Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heimsótti eina stærstu góðgerðarstofnun heims Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kom heim frá Seattle í Bandaríkjunum í morgun þar sem hann sótti málþing um samvinnu milli Íslands og fyrirtækja, háskóla og rannsóknarstofnana þar vestra. Ólafur flutti setningarræðu á málþinginu sem var meðal annars sótt af forráðamönnum Microsoft, American Seafood, Amazon og áhrifafólki í miðlun tónlistar og menningar. Hann heimsótti einng Bill and Melinda Gates Foundations sem er ein stærsta góðgerðarstofnun heims. 24.6.2011 12:15
Önnur hryssa með skurði á kynfærum Nýtt mál er komið upp þar sem skurðir fundust á kynfærum hryssu. Talið er að áverkarnir séu af mannavöldum. Málið var kært til lögreglunnar á Sauðárkróki fyrr í þessum mánuði en lögreglan á Egilsstöðum hefur svipað mál til rannsóknar. Hjá lögreglunni á Sauðárkróki fengust engar upplýsingar um stöðu málsins aðrar en þær að það væri til rannsóknar. Þannig fékkst því ekki svarað hvort einhver liggur undir grun eða hvort málin eru talin tengjast. Þrjár hryssur á Norðurlandi fundust í byrjun mánaðarins með skurði sem taldir eru af mannavöldum. Tvær þeirra voru með skurði á snoppu en ein var með skurði á kynfærum og í skeið. Eigandi hrossanna hafði strax samband við dýralækni sem eftir skoðun komst að þeirri niðurstöðu að hryssurnar hefðu ekki getað veitt sér áverkana sjálfar, og því er talið um mannanna verk að ræða. Hryssurnar fengu skjótt viðeigandi aðhlynningu og voru sár farin að gróa eftir örfáa daga. Þeir sem þekkja til málsins segja það afar óhuggulegt, sér í lagi í ljósi þess að svipað mál kom upp í umdæmi lögreglunnar á Egilsstöðum fyrir rúmum mánuði. Þá fann hestamaður tvo skurði á kynfærum hryssu þegar hann var í útreiðatúr og sá blæða úr hryssunni. Dýralæknir var kallaður til og málið kært til lögreglu, en fljótt vaknaði grunur um að um svokallaðan "hestaripper" væri að ræða, dýraníðing sem nýtur þess að misþyrma hrossum. Heitið hestaripper er dregið af nafni breska fjöldamorðingjans Jack the Ripper, betur þekktur hér á Íslandi sem Kobbi kviðrista. 24.6.2011 11:12
Allt að 14 rúður brotnar í biskupsbústaðnum Karlmaður var handtekinn við biskups- og prestsbústaðinn við Landakot í nótt eftir að hafa brotið fjölmargar rúður í bústaðnum. Séra Patrick Breen, staðgengill biskups kaþólsku kirkjunnar hér á landi, segir að maðurinn hafi brotið allt að 14 rúður í bústaðnum sem stendur við Hávallagötu í Reykjavík. 24.6.2011 11:11
Yfirvinnubann hefst að óbreyttu eftir hádegi Samningamenn flugmanna hjá Icelandair og fulltrúar Samtaka atvinnulífsins reyna nú til þrautar að ná samkomulagi í kjaradeilunni, til að koma í veg fyrir yfirvinnubann flugmanna, sem hefst eftir þrjár klukkustundir, ef ekki semst fyrir þann tíma. 24.6.2011 10:55
Lækka bensínið um fimm krónur Olíufélögin Atlantsolía og Orkan lækkuðu bensín- og dísilverð í morgun um fimm krónur, eftir að hafa lækkað bensínið um þrjár krónur í gær. Hin félögin fylgdu í kjölfar lækkkunarinnar í gær og búist er við að þau fylgi líka lækkuninni í dag. 24.6.2011 10:50
Meirihlutinn í Árborg starfar áfram „Við þurftum að hrista okkur aðeins betur saman,“ segir Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg. Búið er að leysa ágreiningsmál innan meirihlutans sem mun starfa áfram. 24.6.2011 10:25
Vonar að séra George sé í helvíti "Ef það er til helvíti, og mikið svakalega vona ég það, þá er hann þar. Hann var alveg skelfilegur maður. Hann talaði um að ef ég segði frá myndi mamma deyja." Þetta segir Iðunn Angela Andrésdóttir í viðtali í Fréttatímanum þar sem hún greinir frá kynferðislegu ofbeldi sem séra George, skólastjóri Landakotsskóla, beitti hana þegar hún var barn. Tvær konur stíga fram í Fréttatímanum í dag og greina frá því að séra Georg hafi misnotað þær kynferðislega þegar þær voru nemendur við Landakotsskóla. Angela segir skólastjórann hafa byrjað að misnotað sig þegar hún var tíu ára og að ofbeldið hafi staðið yfir í þrjú ár. "Hann þuklaði á mér, sleikti á mér eyrun, fór undir peysuna og þuklaði brjóstin á mér. Fór ofan í nærbuxurnar og stakk fingrunum inn í mig. Þegar ég var orðin aðeins eldri fór hann inn í fataherbergið og fróaði sér," segir Angela. Fréttatíminn greindi frá því í síðustu viku að fagráð um kynferðisbrot innan kirkjunnar hafi til meðferðar mál tveggja manna sem saka starfsmenn kaþólsku kirkjunnar um andlega og kynferðislega misnotkun. Í nýjasta tölublaðinu sem kom út í dag er umfjölluninni haldið áfram. Hin konan sem þar stígur nú fram, Rut Martine Unnarsdóttir, segir að sér hafi brugðið við að lesa lýsingarnar á ofbeldinu sem birtust í síðasta tölublaði Fréttatímans og að þær hafi ýtt við henni að segja frá sinni reynslu. Biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, séra Pétur Bürcher, sendi frá sér yfirlýsingu í liðinni viku vegna umfjöllunar Fréttatímans um kynferðisbrot starfsmanna kirkjunnar þar sem hann hafnaði ásökunum um þöggun. Hann sagðist taka ásakanirnar mjög alvarlega en velti því jafnframt upp hver væri réttur látinna einstaklinga sem sakaðir eru um þessi brot, en ásamt séra George var kennari við skólann, Margrét Müller sakaður um að hafa beitt nemendur ofbeldi. 24.6.2011 10:12
Fimmtán íslenskar ísbúðir við Eystrasalt Fyrirhugað er að fimmtán íslenskar Yoyo-jógúrtísbúðir verði opnaðar í Eystrasaltslöndunum á þessu ári. Fyrstu þrjár búðirnar opna í Ríga í Lettlandi í lok júlí. „Það er bara gaman að því að við séum að bæta við okkur,“ segir Kristján Einarsson, einn af eigendum Yoyo-ísbúðanna. 24.6.2011 09:15
Skötuselur gaf af sér 109 milljónir í styrki Styrkjum hefur verið úthlutað úr verkefninu Atvinnusköpun í Sjávarbyggðum, sem byggir á tekjum af svokölluðum skötuselspeningum, þ.e. sölu aflaheimilda á síðasta og yfirstandandi fiskveiðiár til að veiða skötusel og til frístundaveiða samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða. 24.6.2011 09:03
Yfirvinnubann í dag ef ekki tekst að semja „Þetta mjakast. Við bindum vonir við að endar náist saman.“ sagði Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair í gærkvöldi. Sáttafundur í kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair, sem hófst klukkan hálftíu í gærmorgun, stóð enn yfir hjá Ríkissáttasemjara þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. 24.6.2011 09:00
Stefna að því að ná sáttum „Eigandi Hótels Hellna kom með sáttahug að máli við fjölskylduna. Það er stefnt að því að hittast um helgina og reyna að ná niðurstöðu. Vonandi verður hægt að gera sanngjarnan lóðarleigusamning,“ segir Ólína Gunnlaugsdóttir, eigandi Fjöruhússins, lítils kaffihúss á Hellnum. 24.6.2011 08:30
Launabætur hverfa í dýrtíð Tólf mánaða verðbólga verður 5,2 prósent í september og ársfjórðungsverðbólga gæti farið í 6 prósent, gangi spá greiningardeildar Arionbanka eftir. Það þýðir að launahækkanir nýsamþykktra kjarasamninga munu hverfa. 24.6.2011 08:00
Hjólar tæpa 700 kílómetra Hávarður Tryggvason lagði í gær af stað í tæplega 700 kílómetra langa hjólaferð um Vestfirði. 24.6.2011 08:00
Grásleppuveiðin að lifna við Heldur er að lifna yfir grásleppuveiðinni á þessari vertíð, eftir fremur lélega byrjun. 24.6.2011 07:44
Varað við lóni við Gígjökul Lögreglan á Hvolsvelli varar ferðamenn við lóni, sem myndast hefur við Gígjökul, sem skríður út úr Eyjafjallajökli. 24.6.2011 07:41
Níu manna gönguhópur þurfti aðstoð Björgunarsveitarmenn úr Skagafirði voru kallaðir út laust fyrir miðnætti til að aðstoða fólk í níu manna gönguhópi innst í Kolbeinsdal. 24.6.2011 07:37
Setja varaforða olíu á markað Alþjóða orkumálastofnunin og orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna ætla að setja sextíu milljónir olíutunna á markað á næstu þrjátíu dögum. Tunnurnar eru hluti af varaforða Bandaríkjanna og Alþjóða orkumálastofnunarinnar. 24.6.2011 07:30
Kjalvegur opinn Búið er að opna Kjalveg, samkvæmt heimasíðu Vegagerðarinnar, en fjölmargir hálendisvegir, sem venjulega er löngu búið að opna á þessum árstíma, eru enn lokaðir, þar sem snjór hefur legið yfir vegunum. 24.6.2011 07:21
Samningafundur flugmanna heldur áfram fyrir hádegi Samningafundur flugmanna hjá Icelandair og viðsemjenda þeirra, sem hófst í gærmorgun, stóð hjá Ríkissáttasemjara fram yfir miðnætti, að hlé var gert til klukkan hálf ellefu fyrir hádegi í dag. 24.6.2011 07:14
Flugfarþegar hvattir til að kanna rétt sinn Flugfarþegar sem lenda í óþægindum vegna tafa á flugferðum gætu átt margs konar rétt gagnvart flugfélögunum, að því er Neytendasamtökin segja. 24.6.2011 07:00
Með þúsundir barnaníðsmynda Karlmaður á sextugsaldri, Ólafur Barði Kristjánsson, hefur verið dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir vörslu á miklu magni af efni sem sýnir barnaníð. Hæstiréttur hafði árið 2007 dæmt manninn í átján mánaða fangelsi fyrir kynferðislegt athæfi gegn þremur stúlkubörnum og að hafa haft í fórum sínum myndir sem sýndu níð gegn tveimur öðrum litlum stúlkum, auk fleiri mynda sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. 24.6.2011 06:30
Vinna með virtum forlögum „Þetta er stærsti samstarfssamningurinn sem við höfum gert við eitt fyrirtæki,“ segir Halldór Guðmundsson, verkefnisstjóri Sögueyjunnar, sem heldur utan um heiðursþátttöku Íslands á Bókamessunni í Frankfurt í Þýskalandi í haust. 24.6.2011 05:00
Risastórt skemmtiferðaskip í Reykjavík Hið veglega skemmtiferðaskip Azora lagðist að bryggju við Skarfabakka í Reykjavík í morgun. 23.6.2011 20:00
Tólf teknir á Reykjanesbraut - einn á 133 kílómetra hraða Tólf ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur á Reykjanesbrautinni í dag. Sá sem hraðast ók var á 133 kílómetra hraða og bíður hans nú 90 þúsund króna sekt og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. 23.6.2011 19:30
Fasteignaverð svipað í krónum og í ársbyrjun 2007 Fasteignaverð er almennt á uppleið og er verð fasteigna nú í krónum talið svipað og það var í upphafi ársins 2007. Heildarmat íbúðarhúsnæðis á landinu hækkar um 9 prósent á næsta ári, en hækkunin er töluvert mismunandi milli hverfa á höfuðborgarsvæðinu og milli landshluta. 23.6.2011 19:15
Fjármálaráðherra vonar að fasteignaverð kalli ekki á verðbólgu Fjármálaráðherra segir hækkandi húsnæðisverð auka á verðbólguna og vonar að húsnæðisverð sveiflist ekki of hratt upp á við. Hann telur alltaf ástæðu til að hafa áhyggjur af víxlhækkunum launa og verðlags en óttast ekki áhrif boðaðra verðhækkana á mjólkurvörum. 23.6.2011 18:46
Sáttafundur stendur enn yfir Sáttafundur í kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair sem hófst klukkan hálftíu í morgun stendur enn yfir hjá Ríkissáttasemjara. 23.6.2011 18:30
Áhersla á mannlíf og iðandi stemmingu Gangandi vegfarendur fá að njóta sín í miðborg Reykjavíkur í sumar. Göngugötum verður fjölgað og miðborgin þannig efld til muna með enn frekari áherslu á mannlíf og iðandi stemmningu, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 23.6.2011 17:40
Gefa vinnu sína á jónsmessugleði í Garðabæ Jónsmessugleði myndlistarsamtakanna Grósku er fjölskylduhátíð sem haldin er í Garðabæ í dag. Gleðin stendur frá klukkan 18-22 og er á margan hátt ólík hinum hefðbundnu fjölskylduhátíðum. 23.6.2011 17:24
Perlan til sölu? Í aðgerðaráætlun Orkuveitunnar sem kynnt var á ársfundi hennar í dag kemur meðal annars fram áætluð fækkun starfsmanna um 90 á tímabilinu 2011-2016 en starfsmannafjöldi fyrirtækisins hefur þegar lækkað úr 607 í 495 frá árinu 2008. 23.6.2011 17:04
Bensínverð lækkar Atlantsolía og Orkan hafa riðið á vaðið og lækkað verð á bæði bensíni og díselolíu í dag. 23.6.2011 16:06
Fimm þúsund gestir á Galtalæk um helgina Búist er við fimm þúsund gestum á Útihátíðina á Galtalæk um helgina en undirbúningur hátíðarinnar, sem byrjar á morgun, er nú á lokastigi. 23.6.2011 16:06
Vísindavefurinn opnar Evrópuvef Alþingi hefur gert þjónustusamning við Vísindavef Háskóla Íslands um samningu og rekstur Evrópuvefs. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, opnaði vefinn í dag á Háskólatorgi og mun Evrópuvefurinn starfa í nánum tengslum við Vísindavefinn. 23.6.2011 15:32
Heimagert skotvopn fannst - eigandinn talinn tengdur Hells angels Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær rúmlega tvítugan mann eftir að skotvopn fannst við húsleit í Hafnarfirði. 23.6.2011 15:19
Hrædd um kóp í Kópavogi Sonja Óskarsdóttir, íbúi í Kópavoginum, segist hafa miklar áhyggjur af agnarsmáum kóp sem hún fann þar í fjöru skammt frá heimili sínu síðastliðinn þriðjudagsmorgun. Hún segist fyrst hafa haldið að mamma hans hefði aðeins skroppið frá að finna æti, en nú séu liðnir rúmir tveir dagar og alltaf sé kópurinn þar aleinn og umkomulaus. 23.6.2011 15:10
Úttektarnefnd Orkuveitu Reykjavíkur skipuð Borgarráð hefur samþykkt að skipa þrjá einstaklinga í úttektarnefnd sem mun fara yfir málefni Orkuveitu Reykjavíkur og er nefndinni ætlað að gera óháða úttekt á þeim þáttum sem leiddu til núverandi fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 23.6.2011 14:24
Ótrúleg heppni að enginn slasaðist á Dalveginum Mildi þykir að enginn slasaðist þegar að ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Dalveginum í Kópavogi um klukkan eitt í dag. 23.6.2011 13:54
Fékk grjótregn á þakið: Þetta hljómaði eins og hvellhetta Rúður eru brotnar og þök dælduð í Bolungarvík eftir að grjóti ringdi þar yfir íbúðarhús um hádegisbilið. Ástæðan er sú að verktaki var að sprengja í fjallinu fyrir ofan þar sem unnið er að gerð snjóflóðagarðs. Nikólína Beck Þorvaldsdóttir var heima hjá sér ásamt fjölskyldu þegar grjótinu tók að rigna yfir húsið. Þeim brá skiljanlega mjög en gerðu sér í fyrstu ekki grein fyrir hvað var að gerast. Nokkuð hefur verið um sprengingar að undanförnu og hélt hún í fyrstu að þarna hefði sprenging mistekist. "Þetta hljómaði eins og hvellhetta," segir hún. Ekki er vitað til þess að slys hafi orðið á fólki. "Margir voru úti að vinna í görðunum sínum og ég þakka bara fyrir að þetta lenti ekki á neinum," segir Nikólína. Eftir því sem hún best veit eru engin hús óíbúðarhæf eftir grjóthrunið þó sum þeirra séu vissulega illa farin. Hjá henni urðu mestu skemmdirnar á þakinu þar sem gat kom í bárujárnið, jafnvel þó þar hafi ekki verið um stóra hnullunga að ræða. Þar hafi hraði grjótsins haft úrslitaáhrif þegar kom að skemmdum. 23.6.2011 13:47
Lýst eftir vitnum að umferðaróhappi við Hörpuna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum að umferðaróhappi sem átti sér stað á Sæbraut á móts við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpuna síðdegis fimmtudaginn 9. júní síðastliðinn. Á þessum tíma voru umferðartafir þar sem farmur hafði fallið af bifreið og lokað akreinum til austurs. Lögregla stjórnaði umferð sem var hleypt til austurs á einni akrein. Þar varð umferðaróhapp er rauðleitri Toyota Corolla station bifreið og hvítri Scania vörubifreið lenti saman. Ökumönnum bifreiðanna ber ekki saman um málsatvik og því er lýst eftir vitnum að óhappinu. Þeir sem geta varpað ljósi á málið eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000. 23.6.2011 13:18
Georg Guðni: Málari eilífðarinnar Georg Guðni myndlistarmaður féll frá um liðna helgi, langt fyrir aldur fram. Ragna Sigurðardóttir, myndlistarrýnir Fréttablaðsins, fer yfir feril listamannsins og metur áhrif hans og vægi. 23.6.2011 13:00
Vettvangshjálparlið sett á fót á Flúðum Samkomulag um stofnun 13 manna vettvangshjálparliðs á Flúðum var undirritað af Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Björgunarfélagi Eyvinds á Flúðum, Lögreglunni í Árnessýslu og Árnesingadeild Rauða Krossins þann 21. júní síðastliðinn. 23.6.2011 12:52
Heyskortur blasir við í vetur Heyskortur blasir við víða á Norðausturlandi í vetur þar sem grasspretta er mun seinni en í meðalári og tún eru sumstaðar kalin. Ráðgjafaþjónusta bænda ætlar að miðla upplýsingum um slægjumöguleika annarsstaðar. 23.6.2011 12:16
Allt að tveggja ára biðtími eftir talmeinafræðingi Börn sem þurfa á talþjálfun að halda geta þurft að bíða í allt að tvö ár eftir að komast að. Gífurlegur skortur er á talmeinafræðingum hér á landi. Biðin er sérstaklega löng hjá talmeinafræðingum sem eru með samning við Sjúkratryggingar Íslands enda eru þeir örfáir. 23.6.2011 12:08
Ólafur Ragnar hrósar hinni umdeildu Söruh Palin Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kom blaðamanni Alaska Dispatch nokkuð á óvart á dögunum þegar hann hrósaði í hástert Söruh Palin, fyrrverandi ríkisstjóra Alaska og varaforsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum. Sem kunnugt er var Ólafur Ragnar eini þjóðarleiðtoginn sem Palin hafði hitt þegar hún bauð sig fram til varaforseta. "Þegar við hittumst var hún nýorðinn ríkisstjóri og við ræddum ekkert um landsmálin," segir Ólafur í viðtali við Alaska Dispatch, en hann er staddur á fjölþjóðlegri ráðstefnu í Alaska um nýjar siglingaleiðir vegna bráðnunar íss á Norðurslóðum. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flytur í dag, mánudaginn 20. júní, ræðu á setningarathöfn fjölþjóðlegrar ráðstefnu sem haldin er í Alaska. Viðfangsefni hennar er að ræða nauðsyn framkvæmda og sérstakra framtíðaráætlana með tilliti til nýrra siglingaleiða sem bráðnun íss á Norðurslóðum mun innan tíðar hafa í för með sér. Ólafur segir að þau Palin hafi rætt um möguleika Alaska á sviði jarðvarmaorku. "Ég skynjaði hjá henni hæfileika á sviði stjórnmála, pólitíska hæfni sem fólk annað hvort hefur eða ekki. Þetta er eins og tónlistarhæfileikar. Hvort sem fólk er sammála henni eða ekki þá er það skýrt merki um hæfileika henna að á aðeins nokkrum árum hefur hún farið frá því að vera embættismaður í Alaska til þess að vera eitt áhrifamesta afl stjórnmálanna," segir Ólafur Ragnar. Blaðamaður tekur fram í greininni að aðdáun Ólafs Ragnars á Palin kunni að vekja sérstaka kátínu meðal vinstri sinnaðra stjórnmálamanna í Evrópu, en Palin er eins langt til hægri í hinu pólitíska litrófi og hægt er. Spurður hvað honum finnist um stjórnmálaskoðanir Palin segir Ólafur kíminn við blaðamann Alaska Dispatch: "Við skulum ekkert vera að ræða það neitt," og beinir umræðuefninu snarlega að loftslagsbreytingum og grænni orku. 23.6.2011 12:04
Ný starfsstöð Fræðslunets Suðurlands Fræðslunet Suðurlands og Rangárþing eystra undirrituðu í dag húsaleigusamning vegna nýrrar starfsstöðvar Fræðslunetsins á Hvolsvelli. Um er að ræða skrifstofu, fullbúna kennslustofu með fjarfundabúnaði og hlutdeild í sameiginlegu rými Tónlistarskóla Rangæinga og Hvolsskóla. 23.6.2011 11:37