Fleiri fréttir Vinstri hreyfingin grænt vill rannsókn á hönnun Kárahnjúkavirkjunnar Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs tekur undir kröfu Náttúruverndar Íslands um að hrint verði af stað óháðri og gagnsærri rannsókn á þeirri áhættu sem tekin er með byggingu Kárahnjúkavirkjunnar áður en byrjað verði að safna vatni í Hálslón. 16.8.2006 16:55 Lokað vegna malbikunar Hringvegur 1 er lokaður til suðurs frá Grundartangavegi að Akrafjallsvegi við Hvalfjarðargöng næstu þrjá daga vegna malbikunar. Akrein til suðurs verður lokuð frá klukkan 7:30 til klukkan 20:00 á þessu tímabili. Vegfarendum er bent á að aka Akrafjallsveg. 16.8.2006 16:37 Danskir dagar í Stykkishólmi Hinir árlega bæjarhátíð Danskir dagar verður haldin í Stykkishólmi dagana 18. til 20. ágúst. 16.8.2006 16:25 Rafmagn komið á að nýju Rafmagn er komið á aftur í Hálsahverfi á Krókhálsi og Grafarholti. Rafmagnslaust varð þar skömmu fyrir þrjú í dag þegar grafið var í háspennustreng á framkvæmdasvæði við Korpu. 16.8.2006 16:05 Segja vaxtahækkun Seðlabankans misráðna Samtök atvinnulífsins segja stýrivaxtahækkun Seðlabankans misráðna og byggja á röngu mati á þróun mála á tveimur lykilmörkuðum hagkerfisins, vinnumarkaðnum og fasteignamarkaðnum. Í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins segir að brýnt sé að Seðlabankinn gangi í takt við efnahagslífið og taki mark á öllum þeim teiknum sem nú séu um niðursveifluna í efnahagslífinu. 16.8.2006 16:00 Flugvél snúið af leið vegna gruns um hryðjuverk Vél United flugfélagsins bandaríska sem var á leið til Washington frá Lundúnum var látin lenda í Boston fyrir stundu vegna óróa um borð í vélinni. Kona sem var um borð mun hafa lent í útistöðum við áhöfn vélarinnar og fyrir vikið var ákveðið að leita í farangri um borð þegar vélinni hafði verið lent. 16.8.2006 15:27 Alþjóðasamtök flugumferðastjóra lýsa yfir áhyggjum Alþjóðasamtök flugumferðastjóra lýsa áhyggjum vegna nýs vaktakerfis íslenskra flugumferðastjóra. Flugumferðarstjórar hafa neitað að vinna yfirvinnu frá því nýtt vaktakerfi var innleitt hjá Flugmálastjórn um miðjan marsmánuð. 16.8.2006 15:17 Byrjað er að hleypa umferð um Kjalarnesið Lögreglan hefur opnað aftur fyrir umferð um Kjalarnesið eftir að Vesturlandsvegi var lokað að hluta vegna bílslyss fyrr í dag. Búast má við einhverjum töfum til að byrja með þar sem umferð er hleypt í gegn í hollum. 16.8.2006 15:04 Farþegi lést og ökumaður slasaðist Farþegi lést og ökumaður slasaðist mjög alvarlega þegar tvær jeppabifreiðar rákust saman á Vesturlandsvegi rétt við kjúklingabúið Móa í hádeginu. Ökumaður hins jeppans er ekki talinn vera alvarlega slasaður. Lögregla er enn við störf á vettvangi og er Vesturlandsvegur lokaður frá afleggjaranum að Þingvöllum að syðri munna Hvalfjarðarganga á meðan lögreglan sinnir störfum sínum. Ökumönnum er bent á að fara um Kjósaskarð þar til vegurinn hefur verið opnaður. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir. 16.8.2006 14:53 Fjórtán mótmælendur kærðir Fjórtán mótmælendur hafa verið kærðir fyrir mótmælin á byggingasvæði álversins á Reyðarfirði í morgun. 16.8.2006 14:48 Margir Danir vilja afþakka pappírsflóðið Límmiðar á póstkassa til að afþakka fríblöð seljast nú eins og heitar lummur í Danmörku. Fólk óttast að sitja uppi með ógrynni af pappír þegar þrjú fríblöð fara að berast á dag. Forsmekkurinn flaug inn um bréfalúgur í Kaupmannahöfn og Árhúsum þegar útgáfufyrirtæki Berlingske tidende reið á vaðið með fyrsta tölublað fríblaðsins Dato. 16.8.2006 13:50 Bílslys varð á Kjalarnesi Alvarlegt umferðarslys varð á Kjalarnesi nú rétt eftir hádegi nærri meðferðarheimili SÁÁ í Vík. Verið er að klippa bílflök utan af hinum slösuðu. Umferð um veginn er lokuð í báðar áttir. 16.8.2006 13:00 Skutu japanskan sjómann út af landamæradeilu Rússneska strandgæslan skaut í nótt á japanskan fiskibát við Kúrileyjaklasann með þeim afleiðingum að japanskur sjómaður lét lífið. Áratuga löng landamæradeila milli Rússlands og Japans um Kúrileyjarnar er enn óútkljáð - með þessum afleiðingum. 16.8.2006 12:45 Íranar vilja ræða um kjarnorkuáætlunina Íranar eru tilbúnir til viðræðna um að falla frá umdeildri kjarnorkuáætlun sinni. Utanríkisráðherra Írans tilkynnti þetta í dag en bætti við að hvað sem öllum viðræðum liði, þá sæju Íranar sér enn ekki góða ástæðu til að falla frá áætlun um auðgun úrans. 16.8.2006 12:30 Kemur ekki til greina að svipta Grass Nóbelnum Nóbelsstofnunin hefur hafnað beiðnum um að svipta rithöfundinn Gunther Grass nóbelsverðlaunum sem hann hlaut árið 1999. Háværar raddir kröfðust þess að Grass yrði sviptur heiðrinum eftir að hann játaði í blaðaviðtali á laugardag að hann hefði þjónað í stormsveitum nasista í seinni heimsstyrjöldinni. 16.8.2006 12:15 Accident 16.8.2006 11:58
Sjá næstu 50 fréttir
Vinstri hreyfingin grænt vill rannsókn á hönnun Kárahnjúkavirkjunnar Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs tekur undir kröfu Náttúruverndar Íslands um að hrint verði af stað óháðri og gagnsærri rannsókn á þeirri áhættu sem tekin er með byggingu Kárahnjúkavirkjunnar áður en byrjað verði að safna vatni í Hálslón. 16.8.2006 16:55
Lokað vegna malbikunar Hringvegur 1 er lokaður til suðurs frá Grundartangavegi að Akrafjallsvegi við Hvalfjarðargöng næstu þrjá daga vegna malbikunar. Akrein til suðurs verður lokuð frá klukkan 7:30 til klukkan 20:00 á þessu tímabili. Vegfarendum er bent á að aka Akrafjallsveg. 16.8.2006 16:37
Danskir dagar í Stykkishólmi Hinir árlega bæjarhátíð Danskir dagar verður haldin í Stykkishólmi dagana 18. til 20. ágúst. 16.8.2006 16:25
Rafmagn komið á að nýju Rafmagn er komið á aftur í Hálsahverfi á Krókhálsi og Grafarholti. Rafmagnslaust varð þar skömmu fyrir þrjú í dag þegar grafið var í háspennustreng á framkvæmdasvæði við Korpu. 16.8.2006 16:05
Segja vaxtahækkun Seðlabankans misráðna Samtök atvinnulífsins segja stýrivaxtahækkun Seðlabankans misráðna og byggja á röngu mati á þróun mála á tveimur lykilmörkuðum hagkerfisins, vinnumarkaðnum og fasteignamarkaðnum. Í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins segir að brýnt sé að Seðlabankinn gangi í takt við efnahagslífið og taki mark á öllum þeim teiknum sem nú séu um niðursveifluna í efnahagslífinu. 16.8.2006 16:00
Flugvél snúið af leið vegna gruns um hryðjuverk Vél United flugfélagsins bandaríska sem var á leið til Washington frá Lundúnum var látin lenda í Boston fyrir stundu vegna óróa um borð í vélinni. Kona sem var um borð mun hafa lent í útistöðum við áhöfn vélarinnar og fyrir vikið var ákveðið að leita í farangri um borð þegar vélinni hafði verið lent. 16.8.2006 15:27
Alþjóðasamtök flugumferðastjóra lýsa yfir áhyggjum Alþjóðasamtök flugumferðastjóra lýsa áhyggjum vegna nýs vaktakerfis íslenskra flugumferðastjóra. Flugumferðarstjórar hafa neitað að vinna yfirvinnu frá því nýtt vaktakerfi var innleitt hjá Flugmálastjórn um miðjan marsmánuð. 16.8.2006 15:17
Byrjað er að hleypa umferð um Kjalarnesið Lögreglan hefur opnað aftur fyrir umferð um Kjalarnesið eftir að Vesturlandsvegi var lokað að hluta vegna bílslyss fyrr í dag. Búast má við einhverjum töfum til að byrja með þar sem umferð er hleypt í gegn í hollum. 16.8.2006 15:04
Farþegi lést og ökumaður slasaðist Farþegi lést og ökumaður slasaðist mjög alvarlega þegar tvær jeppabifreiðar rákust saman á Vesturlandsvegi rétt við kjúklingabúið Móa í hádeginu. Ökumaður hins jeppans er ekki talinn vera alvarlega slasaður. Lögregla er enn við störf á vettvangi og er Vesturlandsvegur lokaður frá afleggjaranum að Þingvöllum að syðri munna Hvalfjarðarganga á meðan lögreglan sinnir störfum sínum. Ökumönnum er bent á að fara um Kjósaskarð þar til vegurinn hefur verið opnaður. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir. 16.8.2006 14:53
Fjórtán mótmælendur kærðir Fjórtán mótmælendur hafa verið kærðir fyrir mótmælin á byggingasvæði álversins á Reyðarfirði í morgun. 16.8.2006 14:48
Margir Danir vilja afþakka pappírsflóðið Límmiðar á póstkassa til að afþakka fríblöð seljast nú eins og heitar lummur í Danmörku. Fólk óttast að sitja uppi með ógrynni af pappír þegar þrjú fríblöð fara að berast á dag. Forsmekkurinn flaug inn um bréfalúgur í Kaupmannahöfn og Árhúsum þegar útgáfufyrirtæki Berlingske tidende reið á vaðið með fyrsta tölublað fríblaðsins Dato. 16.8.2006 13:50
Bílslys varð á Kjalarnesi Alvarlegt umferðarslys varð á Kjalarnesi nú rétt eftir hádegi nærri meðferðarheimili SÁÁ í Vík. Verið er að klippa bílflök utan af hinum slösuðu. Umferð um veginn er lokuð í báðar áttir. 16.8.2006 13:00
Skutu japanskan sjómann út af landamæradeilu Rússneska strandgæslan skaut í nótt á japanskan fiskibát við Kúrileyjaklasann með þeim afleiðingum að japanskur sjómaður lét lífið. Áratuga löng landamæradeila milli Rússlands og Japans um Kúrileyjarnar er enn óútkljáð - með þessum afleiðingum. 16.8.2006 12:45
Íranar vilja ræða um kjarnorkuáætlunina Íranar eru tilbúnir til viðræðna um að falla frá umdeildri kjarnorkuáætlun sinni. Utanríkisráðherra Írans tilkynnti þetta í dag en bætti við að hvað sem öllum viðræðum liði, þá sæju Íranar sér enn ekki góða ástæðu til að falla frá áætlun um auðgun úrans. 16.8.2006 12:30
Kemur ekki til greina að svipta Grass Nóbelnum Nóbelsstofnunin hefur hafnað beiðnum um að svipta rithöfundinn Gunther Grass nóbelsverðlaunum sem hann hlaut árið 1999. Háværar raddir kröfðust þess að Grass yrði sviptur heiðrinum eftir að hann játaði í blaðaviðtali á laugardag að hann hefði þjónað í stormsveitum nasista í seinni heimsstyrjöldinni. 16.8.2006 12:15
Meira en 10 þúsund töskur í óskilum hjá British Airways Yfir 10 þúsund töskur sem farþegar breska flugfélagsins British Airways hafa innritað á síðustu dögum hafa ekki skilað sér aftur til eigendanna. Flugfélagið segir töskurnar bíða í hrúgum á breskum flugvöllum og hyggst nú höfða skaðabótamál á hendur rekstraraðila stærstu flugvallanna, því auk þessa hafi flugfélagið þurft að aflýsa yfir 700 flugum síðan hertar öryggisreglur tóku gildi síðastliðinn fimmtudag. Rekstraraðili þriggja stærstu flugvalla í Bretlandi, þar með talið Heathrow, segir stöðuna sem upp er komin nú fordæmislausa og því ekki hægt að ætlast til að fyrirtækið sé undir hana búið. 16.8.2006 11:40
Ferðamaður beið bana við Hrafntinnusker Erlendur ferðamaður beið bana þegar hann varð undir hruni í íshelli við Hrafntinnusker, skammt frá svonefndum Laugavegi, á níunda tímanum í morgun. Samferðamenn hans kölluðu á aðstoð þar sem þeir töldu að hann hefði lokast inn í hellinum, en þeir höfðu náð til hans áður en björgunarlið kom á vettvang, og var hann þá látinn. Þá var meðal annars búið að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar, en henni var snúið við ásamt flestum björgunarmönnunum. Hinir munu flytja lík mannsins til byggða. 16.8.2006 10:46
Þúsundir aðdáanda Elvis minnast 29 ára ártíðar hans Þúsundir aðdáenda sönghetjunnar Elvis Presley komu hvaðanæva að úr heiminum í gærkvöld til að minnast 29 ára ártíðar söngvarans á heimili hans í Graceland í Tennessee. Fyrstu aðdáendurnir komu til Graceland-setursins um kvöldmatarleytið á mánudagskvöld og stóðu í röð til að bíða eftir kertaathöfninni. Fyrir marga er nokkurs konar pílagrímsferð til heiðurs kónginum sem sumir trúa þó ekki að sé látinn en samkvæmt opinberum skjölum lést hann af hjartaslagi og ofnotkun læknadóps þann 16. ágúst árið 1977. 16.8.2006 10:26
Lögreglumenn á leið upp krana á eftir mótmælanda Tveir lögreglumenn eru nú að klifra up í háan byggingakrana á vinnusvæði álvers Alcoa á Reyðarfirði, til að ná niður mótmælanda, sem klifraði þar upp í morgun í mótmælaskyni við framkvæmdirnar. 16.8.2006 09:36
Slys við Hrafntinnusker Talið er maður sé lokaður inni í íshelli við Hrafntinnusker, eftir að hellirinn féll saman í morgun. Talið er að einn maður sé lokaður inn í hellinum og er þyrla Landhelgisgæslunnar á leið á staðinn ásamt lögreglu og björgunarsveitarmönnum. 16.8.2006 09:03
Mótmælendur hlekkjaðir við vinnukrana á Reyðarfirði Ellefu mótmælendur ruddust inn á vinnusvæði Alcoa á Reyðarfirði í morgun og hafa þrír hlekkjað sig við 40 - 50 metra háan vinnukrana með lök sem mótmæli hafa verið áletruð á. Nokkuð hvassviðri er á svæðinu og þykir því enn frekari hætta geta staðið að þessum aðgerðum. Flestir mótmælandanna hafa fest sig við vinnuvélar en tveir hafa verið handteknir. 16.8.2006 08:41
Fjöldagrafir teknar í Týrus Sprengjugnýrinn hefur hljóðnað um sinn fyrir botni Miðjarðarhafs og í tóminu er hægt að hefjast handa við að ganga frá eftir ógnaröldina. Lík 40 fórnarlamba árásanna undanfarinn mánuð voru greftruð í fjöldagröf í Týrus í gær. Líkin voru lögð í grunnar, númeraðar grafir og gert ráð fyrir því að fjölskyldur hinna látnu eigi hægt um vik að finna kistur ættingja sinna og finna þeim betri hvílu þegar allt er um garð gengið. Áður hafa Týrus-búar tekið tvær viðlíka fjöldagrafir þar sem hvíla yfir hundrað manns. Á níunda hundrað Líbana létu lífið í átökunum og 157 Ísraelar. 16.8.2006 08:26
Leitar enn árásarmannsins í Breiðholti Lögregla leitar enn árásarmannsins, sem réðst á stúlku í Breiðholti að næturlagi í síðustu viku og reyndi að nauðga henni. Stúlkan, sem var á leið til vinnu, náði að slíta sig frá árásarmanninum og leita hjálpar, en meðal annars þurfti að gera að bitsári á hálsi hennar. Hún hefur ekki getað gefið góða lýsingu á árásarmanninum. 16.8.2006 07:59
Fjórtán ára ökuníðingur Fjórtán ára unglingur er uppvís að því að hafa næstum ekið niður tvo lögreglumenn á Neshaga í Reykjavík, aðfararnótt mánudags, og stungið af. Hann mun hafa fengið lykil að bílnum hjá dóttur eigandans og voru að minnstakosti tveir jafnaldrar hans með honum í bílnum, þegar atvikið varð, þar sem lögreglu- og slökkviliðsmenn voru að sinna störfum vegna elds í íbúð. Þegar pilturinn ók óvænt farm á þann liðsafla, mun honum hafa brugðið og í fátinu munaði minnstu að hann æki lögrelgumennina niður. Ferðir unglinganna á bílnum, munu ekkert tengjast íkveikjunni í íbúðinni, eins og grunur lék á í fyrstu.- 16.8.2006 07:47
Alvarlegt umferðarslys á Garðskagavegi Bílslys varð á Garðskagavegi rétt norðan við Sandgerði laust eftir klukkan sjö í kvöld. Lögreglan í Keflavík segir slysið mjög alvarlegt. Þrír eru alvarlega slasaðir. Um er að ræða tveggja bíla árekstur. Vegurinn verður lokaður fram eftir kvöldi og er lögregla enn á slysstað. 16.8.2006 20:35
Fjórum erlendum starfsmönnum rænt í Nígeríu Fjórum erlendum starfsmönnum olíufélags í Nígeríu var sleppt úr haldi mannræningja í dag. Þeim var rænt af skipi fyrir tæpri viku. Tveir þeirra eru frá Noregi og tveir frá Úkraínu. 15.8.2006 22:19
Vonast til að senda fleiri friðargæsluliða til Líbanon Vonast er til að hægt verði að senda allt að þrjú þúsund og fimm hundruð friðargæsluliða á vegum Sameinuðu þjóðanna til Líbanon á næstu tíu til fimmtán dögum. 15.8.2006 22:13
Hostel II tekin upp að hluta á Íslandi Til stendur að taka hluta hryllingsmyndarinnar Hostel II hér á landi og er áætlað að tökur fari fram í október og nóvember. 15.8.2006 20:01
Koizumi ögrar nágrönnunum Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, hefur enn einu sinni reitt nágranna sína í Kína og Kóreu til reiði með því að heimsækja helgidóm þar sem japanskar stríðshetjur eru vegsamaðar. 15.8.2006 20:00
Gæðamat á íslenskum vegum Gert hefur verið gæðamat á öryggisstöðlum á íslenskum vegum. Vegirnir eru í misgóðu ástandi, mörgu er ábótavant og slysagildrur leynast víða. 15.8.2006 19:37
Sameinað menntaráð skapi samfellu Leikskólastjórar sem sátu fund með stjórnmálaflokkum í Ráðhúsinu í dag hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á borgaryfirvöld að endurskoða ákvörðun sína um að kljúfa menntaráð. Fundarmenn voru sammála um að sameinað menntaráð gæti stuðlað að samfellu í námi barna og samvinnu kennara milli skólastiga. Nýtt leikskólaráð tekur til starfa í Reykjavíkurborg um miðjan september en málefni leikskólanna hafa síðasta árið verið undir sameinuðu menntaráði. 15.8.2006 19:16
Verðstríð á skólavörum Verðstríð geysar á ritfangamarkaðnum og tilboðum á stílabókum, strokleðrum, skærum, tússlitum og öðrum skólavörum rignir yfir fólk, enda stutt í að skólar hefjist. Verðmunur á þessum smávörum getur hlaupið á hundruðum króna. 15.8.2006 19:10
Mótmælum við Kárahnjúka líklega ekki lokið Mörgum þykir harka hafa færst í mótmæli umhverfisverndarsinna vegna Kárahnjúkavirkjunar að undanförnu. Talsmaður Íslandsvina vill þó ekki meina að málstaður þeirra hafi beðið álitshnekki. 15.8.2006 19:06
Segir stefnu BNA hafa beðið skipbrot Viðurstyggð eyðileggingarinnar mætti líbönskum flóttamönnum þegar þeir sneru til síns heima í morgun. Víða stendur ekki steinn yfir steini og margir hafa misst allt sitt. Forseti Sýrlands segir stefnu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum hafa beðið skipbrot í ljósi átaka undanfarins mánaðar. 15.8.2006 19:00
Sært stolt Formaður félags leikskólakennara segir stolt þeirra sært með því að draga leikskólana út úr menntaráði Reykjavíkurborgar. Borgaryfirvöld segja nýju leikskólaráði komið á fót til að gefa leikskólunum meira vægi. 15.8.2006 18:53
Segja skýringar á framúrkeyrslu fjárlaga Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landhelgisgæslunnar segir hluta tugmilljóna framúrkeyrslu stofnunarinnar hafa verið með leyfi dómsmálaráðuneytisins. Rektor Háskólans á Akureyri, skýrir framúrkeyrslu skólans með fjölgun nemenda. 15.8.2006 18:45
Landlæknir segir ekki hægt að lækna samkynhneigð Landlæknir varar við námskeiðum eins og þeim sem um er getið í auglýsingu frá Samvinnuhópi kristinna trúfélaga, þar sem boðið er upp á meðferð gegn samkynhneigð. Þá þurfi ekki að lækna samkynhneigð, því hún sé ekki sjúkdómur. 15.8.2006 18:45
Verri heilsa hátekjufólks Heilsa hátekjufólks er verri en hins almenna borgara. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem kynnt var í dag. Rannsóknin var hluti af doktorsverkefni Tinnu Laufeyjar Ásgeirsdóttur. Niðurstöðurnar sýndu að heilsa Íslendinga fer batnandi með hækkandi launum þar til tekjur eru orðnar talsvert háar. Þá snýst sambandið við og heilsa versnar. 15.8.2006 17:42
Öll stærstu olíufélögin hafa lækkað bensínverð Öll stærstu olíufélögin hafa nú lækkað bensínverð í dag. Orkan tók af skarið og lækkaði í morgun bensínverð um 1,60 kr. á lítrann. 15.8.2006 17:37
Reyna að tryggja lausn tveggja starfsfélaga Tveir fulltrúar frá bandarísku fréttastöðinni Fox komu á Gaza-svæðið í dag til að reyna að tryggja lausn tveggja starfsfélaga sinna sem byssumenn rændu í gær. 15.8.2006 16:55
Grunaður um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk Svo gæti farið að yfirvöld í Pakistan framselji Breta sem er í haldi þar í landi, grunaður um að hafa átt þátt í að leggja á ráðin um að sprengja í loft upp farþegaflugvélar á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. 15.8.2006 16:45
Eigendur Dell-fartölva kanni framleiðslunúmer rafhlöðu Engin af þeim tölvum sem nú eru til sölu hjá umboðsaðila Dell hér á landi, EJS, er með rafhlöður sem kalla þarf inn en eigendur Dell-fartölva eru beðnir um að fara inn á heimasíðu EJS og kanna hvort rafhlaðan í tölvunni hafi tiltekið framleiðslunúmer. 15.8.2006 15:22
Ariel Sharon hrakar Heilsa Ariels Sharons, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, fer enn versnandi samkvæmt læknum á sjúkrahúsinu þar sem hann dvelur. Sharon hefur verið í dái í átta mánuði eftir að hann fékk alvarlegt heilablóðfall í byrjun árs. 15.8.2006 13:45
Bensínverð lækkaði um eina krónu Bensínorkan lækkaði bensínverð um eina krónu og sextíu aura á lítrann í morgun. Að sögn talsmanns félagsins var þetta gert vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði og þrátt fyrir að dollarinn hafi aðeins hækkað gagnvart krónunni. 15.8.2006 13:15