Fleiri fréttir Verðmæti Exista jókst um fimmtán milljarða Verðmæti hlutafélaga sem skráð eru í Kauphöllinni jókst um tíu prósent í dag þegar Exista var tekið á skrá. Heildarvirði félagsins var um 230 milljarðar við upphaf dags en hafði aukist um fimmtán milljarða fyrir dagslok. 15.9.2006 22:06 Eldur kviknaði í bakarofni Slökkvilið höfuðborgarsvæðising var kallað út um klukkan hálf níu í kvöld vegna elds í bakarofni í heimahúsi í Fossvogi. Húsráðanda hafði tekist að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á staðinn. Slökkviliðsmenn reykræstu húsið. Ekki urðu slys á fólki en húsráðandi var fluttur á slysadeildina í Fossvogi með snert af reykeitrun. 15.9.2006 22:00 Segist ekki hafa farið fjóra milljarða fram úr áætlunum Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur kostuðu fimm komma átta milljarða, samkvæmt upplýsingum stjórnarinnar nú. Áætlanir gerðu ráð fyrir að kostnaðurinn yrði átjánhundruð milljónir eða það sama og fékkst við sölu fyrirtækjanna sem fóru undir hatt Orkuveitunnar. Fyrrverandi stjórnarformaður vísar því á bug að hann hafi farið fjóra milljarða fram úr áætlunum. 15.9.2006 21:58 Segir auglýsingu Samfylkingarinnar hræðsluviðbrögð Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir krampakennd hræðsluviðbrögð einkenna auglýsingu Samfylkingarinnar um algera stöðvun allra orku- og stóriðjuframkvæmda í fimm ár. Þessi hræðsluviðbrögð séu ótrúverðug og fráleitt sé að hrökkva frá öllum erfiðum málum með endalausum frestum. 15.9.2006 21:48 Margrét hugsanlega á leið úr stjórnmálum Talið er að Margrét Frímannsdóttir ,formaður þingflokks Samfylkingarinnar, hætti í pólitík. Hún hefur gefið út þá yfirlýsingu að hún tilkynni um pólitíska framtíð sína á kjördæmisráðsfundi Suðurkjördæmis á sunnudag. 15.9.2006 21:15 Mikil bráðnun jökla Hvítabirnir eru að drukkna og nýjar eyjar að koma í ljós undan ísnum á Norður-Heimskautinu, eftir mikla bráðnun jökla í sumar. 15.9.2006 20:51 Óttast að njósnirnar verði flokknum af falli Frambjóðendur hægra bandalagsins í þingkosningunum í Svíþjóð geta ekki leynt gremju sinni yfir því að Göran Persson formaður Jafnaðarflokksins skyldi leyfa sér að nefna njósnahneyksli Þjóðarflokksins í sjónvarpsumræðum í gærkvöld. Engin leið er að spá fyrir um úrslitin á sunnudag, en Persson óttast að njósnirnar geti fært andstæðingum hans sigurinn. 15.9.2006 20:15 Stærsta réttarhelgin Réttirnar eru þjóðhátíð Árnesinga, segir landbúnaðarráðherra. Eftir tíu daga úthald á hálendinu eru gangnamenn þeirra nú komnir til byggða með vænt fé af fjalli og þessa dagana er verið að rétta í sveitum Suðurlands. 15.9.2006 18:53 Norvik kaupir stærstu sögunarmyllu Lettlands Norvik hf., félag í eigu Jóns Helga Guðmundssonar og fjölskyldu sem gjarnan er kennd við BYKO, keypti í dag stærstu sögunarmyllu Lettlands, VIKA Wood. Félagið framleiðir um 270 þúsund rúmmetra af söguðu timbri á ári og selur að mestum hluta til Japans og á heimamarkað. 15.9.2006 17:03 Slökkvistarfi lokið í Varmárskóla Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins lauk störfum í Varmárskóla í Mosfellsbæ nú á fimmta tímanum en þangað var það hvatt um klukkan tvö í dag vegna elds í húsinu. Fyrstu fréttir bentu til þess að eldurinn hefði kviknað í rafmagnstöflu en það hefur ekki fengist staðfest. 15.9.2006 17:00 Síðustu þyrluvakt varnarliðslins lauk í morgun Síðustu vakt björgunarþyrlna Varnarliðsins á Miðnesheiði lauk í morgun. Þar með eru aðeins tvær björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar til taks ef á þarf að halda. 15.9.2006 16:30 13.500 heita betri hegðun í umferðinni Um 13.500 manns hafa skráð nafn sitt á heimasíðuna stopp.is sem Umferðstofa hefur sett á fót í tengslum við átak gegn umferðarslyum undir kjörorðingu "Nú segjum við stopp!". 15.9.2006 16:15 Magna fagnað í Smáralind á sunnudag Magni Ásgeirsson mun spila á ný með hljómsveit sinni Á móti sól á viðburði sem Skjárinn hefur skipulagt til heiðurs honum í Smáralind á sunnudag. Söngvarinn knái, sem vakið hefur þjóðarathygli fyrir frammistöðu sína í raunveruleikaþættinum Rockstar:Supernova, kemur heim á sunnudaginn og mun þjóðin þá taka á móti honum í Vetrargarði Smáralindar klukkan 16. 15.9.2006 16:00 Býst við að funda með Írönum á næstu dögum Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, býst við að funda með aðalsamningamanni Írana í kjarnorkumálum, Ari Larijani, á næstu dögum um það að Íranar láti af auðgun úrans. 15.9.2006 15:48 Líðan drengsins óbreytt Líðan drengsins, sem slasaðist alvarlega þegar hann velti bíl sínum við bæinn Skipholt nálægt Flúðum aðfaranótt fimmtudags, er óbreytt. Honum er í öndunarvél og er honum haldið sofandi á gjörgæslu Landspítalans í Fossvogi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi virðist sem ofsaakstur hafi ollið slysinu en ummerki á vettvangi bentu til þess. Drengurinn var ekki í bílbelti en stúlkurnar tvær sem voru farþegar í bíl hans voru í bílbelti. Þær hlutu minniháttar áverka. 15.9.2006 15:30 Norðfjarðarvegur illfær vegna rigninga og blæðinga Vegna rigninga og mikilla blæðinga í slitlagi er Norðfjarðarvegur milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar illfær og er vegfarendum bent að fara ekki veginn nema að brýna nauðsyn beri til. 15.9.2006 15:15 Eldur í þaki Varmárskóla Slökkviliðsmenn frá slökkviliði höfuðborgasvæðisins eru nú staddir í Varmárskóla í Mosfellsdbæ þar sem eldur logar í þak skólans. Tveir dælubílar og einn körfubíll eru að störfum á svæðinu. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá bilun í rafmagnstöflu og var skólinn rýmdur um leið og ljóst var að eldur hafði komið upp. 15.9.2006 15:00 Breytingar á akstri um Vesturgötu Gerð hefur verið breyting á akstri um Vesturgötu í Reykjavík. Hún felur í sér að nú er einstefna til austurs frá gatnamótum Vesturgötu/Ægisgötu og að gatnamótum Vesturgötu/Garðastrætis. Á fyrrtöldu gatnamótunum er jafnframt stöðvunarskylda. Samkvæmt því skulu ökumenn sem fara um Vesturgötu nema staðar fyrir þá sem aka Ægisgötu. 15.9.2006 14:45 SPRON hækkar óverðtryggða vexti SPRON tilkynnti í dag að fyrirtækið myndi hækka vexti óverðtryggðra innlána og útlána um 02,5 - 0,5 prósentustig. í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands í gær. SPRON hækkar hins vegar ekki frekar en Glitnir og Landsbankinn vexti verðtryggðra íbúðalána, en bankarnir tveir hækkuðu óverðtryggða vexti sína í gær. 15.9.2006 14:15 Herdís stefnir á annað sæti í Norðvesturkjödæmi Herdís Sæmundardóttir, stjórnarformaður Byggðastofnunar, gefur kost á sér í annað sæti á lista Framsóknaflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herdísi. 15.9.2006 14:15 Verkefni í vegagerð færð frá ríki til sveitarfélaga Vinna er hafin við það í samgönguráðuneytinu að færa ákveðin verkefni í samgöngumálum frá ríki til sveitarfélaga. Þetta kom fram í ávarpi Sturlu Böðvarssonar á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í Grundarfirði í dag. 15.9.2006 13:45 Dauðadómur yfir Asahara staðfestur Hæstiréttur í Japan hefur staðfest dauðadóm yfir Shoko Asahara, leiðtoga sértrúarsöfnuðar þar í landi. Asahara var fyrir tveimur árum sakfelldur fyrir að hafa skipulagt taugagassárás á neðanjarðarlestakerfið í Tókýó fyrir ellefu árum og aðra árás ári áður. Nítján týndu lífi í árásunum. 15.9.2006 13:30 Milljarðar bætast við markaðsvirði Exista Fyrirtækið Exista var tekið til skráningar í Kauphöllinni í morgun. Þetta er stærsta nýskráning í Kauphöllinni en markaðsvirði félagsins var um 230 milljarðar. Milljarðar hafa bæst við markaðsvirðið fram að hádegi vegna gengishækkunar í fyrstu viðskiptum. 15.9.2006 13:15 Múslimar æfir út í páfa Múslimar um allan heim eru æfareiðir Benedikti páfa sextánda fyrir ummæli sem hann lét falla í ræðu í Þýskalandi fyrr í vikunni. Þar ræddi páfi hugtakið "heilagt stríð". 15.9.2006 13:00 Samið um menningarsamskipti við Kína Íslendingar og Kínverjar hafa samið um menningarsamkipti á árunum 2007-2010 sem meðal annars felast í skiptiheimsóknum listamanna og stjórnenda á listasviðinu. Það var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og menningarmálaráðherra Kína sem það gerðu fyrir hönd þjóða sinna en Þorgerður er nú stödd í opinberri heimsókn í Kína. 15.9.2006 12:45 Kosningabaráttan í Svíþjóð harðnar stöðugt Skoðanakannanir skera ekki úr um hvort vinstri eða hægri flokkarnir i Svíþjóð fari með sigur af hólmi i þingkosningunum um helgina, en kosningabaráttan er stöðugt að harðna. 15.9.2006 12:30 Amphetamine Arrest 15.9.2006 12:24 Samgönguvikan fyrir Hrein Loft Eflaust hafa margir rekið augun í auglýsingar fyrir samgönguvikuna sem hefst í dag en á þeim sést maður með mikið eldrautt hár og slagorðið fyrir ofan er "framtíð hreins lofts er í þínum höndum". Það sem færri vita er að maðurinn á myndinni heitir Hreinn Loftur. 15.9.2006 12:13 Icelandic Horses Abused 15.9.2006 12:11 Íranar ýja að viðræðum í kjarnorkudeilu Yfirrvöld í Frakklandi hafa staðfest að Íranar hafi gefið til kynna að þeir vilji hefja viðræður um það við Evrópusambandið að þeir hætti auðgun úrans. Frá þessu var greint skömmu fyrir hádegi. 15.9.2006 12:00 Fimm menn skotnir nærri heimili Haniyehs Byssumenn skutu fimm Palestínumenn til bana nærri heimili forsætisráðherrans Ismails Haniyeh á Gasaströndinni í morgun. Óljósar fregnir hafa borist af atburðinum en talið er að einhverjir hinna látnu hafi verið í öryggissveitum palestínsku heimastjórnarinnar. 15.9.2006 11:45 Danska þjófélagið tapi stórfé vegna umferðartafa Helstu sérfræðingar Danmerkur í skipulagsfræði áætla að árið 2030 muni danska þjóðfélagið tapa tæpum 360 milljörðum vegna þess að umferðarmannvirki beri ekki alla þá bílaumferð sem þá verður á vegunum. 15.9.2006 11:45 Nýr stjórnarfomaður Hjálparstofnunar kirkjunnar Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, hefur verið kosinn stjórnarformaður Hjálparstarfs kirkjunnar. Það var gert á aðalfundi stofnunarinnar þann 11. september. Auk hans voru Sigríður Lister hjúkrunarfræðingur og Gunnar Sigurðsson kerfisfræðingur kosin í stjórn stofnunarinnar. 15.9.2006 11:22 Bjóða sig fram í stjórn Heimdallar Hópur ungs fólks hefur ákveðið að bjóða sig fram til stjórnar Heimdallar með Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, frambjóðanda til formennsku í Heimdalli. Í tilkynningu frá hópnum segir að hann sé skipaður öflugu hugsjónafólki, sem vilji auka veg Heimdallar og virkja ungt fólk til starfa innan félagsins. 15.9.2006 11:15 330 milljónir til byggingar reiðhalla Landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað 330 milljónum króna í styrki til að byggja reiðhallir, reiðskemmur og reiðskála víða um land. Nefnd á vegum landbúnaðarráðherra sá um að úthluta styrkjunum en alls barst fjörutíu og ein umsókn en úthlutað var styrkjum til byggingar 28 reiðhúsa víðs vegar um landið. 15.9.2006 11:15 Hitabeltisstormurinn Lane veldur usla í Meíkó Búist er við því að hitabeltisstormurinn Lane eflist í dag en hann skall á Kyrrahafsströnd Mexíkós í gær með tilheyrandi hvassviðri og úrkomu. 15.9.2006 11:00 Japansprins farinn af sjúkrahúsi Kiko Japansprinsessa og nýfæddur sonur hennar, Hisahito, fengu að fara heim af sjúkrahúsinu í Tokyo í morgun. Sonurinn kom í heiminn fyrir viku og er fyrsta sveinbarnið sem fæðist inn í keisarafjölskylduna í rúm 40 ár. Sló það á allar áhyggjur um erfingjaskort því samkvæmt japönskum lögum mega aðeins karlmenn erfa keisaratignina. 15.9.2006 10:45 Kastró hressist Fídel Kastró, forseti Kúbu, virðist óðum vera að ná fyrri styrk en hann átti í gær fund með Hugo Chavez, forseta Venesúela, á sjúkrastofu Kastrós á Havana. Fjölmargir þjóðarleiðtogar, þar á meðal Chavez, sækja nú árlega leiðtogafund samtkaa ríkja utan bandalaga sem haldinn er á Havana. 15.9.2006 10:30 Landsframleiðsla vex um 2,75 prósent Landsframleiðsla á öðrum árfjórðungi þessa árs óx um 2,75 prósent að raungildi frá sama tíma í fyrra en hins vegar jukust þjóðarútgjöld um sjö prósent. Þetta leiða nýjar tölu Hagstofunnar í ljós. 15.9.2006 10:15 Exista skráð í Kauphöllina Fjármálafyrirtækið Exista hf. var skráð á aðallista Kauphallarinnar nú klukkan tíu þegar markaðir opnuðu. Þetta er stærsta nýskráning félags í Kauphöllina. Nemur virði félagsins miðað við útboðsgengi um 230 milljörðum króna við skráningu. 15.9.2006 10:00 Komið í veg fyrir sprengjuárás í Jemen Yfirvöld í Jemen staðfestu í morgun að öryggisverðir hefði fellt fjóra menn sem ætluðu sér að gera árás á tvö borsvæði þar sem olía og gas eru unnin. Einn öryggisvörður féll í átökunum. 15.9.2006 09:45 Segir fyrirsögn Blaðsins uppblásna Blaðið gerir því skóna á forsíðu sinni í dag að fréttastöðin NFS fari innan skamms að leggja upp laupana, auk þess sem mikil hagræðing og endurskipulagning standi til í tímaritaútgáfu 365. Ari Edwald, forstjóri 365 segir fyrirsögnina uppblásna. Ekki hafi verið teknar neinar svo stórvægilegar ákvarðanir. 15.9.2006 09:45 13 bílhræ brunnu í Hafnarfirði Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að bílapartasölu við Stapahraun í Hafnarfirði, rétt fyrir ellefu í gærkvöldi, þar sem eldur logaði í bílhræjum á hlaðinu. Eldurinn barst síðan yfir í tvo gáma og einbeitti slökkviliðið sér fyrst um sinn að því að varna því að eldurinn bærist í húsið. 15.9.2006 09:15 Bush hótar að beita neitunarvaldi Nefnd bandarískra öldungadeildarþingmanna hefur farið gegn vilja Bush Bandaríkjaforseta og styðurlöggjöf þar sem skilgreint er hvernig rétta beri yfir grunuðum hryðjuverkamönnum. Bandaríkjaforseti hefur heitið því að beita neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að frumvarpið verði að lögum. Bandaríkjaforseti styður annað frumvarp sem myndi leyfa það að réttað yrði fyrir herrétti yfir föngum í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu þar sem grunaðir hryðjuverkamenn eru í haldi. Forsetinn mætti sjálfur á fund nefndarinnar í gær til að leggja áherslu á mál sitt. Fjölmargir Repúblíkanar eru andvígir því frumvarpi og styður Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra, þá í andstöðu sinni. Samkvæmt frumvarpi því sem forsetinn styður yrðu hertari yfirheyrsluaðferðir leyfðar, frekari njósnir einnig og rýmri heimildir til að halda grunuðum. Með þessu væri í raun verið að endurskilgreina það hvernig bandarísk stjórnvöld uppfylli ákvæði Genfar-sáttmálans um meðferð stríðsfanga. Þessu er Powell andvígur og segir þetta í raun stefna lífi bandarískra hermanna á erlendri grundu í hættu og renna stoðum undir málflutning þeirra sem gagnrýna framferði Bandaríkjamanna og siðferði þeirra. Meðal þeirra sem eru andvígir hugmyndum forsetans er John McCain, sem barðist við Bush um útnefningu Repúblíkana fyrir forsetakosningarnar árið 2000. Búist er við að McCain sækist aftur eftir útnefningu flokksins fyrir forsetakosningarnar eftir tvö ár. Hálfur mánuður er þar til fulltrúadeild Bandaríkjaþings frestar fundum sínum vegna kosninga í nóvember. Miðla þarf málum fyrir þann tíma. Ef það tekst ekki verður alls óvíst með framtíð fanganna í Guantanamo-fangabúðunum og hvernig mál þeirra verða meðhöndluð. 15.9.2006 09:00 Bensínverð lækkar Olíufélagið Esso og Atlantsolía lækkuðu verð á bensíni í dag. Esso lækkaði verð á bensínlítra um fjórar krónur og díselolía lækkaði um tvær krónur. Atlantsolía hefur lækkað verð á bensín og díelolíu þrisvar sinnum síðasta einn og hálfan sólarhring. Lækkanirnar nema samtals fimm krónum á bensíni og tveimur krónum á díselolíu. Handhafar dælulykla fá auk þess krónu í afslátt á hvern bensínlíterinn. Bæði olíufélögin segja verðlækkanir koma til vegna hagstæðrar þróunar á heimsmarkaðsverði og styrkingu krónunnar. 14.9.2006 21:25 Sjá næstu 50 fréttir
Verðmæti Exista jókst um fimmtán milljarða Verðmæti hlutafélaga sem skráð eru í Kauphöllinni jókst um tíu prósent í dag þegar Exista var tekið á skrá. Heildarvirði félagsins var um 230 milljarðar við upphaf dags en hafði aukist um fimmtán milljarða fyrir dagslok. 15.9.2006 22:06
Eldur kviknaði í bakarofni Slökkvilið höfuðborgarsvæðising var kallað út um klukkan hálf níu í kvöld vegna elds í bakarofni í heimahúsi í Fossvogi. Húsráðanda hafði tekist að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á staðinn. Slökkviliðsmenn reykræstu húsið. Ekki urðu slys á fólki en húsráðandi var fluttur á slysadeildina í Fossvogi með snert af reykeitrun. 15.9.2006 22:00
Segist ekki hafa farið fjóra milljarða fram úr áætlunum Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur kostuðu fimm komma átta milljarða, samkvæmt upplýsingum stjórnarinnar nú. Áætlanir gerðu ráð fyrir að kostnaðurinn yrði átjánhundruð milljónir eða það sama og fékkst við sölu fyrirtækjanna sem fóru undir hatt Orkuveitunnar. Fyrrverandi stjórnarformaður vísar því á bug að hann hafi farið fjóra milljarða fram úr áætlunum. 15.9.2006 21:58
Segir auglýsingu Samfylkingarinnar hræðsluviðbrögð Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir krampakennd hræðsluviðbrögð einkenna auglýsingu Samfylkingarinnar um algera stöðvun allra orku- og stóriðjuframkvæmda í fimm ár. Þessi hræðsluviðbrögð séu ótrúverðug og fráleitt sé að hrökkva frá öllum erfiðum málum með endalausum frestum. 15.9.2006 21:48
Margrét hugsanlega á leið úr stjórnmálum Talið er að Margrét Frímannsdóttir ,formaður þingflokks Samfylkingarinnar, hætti í pólitík. Hún hefur gefið út þá yfirlýsingu að hún tilkynni um pólitíska framtíð sína á kjördæmisráðsfundi Suðurkjördæmis á sunnudag. 15.9.2006 21:15
Mikil bráðnun jökla Hvítabirnir eru að drukkna og nýjar eyjar að koma í ljós undan ísnum á Norður-Heimskautinu, eftir mikla bráðnun jökla í sumar. 15.9.2006 20:51
Óttast að njósnirnar verði flokknum af falli Frambjóðendur hægra bandalagsins í þingkosningunum í Svíþjóð geta ekki leynt gremju sinni yfir því að Göran Persson formaður Jafnaðarflokksins skyldi leyfa sér að nefna njósnahneyksli Þjóðarflokksins í sjónvarpsumræðum í gærkvöld. Engin leið er að spá fyrir um úrslitin á sunnudag, en Persson óttast að njósnirnar geti fært andstæðingum hans sigurinn. 15.9.2006 20:15
Stærsta réttarhelgin Réttirnar eru þjóðhátíð Árnesinga, segir landbúnaðarráðherra. Eftir tíu daga úthald á hálendinu eru gangnamenn þeirra nú komnir til byggða með vænt fé af fjalli og þessa dagana er verið að rétta í sveitum Suðurlands. 15.9.2006 18:53
Norvik kaupir stærstu sögunarmyllu Lettlands Norvik hf., félag í eigu Jóns Helga Guðmundssonar og fjölskyldu sem gjarnan er kennd við BYKO, keypti í dag stærstu sögunarmyllu Lettlands, VIKA Wood. Félagið framleiðir um 270 þúsund rúmmetra af söguðu timbri á ári og selur að mestum hluta til Japans og á heimamarkað. 15.9.2006 17:03
Slökkvistarfi lokið í Varmárskóla Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins lauk störfum í Varmárskóla í Mosfellsbæ nú á fimmta tímanum en þangað var það hvatt um klukkan tvö í dag vegna elds í húsinu. Fyrstu fréttir bentu til þess að eldurinn hefði kviknað í rafmagnstöflu en það hefur ekki fengist staðfest. 15.9.2006 17:00
Síðustu þyrluvakt varnarliðslins lauk í morgun Síðustu vakt björgunarþyrlna Varnarliðsins á Miðnesheiði lauk í morgun. Þar með eru aðeins tvær björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar til taks ef á þarf að halda. 15.9.2006 16:30
13.500 heita betri hegðun í umferðinni Um 13.500 manns hafa skráð nafn sitt á heimasíðuna stopp.is sem Umferðstofa hefur sett á fót í tengslum við átak gegn umferðarslyum undir kjörorðingu "Nú segjum við stopp!". 15.9.2006 16:15
Magna fagnað í Smáralind á sunnudag Magni Ásgeirsson mun spila á ný með hljómsveit sinni Á móti sól á viðburði sem Skjárinn hefur skipulagt til heiðurs honum í Smáralind á sunnudag. Söngvarinn knái, sem vakið hefur þjóðarathygli fyrir frammistöðu sína í raunveruleikaþættinum Rockstar:Supernova, kemur heim á sunnudaginn og mun þjóðin þá taka á móti honum í Vetrargarði Smáralindar klukkan 16. 15.9.2006 16:00
Býst við að funda með Írönum á næstu dögum Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, býst við að funda með aðalsamningamanni Írana í kjarnorkumálum, Ari Larijani, á næstu dögum um það að Íranar láti af auðgun úrans. 15.9.2006 15:48
Líðan drengsins óbreytt Líðan drengsins, sem slasaðist alvarlega þegar hann velti bíl sínum við bæinn Skipholt nálægt Flúðum aðfaranótt fimmtudags, er óbreytt. Honum er í öndunarvél og er honum haldið sofandi á gjörgæslu Landspítalans í Fossvogi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi virðist sem ofsaakstur hafi ollið slysinu en ummerki á vettvangi bentu til þess. Drengurinn var ekki í bílbelti en stúlkurnar tvær sem voru farþegar í bíl hans voru í bílbelti. Þær hlutu minniháttar áverka. 15.9.2006 15:30
Norðfjarðarvegur illfær vegna rigninga og blæðinga Vegna rigninga og mikilla blæðinga í slitlagi er Norðfjarðarvegur milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar illfær og er vegfarendum bent að fara ekki veginn nema að brýna nauðsyn beri til. 15.9.2006 15:15
Eldur í þaki Varmárskóla Slökkviliðsmenn frá slökkviliði höfuðborgasvæðisins eru nú staddir í Varmárskóla í Mosfellsdbæ þar sem eldur logar í þak skólans. Tveir dælubílar og einn körfubíll eru að störfum á svæðinu. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá bilun í rafmagnstöflu og var skólinn rýmdur um leið og ljóst var að eldur hafði komið upp. 15.9.2006 15:00
Breytingar á akstri um Vesturgötu Gerð hefur verið breyting á akstri um Vesturgötu í Reykjavík. Hún felur í sér að nú er einstefna til austurs frá gatnamótum Vesturgötu/Ægisgötu og að gatnamótum Vesturgötu/Garðastrætis. Á fyrrtöldu gatnamótunum er jafnframt stöðvunarskylda. Samkvæmt því skulu ökumenn sem fara um Vesturgötu nema staðar fyrir þá sem aka Ægisgötu. 15.9.2006 14:45
SPRON hækkar óverðtryggða vexti SPRON tilkynnti í dag að fyrirtækið myndi hækka vexti óverðtryggðra innlána og útlána um 02,5 - 0,5 prósentustig. í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands í gær. SPRON hækkar hins vegar ekki frekar en Glitnir og Landsbankinn vexti verðtryggðra íbúðalána, en bankarnir tveir hækkuðu óverðtryggða vexti sína í gær. 15.9.2006 14:15
Herdís stefnir á annað sæti í Norðvesturkjödæmi Herdís Sæmundardóttir, stjórnarformaður Byggðastofnunar, gefur kost á sér í annað sæti á lista Framsóknaflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herdísi. 15.9.2006 14:15
Verkefni í vegagerð færð frá ríki til sveitarfélaga Vinna er hafin við það í samgönguráðuneytinu að færa ákveðin verkefni í samgöngumálum frá ríki til sveitarfélaga. Þetta kom fram í ávarpi Sturlu Böðvarssonar á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í Grundarfirði í dag. 15.9.2006 13:45
Dauðadómur yfir Asahara staðfestur Hæstiréttur í Japan hefur staðfest dauðadóm yfir Shoko Asahara, leiðtoga sértrúarsöfnuðar þar í landi. Asahara var fyrir tveimur árum sakfelldur fyrir að hafa skipulagt taugagassárás á neðanjarðarlestakerfið í Tókýó fyrir ellefu árum og aðra árás ári áður. Nítján týndu lífi í árásunum. 15.9.2006 13:30
Milljarðar bætast við markaðsvirði Exista Fyrirtækið Exista var tekið til skráningar í Kauphöllinni í morgun. Þetta er stærsta nýskráning í Kauphöllinni en markaðsvirði félagsins var um 230 milljarðar. Milljarðar hafa bæst við markaðsvirðið fram að hádegi vegna gengishækkunar í fyrstu viðskiptum. 15.9.2006 13:15
Múslimar æfir út í páfa Múslimar um allan heim eru æfareiðir Benedikti páfa sextánda fyrir ummæli sem hann lét falla í ræðu í Þýskalandi fyrr í vikunni. Þar ræddi páfi hugtakið "heilagt stríð". 15.9.2006 13:00
Samið um menningarsamskipti við Kína Íslendingar og Kínverjar hafa samið um menningarsamkipti á árunum 2007-2010 sem meðal annars felast í skiptiheimsóknum listamanna og stjórnenda á listasviðinu. Það var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og menningarmálaráðherra Kína sem það gerðu fyrir hönd þjóða sinna en Þorgerður er nú stödd í opinberri heimsókn í Kína. 15.9.2006 12:45
Kosningabaráttan í Svíþjóð harðnar stöðugt Skoðanakannanir skera ekki úr um hvort vinstri eða hægri flokkarnir i Svíþjóð fari með sigur af hólmi i þingkosningunum um helgina, en kosningabaráttan er stöðugt að harðna. 15.9.2006 12:30
Samgönguvikan fyrir Hrein Loft Eflaust hafa margir rekið augun í auglýsingar fyrir samgönguvikuna sem hefst í dag en á þeim sést maður með mikið eldrautt hár og slagorðið fyrir ofan er "framtíð hreins lofts er í þínum höndum". Það sem færri vita er að maðurinn á myndinni heitir Hreinn Loftur. 15.9.2006 12:13
Íranar ýja að viðræðum í kjarnorkudeilu Yfirrvöld í Frakklandi hafa staðfest að Íranar hafi gefið til kynna að þeir vilji hefja viðræður um það við Evrópusambandið að þeir hætti auðgun úrans. Frá þessu var greint skömmu fyrir hádegi. 15.9.2006 12:00
Fimm menn skotnir nærri heimili Haniyehs Byssumenn skutu fimm Palestínumenn til bana nærri heimili forsætisráðherrans Ismails Haniyeh á Gasaströndinni í morgun. Óljósar fregnir hafa borist af atburðinum en talið er að einhverjir hinna látnu hafi verið í öryggissveitum palestínsku heimastjórnarinnar. 15.9.2006 11:45
Danska þjófélagið tapi stórfé vegna umferðartafa Helstu sérfræðingar Danmerkur í skipulagsfræði áætla að árið 2030 muni danska þjóðfélagið tapa tæpum 360 milljörðum vegna þess að umferðarmannvirki beri ekki alla þá bílaumferð sem þá verður á vegunum. 15.9.2006 11:45
Nýr stjórnarfomaður Hjálparstofnunar kirkjunnar Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, hefur verið kosinn stjórnarformaður Hjálparstarfs kirkjunnar. Það var gert á aðalfundi stofnunarinnar þann 11. september. Auk hans voru Sigríður Lister hjúkrunarfræðingur og Gunnar Sigurðsson kerfisfræðingur kosin í stjórn stofnunarinnar. 15.9.2006 11:22
Bjóða sig fram í stjórn Heimdallar Hópur ungs fólks hefur ákveðið að bjóða sig fram til stjórnar Heimdallar með Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, frambjóðanda til formennsku í Heimdalli. Í tilkynningu frá hópnum segir að hann sé skipaður öflugu hugsjónafólki, sem vilji auka veg Heimdallar og virkja ungt fólk til starfa innan félagsins. 15.9.2006 11:15
330 milljónir til byggingar reiðhalla Landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað 330 milljónum króna í styrki til að byggja reiðhallir, reiðskemmur og reiðskála víða um land. Nefnd á vegum landbúnaðarráðherra sá um að úthluta styrkjunum en alls barst fjörutíu og ein umsókn en úthlutað var styrkjum til byggingar 28 reiðhúsa víðs vegar um landið. 15.9.2006 11:15
Hitabeltisstormurinn Lane veldur usla í Meíkó Búist er við því að hitabeltisstormurinn Lane eflist í dag en hann skall á Kyrrahafsströnd Mexíkós í gær með tilheyrandi hvassviðri og úrkomu. 15.9.2006 11:00
Japansprins farinn af sjúkrahúsi Kiko Japansprinsessa og nýfæddur sonur hennar, Hisahito, fengu að fara heim af sjúkrahúsinu í Tokyo í morgun. Sonurinn kom í heiminn fyrir viku og er fyrsta sveinbarnið sem fæðist inn í keisarafjölskylduna í rúm 40 ár. Sló það á allar áhyggjur um erfingjaskort því samkvæmt japönskum lögum mega aðeins karlmenn erfa keisaratignina. 15.9.2006 10:45
Kastró hressist Fídel Kastró, forseti Kúbu, virðist óðum vera að ná fyrri styrk en hann átti í gær fund með Hugo Chavez, forseta Venesúela, á sjúkrastofu Kastrós á Havana. Fjölmargir þjóðarleiðtogar, þar á meðal Chavez, sækja nú árlega leiðtogafund samtkaa ríkja utan bandalaga sem haldinn er á Havana. 15.9.2006 10:30
Landsframleiðsla vex um 2,75 prósent Landsframleiðsla á öðrum árfjórðungi þessa árs óx um 2,75 prósent að raungildi frá sama tíma í fyrra en hins vegar jukust þjóðarútgjöld um sjö prósent. Þetta leiða nýjar tölu Hagstofunnar í ljós. 15.9.2006 10:15
Exista skráð í Kauphöllina Fjármálafyrirtækið Exista hf. var skráð á aðallista Kauphallarinnar nú klukkan tíu þegar markaðir opnuðu. Þetta er stærsta nýskráning félags í Kauphöllina. Nemur virði félagsins miðað við útboðsgengi um 230 milljörðum króna við skráningu. 15.9.2006 10:00
Komið í veg fyrir sprengjuárás í Jemen Yfirvöld í Jemen staðfestu í morgun að öryggisverðir hefði fellt fjóra menn sem ætluðu sér að gera árás á tvö borsvæði þar sem olía og gas eru unnin. Einn öryggisvörður féll í átökunum. 15.9.2006 09:45
Segir fyrirsögn Blaðsins uppblásna Blaðið gerir því skóna á forsíðu sinni í dag að fréttastöðin NFS fari innan skamms að leggja upp laupana, auk þess sem mikil hagræðing og endurskipulagning standi til í tímaritaútgáfu 365. Ari Edwald, forstjóri 365 segir fyrirsögnina uppblásna. Ekki hafi verið teknar neinar svo stórvægilegar ákvarðanir. 15.9.2006 09:45
13 bílhræ brunnu í Hafnarfirði Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að bílapartasölu við Stapahraun í Hafnarfirði, rétt fyrir ellefu í gærkvöldi, þar sem eldur logaði í bílhræjum á hlaðinu. Eldurinn barst síðan yfir í tvo gáma og einbeitti slökkviliðið sér fyrst um sinn að því að varna því að eldurinn bærist í húsið. 15.9.2006 09:15
Bush hótar að beita neitunarvaldi Nefnd bandarískra öldungadeildarþingmanna hefur farið gegn vilja Bush Bandaríkjaforseta og styðurlöggjöf þar sem skilgreint er hvernig rétta beri yfir grunuðum hryðjuverkamönnum. Bandaríkjaforseti hefur heitið því að beita neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að frumvarpið verði að lögum. Bandaríkjaforseti styður annað frumvarp sem myndi leyfa það að réttað yrði fyrir herrétti yfir föngum í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu þar sem grunaðir hryðjuverkamenn eru í haldi. Forsetinn mætti sjálfur á fund nefndarinnar í gær til að leggja áherslu á mál sitt. Fjölmargir Repúblíkanar eru andvígir því frumvarpi og styður Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra, þá í andstöðu sinni. Samkvæmt frumvarpi því sem forsetinn styður yrðu hertari yfirheyrsluaðferðir leyfðar, frekari njósnir einnig og rýmri heimildir til að halda grunuðum. Með þessu væri í raun verið að endurskilgreina það hvernig bandarísk stjórnvöld uppfylli ákvæði Genfar-sáttmálans um meðferð stríðsfanga. Þessu er Powell andvígur og segir þetta í raun stefna lífi bandarískra hermanna á erlendri grundu í hættu og renna stoðum undir málflutning þeirra sem gagnrýna framferði Bandaríkjamanna og siðferði þeirra. Meðal þeirra sem eru andvígir hugmyndum forsetans er John McCain, sem barðist við Bush um útnefningu Repúblíkana fyrir forsetakosningarnar árið 2000. Búist er við að McCain sækist aftur eftir útnefningu flokksins fyrir forsetakosningarnar eftir tvö ár. Hálfur mánuður er þar til fulltrúadeild Bandaríkjaþings frestar fundum sínum vegna kosninga í nóvember. Miðla þarf málum fyrir þann tíma. Ef það tekst ekki verður alls óvíst með framtíð fanganna í Guantanamo-fangabúðunum og hvernig mál þeirra verða meðhöndluð. 15.9.2006 09:00
Bensínverð lækkar Olíufélagið Esso og Atlantsolía lækkuðu verð á bensíni í dag. Esso lækkaði verð á bensínlítra um fjórar krónur og díselolía lækkaði um tvær krónur. Atlantsolía hefur lækkað verð á bensín og díelolíu þrisvar sinnum síðasta einn og hálfan sólarhring. Lækkanirnar nema samtals fimm krónum á bensíni og tveimur krónum á díselolíu. Handhafar dælulykla fá auk þess krónu í afslátt á hvern bensínlíterinn. Bæði olíufélögin segja verðlækkanir koma til vegna hagstæðrar þróunar á heimsmarkaðsverði og styrkingu krónunnar. 14.9.2006 21:25
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent