verður hún sett á geimferðasafn í Kaliforníu. Þá verður aðeins eftir ein geimferja í bandaríska ferjuflotanum. Það er Atlantis sem fer í sína síðustu ferð í júlí næstkomandi. Þegar hún lendir verður lokið 30 ára merkum kafla í geimferðasögu Bandaríkjanna.

Berlusconi missir fylgi

Berlusconi virðist vera að tapa fylgi í heimaborg sinni, Mílanó, en nú standa yfir kosningar í landinu. Svo virðist sem sitjandi borgarstjóri og flokksfélagi Berlusconis hafi tapað sæti sínu og hinn vinstrisinnaði Giuliano Pisapia muni setjast í borgarstjórastólinn í hans stað. Verði þetta niðurstaðan verður það í fyrsta skipti í tvo áratugi sem Berlusconi tapar meirihluta í borginni en auk þess virðist barátta flokksfélaga hans í Napólí vera töpuð.

Greenpeace í aðgerðum á Grænlandi

Meðlimir í Greenpeace samtökunum hafa farið um borð í olíuborpall undan ströndum Grænlands og ætla að reyna að koma í veg fyrir að pallurinn geti borað eftir olíu. Pallurinn sem heitir Leifur Eiríksson er í eigu Cairn Energy og er um 100 mílur undan strönd Grænlands. Cairn er eina fyrirtækið sem ætlar að leita að olíu á svæðinu en talsmenn Greenpeace segjast óttast að finni þeir olíu muni hálfgert gullæði brjótast út sem hefði skelfilegar afleiðingar fyrir umhverfið. Talsmenn heimastjórnarinnar á Grænlandi segja hinsvegar að aðgerðir Greenpeace manna séu ólöglegar og að mótmælendurnir verði fjarlægðir af lögreglu haldi þeir aðgerðum sínum áfram.

Maltverjar vilja lögleiða skilnaði

Íbúar Möltu sögðu í gær já við því í þjóðaratkvæðagreiðslu að leyfa skilnaði. Kosningin er óbindandi fyrir ríkisstjórnina en um 75 prósent þáttaka var í atkvæðagreiðslunni. Hingað til hefur Malta, sem er kaþólskt ríki, verið eina landið í Evrópusambandinu þar sem hjónaskilnaður er bannaður með lögum.

Þjóðverjar ætla að loka öllum kjarnorkuverum sínum

Ríkisstjónin í Þýskalandi hefur ákveðið að slökkva á öllum kjarnorkuverum sínum á næsta áratug. Þetta var ákveðið á fundi stjórnarinnar sem hófst í gær og stóð langt fram á nótt. Mikil umræða hefur verið í landinu um kjarnorkumál í kjölfar slyssins í Fukushima kjarnorkuverinu í Japan og mótmæltu þúsundir manna kjarnorkunni víða um land.

NATO biður Afgana afsökunar á drápum á óbreyttum borgurum

Fjölþjóðalið NATO í Afganistan hefur beðist afsökunar á loftárás sem gerð var suðvesturhluta landsins á laugardag en að minnsta kosti fjórtán óbreyttir borgarar létu þar lífið. Æðstu hershöfðingjar bandalagsins segja í yfirlýsingu að ávallt sé reynt að koma í veg fyrir mannfall á meðal óbreyttra og að slík tilvik séu ætíð rannsökuð til hlítar.

Mótmæltu handtöku Mladics

Ratko Mladic, fyrrverandi yfirherforingi í her Bosníu-Serba, ætlar að áfrýja framsalskröfu á hendur sér en hann hefur verið eftirlýstur af Stríðsglæpadómstólnum í Haag síðustu ár. Mladic, sem var handtekinn á dögunum í Serbíu, er sakaður um þjóðarmorð í Bosníustríðinu árið 1995, hann er meðal annars sagður hafa fyrirskipað morð á tæplega átta þúsund múslimskum mönnum og drengjum í bænum Srebrenica. Þúsundir serbneskra þjóðernissinna mótmæltu handtöku Mladics í Belgrad í gær og voru um 100 handteknir eftir átök við lögreglu.

Banvænu agúrkurnar ekki fluttar til Íslands

Lífrænar agúrkur hafa verið afturkallaðar úr verslunum í Austurríki og í Tékklandi af ótta við útbreiðslu bakteríu sem hefur banað að minnsta kosti níu manns og valdið veikindum hundraða manna víðs vegar um Evrópu.

NATÓ rannsakar hvers vegna loftárásin varð tólf börnum að bana

NATÓ rannsakar nú hvers vegna lofttárás varð tólf börnum og tveimur konum að bana í gærkvöldi. Loftárásin var gerð í suðvestur Afganistan í Helmands-héraði en ástæða hennar er sú að talíbanar réðust á bandaríska herstöð á svæðinu á dögunum. Loftskeytið lenti ekki á aðstöðu uppreisnarmannanna heldur tveimur heimilum almennra borgara.

Strangar reglur fyrir lögreglumenn í Víetnam

Víetnamskir lögreglumenn mega ekki vera með svört sólgleraugu, spjalla saman, reykja eða hafa hendur í vösum á meðan þeir sinna skyldustörfum á opinberum stöðum.

Mladic segist ekki hafa fyrirskipað fjöldamorðin

Fyrrverandi hershöfðinginn Ratkó Mladic segist ekki hafa fyrirskipað fjöldamorð á mörg þúsundum múslima í Srebrenica árið 1995. Þetta hafa fjölmiðlar eftir Darko syni hans sem spjallaði við fjölmiðla eftir að hann heimsótti föður sinn í Serbíu í dag.

Verðmætar myndir

Bandarískur áhugaljósmyndari datt heldur betur í lukkupottinn á dögunum þegar hann var að gramsa í dóti á bílskúrssölu og fann þar gamlar ljósmyndafilmur. Hann greiddi einungis tvöhundruð og þrjátíu íslenskar krónur fyrir fundinn en varð ljóst við framköllun að hann var mun verðmætari. Myndirnar voru nefnilega af leikkonunni Marilyn Monroe og teknar áður en hún komst til frægðar. Fréttastofa CNN hefur fengið leyfi til að birta þær næstkomandi þriðjudag, einum degi fyrir afmælisdag leikkonunnar, en Monroe hefði orðið áttatíu og fimm ára þann fyrsta júní.

Þjóðin leyfir hjónum að skilja

Samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu á Möltu í gær að setja lög sem leyfa hjónaskilnaði. Malta er nú ekki lengur eina Evrópuríkið þar sem ólöglegt er fyrir hjón að skilja. Það er nú í höndum þingsins að samþykkja lögin sem 72 prósent þjóðarinnar samþykktu í gær.

Brotist inn í tölvukerfi söluaðila bandaríska hersins

Lockheed Martin, sem selur bandaríska hernum vopn og flugvélar og er umsýslu- og þjónustuaðili upplýsingakerfa bandaríska ríkisins, varð fyrir alvarlegri tölvuárás hinn 21. maí síðastliðinn. Fyrirtækið, sem framleiðir meðal annars F16 orrustuþotur sem Bandaríkjaher notar, greindi frá þessu í gærkvöldi en starfsmenn þess segja að tekist hafi að fyrirbyggja að viðkvæmar persónuupplýsingar kæmust í hendur óprúttinna aðila.

Tíu látist í Þýskalandi vegna sýkingar í grænmeti

Að minnsta kosti tíu hafa látist af völdum E.coli sýkingar í Þýskalandi og tvö hundruð og sjötíu hafa smitast. Sóttvarnarstofnun Evrópu telur að útbreiðsla sýkingarinnar sé ein sú stærsta sem komið hefur upp. Þessi gerð E.coli ræðst einna helst á nýru og miðtaugakerfi þeirra sem af henni smitast.

Tvær konur og tólf börn fórust í árás NATÓ

Fjórtán borgarar féllu í loftárás NATO í suðvestur Afganistan í Helmands héraði í gær. Loftárásin varð eftir að talíbanar réðust á bandaríska herstöð á svæðinu. Árás NATO var beint að uppreisnarmönnum en lenti á tveimur heimilium almennra borgara þar sem tvær konur og tólf börn féllu, sum undir tveggja ára aldri. Málið er nú til rannsóknar hjá Nato og afgönskum hersveitum.

Féllu fram af tíundu hæð

Ein kona lést og önnur slasaðist þegar þær féllu fram af tíundu hæð á hóteli í Atlanta í Bandaríkjunum í fyrrinótt.

Öflug sprengja sprakk í byggingu ríkisstjórans í Taloqan

Öflug sprenging varð í byggingu í bænum Taloqan, sem er í Takhar-héraði í Afganistan, eftir hádegi í dag. Talið er að ríkisstjóri Taloqan hafi aðsetur í byggingunni en ekki er vitað hvort hann hafi fallið í árásinni.

Obama lauk ferð sinni um Evrópu í Póllandi

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, lauk sex daga ferð sinni um Evrópu í dag þegar hann heimsótti forseta og forsætisráðherra Póllands í höfuðborg landsins, Varsjá.

Kertið hefur logað í 50 ár

Mannréttindasamtökin Amnesty International halda í dag upp á fimmtíu ára afmæli sitt. Á þessum tímamótum eru félagar og stuðningsmenn samtakanna fleiri en þrjár milljónir í rúmlega 150 löndum

Sprengjur falla í Trípólí

Sprengjuhljóð hafa heyrst í borginni Tripoli í Líbíu í nótt og í morgun. Breska fréttastofan Sky greinir frá þessu. Herlið Nato hefur haldið uppi ítrekuðum loftárásum þar í landi í þeim tilgangi að hrekja Gaddafi, leiðtoga landsins frá völdum.

Mladic náðist fyrir tilviljun

Þegar hópur lögreglumanna réðst inn í íbúðarhús í bænum Lazareva klukkan fimm á fimmtudagsmorgun vissu þeir ekki hvort Ratko Mladic, fyrrverandi yfirmaður herliðs Bosníu-Serba, væri þar staddur.

Rússar vilja miðla málum

Rússar hafa boðist til að miðla málum til þess að fá Moammar Gaddafi til þess að fara frá völdum. Rússar hafa gagnrýnt umfang árása NATO á Líbíu.

Verjendur segja Ratko Mladic of heilsuveilan

Dómstóll í Serbíu hefur úrskurðað að heimilt sé að framselja Ratko Mladic hershöfðinga til Stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna. Verjendur hershöfðingjans fullyrða að hann sé of heilsuveill til að koma fyrir dóm og úrskurðinum verði áfrýjað á mánudag.

Air France þotan hrapaði á 3,5 mínútum

Air France þotan sem fórst fyrir tveim árum á leið frá Rio til Parísar hrapaði í sjóinn úr 38 þúsund feta hæð á aðeins 3,5 mínútum eftir að hún ofreis. Þetta kemur fram í upplýsingum sem sóttar voru í flugrita vélarinnar. Allir um borð fórust, samtals 228 manns.

Heimilt að framselja Ratko Mladic

Dómstóll í Serbíu hefur úrskurðað að heimilt sé að framselja Ratko Mladic hershöfðinga til Stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna, þrátt fyrir fullyrðingar verjenda hans um að hann sé of heilsuveill. Verjendurnir segja að úrskurðinum verði áfrýjað á mánudag.

Gaddafi felur sig á sjúkrahúsum

Moammar Gaddafi leiðtogi Líbíu er sagður fela sig í sjúkrahúsum í höfuðborginni Tripolí. Orrustuvélar NATO gera árásir sínar með mikilli nákvæmni þannig að lítil sem engin hætta er á að sjúkrahús eða aðrar slíkar stofnanir verði fyrir árásum.

Vasaþjófafaraldur í Osló

Þeir sem ætla að heimsækja Osló í sumar ættu að hafa varann á. Þar er allt vaðandi í vasaþjófum. Á fyrstu mánuðum þessa árs voru 4414 vasaþjófnaðir kærðir til lögreglunnar sem er 57 prósent aukning frá sama tímabili á síðasta ári.

Þú færð fimm daga til þess að pakka

Danir hafa vísað aðalræðismanni Líbíu úr landi. Hann fær fimm daga til þess að pakka niður föggum sínum og hafa sig á brott. Lena Espersen utanríkisráðherra Danmerkur segir ástæðuna þá að Muner Eldawani ræðismaður hafi ítrekað lýst opinberlega yfir stuðningi við Moammar Gaddafi.

Vasaþjófafaraldur í Osló

Þeir sem ætla að heimsækja Osló í sumar ættu að hafa varann á. Þar er allt vaðandi í vasaþjófum. Á fyrstu mánuðum þessa árs voru 4414 vasaþjófnaðir kærðir til lögreglunnar sem er 57 prósent aukning frá sama tímabili á síðasta ári.

Sjá næstu 50 fréttir