Fleiri fréttir Nýtt eldflaugavarnarkerfi í Rússlandi Rússar ætla að byggja nýtt eldflaugavarnarkerfi sem svar við því bandaríska sem koma á fyrir í ríkjum Austur-Evrópu. Rússlandsforseti segir kerfið tilbúið eftir átta ár. 12.8.2007 12:16 Norður-Kórea þrjóskast enn Snurða er hlaupin á þráðinn í undirbúningi fyrir leiðtogafund Norður og Suður-Kóreumanna sem er fyrirhugaður í lok mánaðarins. Fulltrúar Norður-Kóreu tilkynntu í morgun að þeir ætluðu ekki að mæta á fyrsta formlega undirbúningsfundinn sem halda átti á morgun. 12.8.2007 11:38 Frakklandsforseti fékk hamborgara og pylsur Vel fór á með George Bush Bandaríkjaforseta og Nicolas Sarkozy forseta Frakklands í gær. Þjóðarleiðtogarnir tveir hittust á óformlegum fundi heimili Bush-fjölskyldunnar í Main í Bandaríkjunum. Bush fóðraði frakklandsforseta á hamborgurum og grillpylsum og þeir fóru í siglingu sér til skemmtunar. 12.8.2007 11:10 Norska prinsessan tjáir sig um englana Marta Lovísa Noregsprinsessa hefur loks tjáð sig um englana sína. Það vakti mikla athygli um allan heim þegar hún lýsti því yfir að hún gæti bæði talað við engla og dýr. Nokkru síðar tilkynnti hún að hún væri farin í tveggja vikna veikindafrí. Það var rakið til álags á henni eftir hina gríðarlegu fjölmiðlaumfjöllun um englana. 11.8.2007 20:00 Helmingur leikmanna á Englandi útlendingar Nær helmingur leikmanna sem spila í bresku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eru útlendingar og nú þrýsta ráðherrar í Bretlandi á að heimamenn fái fleiri tækifæri í deildinni. 11.8.2007 19:22 Segjast hafa sleppt 2 gíslum Uppreisnarmenn Talíbana í Afganistan segjast hafa látið tvo Suður-Kóreumenn lausa úr gíslingu en halda enn átján eftir. Gíslarnir munu vera konur sem mannræningjarnir segja veikar. 11.8.2007 19:16 Kapphlaup um Norðurpólinn Kapphlaup er hafið um Norðurpólinn. Danir, Kanadamenn og Rússar hafa allir gripið til aðgerða til að styrkja tilkall sitt til heimskautasvæðisins, þar sem eru mikilvægar siglingaleiðir og gnótt af olíu og gasi. 11.8.2007 19:12 Til sölu; föt af gömlum einræðisherra Elsti sonur Ágústusar Pinochet fyrrverandi einræðisherra í Chile hefur sett safn af jakkafötum sem faðir hans átti í sölu hjá klæðskera miðborg Santiago. Pinochet sem stjórnaði landinu með harðri hendi í 17 ár, lést í fyrra. Ágústus Pinochet Hiriart segir að faðir hans hafi notað þessu föt bæði í starfi sínu og einkalífi. 11.8.2007 17:53 Madeleine litla kann að vera látin Portúgalska lögreglan segir að hugsanlegt sé að litla breska telpan Madeleine McCann sé látin. Fram að þessu hefur verið litið á hvarf hennar sem mannrán. Eitthundrað dagar eru nú liðnir frá því Madeleine hvarf. Þetta er í fyrsta skipti sem portúgalska lögreglan ljáir máls á því að hún hafi verið myrt. Lögregluforingi sem stýrir rannsókninni segir að foreldrarnir liggi ekki undir grun. 11.8.2007 16:52 Byrjað að grafa eftir námumönnunum Björgunarmenn í Utah fylki í Bandaríkjunum eru nú búnir að bora víða holu ofan í námuna þar sem talið er að sex námumenn séu fastir eftir að hrun varð í námunni síðastliðinn mánudag. Ætlunin er að láta videomyndavél og hljóðnema síga niður í holuna og reyna að sjá hvort þeir eru á lífi. Ekkert hefur heyrst frá mönnunum síðan óhappið varð. 11.8.2007 15:27 Innflytjendur ráða úrslitum í norskum kosningum Innflytjendur geta ráðið úrslitum í borgarstjórnarkosningum í Osló sem fram fara síðar á þessu ári. Stjórnmálamenn úr öllum flokkum gera nú hosur sínar grænar fyrir þeim og bjóða meðal annars í kebab grillveislur. "Það erum við sem ákveðum hvort verður hægri eða vinstri stjórn í Osló næstu fjögur árin," segir formaður ráðs innflytjenda. 11.8.2007 14:17 Rjúktu á reykjara Frændur okkar Danir eru uppfinningasamir í besta lagi. Þeir hafa áhyggjur af því að með nýjum reykingalögum sem taka gildi 15. ágúst einangrist reykingamenn. Það hefur því verið opnuð sérstök stefnumótasíða fyrir reykingafólk á netinu. Þar geta menn skráð upplýsingar um sig og sent mynd, og þannig komist í samband við annað fólk sem reykir. 11.8.2007 13:12 Big Ben þegir í mánuð Einn þekktasti klukkuturn heims, sjálfur Big Ben í Lundúnum, þagnaði klukkan átta í morgun. Bjöllurnar hringja ekki í heilan mánuð vegna viðhalds. Klukkan sjálf mun þó aðeins stöðvast í nokkrar klukkustundir í dag. 11.8.2007 12:41 Ekki gin- og klaufaveiki á fjórða býlinu Gin- og klaufaveiki greindist ekki að fjórða nautgripabúinu í Surrey á Suður-Englandi líkt og óttast var í gær. Búið stendur fyrir utan varnarsvæði sem markað var í kringum bú þar sem veikin greindist fyrst fyrir rúmri viku. Síðan þá hefur hún greinst á tveimur býlum til viðbótar innan varnarsvæðisins. 11.8.2007 12:35 Mikilvægar kosningar í Síerra Leóne Íbúar í Afríkuríkinu Sierra Leóne kjósa sér þing og forseta í dag. 7 ár eru síðan blóðugri borgarastyrjöld lauk í landinu og óttast margir að aftur geti soðið upp úr. Því er talið mikilvægt að kosningarnar í dag fari vel fram og sátt náist um úrslit þeirra. 11.8.2007 12:21 Vongóðir um að gíslar fái frelsi Uppreisnarmenn Talíbana í Afganistan segjast vongóðir um að hægt verði að semja um lausn 21 Suður-Kóreumanns sem þeir hafa haldið í gíslingu í rúmar 3 vikur. Viðræður milli Talíbana og sendifulltrúa suðurkóreskra stjórnvalda hófust á skrifstofu Rauða hálfmánans í Ghansi í Mið-Afganistan í gær. 11.8.2007 12:00 Rússar fá ekki Norðurpólinn átakalaust Kanadamenn ætla ekki að láta Rússa komast upp með að helga sér Norðurpólinn. Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada tilkynnti í gær að þeir muni reisa tvær herstöðvar í norðursvæði landsins til þess að leggja áherslu á sinn rétt til þess að nýta það sem er að finna undir ísnum. Rússneskur kafbátur setti í síðustu viku rússneska fánann á hafsbotninn undir pólnum. 11.8.2007 11:44 Óttast um geimferjuna Endeavour 11.8.2007 11:26
Sjá næstu 50 fréttir
Nýtt eldflaugavarnarkerfi í Rússlandi Rússar ætla að byggja nýtt eldflaugavarnarkerfi sem svar við því bandaríska sem koma á fyrir í ríkjum Austur-Evrópu. Rússlandsforseti segir kerfið tilbúið eftir átta ár. 12.8.2007 12:16
Norður-Kórea þrjóskast enn Snurða er hlaupin á þráðinn í undirbúningi fyrir leiðtogafund Norður og Suður-Kóreumanna sem er fyrirhugaður í lok mánaðarins. Fulltrúar Norður-Kóreu tilkynntu í morgun að þeir ætluðu ekki að mæta á fyrsta formlega undirbúningsfundinn sem halda átti á morgun. 12.8.2007 11:38
Frakklandsforseti fékk hamborgara og pylsur Vel fór á með George Bush Bandaríkjaforseta og Nicolas Sarkozy forseta Frakklands í gær. Þjóðarleiðtogarnir tveir hittust á óformlegum fundi heimili Bush-fjölskyldunnar í Main í Bandaríkjunum. Bush fóðraði frakklandsforseta á hamborgurum og grillpylsum og þeir fóru í siglingu sér til skemmtunar. 12.8.2007 11:10
Norska prinsessan tjáir sig um englana Marta Lovísa Noregsprinsessa hefur loks tjáð sig um englana sína. Það vakti mikla athygli um allan heim þegar hún lýsti því yfir að hún gæti bæði talað við engla og dýr. Nokkru síðar tilkynnti hún að hún væri farin í tveggja vikna veikindafrí. Það var rakið til álags á henni eftir hina gríðarlegu fjölmiðlaumfjöllun um englana. 11.8.2007 20:00
Helmingur leikmanna á Englandi útlendingar Nær helmingur leikmanna sem spila í bresku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eru útlendingar og nú þrýsta ráðherrar í Bretlandi á að heimamenn fái fleiri tækifæri í deildinni. 11.8.2007 19:22
Segjast hafa sleppt 2 gíslum Uppreisnarmenn Talíbana í Afganistan segjast hafa látið tvo Suður-Kóreumenn lausa úr gíslingu en halda enn átján eftir. Gíslarnir munu vera konur sem mannræningjarnir segja veikar. 11.8.2007 19:16
Kapphlaup um Norðurpólinn Kapphlaup er hafið um Norðurpólinn. Danir, Kanadamenn og Rússar hafa allir gripið til aðgerða til að styrkja tilkall sitt til heimskautasvæðisins, þar sem eru mikilvægar siglingaleiðir og gnótt af olíu og gasi. 11.8.2007 19:12
Til sölu; föt af gömlum einræðisherra Elsti sonur Ágústusar Pinochet fyrrverandi einræðisherra í Chile hefur sett safn af jakkafötum sem faðir hans átti í sölu hjá klæðskera miðborg Santiago. Pinochet sem stjórnaði landinu með harðri hendi í 17 ár, lést í fyrra. Ágústus Pinochet Hiriart segir að faðir hans hafi notað þessu föt bæði í starfi sínu og einkalífi. 11.8.2007 17:53
Madeleine litla kann að vera látin Portúgalska lögreglan segir að hugsanlegt sé að litla breska telpan Madeleine McCann sé látin. Fram að þessu hefur verið litið á hvarf hennar sem mannrán. Eitthundrað dagar eru nú liðnir frá því Madeleine hvarf. Þetta er í fyrsta skipti sem portúgalska lögreglan ljáir máls á því að hún hafi verið myrt. Lögregluforingi sem stýrir rannsókninni segir að foreldrarnir liggi ekki undir grun. 11.8.2007 16:52
Byrjað að grafa eftir námumönnunum Björgunarmenn í Utah fylki í Bandaríkjunum eru nú búnir að bora víða holu ofan í námuna þar sem talið er að sex námumenn séu fastir eftir að hrun varð í námunni síðastliðinn mánudag. Ætlunin er að láta videomyndavél og hljóðnema síga niður í holuna og reyna að sjá hvort þeir eru á lífi. Ekkert hefur heyrst frá mönnunum síðan óhappið varð. 11.8.2007 15:27
Innflytjendur ráða úrslitum í norskum kosningum Innflytjendur geta ráðið úrslitum í borgarstjórnarkosningum í Osló sem fram fara síðar á þessu ári. Stjórnmálamenn úr öllum flokkum gera nú hosur sínar grænar fyrir þeim og bjóða meðal annars í kebab grillveislur. "Það erum við sem ákveðum hvort verður hægri eða vinstri stjórn í Osló næstu fjögur árin," segir formaður ráðs innflytjenda. 11.8.2007 14:17
Rjúktu á reykjara Frændur okkar Danir eru uppfinningasamir í besta lagi. Þeir hafa áhyggjur af því að með nýjum reykingalögum sem taka gildi 15. ágúst einangrist reykingamenn. Það hefur því verið opnuð sérstök stefnumótasíða fyrir reykingafólk á netinu. Þar geta menn skráð upplýsingar um sig og sent mynd, og þannig komist í samband við annað fólk sem reykir. 11.8.2007 13:12
Big Ben þegir í mánuð Einn þekktasti klukkuturn heims, sjálfur Big Ben í Lundúnum, þagnaði klukkan átta í morgun. Bjöllurnar hringja ekki í heilan mánuð vegna viðhalds. Klukkan sjálf mun þó aðeins stöðvast í nokkrar klukkustundir í dag. 11.8.2007 12:41
Ekki gin- og klaufaveiki á fjórða býlinu Gin- og klaufaveiki greindist ekki að fjórða nautgripabúinu í Surrey á Suður-Englandi líkt og óttast var í gær. Búið stendur fyrir utan varnarsvæði sem markað var í kringum bú þar sem veikin greindist fyrst fyrir rúmri viku. Síðan þá hefur hún greinst á tveimur býlum til viðbótar innan varnarsvæðisins. 11.8.2007 12:35
Mikilvægar kosningar í Síerra Leóne Íbúar í Afríkuríkinu Sierra Leóne kjósa sér þing og forseta í dag. 7 ár eru síðan blóðugri borgarastyrjöld lauk í landinu og óttast margir að aftur geti soðið upp úr. Því er talið mikilvægt að kosningarnar í dag fari vel fram og sátt náist um úrslit þeirra. 11.8.2007 12:21
Vongóðir um að gíslar fái frelsi Uppreisnarmenn Talíbana í Afganistan segjast vongóðir um að hægt verði að semja um lausn 21 Suður-Kóreumanns sem þeir hafa haldið í gíslingu í rúmar 3 vikur. Viðræður milli Talíbana og sendifulltrúa suðurkóreskra stjórnvalda hófust á skrifstofu Rauða hálfmánans í Ghansi í Mið-Afganistan í gær. 11.8.2007 12:00
Rússar fá ekki Norðurpólinn átakalaust Kanadamenn ætla ekki að láta Rússa komast upp með að helga sér Norðurpólinn. Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada tilkynnti í gær að þeir muni reisa tvær herstöðvar í norðursvæði landsins til þess að leggja áherslu á sinn rétt til þess að nýta það sem er að finna undir ísnum. Rússneskur kafbátur setti í síðustu viku rússneska fánann á hafsbotninn undir pólnum. 11.8.2007 11:44
Banna samfarir á timburfleka Lögreglan í Kaupmannahöfn segir að hún muni stöðva samfarir manns og konu á timburfleka í höfn höfuðborgarinnar í kvöld, ef til þeirra komi. Samfarirnar voru boðaðar til þess að draga fleiri gesti á Copenhagen Fashion Week, sem nú stendur yfir. Taus Abilgard, einn af aðstandendum sýningarinnar segir að þetta hafi verið tillaga frá nokkrum gestanna og maðurinn og konan hafi lýst sig fús til ásta. 11.8.2007 11:02
Klámstjarnan varð honum að falli Jaison Biagini, framhaldsskólakennari í Monessen, sagði upp vinnunni eftir að hafa farið á stefnumót með klámmyndastjörnunni Akiru. Stefnumótið var hluti af ferð til St. Pétursborgar sem Biagini vann í samkeppni á vegum útvarpsstöðvarinnar Sirius. Skólastjórnin féllst á afsagnarbeiðni Biaginis síðastliðinn þriðjudag. 10.8.2007 22:58
Þrír létust í námuslysi Þrír létust í námuslysi í suðurhluta Indiana, að því er BBC greinir frá. Þetta er annað námuslysið í Bandaríkjunum í þessari viku. Ekki er vitað hversu margir voru í námunni þegar slysið varð. Slysið varð um klukkan fimm að íslenskum tíma. Sex manns er saknað eftir námuslysið sem varð í Utah á mánudag. 10.8.2007 20:32
Klippir snigla í tvennt Spánarsniglarnir alræmdu hafa gert Dönum lífið leitt í sumar. Þeir éta allt sem að kjafti kemur og hafa gert garyrkjumenn gráhærða. Skaðvaldur segir ein dönsk kona og klippir skriðdýrin í sundur. Sniglar þessir hafa numið land á Íslandi en þurrkarnir hér hafa verið þeim erfiðir í sumar. 10.8.2007 19:00
Dregur úr frumuskemmdum við neyslu alkóhóls Yfirvöld ættu að íhuga að bæta folínsýru í brauð eða korn til að auka neyslu þess meðal Íslendinga segir Helgi Sigurðsson, prófessor í krabbameinslækningum. Nýleg rannsókn sýnir að neysla fólinsýru minnkar líkur á krabbameini og dregur úr frumuskemmdum við neyslu alkahóls. 10.8.2007 18:55
Verksviði SÞ í Írak breytt Verksvið Sameinuðu þjóðanna í Írak hefur verið víkkað að tillögu Breta og Bandaríkjamanna. Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna eru andvígir því að þurfa að snúa aftur til Íraks en þaðan voru þeir flestir kallaðir eftir mannskæða sprengjuárás 2003. 10.8.2007 18:45
Óttast að alheimskreppa skelli á Sérfræðingar á alþjóðlegum fjármálamarkaði óttast alheimskreppu ef niðursveifla á mörkuðum í gær og í dag heldur áfram. Forsætisráðherra segir enn sem komið er enga ástæðu fyrir ríkisstjórnina að grípa til aðgerða. 10.8.2007 18:30
Geimhótel opnar árið 2012 Fyrsta hótelið sem fyrirhugað er að opna í geimnum, "Galactic Suite", áætlar að vera búið að opna fyrir viðskipti árið 2012. Arkitektarnir sem að eru að hanna hótelið segja að það verði það dýrasta í heiminum, en þriggja daga dvöl þar mun kosta 4 milljón dollara eða um 265 milljónir íslenskra króna. 10.8.2007 18:09
Kortleggja allt yfirborð tunglsins Kína stefnir að því að kortleggja allt yfirborð tunglsins. Ouyang Ziyuan yfirmaður fyrstu tunglkönnunar áætlunar landsins tilkynnti þetta í dag. Hann sagði Kína ætla að skjóta á loft tunglfarinu Chang'e One seinnipart árs 2007, en því er ætlað að taka þrívíddar myndir af tunglinu. Einnig áætla þeir að vera búnir að lenda ómönnuðu fari á tunglinu fyrir árið 2010. 10.8.2007 14:42
Big Ben þegir þunnu hljóði Einn frægasti klukkuturn heims, Big Ben í London mun þagna í heilan mánuð frá og með morgundeginum. Sökum viðhalds munu bjöllurnar ekki hringja á ný fyrr en í september. Sjálf klukkan mun stöðvast í nokkrar klukkustundir á morgun en viðhaldsvinnan er liður í því að koma turninum í sem best horf áður en hann fagnar 150 ára afmæli sínu árið 2009. 10.8.2007 13:38
Íraksstríðið illa skipulagt Forsætisráðherra Danmerkur segir Íraksstríðið hafa verið illa skipulagt og ástandið í landinu nú langt frá því að vera viðunandi. Hann er þó enn þeirrar skoðunar að rétt hafi verið að fara með hervaldi gegn Saddam Hússein. 10.8.2007 12:12
Ókyrrð á mörkuðum um allan heim Úrvalsvísitalan lækkaði um 3% þegar opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni í morgun. Krónan hefur veikst um rúm 2%. Þetta er í takt við lækkanir á alþjóðlegum mörkuðum en mikil ókyrrð ríkir um allan heim vegna vandræða á bandarískum húsnæðislánamarkaði. 10.8.2007 12:00
Óttast að gin- og klaufaveiki hafi breiðst út Yfirvöld í Bretlandi kanna nú hvort búfénaður á nautgripabúi sem liggur fyrir utan sóttvarnarsvæðið í Surrey sé sýktur af gin- og klaufaveiki. Óttast menn að ráðstafanir stjórnvalda til að hefta útbreiðslu sjúkdómsins hafi mistekist. 10.8.2007 11:43
Danir skjóta peningum undan skatti Danir vilja síður gefa allar sínar tekjur upp til skatts ef marka má nýlega rannsókn sem samtökin Dansk Industri létu gera. Samkvæmt henni liggja að meðaltali um 11 þúsund danskar krónur í beinhörðum peningum á hverju heimili í Danmörku. Þetta jafngildir um 120 þúsund íslenskum krónum. 10.8.2007 10:52
Berjast gegn óhreinum veitingastöðum Kínversk stjórnvöld hafa skorið upp herör gegn óhreinlæti á veitingastöðum til að koma í veg fyrir matareitrun og hvers konar sýkingar. Herferð stjórnvalda er liður í undirbúningi fyrir Ólympíuleikana sem haldnir verða í Peking á næsta ári. 10.8.2007 10:11
Vonast til að ná sambandi við námuverkamenn Björgunarmenn sem vinna nú hörðum höndum að því að bjarga námuverkamönnum sem hafa verið fastir í námugöngum í Utah í Bandaríkjunum síðan á mánudag. Verið er að bora holu niður á þann stað þar sem talið er að mennirnir séu og búist er við því að borinn ljúki verki sínu á næstu klukkutímum. 9.8.2007 22:25
Stærstur í heimi Stærsti maður í heimi ku vera Úkraínumaðurinn Leonid Stadnik en hann mælist 2 metrar og 57 sentimetrar á hæð. Sakvæmt heimsmetabók Guiness þá er Stadnik rúmlega 22 sentimetrum hærri en fyrirrennari hans, Baó Tjintjún en hann er ekki nema tveir metrar og 36 sentimetrar á hæð. 9.8.2007 18:44
Rússar hefja kaldastríðsflug á ný Rússar hafa tekið upp kaldastríðs flug sitt á nýjan leik og senda nú sprengjuflugvélar sínar í langar eftirlitsferðir. Stefna þeir að því að endurheimta sinn fyrir sess og sýna hervald sitt langt út fyrir eigin landamæri. 9.8.2007 18:42
Indverjar ætla að opna sendiráð á Íslandi Indverjar áforma að opna sendiráð á Íslandi. Frá þessu er greint í dagblaðinu Hindustan Times. Auk sendiráðs í Reykjavík er gert ráð fyrir að Indverjar komi sendiráðum á laggirnar í Guatemala, Níger og í Malí. 9.8.2007 17:55
Bátur lenti undir fallandi ísjaka Átján ferðamenn slösuðust þegar skipstjóri á útsýnisbáti hætti sér of nærri Hornbreen jökli á Svalbarða í dag. Gríðarlegur jaki klofnaði frá jöklinum og féll í sjóinn. Báturinn steypti stömpum í öldurótinu og fólkið þeyttist til og frá eins og tuskudúkkur. Fregnum ber ekki saman um hvort einhver hluti jakans lenti á bátnum. 9.8.2007 16:05
Endeavour lögð af stað Geimskutlan Endeavour er lögð af stað í 11 til 14 daga ferðalag til Alþjóðageimsstöðvarinnar. Skutlunni var skotið á loft frá Flórída kl: 22:36 að íslenskum tíma í gær. Geimskotið gekk áfallalaust. 9.8.2007 14:30
Sléttumýs skekja Spán Sístækkandi stofn sléttumúsa, sem herja á Mið-Spán og skemma stærðarinnar ræktarlönd, er orðinn að þvílíkri plágu að þarlend stjórnvöld hyggjast grípa til þess neyðarúrræðis að leggja eld að stórum svæðum til að vinna bug á kvikindunum. 9.8.2007 13:34
Mætti ekki á friðarfund Rúmlega sex hundruð pakistanskir og afganskir ætthöfðingjar komu saman á friðarfundi í Kabúl í morgun til að ræða hryðjuverk. Forseti Pakistan, Pervez Musharraf, sem boðaður hafði verið á fundinn mætti ekki. 9.8.2007 13:13
SAS flugvél nauðlendir á Kastrup flugvelli Flugvél frá flugfélaginu SAS þurfti að nauðlenda á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn í gær eftir að loftþrýstingur féll skyndilega í farþegarými hennar. Vélin, sem er af gerðinni Airbus 340, var á leið frá Kaupmannahöfn til Chicago í Bandaríkjunum þegar atvikið átti sér stað en um 240 manns voru um borð. 9.8.2007 12:31
Rússar hefja aftur kalda-stríðs herflug sitt Rússneski flugherinn er aftur farinn að senda sprengjuflugvélar sínar í langar eftirlitsferðir til svæða þar sem Bandaríkin og NATO halda uppi eftirliti. Gera má því skóna að rússneskar sprengjuflugvélar fari aftur að sjást í grennd við Ísland. Rússar stefna ákveðnir að því að endurheimta sinni fyrri sess og sýna hervald sitt langt útfyrir eigin landamæri. Reuters fréttastofan orðar þetta á þá leið að Rússar hafi tekið upp kalda-stríðs flug sitt á nýjan leik. 9.8.2007 11:28
Gömul sprengja drepur fjóra Fjórir létust og tveir særðust þegar sprengja frá tímum seinni heimsstyrjaldar sprakk í Zamboangaborg á Filippseyjum í morgun. Mennirnir sem létust voru sjómenn en þeir ætluðu sér að selja sprengjuna í brotajárn. 9.8.2007 11:13
Fjölmargir Norðurlandabúar unnu fyrir Stasi Sænski rannsóknarblaðamaðurinn Björn Cederberg segir að fjölmargir Norðurlandabúar hafi unnið fyrir Stasi, hina illræmdu leyniþjónustu Austur-Þýskalands. Cederberg hefur verið að rannsaka skjalasafn leyniþjónustunnar undanfarin fimm ár. Íslensk stjórnvöld létu á sínum tíma rannsaka hugsanleg tengsl nokkurra Íslendinga við Stasi. Cederberg hefur ekki enn nafngreint þá Norðurlandabúa sem hann telur hafa unnið fyrir Austur-Þjóðverja. 9.8.2007 11:01