Fleiri fréttir

Samkomulag um samsteypustjórn í Austurríki

Tveir stærstu flokkarnir í Austurríki, Sósíaldemókratar og Þjóðarflokkurinn, náðu í dag samkomulagi um myndun samsteypustjórnar í landinu. Alfred Gusenbauer, leiðtogi sósíaldemókrata, verður samkvæmt því kanslari Austurríkis í stað Wolfgangs Schüssels.

Blair ver einkaskólagöngu

Tony Blair, hefur varið þá ákvörðun fyrrverandi menntamálaráðherra síns að senda eitt af börnum sínum í einkaskóla. Ruth Kelly er nú ráðherra sveitarstjórnamála. Blair, sem sjálfur sendi sín börn í einkaskóla, sagðist styðja rétt foreldra til þess að ákveða í hvaða skóla þau fari.

Lokað fyrir rússneska olíu til Evrópu

Evrópusambandið hefur krafið Rússa og Hvít-Rússa um tafarlausar skýringar á því að í nótt var hætt að dæla olíu frá Rússlandi til Póllands og Þýskalands. Leiðslan liggur um Hvíta-Rússland.

Mannréttindadómstóllinn að kikna undan álagi

Mannréttindadómstóllinn í Strasbourg er að kikna undan heilu fjalli af málum sem eru á biðlista. Forseti dómstólsins segir að hann brjóti sjálfur mannréttindi, með því að afgreiða mál ekki tímanlega. Það hefur tekið upp undir ellefu ár að ljúka sumum málum.

Wielgus sagði af sér erkibiskupstigninni

Pólski biskupinn Stanislaw Wielgus, sem vígja átti sem erkibiskup Varsjárborgar í dag, sagði af sér embætti skömmu fyrir athöfnina. Mikil reiðialda hefur farið um Pólland eftir að í ljós kom að biskupinn var á sínum tíma á mála hjá leynilögreglu kommúnista.

Hyggjast einkavæða olíuvinnsluna

Íraska ríkisstjórnin, með aðstoð bandarískra embættismanna, er sögð vinna að setningu laga sem kveða á um að olíuvinnsla í landinu verði einkavædd. Slík lög gætu fært vestrænum olíufélögum einkaleyfi á olíuvinnslu í áratugi.

Framdi morð í afbrýðiskasti

Danskur karlmaður á fertugsaldri hefur viðurkennt að hafa banað fyrrverandi sambýliskonu sinni og tveimur börnum þeirra, í bænum Sønderborg á Suður-Jótlandi í gær.

Ísraelar sagðir íhuga beitingu kjarnavopna

Ísraelar eru sagðir æfa árásir á kjarnorkuvinnslustöðvar Írana með atómsprengjum til að koma í veg fyrir að þeir geti haldið áfram auðgun úrans. Ísraelsk stjórnvöld neituðu í dag að slíkt væri í bígerð en Íranar segjast munu hefna slíkra árása grimmilega.

Vilja ekki senda fleiri hermenn til Íraks

Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar bandaríska þingsins sagði í dag að það verði skoðað nákvæmlega, ef Bush forseti ákveður að senda fleiri hermenn til Íraks. Hún gekk þó ekki svo langt að segja að þingið muni neita forsetanum um það fé sem til þarf.

Aðstoðarmenn Saddams hengdir í næstu viku

Tveir aðstoðarmenn Saddams Hussein verða teknir af lífi í næstu viku, að sögn talsmanns írösku ríkisstjórnarinnar. Þeir voru dæmdir til dauða ásamt Saddam, fyrir morðin á 148 sjía múslimum á áttunda áratugnum.

Ísraelar neita áformum um kjarnorkuárás

Ísraelska utanríkisráðuneytið neitar því að ísraelar hyggist gera kjarnorkuárás á kjarnorkuver í Íran, en hvorki forsætisráðherra né öryggismálaráðherra vilja tjá sig um frétt Sunday Times þess efnis. Íranar hóta hinsvegar grimmum hefndum ef Ísraelar gera árás.

Efast um meiri hollustu lífrænnar ræktunar

Landbúnaðarráðherra Bretlands segir að engar órækar sannanir séu fyrir því að lífrænt ræktuð matvæli séu hollari en önnur. Sala á lífrænt ræktuðum matvælum jókst um þrjátíu prósent í landinu á síðasta ári.

Hitabeltissjúkdómar færast norðar

Malaría er að breiðast út á Ítalíu, sem og aðrir hitabeltissjúkdómar að sögn ítölsku umhverfisstofnunarinnar Legambiente. Stofnunin segir að með hlýnandi loftslagi séu hitabeltissjúkdómar að færast norðureftir. Margir þessara sjúkdóma eru banvænir, til dæmis kostar malaría um eina milljón manna lífið árlega.

Tuttugu látnir eftir fangauppreisn

Tuttugu fangar létu lífið í miklum óeirðum í fangelsi í El Salvador í gær. Átökin hófust þegar nokkrir félagar í einni af klíkum fangelsins réðust á fangavörð og síðan á aðra fanga.

100 högg fyrir hórdómsmyndir

Íranskur maður hefur verið húðstrýktur opinberlega fyrir að taka af sér videomyndir í samförum við fjölda giftra kvenna. Bósinn mátti þola eitthundrað vandarhögg. Lögreglan frétti af ástarleikjum hans frá mönnum sem hann hafði sýnt myndirnar.

Barak aftur í ísraelska pólitík

Ehud Barak, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, hefur tilkynnt að hann muni bjóða sig fram til formanns í verkamannaflokknum, gegn Amir Peretz, sem nú er formaður og varnarmálaráðherra í ríkisstjórn Ehuds Olmerts. Peretz hefur hríðfallið í vinsældum eftir að hernum tókst ekki að ráða niðurlögum Hizbolla, í stríðinu í Líbanon.

Ákvörðun um aftökurnar liggur enn ekki fyrir

Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær Barzan al-Tikriti, fyrrverandi yfirmaður írösku leyniþjónustunnar og hálfbróðir Saddams Hussein, og Awad al-Bander dómari verði hengdir en þeir voru dæmdir til dauða með Saddam.

Olíuvinnsla í Írak verði einkavædd

Íraska ríkisstjórnin, með aðstoð bandarískra embættismanna, er sögð vinna að setningu laga sem kveða á um að olíuvinnsla í landinu verði einkavædd. Þessar fréttir eru vatn á myllu þeirra sem sögðu á sínum tíma að innrásin í Írak hafi á sínum tíma verið gerð til að ná yfirráðum yfir hinum miklu olíulindum landsins.

Wielgus sagði af sér

Pólski biskupinn Stanislaw Wielgus sem vígja átti sem erkibiskup Varsjárborgar í dag hefur sagt af embætti eftir að í ljós kom að hann var á sínum tíma á mála hjá leynilögreglu kommúnista. Tilnefningin hans hefur af þeim sökum valdið miklum deilum í landinu.

Íhuga að beita kjarnavopnum

Ísraelar eru sagðir íhuga árásir á kjarnorkuvinnslustöðvar Írana með atómssprengjum og koma þar með í veg fyrir að þeir geti haldið áfram auðgun úrans. Frá því að Bandaríkjamenn vörpuðu sprengjum sínum á Hiroshima og Nagasaki árið 1945 hefur slíkum vopnum aldrei verið beitt í hernaði.

Dani myrti fyrrverandi sambýliskonu og tvö börn

32ja ára danskur maður var handtekinn í Sønderborg í Danmörku í dag grunaður um morðin á fyrrverandi sambýliskonu sinni og tveimur börnum þeirra. Börnin voru fjögurra og sex ára. Ódæðið átti sér stað að heimili mæðginanna en málið hefur vakið mikinn óhug í Danmörku.

Drekarnir leyfðir á ný

Flugdrekaflug hefur verið leyft á ný í Punjab-héraði í Pakistan, fyrir hina árlegu Basant vorhátíð í febrúar. Strangar reglur munu hins vegar gilda um keppnina þar sem glerhúðaðir eða stálstyrktir drekastrengir hafa á liðnum árum valdið alvarlegum meiðslum og jafnvel gert fólk höfðinu styttra.

Nýársbarnið ekki af réttu þjóðerni

Auglýsingaherferð leikfangaverslunarinnar Toys "R" Us hefur snúist í höndunum á versluninni eftir að nýársbarni New York borgar var neitað um verðlaun í keppni sem verslunin efndi til á þeim forsendum að kínversk móðir barnsins hafi ekki dvalarleyfi í Bandaríkjunum.

Abbas bannar sveitir Hamas

Spennan á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna jókst enn í dag þegar Makmúd Abbas forseti lýsti því yfir að Hamas-samtökunum væri óheimilt að starfrækja eigin öryggissveitir.

Frábiður sér gagnrýni

Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, hótaði í dag að endurskoða samskipti við þau ríki sem gagnrýnt hafa aftöku Saddams Hussein, þar sem um íhlutun í írösk innanríkismál sé að ræða. George Bush hyggst senda liðsauka til Íraks en demókratar, sem nú eru í meirihluta á Bandaríkjaþingi, leggjast gegn því.

Þýskir flugumferðarstjórar hóta verkfalli

Flugumferðarstjórafélag Þýskalands sagði í dag að verkfall væri líklegt innan 100 klukkustunda, eða fjögurra sólarhringa. Flugmálastjórn Þýskalands Deutsche Flugsicherung boðaði hins vegar til frekari samningaviðræðna og hyggst kalla til sáttasemjara til að leysa deiluna. Verkfall myndi þýða tafir fyrir hundruð þúsunda ferðalanga.

13 létust í demantanámu

Minnst 13 manns létust þegar demantanáma hrundi í Kongó í gær. 13 lík fundust í gær en sveitarstjórinn segir að verið sé að leita í rústunum, hvort einhverjir fleiri hafi lent í slysinu. Þrír komust lífs af í slysinu en náman er 15 metra djúpur, opinn skurður.

Tvöfalda liðsstyrk öryggissveitanna

Öryggissveitir undir stjórn ríkisstjórnarflokksins Hamas í Palestínu segjast ætla að tvöfalda liðsstyrk sinn, upp í 12 þúsund manns, aðeins nokkrum stundum eftir að forseti Palestínu, Mahmoud Abbas, sagði sveitirnar ekki samræmast lögum. Talmaður sveitanna hvatti alla "ábyrga borgara" í dag til að búa sig undir að ganga í sveitirnar.

Ríkisstjórninni enn mótmælt í Líbanon

Stjórnarandstaðan í Líbanon, með Hisbollah í broddi fylkingar, boðar til næsta skrefs í baráttu sinni gegn sitjandi ríkisstjórn. Í næstu viku ætlar stjórnarandstaðan að lama landið með verkföllum og mótmælum, meðal annars með setuverkfalli fyrir utan fjármálaráðuneytið á þriðjudagsmorgun vegna nýrra fjárlaga.

Einn Sómali látinn í skotbardögum við lögreglu

Einn maður lést í skotbardögum milli sómalskra lögreglumanna og hóps manna sem mótmæltu veru eþíópískra hermanna í Mógadisjú í Sómalíu. Stjórnvöld segja lögreglu hafa svarað skothríð frá mótmælendunum en einn hafi látist úr hópi mótmælendanna. Mótmælendur hafa brennt hjólbarða og kastað grjóti í höfuðborginni í dag.

Indónesíska vélin enn ófundin

Enn hefur hvorki fundist tangur né tetur af flaki indónesísku farþegaþotunnar sem hvarf sporlaust á nýársdag á leiðinni frá Jövu til Sulawesi með 102 farþega innanborðs.

Lögreglukona stungin til bana í Bretlandi

Bresk lögreglukona fannst látin á heimili sínu í Leicestershire og hafði verið stungin til bana, ásamt manni sem er talinn hafa verið kærasti hennar, að sögn lögreglu. Krufning sýndi að bæði létust af stungusárum. Lögreglan braust inn í íbúð konunnar eftir að fjölskylda hennar lýsti áhyggjum af því ekki náðist samband við hana.

Demókratar andvígir fjölgun hermanna

Demókratar, sem nú eru í meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings í fyrsta sinn í tólf ár, leggjast eindregið gegn því að fjölgað verði í herliði Bandaríkjanna í Írak eins og búist er við að George Bush forseti leggi til í næstu viku.

Offitulyf fyrir hunda komið á markaðinn

Það er á allra vitorði að Bandaríkjamenn eru feitasta þjóð veraldar en hitt vita færri að hið sama gildir um bandaríska hunda. Rannsóknir sýna að allt að þriðjungur hunda í landinu er of þungur og fimm prósent glíma við sjúklega offitu.

Veðja á brúðkaup 19. júlí

Bretar veðja á að konungurinn tilvonandi William Bretaprins, muni ganga að eiga unnustu sína Kate Middleton þann 19. júlí næstkomandi. Veðlánarinn William Hill er hættur að taka veðmálum um þessa dagsetningu eftir fjölmörg stór veðmál þessa efnis. Hann gæti tapað tæplega þremur milljónum ef dagsetningin reynist rétt.

„Ekki setja manneskju í þvottavélina.“

Bandarískt félag sem sérhæfir sig í því að berjast gegn lögsóknum hefur safnað saman lista yfir fáránlegustu viðvaranir á vörum á síðasta ári. 150 viðvaranir bárust til félagsins og sú sem bar sigur úr býtum hljóðaði svo: „Ekki setja manneskju í þvottavélina."

Bush hættur að nudda aðra þjóðarleiðtoga

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur lofað að gefa Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, ekki fleiri nudd. Frægt er orðið þegar Bush tók sig til á leiðtogafundi í fyrra og labbaði upp að Merkel og fór að nudda á henni axlirnar.

Braust inn og kláraði barinn

Þjófur í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum skildi eftir fleiri vísbendingar en hafði ætlað sér því hann fékk sér nokkra drykki úr barnum í húsinu sem hann braust inn í og drapst því næst áfengisdauða á stofugólfinu.

Ban Ki-moon ræðir ástandið í Darfur

Ban Ki-moon hitti í dag sérstakan erindreka Sameinuðu þjóðanna í Darfur sem og fulltrúa Afríkusambandsins til þess að reyna að blása lífi í friðarviðræður í Darfur. Eftir fundinn hvöttu þeir til þess að einhugur yrði varðandi á meðal aðila öryggisráðsins um hvað ætti að gera í Darfur.

27 láta lífið í aurskriðum í Brasilíu

Að minnsta kosti 27 létu lífið í aurskriðum í suðausturhluta Brasilíu í þessari viku og talið er að allt að 11 þúsund manns hafi þurft að flýja heimili sín. Varnarmálaráðuneytið þar í landi sagði að enn væri verið að leita að fórnarlömbum og því gæti tala látinna aukist töluvert.

Heimatilbúnar auglýsingar í Super Bowl

Tímaritið TIME virðist hafa haft rétt fyrir sér þegar það valdi Þig, eða hinn virka netnotanda, sem persónu ársins því ansi margar auglýsingar í Super Bowl, sem er úrslitaleikurinn í ameríska fótboltanum, verða gerðar af sigurvegurum ýmissa keppna sem auglýsendur standa fyrir. Þannig getur hver sem er tekið þátt í keppni um Chevrolet og Doritos auglýsingar og verða þær sem bera sigur úr býtum sýndar í hálfleik.

Sjá næstu 50 fréttir