Fleiri
Gildistöku 300 þúsund króna frítekjumarks flýtt 16.11.2006 16:38 Rauði herinn endurreistur á næstu árum 16.11.2006 16:29 Þjóðkirkjan er skaðabótaskyld vegna skipunar sendiráðsprests Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að íslenska þjóðkirkjan sé skaðabótaskyld vegna skipunar sendiráðsprests í London. 16.11.2006 16:28 Norðmenn vilja meira erlent vinnuafl til að halda niðri launum Norðmenn íhuga að opna landamæri sín fyrir verkafólki frá Rúmeníu og Búlgaríu, til þess að koma í veg fyrir launahækkanir, sem þeir kæra sig ekki um. 16.11.2006 15:55 Foreldrar fá bréf um glannaskap barna sinna Lögreglan á Akranesi sendir nú foreldrum ungra ökumanna, sem gerast brotlegir í umferðinni, bréf. Lögreglan segir mikið hafa borið á brotum ungra ökumanna og ekki hafa allir látið sér segjast þrátt fyrir afskipti lögreglunnar. 16.11.2006 15:33 Indverskir kommúnistar styðja Saddam Um eitthundrað þúsund indverskir kommúnistar söfnuðust saman í Kalkútta, á Indlandi, í dag, til þess að mótmæla dauðdóminum yfir Saddam Hussein. 16.11.2006 15:21 Sótt í heita vatnið í kuldanum Mikil notkun hefur verið á heitu vatni í kuldanum síðustu daga. Eftir hádegið í dag dældi Orkuveita Reykjavíkur um 13.300 tonnum af heitu vatni á klukkustund til notenda á höfuðborgarsvæðinu. 16.11.2006 15:16 35 stiga frost í Reykjavík Það er víða mjög hvasst á landinu og sumstaðar mjög snarpar og hættulegar vindhviður, einkum á Kjalarnesi. „ Þegar ég reikna saman lofthitann í borginni sem er um -6 stig og vindhraða um 13 m/s þá jafngildir vindkælingin því að vera í 35 stiga frosti í logni“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu NFS. 16.11.2006 14:42 Orð umhverfisráðherra kalla á skýra loftlagsstefnu Náttúruverndarsamtök Íslands segja orð umhverfisráðherra, á loftlagsþingi Sameinuðu þjóðanna í morgun, kalla á skýra loftslagsstefnu til langs tíma. Þetta felur meðal annars í sér að setja þarf tímasett markmið um verulegan samdrátt í útstreymi gróðurhúsalofttegunda. 16.11.2006 14:23 Síróp á vegi gegn hálku Norðmenn eru að byrja að sprauta sírópi á vegi sína, til þess að koma í veg fyrir hálku. Sírópið er blandað megnesíum klóríði og verndar vegina allt niður í sextíu og fimm gráðu frost. 16.11.2006 14:09 Three fabulous floors 16.11.2006 14:02 Simpson sagður viðurkenna morðin, í nýrri bók O.J. Simpson hefur skrifað bók þar sem hann lýsir því hvernig hann hefði farið að því að myrða fyrrverandi eiginkonu sína og ástmann hennar, EF hann hefði gert það. Titill bókarinnar er "Ef ég gerði það, svona gerðist það." Útgefandi bókarinnar segir að hún líti á hana sem játningu. 16.11.2006 13:44 Runólfur segir upp störfum á Bifröst Runólfur Ágústsson, rektor Háskólans á Bifröst, hefur sagt upp störfum. Í yfirlýsingu sem Runólfur sendi frá sér í dag, segir hann að ófriðurinn sem ríkt hafi á Bifröst að undanförnu hafi truflað bæði nemendur og starfsfólk og að auki valdið honum sjálfum skaða. 16.11.2006 13:36 Hydro opnar skrifstofu á Íslandi Fyrirtækið Hydro hefur opnað skrifstofu á Íslandi. Fyrirtækið hyggst þannig leita uppi og þróa ný ný umhverfisvæn viðskiptatækifæri á sviði ál- og orkuframleiðslu. Hydro hefur stundað viðskipti á Íslandi um nokkurra ára skeið bæði í tengslum við áliðnað og orkuvinnslu. 16.11.2006 13:19 Sjá næstu 50 fréttir
Færeyskir havsvívarar fylgjast með fiskinum Færeyska hafrannsóknastofnunin sjósetti þrjá dvergkafbáta á sunnudaginn, eða "havsvívara" eins og þeir heita á tungu grannþjóðar okkar, sem rannsaka hafið og allt sem þar finnst eftir bendingum frá gervihnetti. Fréttavefurinn skip.is greinir frá þessu. Hafsvifförin svonefndu munu fylgjast með hafsvæðunum milli Íslands, Færeyja og Hjaltlands. 17.11.2006 11:20
Evrópskar friðarumleitanir í Ísrael Frakkar, Spánverjar og Ítalir samþykktu í dag áætlun til þess að reyna að leysa deilurnar við botn Miðjarðarhafsins. í áætlununni er kveðið á um algjört vopnahlé og gefið í skyn að löndin þrjú gætu send eftirlitsmenn til Ísraels. Óvíst er þó hvernig þetta evrópska frumkvæði passar inn í aðrar friðarumleitanir. 16.11.2006 23:45
Royal frambjóðandi sósíalista Talsmaður Sósíalistaflokksins í Frakklandi staðfesti við fréttamenn nú rétt áðan að frambjóðandinn Segolene Royal verði forsetaefni flokksins. Sagði hann að hún hefði þegar hlotið mikinn meirihluta atkvæðanna en lokaúrslit ættu að verða ljós í fyrramálið. Royal verður fyrsti kvenkyns forseti Frakklands ef hún sigrar í forsetakosningunum í apríl á næsta ári. 16.11.2006 23:08
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktar um Úganda Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld ályktun þar sem skorað er á uppreisnarher drottins í Úganda að sleppa úr haldi öllum þeim börnum og konum sem þeir hafa rænt á síðustu tveimur áratugum. 16.11.2006 22:51
Æfingaflugtak gekk vel Væntanlegir geimfarar fóru um borð í geimskutluna Discovery í dag til þess að undirbúa sig fyrir geimskotið sem verður í næsta mánuði. Æfingin gekk eins og í sögu og var henni haldið áfram þangað til aðeins fjórar sekúndur voru í flugtak. 16.11.2006 22:14
Sósíalistar í Frakklandi hafa valið forsetaefni sitt Samkvæmt fyrstu tölum úr prófkjöri sósíalista í Frakklandi er talið að frambjóðandinn Segolene Royal eigi eftir að bera sigur úr býtum. Þetta kom fram hjá franska sjónvarpinu LCI í kvöld. Líklegt þykir að hún hafi hlotið mikinn meirihluta atkvæðanna en úrslit ættu að verða ljós í fyrramálið. Royal myndi verða fyrsti kvenkyns forseti Frakklands ef hún ber sigur úr býtum í komandi forsetakosningum. 16.11.2006 21:50
Hvalveiðar í Kanada Lið veiðimanna í Kanada mun fara í leiðangur til þess að drepa um 80 Mjaldurhvali. Mjaldurhvalir eru litlir, um þrír til fimm metrar á lengd og hvítir á hörund. Hvalirnir sem á að veiða eru allir fastir í vatni sem á eftir að frysta eftir nokkrar vikur. 16.11.2006 21:38
Sameiginlegt friðargæslulið að veruleika Kofi Annan sagði í kvöld að ráðamenn í Súdan hefðu samþykkt þá hugmynd hans um að sameinað lið friðargæsluliða frá Sameinuðu þjóðunum og Afríkusambandinu myndi verða við friðargæslu í Darfur-héraði. 16.11.2006 21:09
Kveikt í ruslatunnum Eldur kviknaði í tveimur ruslatunnum við leikskólann Brákarborg í Brákarsundi í kvöld. Slökkvilið kom fljólega á staðinn og greiðlega gekk að slökkva eldinn þrátt fyrir töluverðan vind. Lítið tjón hlaust af eldinum en fyrir utan ruslatunnurnar sem brunnu skemmdist skjólveggur sem þær stóðu við einnig. 16.11.2006 20:56
Æðsti klerkur súnnía í Írak brotlegur Íraska ríkisstjórnin hefur gefið út handtökuskipun á æðsta klerki súnnía í landinu þar sem talið er að hann sé að ýta undir hryðjuverkastarfsemi í Írak. Handtökuskipunin gæti hins vegar ýtt undir ofbeldi milli trúarhópa í Írak, súnní og shíta múslima. 16.11.2006 20:41
Blair leggur til ný hryðjuverkalög Bretar munu leggja til nýja löggjöf í hryðjuverkamálum fyrir lok ársins. Búist er við því að hún muni fela í sér lög um að breska lögreglan geti haldið grunuðum í lengri tíma án þess að gefa út ákæru á hendur þeim. 16.11.2006 20:17
Bush í Víetnam George W. Bush varð í dag annar forseti Bandaríkjanna til þess að heimsækja Víetnam eftir að Víetnamstríðinu lauk. Vonast var til þess að Bush myndi þar semja um fríverslunarsamning við Víetnama en ekkert varð úr því þar sem repúblikanar misstu yfirráð í báðum deildum þingsins þann 7. nóvember síðastliðinn. 16.11.2006 19:56
Endalaus saga í olíusamráðsmáli Þó að fimm ár séu liðin frá því olíusamráðsmálið hófst með innrás lögreglu í olíufyrirtækin þrjú, hefur enginn endi verið bundinn á marga þræði málsins. Fyrir dómstólum eru rekin skaðabótamál gegn félögunum, refisþáttur stjórnenda er enn hjá saksóknara og hálft annað ár getur liðið þar til endanleg niðurstaða verður í sjálfu samráðsmálinu fyrir dómstólum. 16.11.2006 19:39
Ofbeldið í Darfur heldur enn áfram Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, opnaði í Eþíópíu í dag alþjóðlega ráðstefnu um hvernig hægt er að leysa ástandið í Darfur-héraði í Súdan. Þar mun hann meðal annars mæla fyrir því að búið til verði sameinað friðargæslulið frá Sameinuðu þjóðunum og Afríkusambandinu. 16.11.2006 19:34
Lentu í klóm sjóræningja Íslensk hjón á siglingu um Karabíska hafið komust í hann krappann þegar vopnaðir ræningjar réðust um borð í bát þeirra og stálu öllu steini léttara. Þau voru bundin á höndum og fótum og um tíma óttuðust þau um líf sitt. 16.11.2006 19:24
Bandaríkin í samvinnu við Indland Bandaríska þingið byrjaði í dag að ræða frumvarp sem fjallar um sölu á kjarnorkuvirkum efnum og framleiðslutækjum til Indlands. Frumvarpið hefur verið á hakanum ansi lengi en gagnrýnendur þess eru hræddir að með því að aðstoða Indverja við að koma sér upp kjarnorkutækni muni kjarnorkuvopnakapphlaup verða raunin í Suð-Austur Asíu allri og þá sérstaklega á milli Indlands og Pakistan. 16.11.2006 19:22
Lögbrot að ráða tengdason biskups Skipan tengdasonar biskups, í embætti sendiráðsprests í Lundúnum, braut gegn jafnréttislögum, samkvæmt dómi Hæstaréttar í dag. Siv Konráðsdóttir, lögmaður konunnar sem stefndi segir þetta áfellisdóm yfir biskupi því hann beri samkvæmt dómnum ábyrgð á lögbrotinu. Gestur Jónsson, lögmaður biskups telur þessa niðurstöðu engan vegin áfellisdóm yfir embættisverkum biskups og raunar þvert á móti. 16.11.2006 19:20
Simpson segir hvernig hann hefði myrt Ruðningskappinn O. J. Simpson hefur síðustu tólf árin þráfaldlega neitað því að hafa myrt eiginkonu sína og elskhuga hennar með hrottalegum hætti árið 1994. Simpson hefur þó velt því fyrir sér hvernig hann hefði myrt þau og ritað um það bók sem kemur út nú fyrir jólin. Ættingjar fórnarlambanna fordæma útgáfu bókarinnar. 16.11.2006 19:00
Hörð átök í Austur-Kongó Til harðra átaka hefur komið milli stjórnarandstæðinga og lögreglu í höfuðborg Austur-Kongó í dag. Kjörstjórn landsins lýsti því yfir í morgun að Joseph Kabila, sitjandi forseti, hefði sigrað í kosningum í síðasta mánuði. Andstæðingur hans neitar að viðurkenna ósigur sinn og segir brögð hafa verið í tafli. 16.11.2006 18:45
Utanríkisráðherra í þorskastríð Valgerður Sverrisdóttir skar upp herör gegn sjóræningjaveiðum í morgun þegar hún flutti jómfrúarskýrslu sína um utanríkismál. Hún fór vítt og breitt yfir og ræddi einnig að leita þyrfti leiða til að efla samstarf við Evrópusambandið á sviði öryggismála. 16.11.2006 18:40
Óveður á Kjalarnesi Ennþá er óveður á Kjalarnesi en auðir vegir eru á Suður- og Suðvesturlandi. Á Norðurlandi og Austurlandi er víða hríðarveður og jafnvel stórhríð og ófært er yfir Þverárfjall. Varað er við óveðri sunnan Vatnajökuls. 16.11.2006 18:36
Vísitala íbúðaverðs lækkað um 2,2% frá fyrra mánuði Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 306,1 stig í október 2006 (janúar 1994=100) og lækkaði um 2,2% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hefur hún hækkað um 0,8% en undanfarna 6 mánuði hefur hún samt lækkað um 0,5%. Á ársgrundvelli varð þó hækkun upp á 7,2% 16.11.2006 18:18
Kaþólskir prestar skulu vera ógiftir Vatíkanið staðfesti í dag að prestar kaþólsku kirkjunnar ættu að vera einhleypir á fundi sem Benedikt páfi hélt til þess að ræða óskir giftra presta sem vilja stíga í pontu á ný. Fundurinn var haldinn vegna þess að nú hefur afrískur erkibiskup stofnað nýja hreyfingu sem að leyfir þeim kaþólsku prestum sem hafa horfið úr starfi til þess að gifta sig að snúa aftur í pontu. 16.11.2006 18:14
Dagsbrún sendir frá sér afkomuviðvörun Dagsbrún sendi í dag frá sér afkomuviðvörun vegna níu mánaða uppgjörs. Stjórn fyrirtækisins hefur jafnframt ákveðið að ganga til viðræðna við hugsanlega kaupendur á meirihluta hlutafjár í Daybreak Acquisitions, móðurfélagi Wyndeham press Group PLC, sem er þriðja stærsta prent- og samskiptafyrirtæki Bretlands. 16.11.2006 17:49
Milton Friedman látinn Milton Friedman, helsti frummælandi hins frjálsa markaðar og handhafi Nóbelsverðlauna í hagfræði árið 1976, er látinn. Talsmaður fjölskyldunnar skýrði frá þessu nú rétt í þessu. 16.11.2006 17:45
Njörður. P Njarðvík fékk verðlaun Jónasar Hallgrímssonar Í dag var hátíðardagskrá í sal Hjallaskóla í Kópavogi þar sem afhent voru Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2006 og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Þar veitti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra Nirði P. Njarðvík verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2006. 16.11.2006 17:25
Franskir sósíalistar velja sér forsetaefni Franski sósíalistaflokkurinn hélt prófkjör í dag fyrir forsetakosningarnar sem að fara þar fram á næsta ári. Talið er líklegt að konan Segolene Royal eigi eftir að bera sigur úr býtum en fyrstu tölur verða birtar á morgun. 16.11.2006 17:18
Norsk Hydro lýsir áhuga á að reisa álver á Íslandi Norsk Hydro hellti sér í dag af krafti og með formlegum hætti í álverskapphlaupið. Fyrirtækið boðaði til fréttamannafundar þar sem það tilkynnti að það vildi koma að orkunýtingu og áliðnaði á Íslandi í framtíðinni um leið og það opnaði sérstaka skrifstofu í Reykjavík í þeim tilgangi. Skrifstofunni er jafnframt ætlað að leita tækifæra í Grænlandi og Austur-Kanada. 16.11.2006 17:09
Þrjú sveitarfélög undir smásjá Eftirlitsnefndar um fjármál Ísafjarðarbær, Bolungarvík og Skagafjörður eru nú undir smásjá eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga og tíu sveitarfélög þurftu sérstaka fjárhagsaðstoð vegna erfiðleika í fyrra. Forsætisráðherra sendir sveitarfélögum hins vegar pillu fyrir að ganga ekki í takt með ríkisstjórninni í hagsstjórn og kjaramálum opinberra starfsmanna. 16.11.2006 16:59
Árs fangelsi fyrir kynferðisbrot Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag árs fangelsisdóm yfir karlmanni fyrir kynferðisbrot. Maðurinn hlaut dóminn í Héraðsdómi Reykjavíkur í mars á þessu ári, fyrir að hafa haft samræði eða önnur kynferðismök við konu á meðan hún gat ekki spornað við verknaðinum, sökum ölvunar og svefndrunga. Maðurinn var jafnframt dæmdur til að greiða konunni 600.000 krónur í skaðabætur. 16.11.2006 16:56
2000 ára gömul fisksósa Spænskir vísindamenn eru vongóðir um að geta sett saman uppskrift að fisksósu sem auðugir Rómverjar héldu mikið uppá fyrir 2000 árum. 16.11.2006 16:47
Þjóðkirkjan er skaðabótaskyld vegna skipunar sendiráðsprests Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að íslenska þjóðkirkjan sé skaðabótaskyld vegna skipunar sendiráðsprests í London. 16.11.2006 16:28
Norðmenn vilja meira erlent vinnuafl til að halda niðri launum Norðmenn íhuga að opna landamæri sín fyrir verkafólki frá Rúmeníu og Búlgaríu, til þess að koma í veg fyrir launahækkanir, sem þeir kæra sig ekki um. 16.11.2006 15:55
Foreldrar fá bréf um glannaskap barna sinna Lögreglan á Akranesi sendir nú foreldrum ungra ökumanna, sem gerast brotlegir í umferðinni, bréf. Lögreglan segir mikið hafa borið á brotum ungra ökumanna og ekki hafa allir látið sér segjast þrátt fyrir afskipti lögreglunnar. 16.11.2006 15:33
Indverskir kommúnistar styðja Saddam Um eitthundrað þúsund indverskir kommúnistar söfnuðust saman í Kalkútta, á Indlandi, í dag, til þess að mótmæla dauðdóminum yfir Saddam Hussein. 16.11.2006 15:21
Sótt í heita vatnið í kuldanum Mikil notkun hefur verið á heitu vatni í kuldanum síðustu daga. Eftir hádegið í dag dældi Orkuveita Reykjavíkur um 13.300 tonnum af heitu vatni á klukkustund til notenda á höfuðborgarsvæðinu. 16.11.2006 15:16
35 stiga frost í Reykjavík Það er víða mjög hvasst á landinu og sumstaðar mjög snarpar og hættulegar vindhviður, einkum á Kjalarnesi. „ Þegar ég reikna saman lofthitann í borginni sem er um -6 stig og vindhraða um 13 m/s þá jafngildir vindkælingin því að vera í 35 stiga frosti í logni“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu NFS. 16.11.2006 14:42
Orð umhverfisráðherra kalla á skýra loftlagsstefnu Náttúruverndarsamtök Íslands segja orð umhverfisráðherra, á loftlagsþingi Sameinuðu þjóðanna í morgun, kalla á skýra loftslagsstefnu til langs tíma. Þetta felur meðal annars í sér að setja þarf tímasett markmið um verulegan samdrátt í útstreymi gróðurhúsalofttegunda. 16.11.2006 14:23
Síróp á vegi gegn hálku Norðmenn eru að byrja að sprauta sírópi á vegi sína, til þess að koma í veg fyrir hálku. Sírópið er blandað megnesíum klóríði og verndar vegina allt niður í sextíu og fimm gráðu frost. 16.11.2006 14:09
Simpson sagður viðurkenna morðin, í nýrri bók O.J. Simpson hefur skrifað bók þar sem hann lýsir því hvernig hann hefði farið að því að myrða fyrrverandi eiginkonu sína og ástmann hennar, EF hann hefði gert það. Titill bókarinnar er "Ef ég gerði það, svona gerðist það." Útgefandi bókarinnar segir að hún líti á hana sem játningu. 16.11.2006 13:44
Runólfur segir upp störfum á Bifröst Runólfur Ágústsson, rektor Háskólans á Bifröst, hefur sagt upp störfum. Í yfirlýsingu sem Runólfur sendi frá sér í dag, segir hann að ófriðurinn sem ríkt hafi á Bifröst að undanförnu hafi truflað bæði nemendur og starfsfólk og að auki valdið honum sjálfum skaða. 16.11.2006 13:36
Hydro opnar skrifstofu á Íslandi Fyrirtækið Hydro hefur opnað skrifstofu á Íslandi. Fyrirtækið hyggst þannig leita uppi og þróa ný ný umhverfisvæn viðskiptatækifæri á sviði ál- og orkuframleiðslu. Hydro hefur stundað viðskipti á Íslandi um nokkurra ára skeið bæði í tengslum við áliðnað og orkuvinnslu. 16.11.2006 13:19