Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna 20 ára Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna verður tuttugu ára á morgun, en það var stofnað 2. september 1991 af foreldrum barna með krabbamein. Í tilefni af þessum tímamótum verður haldin afmælisveisla um helgina þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra heiðra félagsmenn með nærveru sinni. 1.9.2011 13:18
Rúmlega 300 milljóna króna framkvæmdir við sundlaugarnar Framkvæmdir við endurgerð sundlauganna í Reykjavík eru hafnar og hljóðar kostnaðaráætlun upp á 320 milljónir króna samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun frá 30. júní. Unnið er við nær allar laugar í Reykjavík og í dag var verkefnastaðan kynnt fyrir borgarráði. 1.9.2011 13:11
Þriðjungur íhugar að segja sig úr Þjóðkirkjunni MMR kannaði afstöðu meðlima þjóðkirkjunnar til þess hvort þeir hefðu hugsað um að segja sig úr þjóðkirkjunni á síðastliðnum mánuðum. 1.9.2011 12:55
Irene herjar á Ísland Eins og flestir hafa eflaust orðið varir við hefur fellibylurinn Irene haldið innreið sína til landsins með tilheyrandi úrkomu. Irene telst tæplega fellibylur lengur, aðeins hefðbundin lægð. 1.9.2011 12:53
Leiðrétting Drekaklúðurs komin á dagskrá Alþingis Þrjú frumvörp, sem eru forsenda olíuleitarútboðs á Drekasvæðinu, hafa verið sett á dagskrá Alþingis á morgun, en þingið kemur þá saman til stutts haustsþings. Orkustofnun neyddist í sumar til að fresta útboðinu, sem átti að hefjast 1. ágúst, þar sem frumvörpin dagaði uppi á lokadögum þingsins í júní. 1.9.2011 12:08
Reiðubúinn að stíga til hliðar Starfsmenn Kvikmyndaskóla Íslands leggja til að nýr stjórnarformaður verði skipaður í stjórn skólans í nýrri sáttatillögu. Núverandi stjórnarformaður segist reiðubúinn að víkja úr sæti ef það leiði til lausna. 1.9.2011 12:04
Skylt að birta ljósmyndir sem sýna skaðsemi reykinga Skylt verður að birta ljósmyndir í lit á öllum umbúðum sem innihalda tóbaksvörur til að undirstrika skaðsemi vörunnar. Ákvæði um þetta eru í nýrri reglugerð sem tekur gildi í dag. Þó verður heimilt að flytja inn sígaréttur sem eru merktar í samræmi við eldri reglugerð allt til ársloka 2012 og hafa í sölu til 31. júlí 2013. 1.9.2011 11:55
Tvítugur síbrotamaður dæmdur fyrir bankarán Nítján ára gamall piltur hefur verið dæmdur í árs fangelsi fyrir bankarán í Arion banka í Hraunbæ þann 5. janúar síðastliðinn auk fjölda annarra smærri brota. 1.9.2011 11:31
Ferðir Herjólfs falla niður Vegna veðurs og mikillar ölduhæðar á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar hefur verið ákveðið að fella niður ferðir Herjólfs sem fara átti klukkan hálf tólf í dag frá Eyjum og klukkan eitt eftir hádegi frá Landeyjahöfn. 1.9.2011 10:45
Matarkarfan ódýrust í Krónunni Samkvæmt nýjustu verðkönnun Alþýðusambands Íslands var allt að 28 prósent verðmunur á matarkörfunni þegar verðlagseftirlit sambandsins kannaði verð í átta matvöruverslunum síðastliðinn mánudag. Matarkarfan var ódýrust í Krónunni en dýrust í Nótatúni. 1.9.2011 10:44
Með fölsuð skilríki í Leifsstöð Karlmaður á fertugsaldri og kona á þrítugsaldri voru stöðvuð við landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli fyrir um tíu dögum síðan. Þau eru grunuð um að hafa framvísað fölsuðum skilríkjum við lögreglu en samkvæmt þeim eru þau frá Írak. 1.9.2011 10:04
Þyrlan sótti fárveika konu Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan hálf sex í morgun eftir að beiðni barst frá lækni í Stykkishólmi vegna bráðveikrar konu. Þyrlan fór í loftið um klukkan sex og var flogið beint á flugvöllinn í Stykkishólmi en þar beið sjúkrabifreið með konuna. Var hún flutt yfir í þyrluna og farið að nýju í loftið um klukkan tíu mínútur í sjö. Þyrlan lenti svo á Landspítalanum í Fossvogi um hálf átta. 1.9.2011 09:44
Hundrað bílar stöðvaðir Lögregluþjónar á vegum umferðardeildar lögreglunnar hafa verið áberandi í umferðinni síðastliðna daga, einkum á morgnana, við eftirlit. Frá því á mánudaginn hafa hundrað ökumenn verið stöðvaðir í eftirliti sem miðar einkum að því að fylgjast með farsímanotkun ökumanna, svigakstri í þéttri umferð og stefnuljósanotkun. 1.9.2011 09:43
Aldrei fleiri kennarar með réttindi Alls voru 1.852 starfsmenn við kennslu í framhaldsskólum á Íslandi í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Tæplega 85% þeirra höfðu kennsluréttindi og hefur það hlutfall hækkað um 13,6 prósentustig á einum áratug, úr 71,3% skólaárið 2000-2001. Hlutfall réttindakennara hefur ekki verið svona hátt frá því að gagnasöfnun Hagstofunnar hófst fyrir rúmlega áratug. 1.9.2011 09:38
Góðan daginn Reykvíkingar - myndband Í dag er „Góðan daginn“ dagurinn haldinn í annað sinn en dagurinn er hugarfóstur Jóns Gnarr borgarstjóra í Reykjavík. Á vef Reykjavíkurborgar segir að í dag eigi maður að vera einstaklega góður við náunga sinn og bjóða honum góðan daginn. Það er gert til að auka náunga kærleik. 1.9.2011 09:19
Útivistartími barna breytist Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum í dag. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. 1.9.2011 09:13
Bústaður brann til kaldra kola Sumarbústaður brann til kaldra kola um fimmleytið í morgun í landi Litlu-Brekku, skammt frá Langá. Að sögn Bjarna Kristins Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra í Borgarbyggð var bústaðurinn fallinn til grunna þegar slökkviliðið bar að garði en þeir komu á staðinn um tíu mínútum eftir að útkall barst. Að sögn Bjarna er ekki vitað til þess að nokkur hafi verið í bústaðnum þegar hann brann. Eldsupptök eru ókunn og verða rannsökuð. 1.9.2011 07:14
Lán einstaklinga verið afskrifuð um 143,9 milljarða Efnahagsmál Lán til heimila höfðu verið færð niður um samtals 143,9 milljarða króna frá hruni hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum í lok júlí 2011. Þetta kemur fram í tölum sem Samtök fjármálafyrirtækja hafa safnað saman og birtu í gær. 1.9.2011 07:00
Sjávarútvegurinn er að staðna Fyrirtæki í sjávarútvegi fjárfesta ekki lengur í nýrri íslenskri tækni. Framkvæmdastjóri 3X Technology á Ísafirði segir orðið ómögulegt að vinna hér. 1.9.2011 06:00
DataMarket leitar út fyrir landsteinana Fjárfestingarsjóðurinn Frumtak hefur keypt hlut í tölfræði- og gagnafyrirtækinu DataMarket fyrir 1,2 milljónir dala, eða tæpar 140 milljónir króna. 1.9.2011 05:30
Skattar áfram hækkaðir og útgjöld skorin niður Bréf sem íslensk stjórnvöld sendu Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í aðdraganda sjöttu og síðustu endurskoðunar sjóðsins á samstarfsáætluninni við Ísland var birt í gær. Í bréfinu er fjallað um áherslur stjórnvalda á næstu misserum. 1.9.2011 05:00
Fleiri farþegar þýða aukinn kostnað Strætó bs. skilaði 8,4 milljóna króna hagnaði á fyrri helmingi þessa árs. Það er betri afkoma en áætlanir gerðu ráð fyrir, en verri en á síðasta ári þegar hún var jákvæð um 79 milljónir króna á fyrri hluta ársins. Eigið fé félagsins hefur aukist um 83 milljónir frá síðustu áramótum, en þá var það jákvætt í fyrsta skipti frá árinu 2004. 1.9.2011 04:30
Undanþága Nubos á borði Ögmundar Beiðni um að kínverski fjárfestirinn Huang Nubo fái undanþágu frá banni við fjárfestingu útlendinga utan EES í fasteignum er komin inn á borð innanríkis-ráðherra. Nubo hefur samið um kaup á 72 prósentum af landi Grímsstaða á Fjöllum. 1.9.2011 04:00
Grunnur verið lagður að kröftugum efnahagsbata Samstarfsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) gekk vel og helstu markmið áætlunarinnar náðust. Þetta er niðurstaða starfsmanna AGS sem sendu frá sér skýrslu um íslenska hagkerfið í gær. Þar kemur fram að veikur efnahagsbati sé hafinn þótt atvinnuleysi sé enn mikið auk þess sem verðbólguhorfur hafi versnað. 1.9.2011 03:30
Komið í veg fyrir að fólk detti milli kerfa Menntamálaráðuneytið hyggst breyta orðalagi nýrrar reglugerðar um lán til íslenskra námsmanna erlendis vegna mismunandi túlkana á henni. „Ráðuneytið hefur ákveðið að breyta orðalagi reglugerðarinnar. Það kom upp ólík túlkun, annars vegar hjá lögfræðingi LÍN og hins vegar hjá ráðuneytinu. Til að taka af allan vafa verður orðalaginu breytt þannig að ekki komi upp sú staða að fólk lendi á milli kerfa eða standi uppi réttindalaust,“ segir Elías Jón Guðjónsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra. 1.9.2011 02:30
Senuþjófar kosningabaráttunnar Nú þegar kosningabaráttan fyrir Alþingiskosningar 2021 fer að nálgast sinn hápunkt er ekki úr vegi að horfa yfir sviðið og reyna að glöggva sig á því hvaða frambjóðandi er sá svarti senuþjófur sem hefur náð að sópa til sín mestu af hinni dýrmætu athygli sem allt snýst um á tímum sem þessum. Þrír einstaklingar teljast ótvíræðir sigurvegarar. En óhætt að segja að þeir hafi farið sitthverja leiðina að því marki. 1.9.2011 00:00