Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kemur til greina að óska eftir AstraZeneca frá Norðmönnum Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir koma til greina að óska eftir bóluefni Astra Zeneca frá Norðmönnum, sem hafa tilkynnt um að þeir muni ekki nota bóluefnið. Bólusetningar eru á undan áætlun hér á landi og áfram stefnt að afléttingu aðgerða í lok næsta mánaðar. 14.5.2021 19:07
Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í borginni liðinn Hörð barátta verður um efstu fjögur sætin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fram fer dagana annan til þriðja júní. Framboðsfrestur rann út síðdegis í dag en endanlegur framboðslisti verður ekki kunngerður fyrr en á sunnudag. 14.5.2021 18:55
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum kynnumst við aðgerðum á gosstöðvunum í Geldingadölum til að koma í veg fyrir að tjón verði á mannvirkjum vegna hraunflæðis. Við greinum frá stöðunni á Gasa en þar hafa yfir hundrað manns fallið í árásum Ísraelshers undanfarna daga. 14.5.2021 18:00
Farþegar frá enn fleiri löndum fara í sóttvarnahús Farþegum frá alls 164 ríkjum eða svæðum verður gert að dvelja í sóttvarnahúsi við komuna til Íslands með möguleika á undanþágu frá og með 18. maí. Áður var 131 ríki eða landsvæði á listanum en krafan nær til svæða þar sem nýgengi smita er 500 til 699 og hlutfall jákvæðra sýna er undir fimm prósent. 14.5.2021 17:43
Ekki lengur hættustig á Reykjanesi en NV-land bætist á listann Ekki er lengur hættustig vegna gróðurelda í gildi á Reykjanesi vegna úrkomu þar en hættustig hefur verið sett í gildi á norðvesturhluta landsins. Þar var áður óvissustig. 14.5.2021 15:44
Peningar óþokkans runnu til góðgerðarmála Móðir lét peninga sem dóttir hennar fékk fyrir kynferðislegar myndir af sér til níðings á netinu renna til SOS barnaþorpa á Íslandi. 14.5.2021 15:03
Sýknaður af bótakröfu fyrir gáleysi á Bitruhálsi Landsréttur hefur staðfest eins mánaðar skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir 64 ára karlmanni sem sýndi af sér gáleysi þegar hann ók á gangandi vegfaranda á gangbraut á Bitruhálsi í Reykjavík þann 4. desember 2017. 14.5.2021 15:01
Sóknarnefnd Hallgrímskirkju styður prest og framkvæmdastjórn í máli Harðar tónlistarstjóra Sóknarnefndin segist hafa fylgst með samningagerð við Hörð Áskelsson tónlistarstjóra og lýsir nú yfir fullum stuðningi við formann, framkvæmdanefnd, framkvæmdastjóra og presta varðandi það hvernig þau hafa haldið á málum. 14.5.2021 14:42
Lögreglumaður dæmdur fyrir meðferð á gesti á Irishman Landsréttur staðfesti í dag 45 daga fangelsisdóm yfir rúmlega þrítugum lögreglumanni fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi aðfaranótt mánudagsins 18. mars í fyrra. Dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. 14.5.2021 14:31
Vilhjálmur vill aftur á þing Vilhjálmur Bjarnason, varaþingmaður og fyrrverandi þingmaður, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar næsta haust. 14.5.2021 13:37
Alexandra Briem næsti forseti borgarstjórnar Alexandra Briem mun taka við embætti forseta borgarstjórnar Reykjavíkur þriðjudaginn 18. maí næstkomandi af Pawel Bartozek sem hefur gegnt embættinu frá árinu 2019. Alexandra verður fyrsta trans konan til þess að gegna embættinu. 14.5.2021 13:37
Eldur kviknaði við höfnina á Akureyri Eldur kviknaði um eittleytið á útisvæði við höfnina á Akureyri. Slökkviliðið var fljótt á vettvang og segir varðstjóri að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn. 14.5.2021 13:09
VG fordæmir meðferð Ísraela á Palestínumönnum Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fordæmir valdníðslu, margendurteknar landtökur og brottvísanir palestínskra heimamanna úr byggðum sem svo eru eyðilagðar og lagðar undir ísraelska landtökumenn. 14.5.2021 12:50
Minnisblað væntanlegt: Mun meiri áhugi á landinu nú en við gerðum ráð fyrir Sóttvarnarlæknir segir að mun fleiri komi nú til landsins en gert hafi verið ráð fyrir. Hann skilar heilbrigðisráðherra minnisblaði um aðgerðir á landamærum á næstunni. Best væri ef hægt væri að taka á móti öllum án þess að slaka á sóttvarnarkröfum. 14.5.2021 12:07
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að mun fleiri komi nú til landsins en gert hafi verið ráð fyrir. Hann skilar heilbrigðisráðherra minnisblaði um aðgerðir á landamærum á næstunni. 14.5.2021 11:38
Hjallastefnan flytur úr húsnæðinu í Öskjuhlíð og óvissa um framhaldið Askja, leikskóli Hjallastefnunnar í Öskjuhlíð í Reykjavík, mun þurfa að flytja úr núverandi húsnæði sumarið 2022. Eftir að hafa undanfarin ár fengið leyfi til starfsins framlengd um takmarkaðan tíma í senn er nú óhjákvæmilegt fyrir leikskólann að rýma lóðina sem um ræðir, Nauthólsveg 87. 14.5.2021 11:32
Telur það ekki mistök að hafa tekið þátt í myndbandinu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segist ekki hafa skoðun á því að myndbandið „Ég trúi“ hafi verið fjarlægt eftir að sögur sem tengdust fólki í myndbandinu fóru af stað í kjölfar birtingar þess. Hún telji þó ekki mistök að hafa tekið þátt í gerð myndbandsins. 14.5.2021 11:29
Stefna á fjölmennustu Þjóðhátíð sögunnar Eyjamenn eru stórhuga varðandi Þjóðhátíð 2021. Hún verður haldin um Verslunarmannahelgina og er reiknað með risahátíð að sögn formanns Þjóðhátíðarnefndar. 14.5.2021 11:01
Tveir greindust innanlands Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Báðir þeir sem greindust voru í sóttkví við greiningu. 14.5.2021 10:44
Ísland aftur orðið grænt Ísland er á ný skilgreint sem grænt land á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu sem uppfærst var í gær. Auk Íslands er stór hluti Noregs og Finnlands grænn á lit. 14.5.2021 10:16
Sunnlendingur með allar tölur réttar í annað sinn á þremur árum Sunnlendingur var með allar tölur réttar í lottóútdrætti laugardagsins og var það í annað sinn á þremur árum sem það gerist. 14.5.2021 09:49
Útgefandi Moggans biðst afsökunar á nafnlausri bóluefnisauglýsingu Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, baðst afsökunar á að auglýsing um aukaverkanir bóluefna gegn kórónuveirunni hefði birst nafnlaus fyrir mistök í blaðinu á uppstigningardag. Forstjóri Lyfjastofnunar lýsti auglýsingunni sem villandi og henni hafi virst ætlað að ala á ótta við bólusetningar. 14.5.2021 09:17
Friðjón í framboð Friðjón Friðjónsson, eigandi KOM, hefur tilkynnt að hann sækist eftir fjórða sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fram fer dagana 4, og 5. júní næstkomandi. 14.5.2021 07:52
Hófu í nótt gerð varnargarða við gosstöðvarnar Stór jarðýta hófst handa við það í nótt að ryðja upp varnargörðum við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. 14.5.2021 06:53
Sigríður Andersen sækist eftir öðru sæti: „Frelsi gegn helsi“ Sigríður Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lýst því yfir að hún sækist eftir öðru sætinu í prófkjöri flokksins í Reykjavík. Hún er nú fyrsti þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður. 14.5.2021 06:45
Lögregla tvisvar kölluð að Landspítala vegna vandræða Lögregla var tvívegis kölluð út í gærkvöldi og nótt vegna einstaklinga sem voru til vandræða á Landspítala. Í fyrra skiptið að Hringbraut og í seinna skiptið í Fossvog. 14.5.2021 06:24
Tveir úr myndbandinu viðurkenna að hafa farið yfir mörk Magnús Sigurbjörnsson og Pálmar Ragnarsson segjast ýmist hafa eða mjög líklega hafa farið yfir mörk kvenna í lífi sínu. Magnús og Pálmar voru á meðal þeirra sem stigu fram í myndbandinu „Ég trúi“ sem birt var í gær til stuðnings þolendum ofbeldis. 13.5.2021 23:47
Versta brekkan orðin breiður göngustígur Aðalgönguleiðin að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli, svokölluð A-leið, er núna orðin mun greiðfærari og hættuminni en áður. Leiðin var lokuð í gær meðan unnið var að framkvæmdum en opnuð á ný í gærkvöldi. 13.5.2021 22:44
Bætt aðgengi kom sér vel við björgun slasaðrar konu Sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk komu konu til aðstoðar sem slasaðist á gossvæðinu við Fagradalsfjall á tíunda tímanum í kvöld. Bætt aðgengi varð til þess að hægt var að koma konunni til aðstoðar á skömmum tíma. 13.5.2021 21:55
Fjarlægja „Ég trúi“ myndbandið og ráða ráðum sínum Myndband sem ber yfirskriftina „Ég trúi“ og sett var í loftið af stjórnendum hlaðvarpsþáttarins Eigin konur hefur verið tekið tímabundið úr birtingu. Annar þáttastjórnandinn segir leiðinlegt mál hafa komið upp sem tengist einstaklingi í myndbandinu. Boðskapurinn breytist þó ekki. Trúa eigi þolendum. 13.5.2021 21:21
Sósíalistaflokkurinn vill ofbeldiseftirlit Sósíalistaflokkurinn samþykkti í dag á sameiginlegum fundi framkvæmda- og málefnastjórna flokksins að leggja til svokallað ofbeldiseftirlit, sem yrði eitt af stefnumálum flokksins í kosningum til Alþingis í haust. Eftirlitið myndi rannsaka vinnustaði, skóla og opinbera staði og hafa heimildir til þess að svipta staði starfsleyfi. 13.5.2021 20:42
Hefði getað farið mjög illa á Smiðshöfða Slökkviliðsstjórinn á höfuðborgarsvæðinu sagðist telja að mjög illa hefði getað farið ef eldur hefði kviknað í iðnaðarhúsnæði þar sem eigandi starfsmannaleigunnar 2findjob lét smíða búseturými. Eigandinn er ákærður fyrir að stefna heilsu og lífi starfsmanna sem bjuggu í húsnæðinu í augljósan háska. 13.5.2021 20:05
Fylfullar hryssur geta frestað köstun Svo undarlega sem það kann að hljóma þá hafa fylfullar hryssur þann hæfileika að geta frestað köstun vegna kuldatíðar eins og vorið í vor hefur verið. Það kom þó ekki í veg fyrir að hryssan Gleði, sem Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra á kastaði hestfolaldi í vikunni. 13.5.2021 19:31
Sóttu slasaðan ferðamann á Esjuna Slökkvilið og björgunarsveitarfólk var kallað að Esju í dag til þess að aðstoða þýskan ferðamann sem hafði slasast. Að sögn varðstjóra hafði ferðamaðurinn verið að dást að Esjunni þegar grjót féll niður og á ökkla ferðamannsins. 13.5.2021 19:14
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ekkert lát er á hörðum átökum Ísraela og Palestínumanna á Gasa og hafa tugir látist í loftárásum síðustu daga og hundruð særst. 13.5.2021 18:16
„Ekki ólíklegt að það bætist eitthvað við af smitum“ Þrír greindust með veiruna á Sauðárkróki í gær en allir voru í sóttkví. Þrettán eru í einangrun í bænum en 256 eru í sóttkví. 13.5.2021 18:01
Vonast til að fara langt með að klára undirliggjandi sjúkdóma og forgangshópa í næstu viku Búist er við að bólusetningum fólks með undirliggjandi sjúkdóma verði lokið hér á landi í næstu viku. 13.5.2021 18:00
Töluvert tjón eftir að eldur kom upp við Haðarstíg Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna elds í heimahúsi við Haðarstíg í miðbæ Reykjavíkur. 13.5.2021 17:59
Gömul og ný tré urðu eldinum í Heiðmörk að bráð Birki og stafafura sem hafði verið gróðursett voru á stórum hluta þess lands sem brann í gróðureldinum í Heiðmörk í síðustu viku. Gamall birkiskógur varð eldinum, sem er talinn hafa raskað smádýra- og fuglalífi, einnig að bráð. 13.5.2021 16:34
Telja varnargarða ekki mega bíða lengi Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir áhyggjuefni ef hrauntaumur rennur niður í Nátthaga og heldur þaðan áfram í átt að Suðurstrandarvegi. Bæjarráð Grindavíkur ályktaði í síðustu viku um það að gera þyrfti allt sem mögulegt væri til þess að hefta framrás hraunsins niður í Nátthaga og hefur nú þegar verið ráðist í hönnun á þess til gerðum mannvirkjum. 13.5.2021 16:00
Færðu Hörpu nýjan flygil og listaverk í tilefni afmælisins Íslenska ríkið og Reykjavíkurborg færðu tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu nýjan konsertflygil og útilistaverkið Vindhörpu í tilefni af tíu ára afmæli hússins í dag. Samanlagður kostnaður við gjafirnar er metinn 55 milljónir króna. 13.5.2021 15:25
„Villandi“ heilsíðuauglýsing í Mogga ekki á vegum Lyfjastofnunar Nafnlaus heilsíðuauglýsing sem birtist fyrir mistök í Morgunblaðinu í morgun þar sem óskað var eftir tilkynningum um aukaverkanir vegna bólusetningar gegn kórónuveirunni er ekki á vegum Lyfjastofnunar. Forstjóri stofnunarinnar segir auglýsinguna villandi. Auglýsandinn segist ekki hafa haft samráð við Lyfjastofnun og vill ekki svara hvernig hann fjármagnaði kaupin. 13.5.2021 14:33
Áætla að þrír til sjö milljarðar tapist árlega vegna tryggingasvika Áætlað er að þrír til sjö milljarðar tapist árlega vegna tryggingasvika á Íslandi. Vísbendingar eru um að fólk líti tryggingasvik ekki eins alvarlegum augum og önnur fjármunabrot, samkvæmt nýlegri könnun samtaka fjármálafyrirtækja. 13.5.2021 13:28
Þrjú greindust með veiruna á Sauðárkróki Þrjú greindust með kórónuveirusmit á Sauðárkróki í gær og eru nú þrettán í einangrun í bænum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra. 13.5.2021 13:22
Fá boltavelli í stað gamals og ónýts húss Framkvæmdir eru hafnar á lóð Vesturbæjarskóla, þar sem leggja á fótbolta- og körfuboltavöll í sumar. 13.5.2021 13:01