Fleiri fréttir Þið eruð reknir -allir 400 þúsund Ríkisstjórn Libyu ætlar að reka rúmlega þriðjung opinbera starfsmanna sinna úr embætti. Það eru um 400 þúsund manns. Tilgangurinn er sá að draga úr opinberum útgjöldum og örva einkaframtakið í landinu. Ekki verða menn þó settir á Guð og gaddinn, því hinum brottreknu verða tryggð laun í þrjú ár, eða lán til þess að stofna fyrirtæki. 22.1.2007 17:56 Norður-Írska lögreglan leyfði morð á kaþólikkum Háttsettir foringjar í lögreglunni á Norður-Írlandi leyfðu uppljóstrurum sínum meðal mótmælenda að fremja morð á kaþólikkum í meira en áratug, samkvæmt skýrslu umboðsmanns lögreglunnar, sem gerð var opinber í dag. Á árunum 1991 og 2003 myrtu vígamenn úr Ulster sjálfboðaliðasveitinni að minnsta kosti 10 kaþólikka. 22.1.2007 17:36 Lygavefur á netinu endaði með morði Thomas Montgomery hefur verið ákærður fyrir morðið á Brian Barrett frá Buffalo í New York ríki í Bandaríkjunum. Brian var 22 ára þegar hann fannst myrtur fyrir utan verksmiðjuna þar sem þeir unnu í september sl. Hann hafði dregist inn í netsamband Thomasar og konu frá Virginíu ríki. Thomas var 18 ára sjóliði á leið til Íraks og hún 18 ára yngismey sem sendi honum kvenundirföt og myndir af sér. … eða svo héldu þau. Bæði voru í raun miðaldra og hann auk þess giftur. Í skjóli internetsins höfðu þau átt í sambandi í ár þar sem þau lugu til um aðstæður sínar. 22.1.2007 16:57 Fóðraði svínin með 30 vændiskonum Kanadiskur svínabóndi hefur verið ákærður fyrir að myrða þrjátíu vændiskonur, og fóðra svínin á líkamsleifum þeirra. Talið er mögulegt að hann hafi sextíu og þrjú morð á samviskunni. Það komst upp um hann fyrir algera tilviljun. 22.1.2007 16:49 Danir ekki búnir undir veturinn Hraðbrautinni við Köge á Sjálandi, sem er suður af Kaupmannahöfn, var lokað í dag vegna fjöldaáreksturs á veginum. Eftir því sem danskir vefmiðlar greina frá rákust í kringum 50 bílar saman í röð óhappa og var fjöldi sjúkrabíla sendur á vettvang. 22.1.2007 16:48 Farsímasektir hækkaðar 22.1.2007 16:31 Um hundrað látnir í Írak í dag Hundrað manns hið minnsta hafa fallið í bílsprengju- og eldflaugaárásum í Bagdad í dag og er dagurinn því einn sá blóðugasti frá upphafi árs. 88 létust og 160 særðust snemma í morgun þegar tvær bílsprengjur sprungu á markaði með notuð föt sem fátækir íbúar Bagdad-borgar sækja mikið. 22.1.2007 16:30 Blóðbað í Bagdad 22.1.2007 16:23 Enn einn blaðamaður myrtur í Rússlandi 22.1.2007 16:12
Sjá næstu 50 fréttir
Þið eruð reknir -allir 400 þúsund Ríkisstjórn Libyu ætlar að reka rúmlega þriðjung opinbera starfsmanna sinna úr embætti. Það eru um 400 þúsund manns. Tilgangurinn er sá að draga úr opinberum útgjöldum og örva einkaframtakið í landinu. Ekki verða menn þó settir á Guð og gaddinn, því hinum brottreknu verða tryggð laun í þrjú ár, eða lán til þess að stofna fyrirtæki. 22.1.2007 17:56
Norður-Írska lögreglan leyfði morð á kaþólikkum Háttsettir foringjar í lögreglunni á Norður-Írlandi leyfðu uppljóstrurum sínum meðal mótmælenda að fremja morð á kaþólikkum í meira en áratug, samkvæmt skýrslu umboðsmanns lögreglunnar, sem gerð var opinber í dag. Á árunum 1991 og 2003 myrtu vígamenn úr Ulster sjálfboðaliðasveitinni að minnsta kosti 10 kaþólikka. 22.1.2007 17:36
Lygavefur á netinu endaði með morði Thomas Montgomery hefur verið ákærður fyrir morðið á Brian Barrett frá Buffalo í New York ríki í Bandaríkjunum. Brian var 22 ára þegar hann fannst myrtur fyrir utan verksmiðjuna þar sem þeir unnu í september sl. Hann hafði dregist inn í netsamband Thomasar og konu frá Virginíu ríki. Thomas var 18 ára sjóliði á leið til Íraks og hún 18 ára yngismey sem sendi honum kvenundirföt og myndir af sér. … eða svo héldu þau. Bæði voru í raun miðaldra og hann auk þess giftur. Í skjóli internetsins höfðu þau átt í sambandi í ár þar sem þau lugu til um aðstæður sínar. 22.1.2007 16:57
Fóðraði svínin með 30 vændiskonum Kanadiskur svínabóndi hefur verið ákærður fyrir að myrða þrjátíu vændiskonur, og fóðra svínin á líkamsleifum þeirra. Talið er mögulegt að hann hafi sextíu og þrjú morð á samviskunni. Það komst upp um hann fyrir algera tilviljun. 22.1.2007 16:49
Danir ekki búnir undir veturinn Hraðbrautinni við Köge á Sjálandi, sem er suður af Kaupmannahöfn, var lokað í dag vegna fjöldaáreksturs á veginum. Eftir því sem danskir vefmiðlar greina frá rákust í kringum 50 bílar saman í röð óhappa og var fjöldi sjúkrabíla sendur á vettvang. 22.1.2007 16:48
Um hundrað látnir í Írak í dag Hundrað manns hið minnsta hafa fallið í bílsprengju- og eldflaugaárásum í Bagdad í dag og er dagurinn því einn sá blóðugasti frá upphafi árs. 88 létust og 160 særðust snemma í morgun þegar tvær bílsprengjur sprungu á markaði með notuð föt sem fátækir íbúar Bagdad-borgar sækja mikið. 22.1.2007 16:30
Rán og gripdeildir á strandstað í Devon Lögregla fer nú um strendur við Devon í Suðvestur-Englandi til þess að reyna að koma í veg fyrir að almenningur ræni varningi sem rekið hefur á land eftir strand flutningaskipsins Napólí í gær. Hundruð manna hafa streymt niður á strönd í von um að finna eitthvað sem nothæft er en talið er að hátt í tvö hundruð gámar af skipinu hafi farið í sjóinn. 22.1.2007 15:55
Býst við hörðum bardögum við talibana Sendiherra Bandaríkjanna í Afganistan segir að búist sé við hörðum bardögum við Talibana á þessu ári. Ríkisstjórn landsins sé hinsvegar að styrkjast í sessi og því sé hann bjartsýnn um framtíðina. Síðasta ár var hið blóðugasta síðan talibanar voru hraktir frá völdum árið 2001. 22.1.2007 15:47
Páfi íhugaði afsögn vegna heilsubrests Jóhannes Páll páfi íhugaði alvarlega að segja af sér árið 2000, af heilsufarsástæðum. Hann íhugaði einnig að breyta kirkjulögum þannig að páfar segðu af sér þegar þeir yrðu áttræðir. 22.1.2007 15:28
Fjöldaárekstur á hraðbraut í Danmörku Hraðbrautinni við Köge, sem er suður af Kaupmannahöfn, hefur verið lokað vegna fjöldaáreksturs á veginum. Eftir því sem danskir vefmiðlar greina frá rákust á bilinu 50 til 100 bílar saman í röð óhappa og hefur fjöldi sjúkrabíla verið sendur á vettvang. 22.1.2007 15:23
Palestínumenn hatast enn Tveim æðstu leiðtogum Palestínumanna tókst ekki að ná samkomulagi um myndun þjóðstjórnar, á fundi sínum í Sýrlandi um helgina. Á þeim fundi voru Mahmoud Abbas, forseti Palestínu og leiðtogi Fatah hreyfingarinnar og Khaled Meshaal, leiðtogi Hamas samtakanna. 22.1.2007 14:43
Glaðnar yfir Norður-Kóreu Aðalsamningamaður Rússa í málefnum Norður-Kóreu sagði í dag að sex landa viðræður um kjarnorkuáætlun landsins gætu hafist í næsta mánuði. Alexander Losyukov sagði að undirbúningsfundir sem haldnir hafi verið í Berlín hafi aukið bjartsýni manna. 22.1.2007 14:32
Ný áætlun um friðarferli í Ísrael Varnarmálaráðherra Ísraels hefur lagt fram áætlun í þrem liðum um að koma friðarferlinu við Palestínumenn aftur í gang. Í því felst meðal annars að Mahmoud Abbas, forseti, fái lengri tíma til þess að afvopna öfgahópa, og Ísraelar loki ólöglegum landnemabyggðum á Vesturbakkanum. 22.1.2007 13:27
Ætla að dæla olíu úr flutningaskipi í dag Björgunarfólk í Devon í Englandi hefur í alla nótt og fram eftir morgni reynt að hreinsa upp varning og brak frá flutningaskipinu Napolí sem var siglt upp í fjöru í gær. Skipið laskaðist töluvert í óveðri í síðustu viku. 22.1.2007 13:00
Hillary vinsælust meðal demókrata Flestir demókratar í Bandaríkjunum vilja Hillary Clinton sem forsetaefni demókrata á næsta ári samkvæmt skoðanakönnun sem bandaríska blaðið Washington Post birti í gær. Samkvæmt henni vilja 39% flokksmanna að hún hljóti útnefndinguna. Næstir koma öldungadeildarþingmennirnir Barack Obama, með 17%, og John Edwards með 12%. Edwards var varaforsetaefni Johns Kerry í kosningunum 2004. 22.1.2007 12:45
Serbía: Ólíklegt að þjóðernissinnar komist í ríkisstjórn Forvígismenn flokks þjóðernissinnaðra Serba eiga ekki von á því að þeim verði boðið að mynda ríkisstjórn þótt þeir hafi unnið stórsigur í þingkosningum í gær. Leiðtogi flokksins situr í fangelsi í Haag í Hollandi þar sem rétta á yfir honum fyrir stríðsglæpi. 22.1.2007 12:30
70 látnir og 90 slasaðir í tveimur sprengjum í Bagdad Fleiri en 70 manns eru taldir af eftir tvær öflugar sprengjur í Bagdad. 90 til viðbótar eru særðir eftir sprengjurnar, sem sprungu samtímis í hverfi sem er aðallega byggt sjíamúslimum. Önnur sprengjan var í bíl en hin var skilin eftir í poka á milli markaðsbása sem selja DVD-diska og notuð föt, svo fátt eitt sé nefnt. 22.1.2007 11:39
Lifði af tveggja daga ísskápsvist Bandarískum hjónum brá heldur betur í brún þegar þau opnuðu ísskáp sinn í gær og sunnudagssteikin kom fljúgandi á móti þeim. Þar var á ferðinni önd sem húsbóndinn hafði skotið tveimur dögum áður. 21.1.2007 19:00
Ótti um mengunarslys í Devon Bresk yfirvöld óttast mengunarslys við suðvesturströnd Englands eftir að flutningaskipið Napoli strandaði þar. Skipið skemmdist í óveðrinu sem gekk yfir Evrópu fyrir helgi og því var ákveðið að sigla því í strand. 21.1.2007 18:45
Abbas og Mashaal hittast í dag Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, og Khaled Mashaal, leiðtoga Hamas-samtakanna ætla að hittast í Damaskus í Sýrlandi í dag. Þetta fullyrðir Saeb Erekat, náinn ráðgjafi Abbasar. 21.1.2007 12:30
Hillary Clinton vinsælust frambjóðenda Hillary Clinton, fyrrum forsetafrú, er með umtalsvert forskot á keppinauta sína í keppninni um útnefningu frambjóðanda demókrataflokksins til forsetakosninganna 2008. Hillary tilkynnti formlega um framboð sitt í dag. Í könnun Washington Post og ABC News, sem birt var í dag er Hillary með 41% fylgi, Barack Obama með 17% og John Edwards með 11%. 20.1.2007 21:31
Lögreglan í Bretlandi ber kennsl á grunaðan morðingja Litvinenkos Lögreglan í Bretlandi hefur borið kennsl á manninn sem þeir telja að hafi byrlað Alexander Litvinenko eitur, að sögn The Times. Mynd náðist af grunuðum morðingja á eftirlitsmyndavélar á Heathrow flugvelli þegar hann kom til landsins frá Hamborg 1. nóvember til að framkvæma morðið. Vinir njósnarans fyrrverandi segja að hér hafi verið á ferð leigmorðingi: Hann hafi verið ráðinn til verksins af ráðamönnum í Kreml, og svo horfið jafnskjótt og hann hafði byrlað Litvinenko banvænan skammt af polonium-210, geislavirku efni, á í tebolla á hótelherbergi í London. 20.1.2007 21:15
Hlakkar til að mæta Attenborough Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra er óhræddur við herferð breskra stjórnvalda gegn hvalveiðum Íslendinga, en verndarar hennar eru Tony Blair forsætisráðherra Bretlands og sjónvarpsmaðurinn David Attenborough. Hann óttast aftur á móti að aðgerðir Bretanna muni ganga af Alþjóðahvalveiðiráðinu dauðu. 20.1.2007 19:15
Hillary Clinton tilkynnir framboð sitt til forseta Hillary Clinton öldungadeildarþingmaður og fyrrverandi forsetafrú hefur tilkynnt framboð sitt til forseta Bandaríkjanna. Hún tók fyrr í dag fyrsta skrefið í áttina að framboði í forsetakosningunum 2008 þegar hún tilkynnti á vefsíðu sinni að hún hefði sett á fót nefnd sem heimilar henni að safna fé til framboðsins. Í yfirlýsingunni segist Clinton ætla að spila til sigurs því kominn sé tími til að binda enda á valdatíð Bush-stjórnarinnar. Clinton er sögð eiga allgóða möguleika á að ná kjöri og ef sú verður raunin yrði hún fyrst kvenna til að gegna þessu valdamesta embætti heims. 20.1.2007 17:18
Elsta kona heims látin Elsta kona í heimi, Julie Winnefred Bertrand, andaðist í gær á elliheimili í Montreal í Kanada 115 ára að aldri. Hún fæddist 16. september 1891. 20.1.2007 11:30
Blæjustúlkur á forsíðu Múslimastúlkur í Bandaríkjunum hafa nú fengið glanstímarit þar sem blæjuburður er skilyrði fyrir því að komast á forsíðuna. Muslim Girl Magazine miðar, eins og nafnið gefur til kynna, á múslimskar táningsstúlkur sem markhóp. Reynslusögurnar í tímaritinu lúta flestar að því hvernig er að vera múslimi í Bandaríkjunum í dag. 19.1.2007 23:37
Egypsk kona látin úr fuglaflensu Egypsk kona lést í dag úr fuglaflensu eftir sex daga sjúkrahúsvist. Warda Eid Ahmed var 27 ára en hún var talin vera með lungnabólgu þegar hún var flutt á landssjúkrahúsið í Kaíró. Warda er ellefti Egyptinn sem deyr úr fuglaflensu. 19 hafa veikst af sjúkdómnum síðan í febrúar á síðasta ári en 8 hafa náð sér aftur. 19.1.2007 22:24
Mega bera kross um hálsinn Starfsmönnum British Airways er nú aftur heimilt að bera kross eða önnur trúartákn í keðju um hálsinn utan klæða. Áður máttu krossar ekki sjást, jafnvel þó að höfuðblæjur múslimakvenna og túrbanar hafi verið leyfilegir. 19.1.2007 22:04
Rekin úr Big brother vegna rasisma Breska sjónvarpsstjarnan Jade Goody, sem sökuð hefur verið um kynþáttahatur og einelti, var send heim úr breska raunveruleikasjónvarpsþættinum Big brother í kvöld. Legið hefur við milliríkjadeilum vegna áreitni hennar og rifrilda við indverska kvikmyndaleikkonu í þættinum. 19.1.2007 21:41
Minnismerkið um óþekktu vændiskonuna Rauðljósahverfið í Amsterdam mun bæta fjöður í hatt sinn á næstunni: til stendur að reisa þar styttu til heiðurs vændiskonum um víða veröld. Styttan verður líkast til afhjúpuð í lok mars. 19.1.2007 19:51
66 manns saknað eftir ferjuslys á Indlandi Óttast er um 66 manns á Suður-Indlandi eftir að ferja sökk á leið sinni yfir stórfljót. Fólkið var flest á leið heim frá fjölmennri pílagrímshátíð við ána Ganges. Kafarar og þyrlur hafa hjálpað til við leitina í dag en leit hefur verið frestað vegna myrkurs. Áfram verður leitað á morgun. 19.1.2007 19:23
Sjálfhjálparhvötin sterkust Engin hvöt er sterkari í dýrum jarðarinnar en að reyna að halda sér á lífi hvað sem það kostar. Þrjú nýleg dæmi af jafnmörgum ferfætlingum sýna okkur það. 19.1.2007 19:00
Ritstjóri skotinn til bana Talið er að öfgasinnaður þjóðernissinni hafi verið að verki þegar ritstjóri tyrknesks dagblaðs var skotinn til bana fyrir utan skrifstofur blaðsins í Istanbúl í dag. Ritstjórinn var á síðasta ári dæmdur fyrir að sýna tyrknesku þjóðinni vanvirðingu með skrifum sínum um fjöldamorð Tyrkja á Armenum í lok heimsstyrjaldarinnar fyrri. 19.1.2007 18:45
41 sagður hafa látist í óveðrinu Á fimmta tug manna hafa látið lífi í fárviðri sem geisað hefur í Evrópu undanfarinn sólarhring. Samgöngur í álfunni eru í uppnámi og rafmagnsleysi hefur bitnað á milljónum manna. Íslendingur búsettur í Tékklandi segir að tré hafi rifnað upp með rótum í nágrenni við hann í mesta ofsanum. 19.1.2007 18:30
Allsherjarverkfall boðað í Líbanon Stjórnarandstaðan í Líbanon, með Hisbollah í fararbroddi, ætlar að boða til allsherjarverkfalls í landinu í næstu viku. Hisbollah hefur reynt að velta ríkisstjórninni með verkföllum og mótmælum frá því í desemberbyrjun en þokast lítið. Sjíahreyfingarnar Hisbollah og Amal og kristinn flokkur undir stjórn Michels Aoun krefjast neitunarvalds í ríkisstjórninni. 19.1.2007 17:51
Ekkert fækkað í breskum hersveitum í Írak Yfirmaður breska heraflans í Írak segir að liðsafli Breta í landinu verði óbreyttur að minnsta kosti þetta ár, og vel hugsanlega fram í 2008. Þetta er á skjön við fréttir breskra fjölmiðla um að ætlunin sé að fækka breskum hermönnum um nær 3000 fyrir maílok. 19.1.2007 15:49
Ísraelar skila skattfé Ísaraelar hafa afhent Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, 100 milljónir dollara eða um sjö milljarða króna af skattfé sem Palestínumenn eiga með réttu. Ísraelar innheimta skatta fyrir Palestínumenn, en hættu að gera skil á þeim þegar Hamas tók við völdum á heimastjórnarsvæðunum, og Bandaríkin og Evrópusambandið hættu að styrkja heimastjórnina. 19.1.2007 15:26
Fáfróðir um helförina Meira en fjórðungur ungra Breta veit ekki hvort helför Gyðinga í síðari heimsstyrjöldinni átti sér stað. Leiðtogum Gyðinga er brugðið við þetta. Þeir geta þó huggað sig við að aðeins eitt prósent telur helförina vera sögusögn. Fjórir af hverjum fimm voru líka hlynntir því að helfararinnar yrði minnst á árlegum minningardegi. 19.1.2007 14:35
Skótauinu er kastað Síðasti dagur vetrarþings Taívans leystist upp í slagsmál eftir að stjórnarþingmaður henti skónum sínum í ræðumann. Þingmenn fóru þá að hrinda, ýta og slá frá sér. Í byrjun réðist hópur stjórnarþingmanna að ræðumanni til þess að koma í veg fyrir kosningu um mannabreytingar í raforkunefnd þingsins. Stjórnarandstöðuþingmenn hlupu þá allir sem einn að verja sinn mann og von bráðar var skónum kastað. 19.1.2007 11:24
Kínverjar í stjörnustríð Bandaríkin, Ástralía og Kanada hafa öll gagnrýnt nýjustu viðbótina við vopnabúr Kínverja, sem virðast vera að búa sig undir stjörnustríð. Tilraun sem Kínverjar gerðu í vikunni gekk út á það að skjóta niður gamlan veðurathugunargervihnött úti í geimnum. 18.1.2007 22:54
3,8 milljarðar og 340 kíló af gulli fyrir kókaín Kólumbíska lögreglan telur sig hafa fundið stærsta kókaínsjóð sem nokkurn tímann hefur verið gerður upptækur í heiminum. Lögreglumenn fundu peninga að jafnvirði 3,8 milljarða íslenskra króna og 340 kíló af hreinu, 24 karata gulli. Peningarnir tilheyra höfuðpaur Norte del Valle-fíkniefnahringsins sem var upprættur í vikunni. 18.1.2007 22:18
Hermaður játaði á sig morð Bandarískur landgönguliði sem skaut 10 byssukúlum í gamlan, íraskan mann og dró hann út úr húsi sínu um miðja nótt játaði í kvöld á sig morð og aðrar ákærur á hendur honum. Atvikið átti sér stað í apríl 2006 í Hamdania í Írak. Fórnarlambið var nágranni manns sem hermenn ætluðu að ná vegna gruns um hryðjuverk. 18.1.2007 21:53