Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tvær farþegaþotur lentu með veika farþega sama daginn Tvær farþegaþotur í millilandaflugi þurftu að lenda á Keflavíkurflugvelli í gærdag og í gærkvöldi vegna veikinda farþega. Önnur flugvélin var frá þýsku flugfélagi en hin frá bresku. Sú breska þurfti að lenda hér á landi um klukkan níu í gærkvöldi og gekk vel þrátt fyrir vont veður. 11.3.2012 10:43
Enn þungt haldin Líðan framkvæmdastjóra Lagastoðar, sem slasaðist lífshættulega í hnífaárás fyrir tæpri viku, er enn óbreytt. Samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeild er honum haldið sofandi í öndunarvél. 11.3.2012 10:04
Áfram stormur á Norður- og Austurlandi Það var enn mjög hvasst klukkan sex í morgun en þá var suðvestan átt og víða fimmtán til 25 metrar á sekúndu. 11.3.2012 10:02
Brutust inn í sundlaug og skildu eftir sig skítuga sokka Um síðustu helgi var brotist inn í sundlaugina í Ólafsvík, innbrotsþjófarnir höfðu ekki mikil verðmæti upp úr krafsinu en þó var einhverjum peningum og varningi stolið samkvæmt heimasíðu Snæfellsbæjar. 11.3.2012 09:42
Kosning hafin í biskupskjöri Biskupskjör í er fullum gangi, kjörgögn voru send til kjósenda fyrir viku og frestur til að skila inn atkvæðum rennur út þann nítjánda mars. 11.3.2012 10:13
Einn stunginn í lærið annar í andlitið Maður var stunginn í lærið með hníf í Tryggvagötu í Reykjavík um hálfþrjúleytið í nótt og var hann fluttur á slysadeild. Skömmu síðar stöðvaði lögregla bíl í Lækjargötu og tók eftir því að einn farþeganna var með stungusár í andliti. 11.3.2012 09:18
Rafmagnstruflanir í Dalabyggð Rafmagn fór af Saurbæjalínu í Dalabyggð um kl. 07:15, en truflanir hafa verið á línunni frá því snemma í morgun. 11.3.2012 09:32
Sparkað til góðs Fræknar og frægar konur eltu bolta og sýndu lítt meistaralega takta á KR vellinum í dag en þar tókust á FC Ógn og hið svokallaða "celeb" lið íslenskra kvenna. Raunar var allt gert í góðgjörðarskyni og til að minna fólk á að lifa lífinu lifandi. 10.3.2012 22:00
Halldór teiknar Landsdóm Fyrsta vika réttarhaldanna fyrir Landsdómi hefur runnið sitt skeið. Ólíkt því sem sumir höfðu vonað er þetta engin skemmtidagskrá - í sem stystu máli má segja að þarna hópist miðaldra fólk og ræði efnahagsmál klukkustundum saman. Þetta á heldur ekki að vera skemmtilegt. Það er jú verið að sækja mann til saka. 10.3.2012 21:00
Stefán Jón íhugar forsetaframboð - furðar sig á rökstuðningi Ólafs Stefán Jón Hafstein, sem íhugar nú forsetaframboð, gagnrýnir Ólaf Ragnar Grímsson harðlega í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. 10.3.2012 15:45
Forritarar etja kappi í HR - frí námsvist í verðlaun Um 120 framtíðar forritarar taka nú þátt í Forritunarkeppni framhaldsskólanna á vegum Háskólans í Reykjavík í samvinnu við Nýherja. 10.3.2012 14:50
Búnir að bjarga tugum ökumanna - stormur í kvöld Björgunarsveitir á landinu eru þegar byrjaðar að bjarga ökumönnum í vanda en samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg hafa björgunarsveitir víða um land bjargað tugum ökumanna síðastliðinn sólarhring. Meðal annars þurfti að bjarga fimm ökumönnum á Mosfellsheiðinni. 10.3.2012 14:40
Rúmur þriðjungur hefur íhugað sjálfsvíg 45 einstaklingar sem leituðu til Stígamóta í fyrra höfðu gert tilraunir til sjálfsvígs og rúmur þriðjungur hafði íhugað það. Flestir upplifa skömm og sektarkennd því ábyrgðin er ekki lögð á ofbeldismenn, segir talskona samtakanna. 10.3.2012 14:00
Þjórsá klýfur Samfylkingu Leggja átti lokaútgáfu rammaáætlunar fyrir ríkisstjórnina í gær en hætt var við á síðustu stundu. Spurningin hvort setja eigi neðri hluta Þjórsár í biðflokk klýfur Samfylkingu. Málið er á borði iðnaðarráðherra. 10.3.2012 13:30
Veðurstofa Íslands varar við stormi síðdegis Veðurstofa Íslands varar við stormi seinnipartinn í dag, fyrst um landið vestanvert, en víða um land í kvöld. 10.3.2012 10:32
Dugar fyrir einni mjólkurúthlutun Fjölskylduhjálp Íslands safnaði um 280 þúsund krónum með sölu á fatnaði í Kolaportinu um síðustu helgi. Þessi upphæð dugir þó einungis fyrir einni mjólkurúthlutun í Reykjavík og Reykjanesbæ, að sögn Ásgerðar Jónu Flosadóttur, formanns Fjölskylduhjálparinnar. 10.3.2012 14:00
Hart barist um formannsembættið í Dýraverndarsambandinu Átakafundur stendur yfir í Dýraverndarsambandi Íslands þar sem tveir frambjóðendur berjast um formannsstólinn. Fjöldi félagsmanna hefur nánast tvöfaldast á einni viku. 10.3.2012 12:45
Segir að það komi ekki til greina að búa áfram við krónuna Jóhanna Sigurðardóttir sagði á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í morgun að ekki komi til greina að búa við krónuna áfram. Þá sagði hún jafnframt að rammaáætlun verði afgreidd úr ríkisstjórninni á allra næstu dögum. Til stóð að lokaútgáfa hennar yrði lögð fyrir ríkisstjórnina í gær, en hætt var við á síðustu stundu. 10.3.2012 12:09
Framkvæmdastjóri Lagastoðar enn í lífshættu Líðan framkvæmdastjóra Lagastoðar, sem slasaðist lífshættulega í hnífaárás á mánudaginn, er enn óbreytt. Samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeild er honum haldið sofandi í öndunarvél. 10.3.2012 11:30
Aðstoða Norðmenn vegna hættuástands Norskir sveitarstjórnarmenn horfa til reynslu Íslendinga af viðbúnaðar- og rýmingaráætlunum. Í kjölfar nýrrar skýrslu norskra jarðfræðinga hefur vaknað á ný umræða í landinu um hættuástand sem skapast getur vegna bergskriðs. Bæði er horft til hættunnar af skriðum yfir byggð og flóðbylgjum sem myndast geta þegar gríðarmagn af bergstáli hrynur ofan í þröngan fjörð. 10.3.2012 11:00
Jóhanna Sigurðardóttir: Rammaáætlun vonandi afgreidd á næstu dögum Flokkstjórnarfundur samfylkingarinnar hófst klukkan níu í morgun í Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík. Fundurinn hófst á ávarpi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. 10.3.2012 10:46
Erlendur ferðamaður stal bíl fyrir utan Leifsstöð og ók í næsta skafl Erlendur ferðamaður um tvítugt tók bíl sem var í gangi hjá flugstöð Leifs Eiríkssonar ófrjálsri hendi um þrjúleytið í nótt og keyrði hann í nokkurn tíma undir áhrifum áfengis. 10.3.2012 09:50
Tónleikum í Draugasetrinu frestað Tónleikar sem áttu að fara fram á Draugasetrinu á Stokkseyri í dag er frestað vegna slæmrar veðurspár. Þess má þó geta að Draugasetrið verður engu að síður opið þrátt fyrir blikur á lofti. 10.3.2012 14:13
Samfylkingin samþykkir siðareglur Flokksstjórn Samfylkingarinnar samþykkti siðareglur flokksins á flokkstjórnarfundi flokksins sem stendur nú yfir í Brauðgerðinni í Reykjavík. 10.3.2012 12:51
Hvetja til flokkun sorps í Mosfellsbæ Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hvetur íbúa bæjarins til að auka flokkun sorps. Í byrjun júní verður endurvinnslutunnum fyrir pappírsúrgang dreift til allra íbúa bæjarins. 10.3.2012 12:30
Stefnt að því að styrkja réttarstöðu fólks í kynáttunarvanda Réttarstaða fólks með kynáttunarvanda, eða transfólks, styrkist til muna ef drög að frumvarpi sem velferðarráðherra hefur móttekið verða að lögum. 10.3.2012 10:28
Meiri undirliggjandi áhætta hér á landi Viðbragðshópur Seðlabankans taldi mun meiri undirliggjandi kerfislega áhættu í bankakerfinu vegna samþjöppunar á eignarhaldi hér á landi en í Svíþjóð. Þetta kom fram í vitnisburði Sylvíu Kristínar Ólafsdóttur, fyrrverandi forstöðumanni viðbúnaðardeildar hjá Seðlabankanum, í Landsdómi í gær. 10.3.2012 08:00
Forseti Landsdóms krafði Össur um nöfn Báðir bankastjórar Landsbankans fullyrtu við seðlabankastjóra að yfirtaka ríkisins á Glitni hefði engin áhrif á hina bankana. Þetta kom fram í vitnisburði Össurar Skarphéðinssonar fyrir Landsdómi. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur forvera sinn hafa gert allt sem hann gat til að afstýra bankahruni árið 2008. 10.3.2012 08:00
Hefði tekið 2-3 ár að flytja Kaupþing Verjandi Geirs H. Haarde, Andri Árnason, kallaði fjölmarga fyrrverandi starfsmenn íslensku bankanna og menn sem sátu í skilanefndum þeirra í vitnastúku í gær til að lýsa hvers konar ástand var fyrir eignasölu á árinu 2008. Einn ákæruliðurinn á hendur Geir snýr að því að hann hafi ekki beitt sér nægjanlega gagnvart því að minnka íslenska bankakerfið í aðdraganda hrunsins. 10.3.2012 07:00
Steingrímur hitti sjávarútvegsráðherra Færeyja Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra átti í dag fund í Þórshöfn í Færeyjum með Jacob Vestergaard sjávarútvegsráðherra Færeyja. 9.3.2012 22:32
Enn í lífshættu Líðan framkvæmdastjóra Lagastoðar, sem slasaðist lífshættulega í hnífaárás á mánudaginn, er enn óbreytt. Samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeild er honum haldið sofandi í öndunarvél. 9.3.2012 21:44
Haldið sofandi í öndunarvél eftir bílslys Kona liggur alvarlega slösuð á gjörgæsludeild eftir umferðarslys á Álftanesvegi í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæslu er konunni haldið sofandi í öndunarvél en hún gekkst undir aðgerðir í dag. Þrír voru fluttir á sysadeild eftir slysið sem varð um klukkan hálf níu í morgun. Fimm sjúkrabílar voru sendir á staðinn ásamt tækjabíl frá slökkviliðinu en beita þurfti klippum til þess að ná einum farþeganna úr bílnum. Óljóst er um tildrög slyssins. 9.3.2012 21:09
Góð þátttaka í Mottumars "Það hafa sautján hundruð einstaklingar skráð sig til keppni og tvö hundruð lið. Þetta er alvöru meistaradeild,“ segir Ragnheiður Haraldsdóttir, forseti Krabbameinsfélags Íslands. Góð þátttaka er hjá karlmönnum í landinu í átakinu Mottumars. 9.3.2012 20:34
Tveir fangar komnir með ökklabönd - kostnaðurinn mun minni Tveir íslenskir fangar hafa nú fengið ökklabönd sem gera þeim kleift að ljúka afplánun heima undir rafrænu eftirliti. Fangelsismálastofnun áætlar að hafa slíkt eftirlit með níu föngum að tveimur mánuðum liðnum. 9.3.2012 19:35
Project Einar hefði tekið nokkur ár Jóhannes Rúnar Jóhannsson, hrl. í slitastjórn Kaupþings, segir að áform Kaupþings um að flytja alþjóðlega starfsemi bankans undir Singer & Friedlander bankann í Lundúnum sumarið 2008 hefðu tekið nokkur ár í framkvæmd. Þá segir hann að fram að því hafi enginn erlendur banki sent beiðni þess efnis til FSA, breska fjármálaeftirlitsins. 9.3.2012 19:31
Réttlætanlegt að borga ekki Icesave Íslensk stjórnvöld vísa kröfum ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, vegna Icesave málsins á bug og krefjast þess að þeim verði hafnað. Þetta kemur fram í greinargerð sem íslensk stjórnvöld sendu EFTA dómstólnum í gær. 9.3.2012 19:23
Forsetaframboð kostar um 30 milljónir Kostnaður við að bjóða sig fram til forseta Íslands hleypur á tugum milljóna króna. Almannatengill segir suma af þeim sem renna hýru auga til embættisins líklega ekki gera sér grein fyrir þessum kostnaði. Þá eru stafsetningavillur á Facebook ekki í boði fyrir frambjóðendur. 9.3.2012 18:38
Vilhjálmur Egils: Öryggi starfsmanna hefur stóraukist "Þessi atburður verður örugglega til þess að menn fara að hugsa mjög stíft um þessi mál,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, aðspurður hvort að hnífstunguárásin á lögmannsstofu í Lágmúla á mánudaginn hafi orðið til þess að öryggismál fyrirtækja hafi aukist. 9.3.2012 17:48
Gunnar Þórðarson verður á Reykjavík Folk Festival Gunnar Þórðarson er meðal flytjenda á Reykjavík Folk Festival á Rósenberg í kvöld, en tónleikarnir hefjast klukkan 21. 9.3.2012 17:40
Íslendingar hlupu 112 kílómetra yfir Sahara-eyðimörkina Arnaldur Birgir Konráðsson, framkvæmdastjóri og annar eigenda Boot Camp, og Ágúst Guðmundsson, slökkviliðsmaður á höfuðborgarsvæðinu, luku í dag eyðimerkurhlaupi yfir Sahara-eyðimörkina fyrstir Íslendinga. Það má segja að þetta hafi ekki verið neitt skemmtiskokk hjá félögunum en hlaupið er 112 kílómetrar. 9.3.2012 17:36
Forseti þjóðþings Möltu heimsækir Ísland Michael Frendo, forseti þjóðþings Möltu, er væntalegur til landsins. Fredo verður í opinberri heimsókn á Íslandi dagana 11 til 13 mars. Fredo kemur til landsins í boði Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis. 9.3.2012 16:19
Davíð vildi að lögreglan kæmi böndum á forsvarsmenn tveggja banka Davíð Oddsson sagði við Össur Skarphéðinsson í aðdraganda bankahrunsins að stórefla þyrfti efnahagsbrotadeildina og koma lögum yfir forsvarsmenn tveggja af stóru bönkunum þremur. Össur greindi frá þessu þegar hann gaf vitnisburð í Landsdómi í dag. Hann greindi ekki frá því um hvaða banka væri að ræða. 9.3.2012 16:15
Jóhanna: Geir gerði allt sem hann gat Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að Geir Haarde hafi gert allt það sem hann gat til þess að leysa þann vanda sem var uppi í efnahagslífinu árið 2008. Þetta sagði Jóhanna þegar hún bar vitni fyrir Landsdómi í dag. Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari, spurði Jóhönnu hvernig vandinn í efnahagslífinu hefði blasað við henni. 9.3.2012 16:09
Össur var í ræktinni þegar hann frétti að Glitnir væri fallinn "Ég var á leiðinni milli ræktarinnar og gufubaðs þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hringdi í mig frá New York,“ sagði Össur. Hún hafi fullyrt að Glitnir væri fallinn og Össur þyrfti að vera viðstaddur fund í Seðlabankanum vegna þess. 9.3.2012 15:53
Markús: Hver fullyrti að yfirtakan á Glitni hefði engin áhrif ? Fullyrt var við Össur Skarphéðinsson í september 2008 að yfirtaka ríkisins á 75% hlut í Glitni hefði engin áhrif á hina bankana. Össur fullyrti þetta í vitnastúku í Landsdómi í dag. 9.3.2012 15:35