Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Geti átt yfir höfði sér fangelsisdóm fyrir að flýja herkvaðningu Pútín tilkynnti rússnesku þjóðinni á miðvikudag að grípa skildi til herkvaðningar til þess að vernda Rússa á „frelsuðum svæðum.“ Lítið virðist vitað um hversu margir verði skikkaðir í herinn og hafa karlmenn haldið á flótta frá landinu vegna þessa. Pútín er sagður hafa gripið til lagabreytinga sem refsi þeim sem flýi herkvaðninguna. 24.9.2022 15:31
Ríki ESB fleygja rúmlega 150 milljónum tonna af mat á ári Ríki Evrópusambandsins sóa meiri mat en þau flytja inn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu umhverfissamtakanna Feedback EU. Stefnt er að því að draga úr matarsóun um helming á næstu 8 árum. 24.9.2022 14:30
Mikið þurfi að koma til svo farþegum sé vísað úr vélinni Ríka ástæðu þarf til að farþega sé vísað úr vélum Icelandair. Þetta segir talsmaður félagsins um atvik þar sem farþega var vísað úr vél í gær eftir að hafa lent í ágreiningi við áhöfn um grímuskyldu og handfarangur. 24.9.2022 13:35
„Við eigum ekki að haga okkur svona“ Starfsendurhæfingarsjóðurinn VIRK hefur ýtt úr vör nýju átaki sem snýr að því að koma í veg fyrir og varpa ljósi á kynferðislegt áreiti á vinnustöðum. Átakið hófst með myndbandi þar sem málefninu er skellt upp með húmor, það mætti segja að orðatiltækið „öllu gríni fylgir einhver alvara“ eigi við hér. 24.9.2022 12:56
Um 300 hross í Laufskálarétt í dag Um þrjú þúsund manns eru nú í Laufskálarétt í Hjaltadal í Skagafirði en hrossin í réttinni eru þó ekki nema um þrjú hundruð. Dagurinn endar á réttarballi í kvöld. 24.9.2022 12:05
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar segjum við frá því að einn mannanna sem grunaður er um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á landi komst í kast við sérsveit ríkislögreglustjóra fyrir þrettán árum. Hann var þá tólf ára gamall og hafði verið að leik þegar sérsveit var kölluð til vegna hans. Við ræðum við verjanda annars þeirra sem sitja nú í gæsluvarðhaldi. 24.9.2022 11:33
Sérsveit hafði afskipti af einum mannanna þegar hann var tólf ára við leik Einn mannanna sem grunaður er um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á landi komst í kast við sérsveit ríkislögreglustjóra fyrir þrettán árum. Hann var þá tólf ára gamall og hafði verið að leik þegar sérsveit var kölluð til vegna hans. 24.9.2022 10:33
Hægriflokkarnir stefna á stórsigur með öfgahægrikonu í fararbroddi Ítalir ganga til þingkosninga á morgun og er baráttan hörð á milli flokkanna á hægri og vinstri vængnum. Væntanleg orkukreppa og stríðið í Úkraínu hafa áhrif á kosningarnar í ár en allt stefnir í að öfgahægriflokkur fái forsætisráðherrastólinn í fyrsta sinn frá því að Mussolini var í embætti. Kona gæti í fyrsta sinn í sögunni orðið forsætisráðherra Ítalíu. 24.9.2022 10:00
Kúabændur eru brattir með sig og kýrnar sínar Kúabændur landsins hafa náð að auka meðalframleiðslu á hverja kú um 50% á síðustu 30 árum. Á sama tíma hefur mjólkurkúm fækkað um 20% á meðan framleiðslan hefur aukist um 43%. Færri kýr þarf því til að framleiða meiri mjólk og þannig hefur bæði orðið gríðarleg hagræðing og minni losun kolefnis í greininni. 24.9.2022 09:07
Stefnir í slag um ritaraembættið: „Að óbreyttu heldur fylgi Sjálfstæðisflokksins áfram að hnigna“ Helgi Áss Grétarsson hefur gefið kost á sér til embættis ritara Sjálfstæðisflokksins. Að óbreyttu telur hann að fylgi Sjálfstæðisflokksins muni halda áfram að hnigna. Það stefnir í slag um ritaraembættið en Bryndís Haraldsdóttir sækist einnig eftir kjöri. 24.9.2022 09:02
Kröpp lægð og gular viðvaranir um allt land Fyrsta haustlægðin lætur að sér kveða þessa dagana en gular veðurviðvaranir taka gildi víða um land í kvöld og vara fram að mánudegi. Búist er við suðvestan hvassviðri eða stormi undir kvöld með snörpum vindhviðum. 24.9.2022 08:22
Sautján ára fluttur á bráðadeild eftir líkamsárás við Norðlingaskóla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og í nótt, á meðal þeirra verkefna sem embættið sinnti var tilkynning um líkamsárás við Norðlingaskóla þar sem 17 ára piltur var fluttur á bráðadeild með áverka á höfði. 24.9.2022 07:38
Toyota lokar verksmiðju sinni í Rússlandi Fyrirtækið mun áfram þjónusta Toyota eigendur í Rússlandi en ekki framleiða neina bíla þar. Fyrirtæki hafa mörg hver yfirgefið Rússland í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Nú hefur Toyota bæst við á þann lista. 24.9.2022 07:00
Með auknum heimildum geti lögregla fylgst með fólki sem ekkert hafi af sér gert Þingmaður segir frumvarp dómsmálaráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu þýða það að lögregla geti haft eftirlit með fólki sem ekki hefur brotið af sér. Lögregla hafi þegar mjög rúmar heimildir til rannsóknar og eftirlits með almennum borgurum. 23.9.2022 22:31
Varð fyrir óþægindum vegna nafnbirtingar fjölmiðils Í tilkynningu sem barst fjölmiðlum í kvöld biður Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra fjölmiðla um að sýna aðgát í fréttaflutningi. 23.9.2022 22:25
Málið óvenjulegt miðað við hryðjuverkamál á Vesturlöndum Prófessor í stjórnmálafræði segir koma sér verulega á óvart að mál hafi komið upp hér á landi þar sem grunur er um að menn hafi verið að undirbúa hryðjuverk. Þá séu allar upplýsingar sem hafi komið fram mjög óvenjulegar og ekki í takt við sambærileg mál á Vesturlöndum. 23.9.2022 21:20
Segir atvikið aðför að blaðamönnum Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra miðilsins Fréttin.is var vísað úr flugvél Icelandair í dag sem átti að fara til Munchen en Margrét ætlaði sér til Rússlands í vinnuferð. Hún segist niðurlægð eftir atvik dagsins, Icelandair hafi brotið á hennar réttindum og hún sé tilbúin til þess að fara með málið fyrir dómstóla. 23.9.2022 21:06
Finnst fáránleg kenning að maðurinn tengist öfgahópum Aðstandendur eins þeirra sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að undirbúa hryðjuverk kannast alls ekki við að hann hafi aðhyllst öfgakennda hugmyndafræði eða átt í nokkrum samskiptum við erlenda pólitíska öfgahópa. Mennirnir tveir eru grunaðir um stórfellda framleiðslu á skotvopnum, meðal annars með þrívíddarprentara, og sölu á þeim. 23.9.2022 20:00
Rússar flýi herkvaðningu Pútíns Mikil örtröð er sögð hafa myndast á landamærum Rússlands í kjölfar herkvaðningar Pútíns. Mikill fjöldi karlmanna bíði í bílaröð á landamærunum og freisti þess að komast hjá því að vera skikkaðir í herinn. 23.9.2022 19:59
Áfram gríðarlegt álag á heilsugæslunni þó sumrinu sé að ljúka Gríðarlegt álag er á heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins um þessar mundir. Mönnun er að komast í eðlilegt horf eftir sumarið en nú tekur við uppsöfnuð þörf eftir síðustu tvö ár. Framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir nokkra bið eftir tímum og býst við að róðurinn verði áfram þungur. 23.9.2022 19:31
Ótrúlegar tilviljanir lituðu sigur Þorláks Það var kraftaverki líkast þegar knattspyrnuliðið Þorlákur vann Boladeildina í knattspyrnu fyrr í vikunni, á afmælisdegi vinar liðsmanna sem féll fyrir eigin hendi - og liðið heitir eftir. Liðið fékk síðar að vita að sigurmarkið í hinum æsispennandi leik hefði verið skorað á nánast sömu mínútu og Þorlákur heitinn kom í heiminn á sínum tíma. 23.9.2022 19:28
Japan opnar landamærin í október og styrkir ferðaþjónustu Langt hlé hefur verið á ferðamennsku í Japan vegna kórónuveirufaraldursins en nú er útlit fyrir að varúðarráðstafanir vegna faraldursins verði látnar niður falla og landamærin opnuð á ný. 23.9.2022 18:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö segjum við frá því að lögregla hafði um langt skeið rannsakað mennina sem eru grunaðir um að undirbúa hryðjuverk vegna gruns um framleiðslu og sölu á skotvopnum. Við förum yfir atburðarás málsins en í skilaboðum milli mannanna sem eru í haldi komU fyrir orð eins og fjöldamorð samkvæmt upplýsingum fréttastofu. 23.9.2022 18:00
Réðst í heimildarleysi inn á heimili konu og nauðgaði Landsréttur hefur staðfest átján mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem sakfelldur var fyrir að hafa ruðst í heimildarleysi inn á heimili konu og nauðgað henni þar sem hún lá sofandi í sofa íbúðarinnar. 23.9.2022 17:01
Óþolandi refhvörf í laxeldinu Fyrirtækjunum Norðanfiski og Fisherman hefur, samkvæmt úrskurði Neytendastofu, verið bannað að nota villandi fullyrðingar í markaðssetningu á vöru sinni þess efnis að um sé að ræða vistvæna framleiðslu. Þau geti ekki sýnt fram á neitt slíkt. 23.9.2022 16:24
Segja íbúa hersetinna svæða þvingaða til að greiða atkvæði Stjórnvöld í Kænugarði fullyrða að íbúar á hersetnum svæðum hafi verið hótað refsingum taki þeir ekki þátt í atkvæðagreiðslu sem leppstjórnir Rússa halda nú um helgina um hvort svæðin skuli innlimuð í Rússland. 23.9.2022 16:20
Stóralvarlegt ef mikið vopnabúr fylgi öfgafullum skoðunum Það er eitt að hafa skoðanir en það er stóralvarlegt og getur leitt af sér mikinn skaða ef því fylgir að búið sé að safna miklu vopnabúri, segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, aðspurð um hvort að hún hafi áhyggjur af því að öfgafullar skoðanir og viðhorf hafi hreiðrað um sig hér á landi. 23.9.2022 16:09
Margréti Friðriks vísað úr flugvél Icelandair Margrét Friðriksdóttir, sem er ritstjóri vefsins Frettin.is, var á leið til Rússlands í morgun en var vísað úr flugvélinni, er strandaglópur á Íslandi og getur því ekki fjallað af eigin raun um ástandið á herteknu svæðunum í Úkraínu. 23.9.2022 15:33
Þorsteinn metinn hæfastur umsækjenda um stöður héraðsdómara Dómnefnd hefur metið Þorstein Magnússon, lögmann og framkvæmdastjóra óbyggðanefndar, hæfastan umsækjenda um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjaness annars vegar og Héraðsdóm Reykjavíkur hins vegar. 23.9.2022 14:58
Tugir farandfólks fórust undan ströndum Sýrlands Leitarlið hefur fundið 71 lík eftir að bátur með á annað hundrað farandfólks sökk undan ströndum Sýrlands í gær. Björgunaraðgerðir standa enn yfir en tuttugu manns hafa fundist á lífi til þessa og verið fluttir á sjúkrahús í Sýrlandi. 23.9.2022 14:55
Nadciąga sztorm ogłoszono żółty alert pogodowy Islandzkie Biuro Meteorologiczne wydało żółte ostrzeżenia pogodowe dla zachodniej i północnej części kraju z powodu silnego sztormu, który nadciągnie jutro nad Islandię. 23.9.2022 14:41
Misvægi atkvæða eftir búsetu gangi ekki árið 2022 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, vill gera vægi atkvæða milli kjördæma eins jafnt og stjórnarskrá heimilar. Það gangi ekki árið 2022 að vægi atkvæðis fari eftir því hvar viðkomandi búi á landinu. 23.9.2022 14:34
Policja aresztowała podejrzanych o terroryzm Czterech mężczyzn zatrzymano w związku z podejrzeniem o działania terrorystyczne. Policja podejrzewa, że mężczyźni mieli zamiar przygotować w kraju atak terrorystyczny skierowany przeciwko obywatelom i instytucjom państwowym. 23.9.2022 14:29
Dæmdur fyrir að valda höfuðkúpubroti við skemmtistað Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt mann í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa veist að og hrint manni fyrir utan skemmtistað í nóvember 2018 með þeim afleiðingum að maðurinn skall með hnakka í götuna og höfuðkúpubrotnaði. 23.9.2022 13:45
Sigurður Ingi braut engar siðareglur að sögn forsætisnefndar Forsætisnefnd Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra, hafi engar siðareglur brotið þegar hann lét umdeild ummæli falla um Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. 23.9.2022 13:44
Allt að tveggja ára fangelsi fyrir ölvunarakstur á rafmagnshlaupahjóli Innviðaráðherra hefur lagt fram frumvarp um breytingu á umferðarlögum er varða reiðhjól. Samkvæmt frumvarpinu bætast rafmagnshlaupahjól við lögin. Allt að tveggja ára fangelsi mun liggja við akstri hjólanna undir áhrifum áfengis. 23.9.2022 12:51
SÞ: Stríðsglæpir framdir á hersetnu svæðunum í Úkraínu Nauðganir, pyntingar og einangrunarvistun barna á sér stað á hersetnum svæðum Rússa í Úkraínu, að sögn yfirmanns rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Vísbendingar hafa fundist um fjölda aftaka þar sem fólk hefur verið skorið á háls eða skotið í höfuðið. 23.9.2022 12:36
Frumvarp Jóns ekki tengt meintri hryðjuverkatilraun Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að til skoðunar sé að auka viðbúnað hjá lögreglu. Bregðast þurfi við aukinni skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi. 23.9.2022 12:24
Segir Unni ekki vita upp á hár hvað fatlað fólk gangi í gegnum Freyja Haraldsdóttir, baráttukona og fyrrverandi varaþingmaður, segir leikstjóra verksins Sem á himni ekki vita upp á hár hvað fatlað fólk gangi í gegnum, þrátt fyrir að eiga fatlað barn. Hún vonast eftir því að aðstandendur sýningarinnar axli ábyrgð á langþreyttri birtingarmynd fötlunar. 23.9.2022 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Hryðjuverkaógnin, viðbrögð ráðherra og öfgahyggja á Íslandi verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 23.9.2022 11:42
Skelfilegt ef ráðast átti á lögreglumenn og maka í frítíma þeirra Formaður Landssambands lögreglumanna segir það vera skelfilegt að hugsa til þess að mennirnir sem grunaðir eru um að hafa verið að skipuleggja hryðjuverkaárás hafi mögulega ætlað að ráðast á lögreglumenn og maka þeirra í frítíma þeirra. Hann segir skipulagninguna vera árás á þjóðfélagsgerð Íslendinga. 23.9.2022 10:39
Vaktin: Sagðir hafa rætt um að fremja fjöldamorð Rannsókn lögreglu vegna gruns um að einstaklingar sem handteknir voru í umfangsmiklum aðgerðum í vikunni, hafi verið með hryðjuverk í bígerð heldur áfram. Vísir fylgist með vendingum dagsins í málinu í Vaktinni hér að neðan. 23.9.2022 10:16
Lögregluaðgerðin í kastljósi erlendra fjölmiðla Erlendir fjölmiðlar á borð við CNN og The Guardian hafa fjallað um aðgerðir lögreglu hér á landi í vikunni þar sem fjórir voru handteknir grunaðir um að hafa haft í hyggju að fremja hryðjuverk hér á landi. 23.9.2022 09:59
Gular viðvaranir gefnar út vegna hvassviðrisins um helgina Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á vestur- og norðurhluta landsins vegna hvassviðrisins sem skellur á landið annað kvöld. 23.9.2022 09:48
Bæði mest notuðu fíkniefni á Íslandi og gífurlega hjálpleg lyf Haraldur Erlendsson geðlæknir sem hefur fengist við ADHD-greiningar í á þriðja áratug segir að ADHD sé sennilega dýrasti sjúkdómur mannkynsins. Hann telur að hátt í 15% þjóðarinnar séu haldin sjúkdómnum, þótt aðeins 5% séu með greiningu. Lyf geti skipt sköpum þótt það þekkist að þau séu misnotuð. 23.9.2022 09:02