Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Herinn kynnir nýtt vopn Bandaríkjaher hefur kynnt nýtt vopn sem talsmenn hans segja að valdi brunatilfinningu en skaði ekki þá sem fyrir verða. Um er að ræða sérstaka hitabyssu sem skýtur örbylgjum að fólki af allt að 450 metra færi. 25.1.2007 12:45
Hóta fleiri árásum í Grikklandi Vinstrisinnaðir hryðjuverkamenn sem skutu handsprengju að bandaríska sendiráðinu í Aþenu fyrr í mánuðinum hótuðu í morgun fleiri árásum á grísk og bandarísk skotmörk. Byltingarbaráttuhópurinn svonefndi lýstu ábyrgð á hendur sér í fimm síðna yfirlýsingu þar sem ríkisstjórnir Bandaríkjanna og Grikklands voru gagnrýndar. 25.1.2007 12:30
Safna fé fyrir Líbanon Líbönsku ríkisstjórninni hefur verið lofað jafnvirði tvö hundruð milljarða íslenskra króna til enduruppbyggingar landsins. Þetta var ákveðið í morgun á alþjóðlegri ráðstefnu sem nú fer fram í Frakklandi. Stjórnarandstæðingar segja að með fjárstuðningnum sé verið að hlaupa undir bagga með stjórnvöldum, ekki þjóðinni. 25.1.2007 12:15
Öflugur jarðskjálfti á Taívan Öflugur jarðskjálfti hristi upp í Taívan í dag. Ekki hefur frést af manntjóni eða skemmdum. Skjálftinn mældist 6,2 á Richterskalanum. Hann átti upptök sín á 5 kílómetra dýpi undir sjávarbotninum úti fyrir austurströnd eyjunnar. Jarðskjálftar eru tíðir í Taívan. 25.1.2007 11:50
British Airways fellir niður hundruð fluga Búist er við öngþveiti á flugvöllum í Bretlandi í næstu viku þegar British Airways fellir niður hundruð fluga. Allt flug félagsins frá Heathrow flugvelli verður fellt niður í tvo daga í næstu viku. Þá verður allt innanlands- og Evrópuflug fellt niður frá Gatwick flugvelli á sama tíma, frá kl. 1 aðfaranótt þriðjudags til miðnættis á miðvikudegi. Ákvörðunin var tekin eftir að samningaumleitanir flugliða og flugfélagsins sigldu í strand. 25.1.2007 11:30
Handtekin eftir dauða fallhlífastökkvara Belgíska lögreglan hefur handtekið konu eftir að vinkona hennar hrapaði til bana í hópfallhlífarstökki í Opglabbeek í Belgíu. Konan sem lést hét Els Van Doren. Hún var 37 ára, gift og tveggja barna móðir, en átti í ástarsambandi við annan fallhlífastökkvara. Hún vissi ekki að vinkona hennar Els Clottemans átti líka í ástarsambandi við manninn. Atvikið átti sér stað í nóvember, en þegar lögreglan komst að ástarþríhyrningnum bárust böndin að Clottermans. 25.1.2007 11:02
Gripinn með 50 þúsund bjórdósir Þjóðverji á fimmugsaldri var gripinn af dönskum tollvörðum þegar hann keyrði yfir landamærin til Danmerkur með tæplega 50 þúsund bjórdósir á vörubílspalli og í tengivagni. Einnig leyndust þar 2.376 dósir af gosdrykkjum og 12 lítrar af vodka. Megnið af vörunum hafði maðurinn keypt í landamærabúð í Flensborg í Þýskalandi. 25.1.2007 11:02
Sádi-Arabar gefa rúman milljarð dollara Konungur Sádi-Arabíu tilkynnti í morgun að landið hygðist gefa 1,1 milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði um 76 milljarða íslenskra króna, til uppbyggingar í Líbanon. Fulltrúar 40 landa eru saman komnir til söfnunarráðstefnu í París. Áður en ráðstefnan hófst höfðu Frakkland og Bandaríkin lofað um 100 milljörðum íslenskra króna í styrk og lán. 25.1.2007 10:52
Starfsmaður þingsins á kóki Starfsmaður danska þjóðþingsins hefur verið handtekinn fyrir að hafa undir höndum örvandi fíkniefni. Dagblaðið Berlingske Tidende greindi frá því í nóvember síðastliðnum að fíkniefnaleifar hefðu fundist á þremur klósettum þinghússins í Kristjánsborgarhöll. 25.1.2007 10:42
Federline vondur fyrir viðskiptin Samtök veitingahúsaeigenda í Bandaríkjunum hafa farið fram á að sýningum á auglýsingu, þar sem Kevin Federline, fyrrum eiginmaður Britney Spears, er sýndur sem starfsmaður á veitingastað, verði aflýst. 24.1.2007 23:15
Saklaus sveitamorðingi Robert „Willie“ Pickton, maðurinn sem er sakaður um að hafa myrt 26 vændiskonur, sagði við yfirheyrslur hjá lögreglu að hann væri „saklaus lítill sveitadrengur“ sem einhver væri að koma sök á. Þetta kom fram í réttarhaldinu yfir honum sem nú fer fram en hann var handtekinn í febrúar árið 2002. 24.1.2007 22:59
Staða Kosovo að skýrast Rússar, sem hafa hingað til verið á móti hugmyndinni um sjálfstætt Kosovo, gáfu til kynna í dag að þeir gætu samþykkt að það yrði sjálfsstjórnarsvæði innan Serbíu. Ein af tillögum Sameinuðu þjóðanna um Kosovo hefur lagt þann möguleika til. Í henni segir enn fremur að Kosovo reki eigin utanríkisstefnu og geti orðið aðili að alþjóðasamtökum í eigin nafni. 24.1.2007 22:30
Ást við aðra sýn Sjónvarpstöð í Hollandi hefur ákveðið að hefja upptökur á stefnumótaþætti. Það merkilega við þáttinn verður hins vegar að í hann má aðeins koma fólk sem er „sjáanlega óheppið í útliti.“ Þátturinn á að heita „Ást við aðra sýn.“ 24.1.2007 22:00
Bandaríkin að veita Líbanon lán Bandaríkin hétu því í dag að veita Líbanon 770 milljón dollara lán, eða um 53 milljarða íslenskra króna, til þess að styrkja við stjórn Foud Siniora í baráttu hans við stjórnarandstöðu Hezbollah. Þetta staðfesti talsmaður Bandaríkjastjórnar í dag. 24.1.2007 21:30
Bardagar geysa í Bagdad Íraskar og bandarískar hersveitir handtóku í dag 35 uppreisnarmenn og skutu 30 til bana í bardögum við Haifa götuna í miðborg Bagdad í dag. Bardagar geysuðu þar í rúmar átta klukkustundir en embættismenn Íraka segja götuna vera fylgsni fjölmargra uppreisnarmanna. Í hverfinu í kringum götuna búa mestmegnis súnní múslimar. 24.1.2007 21:00
Friðrik 8. í Bocuse d'Or Íslendingurinn Friðgeir Ingi Eiríksson varð í 8. sæti í matreiðslukeppninni Bocuse d'Or eftir tveggja daga keppni í borginni Lyon í Frakklandi. Franski kokkurinn Fabrice Desvignes vann þar sigur. 24.1.2007 20:45
al-Kaída varar Bandaríkjamenn við Ayman al-Zawahri, næstráðandi innan al-Kaída hryðjuverkahópsins, sagði í dag að Bandaríkin mættu búast við hefndaraðgerðum sem yrðu „mun verri en nokkuð sem þau hefðu séð." ef ráðamenn í Bandaríkjunum breyttu ekki framkomu sinni í garð íslamskra ríkja. 24.1.2007 20:30
Conte gefur eftir Forseti Gíneu, Lansana Conte, hefur samþykkt að tilnefna nýjan forsætisráðherra til þess að koma til móts við kröfur stéttarfélaga í landinu. Stéttarfélögin standa nú fyrir verkföllum sem hafa lamað nær alla starfsemi í landinu undanfarnar tvær vikur. 24.1.2007 20:15
Grískur hópur lýsir yfir ábyrgð Grískur vinstrisinnaður hryðjuverkahópur hefur lýst yfir ábyrgð á sprengjuárásunum á bandaríska sendiráðið í Aþenu, höfuðborg Grikklands, sem áttu sér stað fyrr í mánuðinum. Hópurinn hótaði jafnframt fleiri árásum gegn stjórnmálamönnum og mikilvægum byggingum en frá þessu skýrði dagblað í Grikklandi í dag. 24.1.2007 20:00
Þingið á móti fjölgun hermanna Utanríkismálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins samþykkti í dag harðorða tillögu gegn fjölgun hermanna í Írak. Í nefndinni sitja bæði fulltrúar demókrata og repúblikana og því er samþykkt hennar mikið áfall fyrir George W. Bush, forseta Bandaríkjanna. 24.1.2007 19:45
Fornaldarhákarl gægist upp úr djúpinu Japanskir vísindamenn birtu í dag myndir af sannkölluðum kynjafiski sem þróunarsagan er sögð hafa sneitt að mestu framhjá. Kvikindið kallast kragaháfur og fannst í höfninni í Awashima, nærri Tókýó. 24.1.2007 19:30
Katsav lætur tímabundið af störfum Moshe Katsav, forseti Ísraels, hefur óskað eftir því að fá leyfi frá störfum eftir að greint var frá því að hann yrði að öllum líkindum ákærður fyrir nauðgun og aðra kynferðisglæpi gegn fjórum konum. 24.1.2007 19:00
Horfur í efnahagsmálum góðar Hagfræðingar eru bjartsýnir á að efnahagur heimsins verði með miklum ágætum á árinu 2007. Auk efnahagsmála eru umhverfismál í brennidepli á ársþingi Alþjóða efnahagsstofnunarinnar sem hófst í Davos í Sviss í morgun. 24.1.2007 18:45
Olmert vill Katsav úr embætti Forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, sagði í dag að forseti landsins, Moshe Katsav, ætti að segja af sér vegna nauðgunarásakana sem hafa verið settar fram gegn honum. 24.1.2007 18:37
Vill meiri tíma í Írak Bush Bandaríkjaforseti bað þjóð sína um að gefa sér meira svigrúm til að ná árangri í Írak í stefnuræðu sinni í gær. Hann ætlar að beita sér fyrir því að á næstu tíu árum dragi Bandaríkjamenn úr olíunotkun sinni um fimmtung. 24.1.2007 18:30
Stéttarfélög og stjórnvöld í Gíneu funda Stéttarfélög í Gíneu og talsmenn stjórnarinnar ætla að funda á miðvikudaginn til þess að reyna að binda endi á allsherjarverkfall sem hefur lamað þjóðina. 40 manns hafa látið lífið í óeirðum tengdum verkfallinu undanfarnar tvær vikur. 24.1.2007 17:55
Norður-Kórea og Íran í samstarf Norður-Kórea er að hjálpa Írönum að undirbúa neðanjarðarsprengingu á kjarnorkuvopnum, svipaðri þeirri og Norður-Kóreumenn framkvæmdu sjálfir á síðasta ári. Þetta kemur fram á vefsíðu breska dagblaðsins Telegraph í dag. 24.1.2007 17:17
Fuglaflensa staðfest í Ungverjalandi Evrópuráðið staðfesti í dag tilfelli af hinu banvæna fuglaflensuafbrigði H5N1 í Unverjalandi. í tilkynningu frá ráðinu sagði að tilfellið hefði komið upp í Csongrad sýslu í suðaustur Ungverjalandi. Próf voru gerð eftir að óvenju há dánartíðni kom upp í hóp af 3,000 gæsum. Öllum hópnum var síðan slátrað. Frá árinu 2003 hefur fuglaflensa verið staðfest í um 50 löndum. Samkvæmt Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni hafa meira en 150 manns látist af völdum þessa afbrigðis flensunnar. 24.1.2007 17:00
Snjór tefur flug- og bílaumferð í Evrópu Mikill snjór hefur fallið víða í Evrópu í dag og í gær og haft víðtæk áhrif á umferð, bæði í lofti og á láði. Nokkrum flugvöllum var lokað, en 100 flug voru felld niður á alþjóðaflugvellinum í Prag þar sem snjókomunni linnti ekki. Flugumferð í Þýskalandi, Sviss og á Ítalíu truflaðist einnig vegna snjókomunnar. Í Stuttgart voru um eitt þúsund farþegar strandaglópar í nótt þegar 70 flug voru felld niður. 24.1.2007 16:30
Edinborgarflugvöllur opnaður á ný Alþjóðaflugvöllurinn í Edinborg hefur nú opnað að nýju eftir að flugvellinum var lokað af ótta við að sprengja leyndist í óþekktum poka í innritunarsal. Flugvöllurinn var rýmdur um tíma í dag og voru farþegar og starfsmenn fluttir á Hilton hótelið á flugvellinum. Starfsemin er nú komin í eðlilegt horf en búist er við einhverjum seinkunum á brottförum fram eftir degi. 24.1.2007 16:08
Ummæli Bush valda usla meðal Síja í Írak Síjar í Írak vísa ummælum George Bush Bandaríkjaforseta alfarið á bug um að vígamenn úr hópi þeirra séu jafn hættulegir Bandaríkjunum og vígamenn Súnna í al-Kaída hryðjuverkasamtökunum. Í árlegri stefnuræðu sinni varaði Bush við vígamönnum Síja í Írak og miðausturlöndum, og margítrekaði að besta leiðin til að ná árangri í Írak væri að senda þangað fleiri hermenn. 24.1.2007 15:53
Átök halda áfram í Líbanon Til skotárásar kom milli fylgjenda ríkisstjórnarinnar í Líbanon og fylgjenda stjórnarandstöðunnar í borginni Trípolí í norðurhluta landsins í dag. Vitni og öryggissveitir sögðu átökin hafa byrjað eftir jarðaför manns sem lést í óeirðum í gær, en þar tókust einnig á fylgjendur stjórnar og stjórnarandstöðu. Öryggissveitir reyndu að stilla til friðar og stöðva átökin en ekki er vitað til að dauðsföll hafi orðið. 24.1.2007 15:23
Önnur loftárás Bandaríkjamanna á Sómalíu Bandarískir embættismenn sögðu í dag að gerð hefði verið loftárás á Suðurhluta Sómalíu fyrr í vikunni. Þetta er önnur árás Bandaríkjamanna á íslamska öfgamenn. Fyrri árásin var fyrir um það bil tveimur vikum en þá sögðu embættismenn aðgerðina vera gegn öfgamönnum al-Qaida. Talsmaður varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna neitaði að tjá sig um málið. 24.1.2007 14:53
Frakkar bjóða Líbönum lán Frakkar hafa boðið ríkisstjórn Líbanons tæplega 45 milljarða íslenskra króna lán á mjög góðum kjörum. Þetta sagði talsmaður Jacques Chirac forseta Frakklands í dag. Chirac sagði sjálfur í sjónvarpsviðtali að Líbanska ríkisstjórnin væri nánast búin með það fjármagn sem hún hefði úr að spila. Forsetinn sagði að mótmæli í Líbanon gegn ríkisstjórninni gætu haft neikvæð áhrif á alþjóðlegan fjárstuðning við Beirút á fjárstuðningsráðstefnu sem fer fram í París á morgun. 24.1.2007 14:32
Flugvöllurinn í Edinborg rýmdur Alþjóðaflugvöllurinn í Edinborg var rýmdur af öryggisástæðum í dag eftir að dularfullur poki fannst í innskráningarsal vallarins. Talsmaður flugvallarins sagði að allt starfsfólk og farþegar hefðu verið fluttir á brott á meðan sprengjusveit rannsakaði pokann og fjarlægði hann. Flugvélum var gefið lendingarleyfi, en allar brottfarir hafa verið stöðvaðar. Ríkisstjórnin telur hættu á hryðjuverkum í Bretlandi verulega og er viðbúnarstig á næst hæsta stigi. 24.1.2007 14:09
Hizbollah hótar áframhaldandi andófi Hizbollah-samtökin hóta áframhaldandi aðgerðum í Líbanon fái þau ekki hlut í stjórn landsins hið fyrsta. Líbanskt samfélag lamaðist algerlega í gær þegar Hizbollah og bandamenn þeirra efndu var til verkfalla um allt land. 24.1.2007 13:45
Gerði tilraun til flugráns Lögreglan í N'Djamena, höfuðborg Tsjad, handtók í morgun súdanskan mann sem rænt hafði farþegaþotu með 103 innanborðs. 24.1.2007 13:30
Vetrarveður veldur usla á meginlandi Evrópu Vetrarveður hefur valdið töluverðum usla í Norður- og Mið-Evrópu í dag og eru þrír látnir í umferðarslysum í Þýslandi sem rekja má til hálku á vegum. Þá eru tugir slasaðir í landinu. 24.1.2007 13:29
Forseti Ísraels í launalaust leyfi Moshe Katsav forseti Ísraels tilkynnti ísraelska þinginu í dag að hann myndi taka launalaust leyfi. Forseta þingsins var tilkynnt um ákvörðunina eftir að saksóknarar tilkynntu að þeir ætluðu að ákæra Katsav fyrir nauðgun og röð annarra kynferðisglæpa. 24.1.2007 13:26
Biður um meira svigrúm Bush Bandaríkjaforseti bað þjóð sína um að gefa sér meiri tíma til að ná árangri í Írak í stefnuræðu sinni í gær. Stjórn hans ætlar að beita sér fyrir því að á næstu tíu árum dragi Bandaríkjamenn úr olíunotkun sinni um fimmtung. 24.1.2007 13:00
Red Hot Chili Peppers á Hróarskeldu Skipuleggjendur Hróarskelduhátíðarinnar voru að tilkynna að Red Hot Chili Peppers yrðu eitt stærsta nafnið á hátíðinni nú í sumar. Kaliforníska rokksveitin hefur einu sinni áður spilað í Hróarskeldu. 24.1.2007 12:21
Jade Goody í kuldanum eftir Big brother Breska sjónvarpsstjarnan Jade Goody reynir nú að klóra í bakkann eftir umtalaða þáttaröð raunveruleikaþáttarins Big brother. Hún skapaði sér mikla óvild í þáttunum með stríðni og dónaskap við indverska leikkonu og var sökuð um kynþáttahatur. Sjónvarpsstöðin Living TV og ilmvatnsframleiðandi sem var í samstarfi við hana hafa sagt upp samningum. 24.1.2007 11:47
Vínræktarhéraðið Skandinavía Danmörk og Svíþjóð verða eitt besta hvítvínssvæði í heimi í framtíðinni þegar andrúmsloftið hlýnar. Þetta er álit vínsérfræðinga og loftslagsfræðinga sem Los Angeles Times spurði álits. Þá verður Þýskaland eitt virtasta rauðvínsland heims. 24.1.2007 11:27
Reikna með að Kínverjar verði fjölmennastir á netinu Internetnotendur í Kína gætu orðið fleiri en nettengdir Bandaríkjamenn innan tveggja ára, að mati Kínversku netstofnunarinnar. Þá yrðu Kínverjar fjölmennasta þjóðin á netinu. 137 milljónir Kínverja voru nettengdar í lok árs 2006, sem er 23% fjölgun frá árinu á undan. Þeir eiga samt enn langt í land að ná Bandaríkjamönnum með sína 210 milljón netnotendur. 24.1.2007 10:43
Mistakist í Írak geta afleiðingarnar orðið víðtækar George Bush Bandaríkjaforseti segir að mistakist Bandaríkjaher að ná tökum á ástandinu í Írak hafi það bæði alvarlegar og víðtækar afleiðingar. Bush flytur í klukkan tvö í nótt, að íslenskum tíma, stefnuræðu sína þar sem hann ver meðal annars þá ákvörðun að fjölga hermönnum í Írak. 23.1.2007 22:32