Fleiri fréttir

Samtök verslunar og þjónustu óska skýringa frá forsætisráðherra

Samtök verslunar og þjónustu óska skýringar á orðum forsætisráðherra um tillögur matvælanefndar, þar sem hann segir að innflytjendum, heildsölum og smásölum sé ekki treystandi til að láta lækkun tolla og skatta á matvæli skila sér til neytenda í lægra verði.

Met aðsókn í Háskólann í Reykjavík

Aldrei hafa borist fleiri umsóknir um skóavist til Háskólans í Reykjavík. Um 1800 manns hafa nú sótt um skólavist fyrir næsta skólaár, sem hefst 18. ágúst næstkomandi.

Ósáttur við ummæli forsætisráðherra

Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segist fullviss um að lækkum á sköttum og álagningu á matvælum muni skila sér til neytenda. Hann er ósáttur við ummæli forsætisráðherra um að verslunin gætu tekið slíkar lækkanir til sín.

Tómas Zoëga áfram yfirlæknir hjá LSH

Náðst hefur samkomulag milli forstjóra LSH og Tómasar Zoëga um að Tómas haldi áfram yfirlæknisstarfi sínu við geðsvið spítalans með sama hætti og áður.

Bensínverð hækkar

Bensínlítrinn hér á landi færi yfir 140 krónur, ef verðið væri látið fyglja hækkuninni á Rotterdammarkaði í gær.

Samið við eldri borgara

Lífeyrisgreiðslur til eldri borgara frá Tryggingastofnun ríkisins hækka og bótakerfið verður einfaldað með fækkun og sameiningu bótaflokka, samkvæmt samkomulagi sem Landsamband eldri borgara og ríkisstjórnin skrifuðu undir í dag. Þá munu bætur lækka minna vegna tekna maka og annarra tekna bótaþega en nú er. Samkomulagið var undirritað af forsætisráðherra, fjármálaráðherra, félagsmálaráðherra og landbúnaðarráðherra og fulltrúum eldri borgara í Ráðherrabústaðnum í dag. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að tekið verði upp frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega og vasapeningar hækkaðir. Þá verði starfslok sveigjanleg, þannig að lífeyrisgreiðslur hækki við frestun á töku lífeyris. Heimaþjónusta verði stóraukin og áhersla færð frá stofnanaþjónustu. Þá mun fjármagn sem nú gengur til reksturs stofnana úr Framkvæmdasjóði aldraðra ganga til uppbyggingar öldrunarstofnana.

Áfrýjar til Hæstaréttar

Jónas Garðarsson, fyrrverandi formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi sem kveðinn var upp yfir honum um manndráp af gáleysi.

Landhelgisgæslan áfram á Reykjarvíkurflugvelli

Hugmyndir um að flytja þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæslunnar upp á Keflavíkurflugvöll fá ekki hljómgrunn í nýjum tillögum að framtíðarskipulagi sveitarinnar. Þar er lagt til að sveitin verði áfram á Reykjavíkurflugvelli.

Mikil fjölgun ferðamanna í maí

Rúmlega 31 þúsund erlendir ferðamenn heimsóttu Ísland í maí síðastliðnum, samkvæmt talningum Ferðamálastofu. Þetta er aukning um 12,5% miðað við maí í fyrra.

Stærsta seglskip í heimi

Stærsta seglskip í heimi, rússneska skólaskipið Sedov, kom til hafnar í Reykjavík um klukkan hálf ellefu í morgun. Skipið verður til sýnis almenningi á morgun

Atvinnuleysi 4% á öðrum ársfjórðungi

Að meðaltali 7.200 manns voru án vinnu á öðrum ársfjórðungi 2006 eða fjögur prósent af vinnuafli samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Atvinnuleysi mældist 3,9% hjá körlum en 4,1% hjá konum. Meirihluti atvinnulausra voru námsmenn. Á öðrum ársfjórðungi 2005 mældist atvinnuleysi þrjú prósent.

Ók niður ljósastaur

Ökumaður bíls slapp lítið meiddur þegar hann ók niður ljósastaur við þjóðveginn í Mosfellsdal undir kvöld í gær. Bíllinn stórskemmdist. Þá slapp ökumaður ómeiddur þegar hann velti bíl sínum í Tungudal við Ísafjörð í gærkvöldi. Það gerðist skammt frá gangamunnanum og eru tildrög óljós.

Hreindýraveiðar á Austurlandi hafnar

Hreindýraveiðitíminn á Austurlandi er hafinn og er þegar búið að fella þó nokkra tarfa. Um það bil áttatíu manns hafa atvinnu af leiðsögn fyrir veiðimennina, en þeir aðstoða líka við að bera bráðina til byggða. Á þessu veiðitimabili, sem lýkur fimmtánda september, má fella rúmlega níu hundruð dýr, sem er stærsti veiðikvóti til þessa.-

Bjart og hlýtt næstu daga

„Sólin fer að leika stærra hlutverk í okkar lífi á næstunni,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur sem spáir góðu veðri um allt land næstu vikuna.

Listaverk RÚV eru metin á 52 milljónir

Nefnd á vegum Ríkisendurskoðanda vinnur að mati á eignum Ríkisútvarpsins. Forvörður í Morkinskinnu verðmat listaverk í eigu stofnunarinnar. Hann telur þau eiga að vera á Listasafni Íslands. Hluti af ásjónu RÚV, segir útvarpsstjóri.

Ísraelar ganga mjög hart fram

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir frábært til þess að vita að tekist hafi að flytja alla Íslendinga heilu og höldnu frá Beirút í Líbanon. Eftir því sem næst verði komist séu ekki fleiri Íslendingar eftir í landinu.

Óvíst að lægri gjöld skili sér til neytenda

Forsætisráðherra segir ekki víst að þótt skattar á matvöru lækki hafi það áhrif til verðlækkunar. Ígildi skattsins gæti runnið eitthvað annað. Skýrsla matvælaverðsnefndar forsætisráðherra var rædd á fundi ríkissins.

Jónas áfrýjar til Hæstaréttar

Jónas Garðarsson, sem dæmdur var í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðasta mánuði í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi, hefur áfrýjað dómnum til Hæstaréttar.

Flöskuháls í skólakerfinu

Rektor Listaháskólans er ánægður með tillögur nefndar menntamálaráðuneytisins um eflingu starfsnáms. Hann segir framhaldsskólastigið flöskuháls í skólakerfinu þegar kemur að listnámi.

Ók niður ljósastaur

Ökumaður bíls slapp lítið meiddur þegar hann ók niður ljósastaur við þjóðveginn í Mosfellsdal undir kvöld í gær. Bíllinn stórskemmdist. Þá slapp ökumaður ómeiddur þegar hann velti bíl sínum í Tungudal við Ísafjörð í gærkvöldi. Það gerðist skammt frá gangamunnanum og eru tildrög óljós.-

Landgöngulið Ísraela komið inn í Líbanon

Ísraelskir skriðdrekar og landgöngulið réðust í nótt inn í Suður-Líbanon. Hingað til hafa Ísraelar einungis gert loftárásir á Líbanon. 277 líbanskur borgari hefur nú látist í árásunum, þar af 42 í árásum í nótt en 25 Ísraelar hafa látist á rúmri viku í sprengjuárásum Hisbollah. Bush Bandaríkjaforseti ásakar nú Sýrlendinga um að kynda undir átökum milli Hisbollah og Ísraelshers til að styrkja áhrif sín í Líbanon. Ísraelskir hermenn réðust einnig inn í flóttamannabúðir í Gaza en þar létust tveir Palestínumenn í skotárásum og fimm í sprengjuárás Ísraela.

Ég vil að veturinn komi bara strax

„Bara allt gott, þakka þér fyrir. Ég er búinn að vera í fæðingarorlofi í tvo mánuði og hef notið þess að vera með fjölskyldunni,“ segir þriggja barna faðirinn Guðmundur Karl Jónsson, framkvæmdastjóri Vetrar­íþróttamiðstöðvar Íslands og skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli. „Þó að það sé fullt starf að vera með lítil börn nýtur maður þess út í ystu æsar að vera með fjölskyldunni.“

Átta sinnum meira magn fíkniefna

Lögreglan á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði gerði upptækt áttfalt magn fíkniefna á fyrri helmingi þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum afbrotatölum frá lögreglustjóranum í Hafnarfirði. Upptækt magn fíkniefna á fyrstu sex mánuðum þessa árs nam rúmum 6,5 kílóum á móti 850 grömmum á sama tímabili síðasta árs.

Komin heilu og höldnu

Það voru vægast sagt fagnaðarfundir þegar tvær íslenskar fjölskyldur, sjö manns alls, lentu heilu og höldnu í Keflavík í gærkvöld eftir langt og strangt ferðalag frá vígvellinum í Líbanon. Brosið á ferðalöngunum og ættingjum þeirra var breitt, en tárin voru ekki langt undan. Sigríður Snævarr, starfandi ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, tók á móti hópnum fyrir hönd ráðuneytisins en það sendi flugvél eftir fólkinu til Damaskus í Sýrlandi í fyrradag sem flaug með það til Kaupmannahafnar, þaðan sem það kom fljúgandi í gærkvöld. Flugvirkjarnir þrír sem einnig voru í hópnum koma ekki strax til Íslands heldur halda til starfa á vegum Atlanta.

Ekki víst að sjóðurinn veikist

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra segir ekki sjálfgefið að lækkun matsfyrirtækisins Standard & Poor‘s á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs veiki sjóðinn. „Það þarf ekki að vera til lengri tíma,“ sagði Magnús í gær en tók fram að hann ætti eftir að fara yfir málið með sérfræðingum. Hann benti á að breyting á mati S&P hefði svifið yfir vötnum í nokkurn tíma en Moodys, sem er sambærilegt fyrirtæki, gæfi sjóðnum áfram bestu einkunn.

Vonast eftir friðsemd og ró

Andrea Hólm og maður hennar, Hassan Jami Chahla, hafa ekki enn náð sambandi við nánustu fjölskyldu hans sem býr í þeim hluta Beirútborgar þar sem árásir Ísraela hafa aukist dag frá degi að undanförnu.

Það er fleira dýrt en maturinn

„Það liggur fyrir að á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar er unnið að því að semja um tolla og innanlandsstuðning og þar liggur landbúnaðurinn undir,“ sagði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra eftir fund ríkisstjórnarinnar í gærmorgun þar sem rætt var um skýrslu formanns matvælaverðsnefndar.

Vegið að kókópuffs-kynslóðinni

Skýrsla um leiðir til lækkunar matarverðs hefur verið mikið í umræðunni síðan nefnd forsætisráðherra skilaði henni af sér í síðustu viku. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra hafa lítið tjáð sig um skýrsluna en það breyttist eftir ríkisstjórnarfundinn í gær.

Ferðin frá Líbanon gekk vonum framar

Íslendingarnar sem utanríkisráðuneytið flutti frá átakasvæðum í Líbanon lentu heilir á höldnu í Kaupmannahöfn í gær. Vel gekk að koma fólki frá Beirút til Damaskus. Stóðu vel að fólksflutningum frá Líbanon, segir Már Þórarinsson.

Átján ára mál rannsakað

Innri endurskoðandi KB banka sætir nú lögreglurannsókn fyrir að hafa notað skjal frá útlánaeftirliti Búnaðarbankans til að gera kröfur við gjaldþrot Stokkfisks. Eigandi fyrirtækisins kærði málið í nóvember í fyrra eftir að Fjármálaeftirlitið hafði gert athugasemdir við efni skjalsins.

Fær ættleiðingu ekki greidda

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu eina milljón króna í bætur frá ríkinu vegna læknamistaka en vísaði hins vegar frá bótakröfu hennar vegna fyrirhugaðrar ættleiðingar barna frá Kína.

Tíu aðrar leiðir vannýttari

Stjórn Strætó bs. ákvað að leggja niður leið S5, að sögn Ásgeirs Eiríkssonar framkvæmdastjóra, vegna þess að mestan hluta leiðarinnar aka aðrar leiðir líka.

Betri nýting á fjármunum í forvarnastarfi

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að fela félagsmálaráðherra að leiða samstarf þeirra aðila sem starfa að forvörnum hér á landi og móta heildstæða forvarnastefnu sem byggi á betri nýtingu þeirra fjármuna sem þegar er veitt í verkefni á þessu sviði.

Búskap hætt á Hrafnseyri

Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar, er komin í röð eyðijarða. Þetta fyrrum höfuðból var mannlaust í vetur, í fyrsta sinn frá landnámi. Þar er þó reynt að halda uppi öflugri starfsemi yfir sumartímann, en það nýjasta er að bjóða upp á háskólanám.

2500 ábendingar um barnaklám

Ábendingalínu Barnaheillar vegna barnakláms á Netinu hafa borist 2500 ábendingar síðustu ár. Talsmenn tengslasíðna eins og MySpace og Bebo hafa viðurkennt að þeir geti lagt meira á sig til að halda kynferðisglæpamönnum frá börnum.

Vel sótt sýning

Sýning á hönnun Steinunnar Sigurðardóttir vakti mikla athygli á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn en sýningin er ný nýafstaðin.

Fullveldishátíð Hríseyjar haldin um næstu helgi

Fullveldishátíðin í Hrísey verður haldin hátíðlega um næstu helgi. Þetta er í tíunda sinn sem hátíðin er haldin en hún var upphaflega haldin árið 1997 til að fagna því að tillaga um sameiningu Hríseyjar og Dalvíkur var felld.

Rafmagn komið á í Kópavogi

Rafmagn er komið aftur á í Kópavogi en grafið var í háspennustreng við Smiðjuveg um klukkan þrjú í dag. Rafmagnslaust varð í Engihjalla, Hlíðarhjalla, Stórahjalla og hluta Smiðjuvegs. Rafmagn kom á að nýju rétt fyrir klukkan fjögur í dag.

Biðtími hámark 3 mínútur

Strætó bs. segir að með breytingum á tímatöflum verði biðtími við tengingu á milli leiðar 19 og stofnleiðar 6 að hámarki 3 mínútur.

Sjá næstu 50 fréttir