Fleiri
Kanar litlir og feitir 1.2.2007 16:34 Risa e-töflu smygl 1.2.2007 16:21 Palestínumenn berjast enn Lítið hald virtist vera í vopnahléi milli Palestínumanna, í dag. Fjórir Fatah liðar létu lífið þegar byssumenn Hamas hreyfingarinnar réðust á bílalest sem þeir sögðu að væri að flytja vopn til lífvarðarsveitar Mahmouds Abbas, forseta, á Gaza ströndinn i. Fatah segir að sjúkragögn hafi verið í bílunum. 1.2.2007 16:09 Fólk hvatt til að slökkva ljósin í kvöld vegna loftslagsbreytinga Íbúar í heiminum öllum eru hvattir til að slökkva á öllum ljósum og rafmagnstækjum í fimm mínútur í kvöld í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. 1.2.2007 15:59 Karadzic sagður í Rússlandi Dagblað í Bosníu segir að Radovan Karadzic, sem er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi, sé í felum í Rússlandi. Blaðið segist hafa þetta eftir heimildarmönnum innan bosnisku leyniþjónustunnar, sem hafi hlerað millilandasímtöl. Rússar segjast ekkert vita um dvalarstað Serbans. 1.2.2007 15:46 Danskur þingmaður fer frá vinstri til hægri Karen Jespersen, þingmaður í Danmörku, tilkynnti í dag að hún myndi ekki skipta aftur um flokk en hún gekk í nóvember til liðs við borgaraflokkinn Venstre frá Jafnaðarmannaflokknum. Þar áður hafði hún verið yst á vinstri kantinum Í Vinstrisósíalistaflokknum. 1.2.2007 15:45 Fleiri svartir deyja úr krabba 1.2.2007 15:24 Límdu fyrir munn kornabarna 1.2.2007 15:04 Okkur að kenna 1.2.2007 14:39 200 kílómetra trjágöng Yfirvöld í Portúgal hafa ákveðið að ryðja 200 kílómetra löng og þriggja kílómetra breið göng í skógum sínum til þess að reyna að stöðva útbreiðslu illvígs trjáorms sem fyrst varð vart við árið 1999. Ormurinn fjölgar sér í bolum trjánna og drepur þau með því að hindra að þau nái í vatn. 1.2.2007 14:26 Slær út í fyrir Jacques Chirac Samskipti Jacques Chiracs, forseta Frakklands, við þrjá alþjóðlega fjölmiðla hafa vakið spurningar um hvort farið sé að slá út í fyrir forsetanum. Síðastliðinn mánudag veitti hann viðtal blaðamönnum frá New York Times, International Herald Tribune og Le Nouvel Observateur. 1.2.2007 13:30 Sjá næstu 50 fréttir
Syndir upp Amasón-fljótið Slóveni á sextugsaldri ætlar að reyna óvanalegt uppátæki. Hann ætlar fyrstur manna að synda upp eftir öllu Amasón-fljótinu, 5400 kílómetra. Maðurinn, sem heitir Martin Strel, hóf ferðina í fyrradag og ætlar að vera kominn á leiðarenda eftir 70 daga. 2.2.2007 20:15
Bush mun biðja um 100 milljarða George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, mun biðja bandaríska þingið um 100 milljarða dollara aukafjárveitingu til þess að sjá um kostnað vegna veru hersins í Afganistan og Írak. Talsmenn ríkisstjórnar Bush sögðu síðar í dag að á næsta ári yrði upphæðin enn hærri, eða um 141 milljarður dollara. 2.2.2007 20:00
14 létu lífið í aftakaveðri í Flórída Fjórtán manns létu lífið og tugir slösuðust í aftakaveðri sem gekk yfir miðbik Flórída í Bandaríkjunum í dag. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í fjórum sýslum í ríkinu, en hundruð heimila gjöreyðilögðust í þrumuveðri og skýstrókum. 2.2.2007 19:44
Svört framtíðarsýn Sjávarborð hækkar um allt að 58 sentímetra og hitastig um 6,4 gráður, fari sem horfir. Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóðlegrar sérfræðinefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar sem birt var í dag. 2.2.2007 19:17
Vann 550 milljónir í spilakassa John Bromley, 71 árs, setti 100 dollara í spilakassa í spilavíti í Nevada í Bandaríkjunum og áttaði sig ekki á því að hann hafði unnið tæpar átta milljónir dollara, eða tæplega 550 milljónir íslenskra króna, fyrr en sá sem sat við hlið hans sagði honum frá því. 2.2.2007 18:19
Olíufyrirtæki reyna að sverta loftslagsskýrslu Samtök sem eru styrkt af bandaríska olíufyrirtækinu Exxon Mobil buðu vísindamönnum og hagfræðingum háar greiðslur til þess að gagnrýna skýrslu sérfræðinga Sameinuðu þjóðanna um ástandið í loftslagsmálum í heiminum. Skýrslan kom út í París í dag. 2.2.2007 17:18
Punxsutawney Phil sá ekki skuggann sinn Múrmeldýrið Punxsutawney Phil sá ekki skuggann sinn þegar það var tekið úr búri sínu í bænum Punxsutawney í Pennsylvaníu ríki í Bandaríkjunum í dag. Það táknar að vorið eigi eftir að koma snemma. 2.2.2007 16:49
Jesúbúningar til sölu Embættismenn í Vatikaninu er sagðir fullir viðbjóðs eftir að sala á Jesúbúningum hófst á ítalíu. Búningurinn kostar tæpar 12 hundruð krónur og með honum fylgir þyrnikóróna úr plasti og gerviskegg. Faðir Vittorino Gorss prestur í Vatikaninu sagði að sala búninganna væri guðlast og móðgun við milljónir kristinna manna. Verslunareigandi sem selur búningana fyrir páskaföstuna sagðist ekki sjá vandamálið. "Þetta er bara hárkolla og gerviskegg." 2.2.2007 16:23
Forseti Gambíu segist geta læknað alnæmi Forseti Gambíu, Yahya Jammeh, tilkynnti í janúarlok að hann gæti læknað fólk af alnæmi og HIV á þremur til tíu dögum. Sérfræðingar í alnæmi og HIV um heim allan hafa fordæmt yfirlýsingu Jammeh og segja að hún gæti leitt til þess að smit aukist þar sem yfirlýsingin gæti gert sjúkdóminn léttvægan í augum almennings. 2.2.2007 16:01
14 fórust í óveðri í Flórída Fjórtán manns létu lífið og tugir slösuðust í aftakaveðri sem gekk yfir miðbik Flórída í Bandaríkjunum í dag. Hundruð heimila á svæðinu og ein kirkja gjöreyðilögðust í þrumuveðri og skýstrókum. Tré rifnuðu upp með rótum og raflínur eyðilögðust. Flutningabílar með dráttarvagna fuku út af einni aðalhraðbraut Florida og henni var lokað í nokkra tíma. Charlie Crist, ríkisstjóri Florida, hefur lýst fyri neyðarástandi í fjórum sýslum. 2.2.2007 15:22
Bardagar geysa í Ramadi Bandarískar hersveitir skutu 18 uppreisnarmenn til bana í bardögum í borginni Ramadi í Írak í morgun. Þeir gerðu líka loftárásir á höfuðstöðvar hryðjuverkahóps sem hefur staðið fyrir sjálfsmorðsárásum á óbreytta borgara. Talsmenn hersins sögðu að þeir hefðu fyrir því heimildir að leiðtogar hryðjuverkahópsins hefðu látið lífið í árásunum. 2.2.2007 14:15
Spilaðu eða deyðu Tuttugu og átta ára gamall hljómplötuútgefandi í Svíþjóð hefur verið handekinn fyrir að hóta að drepa útvarpsstjóra á á útvarpsstöðvum sem ekki spiluðu tónlist hans. Hann hótaði þeim bæði í síma og með því að setja öskjur með skothylkjum á tröppurnar á heimilum þeirra. Nöfn útvarpsstjóranna voru skrifuð á öskjurnar. 2.2.2007 14:00
Hamas og Fatah samþykkja vopnahlé Leiðtogar Hamas samtakanna og Fatah fylkingarinnar ákváðu eftir viðræður í morgun að endurvekja vopnahlé sín á milli. Vopnahléið var rofið í gær eftir harða bardaga á milli liðsmanna samtakanna. „Leiðtogar samtakanna tveggja hafa samþykkt að taka upp vopnahlé á ný.“ sagði í yfirlýsingu sem einn leiðtoga Hamas, Nizar Rayyan, las upp eftir sáttafund sem egypskir sáttasemjarar stóðu að. Yfirlýsingar sem þessar hafa venjulega ekki leitt til langvarandi friðar. 2.2.2007 14:00
Forseti Serbíu hafnar áætlun UN um Kosovo Forseti Serbíu, Boris Tadic, sagði í dag að Serbía mundi aldrei samþykkja sjálfstætt Kosovo. Þetta sagði hann í viðræðum við Martti Ahtisaari í dag. Ahtisaari er sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna í Kosovo og lagði nýlega fram áætlun um framtíð héraðsins. Í henni felast tillögur sem Tadic segir að geti leitt til sjálfstæðis Kosovo síðar meir. 2.2.2007 13:42
Sonur Kim Jong Il í fríi í Macau Japönsk sjónvarpsstöð náði myndum af elsta syni Kim Jong Il, einræðisherra Norður-Kóreu, þar sem hann var við fjárhættuspil í Macau, eyju sem tilheyrir Kína og er þekkt fyrir spilavíti. Maðurinn sem heitir Kim Jong Nam neitaði því staðfastlega að vera sá sem hann var talinn og neitaði að svara spurningum ágengra japanskra fréttamanna um viðskiptabann á Norður-Kóreu. 2.2.2007 12:40
Kína fellir niður skuldir Líberíu Kínverjar hafa fellt allar skuldir Líberíu við Kína niður. Ellen Johnson-Sirleaf forseti Líberíu segir skuldaniðurfellinguna mikilvæga fyrir landið og biðlar til annara skuldunauta landsins að fylgja fordæmi Kínverja. 2.2.2007 12:05
Gleypti eitraðan peningaseðil Umferðarlögreglumaður frá Kenýa gleypti eitraðan peningaseðil til að koma í veg fyrir að vera handtekinn þegar lögreglumenn sem vinna að því að uppræta spillingu stóðu hann að mútuþægni. Spillingarlöggurnar leiddu umferðarlögguna í gildru með því að bjóða honum mútur þegar bíll þeirra var stöðvaður við vegtálma. Peningaseðlinum höfðu þeir hinsvegar dýft í efni sem getur verið eitrað til að auðkenna hann örugglega frá öðrum seðlum. 2.2.2007 11:42
Serbar hafna tillögu Sþ um Kosovo Serbar hafa algerlega hafnað tillögum Sameinuðu þjóðanna um framtíð Kosovo. Í þeim felst að héraðið verði skilið frá Serbíu og fái aðild að alþjóðlegum stofnunum. Það verði hinsvegar áfram undir alþjóðlegu eftirliti og NATO annist friðargæslu. 2.2.2007 11:16
Sarkozy með nauma forystu í Frakklandi Spennan magnast fyrir forsetakosningar í Frakklandi en Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægrimanna hefur nú afmáð forskot Segolene Royal sem er frambjóðandi sósíalista. Í byrjun árs leit allt út fyrir að Royal mundi leiða sósíalista til sigurs í kosningunum, henni skrikaði vart fótur í orðaskaki við sé reyndari pólitíkusa. 2.2.2007 10:59
Auglýsingaskilti valda hræðslu í Boston Lögreglan í Boston handtók í dag tvo menn sem höfðu sett upp 38 auglýsingaskilti víðsvegar um borgina. Skiltin þóttu minna á sprengjur í útliti. Varð það til þess að lögreglan setti í gang neyðaraðgerðir með hjálp strandgæslunnar, sprengjusveita, sérsveita og björgunarsveita. 1.2.2007 22:56
Bandaríkin þrýsta á Chavez að fara eftir alþjóðalögum Bandaríkjastjórn gaf frá sér yfirlýsingu í kvöld vegna ætlunar stjórnvalda í Venesúela að þjóðnýta fjögur stór verkefni alþjóðlegra olíufyrirtækja í Venesúela á næstu mánuðum. Í henni sagði að þau vonuðust eftir því að farið yrði eftir alþjóðlegum sáttmálum varðandi skaðabætur til bandarískra fyrirtækja. 1.2.2007 22:46
Síðasta bókin um Potter gefin út 21. júlí Síðasta bókin um Harry Potter kemur út 21. júlí. Útgáfan verður án efa einn stærsti viðburður bókaársins en viku áður en bókin kemur út verður byrjað að sýna fimmtu myndina um Harry Potter í kvikmyndahúsum. Bókin kemur til með að heita „Harry Potter and the Deathly Hallows.“ 1.2.2007 22:17
45 létust og 150 slösuðust Lögregla í Írak skýrði frá því í kvöld að 45 manns hefðu látið lífið og 150 slasast í tveimur sjálfsmorðsárásum á fjölförnum markaði í bænum Hilla í Írak í dag. Lögreglumaður reyndi að stöðva annan þeirra og leita á honum en þá sprengdu báðir mennirnir sig upp. 1.2.2007 21:49
Handarþjófur handsamaður Bandarískur læknir játaði í dag að hafa stolið hönd úr læknaskólanum í New Jersey í Bandaríkjunum og gefið hana fatafellu. Fatafellunni langaði í höndina svo hún gæti haft hana til sýnis í íbúð sinni. 1.2.2007 21:00
Fjármögnuðu ekki Hamas Tveir bandarískir Palestínumenn voru í dag sýknaðir af ákærum um að fjármagna Hamas samtökin. Þeir áttu að hafa safnað peningum og sent til Hamas frá Bandaríkjunum. Bandaríkin, Evrópusambandi og Ísrael skilgreina öll Hamas sem hryðjuverkasamtök. 1.2.2007 20:52
Árásir gerðar á Mogadishu Klasasprengjum og eldflaugum var skotið á hluta Mogadishu, höfuðborgar Sómalíu, í dag. Að minnsta kosti þrennt lét lífið í árásinni, eitt barn, ein kona og karlmaður. Ekki er vitað hverjir stóðu að baki henni. 1.2.2007 20:35
Forseti Kína til Súdan á morgun Forseti Kína, Hu Jintao, fer í sína fyrstu heimsókn til Súdan á morgun og ætlar sér eingöngu að skrifa undir viðskiptasamninga og heimsækja olíuhreinsunarstöð sem Kínverjar byggðu þar í landi. Vestræn stjórnvöld og mannréttindasamtök voru að vonast eftir því að Jintao myndi setja þrýsting á yfirvöld í Súdan vegna ástandsins í Darfur-héraði. 1.2.2007 20:09
Notar bleyjur fyrir sex mánaða börn Hann Antonio Vasconcelos, sem fæddist í Cancun í Mexíkó á mánudag, er enginn venjulegur strákur. Hann vó 27 merkur við fæðingu og mældist 55 sentimetrar á lengd. 1.2.2007 19:45
Frönsk stjórnvöld styrkja tölvuleikjaframleiðendur Á sama tíma og íslenskar fjölskyldur lenda í vandræðum vegna barna og unglinga sem hafa ánetjast tölvuleikjum hafa frönsk stjórnvöld ákveðið að styrkja þarlenda tölvuleikjaframleiðendur. Franska þingið samþykkti í dag að veita fyrirtækjum sem þróa „menningarlega tengda“ tölvuleiki skattaafslátt. 1.2.2007 19:35
Kefluðu ungabörn Starfsfólk sjúkrahúss í Jekaterinburg í Rússlandi var staðið að því að kefla ungabörn á spítalanum til að koma í veg fyrir að grátur þeirra heyrðist. 1.2.2007 19:30
Hafnar misréttinu Jóannes Eidesgaard, lögmaður Færeyja, segir það eitt af sínum helstu verkefnum sem stjórnmálamanns að koma í veg fyrir að samkynhneigðir séu beittir misrétti í eyjunum. 1.2.2007 19:04
Hefur ekkert með morðið á Litvinenko að gera Valdimir Pútín Rússlandsforseti þvertekur fyrir að Rússar noti olíu- og gaslindir sínar til að kúga önnur ríki. Hann segir ennfremur af og frá að rússnesk stjórnvöld hafi staðið á bak við morðið á njósnaranum Alexander Litvinenko. 1.2.2007 18:58
35 létu lífið í átökum í Kongó Fleiri en 35 manns létu lífið í Kongó í dag á átökum á milli stuðningsmanna Jean-Pierre Bemba og öryggissveita ríkisstjórnarinnar. Bemba tapaði forsetakosningum fyrir Joseph Kabila á síðasta ári. Stuðningsmenn Bemba voru hins vegar að mótmæla úrslitum fylkistjórakosninga í Kongó, sem fram fóru í janúar, en fylgismenn Kabila unnu stórsigur í nær öllum fylkjum landsins. 1.2.2007 18:58
Evrópuþingið vill alþjóðlegt bann við dauðarefsingum Evrópuþingið studdi í dag tillögu Sameinuðu þjóðanna um að banna dauðarefsingar um allan heim. Á sama tíma fordæmdi það aftöku Saddams Hússein, fyrrum einræðisherra í Írak. Tillagan var samþykkt með 591 atkvæði gegn 45. Í henni sagði að farsælast væri ef Sameinuðu þjóðirnar beittu sér fyrir því að koma á alþjóðlegu banni við dauðarefsingum. 1.2.2007 18:17
Palestínumenn berjast enn Lítið hald virtist vera í vopnahléi milli Palestínumanna, í dag. Fjórir Fatah liðar létu lífið þegar byssumenn Hamas hreyfingarinnar réðust á bílalest sem þeir sögðu að væri að flytja vopn til lífvarðarsveitar Mahmouds Abbas, forseta, á Gaza ströndinn i. Fatah segir að sjúkragögn hafi verið í bílunum. 1.2.2007 16:09
Fólk hvatt til að slökkva ljósin í kvöld vegna loftslagsbreytinga Íbúar í heiminum öllum eru hvattir til að slökkva á öllum ljósum og rafmagnstækjum í fimm mínútur í kvöld í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. 1.2.2007 15:59
Karadzic sagður í Rússlandi Dagblað í Bosníu segir að Radovan Karadzic, sem er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi, sé í felum í Rússlandi. Blaðið segist hafa þetta eftir heimildarmönnum innan bosnisku leyniþjónustunnar, sem hafi hlerað millilandasímtöl. Rússar segjast ekkert vita um dvalarstað Serbans. 1.2.2007 15:46
Danskur þingmaður fer frá vinstri til hægri Karen Jespersen, þingmaður í Danmörku, tilkynnti í dag að hún myndi ekki skipta aftur um flokk en hún gekk í nóvember til liðs við borgaraflokkinn Venstre frá Jafnaðarmannaflokknum. Þar áður hafði hún verið yst á vinstri kantinum Í Vinstrisósíalistaflokknum. 1.2.2007 15:45
200 kílómetra trjágöng Yfirvöld í Portúgal hafa ákveðið að ryðja 200 kílómetra löng og þriggja kílómetra breið göng í skógum sínum til þess að reyna að stöðva útbreiðslu illvígs trjáorms sem fyrst varð vart við árið 1999. Ormurinn fjölgar sér í bolum trjánna og drepur þau með því að hindra að þau nái í vatn. 1.2.2007 14:26
Slær út í fyrir Jacques Chirac Samskipti Jacques Chiracs, forseta Frakklands, við þrjá alþjóðlega fjölmiðla hafa vakið spurningar um hvort farið sé að slá út í fyrir forsetanum. Síðastliðinn mánudag veitti hann viðtal blaðamönnum frá New York Times, International Herald Tribune og Le Nouvel Observateur. 1.2.2007 13:30