Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gríðarleg fjölgun meðal útskrifaðra kennara hér á landi Á fimmta hundrað kennarar hafa útskrifast úr háskólum hér á landi undanfarin tvö ár. Það eru tæplega jafnmargir og árin fimm á undan. Menntamálaráðuneytið segir átaki stjórnvalda um fjölgun kennara að þakka. 24.1.2023 15:20
Útboð vegna snjómoksturs endaði með málaferlum Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur sýknað Akureyrarbæ af kröfum verktaka sem krafðist viðurkenningar á bótaskyldu vegna meintra brota á útboðsskilmálum og verksamningi aðila. Samningurinn var í framhaldi af útboði vegna snjómoksturs og hálkuvarna á Akureyri fyrir árin 2019 til 2022. 24.1.2023 15:11
Oddný Mjöll verður dómari við MDE eftir langa fæðingu Þing Evrópuráðsins kaus í dag Oddnýju Mjöll Arnardóttur dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Oddný Mjöll var ein af þremur sem tilnefnd voru sem dómaraefni af hálfu íslenskra stjórnvalda. Oddný tekur við af Róberti Spanó sem hefur verið fulltrúi Íslands hjá dómstólnum frá 2013. 24.1.2023 15:07
Sanna nýtur mestra vinsælda borgarfulltrúa Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, er sá borgarfulltrúi sem Reykvíkingum finnst hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili. Helstu breytingar á fylgi flokka frá því í kosningunum í fyrravor eru hjá Framsókn og Pírötum. Framsókn fer úr 18,7 prósentum niður í 8,2 prósent. Pírata fara úr 11,6 prósentum upp í 20,4 prósent. 24.1.2023 14:50
Fullyrðingar um hæfi biskups tilraun til að afvegaleiða umræðuna Lögmaður séra Gunnars Sigurjónssonar, fyrrverandi sóknarprests í Digranesprestakalli, hefur dregið umboð og hæfi biskups í efa og kallað eftir úrskurði forseta kirkjuþings. Biskupsritari gefur lítið fyrir fullyrðingar lögmannsins og segir þær tilraun til að afvegaleiða umræðuna. 24.1.2023 13:01
„Þetta voru ungir strákar í blóma lífsins“ Ein erfiðasta og umfangsmesta leit sem lögregla og björgunarsveitir hafa farið í hér á landi var þegar lítil flugvél hvarf í byrjun febrúar 2022. Fjórir voru um borð í vélinni, vanur íslenskur flugmaður og þrír erlendir ferðamenn og áhrifavaldar. Dagana fyrir slysið höfðu þeir ferðast um landið með íslenskum vini sínum, Jóni Ragnari Jónssyni. 24.1.2023 12:10
Ríkissaksóknari og verjendur sammála að annmarkar hafi verið á dómi Landsréttar Hæstiréttur hefur fallist á beiðni verjenda í Rauðagerðismálinu svokallaða að málið fái meðferð fyrir æðsta dómstigi landsins. Lögmaður eins sakborninganna fagnar ákvörðun Hæstaréttar og mikilvægt að Hæstiréttur skoði þá annmarka sem voru á dómi Landsréttar. 24.1.2023 12:01
„Aldrei setið svona stuttan fund á ævinni“ Samningafundi samninganefnda Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er lokið. Nefndirnar funduðu fyrst hvor í sínu lagi áður en sest var niður til fundar. Sá stóð aðeins yfir í skamman tíma. Rétt um eina mínútu. 24.1.2023 11:52
Hádegisfréttir Bylgjunnar Kjarasamningsviðræður og yfirvofandi verkfallsaðgerðir, útlendingafrumvarp og biskup Íslands verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 24.1.2023 11:43
Samningafundur hafinn: „Viðbrögð atvinnurekenda gætu verið margslungin, til dæmis að semja við Eflingu“ Samningafundur Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hófst í húsnæði ríkissáttasemjara í Borgartúni upp úr klukkan 11 í dag. Fyrir fund sagði Sólveig Anna í samtali við fréttastofu að samningaviðræður strandi fyrst og fremst á „þvermóðsku Samtaka atvinnulífsins“ og að „síendurteknar hótanir“ væru merki um örvæntingu. 24.1.2023 11:20
Réðst á samfanga á Hólmsheiði með eggvopni Fangi í fangelsinu á Hólmsheiði réðst í gærkvöldi á samfanga sinn með eggvopni. Hann reyndi að stinga hann í höfuðið en fórnarlambið slapp með skurð á höfðinu. Aðilar málsins tengjast deilum milli tveggja hópa sem fjölmiðlar hafa fjallað um undanfarna mánuði. 24.1.2023 09:07
Bein útsending: Opinn fundur um heimild lögreglu til að bera rafbyssur Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis kemur saman til opins fundar til að ræða heimild lögreglunnar til að bera rafbyssur. 24.1.2023 08:21
Ráðin verkefnastjóri þingflokks Framsóknar Sonja Lind E. Eyglóardóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri þingflokks Framsóknar. Hún hefur starfað sem starfsmaður þingflokksins frá árinu 2020. 24.1.2023 07:17
Falla frá því að fylgjast með og hvetja til öflugrar meðferðar „Þetta er stefnubreyting sem er að verða í heiminum, í Evrópu og Ameríku, og orsakast í grunninn af því að það eru að koma lyf sem eru raunverulegur valkostur vegna offitu, bæði hjá fullorðnum og börnum.“ 24.1.2023 07:03
Lögmaður Gunnars dregur í efa að biskup sé biskup Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður Gunnars Sigurjónssonar, fyrrverandi sóknarprests í Digraneskirkju, hefur sent erindi á Drífu Hjartardóttur, forseta kirkjuþings, þar sem hún óskar eftir því að Drífa úrskurði um hæfi biskups til að taka ákvarðanir um Gunnar. 24.1.2023 06:49
Réðst á leigubílstjóra Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að leigubílstjóri óskaði aðstoðar vegna farþega sem hafði veist að honum með ofbeldi. 24.1.2023 06:15
Gekk matarlaus og svefnlaus að Machu Picchu vegna mótmæla Machu Picchu, einum vinsælasta ferðamannastað Perú, var lokað um helgina vegna yfirstandandi mótmæla gegn nýjum forseta landsins. Íslendingur í Perú segir mótmælin hafa víðtæk áhrif og ljóst að mikill ójöfnuður ríki í landinu. 23.1.2023 23:19
Fimmtíu ár frá upphafi Heimaeyjargossins: Forsetinn á óljósar minningar um áhyggjur og angist Vestmanneyingar minnast í dag fimmtíu ára afmælis Heimaeyjargossins. Forseti Íslands á óljósar minningar um áhyggjur og angist landsmanna þegar gosið hófst. 23.1.2023 22:20
Á hægum batavegi eftir að hafa greinst með dularfullt heilkenni Lembi Seia Sangla, aðstoðarleikskólastjóri á Egilsstöðum, var greind með gífurlega sjaldgæft og nánast óþekkt heilkenni fyrir tveimur árum. Síðan þá hefur hún unnið hörðum höndum að því að ná heilsu á ný. Heilkennið er kallað trismus og lýsir sér þannig að viðkomandi festist í kjálkanum og getur ekki opnað munninn nema takmarkað. Eins ótrúlega og það hljómar má rekja veikindin til tiltölulega hversdagslegrar aðgerðar: tanntöku. 23.1.2023 21:51
Íslenskt símanúmer spilaði lykilþátt í hvarfi 14 ára spænskrar stúlku Óskað var eftir aðstoð íslenskra lögregluyfirvalda í tengslum við hvarf 14 ára unglingsstúlku í Almería á Spáni í síðustu viku. Stúlkan fannst eftir að hafa verið týnd í fjóra daga og var í fylgd með 19 ára konu sem grunuð er um að hafa ætlað að fara með stúlkuna úr landi. 23.1.2023 21:10
Hluti nemenda haldi sig heima og aðrir komi með nesti vegna myglu Niðurstöður úr sýnatökum í Flataskóla í Garðabæ benda til þess að loka þurfi nokkrum rýmum í skólanum til viðbótar vegna myglu. Nemendur í þriðja og sjöunda bekk þurfa að halda sig heima næstu tvo daga og aðrir nemendur þurfa að taka með nesti vegna lokunar mötuneytis skólans. 23.1.2023 20:15
Hálkuvarnirnar fuku af í óveðrinu, landgangur mögulega ónýtur Mikið tjón varð þegar flugvél Icelandair rakst á landgang á Keflavíkurflugvelli í gær, landgangurinn er mögulega ónýtur og vængur vélarinnar skemmdur. Upplýsingafulltrúi Isavia segir að atvikið verði rannsakað. Veðurofsinn hafi verið slíkur að hálkuvarnir hafi fokið af vellinum í gær. 23.1.2023 20:01
Bein útsending: Minningarviðburður vegna eldgossins á Heimaey árið 1973 Minningarviðburður vegna eldgossins á Heimaey árið 1973 hefst klukkan 19:30 í Eldheimum í Vestmannaeyjum. Sýnt verður frá viðburðinum í beinu streymi hér fyrir neðan. 23.1.2023 19:15
Lögreglan hefur nú heimild til að nota rafbyssur Ný reglugerð dómsmálaráðherra um valdbeitingu lögreglumanna og meðferð og notkun valdbeitingartækja og vopna var birt í Stjórnartíðindum í dag og tekur þegar gildi. Helst breytingin frá fyrri reglugerð er heimild til handa lögreglunni til að nota svokölluð rafvarnarvopn, rafbyssur í daglegu máli. 23.1.2023 19:09
Skilorðsbundin refsing fyrir vörslu grófs teiknaðs barnakláms Karlmaður var á dögunum dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa haft í vörslum sínum þónokkuð magn teiknaðs barnaníðsefnis. Í dómi segir að efnið hafi verið af afar grófu tagi. 23.1.2023 18:17
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Efling boðar til ótímabundinna verkfalla hótelstarfsmanna eftir tvær vikur, samþykki þrjú hundruð félagsmenn að leggja niður störf. Formaður félagsins væntir þess að fleiri fari í verkfall fallist atvinnurekendur ekki á kröfur þeirra. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 23.1.2023 18:07
„Þetta er upphafið að miklu ítarlegra plani“ Verkfallsaðgerðir sem lagðar hafa verið fyrir hótelstarfsmenn sem eru í Eflingu er fyrsta skrefið í ítarlegu plani til að ná fram kjarasamningum að sögn formanns Eflingar. Náist ekki samningar megi gera ráð fyrir að fleiri stéttir muni fara í verkfall sem geti lamað höfuðborgarsvæðið. 23.1.2023 17:32
Læknar geti ekki vottað um dagsflensu starfsmanna frekar en aðrir Læknar á heilsugæslustöðvum Höfuðborgarsvæðisins gáfu út tæplega 150 þúsund vottorð árið 2021. Læknar segja vinnumarkaðinn gera kröfu um afhendingu vottorðs um veikindi við of lítið tilefni og vottorðsútgáfur valda miklu óþörfu álagi. 23.1.2023 17:08
Bjarni vill gjalda varhug við hatursorðræðunámskeiði Katrínar Ekki var að heyra á Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, að hann muni styðja tillögu sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vill leggja fyrir þingið, að opinberir starfsmenn og kjörnir fulltrúar verði skikkaðir til að sitja sérstakt námskeið um hatursorðræðu. 23.1.2023 16:23
Parainflúensa finnst nú í öllum landshlutum Bovine Parainflúensa 3 veiran (BPIV3) greindist fyrst hér á landi á einum bæ á Norðausturlandi snemma haustið 2022. Ekki var vitað hvort um væri að ræða einstakt tilfelli eða hvort veiran væri dreifð í kúastofninum. Eftir rannsókn Matvælastofnunar (MAST) er komið í ljós að veiran finnst í öllum landshlutum. 23.1.2023 16:18
Á fjórða tug fjár brann inni í miklum eldsvoða í Ásahreppi Bóndi á Syðri-Hömrum í Ásahreppi í Rangárvallasýslu syrgir 35 kindur sem brunnu inni í fjárhúsi í gærkvöldi. Fjölmennt lið slökkviliðs sinnti útkallinu. 23.1.2023 16:12
Morðið í Rauðagerði verður tekið fyrir í Hæstarétti Hæstiréttur hefur fallist á beiðni verjenda í Rauðagerðismálinu svokallaða að málið fái meðferð fyrir æðsta dómstigi landsins. Þetta herma heimildir fréttastofu. 23.1.2023 14:54
Félagsmenn greiða atkvæði um verkfall á sjö hótelum í Reykjavík Kjörstjórn stéttarfélagsins Eflingar hefur auglýst almenna leynilega rafræna atkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar á starfsstöðvum tveggja hótelrekanda. Atkvæðagreiðslan nær til sjö hótela sem öll eru staðsett í Reykjavík. 23.1.2023 14:21
Skoða að selja flugstöðina á Þingeyri Isavia skoðar nú að selja flugstöðina á Þingeyri. Flugvöllurinn þar er notaður sem varaflugvöllur fyrir Ísafjarðarflugvöll en Ísafjarðarbæ hefur verið boðið að kaupa stöðina. Sveitarfélagið lýsir yfir áhyggjum sínum af flugsamgöngum til svæðisins. 23.1.2023 13:50
Líkfundur í Grafarvogi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna líkfundar við Gufunesveg í Grafarvogi í Reykjavík í morgun. 23.1.2023 12:57
Táknrænt að veðrið og samgönguvandi séu eins og fyrir fimmtíu árum Eyjamenn minnast þess í dag að hálf öld er liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir óveður gærdagsins svipa til veðursins sem var þann 22. janúar árið 1973, með tilheyrandi samgönguvanda sem sé nokkuð táknrænt. 23.1.2023 12:43
Icelandair segir að ekki hafi verið hægt að sjá aðstæðurnar fyrir Óveðrið og óvenju mikil hálka á Keflavíkurflugvelli í gær réði því að flugvél Icelandair losnaði af festingum og rakst í landgang á vellinum að sögn framkvæmdastjóra rekstrarsviðs. Flugfarþegar hafi lengst þurft að bíða í tíu tíma í vélunum í gær vegna veðursins. Ekki hafi verið hægt að sjá aðstæðurnar fyrir. 23.1.2023 12:08
Bara útlendingafrumvarp á dagskrá: „Alveg ljóst að margir hyggjast taka til máls“ Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra er eina málið á dagskrá á fyrsta þingfundi ársins í dag og forseti Alþingis gerir jafnvel ráð fyrir að þannig verði það áfram í vikunni. Það stefnir í mikil átök en þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa sagt að frumvarpið megi ekki samþykkja óbreytt. 23.1.2023 12:01
Hefðu ekki getað komið í veg fyrir lokun Reykjanesbrautar Starfshópur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir að loka varð Reykjanesbraut vegna veðurs í desember. Fleiri tiltækar vinnuvélar hefðu þó getað stytt tímann sem var lokað og betur hefði mátt standa að snjómokstri. Innviðaráðherra mun veita Vegagerðinni heimild til að færa ökutæki við snjómokstur. 23.1.2023 11:31
Hádegisfréttir Bylgjunnar Nýtt þing, gosafmæli, vottorðafargan og vandræðagangur á Keflavíkurvelli verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 23.1.2023 11:23
Erlendum burðardýrum sleppt með engan pening eða síma Dæmi er um að einstaklingum sem dæmdir hafa verið fyrir fíkniefnainnflutning sé sleppt eftir afplánun með engan pening eða síma. Formaður félags fanga kallar eftir breytingum á kerfinu og vill að þessir einstaklingar fái að afplána dóm sinn með samfélagsþjónustu. Fangarnir séu fórnarlömb mansals en engir höfuðpaurar. 23.1.2023 11:05
Hundrað kíló af kókaíni eða tíu? Aðalmeðferð í einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar heldur áfram í dag þegar lögreglumenn sem komu að rannsókn málsins og hollenskir tollverðir gefa skýrslu. Verjendur munu leggja áherslu á að ekki sé hægt að færa sönnur á að lagt hafi verið hald á hundrað kíló af kókaíni. 23.1.2023 10:36
Eyjamenn minnast hálfrar aldar afmælis eldgossins Hálf öld er í dag, 23. janúar, liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey árið 1973. Gosafmælisins er minnst með margvíslegum hætti í Vestmannaeyjum og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækja Eyjamenn. 23.1.2023 09:39
„Þetta er Golíat sem við erum að berjast á móti“ Gróft kynferðislegt orðalag, hómófóbía og illar áeggjanir grassera meðal unglinga í skjóli nafnleyndar á samfélagsmiðlum, að sögn tíundu bekkinga og starfsmanns félagsmiðstöðvar. Hann segir krakka leita mikið til starfsmanna vegna óheilbrigðra netsamskipta en starfsfólk eigi við ofurefli að etja. 23.1.2023 07:00
Útlendingafrumvarpið eina þingmálið á dagskrá Alþingi kemur saman á ný í dag og hefst þingfundur klukkan 15. Á dagskrá er óundirbúinn fyrirspurnartími og önnur umræða um útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. 23.1.2023 06:54