Fleiri fréttir

Skaut köttinn Carras með haglabyssu á Húsavík

Meindýraeyðir á Húsavík skaut köttinn Carras innabæjar á þriðjudagskvöldinu en eigandinn, Huld Hafliðadóttir, er afar ósátt við aðfarirnar. Samkvæmt reglugerð sem bærinn hefur sett þá er lausaganga katta bönnuð í bænum.

Síminn lokar fyrir nafnlaus smáskilaboð

Síminn hefur ákveðið að krefjast auðkennis af öllum þeim smáskilaboðum sem send eru af heimasíðu þeirra frá og með deginum í dag. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir rafrænt einelti en nokkuð hefur borið á mis-smekklegum nafnlausum skilaboðum sem ekki hefur verið hægt að rekja til eigandanna.

Í fangelsi fyrir að þykjast vera eldri maður

Landamæralögreglan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði sómalskan karlmann, Omar Abdi Yasin fæddan árið 1980, við vegabréfaeftirlit í Leifsstöð þann 3.maí síðast liðinn. Omar framvísaði sænsku vegabréfi manns að nafni Faisal Hussein Abdi, fæddum árið 1963, í blekkingarskyni.

Segir Brown illa upplýstan

Íslensk stjórnvöld hafa óskað etir skýringum frá breskum stjórnvöldum vegna ummæla Gordon Brown forsætisráðherra Breta í gær. Brown sagði meðal annars að stjórnvöld bresk stjórnvöld væru í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um hversu hratt Íslendingar muni greiða til baka það tjón sem þeir eru ábyrgir fyrir í Bretlandi.

InDefence hópurinn krefst tafarlausra viðbragða frá stjórnvöldum

Ólafur Elíasson, einn forsvarsmanna InDefence hópsins segir það algjörlega óhugsandi að láta Gordon Brown forsætisráðherra Breta komast upp með málflutning á borð við þann sem hann viðhafði í breska þinginu á miðvikudag. Þar kenndi Brown Íslendingum um það að ekki væri búið að greiða til baka milljónir punda í krabbameinssjóði Christie spítalans í Manchester, þrátt fyrir að sjóðurinn hafi aldrei verið á ábyrgð íslenska Fjármálaeftirlitsins eins og Brown staðhæfði.

Í vandræðum á Vatnajökli

Hópur gönguskíðamanna sem telur átta manns er í vandræðum á Vatnajökli og eru björgunarsveitarmenn á leið til þeirra. Að sögn Landsbjargar amar ekkert að fólkinu en hópurinn hefst við í tjölfum á milli Grímsvatna og Esjufjalla.

Sakar fjármálaráðherra um ritskoðun

Siðanefnd SÍA, Sambands Íslenskra auglýsingastofa, hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sjálfstæðisflokknum í Norðvesturkjödæmi hafi ekki verið heimilt að nota mynd af Steingrími J. Sigfússyni í leyfisleysi í auglýsingum sínum. Auglýsingin birtist í nokkrum svæðismiðlum í kjördæminu nú fyrir kosningar og vakti nokkra athygli. Viggó Örn Jónsson einn eiganda auglýsingastofunnar Jónsson & Lemacks sem gerðu umræddar auglýsingar segir niðurstöðuna ekkert annað en ritskoðun. Hann hefur áhyggjur af því að fjármálaráðherra landsins sé að skipta sér af því hvað birtist í fjölmiðlum og hvað ekki.

Hugsanlegt að Brown hafi reynt að beita AGS þrýstingi

Þorvaldur Gylfason telur ekki óhugsandi að forsætisráðherra Breta hafi reynt að beita stjórnendur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þrýstingi á bakvið tjöldin. Þorvaldur telur þó að slíkar tilraunir geti varla borið árangur.

Kríuhólaárásarmönnum sleppt

Lögreglan mun ekki krefjast gæsluvarðhalds yfir sex mönnum sem voru handteknir í tengslum við líkamsárás í Kríuhólum í Breiðholti eftir hádegið í gær.

Jóhanna og Steingrímur buðu mótmælendum á fund

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra tóku á móti mótmælendum fyrir framan Stjórnarráðið í dag og buðu síðan nokkrum fulltrúum þeirra á fund. Á myndinni má meðal annars þekkja Sturlu Jónsson, vörubílstjóra, sem hefur verið iðinn við að mótmæla síðustu misserin.

Um áttatíu manns mótmæla ástandinu

Um áttatíu manns mættu á Austuvöll í dag en klukkan eitt hafði verið boðað til mótmæla framan Alþingishúsið vegna aðgerðarleysis stjórnvalda í málefnum heimilanna. Hópurinn hefur nú fært sig frá Austurvelli yfir að Stjórnarráðinu eins og ráð var fyrir gert. ASÍ hvetur almenning til að taka þátt enda þolinmæðin gagnvart aðgerðarleysi stjórnvalda þrotin.

Bíræfni bílþjófurinn ákærður vegna brota sinna

Maður sem sigldi undir fölsku flaggi í nóvember á síðasta ári og gekk meðal annars undir viðurnefninu Bífræfni bílþjófurinn þarf nú að svara fyrir hegðun sína fyrir dómstólum. Maðurinn framvísaði skilríkjum sem hann hafði stolið nokkru áður á bílasölum og fékk að reynslukeyra ýmsar bifreiðar. Bílasölurnar heyrðu síðan lítið í honum og lögregla fór í málið. Hann náðist nokkrum dögum síðar í Borgarnesi. Hann er nú ákærður fyrir að hafa ekið tveimur bifreiðum í heimildarleysi og að hafa stolið hljómflutningstækjum úr annarri bifreið. Málið var þingfest í héraðsdómi Reykjaness í dag.

Inflúensan breiðist út hægar en áður

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 2.489 í morgun í 24 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 272 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB. Í tilkynningu frá Sóttvarnalækni og Almannavarnadeild segir að flest ný staðfest tilfelli séu í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada en þau voru mun mun færri í morgun en í gærmorgun í daglegri skýrslu Sóttvarnarstofnunar ESB.

Össur kallar breska sendiherrann á sinn fund

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að kalla breska sendiherrann á sinn fund vegna ummæla Gordons Browns forsætisráðherra Bretlands um ábyrgð Íslands gagnvart því að Christie spítalinn í Manchester hafi tapað fé hjá Kaupþingi í Bretlandi.

ASÍ hvetur til mótmæla á Austurvelli í dag

Í dag klukkan 13 verður efnt til mótmæla fyrir framan Alþingishúsið vegna aðgerðarleysis stjórnvalda í málefnum heimilanna. Frá Austurvelli verður síðan gengið að Stjórnarráðinu. ASÍ hvetur almenning til að taka þátt enda þolinmæðin gagnvart aðgerðarleysi stjórnvalda þrotin.

SA leggjast eindregið gegn fyrningarleiðinnni

Samtök atvinnulífsins skora á Samfylkinguna og Vinstri hreyfinguna - grænt framboð að hverfa frá öllum hugmyndum um upptöku og uppboð aflaheimilda sjávarútvegsfyrirtækja sem nefnt hefur verið fyrningarleiðin. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að það sé mikilvægt að stöðugleiki ríki í rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja eins og annarra fyrirtækja.

Hannes rannsakar kommúnista

Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði hyggst rannsaka íslenska kommúnista á árunum 1918 til 1998.

Engin niðurstaða í morðrannsókn

Engin niðurstaða hefur fengist í rannsókn á morði íslenskrar stúlku í Dóminíska Lýðveldinu í fyrra samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir var myrt á herbergi á hótelherbergi þar sem hún

Ófært víða vegna veðurs

Ófært er á Eyrarfjalli, Lágheiði, Hólasandi, Vatnsskarði eystra og Öxi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Póstbíll valt nálægt Höfn

Póstbíll valt skammt frá Hornafjarðarfljóti í gærkvöldi og slasaðist kona sem ók honum. Hún dvaldi á Heilsugæslunni á Höfn í Hornafirði í nótt. Talið er að hún hafi misst stjórn á bílnum í snarpri vindhviðu.

Sex eru enn í haldi vegna átaka í gær

Sex Pólverjar eru enn í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna rannsóknar á blóðugum átökum í fjölbýlishúsi við Kríuhóla í Reykjavík í gærdag. Þremur hefur verið sleppt en einn er enn á sjúkrahúsi.

Ók ölvaður á 147 kílómetra hraða

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt ökumann eftir að bíll hans hafði mælst á 147 kílómetra hraða á Reykjanesbraut á móts við Smáralind, þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar. Hann var því á rúmlega tvöföldum hámarkshraða. Auk þess kom í ljós að ökumaðurinn var ölvaður og var hann sviptur ökuréttindum á staðnum.

Tveir húsbrunar í nótt

Gamalt hesthús í Grófinni í Keflavík eyðilagðist í eldi í nótt. Nokkurn reyk lagði yfir bæinn og hringdu margir í lögreglu. Engir hestar voru í húsinu. Slökkviliðið slökkti eldinn og voru nálæg mannvirki ekki í hættu.

Dæmdur fyrir nauðgun og morð í Írak

Fyrrum hermaðurinn Steven Green var fundinn sekur um að hafa nauðgað og svo myrt hina 14 ára gömlu Abeer Qassim al-Janabi í Írak árið 2006. Málið vakti óhug en hann, auk þriggja annarra hermanna tóku þátt í árásinni. Tveir þeira héldu henni niðri á meðan þeir nauðguðu stúlkunni. Í kjölfarið myrtu þeir hana og fjölskyldu hennar auk þess sem þeir brenndu húsið þeirra.

Dópbýlið: Martröð leigusalans

„Við vorum að reyna selja þessa eign," segir eigandi bónadabýlisins við Berufjörð en lögreglan á Eskifirði fann hátæknivædda kannabisverksmiðju á bóndabýlinu nú í vikunni. Einn maður leigði húsnæðið en samkvæmt eigandanum þá sagðist hann ætla að halda úti ferðaþjónustu á svæðinu.

Í hungurverkfalli í fimmtán daga

Verulega er farið að draga af alsírskum flóttamanni sem hefur verið í hungurverkfalli í fimmtán daga, en mál hans hefur ekki verið tekið formlega fyrir í dómsmálaráðuneytinu. Maðurinn, sem dvelur á heimili fyrir hælisleitendur á Suðurnesjum, er orðinn máttfarinn vegna næringarskorts.

Klósettstríð heldur íbúð í gíslingu

„Ég tel mig hafa sýnt mikla þolinmæði, en nú er málið orðið verulega slæmt," segir Leó R. Ólason, eigandi að kjallaraíbúð á besta stað í miðborg Reykajvíkur. Hann keypti 40 fermetra íbúð handa syni sínum á Bergþórugötu 51 en þá kom babb í bátinn. Klósett sem nýtist íbúðinni er í eigu sameignar hússins og er í niðurníðslu. Leó óskaði þá eftir því á húsfundi að baðherbergisaðstaðan yrði gerð upp en honum var neitað um það. Sjálfur segist Leó haf mætt algjöru skilningsleysi af hálfu húsfélagsins.

Brasilíufangi: Styrktarreikningur

Stofnaður hefur verið reikningur til stuðnings fjölskyldu Ragnars Erlings Hermannssonar sem nú situr í fangelsi í Brasilíu.

Niðji ósáttur við notkun dópbýlisins

Dópbýlið við Berufjörð nálægt Eskifirði er skráð á eignarhaldsfélagið Þrjár systur sem löggiltur endurskoðandi á. Lögreglan fann hátæknivædda kannabisverksmiðju á gamla bóndabænum sem nú hafði öðlast nýjan tilgang, nefnilega kannabisræktun.

Keilufellsfórnarlamb nú árásamaður

Níu menn eru í haldi lögreglu eftir líkamsárás í Breiðholti og tveir eru á sjúkrahúsi, annar með höfuðáverka. Einn árásarmannanna var áður fórnarlamb í Keilufellsárásinni.

Litlar upplýsingar um óskattskyld félög þingmanna

Skattayfirvöld hafa litlar upplýsingar um óskattskyld félög sem stjórnmálamenn hafa stofnað í kringum prófkjör sín. Rekstrarform þeirra er það sama og til að mynda trúfélaga og líknarfélaga. Slík félög þurfa hvorki að skila skattframtölum né ársreikningum til skattayfirvalda.

Háir vextir halda uppi verðlagi

Lækkun stýrivaxta hefur engin áhrif á eldri húsnæðislán en leiðir til lækkunar dráttarvaxta og vaxta á yfirdráttarlánum. Forseti ASÍ segir háa vexti halda uppi verðlagi og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur að keyra hefði átt stýrivextina niður í 2,5 prósent og láta krónuna taka skellinn.

Fjölskylda Ragnars ekki enn heyrt í honum

Fangelsin í Brasilíu eru með þeim verstu í heiminum segir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International. Hún segir aðbúnaðinn ómannúðlegan og niðurlægjandi. Fjölskylda Ragnars Erlings sem var handtekinn þar í landi fyrir tæpri viku, hefur enn ekki náð sambandi við hann.

Sinueldur við Hafravatn - Brennuvargur var að grilla

„Við vorum að grilla, og svo spörkuðum við grillinu niður og eldurinn breiddist út án þess að við gætum nokkuð gert," sagði brennuvargur sem hringdi í Vísi nú fyrir stundu og sagði að hann, ásamt fleirum, hefðu verið að grilla við Hafravatn. Það endaði með því að grillið féll og eldur læstist í grasinu sem endaði með miklum sinueldi. Mikill reykur leggur yfir borgina og mjög hvasst er á svæðinu.

Lögreglan kölluð að stjórnarráðinu

Lögreglan var kölluð niður að Stjórnarráði Íslands rétt fyrir fimm í dag. Varðstjóri hafði ekki enn fengið allar upplýsingar um málið en sagði það væntanlega smávægilegt og tengt drykkjulátum.

Brasilískir fjölmiðlar: Grínarinn sem varð kókaínsmyglari

Brasilískir fjölmiðlar hafa mikinn áhuga á Ragnari Erling Hermannssyni en blaðið Diario De Pernambuco fjallar um feril Ragnars í raunveruleikaþættinu Strákarnir okkar. Í greininni er svo myndskeið úr þáttunum þar sem rætt er við Ragnar.

Strand við Geirsnef - grunur um ölvun

Skemmtibátur strandaði við Geirsnef rétt fyrir hálf þrjú leytið í dag. Fjórir voru í bátnum en að sögn lögreglu eru þrír þeirra nú niður á lögreglustöð en þeir eru grunaðir um ölvun.

Einn slasaðist í Kríuhólum - fimm í haldi

Einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild með höfuðáverka eftir ryskingarnar í Kríuhólum eftir hádegið. Fimm voru handteknir og segir lögregla að svo virðist vera sem fimmmenningarnir hafi ráðist á manninn sem slasaðist.

Draumalandið slær aðsóknarmet

Kvikmyndin Draumalandið eftir Þorfinn Guðnason og Andra Snæ Magnason er orðin aðsóknarmesta og tekjuhæsta heimildarmyndin frá upphafi mælinga á Íslandi. Alls hafa 13.359 manns séð myndina og hún og hún halað inn tekjur upp á rúmlega 13 milljónir eftir aðeins 28 daga í sýningu. Draumalandið sló þar við nýlegu meti Sólskinsdrengsins.

Birgitta kjörin þingflokksformaður

Birgitta Jónsdóttir var kjörin þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar á fundi þingflokksins í dag. Í kosningunum 25. apríl fékk Borgarahreyfingin 7,2% atkvæða og fjóra þingmenn kjörna.

Sjá næstu 50 fréttir