Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þjófnaðir í gegnum heimabanka til rannsóknar Lögreglan í Reykjavík rannsakar þjófnað upp á annan tug milljóna króna úr íslenskum heimabanka. Auðkennislykill sem bankarnir ætla að innleiða um áramót hefði komið í veg fyrir þjófnaðinn. Varasamt er að fara inn á heimabanka í tölvum sem fólk þekkir ekki eða í tölvum sem eru ekki með öflug njósna- og vírusvarnarforrit. 8.11.2006 18:45
Náttúrufræðistofnun óskar eftir opinberri rannsókn Forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands ætlar að krefjast lögreglurannsóknar á því að tvö þúsund gripum í eigu safnsins var hent úr frystigeymslu sem stofnunin var með á leigu. Forstjórinn vill fá úr því skorið hvort fálkahömum var örugglega fargað því eftirspurn er eftir þeim á svörtum markaði. Fágætur dverghvalur var meðal gripa sem var fargað. 8.11.2006 18:40
Iðnaðarráðherra sagður segja ósatt Iðnaðarráðherra var sakaður um að hafa sagt ósatt á Alþingi í síðustu viku þegar hann sagði engar skipulagsbreytingar fram undan hjá Landsvirkjun, en nú hefur verið ákveðið að RARIK og Orkubú Vestfjarða verði dótturfélög Landsvirkjunar. Ráðherrann segir engar breytingar verða gerðar á samþykktum þessara félaga. 8.11.2006 18:30
Snjóflóðavarnir kynntar á Bolungarvík Snjóflóðavarnargarður upp á 750 milljónir verður reistur við Bolungarvík á næstu tveimur til þremur árum. Hönnun og skipulag var kynnt fyrir bæjarbúum á fundi í gærkvöldi. Garðurinn verður 700 metra langur og hæðin mun samsvara átta hæða íbúðablokk. Grímur Atlason bæjarstjóri segir að með þessu sé tólf ára undirbúningsferli loks lokið. 8.11.2006 18:00
Rafmagn allstaðar komið á á Egilsstöðum Rafmagn er komið á allstaðar á Egilsstöðum. Rafmagn fór af öllum bænum rétt fyrir klukkan þrjú í dag þegar grafinn var í sundur háspennustrengur. Rafmagn komst fljótlega á aftur víðast í bænum. 8.11.2006 17:51
Færri nýir fólksbílar Nýskráning fólksbíla dróst saman um 27% í október miðað við sama mánuð í fyrra en 965 fólksbílar voru skráðir í síðastliðnum mánuði. Þetta kemur fram í Hálf fimm fréttum KB banka. Bifreiðakaup landans höfðu vaxið nær stanslaust frá árinu 2003. Þau tóku hins vegar að dragast saman í apríl á þessu ári eftir gengislækkun krónunnar. 8.11.2006 17:30
Nota gæsluþyrlu við rjúpnaveiðieftirlit Landhelgisgæslan hefur tekið að sér að aðstoða embætti ríkislögreglustjóra og sýslumannsembætti víðs vegar um landið við eftirlit með rjúpnaveiðum í þeim tilgangi að stuðla að markvissri framkvæmd laga og reglna um rjúpnaveiðar. Þetta kemur fram á vef umhverfisráðuneytisins. 8.11.2006 17:11
Rafmagnsleysi á Egilsstöðum Rafmagnslaust er enn á litlu svæði syðst á Egilsstöðum. Rafmagn fór af öllum bænum rétt fyrir klukkan þrjú í dag þegar grafinn var í sundur háspennustrengur. Rafmagn kom þó aftur á víðast hvar skömmu síðar. Verið er að vinna að viðgerð við spennustöðina við Kaupvang og er vonast til þess að rafmagn verði komið á innan klukkustundar. 8.11.2006 17:08
Landspítalinn rifti einhliða samningi við Mæðraverndina Landspítalinn rifti einhliða samningi við Miðstöð mæðraverndar um samvinnu við eftirlit kvenna sem eru í áhættu á meðgöngu. Þetta er skref aftur á bak um áratugi fyrir konur, segir yfirljósmóðir Mæðraverndar. 8.11.2006 17:01
Mjög lítið af óæskilegum efnum í íslenskum fiski Mjög lítið er af óæskilegum efnum í þeim fiski sem veiddur er á Íslandsmiðum samkvæmt niðurstöðum skýrslu Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins um vöktun á óæskilegum efnum í sjávarafurðum árið 2005. 8.11.2006 17:01
Hart deilt á félagsmálaráðherra vegna launamunar Hart var deilt á félagsmálaráðherra fyrir að gera lítið til að vinna bug á launamisrétti kynjanna í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Það var Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem var málshefjandi og gerði að umtalsefni nýja könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir félagsmálaráðuneytið sem sýndi að launamunur kynjanna væri um 16 prósent og hefði lítið breyst síðustu tólf ár. 8.11.2006 16:47
14 mánaða fangelsi fyrir þjófnað og þjófnaðartilraunir Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi, þar af tólf mánuði skilorðsbundna, fyrir þjófnað og tvær tilraunir til þjófnaðar úr apótekum í borginni í sumar. 8.11.2006 15:22
Fjórir sækja um embætti skattrannsóknarstjóra Fjórir sóttu um embætti skattrannsóknarstjóra sem auglýst var laus á dögunum. Það eru Bryndís Kristjánsdóttir, forstöðumaður lögfræðisviðs embættis skattrannsóknarstjóra, Gísli H. Sverrisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri flutningadeildar varnarliðsins, Guðrún Björg Bragadóttir skattstjóri og og Guðrún Jenný Jónsdóttir, deildarstjóri úrskurðardeildar réttarsviðs ríkisskattstjóra. 8.11.2006 15:05
Fimm fyrirtæki styrkja UNICEF um 60 milljónir króna Fimm fyrirtæki munu á morgun skrifa undir þriggja ára styrktarsamning við UNICEF á Íslandi sem samtals hljóðar upp á 60 milljónir króna. Fyrirtækin eru Baugur Group, FL Group, Fons, Glitnir og Samskip og með samningnum styrkja þau stoðir Barnahjálparinnar á Íslandi og gera samtökunum kleift að auka fjáröflunarstarf sitt til muna, eins og segir í tilkynningu. 8.11.2006 14:55
Dæmdur fyrir kókaínsmygl Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa reynt að flytja inn tæp sjö hundruð grömm af kókaín til landsins í mars á þessu ári sem ætluð voru til söludreifingar. 8.11.2006 14:35
Baugur og félagar ljúka 77 milljarða króna yfirtöku á HOF Baugur og meðfjárfestar greiða samtals um 77 milljarða króna fyrir bresku verslunarkeðjuna House of Fraiser en yfirtöku á öllu hlutfé félagsins lauk í dag. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að tilboði upp á 148 pens á hlut hafi verið tekið í byrjun síðasta mánaðar en inni í heildarkaupverði er heildarfjármögnun skulda félagsins. 8.11.2006 14:11
Múlagöng lokuð að mestu í kvöld og nótt Múlagöng verða lokuð fyrir allri umferð frá klukkan 21 í kvöld til 23.30 og svo aftur frá miðnætti og til sex í fyrramálið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 8.11.2006 13:58
Ráðherra sakaður um lygar í tengslum við Landsvirkjun Þingmenn úr stjórnarandstöðunni sökuðu Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra á Alþingi í dag um að segja ósatt í tengslum við áform ríkisstjórnarinnar um að gera Rarik og Orkubú Vestfjarða að dótturfélögum Landsvirkjunar. Ráðherra sakaði þingmennina hins vegar um orðbólgu í umræðunni. 8.11.2006 13:49
Skipulag mæðraverndar breytist í mánuðinum Breyting verður á skipulagi mæðraverndar á höfuðborgarsvæðinu á næstunni vegna flutnings Miðstöðvar mæðraverndar úr Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg eftir sölu hússins. 8.11.2006 13:23
Á ríflega tvöföldum hámarkshraða í Hvalfjarðargöngum Nærri 160 ökumenn voru myndaðir vegna hraðaksturs í Hvalfjarðargöngunum um síðustu helgi samkvæmt lögreglunni í Reykjavík. Meðalhraði hinna brotlegu var 89 kílómetrar á klukkustund en sá sem hraðast ók mældist á 146 km hraða sem er ríflega tvöfaldur hámarkshraði. Viðurlög fyrir slíkan ofsaakstur eru 70 þúsund króna sekt og ökuleyfissvipting til þriggja mánaða. 8.11.2006 13:05
Innflytjendur eru fólk, ekki vinnuafl Innflytjendur eru fólk, ekki vinnuafl, og þeir eru sárir eftir neikvæða umræðu í þeirra garð síðustu daga. Þetta segir Amal Tamimi, fræðslufulltrúi Alþjóðahúss. Á sama tíma fagna frjálslyndir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að takmarka komu innflytjenda frá Búlgaríu og Rúmeníu til Íslands þegar löndin ganga í Evrópusambandið um næstu áramót. 8.11.2006 13:00
Árni Páll kallaður aftur til skýrslutöku vegna hlerana Árni Páll Árnason lögmaður verður kallaður aftur í skýrslutöku hjá lögreglustjóranum á Akranesi eftir svarbréf utanríkisráðherra. Enginn er ennþá grunaður um símhleranirnar í utanríkisráðuneytinu en fyrsta áfanga rannsóknarinnar er lokið. 8.11.2006 12:30
Þrír hafa slasast alvarlega í eldsvoðum að undanförnu Þrír hafa slasast alvarlega og liggja enn á gjörgæsludeildum og fjórir hafa sloppið naumlega úr fjórum eldsvoðum í heimahúsum á þremur sólarhringum. 8.11.2006 11:59
Kostnaður Hafró vegna hrefnuveiða um 220 milljónir fram til þessa Kostnaður Hafrannsóknastofnunar vegna hrefnuveiða á síðustu þremur árum er um 140 milljónir og stefnir í að verða um 79 milljónir á þessu ári. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar. 8.11.2006 11:55
Eldur kviknaði í fjölbýli í Breiðholti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í fjölbýlishúsi við Ferjubakkann nú á ellefta tímanum. Búið er að slökkva eldinn og er verið að reykræsta. Tveir einstaklingar voru inni í íbúðinni þegar eldsins varð vart en ekki er vitað um líðan þeirra á þessari stundu. 7.11.2006 22:34
Rannsaka sjö kynferðisbrotamál Lögreglan á Akureyri rannsakar nú sjö mál sem snúa að meintum kynferðisafbrotum. Óvíst er í sumum tilfellum hvort rannsóknin leiðir til sakamála en málin eru ólík og tengjast ekki innbyrðis. 7.11.2006 21:55
Valgerður fundar í Úkraínu Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, fundaði í morgun með Viktor Janúkóvitsj, forsætisráðherra Úkraínu. Á fundinum var meðal annars fjallað um tvíhliða samskipti Íslands og Úkraínu, áform Úkraínu um aðild að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO) og möguleika á fríverslunarsamningi á milli EFTA-ríkjanna og Úkraínu. 7.11.2006 20:35
Baugur hótar Ekstra-blaðinu málssókn Lögfræðingar Baugs kanna nú hvort grundvöllur sé til málshöfðunar gegn danska Ekstra-blaðinu, vegna skrifa þess um fyrirtækið að undanförnu. Í fréttatilkynningu, sem Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, sendi frá sér í dag segir að Ekstra-blaðið hafi ítrekað neitað að birta athugasemdir frá Baugi og að fyrirtækið muni verja sig með lagalegum ráðum. 7.11.2006 19:45
Frjálslyndir sakaðir um að dansa á línu rasismans á Alþingi Þingmenn Frjálslynda flokksins héldu því fram á Alþingi í dag að Íslendingar væru farnir að missa vinnuna vegna þess að þeir væru ekki samkeppnishæfir við erlent vinnuafl. Þingmaður Samfylkingarinnar sagði þá dansa á línu rasismans. 7.11.2006 19:15
Segir hugmyndir um sameiningu góðar Ari Edwald, forstjóri 365, segir að vel kunni að vera að eigendur fyrirtækisins og Skjás eins hafi rætt hugmyndir um sameiningu þó svo að engar formlegar viðræður hafi verið um málið - en hugmyndin sé góð. Hann hefur áhyggjur af óbreyttu RÚV frumvarpi. 7.11.2006 18:50
Þrjár konur á móti níu körlum Karlar eru í efstu sætum á öllum listum Samfylkingarinnar þar sem prófkjör hafa farið fram. Ef sömu úrslit verða í næstu þingkosningum og þeim síðustu fá aðeins þrjár konur þingsæti á móti níu körlum í fjórum af fimm kjördæmum. 7.11.2006 18:42
Smábörn hafa komist í e-töflur Yfirlæknir á Landspítalanum segir dæmi um að smábörn hafi komist í e-töflur á heimilum sínum. Nokkrir einstaklingar koma á slysadeild dag hvern vegna eituráhrifa fíkniefnaneyslu. Piltarnir tveir sem urðu alvarlega veikir af völdum e-taflna eru á batavegi. 7.11.2006 18:39
Innflytjendur taka ekki störf Íslendinga Atvinnurekendur segja að erlent vinnuafl hafi verið togað hingað til lands til að mæta skorti á vinnuafli og firra sé að tala um að Íslendingar hefðu getað fyllt í skörðin.Takmarkanir á flæði erlendra verkamanna hefðu hægt á hagvexti og aukið verðbólgu. Ríkisstjórnin aflétti tímabundnum takmörkunum sem lagðar voru á ný aðildarríki Evrópusambandsins 1. maí. 7.11.2006 18:30
Viðvarandi halli á rekstri Ísafjarðarbæjar Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga telur það óviðunandi að viðvarandi halli hafi verið á rekstri Ísafjarðarbæjar frá árinu 2002. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá þessu en það segir jafnframt að rekstrarniðurstaðan fyrir árið 2005 hafi verið betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. 7.11.2006 18:09
Frjálslyndir fagna takmörkun á flæði vinnuafls Þingflokkur Frjálslynda flokksins fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að nýti sér undanþágur um takmörkun á frjálsu flæði vinnuafls um næstu áramót þegar Rúmenía og Búlgaría ganga í Evrópusambandið. Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra, tilkynnti um ákvörðun ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. 7.11.2006 17:10
Ekið á vegfaranda í Nóatúni Ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Nóatúns og Sóltúns nú á fimmta tímanum. Lögregla er enn við störf á vettvangi og ekki hafa fengist nákvæmar upplýsingar um hvernig slysið varð. Að sögn lögreglu var vegfarandinn fluttur á slysadeild en hann mun ekki hafa slasast alvarlega. 7.11.2006 16:48
Herþotur lentu í Keflavík eftir að hafa lent í erfiðleikum Tvær bandarískar F-16 herþotur lentu í Keflavík í hádeginu í dag vegna erfiðleika við að taka eldsneyti á flugi. Vélarnar voru á leið frá Bandaríkjunum til Evrópu í fylgd eldsneytisvélar. Hins vegar komu upp vandamál við eldsneytistöku undan landinu og vélunum því snúið til Keflavíkur. 7.11.2006 16:47
Hrikaleg átök í Reykjavík 20.-25. nóvember Búast má við hrikalegum átökum í borginni dagana 20.-25. nóvember þegar keppnin um sterkasta mann heims fer þar fram. Keppnin í ár er haldin í minningu um Jón Pál Sigmarsson, einn öflugasta kraftajötun Íslendinga, sem lést langt fyrir aldur fram. 7.11.2006 16:23
Á fjórða hundrað hefur kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík Á fjórða hundrað manns hafa nú kosið utan kjörfundar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fer næstkomandi laugardag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Alls taka fimmtán frambjóðendur þátt í prófkjörinu, þar af allir átta núverandi þingmenn flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. 7.11.2006 16:12
Íslendingar veiða minnst af hval innan Alþjóða- hvalveiðiráðsins Íslendingar eru atkvæðaminnstir í hvalveiðum af þeim þjóðum innan Alþjóðahvalveiðiráðsins sem á annað borð stunda hvalveiðar. Frá þessu er greint á vef Fiskifrétta. 7.11.2006 15:42
Jón Gunnarsson verður ekki á listanum Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, ætlar ekki að taka sæti á framboðslista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar í vor, að því er kemur fram á heimasíðu hans. Hann sagði auk þess í samtali við Ríkisútvarpið í dag, að hann myndi hætta í stjórnmálum. 7.11.2006 15:29
Hagnaður íslenskra lánastofnana yfir 136 milljarðar á síðasta ári Hagnaður íslenskra lánastofnana nam samanlagt ríflega 136 milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt skýrslu Fjármálaeftirlitsins um stofnanirnar sem birt var í dag. 7.11.2006 14:58
Björn ræddi orkumál við fjármálaráðherra innan EES Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sat í dag fund fjármálaráðherra aðildarríkja EFTA og Evrópusambandsins um orkumál í fjarveru Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra. Fundurinn fór fram í Brussel og lýsti ráðherra því í ræðu sinni hvernig Íslendingar stæðu að orkunýtingu og rakti sérstaklega aukin áhrif jarðhita í orkubúskapnum. 7.11.2006 14:37
Baugur ýjar að málssókn gegn Ekstra-blaðinu Baugur Group mótmælir harðlega þeim blaðagreinum sem blaðamenn danska Ekstra-blaðsins hafa skrifað um fyrirtækið að undanförnu og segir greinarnar fullar af villum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs. 7.11.2006 14:26
Nýta sér undanþágu vegna inngöngu Rúmena og Búlgara í ESB Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra tilkynnti á Alþingi í dag að ríkisstjórnin hefði ákveðið að nýta sér undanþágur um takmörkun á frjálsu flæði vinnuafls um næstu áramót þegar Rúmenía og Búlgaría ganga í Evrópusambandið. 7.11.2006 13:59