Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vill að Össur kanni hvort NATO hafi hunsað flóttamen Þórunn Sveinbjarnardóttir þingkona Samfylkingarinnar hvetur Össur Skarphéðinsson til þess að nýta sér stöðu sína og kanna hvað hæft sé í þeim fréttum að 61 flóttamaður á leið frá Líbíu til Ítalíu hafi látið lífið um borð. Málið hefur vakið mikla athygli en það var breska blaðið The Guardian sem fyrst sagði frá því. Blaðið hefur eftir fólki sem komst af að yfirvöld á svæðinu, þar á meðal NATO, hafi vitað af neyðinni án þess að brugðist hafi verið við. 10.5.2011 14:31
Fangelsi fyrir að framvísa röngum vegabréfum Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær þrjá eþíópíska ríkisborgara í 30 daga fangelsi fyrir að framvísa röngum vegabréfum við komuna til Íslands. Fólkið kom með flugi frá Osló á föstudaginn. Fólkið játaði brot sitt skýlaust fyrir dóminum. Um er að ræða karlmenn sem fæddir eru 1965 og 1975 og konu sem er fædd árið 1978. 10.5.2011 14:02
Íslenskur húmor fer illa í breska gagnrýnendur Næturvaktin í leikstjórn Ragnars Bragasonar lagðist greinilega misvel í Breta. Fyrsti þátturinn í seríunni var sýndur á sjónvarpsstöðinni BBC 4 í gær. "Orðalag og tungumálið er almennt er jafnan stærsta atriðið sem fær okkur til að hlæja, þannig að Næturvaktin, sem er íslenskur skemmtiþáttur með texta, er dálítil áhætta," segir Brian Viner, gagnrýnandi breska blaðsins Independent. Hann efast hins vegar ekkert um það að Íslendingum finnist þátturinn fyndinn. "Mér fannst það hins vegar ekki,“ segir hann. 10.5.2011 13:24
Ætla að afgreiða kvótamálið í ríkisstjórn í dag Til stendur að afgreiða frumvörp um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu út úr rikisstjórn í dag. Ráðherrar komu saman til reglulegs fundar í stjórnarráðshúsinu í morgun og stendur sá fundur enn. 10.5.2011 12:00
Biðlað til Svandísar og Jóhönnu að hlífa hvítabjörnum Alþjóðlegt bænaskjal til þeirra Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra og Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, um að hlífa hvítabjörnum, hefur nú verið opnað á netinu og hafa yfir sexhundrað manns þegar skrifað undir. Útlendingar virðast vera í miklum meirihluta. 10.5.2011 12:00
Surtsey á frímerki hjá Sameinuðu Þjóðunum Surtsey hefur orðið þess heiðurs aðnjótandi að prýða frímerki sem gefið er út af Póststofnun Sameinuðu Þjóðanna. Sex frímerki hafa verið gefin út í sérstakri útgáfu sem ætlað er að minnast norrænna heimsmynja. 10.5.2011 11:48
Móðgaði Harald konung Talsvert uppnám hefur orðið í Noregi eftir að norska Dagbladet hélt því fram að Jens Stoltenberg forsætisráðherra hefði komið í veg fyrir að Haraldur konungur sæmdi hermenn heiðursmerkjum á degi uppgjafahermanna síðastliðinn sunnudag. 10.5.2011 11:19
Synda fyrir bætta geðheilsu Sala á K-lykli Kiwanishreyfingarinnar hófst í morgun með því að Jakob Jóhann Sveinsson og Ragnheiður Ragnarsdóttir, afreksmenn í sundi, stungu sér til sunds í Laugardalslauginni í Reykjavík ásamt þeim Herði Oddfríðarsyni, formanni Sundsambandsins, og Óskari Guðjónssyni frá Kiwanissamtökunum. 10.5.2011 10:37
Hertogahjónin farin í brúðkaupsferð Hertogahjónin af Cambridge, þau Vilhjálmur Bretaprins og Katrín eiginkona hans, eru farin í brúðkaupsferð, nú þegar 10 dagar eru liðnir frá brúðkaupi þeirra í Westminister Abbey. Daily Telegraph segir að konungshirðin hafi staðfest að þau hefðu lagt af stað í ferðina en ekkert hefur fengist staðfest um það hvert þau fóru. Óstaðfestar heimildir herma að þau hafi farið til Sikileyja en aðrar heimildir segja að þau hafi farið á Indlandshaf. 10.5.2011 09:47
Fjöldi nýnema tvöfaldast Nýnemar á háskólastigi voru um það bil 3900 síðasta haust og hafði fjöldi þeirra tæplega tvöfaldast frá hausti 1997. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Nýnemar voru þó enn fleiri haustið 2009 eða tæplega 4400 og hafa aldrei verið fleiri en þá. 10.5.2011 09:17
Leki kom að Atlasi Leki kom að strandveiðibátnum Atlasi SH þegar hann var staddur út af Grundarfirði undir kvöld í gær. Skipverjum tókst að halda bátnum á floti með stöðugri dælingu á meðan þeir sigldu honum til lands. Þegar þangað kom var töluverður sjór kominn í bátinn. 10.5.2011 09:09
Íbúar í Runavík komnir heim á ný Enn logar um borð í togaranum Athenu en gríðarmikill eldur kom upp í skipinu í gær í höfninni í Runavík. Eldurinn í gærkvöldi var þó mun minni en áður að sögn færeyska útvarpsins og ætluðu menn að hefja aðgerðir til þess að kæla skipið. 10.5.2011 09:08
Leynisamningur gaf Bandaríkjamönnum leyfi til að ná Osama Bandarískir hermenn höfðu leyfi frá pakistönskum yfirvöldum til þess að ráðast inn í landið og ná í Osama Bin Laden. 10.5.2011 09:03
Schwarzenegger skilinn við Maríu Kvikmyndastjarnan og fyrrverandi ríkisstjóri Kalíforníu, Arnold Schwarzenegger, og eiginkona hans Maria Shriver, hafa ákveðið að skilja að borði og sæng. Arnold og Maria, sem tilheyrir Kennedy fjölskyldunni margfrægu, tilkynntu þetta í gærkvöldi. 10.5.2011 08:26
Uppreisnarmenn með yfirhöndina í Misrata Uppreisnarmenn í Líbísku borginni Misrata segjast hafa náð að hrekja hermenn Gaddafís einræðisherra frá úthverfum borgarinnar. Borgin er sú eina í vesturhluta landsins sem lýtur stjórn uppreisnarmanna og hafa menn Gaddafís setið um hana í tvo mánuði. 10.5.2011 08:24
Veiðar stöðvaðar á svæði eitt Strandveiðar á svæði númer eitt, voru stöðvaðar á miðnætti, þar sem bátarnir voru búnir að veiða heildarkvóta þessa mánaðar. Svæðið nær frá Snæfellsnesi til Bolungavíkur og er lang vinsælasta svæðið, sem sést best af því að lang flestir bátar eru skráðir til veiða þar. 10.5.2011 08:22
Reiðhjólalöggur tóku Vespu-mann úr umferð Tveir lögreglumenn á reiðhjólum tóku ökumann vespu-bifhjóls úr umferð á Akureyri í nótt þar sem hann reyndist undir áhrifum áfengis. Þetta gerðist á Mýrarvegi við Kaupvang og var Vespumaðurinn sviftur ökuréttindum til bráðabirgða. 10.5.2011 07:05
Segja bellibrögðum beitt í vínbúðarmáli Fjölmargir íbúar og húseigendur í nágrenni við vínbúð ÁTVR á Hólabraut á Akureyri mótmæla harðlega fyrirhugaðri deiliskipulagsbreytingu sem gera mun fyrirtækinu kleift að reisa viðbyggingu við húsnæði sitt. 10.5.2011 07:00
Hreindýraleyfi verði seld hæstbjóðendum Tekjur af hreindýrum á Austurlandi eru verulega minni en þær gætu verið vegna þess að veiðileyfin er seld á undirverði. Þetta segja kennarar við Háskólann á Akureyri. 10.5.2011 06:30
Dómurinn telur ákæruna vera skýra Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hafnaði í gær frávísunarkröfu verjenda í skattahluta Baugsmálsins. Dómarinn taldi ákæru í málinu ekki svo óskýra að ákærðu gætu ekki varið sig. 10.5.2011 05:00
Ráðgjöf og aðstaða í Matarsmiðju Matís mun opna áttundu starfsstöð sína utan höfuðborgarsvæðisins á fimmtudaginn á Flúðum. Um er að ræða svokallaða matarsmiðju en smiðjur sem þessar hefur Matís byggt upp með góðum árangri á Höfn í Hornafirði og á Egilsstöðum. 10.5.2011 04:00
Gangast í persónulegar ábyrgðir Eigendur Menntaskólans Hraðbrautar hafa ákveðið að innrita nýnema þrátt fyrir að þjónustusamningur við mennta- og menningarmálaráðuneytið kveði aðeins á um kaup ráðuneytisins á þjónustu skólans vegna nemenda á öðru ári. 10.5.2011 04:00
Aukið samstarf hjá háskólum Opinberu háskólarnir fjórir, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli-Háskólinn á Hólum hafa gert með sér samkomulag um sameiginlega stoðþjónustu á ákveðnum sviðum. Rektorar skólanna skrifuðu undir samkomulag þessa efnis að viðstöddum mennta- og menningarmálaráðherra í dag. 9.5.2011 16:33
Pakistanar hefja rannsókn á veru Osama í landinu Pakistanar ætla að hefja opinbera rannsókn á því hvernig stóð á því að hryðjuverkaleiðtoganum Osama Bin Laden tókst að dvelja í borginni Abbottabad í sex ár án þess að yfirvöld kæmust á snoðir um það. Forsætisráðherra landsins lýsti þessu yfir í þinghúsinu í Islamabad í dag. 9.5.2011 16:05
Helgi Seljan fór í hjartaþræðingu Helgi Seljan sjónvarpsfréttamaður gekkst undir hjartaþræðingu í fyrir fáeinum dögum. Hann er nú að jafna sig á Landspítalanum, samkvæmt heimildum Vísis. Helgi fann fyrir verki í hjarta og ákvað að leita læknisaðstoðar á bráðamóttöku Landspítalans. Fréttavefurinn Eyjan segir að þar hafi komið í ljós að ekki hafi verið um kransæðastíflu að ræða heldur bólgur í hjartavöðvum. Helgi baðst undan viðtali þegar Vísir spurði hann út í málið. 9.5.2011 15:15
Pöddur og skordýr í heimahúsum Ef þú þekkir fyrirbærið þá þarftu ekki að vera með æsing, heldur bregðast rétt við, segir Þóra Hrafnsdóttir líffræðingur. Pöddur, eins og ryklús, hambjöllur, húsamaur, silfurskottur - og svo humlur og geitungar eru yfirleitt illa séðir gestir í heimahúsum. Þóra segir að sér finnist viðbrögð við slíkum gestum oft líkjast hysteríu. Þörf sé á meiri fræðslu um slík dýr. Hún ætlar að bæta úr þessu með fyrirlestri í sal Náttúrufræðistofu Kópavogsbæjar á morgun. „Auk þess vil ég gefa innsýn í það sem mér finnst vera heillandi heimur smádýra," segir Þóra í samtali við Vísi. 9.5.2011 14:31
Herjólfur í Landeyjahöfn fram á fimmtudag Vestmannaeyjaferjan Herjólfur mun áfram sigla á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar en siglingar til Landeyja hófust að nýju um helgina. Ferjan mun sigla þrjár ferðir á dag á hverjum degi fram á fimmtudag þegar ástand mála verður endurmetið. 9.5.2011 14:27
Umferðarslys í Hafnarfirði - leitað að vitnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á mótum Reykjavíkurvegar og Hraunbrúnar í Hafnarfirði um klukkan 16 fimmtudaginn 5. maí. Að sögn lögreglu var grænum pallbíl, með húsi yfir palli, ekið á reiðhjólamann sem var á leið yfir götuna umferðarljós eru á gatnamótunum. 9.5.2011 14:18
Togarinn logar stafnanna á milli Togarinn Athena logar stafnanna milli í Runavik í Færeyjum og er talið að hann sé gjörónýtur. Margar öflugar sprengingar hafa orðið í skipinu frá því kviknaði í því í gærkvöldi og voru 1500 íbúar bæjarins fluttir þaðan í öryggisskyni. 9.5.2011 14:04
Skarst illa á hendi í Ólafsvík Maður slasaðist á Ólafsvík fyrir hádegið þegar hann fór með hendina í fiskvinnsluvél. Skarst maðurinn svo illa að kallað var á þyrlu Landhelgisgæslunnar sem sótti manninn. Þyrlan kom til Reykjavíkur um klukkan eitt var maðurinn lagður inn á Landspítalann í Fossvogi. 9.5.2011 13:43
Ríkissaksóknari beitir sér ekki vegna ísbjarnardráps Ríkissaksóknari hyggst að óbreyttu ekkert aðhafast vegna ísbjarnardrápsins á Hornströndum í síðustu viku. Dýrafræðingur telur að lagaákvæði um friðun hvítabjarna hafi verið brotin. Samkvæmt lögum eru hvítabirnir friðaðir á Íslandi. Þó má fella hvítabjörn, sem gengið hefur á land, ef fólki og búfénaði er talin stafa hætta af. 9.5.2011 13:36
Lögreglan leitar að eiganda myntsafns Lögreglan lýsir á Facebook síðu sinni eftir eiganda myntsafns sem er í hennar vörslu. Safnið er í möppu og er merkt „Íslenzkar myntir“. Þeir sem telja sig kannast við safnið geta haft samband við lögregluna í Hafnarfirði. 9.5.2011 13:10
Pétur Kristján fékk myndavélina Pétri Kristjáni Guðmundssyni varð að ósk sinni þegar hann fékk afhenta glæsilega Canon myndavél auk linsu og minniskorts í gær en Pétur lamaðist fyrir neðan mitti þegar hann féll niður kletta í Austurríki um síðustu áramót. 9.5.2011 13:03
Silvio loks á sakamannabekk Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu kom fyrir rétt í Milano í dag. Það er í fyrsta skipti sem hann kemur í dómssal í þeim fjölmörgu málum sem reynt hefur verið að höfða gegn honum undanfarin misseri. 9.5.2011 12:58
Aukin aðstoð við innflytjendur Innflytjendur geta nú sótt ráðgjöf og upplýsingar um réttindi sín og skyldur í Þjónustumiðstöð Breiðholts í Mjódd. Í tilkynningu frá borginni segir að boðið sé upp á almenna ráðgjöf, til að mynda um dvalarleyfi og ríkisborgararéttindi, réttindamál ýmis konar, sem og upplýsingar um menntunarmöguleika og frístundir, auk lögfræðilegrar ráðgjafar. 9.5.2011 12:53
Lagt til að bann við herskyldu fari í stjórnarskrá Stjórnlagaráð hefur birt ellefu greinar til kynningar í mannréttindakafla nýrrar stjórnarskrár, þar sem meðal annars er bannað að innleiða herskyldu á Íslandi. Þriðjungur er liðinn af skipunartíma ráðsins. 9.5.2011 12:16
Fjórir vilja fá hvítabjörninn Fjórir aðilar hafa sent Náttúrufræðistofnun erindi þar sem óskað er eftir því að fá hvítabjörninn sem var skotinn á Hornströndum í síðustu viku til varðveislu. Þar af eru þrír aðilar á Vestfjörðum, eftir því sem fram kemur á vef Bæjarins besta. 9.5.2011 11:30
Sigríður verður ekki á tvöföldum launum Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari og saksóknari Alþingis, hefur óskað eftir samtölum við skrifstofustjóra Alþingis um að laun vegna starfa hennar fyrir Alþingi verði lækkuð. Þetta staðfestir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri þingsins, í samtali við Vísi. 9.5.2011 11:04
Þorp rýmt vegna elds í togara Fimmtánhundruð íbúar hafa verið fluttir frá færeyska bænum Runavik þar sem risatogari liggur brennandi við bryggjuna. Yfirvöld óttast að skipið kunni að springa í loft upp auk þess sem eitraðan reyk leggur frá því. Togarinn Athena er hin mesta óhappafleyta. 9.5.2011 11:03
Fannst á lífi eftir sjö vikur í óbyggðum Veiðimenn í Nevada í Bandaríkjunum fundu í gær kanadíska konu á lífi en hennar hefur verið saknað í sjö vikur. Konan er að ná sér á spítala en björgunarsveitir leita enn að manni hennar sem var með í för. 9.5.2011 10:54
Gáfu fæðingardeildinni fullkominn blóðþrýstingsmæli Soroptimistaklúbbur Árbæjar gaf fæðingardeild 23A á Landspítala fullkominn stafrænan blóðþrýstingsmæli á standi með súrefnismettunarmæli, að verðmæti um 450.000 krónur. Tækið kemur sér afar vel við umönnun kvenna í fæðingu, til dæmis ef þær eru með mænurótardeyfingu, blóðþrýstingsvandamál eða þarfnast sérstaks eftirlits eftir keisaraskurð eða aðrar aðgerðir. Tækið var afhent 2. maí 2011. 9.5.2011 10:11
Enginn skipti sér af báti flóttamanna -61 fórst Sextíu og einn flóttamaður lét lífið um borð í báti sem var að reyna að komast frá Líbíu til ítölsku eyjarinnar Lampedusa í mars síðastliðnum. 9.5.2011 09:43
Ráðherrar víki sæti á Alþingi Þingmenn þriggja stjórnmálaflokka hafa lagt fram frumvarp um heimild ráðherra til að víkja tímabundið af þingi á meðan þeir gegna ráðherraembætti. Fyrstu umræðu þingsins um frumvarpið er lokið og verður það til umræðu í allsherjarnefnd í dag. 9.5.2011 09:38
Obama krefst skýringa frá Pakistönum Barack Obama vill að Pakistanar rannsaki hvernig alræmdasti hryðjuverkaleiðtogi heims gat búið velsældarlífi í friðsælu úthverfi í landinu án þess að nokkur yrði hans var. 9.5.2011 08:38
Amfetamín á Austfjörðum Lögreglan á Eskifirði, í samvinnu við lögregluna á Seyðisfirði lagði í fyrrinótt hald á 25 grömm af amfetamíni, sem talið er að hafi verið ætlað til dreifingar og sölu á Austfjörðum. Lögreglumenn fréttu af þekktum fíkniefnasala á svæðinu og höfðu upp á honum með þessum árangri. Hann var handtekinn, en sleppt að yfirheyrslum loknum. Fíkniefnahundur frá Seyðisfirði var notaður við aðgerðina. 9.5.2011 08:36