Fleiri fréttir Dorrit verður Íslendingur Dorrit Moussaieff, eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, verður íslenskur ríkisborgari næstkomandi mánudag, hinn 31. júlí. Umsókn hennar hefur verið afgreidd úr dómsmálaráðuneytinu og mun taka gildi á mánudaginn. Þetta staðfestir Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. 25.7.2006 07:30 Verða feitari og óheilbrigðari Norðurlandabúar verða sífellt feitari og óheilbrigðari en samkvæmt nýlegri skýrslu er fimmta hvert barn of þungt og rúmlega fjörutíu prósent fullorðinna glíma við sama vandamál. 25.7.2006 07:30 Guðjón segir lögbrot hafa verið nauðsyn Guðjón Hjörleifsson segir að það hafi verið nauðsynlegt að brjóta hlutafélagalög til þess að Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja gæti keypt Íslenskar matvörur, sem rak félagið nánast í þrot. Lögmenn segja brotið geta falið í sér refsiábyrgð. 25.7.2006 07:30 Metár í utanlandsferðum Það er ekki logið á ferðagleði landans, eins og kemur skýrast fram hjá íslenskum ferðaskrifstofum þessa dagana. Uppselt er í flestar ferðir til sólarlanda næstu þrjár vikurnar. Þegar allt er talið eru seld hundruð þúsunda sæta á hverju ári í sólina, skíðaferðir, borgarferðir og sérferðir margs konar. Athygli vekur að mikið er spurt um sólarlandaferðir þegar veður er gott hér á landi. 25.7.2006 07:15 Kísilblanda borin á vegkanta Styrkja ætti vegkanta á þjóðvegum landsins með því að bera á þá blöndu úr sandi, sementi og kísilryki. Þetta segir Steingrímur Sigurjónsson, byggingarfræðingur, hópferðabílstjóri og hugvitsmaður, sem lætur sér ekkert óviðkomandi þegar öryggi mannvirkja er annars vegar, hvort heldur það eru vegir eða byggingar. 25.7.2006 07:15 Önnin kostar 236 þúsund Viðskiptaháskólinn á Bifröst er einn þeirra háskóla sem hafa hækkað skólagjöld sín. Aðstoðarrektor segir hækkanir tilkomnar vegna aukinnar þjónustu við nemendur og að málið sé unnið í fullri sátt. 25.7.2006 07:15 Tilkynnt um fljótandi lík Lögregla bjargaði manni á floti rétt fyrir utan Grafarvog um þrjú leytið í gærnótt. Tilkynnt var að sést hefði lík á floti en þegar lögregla kom á staðinn, á litlum gúmmíbát, var maðurinn á lífi. 25.7.2006 07:00 Mati á eignum RÚV að ljúka Mati á eignum Ríkisútvarpsins lýkur um miðjan ágúst en nefnd fjögurra manna, undir forystu Sigurðar Þórðarsonar ríkisendurskoðanda, hefur unnið að matinu. 25.7.2006 07:00 Vegagerðin hafnar vegaskiltum á ensku Sjóvá-Almennar hefur lagt til við Vegagerðina að settar verði merkingar á ensku á þeim stöðum þar sem malarslitlag tekur við af bundnu slitlagi, en malarvegir reynast mörgum erlendum ferðamönnum skeinuhættir. Vegagerðin telur ekki ástæðu til að setja upp merkingar á ensku. 25.7.2006 07:00 Byggja 200 þjónustuíbúðir „Við ræddum undirbúning á byggingu um það bil 200 þjónustuíbúða og fórum svo vítt og breitt yfir allt sem viðkemur þjónustu við þennan hóp,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sem sat fyrsta fund samráðsnefndar Reykjavíkurborgar um málefni eldri borgara sem haldinn var í gærdag. 25.7.2006 07:00 Fundar í Sviss um Schengen 25.7.2006 06:45 Uppbygging á Vestfjörðum Ferðamálastofa hefur undirritað undir samning vegna verkefna í uppbyggingu og úrbótum á ferðamannastöðum á Vestfjörðum. Þeir sem koma að samningnum eru klasafyrirtækið Sjávarþorpið Suðureyri og Ísafjarðarbær. Sjávarþorpið Suðureyri fær styrk til uppbyggingar á upplýsingamiðlunartorgi sem staðsett er við innkeyrsluna í bæinn, og Ísafjarðarbær fær styrk til úrbóta á aðstöðu fyrir ferðafólk á Hornströndum. 25.7.2006 06:45 Íslendingar aldrei fleiri Íbúum landsins hefur fjölgað um fjögur þúsund það sem af er árinu en það er mesta fjölgun síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Að sögn Ólafar Garðarsdóttur hjá Hagstofunni er rúmur helmingur fjölgunarinnar til kominn vegna fólks sem flyst til landsins en flestir flytjast frá Póllandi. 25.7.2006 06:45 Segir forsvarsmenn Neyðarlínu rjúfa sátt Stjórnarformaður Atlassíma telur framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar rjúfa sátt með kæru, sem vísað hefur verið frá. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar neitar því. Yfirlýsing milli Atlassíma og Neyðarlínunnar var undirrituð 25. nóvember. 25.7.2006 06:45 Neytendasamtökin óánægð Neytendasamtökin eru óánægð með viðbrögð ráðherra við hugmyndum matvælaverðsnefndar. Þau segja fulla ástæðu til að velta fyrir sér til hvers þessi nefnd hafi yfir höfuð verið skipuð og telja landbúnaðarráðherra standa í vegi fyrir aðgerðum til lækkunar á matvælaverði. 24.7.2006 22:32 Milljónatjón af völdum veggjakrots Skemmdir af völdum veggjakrots nema tugum milljóna króna á ári. Borgarstjóri segir að ekki verði lengur við þetta unað og ætla hann að grípa til aðgerða. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur verið í miklum hreingerningum um borgina að undaförnu og segir hann að nú verði veggjakrot ekki liðið lengur. Hann segir íbúa um alla borg þurfa að greiða milljónir í hreinsun á eigum sínum og tekur sem dæmi að kostnaður Orkuveitunnar einnar nemi um 25 milljónum króna á ári. 24.7.2006 22:21 Myspace lá niðri Bandaríska heimasíðan Myspace lá niðri og var óaðgengileg í hálfan sólarhring í dag eftir að rafmagnslaust varð í höfuðstöðvum netfyrirtækisins vegna mikillar hitabylgju í Kaliforníu. 24.7.2006 22:20 Íþróttir 18:30 24.7.2006 21:12
Sjá næstu 50 fréttir
Dorrit verður Íslendingur Dorrit Moussaieff, eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, verður íslenskur ríkisborgari næstkomandi mánudag, hinn 31. júlí. Umsókn hennar hefur verið afgreidd úr dómsmálaráðuneytinu og mun taka gildi á mánudaginn. Þetta staðfestir Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. 25.7.2006 07:30
Verða feitari og óheilbrigðari Norðurlandabúar verða sífellt feitari og óheilbrigðari en samkvæmt nýlegri skýrslu er fimmta hvert barn of þungt og rúmlega fjörutíu prósent fullorðinna glíma við sama vandamál. 25.7.2006 07:30
Guðjón segir lögbrot hafa verið nauðsyn Guðjón Hjörleifsson segir að það hafi verið nauðsynlegt að brjóta hlutafélagalög til þess að Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja gæti keypt Íslenskar matvörur, sem rak félagið nánast í þrot. Lögmenn segja brotið geta falið í sér refsiábyrgð. 25.7.2006 07:30
Metár í utanlandsferðum Það er ekki logið á ferðagleði landans, eins og kemur skýrast fram hjá íslenskum ferðaskrifstofum þessa dagana. Uppselt er í flestar ferðir til sólarlanda næstu þrjár vikurnar. Þegar allt er talið eru seld hundruð þúsunda sæta á hverju ári í sólina, skíðaferðir, borgarferðir og sérferðir margs konar. Athygli vekur að mikið er spurt um sólarlandaferðir þegar veður er gott hér á landi. 25.7.2006 07:15
Kísilblanda borin á vegkanta Styrkja ætti vegkanta á þjóðvegum landsins með því að bera á þá blöndu úr sandi, sementi og kísilryki. Þetta segir Steingrímur Sigurjónsson, byggingarfræðingur, hópferðabílstjóri og hugvitsmaður, sem lætur sér ekkert óviðkomandi þegar öryggi mannvirkja er annars vegar, hvort heldur það eru vegir eða byggingar. 25.7.2006 07:15
Önnin kostar 236 þúsund Viðskiptaháskólinn á Bifröst er einn þeirra háskóla sem hafa hækkað skólagjöld sín. Aðstoðarrektor segir hækkanir tilkomnar vegna aukinnar þjónustu við nemendur og að málið sé unnið í fullri sátt. 25.7.2006 07:15
Tilkynnt um fljótandi lík Lögregla bjargaði manni á floti rétt fyrir utan Grafarvog um þrjú leytið í gærnótt. Tilkynnt var að sést hefði lík á floti en þegar lögregla kom á staðinn, á litlum gúmmíbát, var maðurinn á lífi. 25.7.2006 07:00
Mati á eignum RÚV að ljúka Mati á eignum Ríkisútvarpsins lýkur um miðjan ágúst en nefnd fjögurra manna, undir forystu Sigurðar Þórðarsonar ríkisendurskoðanda, hefur unnið að matinu. 25.7.2006 07:00
Vegagerðin hafnar vegaskiltum á ensku Sjóvá-Almennar hefur lagt til við Vegagerðina að settar verði merkingar á ensku á þeim stöðum þar sem malarslitlag tekur við af bundnu slitlagi, en malarvegir reynast mörgum erlendum ferðamönnum skeinuhættir. Vegagerðin telur ekki ástæðu til að setja upp merkingar á ensku. 25.7.2006 07:00
Byggja 200 þjónustuíbúðir „Við ræddum undirbúning á byggingu um það bil 200 þjónustuíbúða og fórum svo vítt og breitt yfir allt sem viðkemur þjónustu við þennan hóp,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sem sat fyrsta fund samráðsnefndar Reykjavíkurborgar um málefni eldri borgara sem haldinn var í gærdag. 25.7.2006 07:00
Uppbygging á Vestfjörðum Ferðamálastofa hefur undirritað undir samning vegna verkefna í uppbyggingu og úrbótum á ferðamannastöðum á Vestfjörðum. Þeir sem koma að samningnum eru klasafyrirtækið Sjávarþorpið Suðureyri og Ísafjarðarbær. Sjávarþorpið Suðureyri fær styrk til uppbyggingar á upplýsingamiðlunartorgi sem staðsett er við innkeyrsluna í bæinn, og Ísafjarðarbær fær styrk til úrbóta á aðstöðu fyrir ferðafólk á Hornströndum. 25.7.2006 06:45
Íslendingar aldrei fleiri Íbúum landsins hefur fjölgað um fjögur þúsund það sem af er árinu en það er mesta fjölgun síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Að sögn Ólafar Garðarsdóttur hjá Hagstofunni er rúmur helmingur fjölgunarinnar til kominn vegna fólks sem flyst til landsins en flestir flytjast frá Póllandi. 25.7.2006 06:45
Segir forsvarsmenn Neyðarlínu rjúfa sátt Stjórnarformaður Atlassíma telur framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar rjúfa sátt með kæru, sem vísað hefur verið frá. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar neitar því. Yfirlýsing milli Atlassíma og Neyðarlínunnar var undirrituð 25. nóvember. 25.7.2006 06:45
Neytendasamtökin óánægð Neytendasamtökin eru óánægð með viðbrögð ráðherra við hugmyndum matvælaverðsnefndar. Þau segja fulla ástæðu til að velta fyrir sér til hvers þessi nefnd hafi yfir höfuð verið skipuð og telja landbúnaðarráðherra standa í vegi fyrir aðgerðum til lækkunar á matvælaverði. 24.7.2006 22:32
Milljónatjón af völdum veggjakrots Skemmdir af völdum veggjakrots nema tugum milljóna króna á ári. Borgarstjóri segir að ekki verði lengur við þetta unað og ætla hann að grípa til aðgerða. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur verið í miklum hreingerningum um borgina að undaförnu og segir hann að nú verði veggjakrot ekki liðið lengur. Hann segir íbúa um alla borg þurfa að greiða milljónir í hreinsun á eigum sínum og tekur sem dæmi að kostnaður Orkuveitunnar einnar nemi um 25 milljónum króna á ári. 24.7.2006 22:21
Myspace lá niðri Bandaríska heimasíðan Myspace lá niðri og var óaðgengileg í hálfan sólarhring í dag eftir að rafmagnslaust varð í höfuðstöðvum netfyrirtækisins vegna mikillar hitabylgju í Kaliforníu. 24.7.2006 22:20
Á Kayak hringinn í kringum landið Ísraelsk kona lýkur brátt ferð sinni á Kayak hringinn í kringum landið. Hún kom til Reykjavíkur í dag en þetta er í fyrsta skipti sem einstaklingur rær einn síns í liðs í kringum landið á Kayak . 24.7.2006 20:01
Áttu ekki krónu en keyptu fyrir milljónir Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja átti ekki krónu þegar ákvörðun var tekin um að kaupa Íslensk matvæli fyrir eitthundrað og þrjátíu milljónir. Stofnfjáreigendur félagsins borguðu ekki krónu fyrr en rúmum mánuði seinna og helmingur stofnfjárins skilaði sér aldrei. 24.7.2006 18:57
Þrír hafa látist í bifhjólaslysum í ár Þrír hafa látist í bifhjólaslysum á árinu. Mótorhjólalögreglumaður telur aukna vélhjólaeign, vaxandi umferð og slæma vegi eiga sinn þátt í slysunum. Hjólafólk ætlar að hittast á fundi í vikunni og fara yfir umferðaröryggismál. 24.7.2006 18:45
Nærri fimm hundruð með endurvinnslutunnu Á fimmta hundrað endurvinnslutunna frá Gámaþjónustunni eru í notkun á höfuðborgarsvæðinu en farið var að bjóða upp á þessa þjónustu í desember. Það sem fer í tunnurnar er ekki grafið í jörð heldur selt til Hollands. 24.7.2006 18:45
Létust í umferðarslysum Maður lést af áverkum sínum aðfaranótt sunnudags eftir að hafa orðið fyrir bíl á Strandvegi skammt frá Hólmavík, á laugardagskvöld. Hann hét Þórður Björnsson til heimilis að Skólabraut 5 Seltjarnarnesi. Þórður var fæddur árið 1922. Hann lætur eftir sig sex uppkomin börn. Á sjöunda tímanum í gær lést ungur maður þegar hann missti stjórn á vélhjóli sínu á Suðurlandsvegi við brúnna yfir Eystri- Rangá. Hann hét Birkir Hafberg Jónsson til heimilis að Öldubakka 19 á Hvolsvelli. Birkir var 26 ára gamall, ókvæntur og barnlaus. 24.7.2006 18:29
Litbyssumenn fremja skemmdarverk Skemmdarverk voru unnin á útivistarsvæðinu í Sólbrekkuskógi við Seltjörn á Reykjanesi um helgina. Búið er að brenna útikamar til kaldra kola, og skjóta úr litboltabyssum á eignir svo litaklessur og taumar eru um allt. 24.7.2006 17:22
Tafir á flugi Tafir urðu á flugi til og frá landinu um helgina þegar flugumferðastjórar tilkynntu sig veika og enginn fékkst til að koma á aukavakt. Deilan vegna óánægju flugumferðarstjóra með nýtt vaktaplan er enn óleyst. 24.7.2006 16:39
Gert að sveigja reglur um áhættudreifingu Fyrrverandi stjórnarformaður Byggðastofnunar segir ríkisstjórnina hafa fyrirskipað að sveigja reglurnar um áhættudreifingu, þegar Eignarhaldsfélag Vestmanneyja var keypt. Og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte og Touche staðfesti á stofnskjali Eignarhaldsfélagsins að allt stofnfé hefði verið greitt. En helmingur fjárins skilaði sér ekki. 24.7.2006 15:33
Sænsk ræðisskrifstofa í Húsavík Utanríkisráðuneyti Svíþjóðar hefur ákveðið að stofna sænska ræðisskrifstofu í Húsavík. Þórunn Harðardóttir leiðsögumaður hefur verið skipuð heiðursræðismaður fyrir sveitarfélögin Norðurþing og Akureyri. Útnefning Þórunnar verður kunngerð af sænska sendiherranum Madeleine Ströje Wilkens á Húsavík í dag um leið og Sænskum dögum verður hleypt af stokkunum. 24.7.2006 15:23
Kátir biskupar Hólabiskupar til forna voru höfðingjar heim að sækja, miðað við veislusal sem kom úr kafinu, rétt í þann mund sem fornleifafræðingar voru að ljúka uppgrefti á hinu forna biskupssetri þetta sumar. 24.7.2006 14:50
Áfengissala eykst Velta í dagvöruverslun var fimm komma þremur prósentum meiri í júní síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra, miðað við fast verðlag. Þetta kemur fram í smásöluvísitölu sem reiknuð er af rannsóknarsetri verslunarinnar við Viðskiptaháskólann á Bifröst. 24.7.2006 14:47
Truflanir á vefþjónustu Truflun verður á vefþjónustu Veðurstofu Íslands vegna vinnu við raflagnir í kvöld klukkan 18:30. Í fréttatilkynningu frá Veðurstofunni segir að ætlunin sé að vinnu verði lokið í síðasta lagi klukkan 22:00 og vefþjónustan verði þá komin í samt horf. Beðist er er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur í för með sér. 24.7.2006 12:59
Óvíst með nýtingu olíutanka í Helguvík Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins NATO hafði ný fallist á að íslensk olíufélög fengju afnot af olíumannvirkjunum í Helguvík, til að þurfa ekki að aka öllu flugvélaeldsneyti frá Reykjavík, þegar Varnarliðið tilkynnti um brottför sína og málið fór í uppnám. 24.7.2006 12:30
Eftirlit verður haft með eignum Varnarliðsins Utanríkisráðuneytið hefur, fyrir hönd Varnarliðsins, auglýst eftir verktökum til að annast viðhald og eftirlit með eignum Atlantshafsbandalagsins á Keflavíkurflugvelli, eftir að Varnarliðið fer í haust. Varnarlilðið sjálft hefur hins vegar ekki óskað eftir eftirliti með sínum eignum. 24.7.2006 12:00
Neyðarkall barst frá olíulausum bát Vaktstöð siglinga barst neyðarkall frá erlendum bát, Sylvia Dawn, um sjöleitið í morgun en báturinn varð olíulaus skammt undan Dyrhólaey í Vík í Mýrdal. Björgunarsveitin Víkverji fór á björgunarbát áleiðis að bátnum með olíu og var kominn að honum laustyrir klukkan tíu. Engin hætta var á ferðum en rólegt og gott veður er á þessu slóðum. 24.7.2006 10:48
Um 20.000 ferðamenn hafa siglt á Jökulsárlóni í sumar Um 20.000 manns hafa farið í bátsferðir um Jökulsárlón á Breiðamerkursandi það sem af er sumri en það er svipaður fjöldi og á sama tíma í fyrra. Á laugardaginn sigldu 815 ferðamenn og er það metdagur sumarsins. Þar af voru um hundrað manns á vegum starfsmannafélags Skinneyjar-Þinganes. Fjórir hjólabátar eru nú nýttir í ferðir út á Jökulsárlónið. 24.7.2006 10:33
Tæplega 2.000 gestir á Þórbergssetur Hátt á annað þúsund gestir hafa komið á Þórbergssetur á bænum Hala í Hornafirði í þær tæpu þjár vikur sem safnið hefur verið opið. Safnið var opnað í byrjun þessa mánaðar en það er tileinkað Þórbergi Þórðarsyni rithöfundi. 24.7.2006 09:30
Húsavíkurhátíðin sett í dag Meistarakokkur sænska sendiráðsins mun gleðja Húsvíkinga og gesti með eldamennsku sinni á Húsavíkurhátíðinni sem verður sett í dag með pompi og prakt. Fréttavefurinn Skarpur.is greinir frá því að kokkurinn muni reiða fram sænska rétti á veitingastaðnum Gamla Bauk á morgun og fram á fimmtudag. Mærudögum og Sænskum dögum hafi nú verið steypt saman og munu hátíðarhöldin standa út vikuna. Líkt og nærri má geta verða fjölmargar uppákomur, sænskar sem og íslenskar. 24.7.2006 09:15
Ölvaðir ökumenn gerðu óskunda í Grafarvogi Tveir ölvaðir ökumenn óku aftan á tvo bíla í Grafarvogi með nokkurra klukkusutnda millibili í gærkvöldi. Báðir stungu af frá vettvangi, en náðust báðir heima hjá sér, samkvæmt ábendingum ökumanna bílanna, sem þeir óku á. Hvorugur þeirra meiddist og hvorugur ölvuðu ökumanna heldur, en þeir voru báðir handteknir á heimilum sínum og gista báðir fangageymslur þar til yfirheyrslur yfir þeim hefjast. 24.7.2006 09:00
Húsnæðisvelta fer minnkandi Húsnæðisveltan á höfuðborgarsvæðinu í þar síðustu viku var rúmlega 3,1 milljarður, sem er hátt í milljarði minni velta en að meðaltali síðustu tólf vikurnar þar á undan. Meðaltal þeirra vikna er líka orðið talsvert undir meðaltali jafnlengdar á fyrstu mánuðum ársins. Aðeins 116 kaupsamningum var þingslýst á höfuðborgarsvæðinu í vikunni, sem er 44 samningum undir meðaltali síðustu tólf vikna. 24.7.2006 08:38
Norskt fiskiskip hrekst undan hafís Hafís er norðvestur af landinu og hefur norskt fiskiskip, sem hefur verið að veiðum við Grænland, hrakist undan honum inn í íslenska lögsögu. Ekkert er þó að um borð. Vitað er um hafís um 65 sjómílur norðvestur af Barðaq, á milli Önundarfjarðar og Dýrafjaðrar á Vestfjörðum, en skipum á venjulegum siglingaleiðum umhverfis landið stafar engin hætta af honum. Ísinn hefur ekki verið kannaður úr lofti. 24.7.2006 08:30
Karlmaður lést í bifhjólaslysi Karlmaður á þrítugsaldri lést þegar hann missti stjórn á vélhjóli sínu við brú yfir Eystri Rangá á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Hjólið hafnaði í ánni en maðurinn á árbakkanum, og var hann látinn þegar bjrögunarmenn komu á vettvang. Tildrög slyssins eru óljós og segir lögregla ekkert benda til að maðurinn hafi ekið ógætilega. Þetta er ellefta banaslysið í ár en það tíunda varð þegar karlmaður á níræðisaldri varð fyrir bíl skammt frá Hólmavík í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að hann lést í fyrrinótt. 24.7.2006 08:03
Fjárfesting félagsins stórkostleg mistök Forstjóri Byggðastofnunar segir stórkostleg mistök hjá Eignarhaldsfélagi Vestmannaeyja að eyða öllu sínu fé í eitt fyrirtæki. Fyrrverandi stjórnarformaður félagsins segir auðvelt að vera vitur eftir á, kaupin hafi þótt góð á sínum tíma. 24.7.2006 07:45
Reynir annað „Ég óskaði sjálfur eftir að hætta og geri það í góðu en ég vil ekki tjá mig um hvað við tekur að sinni,“ segir Reynir Traustason blaðamaður, en hann er hættur störfum sem ritstjóri Mannlífs. 24.7.2006 07:45
Tólf sækja um embættið Tólf umsóknir bárust um embætti sveitarstjóra í Norðurþingi. Norðurþing varð til við sameiningu Raufarhafnarhrepps, Öxarfjarðarhrepps, Kelduneshrepps og Húsavíkurbæjar. 24.7.2006 07:30
Atvinnuveiðar á hrefnu hefjast hugsanlega á næsta ári Meginmarkmið rannsóknaráætlunarinnar, sem felur í sér veiðar á 200 hrefnum, er að afla grunnþekkingar á fæðuvistfræði hrefnu hér við land en auk rannsókna á fæðusamsetningu með greiningu magainnihalds verður aflað annarra gagna sem nauðsynleg eru til að meta afrán tegundarinnar á hinum ýmsu fæðutegundum. 24.7.2006 07:30
Flutu 30 metra niður Krossá Fimm sluppu óslösuð þegar pallbíll þeirra festist í Krossá í Þórsmörk í gær. Bíllinn lenti ofan í hyl, flaut upp og með straumnum um þrjátíu metra niður ána. Þar skorðaðist hann fastur og vatn braut yfir. Fólkinu tókst að klifra upp á þak bílsins og var þaðan bjargað, af björgunarsveit Landsbjargar. Skálaverðir í Húsadal drógu bílinn upp. 24.7.2006 07:15