Fleiri
Múslimum varla skemmt 24.11.2006 16:57 Sigurður Óli verður aðstoðarforstjóri Actavis Sigurður Óli Ólafsson tekur við af Svöfu Grönfeldt sem aðstoðarforstjóri Actavis en Svafa var í dag kynnt sem næsti rektor Háskólans í Reykjavík. Fram kemur í tilkynngu frá Actavis að Sigurður Óli hafi verið framkvæmdastjóri félagsins í Bandaríkjunum og muni nú einnig gegna stöðu aðstoðarforstjóra félagsins frá 1.desember 2006. 24.11.2006 16:52 Skautasvell á Ingólfstorgi í desember Skautasvell verður opnað á Ingólfstorgi þann 7. desember og verður opið til mánaðarloka. Það er Tryggingamiðstöðin, sem er með höfuðstöðvar sínar við Aðalstræti, sem setur svellið upp í samvinnu við borgina og er það gert vegna 50 ára afmælis félagsins sem einmitt verður haldið hátíðlegt þann 7. desember næstkomandi. 24.11.2006 16:37 Sjá næstu 50 fréttir
Átök milli þjófs og starfsmanns Kom til átaka milli þjófs og starfsmanns, í versluninni Intersport á Bíldshöfða í Reykjavík, á þriðja tímanum. Starfsmaðurinn var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús með áverka á enni en hann var kýldur í ennið. 25.11.2006 15:42
Safnað fyrir hreinu vatni fyrir íbúa í Afríku Jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar hefst í dag en í ár er verið að safna fjármunum í vatnsverkefni í Afríku. Á ári hverju deyja 1,8 milljón manna af vatnsskorti og sjúkdómum þeim tengdum. Um 1,1 milljarður manna hefur ekki aðgang að hreinu vatni og veikist oft af menguðu vatni. 25.11.2006 15:16
Aðbúnaði ábótavant á leikskólum Aðbúnaði er ábótavant á nánast öllum leikskólum á Norður- og Austurlandi samkvæmt nýrri könnun háskólanema. 25.11.2006 15:08
Sjálfstæðiskonur óttast áhrif framboðs Árna Johnsen Stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna hefur farið fram á það við flokksforystuna að hún skoði sérstaklega mál Árna Johnsen og óttast stjórnin að framboð hans í Suðurkjördæmi kunni að draga úr fylgi flokksins á landsvísu. 25.11.2006 14:30
Baugsmenn kæra yfirmenn efnahagsbrotadeildar Baugsmenn hafa lagt fram kæru vegna vanhæfni yfirmanna efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra í rannsókn á skattamálum þeirra. Þeir ætla ekki að svara spurningum lögreglu um skattrannsóknina fyrr en skorið hefur verið úr um hæfi rannsakenda. 25.11.2006 13:50
Á fjórða hundrað hafa tekið þátt í prófkjöri Á hádegi höfðu þrjú hundruð og fimmtíu manns greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Kosið er á 22 stöðum en alls gefa níu einstaklingar kost í prófkjörinu, sex karlar og þrjár konur. Þrír sækjast eftir því að leiða listann. 25.11.2006 13:24
Banaslys á Fljótsdalsheiði Maður lést í vinnuslysi á Fljótsdalsheiði í morgun, þar sem verið er að breyta Kröflulínu vegna Kárahnjúkavirkjunar. Slysið bar að með þeim hætti að einangrunarkeðja, sem verið var að hífa upp í eitt mastur línunnar, féll til jarðar og lenti á starfsmanni króatísks fyrirtækis sem þar er að störfum sem verktaki fyrir Landsnet. 25.11.2006 12:59
Mistök að styðja innrás í Írak Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins segir stuðning við Íraksstríðið hafa verið mistök sem hafi byggst á röngum upplýsingum. Ákvarðanir um öryggismál og alþjóðaverkefni beri ævinlega að taka eftir vandaðasta undirbúning og trúnaðarsamráð við lögmætar stofnanir eins og utanríkismálanefnd alþingis. 25.11.2006 12:53
Verður var við andstöðu Framsóknarmanna við RÚV frumvarp Björn Ingi Hrafnsson formaður borgarráðs og fyrrverandi aðstoðarmaður forsætisráðherra segist verða var við mikla andstöðu innan Framsóknarflokksins við hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins. Hann sagði í þættinum Pólitíkinni á Stöð tvö í dag að hann gæti ekki talað um það sem fram færi á þingflokksfundum en að hann hefði fáa Framsóknarmenn hitt sem vildu að RÚV yrði breytt í hlutafélag. 25.11.2006 12:52
Flugvél brotlendir á bíl á hraðbraut Sjö eru slasaðir eftir að einkaflugvél brotlenti á bíl á hraðbraut nálægt borginni Essen í vesturhluta Þýskalands í gær. Vélin var í aðflugi að flugvellinum í Essen-Muelheim þegar slysið varð. Hún klippti í sundur umferðarljós og brú áður en hún brotlenti á bíl á fjölfarinni hraðbraut við flugvöllinn. Bílstjóri flutningabíls náði að slökkva eld sem kviknaði í flaki vélarinnar, en báðir vængirnir brotnuðu af við áreksturinn. 25.11.2006 12:17
Geislavirk efni á „njósnara“ stöðum í London Fólk sem heimsótti sama veitingastað og hótel og rússneski njósnarinn sem lést á fimmtudaginn er hvatt til að hafa samband við heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi vegna geislavirkra efna sem hafa fundist þar. Efnin fundust á veitingastaðnum Itsu Sushi bar við Piccadilly og Pine bar Millenium hótelsins við Grosvenor torg. 25.11.2006 12:10
Aðskilnaðarsinnar styðja ályktun um Quebec Flokkkur aðskilnaðarsinna í Quebec í Kanada hefur samþykkt að styðja þingsályktun um að frönskumælandi íbúar Quebec séu þjóð í sameinuðu Kanada. Gagnrýnendur segja tillöguna af pólitískum toga og hún muni stuðla að sundrungu landsins, en hugmyndir um sjálfstæði hins frönskumælandi héraðs hafa komið upp áður og valdið miklum titringi. 25.11.2006 11:30
Staðfest fuglaflensutilfelli í Suður-Kóreu Staðfest hefur verið afbrigði H5N1 fuglaflensu í Suður Kóreu. Flensan braust út á fuglabúi í Iksan, sem er tvö hundruð og fimmtíu kílómetra suður af Seoul. Rúmlega sex þúsund fuglar drápust og tæplega sjö þúsundum til viðbótar þurfti að slátra. Rannsóknir úr sýnum munu leiða í ljós hversu smitandi flensan er, en búist er við niðurstöðum úr þeim seinna í dag. Japanir hafa hætt innflutningi á fuglakjöti frá Suður Kóreu af ótta við að flensan breiðist út. 25.11.2006 11:13
Breska lögreglan finnur leifar af geislavirku efni Bresk yfirvöld hafa fundið leifar af sama geislavirka efninu og fannst í líkama Alexanders Litvinenko eftir að hann lést á þeim þremur stöðum sem hann dvaldi á daginn sem hann taldi að hefði verið eitrað fyrir honum. 24.11.2006 23:29
Bílvelta undir Hafnarfjalli Fólksbíll keyrði útaf undir Hafnarfjalli rétt um sjö leytið í kvöld. Velti ökumaður bílnum og er bíllinn mikið skemmdur en ökumaðurinn var einn á ferð. Hlaut hann áverka á höfði og brjóstkassa og var því fluttur á sjúkrahúsið í Borgarnesi og verður fylgst með honum þar yfir nótt. Lögreglan í Borgarnesi gat ekkert sagt um ástæður útafaksturins að svo stöddu. 24.11.2006 23:05
Boðið upp á hraðþjónustu á flugvöllum Einkafyrirtæki í Bandaríkjunum hafa nú séð sér hag í því að setja upp þjónustu sem að flýtir ferð fólks í gegnum flugvelli þar í landi. Vegna ótta við hryðjuverk eru mörg öryggishlið sem fólk þarf að fara í gegnum og hefur það valdið miklum pirringi meðal fólks sem ferðast mikið. 24.11.2006 22:40
Google í slæmum málum á Ítalíu Ítalskir saksóknarar eru iðnir við kolann en þeir hófu í dag rannsókn á því hvernig myndband, sem sýnir fjóra unglinga fara illa með einhverfan dreng, á myndbandavefsíðu Google. Eru tveir starfsmenn Google ákærðir fyrir að fylgjast ekki nógu vel með því hvers konar efni er sett inn á síðuna. 24.11.2006 22:29
Brostu og allur heimurinn brosir við þér Sjálfboðaliðar fyrir Ólympíuleikana sem verða í Peking í Kína árið 2008 hafa verið sendir í sérstaka þjálfun til þess að standa sig betur í starfi sínu. Og hvað er verið að kenna sjálfboðaliðunum? Jú, að brosa. 24.11.2006 22:00
Setti barnið í frystinn Kanadískur maður sem vissi ekki hvað átti að gera þegar að tíu mánaða gamalt barn kærustu hans fékk hita setti það inn í frysti til þess að kæla það aðeins niður. Maðurinn hefur nú verið ákærður fyrir glæpsamlegt gáleysi og að ráðast á barnið en móðirin bjargaði því þegar hún kom heim. Maðurinn hafði þá sett stúlkubarnið við hliðina á ísmolunum og hamborgurunum. 24.11.2006 21:38
Berlusconi sakaður um kosningasvindl Ítalskir saksóknarar hafa hafið rannsókn á þeim ásökunum vinstri sinnaðs dagblaðs á Ítalíu að flokkur Silvio Berlusconis, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, hafi reynt að hafa rangt við í þingkosningum sem fóru fram í apríl síðastliðnum. Berlusconi neitar öllu og íhugar málsókn. 24.11.2006 21:24
Bush leitar bandamanna víða Stjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta er farin að leita leiða til þess að koma á stöðugleika í Írak en landið er á barmi borgarastyrjaldar. Ætla þeir sér að vinna að því takmarki með hófsömum múslimaríkjum á svæðinu og á sama tíma ætla þeir að leita leiða til þess að binda enda á deilur Ísraela og Palestínumanna. 24.11.2006 21:13
Eiturlyfjagengi í ímyndarvanda Mexíkóskt eiturlyfjagengi tók upp þá nýjung að auglýsa sjálft sig í dagblöðum til þess að segja fólki að það væri í rauninni ekkert slæmt. Í auglýsingunum, sem voru birtar í nokkrum dagblöðum, var tekið fram að gengið, sem er þekkt sem "Fjölskyldan", væri ekki glæpagengi heldur sjálfskipaðir verndarar reglu og réttlætis. 24.11.2006 20:50
Ísland og Noregur í varnarsamstarf Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, ákváðu í dag að hefja þegar í næsta mánuði formlegar viðræður milli Íslands og Noregs um eftirlit í Norðurhöfum og framtíðarsamstarf landanna á sviði öryggis- og varnarmála. 24.11.2006 19:36
Ódæða hefnt Minnst 30 týndu lífi og hátt í 50 til viðbótar særðust þegar vígamenn hófu skothríð í hverfi súnnía í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Að sögn vitna lögðu árásarmennirnir síðan elda að fjórum moskum í hverfinu. Árásin er sögð hefnd fyrir sprengjuárás í Sadr-hverfi sjía í höfuðborginn í gær sem kostaði rúmlega 200 manns lífið. 24.11.2006 19:22
Valdarán á bandarísku dagblaði Maður íklæddur felubúning og vopnaður hríðskotabyssu réðist til inngöngu í húsakynni bandaríska dagblaðsins Miami Herald í dag. Neyddi hann starfsfólk til þess að yfirgefa húsakynnin og gaf til kynna að hann hefði þar með tekið dagblaðið yfir. Ástæðuna sagði hann vera lág laun og að dagblaðið væri illa rekið. 24.11.2006 19:18
Mið tekið af auknum flutningum Dómsmálaráðherra segir þörf á alþjóðlegu átaki ef alvarlegt umhverfisslys verði í olíuflutningum við Ísland. Sérfræðingar spá því að innan fárra ára fari 500 olíuskip um íslenskt hafsvæði á hverju ári. Ráðherrann segir tekið mið af þessu við endurbætur á núverandi varðskipum og smíði nýrra. 24.11.2006 19:17
Úrslit í ljósmyndasamkeppni NFS Úrslit liggja nú fyrir í ljósmyndasamkeppni Veðurstofu NFS. Í fyrsta sæti lenti mynd Þorsteins Ásgeirssonar - Norðurljós við Jökulsárlón. Gríðarleg vinna hefur farið í að fara yfir allar myndirnar og velja þær bestu. 24.11.2006 19:03
Geislavirkt efni í líkama Litvinenkos Töluvert af geislavirku efni hefur fundist í líkama rússneska njósnarans Alexanders Litvinenkos, sem lést af völdum eitrunar á sjúkrahúsi í Lundúnum í gærkvöldi. Skömmu fyrir andlátið sagði hann Pútín Rússlandsforseta bera ábyrgð á örlögum sínum. Forsetinn vísar því alfarið á bug. 24.11.2006 19:02
Barnið í vistun Barnaverndar Reykjavíkur Barnið sem reynt var að fara með úr landi frá Akureyri í gærkvöldi, gegn vilja móður þess, hefur verið sett í vistun á vegum Barnaverndar Reykjavíkur. Drengurinn er sex mánaða og hefur lögheimili í Danmörku. Hann hefur hins vegar verið dvalfastur hérlendis í nokkra mánuði vegna deilu foreldranna, en þau eru bæði íslensk. 24.11.2006 18:57
Ber við minnisleysi Hálfþrítugur karlmaður, sem var handtekinn eftir ólæti um borð í flugvél í gærkvöld, bar við minnisleysi þegar hann var spurður um háttalag sitt. Maðurinn, sem var færður til skýrslutöku hjá lögreglunni í Reykjavík í dag, var að angra farþega í áðurnefndu flugi og þurfti flugstjóri vélarinnar að taka aukahring af þeim sökum áður en hann gat lent á áfangastað. 24.11.2006 18:55
ASÍ segir loforð um vaxtabætur svikin Alþýðusamband Íslands telur ríkisstjórnina svíkja yfirlýsingu sína um vaxtabætur sem gefin var út í tengslum við endurskoðun kjarasamninga. Fjöldi einstaklinga verði af vaxtabótum verði nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar að lögum. 24.11.2006 18:53
Ættleiðingarstyrkur Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra tilkynnti niðurstöðu starfshóps á vegum ráðuneytisins en hann leggur til að veittur verði 480 þúsund króna styrkur til foreldra sem ættleiða börn í gegnum löggild ættleiðingarfélög. Styrkurinn verður undanþeginn staðgreiðslu. Foreldrar barna sem koma til landsins eftir gildistöku laganna eiga rétt á styrknum. 24.11.2006 18:48
Dómsmálaráðherra ræður kröfum um íslenskukunnáttu Dómsmálaráðherra fær að ráða því hversu mikla íslensku útlendingar þurfa að kunna til að geta fengið ríkisborgararétt á Íslandi samkvæmt nýju frumvarpi. 24.11.2006 18:45
Gylliboð verslana falla ekki alltaf í kramið Hvert gylliboðið á fætur öðru er nú sett fram af kaupmönnum sem vilja laða viðskiptavini að. Bílasalar bjóða inneignir í verslunum og kreditkortatímabilið lengist. Nýtt greiðslukortatímabil hefst 7. desember og munu færslur eftir það greiðast í byrjun febrúar. Leikfangaverslunin Leikbær býður viðskiptavinum sínum hins vegar að kaupa vörur núna, sem koma til greiðslu í febrúar. 24.11.2006 18:34
Páfinn og Erdogan munu funda Tyrkneski forsætisráðherrann, Tayyip Erdogan, ætlar sér að hitta Benedikt páfa þegar hann kemur í opinbera heimsókn til Tyrklands í næstu viku. Töluvert hafði verið deilt á að ekki hefði verið ákveðinn fundur milli þeirra en mikil spenna ríkir í landinu fyrir heimsókna páfa vegna ummæla hans í sumar um að íslam væri ofbeldisfull trú. 24.11.2006 18:14
Sigurerni ekki fargað Halldór Runólfsson yfirdýralæknir tilkynnti nú rétt í þessu að sýnin sem tekin höfðu verið úr erninum Sigurerni og tveimur fálkum í húsdýragarðinum vegna gruns um fuglaflensumótefni í þeim hefðu reynst neikvæð. Sýnin voru send til Svíþjóðar til rannsókna. 24.11.2006 17:53
Leikskólabörn í Hafnarfirði skreyta Jólaþorp Jólalög hljómuðu um miðbæ Hafnarfjarðar í dag þegar hundruð leikskólabarna skreyttu jólaþorpið sem opnar á morgun. 24.11.2006 17:44
Frakkar hlýta ákvörðun ráðamanna í Rúanda Frakkar sögðu í dag að þeir hörmuðu þá ákvörðun ráðamanna í Rúanda að slíta stjórnmálalegum tengslum ríkjanna tveggja. Ástæðan fyrir vinslitunum er sú að franskur dómari ákvað að gefa út handtökuskipun á leiðtogum í Rúanda vegna atburða sem leiddu til þjóðarmorðanna þar í landi árið 1994. 24.11.2006 17:38
Kársnesbrautin gæti farið í stokk Kársnesbrautin í Kópavogi verður hugsanlega sett í stokk til að liðka fyrir aukinni umferð samfara mikilli fólksfjölgun í vesturbæ Kópavogs. Gunnar I. Birgisson segir að Samfylkingunni hugnist lítt að fá ný atvinnutækifæri í bæinn. 24.11.2006 17:26
Bandaríkin fordæma árás í Írak Talsmenn Bandaríkjaforseta fordæmdu í dag árásina í gær í hverfi shía múslima og sögðu hana glórulausa og miðaða að því að skapa óstöðugleika í landinu. Alls létu um 200 manns lífið í árásinni sem var sú stærsta sem gerð hefur verið síðan Bandaríkjamenn réðust inn í Írak. 24.11.2006 17:19
Íslendingar vernda umhverfið Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sat í dag leiðtogafund aðildarríkja Norðlægrar víddar (Northern Dimension) í Helsinki. Þar voru ríkisstjórnaroddvitar þríeykis Evrópusambandsins, Rússlands, Íslands og Noregs. Norðlæga víddin er samstarfsvettvangur þessara ríkja og er ætlað að stuðla að sjálfbærri þróun, stöðugleika, velsæld og öryggi í norðanverðri Evrópu. Samþykkt var pólitísk yfirlýsing og ný rammaáætlun um framkvæmd samstarfsins. 24.11.2006 17:06
Alcoa opnar skrifstofu á Húsavík Alcoa hefur opnað skrifstofu og upplýsingamiðstöð á Húsavík vegna vegna hugsanlegs álvers í landi Bakka við Húsavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir einnig að aðstaða Alcoa sé tekin í notkun nú þegar rannsóknir hafi leitt í ljós að engar tæknilegar hindranir standi í vegi fyrir því að álver rísi við Bakka. 24.11.2006 16:59
Sigurður Óli verður aðstoðarforstjóri Actavis Sigurður Óli Ólafsson tekur við af Svöfu Grönfeldt sem aðstoðarforstjóri Actavis en Svafa var í dag kynnt sem næsti rektor Háskólans í Reykjavík. Fram kemur í tilkynngu frá Actavis að Sigurður Óli hafi verið framkvæmdastjóri félagsins í Bandaríkjunum og muni nú einnig gegna stöðu aðstoðarforstjóra félagsins frá 1.desember 2006. 24.11.2006 16:52
Skautasvell á Ingólfstorgi í desember Skautasvell verður opnað á Ingólfstorgi þann 7. desember og verður opið til mánaðarloka. Það er Tryggingamiðstöðin, sem er með höfuðstöðvar sínar við Aðalstræti, sem setur svellið upp í samvinnu við borgina og er það gert vegna 50 ára afmælis félagsins sem einmitt verður haldið hátíðlegt þann 7. desember næstkomandi. 24.11.2006 16:37