Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekki viss um að heimilislausir hafi ekki vitað af opnun skýla Aldrei kom annað til greina en að halda neyðarskýlum borgarinnar fyrir heimilislausa opnum í óveðri sem gerði um helgina, að sögn formanns borgarráðs. Hann segir leitt ef upplýsingar um opnunartíma skýlanna hafi ekki komist til skila en efast um að heimlislausir hafi ekki vitað af honum. 19.12.2022 10:15
Veðurvaktin: Loka Reykjanesbrautinni á ný Reykjanesbraut hefur verið lokað og öllum flugferðum Icelandair til Evrópu í fyrramálið verið aflýst vegna veðurs. 19.12.2022 09:58
Fylgdarakstur gengið brösulega og búast við að lokanir standi lengi Allar aðalleiðir á suðvesturhorni landsins eru lokaðar vegna veðurs og ófærðar og sama á við víðar á landinu, á Vesturlandi, Vestfjörðum og sunnan Vatnajökuls. 19.12.2022 09:46
Skoði hvort borgin kaupi eigin snjóruðningstæki Formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar segist vilja láta skoða hvort skynsamlegt sé fyrir borgina að festa kaup á eigin snjóruðningstæki til að hægt verði að ryðja húsagötur fyrr. Til stendur að fara í húsagöturnar í dag áður en bætir í snjó eða hann verður að klaka. 19.12.2022 09:21
Ævintýraleg helgi að baki hjá Þorbirni: „Þetta var bara endalaust“ Steinar Þór Kristinsson, frá björgunarsveitinni Þorbirni á Grindavík, telur að fjölmargir ferðamenn hafi misst af flugferðum af landi brott um helgina. Fleiri hundruð manns var komið til bjargar. „Þetta var bara endalaust,“ segir Steinar Þór. 19.12.2022 09:09
Öllu innanlandsflugi og tugum flugferða til og frá Keflavík aflýst Búið er að aflýsa öllu innanlandsflugi í dag og tugi flugferða til og frá Keflavíkurflugvelli vegna veðurs í dag. 19.12.2022 09:08
Mannlausir bílar tefja fyrir mokstri og sumir troða sér í gegnum lokun Mjög blint er á Suðurnesjum, skafrenningur og hávaðarok. Formaður Björgunarsveitarinnar Suðurnes hvetur ökumenn til að virða lokanir. Ekið er með bíla í kippum á milli Reykjanesbæjar og höfuðborgarsvæðisins. 19.12.2022 08:28
„Löng helgi hjá björgunarsveitum á Suðurnesjum“ Björgunarsveitarfólk á Suðurnesjum var kallað út snemma í morgun til að sinna ýmsum verkefnum tengdu óveðrinu sem nú gengur yfir landið. 19.12.2022 07:38
Ár alvarlegra líkamsárása og upplýsingaóreiðu hjá lögreglunni Mikil aukning hefur orðið í alvarlegum ofbeldisbrotum hér á landi frá síðustu árum. Lögreglan segir almenning tilbúnari til að grípa í og beita hættulegum vopnum. Hún hefur þá sjaldan staðið í jafn ströngu og á liðnu ári. Við skulum líta yfir farinn veg. 19.12.2022 07:01
Átta flugferðum aflýst í nótt Átta flugferðum hingað til lands hefur verið aflýst í nótt vegna veðursins sem gengur yfir, þar á meðal öllu Ameríkuflugi, ef undan er skilin flugvél Icelandair frá Newark í New York. 19.12.2022 06:47
Hellisheiði og Reykjanesbraut báðar lokaðar Óveður gengur nú yfir landið og eru gular viðvaranir í gildi víða og appelsínugul viðvörun í gildi á Suðausturlandi. 19.12.2022 06:43
Ógnaði nágranna með skóflu eftir deilur um rutt bílastæði Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna deilna nágranna um bílastæði sem búið var að ryðja við heimili þeirra í hverfinu 221 í Hafnarfirði í gær. 19.12.2022 06:08
Birgir fundaði með talíbönum í Afganistan Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins er fyrsti erlendi stjórnmálamaðurinn til að heimsækja talíbana síðan þeir tóku völd í águst. Hann segir mikilvægt að alþjóðasamfélagið ræði við talíbana, annars muni það aðeins bitna á almenningi. Birgir hvatti ríkisstjórn talíbana til að virða mannréttindi. 18.12.2022 23:30
„Vindurinn verður ótrúlega mikill“ Ekkert ferðaveður verður á Suðausturlandi á morgun. Vindhviður geta farið upp í fimmtíu metra á sekúndu og óvissustig Almannavarna tekur gildi í fyrramálið. „Mjúk lokun“ tekur gildi á Hellisheiði og í Þrengslum klukkan fjögur í nótt. 18.12.2022 22:10
Pólverjar um þriðjungur útskriftarnema frá Fisktækniskólanum Tæplega þriðjungur nemenda sem útskrifuðust úr Fisktækniskóla Íslands í vikunni sem leið eru Pólverjar. Rekstrarstjóri fiskvinnslu í Grindavík segir fiskvinnsluna ekki geta verið án erlends vinnuafls. Pólverjarnir eru hæstánægðir með námið sem að hluta var kennt á pólsku. 18.12.2022 20:45
Syngjandi starfsmenn á Kirkjuhvoli á Hvolsvelli Það skortir ekkert á hæfileika starfsmanna hjúkrunar- og dvalarheimilisins Kirkjuhvols á Hvolsvelli þegar hljóðfæraleikur og söngur er annars vegar, því á aðventunni skemmtir starfsfólk heimilisfólki með söng og spili á sérstökum kaffihúsa jólatónleikum. 18.12.2022 20:07
Óvissustig Almannavarna vegna veðurs Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna veðurs, á morgun mánudaginn 19. desember. 18.12.2022 19:45
Heimilislausir á Granda fengu snemmbúna jólagjöf á óveðurshelgi Heimilislaus maður segir að jólin hafi komið snemma um helgina í neyðarskýlinu á Granda. Eftir að notendur þess sendu út neyðarkall hafi samfélagið tekið sig til og gefið mönnunum rúmar hundrað þúsund krónur, eitthvað sem þeir hafa ekki upplifað oft áður. 18.12.2022 18:47
Garðvegur lokaður: Færð um Ásbrú og Innri-Njarðvík mjög slæm Færð um Ásbrú og Innri-Njarðvík er mjög slæm. Garðvegur verður lokaður í einhvern tíma vegna snjómoksturs. Á svæðinu er enn mjög þungfært. 18.12.2022 18:23
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Heimilislaus maður segir að jólin hafi komið snemma um helgina í neyðarskýlinu á Granda. Eftir að notendur þess sendu út neyðarkall hafi samfélagið tekið sig til og gefið mönnunum rúmar hundrað þúsund krónur, eitthvað sem þeir hafa ekki upplifað oft áður. 18.12.2022 18:01
Allt tiltækt lið Reykjavíkurborgar að störfum Allt tiltækt lið Vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar er að störfum við snjómokstur. Stofn- og tengibrautir eiga að vera færar en safngötur eru margar ófærar í efri byggðum. Ekki er gert fyrir úrkomu á höfuðborgarsvæðinu næstu daga. 18.12.2022 17:50
Harpa rýmd vegna bilunar á úðunarkerfi Harpa var rýmd nú rétt í þessu vegna bilunar á úðunarkerfi. Gestir á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar þurftu að yfirgefa Eldborgarsalinn. 18.12.2022 17:01
Alvarlegt bílslys við Vík í Mýrdal Alvarlegt umferðarslys varð á þjóðvegi eitt fyrir stundu við Reynisfjall skammt frá Vík í Mýrdal þegar ekið var á gangandi vegfaranda. Lögregla er við störf á vettvangi ásamt öðrum viðbragðsaðilum og var hinn slasaði fluttur með þyrlu Landhelgisgæslu á Landspítala. 18.12.2022 15:35
Skólameistari Hallormsstaðaskóla segir snjallsíma heilsuspillandi „Við erum að fara inn í nýjan heim, sem er kannski ekki góður og hollur fyrir okkur“, segir skólameistari Hússtjórnarskólans á Hallormsstað á Héraði, og vísar þar í notkun á samfélagsmiðlum, sem hún segir heilsuspillandi. Símar eru bannaðir í hádegismat í skólanum en leyfðir að öðru leyti. 18.12.2022 15:05
Kennurum varð að ósk sinni og skólastjórinn sagði upp Skólastjóri Hvassaleitisskóla hefur óskað eftir því að láta af störfum og Reykjavíkurborg hefur fallist á ósk hans. Fyrir mánuði undirrituðu fjölmargir kennarar og starfsmenn skólans yfirlýsingu þar sem þeir lýstu yfir vantrausti á hendur skólastjóranum. 18.12.2022 14:29
Snjóruðningur borgarinnar lokar fólk á Kjalarnesi inni Eldri hjón eru veðurteppt á Esjumelum eftir að snjóruðningstæki borgarinnar ruddi stórum skafli fyrir veg að húsum á Kjalarnesi. Sonur hjónanna hefur áhyggjur af ástandinu þar sem ómögulegt væri fyrir sjúkrabíl að komast að húsinu en faðir hans er hjartveikur. 18.12.2022 13:01
Sterkur skjálfti mældist í Kötlu Rétt upp úr klukkan ellefu mældist skjálfti af stærðinni 3,8 í norðanverðri Kötluöskju. Ein tilkynning hefur borist um að skjálftinn hafi fundist í Drangshlíðardal. 18.12.2022 12:22
Einn alvarlega slasaður eftir bílveltu Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sótti tvo slasaða norður í land eftir að útkall barst vegna bílveltu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að annar þeirra sé alvarlega slasaður. 18.12.2022 12:13
Hádegisfréttir Bylgjunnar Björgunarsveitir í Grindavík unnu þrekvirki í nótt þegar þær ferjuðu um þrjúhundruð bíla, sem voru fastir í hálfan sólarhring. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. 18.12.2022 12:05
Tólf hundruð veðurtepptum ferðalöngum bjargað af Grindavíkurvegi í nótt Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík vann mikið þrekvirki í nótt þegar hún kom rúmlega þúsund manns, sem höfðu setið fastir á Grindavíkurvegi vegna veðurs í hálfan sólarhring, til byggða. Björgunarsveitir biðla til fólks að huga vel að veðurspám en gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir mánudag og þriðjudag. 18.12.2022 12:03
Fjallað um jólabækur og eignadreifingu Farið verður um víðan völl í þjóðlífsþættinum Sprengisandi í dag. Lína Guðlaug Atladóttir ríður á vaðið og ræðir nýútkomna bók sína um Kína, Rót. 18.12.2022 10:14
Um þrjú hundruð bílum komið af Grindavíkurvegi í nótt Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík stóð í ströngu, ásamt Lögreglunni á Suðurnesjum og Vegagerðinni, við að létta á umferð og gera Grindavíkurveg færan. Áætlað er að um þrjú hundruð bílar hafi verið ferjaðir af veginum í bílalestum. 18.12.2022 10:02
Búið er að opna veginn um Þrengslin og Grindavíkurveg Víða er enn ófært en Vegagerðin tilkynnti í morgun að búið væri að opna veginn um Þrengslin og Grindavíkurveg. Varað er við mannlausum bifreiðum á hægri akrein Grindavíkurvegar, á tvöfalda kaflanum. 18.12.2022 08:00
Betur fór en á horfðist í Hafnarfirði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafði í nægu að snúast síðastliðinn sólarhring. Þar bar hæst útkall í Hafnarfirði þar sem eldur hafði kviknað í þaki fjölbýlishúss. Betur fór en á horfðist, að sögn slökkviliðsins. 18.12.2022 07:36
Kastaði af sér þvagi á miðri akbraut Nokkur erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Eitt af verkefnum næturinnar var að hafa afskipti af manni sem stóð á miðri akbraut í miðbæ Reykjavíkur og kastaði af sér þvagi. 18.12.2022 07:20
Missti konuna sína og varð valdur að dauða annarrar á nokkrum vikum Snemma að morgni 25. nóvember 2021 fór Kristinn Eiðsson strætisvagnabílstjóri í vinnuna. Hann átti ekki von á því að nokkrum klukkustundum síðar myndi hann sitja í yfirheyrslu hjá lögreglu eftir að hafa orðið valdur að banaslysi. 18.12.2022 07:01
Leiðin heim úr vinnu tók sex klukkustundir Plötusnúðurinn Atli Kanill var einn af þeim fjölmörgu sem lentu í vandræðum vegna veðurs í nótt. Eftir að hafa lokið vinnu um klukkan tvö í nótt tók við sex klukkustunda langt ferðalag heim til Hveragerðis. 17.12.2022 22:05
Eldur logaði í þaki fjölbýlishúss í Hafnarfirði Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu vann að því fyrr í kvöld að ráða niðurlögum elds sem kviknaði í þaki fjölbýlishúss við Breiðvang í Hafnarfirði. 17.12.2022 20:05
13 ára strákur flaug Boeing 737 – MAX flugvél hjá Icelandair Það hljóp heldur betur á snærið í gær hjá þrettán ára strák, en þá var honum boðið að fljúga Boeing 737 - MAX flugvél frá Icelandair í fullkomnasta flughermi heims. Flugstjóri hjá Icelandair er viss um að strákurinn eigi eftir að vera fantagóður flugmaður í framtíðinni. 17.12.2022 20:04
Öllu flugi Icelandair aflýst Icelandair hefur ákveðið að aflýsa öllum flugferðum sem fara átti í kvöld og í nótt. Um er að ræða ellefu ferðir til Norður-Ameríku, eina til Kaupmannahafnar og eina til Lundúna. 17.12.2022 19:40
Fimmtán ferðamenn ferjaðir með snjóbílnum Tinna Björgunarsveitir á Suðurlandi komu fimmtán ferðamönnum til bjargar í dag eftir að þeir höfðu fests inni á bílastæði vegna fannfergis. 17.12.2022 19:08
Blöskraði áhugi félaga síns á drónaárásum Í framburði manns, sem ákærður hefur verið fyrir hlutdeild í tilraun til skipulagningar hryðjuverka, segir að honum hafi blöskrað mikill áhugi félaga síns á drónaárásum og hversu langt hann væri kominn í slíkum pælingum. 17.12.2022 18:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óveðrið lagðist misjafnlega í fólk í morgun. Sumir festust í sex tíma í bílum sínum en aðrir skelltu sér út að hlaupa í snjónum. Og íbúar á Selfossi tóku höndum saman, sumir fóru um á gröfum sínum til að moka bíla lausa úr stæðum en aðrir urðu að nota gömlu góðu skófluna. 17.12.2022 18:03
„Um leið og þú losar einn þá festist annar“ Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast í snjóbyl í dag. Bílar eru fastir frá Borgarfirði og austur fyrir Selfoss þar sem ofankoman er einna mest. Þá hafa tafir orðið á flugi á Keflavíkurflugvelli vegna veðurtepptrar áhafnar og mikið púður hefur farið í snjómokstur á flugbrautum. 17.12.2022 15:53
Miklar tafir hjá Strætó vegna ófærðar Miklar tafir eru á ferðum strætisvagna í úthverfum borgarinnar vegna ófærðar. Viðskiptavinir eru beðnir að fylgjast með rauntímakortinu og heimasíðu Strætó til að sjá stöðuna á vögnum og leiðum. 17.12.2022 13:29