Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stórsókn gegn Talíbönum Mörg hundruð þúsund íbúar hafa lagt á flótta frá átakasvæðum í norðvestur Pakistan. Þarlend stjórnvöld hófu í gær stórsókn gegn Talíbönum nærri landamærunum að Afganistan. Allt stefnir í einn mesta flóttamannastraum heims um leið og miklir og jafnvel langvinnir bardagar eru að hefjast í Pakistan. 8.5.2009 11:55
Efla Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna Efla á Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna með því að tvöfalda starfsemi hennar og opna nýja starfsstöð. 8.5.2009 11:23
Pjattaðir morðingjar Yfir tíuþúsund manns hafa fallið í eiturlyfjastríðinu í Mexíkó síðan í desember árið 2006. 8.5.2009 11:10
Þau eru ekki sofandi Tugþúsundir óbreyttra borgara eru ennþá innilokaðir á vígvellinum á Sri Lanka þar sem stjórnarherinn sækir að síðasta vígi Tamíl tígranna. 8.5.2009 11:00
ASÍ hvetur til mótmæla á Austurvelli í dag Í dag klukkan 13 verður efnt til mótmæla fyrir framan Alþingishúsið vegna aðgerðarleysis stjórnvalda í málefnum heimilanna. Frá Austurvelli verður síðan gengið að Stjórnarráðinu. ASÍ hvetur almenning til að taka þátt enda þolinmæðin gagnvart aðgerðarleysi stjórnvalda þrotin. 8.5.2009 10:58
SA leggjast eindregið gegn fyrningarleiðinnni Samtök atvinnulífsins skora á Samfylkinguna og Vinstri hreyfinguna - grænt framboð að hverfa frá öllum hugmyndum um upptöku og uppboð aflaheimilda sjávarútvegsfyrirtækja sem nefnt hefur verið fyrningarleiðin. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að það sé mikilvægt að stöðugleiki ríki í rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja eins og annarra fyrirtækja. 8.5.2009 10:50
Hannes rannsakar kommúnista Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði hyggst rannsaka íslenska kommúnista á árunum 1918 til 1998. 8.5.2009 10:38
Engin niðurstaða í morðrannsókn Engin niðurstaða hefur fengist í rannsókn á morði íslenskrar stúlku í Dóminíska Lýðveldinu í fyrra samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir var myrt á herbergi á hótelherbergi þar sem hún 8.5.2009 09:38
Ófært víða vegna veðurs Ófært er á Eyrarfjalli, Lágheiði, Hólasandi, Vatnsskarði eystra og Öxi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 8.5.2009 09:11
Svínaflensutölvuleikur nær vinsældum Tölvuleikurinn Swinefighter, sem byggir á svínaflensufaraldrinum, hefur náð nokkrum vinsældum á Netinu. 8.5.2009 08:41
Geymdi látna móður í sex ár af hagkvæmnisástæðum Kona í Flórída hefur verið ákærð fyrir að geyma lík móður sinnar í sex ár og þiggja bætur hennar. 8.5.2009 08:16
Gluggalausar þotur og gæsaflug Airbus-verksmiðjurnar standa nú fyrir hugmyndasamkeppni um farþegaflugvélar framtíðarinnar meðal verk- og tæknifræðinema í 82 löndum. 8.5.2009 08:10
Simpson-fjölskyldan á frímerki Í gær komu út frímerki í Bandaríkjunum með Simpson-fjölskyldunni og er það í fyrsta sinn sem persónur úr sjónvarpsþáttum verða efni sjálfstæðs frímerkjaflokks þar í landi. 8.5.2009 08:09
Kóbraslanga í póstsendingu Tollvörðum í Miami í Flórída brá í brún á miðvikudaginn þegar þeir opnuðu póstsendingu frá Taílandi og fundu í henni glerkrukku sem innihélt kóbraslöngu og nokkrar aðrar eitraðar slöngur í áfengisblöndu. 8.5.2009 07:31
Glæsivillur brunnu í skógareldi Skógareldar í Kaliforníu virðast ekki vera í rénun og í gær urðu nokkrar glæsivillur í Santa Barbara eldi að bráð. Á annan tug þúsunda íbúa svæðisins hafa þurft að flýja heimili sín og hafa 5.400 heimili verið rýmd. 8.5.2009 07:28
Gætu eignast kjarnavopn á hálfu ári Íranar gætu verið búnir að koma sér upp efniviði í kjarnorkusprengju eftir um það bil sex mánuði. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem nefnd á vegum öldungadeildar Bandaríkjaþings framkvæmdi. 8.5.2009 07:25
Póstbíll valt nálægt Höfn Póstbíll valt skammt frá Hornafjarðarfljóti í gærkvöldi og slasaðist kona sem ók honum. Hún dvaldi á Heilsugæslunni á Höfn í Hornafirði í nótt. Talið er að hún hafi misst stjórn á bílnum í snarpri vindhviðu. 8.5.2009 07:23
Sex eru enn í haldi vegna átaka í gær Sex Pólverjar eru enn í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna rannsóknar á blóðugum átökum í fjölbýlishúsi við Kríuhóla í Reykjavík í gærdag. Þremur hefur verið sleppt en einn er enn á sjúkrahúsi. 8.5.2009 07:14
Ók ölvaður á 147 kílómetra hraða Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt ökumann eftir að bíll hans hafði mælst á 147 kílómetra hraða á Reykjanesbraut á móts við Smáralind, þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar. Hann var því á rúmlega tvöföldum hámarkshraða. Auk þess kom í ljós að ökumaðurinn var ölvaður og var hann sviptur ökuréttindum á staðnum. 8.5.2009 07:11
Tveir húsbrunar í nótt Gamalt hesthús í Grófinni í Keflavík eyðilagðist í eldi í nótt. Nokkurn reyk lagði yfir bæinn og hringdu margir í lögreglu. Engir hestar voru í húsinu. Slökkviliðið slökkti eldinn og voru nálæg mannvirki ekki í hættu. 8.5.2009 07:04
Er þetta Ívan grimmi? Hinum 89 ára gamla John Demjanjuk hefur verið skipað af bandarískum yfirvöldum að gefa sig fram við útlendingastofnun svo hægt sé að flytja hann úr landi. Ástæðan - hann er grunaður um að vera Ívan hinn grimmi - nasisti sem er ábyrgur fyrir dauða 21 þúsund gyðinga í helförinni. 8.5.2009 00:15
Þrettán þúsund manns yfirgefa heimili vegna skógarelda Þrettán þúsund manns í Kaliforníu, aðallega íbúar í bænum Santa Barbara, hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda. Þrettán hundruð slökkviliðsmenn berjast við eldana. Lögreglan rannsakar upptök skógareldanna sem íkveikju. 7.5.2009 23:37
Dæmdur fyrir nauðgun og morð í Írak Fyrrum hermaðurinn Steven Green var fundinn sekur um að hafa nauðgað og svo myrt hina 14 ára gömlu Abeer Qassim al-Janabi í Írak árið 2006. Málið vakti óhug en hann, auk þriggja annarra hermanna tóku þátt í árásinni. Tveir þeira héldu henni niðri á meðan þeir nauðguðu stúlkunni. Í kjölfarið myrtu þeir hana og fjölskyldu hennar auk þess sem þeir brenndu húsið þeirra. 7.5.2009 23:26
Dópbýlið: Martröð leigusalans „Við vorum að reyna selja þessa eign," segir eigandi bónadabýlisins við Berufjörð en lögreglan á Eskifirði fann hátæknivædda kannabisverksmiðju á bóndabýlinu nú í vikunni. Einn maður leigði húsnæðið en samkvæmt eigandanum þá sagðist hann ætla að halda úti ferðaþjónustu á svæðinu. 7.5.2009 20:52
Í hungurverkfalli í fimmtán daga Verulega er farið að draga af alsírskum flóttamanni sem hefur verið í hungurverkfalli í fimmtán daga, en mál hans hefur ekki verið tekið formlega fyrir í dómsmálaráðuneytinu. Maðurinn, sem dvelur á heimili fyrir hælisleitendur á Suðurnesjum, er orðinn máttfarinn vegna næringarskorts. 7.5.2009 22:11
Gyðingamorðingja leitað Lögreglan í Bandaríkjunum leitar nú logandi ljósi að brjálæðingnum Stephen Morgan en hann skaut og myrti Johannu Justin-Jinich sem var nemi í Háskólan Wesley í Middletown í Bandaríkjunum. Stephen skaut hana á bókakaffihúsi en áður hafði hann sent henni óhugnalega tölvupósta. 7.5.2009 21:45
Klósettstríð heldur íbúð í gíslingu „Ég tel mig hafa sýnt mikla þolinmæði, en nú er málið orðið verulega slæmt," segir Leó R. Ólason, eigandi að kjallaraíbúð á besta stað í miðborg Reykajvíkur. Hann keypti 40 fermetra íbúð handa syni sínum á Bergþórugötu 51 en þá kom babb í bátinn. Klósett sem nýtist íbúðinni er í eigu sameignar hússins og er í niðurníðslu. Leó óskaði þá eftir því á húsfundi að baðherbergisaðstaðan yrði gerð upp en honum var neitað um það. Sjálfur segist Leó haf mætt algjöru skilningsleysi af hálfu húsfélagsins. 7.5.2009 21:11
Brasilíufangi: Styrktarreikningur Stofnaður hefur verið reikningur til stuðnings fjölskyldu Ragnars Erlings Hermannssonar sem nú situr í fangelsi í Brasilíu. 7.5.2009 19:41
Niðji ósáttur við notkun dópbýlisins Dópbýlið við Berufjörð nálægt Eskifirði er skráð á eignarhaldsfélagið Þrjár systur sem löggiltur endurskoðandi á. Lögreglan fann hátæknivædda kannabisverksmiðju á gamla bóndabænum sem nú hafði öðlast nýjan tilgang, nefnilega kannabisræktun. 7.5.2009 19:23
Keilufellsfórnarlamb nú árásamaður Níu menn eru í haldi lögreglu eftir líkamsárás í Breiðholti og tveir eru á sjúkrahúsi, annar með höfuðáverka. Einn árásarmannanna var áður fórnarlamb í Keilufellsárásinni. 7.5.2009 18:35
Litlar upplýsingar um óskattskyld félög þingmanna Skattayfirvöld hafa litlar upplýsingar um óskattskyld félög sem stjórnmálamenn hafa stofnað í kringum prófkjör sín. Rekstrarform þeirra er það sama og til að mynda trúfélaga og líknarfélaga. Slík félög þurfa hvorki að skila skattframtölum né ársreikningum til skattayfirvalda. 7.5.2009 18:31
Háir vextir halda uppi verðlagi Lækkun stýrivaxta hefur engin áhrif á eldri húsnæðislán en leiðir til lækkunar dráttarvaxta og vaxta á yfirdráttarlánum. Forseti ASÍ segir háa vexti halda uppi verðlagi og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur að keyra hefði átt stýrivextina niður í 2,5 prósent og láta krónuna taka skellinn. 7.5.2009 18:30
Fjölskylda Ragnars ekki enn heyrt í honum Fangelsin í Brasilíu eru með þeim verstu í heiminum segir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International. Hún segir aðbúnaðinn ómannúðlegan og niðurlægjandi. Fjölskylda Ragnars Erlings sem var handtekinn þar í landi fyrir tæpri viku, hefur enn ekki náð sambandi við hann. 7.5.2009 18:25
Sinueldur við Hafravatn - Brennuvargur var að grilla „Við vorum að grilla, og svo spörkuðum við grillinu niður og eldurinn breiddist út án þess að við gætum nokkuð gert," sagði brennuvargur sem hringdi í Vísi nú fyrir stundu og sagði að hann, ásamt fleirum, hefðu verið að grilla við Hafravatn. Það endaði með því að grillið féll og eldur læstist í grasinu sem endaði með miklum sinueldi. Mikill reykur leggur yfir borgina og mjög hvasst er á svæðinu. 7.5.2009 17:52
Lögreglan kölluð að stjórnarráðinu Lögreglan var kölluð niður að Stjórnarráði Íslands rétt fyrir fimm í dag. Varðstjóri hafði ekki enn fengið allar upplýsingar um málið en sagði það væntanlega smávægilegt og tengt drykkjulátum. 7.5.2009 17:37
Brasilískir fjölmiðlar: Grínarinn sem varð kókaínsmyglari Brasilískir fjölmiðlar hafa mikinn áhuga á Ragnari Erling Hermannssyni en blaðið Diario De Pernambuco fjallar um feril Ragnars í raunveruleikaþættinu Strákarnir okkar. Í greininni er svo myndskeið úr þáttunum þar sem rætt er við Ragnar. 7.5.2009 17:29
Tveir á spítala eftir Kríuhóla - annar með höfuðáverka Tveir menn voru lagðir inn á spítala vegna líkamsárásar sem átti sér stað rétt upp úr hádeginu í Kríuhólum í dag. Annar maðurinn er með höfuðáverka en ástand hans er þó stöðugt. 7.5.2009 17:18
Strand við Geirsnef - grunur um ölvun Skemmtibátur strandaði við Geirsnef rétt fyrir hálf þrjú leytið í dag. Fjórir voru í bátnum en að sögn lögreglu eru þrír þeirra nú niður á lögreglustöð en þeir eru grunaðir um ölvun. 7.5.2009 16:36
Einn slasaðist í Kríuhólum - fimm í haldi Einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild með höfuðáverka eftir ryskingarnar í Kríuhólum eftir hádegið. Fimm voru handteknir og segir lögregla að svo virðist vera sem fimmmenningarnir hafi ráðist á manninn sem slasaðist. 7.5.2009 16:32
Draumalandið slær aðsóknarmet Kvikmyndin Draumalandið eftir Þorfinn Guðnason og Andra Snæ Magnason er orðin aðsóknarmesta og tekjuhæsta heimildarmyndin frá upphafi mælinga á Íslandi. Alls hafa 13.359 manns séð myndina og hún og hún halað inn tekjur upp á rúmlega 13 milljónir eftir aðeins 28 daga í sýningu. Draumalandið sló þar við nýlegu meti Sólskinsdrengsins. 7.5.2009 15:46
Birgitta kjörin þingflokksformaður Birgitta Jónsdóttir var kjörin þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar á fundi þingflokksins í dag. Í kosningunum 25. apríl fékk Borgarahreyfingin 7,2% atkvæða og fjóra þingmenn kjörna. 7.5.2009 15:18
Sænski ræðismaðurinn í Recife ætlar að heimsækja Ragnar Sænski ræðismaðurinn í Recife í Brasilíu mun heimsækja Ragnar Erling Hermannsson, Íslendinginn sem handtekinn var í borginni á dögunum með tæplega sex kíló af kókaíni í farangri sínum. 7.5.2009 15:12
Stelpuslagur á Selfossi Nítján ára stúlka hefur verið ákærð fyrir líkamsárás fyrir utan 800 Bar á Selfossi í október á síðasta ári. Þá reif hún í hár kynsystur sinnar þannig að hún féll í götuna. Stúlkan lét ekki staðar numið þar heldur sparkaði í hana þar sem hún lá í götunni, með þeim afleiðingum að sú síðarnefnda hruflaðist á báðum fótum við hné og á framanverðum fótleggjum og skarst á hægri fæti fyrir neðan hnéskel þannig að sauma þurfti 10 spor. 7.5.2009 15:00
Þrír stjórnmálaflokkar tefja endurskoðun laga Seinagangur Framsóknarflokksins og Frjálslynda flokksins og veldur því að vinna nefndar við endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkanna tefst. Flokkarnir áttu að skila tilnefningum sínum í nefndina til forsætisráðherra fyrir 1. maí eða fyrir tæpri viku síðan. Eftir þingkosningarnar 25. apríl var Borgarahreyfingunni boðið að skipa fulltrúa í nefndina og skilaði flokkurinn tilnefningum sínum í dag. 7.5.2009 14:59
Fréttablaðið með yfirburðastöðu á markaði Ný könnun Capacents Gallup á lestri tveggja stærstu dagblaðanna sýnir að Fréttablaðið heldur yfirburðastöðu sinni. 7.5.2009 14:36