Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Varalitaður borgarstjóri skelfir tískuheiminn með stríðssögum Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, setti tískuhátíðina RFF í gærkvöldi en setningaræðan hans skelfdi beinlínis gesti tískuhátíðarinnar samkvæmt Bleikt.is. 3.4.2011 10:53
Konan í Trípolí enn týnd Faðir konunnar, sem vakti heimsathygli fyrir skömmu þegar hún braut sér leið inn á hótel erlendra fréttamanna í Trípolí og sagði frá að sér hefði verið nauðgað, segir að dóttir hans sé enn týnd. 3.4.2011 10:26
Seldi skákborðið fyrir tæpar átta milljónir Einvígisborðið úr þriðju einvígisskák einvígis aldarinnar var selt á uppboði í dag hjá Philip Weiss samkvæmt skák.is. Borðið seldist á 67.500 dollara, eða á um 7.750.000 krónur. 3.4.2011 09:58
Eldur í bíl Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna elds í bifreið um klukkan hálf tólf. Um minniháttaratvik var að ræða að sögn slökkviliðs en eldurinn var slökknaður þegar þeir komu á vettvang. 3.4.2011 09:50
Benzincafé lokað af lögreglunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistaðnum Benzincafé á Grensásvegi í nótt en þar hafði verið hleypt inn ungmennum sem ekki höfðu aldur til að vera á vínveitingastað. Þar að auki höfðu dyraverðir staðarins ekki tilskilin réttindi. 3.4.2011 09:46
Urðu vélarvana á Þingvallavatni Lögreglan á Selfossi og björgunarsveitir leituðu tveggja karlmanna í gærkvöldi sem týndust á Þingvallavatni. 3.4.2011 09:26
Búist við að Obama tilkynni um kosningaherferð sína eftir helgi Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, mun tilkynna formlega á mánudaginn að kosningaherferð hans sé hafin. Í kjölfarið mun hann halda áberandi fjáröflunarsamkomur til þess að safna fé í baráttu sína. 3.4.2011 06:00
Vísindamenn opna dyrnar Raunvísindadeild og Raunvísindastofnun opna dyrnar og bjóða almenningi í heimsókn í húsakynni sín. 2.4.2011 11:39
Skíðasvæði víða opin Landsmenn ættu að geta skellt sér á skíði í dag þar sem skíðasvæðin eru flest hver opin. Í Bláfjöllum, skíðasvæði höfuðborgarbúa, er gott veður að sögn staðarhaldara, hiti við frostmark og hægur vindur. 2.4.2011 10:19
Hvalfjarðargöngin lokuð vegna viðhalds í næstu viku Hvalfjarðargöng verða lokuð vegna viðhalds vinnu aðfaranótt þriðjudags 5.apríl, miðvikudags 6. apríl, fimmtudags 7. apríl og föstudags 8. apríl frá klukkan 24:00 til klukkan 06:00 að morgni samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 2.4.2011 10:14
Geislavirkt vatn lekur í Kyrrahafið Geislavirkt vatn lekur nú í Kyrrahafið úr tuttugu sentimetra sprungu í tanki við kjarnakljúf tvö í Fukushima kjarnorkuverinu í Japan. 2.4.2011 10:08
Alþjóðlegur dagur einhverfra í dag Í dag er alþjóðlegur dagur einhverfra. Af því tilefni verður opnunarhátíð haldin í nýju fyrirtæki sem hefur það að markmiði að þjálfa fólk með einhverfu til þátttöku í atvinnulífinu. 2.4.2011 10:06
25 ára og yngri tryggð framhaldsskólavist Stjórnvöld stefna á að tryggja öllum umsækjendum 25 ára og yngri framhaldsskólavist næsta haust. 2.4.2011 10:03
Ekki hægt að opna Landeyjarhöfn fyrir 10. apríl Óljóst er hvenær næst að ljúka dýpkun Landeyjahafnar. Landdæluskipið Skandia er við störf í höfninni. 2.4.2011 10:00
Umhverfisátak í aprílmánuði Umhverfisátakið Grænn apríl, sem stendur allan aprílmánuð, var sett af stað í gær. Tilgangur átaksins er að vekja Íslendinga til umhugsunar um umhverfismál og kynna grænar og umhverfisvænar vörur og þjónustu. 2.4.2011 11:00
Nóg til af ræktanlegu landi Landssamtök landeigenda telja enga þörf á endurskoðun jarðalaga og vara við að eigendur bújarða verði settir á klafa átthagafjötra með því að verðgildi jarða þeirra verði rýrt með vanhugsaðri lagasetningu. 2.4.2011 10:00
Gaddafi hafnar vopnahléi Að minnsta kosti 10 uppreisnarmenn létu lífið í loftárás bandamanna í Líbíu í gær. Loftárásin var gerð fyrir mistök en uppreisnarmennirnir höfðu skömmu áður skotið af loftvarnarbyssu loftið. 2.4.2011 09:48
Ríkin reyndu ekki að semja Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur vísað frá máli Georgíu gegn Rússlandi vegna þjóðernishreinsana í tveimur héruðum Georgíu, Abkasíu og Suður-Ossetíu. 2.4.2011 09:45
Friðar flugturn í óþökk flugyfirvalda Húsafriðunarnefnd leggur til við Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, að hún friði gamla flugturninn á Reykjavíkurflugvelli. Flugmálastjórn og Isavia, sem rekur flugvöllinn, leggjast eindregið gegn því að turninn standi áfram á sínum stað. 2.4.2011 09:15
Stórtæku þjófagengi birt ákæra Ákæra var þingfest í gær á hendur þjófagengi sem ber ábyrgð á einni mestu innbrotaöldu sem um getur á Íslandi. 2.4.2011 08:30
Framhaldsskólar öllum opnir í haust Öllum umsækjendum í framhaldsskóla, sem eru 25 ára og yngri og uppfylla inngönguskilyrði, verður tryggð skólavist næsta haust. Þetta kemur fram í drögum að aðgerðapakka sem ríkisstjórnin kynnti fyrir aðilum vinnumarkaðarins í gær og Fréttablaðið hefur undir höndum. 2.4.2011 07:00
Priyanka sækir um ríkisfang hér á landi Velunnarar Priyönku Thapa hyggjast gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda henni hér á landi. Útlendingastofnun synjaði henni um dvalarleyfi í vikunni. Priyanka er 23 ára gömul nepölsk stúlka en í Nepal bíður hennar ókunnur fertugur karlmaður sem hefur keypt hönd hennar af fátækri fjölskyldunni. Ákveðið hefur verið að sækja um íslenskan ríkisborgararétt fyrir hana. 2.4.2011 06:00
Foringjaræði treyst og vald fært frá Alþingi Með áformuðum breytingum á lögum um Stjórnarráð Íslands er foringjaræði fest í sessi og vald fært frá Alþingi, þvert gegn margradda gagnrýni undanfarin misseri. 2.4.2011 06:00
Sýnatöku úr íbúum vegna díoxíns lokið Fyrsta hluta heilsufarsrannsóknar sóttvarnalæknis vegna díoxínmengunar frá sorpbrennslum á Ísafirði, Kirkjubæjarklaustri og Vestmannaeyjum er lokið. Ákveðið var að taka sýni úr íbúum til að ganga úr skugga um hvort díoxín, sem greinst hefur í skepnum, afurðum og fóðri í nálægð við sorpbrennsluna Funa á Ísafirði, hefði náð til íbúa. 2.4.2011 05:00
Glerbytna fyrir gesti í Þingvallaþjóðgarði Skipstjórarnir Gissur Baldursson og Snæbjörn Ólafsson hafa sótt um leyfi til að sigla með farþega á Þingvallavatni á rafknúnum bát með útsýnisbotni úr gleri. 2.4.2011 04:30
Reykræstu íbúð í Hafnarfirði Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu reykræsti íbúð á Völlunum í Hafnarfirði klukkan níu í kvöld eftir að það kviknaði í út frá kerti sem valt á hliðina. 1.4.2011 22:16
Yfir sex þúsund lýsa yfir stuðningi við Priyönku Yfir sex þúsund manns hafa lýst yfir stuðningi við Priyönku Thapa á Facebook. 1.4.2011 21:33
Aprílgöbb: Hulk Hogan, Justin Bieber og frítt bensín 1. apríl er í dag og venju samkvæmt hefur verið mikið um einkennilegar fréttir víða í fjölmiðlum sem og annars staðar. Vísir ætlar að fara yfir nokkur aprílgöbb en mörg þeirra eru mjög skemmtileg. 1.4.2011 20:45
Bensínverðið hækkað um 130 prósent síðan 2005 Fyrir sex árum var unnt að aka meðalfólksbíll frá Reykjavík og langleiðina til Egilsstaða fyrir fimm þúsund krónur. Í dag kemst hann ekki helming þessarar leiðar en bensínverð hefur nú hækkað um 130 prósent síðan 2005. 1.4.2011 19:43
Vilhjálmur prins steggjaður á Íslandi Vilhjálmur Bretaprins lenti hér á landi í gær en steggjapartý var haldið á Reykjavík Hilton Nordica í kjölfarið. Íslensk stelpa sem var í partýinu segir Vilhjálm meðal annars hafa sungið í karókí. Hann mun fara af landi brott á morgun. 1.4.2011 19:11
Mesti olíufundur í sögu Noregs í áratug Norska olíufélagið Statoil tilkynnti í dag að fundist hefði gríðarstór olíulind í Barentshafi, um tvöhundruð kílómetra norðvestur af Hammerfest. Þetta er mesti olíufundur í sögu Noregs í meira en áratug. 1.4.2011 18:43
Færist í vöxt að fólk hræðist að bera vitni Það færist í vöxt að fólk hræðist að bera vitni í sakamálum af ótta við hótanir ofbeldismanna. Hæstiréttur sýknaði í gær mann af ákærum um alvarlega líkamsárás eftir að meint fórnarlamb hans neitaði að bera vitni. 1.4.2011 18:40
Meirihlutinn ætlar að segja já Meirihluti kjósenda ætlar að samþykkja Icesave-samningaleiðina í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 9. apríl næstkomandi. 1.4.2011 17:25
Gríðarlega mikilvægt að neyðarlögin haldi Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra segir að mikilvægur áfangi hafi náðst í dag þegar Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að neyðarlögin sem sett voru 6. október 2008 væru heimil samkvæmt stjórnarskrá. Það væri gríðarlegt áfall fyrir íslenska þjóð ef neyðarlögin myndu bresta. 1.4.2011 16:52
Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur Þrír voru fluttir á slysadeild með minniháttar áverka eftir árekstur strætisvagns og fólksbíls í Vesturbæ Reykjavíkur á fjórða tímanum í dag. Nánari fréttir af slysinu hafa ekki fengist. 1.4.2011 16:03
Þota bresku krúnunnar lenti á Reykjavíkurflugvelli Einkaþota bresku krúnunnar lenti á Reykjavíkurflugvelli seinni partinn í gær en mikill viðbúnaður var á vellinum að sögn sjónarvotta og öryggisverðir sáu til þess að vegfarendur kæmust hvergi nærri ferðalöngunum. Lesandi Vísis náði þó meðfylgjandi mynd af vélinni og sendi fyrir stundu. Ekki fékkst staðfest hjá flugmálastjórn í dag hver var um borð í vélinni sem flaug rakleiðis af landi brott. 1.4.2011 16:00
Henti fyrrverandi sambýliskonu fjóra metra niður af svölum Þrjátíu og fimm ára gamall karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás á fyrrverandi sambýliskonu sína á gamlársdag 2009. 1.4.2011 15:07
Á þriðja þúsund styðja Priyönku Ríflega 2600 manns hafa lýst yfir stuðningi við að Priyanka Thapa, 23 ára stúlka frá Nepal, fái dvalarleyfi á Íslandi. Útlendingastofnun hefur úrskurðað að Priyanka uppfylli ekki skilyrði um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Priyanka segir í viðtali í Fréttablaðinu í dag að hún hafi brostið í grát þegar hún heyrði af úrskurðinum. "Ég er ofsalega hrædd og vil ekki fara heim," segir Priyanka sem stendur frammi fyrir því að fara aftur til Nepals og giftast fertugum manni, sem hún hefur aldrei hitt, til að bjarga fjölskyldu sinni frá sárri fátækt. Í ákvörðuninni er vitnað í tölvupóst frá bróður Priyönku, sem hvetur hana til að giftast manninum, annars fari illa fyrir allri fjölskyldunni. Hún verði auk þess fjölskyldunni til skammar þar sem manninum hafi verið lofað að giftast henni. Hún er beðin um að tilkynna ákvörðun sína eins fljótt og hún geti og vinsamlegast beðin um að koma heim. Viðtalið við Priyönku má lesa í heild sinni með því að smella á tengilinn hér að neðan. Facebook-síðuna sem stofnuð var til stuðnings henni má sjá með því að smella hér. 1.4.2011 14:45
Breskur matgæðingur gefur hákarlinum falleinkunn Íslenskur hákarl er eins og túnfiskssallat sem maður hefur gleymt í skólatöskunni í þrjár vikur, segir Victoria Haschka, matargagnrýnandi, á fréttavefnum Huffington Post. Hún segir að hákarlinn vera eins og áfall í barnæsku. Haschka kom til Íslands á dögunum og bragðaði þá hákarlinn. Einn biti var feykinóg fyrir hana. 1.4.2011 14:32
Árlegur fundur fingrafararannsakenda Á vegum ríkislögreglustjóra Norðurlandanna starfar hópur sérfræðinga á sviði fingrafararannsókna í sakamálum sem hélt árlegan fund hér á landi í vikunni. Megin tilgangur með starfi hópsins er að efla þekkingu lögreglumanna sem vinna með fingraför og gefa þeim kost á að gangast undir próf sem veitir viðurkenningu til að vera sérfræðingur á þessu sviði á öllum Norðurlöndunum. Á fundinum að þessu sinni hlaut norskur starfsmaður sakamálastofnunarinnar Kripos viðurkenningu til fimm ára sem sérfræðingur í rannsókn á fingraförum. 1.4.2011 14:24
Íslenski hesturinn í aðalhlutverki Á morgun verður opnuð sýning í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem íslenski hesturinn er í aðalhlutverki. 1.4.2011 13:41
Assange í góðu grúvi á Glaumbar Myndband fer nú sem eldur í sinu um netheima en það sýnir stofnanda Wikileaks, Julian Assange í góðu stuði á Glaumbar árið 2009. Plötusnúðurinn Seth Sharpe sá um að þeyta skífum þetta kvöld og hann var svo hrifinn af dansfimi Assange að hann ákvað að festa hana á filmu. Fjallað var um málið á bloggsíðu Forbes tímaritsins í gær og þar er rætt við Sharpe sem segist ekki hafa ætlað að leka myndbandinu á Netið. Vinur hans hafi hinsvegar sett nokkrar ljósmyndir á netið og því hafi hann ákveðið að setja myndbandið í heild sinni í umferð. 1.4.2011 13:36
Matreiðslumeistarar án landamæra þurfa stuðning Verkefnið Matreiðslumeistarar án landamæra er meðal þess sem núverandi stjórn Heimssamtaka matreiðslumanna (WACS) hefur komið í framkvæmd. Markmið verkefnisins er að útvega og senda næringarrík matvæli og hreint vatn til hamfarasvæða og landa þar sem hungursneyð ríkir. Gissur Guðmundsson, forseti samtakanna, segir að náttúruhamfarir á undanförnum misserum, svo sem á Haíti og í Japan sýni glögglega hve brýnt sé að útvega bágstöddum fljótt næringarríkan mat og hreint vatn. Hann segir samtökin vilja leggja sitt af mörkum á þessu sviði og það sé hlutverk hins nýja félags WACS. Frá árinu 2008 hefur fjögurra manna framkvæmdastjórn WACSverið skipuð þremur Íslendingum auk þess sem framkvæmdastjóri samtakanna er Íslendingur. Kjörtímabili núverandi stjórnar lýkur á næsta ári og hefur þegar verið lagt að íslenska teyminu að gefa kost á sér á næsta kjörtímabili, sem stendur frá 2012 til 2016. Í núverandi stjórn eru, auk Gissurar, Hilmar B. Jónsson, varaforseti, Helgi Einarsson ritari og Norbert Schmidiger ritari frá Sviss. Framkvæmdastjóri samtakanna er Ragnar Friðriksson og hefur hann aðsetur í sendiráði Íslands í París. Í samtökunum eru um 10 milljónir matreiðslumanna í tæplega 100 aðildarfélögum um allan heim. Í tilkynningu frá samtökunum segir að brýnir hagsmunir Íslendinga knýja á um að stjórnvöld, Samtök ferðaþjónustunnar og aðrir mikilvægir hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu veiti framboði íslenska teymisins öflugan stuðning á næsta heimssþingi WACS sem fram fer í Suður-Kóreu á næsta ári. Nánari upplýsingar um samtökin má finna með því að smella hér. www.wacs2000.org <http://www.wacs2000.org>. 1.4.2011 12:05
Sex bandarískir hermenn féllu í sömu aðgerðinni Sex bandarískir hermenn hafa fallið í Afganistan í einni og sömu aðgerðinni sem hófst á miðvikudag og stendur enn. Þetta staðfesta talsmenn hersins en þyrlusveit hefur flogið langt inn á afkskekkt svæði í Kunar héraði þar sem Talíbanar hafa sterk ítök. Engum sögum fer af mannfalli úr röðum þeirra en sjaldgæft er að svo margir hermenn fjölþjóðaliðsins í landinu falli á svo skömmum tíma. 1.4.2011 11:54
Mikill skortur á ljósmæðrum í heiminum Ein af hverjum þremur konum sem fæða barn í heiminn í dag gera það án hjálpar frá ljósmóður. Í nýrri alþjóðlegri rannsókn á vegum Save the Children, eða Barnaheilla, er áætlað að ef 350 þúsund ljósmæður væru að störfum í heiminum til viðbótar við þær sem nú eru væri hægt að bjarga einni milljón barna sem látast í fæðingu á hverju ári. 1.4.2011 11:47