Fleiri fréttir

Ítrekar stuðning við Gordon Brown

David Miliband, utanaríkisráðherra Bretlands, hefur ítrekað stuðning sinn við Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og formann Verkamannaflokksins. Miliband leggst alfarið gegn hugmyndum um leiðatogakjörs innan flokksins.

Ike veldur eyðileggingu

Fellibylurinn Ike hefur valdið mikilli eyðileggingu í Texas, þar sem rúmlega fjórar milljónir manna eru nú án rafmagns. Í Houston - fjórðu stærstu borg Bandaríkjanna - eru glerbrot um allar götur í miðbænum eftir að bylurinn braut rúður í skýjakljúfum.

Mannskætt flugslys í Rússlandi

Enginn komist lífs af þegar farþegaflugvél hrapaði í nærri borginni Perm í Rússlandi í nótt. Yfirvöld segja að áttatíu og átta hafi farist í slysinu. Á meðal farþega vélarinnar voru að minnsta kosti 21 útlendingur.

Bush lýsti yfir neyðarástandi í Texas

Fjórða stærsta borg Bandaríkjanna, Houston í Texas, var sem lömuð í dag þegar fellibylurinn Ike reið yfir. Engar fréttir hafa borist af mannskaða en gífurleg flóð eru á þéttbýlissvæðum sem fellibylurinn fer nú um. Rafmagn fór af heimilum þriggja milljóna manna. Bush Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir neyðarástandi í Texas.

Þrýst á Mbeki að segja af sér

Þrýst er á Thabo Mbeki forseta Suður-Afríku að segja af sér sem forseti í kjölfar þess að dómari vísaði í gær frá spillingamáli sem var höfðað gegn Jacob Zuma, forseta Afríska þjóðarráðsins.

Sprengjuárásir í Nýju-Delí

Að minnsta kosti eru 10 látnir og 50 slasaðir eftir að fjórar sprengjur sprungu með nokkra mínúta millibili á götumörkuðum í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, fyrir stundu.

Enn deilt á Brown

Enn eykst þrýstingurinn á Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og formann Verkamannaflokksins, um að hann láti af embætti formanns.

Grænlendingar á leið úr hvalveiðiráðinu?

Breska sjónvarpið, BBC, segir að grænlenska heimastjórnin vilji ganga úr Alþjóðlega hvalveiðiráðinu. Umhverfisfréttamaður BBC segist hafa séð bréf sem heimastjórnin sendi danska utanríkisráðuneytinu þar sem farið er fram á að Grænland dragi sig út úr ráðinu. Danir fara með utanríkismál Grænlendinga og fulltrúi Dana gætir hagsmuna Grænlendinga á fundum ráðsins.

Að minnsta kosti fimmtán látnir í lestarslysi í Los Angeles

Farþegalest og flutningalest rákukst á í Los Angeles í gær með þeim afleiðingum að fimmtán menn, að minnsta kosti, létu lífið og sjötíu slösuðust. Eldur kviknaði undir lestabrakinu og það tók slökkviliðsmenn tvær klukkustundir að slökkva hann. Búist er við að tala látinna muni hækka þegar björgunarmenn komast nær lestarvögnum þar sem eyðileggingin var mest.

Ike mættur til Texas

Fellibylurinn Ike gekk á land við Texas í nótt. Óttast er að hann færi með sér flóð á stóru og þéttbýlu svæði. Alls hefur um milljón manna í Texas flúið heimili sín við ströndina. Áður en bylurinn fór yfir olíuvinnslusvæði í Mexíkóflóa undan ströndum Texas var borpöllum lokað, þannig að tekið var fyrir um fimmtung af olíuframleiðslu Bandaríkjanna. Ike er nálægt því að vera þriðja stigs fellibylur og því sérlega viðsjárverður.

Páfinn í París

Rúmlega 200 þúsund manns mættu til að hlýða á Benedikt páfa sextánda í París í Frakklandi í morgun. Páfi er í fjögurra daga heimsókn til Frakklands, sinni fyrstu frá því hann varð páfi árið 2005.

Ermarsundsgöngin opnuð á ný

Lestarsamgöngur um Ermarsundsgöngin milli Frakklands og Bretlands hófust í dag á ný eftir bruna í flutningalest á fimmtudag. Tugir þúsunda manna urðu að hætta við áætlaðar ferðir um göngin á fimmtudag og í gær.

Lavrov hraunaði yfir Miliband

Samskipti Rússa og vesturlanda hafa farið versnandi með hverjum deginum síðustu mánuði. Breska blaðið The Sun segir frá símtali sem David Miliband, utanríkisráðherra Breta, átti við starfsbróður sinn Serge Lavrov þar sem hinn síðarnefndi missti gjörsamlega stjórn á skapi sínu. Hann er sagður hafa ausið úr skálum reiði sinnar yfir Miliband og meðal annars sagt í gróflegri þýðingu: „Hver í andskotanum heldur þú að þú sért?, (Eða, who the F*** do you think you are).

Ike skellur á með fullum þunga eftir tíu tíma

Fellibylurinn Ike nálgast nú strendur Bandaríkjanna óðfluga og búist er við að hann skelli á með fullum krafti snemma í fyrramálið. Michael Chertoff, yfirmaður heimavarnastofnunar Bandaríkjanna, Homeland Security, sagði á blaðamannafundi í dag að stormurinn gæti haft skelfilegar afleiðingar fyrir íbúa Galveston í Texas og nágrenni. Að hans sögn er hætta á að um hundrað þúsund manns bíði tjón af völdum stormsins.

Týnd telpa fundin eftir 4 ár?

Gríska lögreglan telur sig hafa fundið ítalska telpu sem hvarf á eynni Kos fyrir fjórum árum þar sem hún var í sumarfríi með foreldrum sínum. Hún var þá fjögurra ára gömul.

Farið þið hundrað sinnum til helvítis

Hugo Chavez forseti Venesúela hefur rekið bandaríska sendiherrann úr landi og gefið honum 72 klukkustundir til þess að hypja sig, eins og forsetinn orðaði það.

Ná tökum á eldum í Ermarsundsgöngum

Slökkviliðsmenn náðu í morgun tökum á eldi sem logað hefur í Ermarsundsgöngunum milli Bretlands og Frakklands síðan um miðjan dag í gær. Enn mun þó loga í glæðum. Fjórtán manns slösuðust í eldsvoðanum, enginn alvarlega.

Flýið Ike eða deyið

Fellibylurinn Ike er enn langt frá Texas en bandaríska veðurstofan lætur menn ekki velkjast í vafa um hvað gerist þegar hann tekur land í fyrramálið. Skilaboðin eru; flýið eða deyjið.

Ike truflar geimferðaáætlun

Geimferðastofnanir Bandaríkjanna og Rússlands hafa frestað því að tengja rússneskt birgðafar við Alþjóða geimstöðina, þar sem stjórnstöðin í Texas hefur verið rýmd vegna fellibylsins Ike.

Zuma næsti forseti Suður-Afríku

Dómari í Suður-Afríku vísaði í dag frá spillingamáli sem var höfðað gegn Jacob Zuma, forseta Afríska þjóðarráðsins. Það er þá ekkert því til fyrirstöðu að hann verði næsti forseti landsins.

Bandaríkin megi ekki gleyma ógninni af völdum hryðjuverka

Forsetaframbjóðendurnir John McCain og Barack Obama komu fram í New York-borg í gær í boði Columbia-háskólans og ávörpuðu borgarbúa í tilefni þess að sjö ár voru liðin frá hryðjuverkunum árið 2001 þegar tvíburaturnarnir urðu rústir einar í kjölfar árásar hryðjuverkamanna.

Hafði mök við hund að barni viðstöddu

Maður í Castle Rock í Colorado hefur verið ákærður fyrir að eiga mök við hund sinn og neyða sjö ára gamlan dreng til að verða vitni að þessu.

Íshella á stærð við Manhattan brotnar

Hlýnandi loftslag á jörðinni gerir sífellt vart við sig þótt með misáhrifamiklum hætti sé. Þegar 4.500 ára gömul íshella klofnar hlýtur að vera að hitna í kolunum.

Ekki er allt gull sem glóir

Ekki er allt gull sem glóir. Þessu komust þrír Kínverjar að eftir fyrsta smygl sinnar tegundar inn í Kína. Kínverjarnir þrír fundu undarlegan hnullung úr skínandi málmi á skransölu í Kyrgystan.

Minna um barnadauða í heiminum

Dregið hefur úr barnadauða í heiminum um 27 prósent síðan árið 1990. Þetta kemur fram í skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sem gerð verður opinber í dag. Af hverjum eitt þúsund fæddum börnum dóu 93 fyrir fimm ára aldur árið 1990 en sú tala er nú komin niður í 68.

Ike nálgast Texas óðfluga

Öruggur dauðdagi bíður íbúa sumra strandsvæða Texas-ríkis hlýði þeir ekki fyrirmælum yfirvalda um að hafa sig á brott áður en fellibylurinn Ike skellur á ströndinni um helgina.

Innanríkisráðherra Bandaríkjanna hneykslaður

Innanríkisráðherra Bandaríkjanna, Dirk Kempthorne, segist stórhneykslaður á framferði starfsmanna sinna sem sýnt var fram á með ítarlegri rannsókn að hefðu haft óviðeigandi samskipti við starfsfólk og stjórnendur nokkurra olíu- og gasfyrirtækja sem þeim var ætlað að hafa eftirlit með.

Tsvangirai og Mugabe hafa komist að samkomulagi

Roberts Mugabe, forseti Simbabve, og Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í landinu hafa komist að samkomulagi um myndun þjóðstjórnar. Viðræður um lausn á stjórnarkreppunni hefur staðið frá því að kosningar fóru fram í landinu í júlí.

Segja ísraelska herinn hafa hindrað sjúkraflutningamenn

Eva Hauksdóttir sem er við hjálparstörf á vegum International Solidarity Movement í Palestínu ásamt systur sinni segir að ísraelski herinn hafi hindrað með táragasi og hljóðsprengjum að maður sem hermenn skutu í gær fengi læknisaðstoð.

Eldur slökktur í Ermarsundsgöngum

Ekkert manntjón varð í dag þegar eldur kviknaði í Ermarsundsgöngunum milli Bretlands og Frakklands. Göngin verða lokuð til morguns.

Tíbetum hótað brottrekstri frá Nepal

Maóista-stjórnin í Nepal ætlar að reka úr landi alla tíbetska flóttamenn sem ekki hafa tilskilin leyfi. Yfir 20 þúsund Tíbetar búa í Nepal.

Kornabörn með nýrnasteina af þurrmjólk

Tugir kornabarnabarna eru á sjúkrahúsum í Kína vegna nýrnasteina og eitt barn hefur látist. Þetta er rakið við vissrar tegundar af þurrmjólk sem öll börnin neyttu.

Rússar setja vígvæðingu í forgang

Forseti Rússlands segir að það sé forgangsverkefni að stórefla rússneska herinn. Lögð verður megináhersla á að búa hann nýjustu og bestu vopnum sem til eru.

Chavez fagnar komu rússneskra sprengjuflugvéla

Langdrægar rússneskar sprengjuflugvélar taka nú í fyrsta sinn, síðan kalda stríðinu lauk, þátt í heræfingum í Vesturheimi. Vélarnar fóru framhjá Íslandi í gær og fóru bandarískar orrustuþotur til móts við þær, en þær eru nú staddar hér á landi við æfingar. Hugo Chavez, forseti Venesúela, segir að rússnesku sprengjuflugvélarnar séu nú komnar þangað.

Deilt á Obama fyrir svínaummæli

Repúblikanar í Bandaríkjunum deila nú hart á Barack Obama forsetaframbjóðanda demokrata vegna ummæla hans, sem þeir segja að hafi verið beint að Söru Palin varaforsetaefni repúblikana.

Le Pen ekki aftur í forsetaframboð

Hægriöfgamaðurinn Jean-Marie Le Pen hefur gefið upp alla von um að verða forseti Frakklands og segist ekki munu sækjast eftir því aftur.

Gekk berserksgang í neðanjarðarlest

Óður maður með klaufhamar gekk berserksgang í neðanjarðarlest í Pennsylvania-ríki í Bandaríkjunum í gær og stórslasaði einn farþega í lestinni.

Sjá næstu 50 fréttir