Fleiri fréttir Búið að veiða 40 á þessu ári Alls hafa 40 hrefnur verið veiddar af 50 dýra kvóta í ár. Á fréttavefnum Dagur.net kemur fram að samkvæmt áætlun megi veiða 200 hrefnur á fjögurra ára tímabili árin 2003 til 2007. Alls hafa 141 hrefna verið veidd. Hrefnur eru veiddar samkvæmt ákveðnu skipulagi á níu svæðum í kringum landið og í hlutfalli við þéttleika hrefnu. Fjögur skip hafa verið á veiðunum en upphaflega var áætlað að veiðunum lyki í dag. Hugsanlega verður því sótt um framlengingu á veiðunum svo hægt sé að veiða þær tíu hrefnur sem eftir standa á næsta ári. 3.8.2006 18:04 Verslunarmannahelgin að bresta á Hátíðahaldarar bjóða upp á skemmtanir af ýmsum meiði um helgina, fyrir unnendur flugs og harmonikku, íþrótta og útivistar og ekki síst tónlistar. Allt er þetta að bresta á og erill verslunarmannahelgarinnar er einnig að hefjast hjá lögregluembættum landsins. 3.8.2006 17:49 Smygluðu sjaldgæfum fuglum á milli landa Yfirvöld á Spáni hafa upprætt smyglhring þar í landi sem útvegaði áhugasömum víða um heim sjaldgæfar tegundir fugla. Sex hafa verið handteknir og húsleitir gerðar víða um Spán. 3.8.2006 17:20 Gunnar Snorri Gunnarsson verður sendiherra í Kína Ákveðið hefur verið að Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra hefji störf í Peking sem sendiherra Íslands gagnvart Kína um miðjan september næstkomandi. 3.8.2006 16:48 12 óbreyttir borgarar féllu í Bagdad Að minnsta kosti tólf óbreyttir borgarar féllu og um þrjátíu særðust þegar sprengja sprakk í miðborg Bagdad, höfuðborgar Íraks, í dag. Sprengjan hafði verið bundin við vélhjól sem lagt var við verslanagötu. 3.8.2006 16:30 Heilbrigðisstarfsmenn aðstoðuðu samferðakonu sína Flugbjörgunarsveitin á Hellu var kölluð út fyrir skömmu vegna konu sem fótbrotnaði á leið sinni um Laugaveginn. Sveitarmenn lögðu af stað að sækja konuna, í Jökultungur milli Landmannalauga og Álftavatns, og var búist við þyrfti að bera hana langan veg. Betur fór þó en á horfðist því ferðafélagar hennar komu henni niður í skála við Álftavatn, en bæði læknir og hjúkrunarfræðingur voru með í för. Flugbjörgunarsveitin var því kölluð til baka en einn bíll er á leið í skálann að sækja konuna. 3.8.2006 16:00 Enn og aftur bent á að virða fjárlög Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrir árið 2005 er enn og aftur bent á mikilvægi þess að ráðuneyti og stofnanir ríkisins virði fjárlög. Í árslok 2005 hafði ríflega fjórðungur fjárlagaliða ráðstafað fjármunum umfram heimildir og á sama tíma áttu tæplega tveir þriðju allra fjárlagaliða inneign hjá ríkissjóði. 3.8.2006 15:19 Janúkovítsj tilnefndur forsætisráðherra Úkraínu Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu, tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að tilnefna Viktor Janúkovítsj sem forsætisráðherra landsins. Júsjenkó bað landa sína um að sýna sér skilning en hann telur að með þessu sé hægt að sameina sundurleita þjóðina. 3.8.2006 15:11 Magni's Shark Confiscated 3.8.2006 15:00 Mýrin fær 45 milljónir Kvikmyndamiðstöð Íslands tilkynnti í gær hvað kvikmyndir hefðu fengið styrki eða vilyrði fyrir styrk úr sjóð þess. Fjórar kvikmyndir eru nú í tökum eða í lokastigi og fengu þær allar styrk. Mýrin eftir Baltasar Kormák fékk 45 milljónir, Köld Slóð í leikstjórn Björns Brynjólfs Björnssonar fékk 40 milljónir og kvikmynd Gunnars Björns Guðmundssonar, Astrópía, fékk 37 milljónir. Þá fékk framleiðslufyrirtækið Zik Zak sjö og hálfa milljón fyrir þátt sinn í kvikmynd Lars Von Trier, The Boss of it All. 3.8.2006 15:00 New Issue Out! 3.8.2006 14:19 Sushi Hop 3.8.2006 14:06 Our man in Berlin 3.8.2006 13:31 Vöruskiptahallinn við útlönd sá mesti í sögunni Vöruskiptahallinn við útlönd í síðasta mánuði var sá mesti í sögunni og fór tvo og hálfan milljarð yfir metið frá því í júní. Fluttar voru út vörur fyrir 17 milljarða en inn fyrir röska 35 milljarða þannig að hallinn nemur 18,3 milljörðum króna. 3.8.2006 12:49 20 létust í árásum á knattspyrnuvelli Tuttugu manns létust og að minnsta kosti 14 særðust í tveimur sprengingum á sitt hvorum knattspyrnuvellinum í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Flestir hinna látnu voru börn sem voru að leik í einu af fátækrarhverfum borgarinnar. Íbúar hverfisins eru flestir sjítar. 3.8.2006 12:13 Avion gerir tilboð í kanadískt fyrirtæki Avion Group hefur gert tilboð í kanadíska fyrirtækið Atlas Cold Storage Income Trust, sem metið er á 37 milljarða íslenskra króna. Avion Group gerir tilboðið fyrir hönd nýstofnaðs dótturfélags, sem heitir Eimskip Atlas Canada. 3.8.2006 12:08 10 létust á Sri Lanka Að minnsta kosti tíu almennir borgarar féllu og tuttugu særðust þegar spregja skall á háskóla í austur hluta Srí Lanka í morgun. Það voru uppreisnarmenn Tamíltígra sem vörpuðu sprengjunni. 3.8.2006 12:03 Protests Escalate 3.8.2006 11:52 Positive news for Iceland's banks 3.8.2006 11:51
Sjá næstu 50 fréttir
Búið að veiða 40 á þessu ári Alls hafa 40 hrefnur verið veiddar af 50 dýra kvóta í ár. Á fréttavefnum Dagur.net kemur fram að samkvæmt áætlun megi veiða 200 hrefnur á fjögurra ára tímabili árin 2003 til 2007. Alls hafa 141 hrefna verið veidd. Hrefnur eru veiddar samkvæmt ákveðnu skipulagi á níu svæðum í kringum landið og í hlutfalli við þéttleika hrefnu. Fjögur skip hafa verið á veiðunum en upphaflega var áætlað að veiðunum lyki í dag. Hugsanlega verður því sótt um framlengingu á veiðunum svo hægt sé að veiða þær tíu hrefnur sem eftir standa á næsta ári. 3.8.2006 18:04
Verslunarmannahelgin að bresta á Hátíðahaldarar bjóða upp á skemmtanir af ýmsum meiði um helgina, fyrir unnendur flugs og harmonikku, íþrótta og útivistar og ekki síst tónlistar. Allt er þetta að bresta á og erill verslunarmannahelgarinnar er einnig að hefjast hjá lögregluembættum landsins. 3.8.2006 17:49
Smygluðu sjaldgæfum fuglum á milli landa Yfirvöld á Spáni hafa upprætt smyglhring þar í landi sem útvegaði áhugasömum víða um heim sjaldgæfar tegundir fugla. Sex hafa verið handteknir og húsleitir gerðar víða um Spán. 3.8.2006 17:20
Gunnar Snorri Gunnarsson verður sendiherra í Kína Ákveðið hefur verið að Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra hefji störf í Peking sem sendiherra Íslands gagnvart Kína um miðjan september næstkomandi. 3.8.2006 16:48
12 óbreyttir borgarar féllu í Bagdad Að minnsta kosti tólf óbreyttir borgarar féllu og um þrjátíu særðust þegar sprengja sprakk í miðborg Bagdad, höfuðborgar Íraks, í dag. Sprengjan hafði verið bundin við vélhjól sem lagt var við verslanagötu. 3.8.2006 16:30
Heilbrigðisstarfsmenn aðstoðuðu samferðakonu sína Flugbjörgunarsveitin á Hellu var kölluð út fyrir skömmu vegna konu sem fótbrotnaði á leið sinni um Laugaveginn. Sveitarmenn lögðu af stað að sækja konuna, í Jökultungur milli Landmannalauga og Álftavatns, og var búist við þyrfti að bera hana langan veg. Betur fór þó en á horfðist því ferðafélagar hennar komu henni niður í skála við Álftavatn, en bæði læknir og hjúkrunarfræðingur voru með í för. Flugbjörgunarsveitin var því kölluð til baka en einn bíll er á leið í skálann að sækja konuna. 3.8.2006 16:00
Enn og aftur bent á að virða fjárlög Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrir árið 2005 er enn og aftur bent á mikilvægi þess að ráðuneyti og stofnanir ríkisins virði fjárlög. Í árslok 2005 hafði ríflega fjórðungur fjárlagaliða ráðstafað fjármunum umfram heimildir og á sama tíma áttu tæplega tveir þriðju allra fjárlagaliða inneign hjá ríkissjóði. 3.8.2006 15:19
Janúkovítsj tilnefndur forsætisráðherra Úkraínu Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu, tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að tilnefna Viktor Janúkovítsj sem forsætisráðherra landsins. Júsjenkó bað landa sína um að sýna sér skilning en hann telur að með þessu sé hægt að sameina sundurleita þjóðina. 3.8.2006 15:11
Mýrin fær 45 milljónir Kvikmyndamiðstöð Íslands tilkynnti í gær hvað kvikmyndir hefðu fengið styrki eða vilyrði fyrir styrk úr sjóð þess. Fjórar kvikmyndir eru nú í tökum eða í lokastigi og fengu þær allar styrk. Mýrin eftir Baltasar Kormák fékk 45 milljónir, Köld Slóð í leikstjórn Björns Brynjólfs Björnssonar fékk 40 milljónir og kvikmynd Gunnars Björns Guðmundssonar, Astrópía, fékk 37 milljónir. Þá fékk framleiðslufyrirtækið Zik Zak sjö og hálfa milljón fyrir þátt sinn í kvikmynd Lars Von Trier, The Boss of it All. 3.8.2006 15:00
Vöruskiptahallinn við útlönd sá mesti í sögunni Vöruskiptahallinn við útlönd í síðasta mánuði var sá mesti í sögunni og fór tvo og hálfan milljarð yfir metið frá því í júní. Fluttar voru út vörur fyrir 17 milljarða en inn fyrir röska 35 milljarða þannig að hallinn nemur 18,3 milljörðum króna. 3.8.2006 12:49
20 létust í árásum á knattspyrnuvelli Tuttugu manns létust og að minnsta kosti 14 særðust í tveimur sprengingum á sitt hvorum knattspyrnuvellinum í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Flestir hinna látnu voru börn sem voru að leik í einu af fátækrarhverfum borgarinnar. Íbúar hverfisins eru flestir sjítar. 3.8.2006 12:13
Avion gerir tilboð í kanadískt fyrirtæki Avion Group hefur gert tilboð í kanadíska fyrirtækið Atlas Cold Storage Income Trust, sem metið er á 37 milljarða íslenskra króna. Avion Group gerir tilboðið fyrir hönd nýstofnaðs dótturfélags, sem heitir Eimskip Atlas Canada. 3.8.2006 12:08
10 létust á Sri Lanka Að minnsta kosti tíu almennir borgarar féllu og tuttugu særðust þegar spregja skall á háskóla í austur hluta Srí Lanka í morgun. Það voru uppreisnarmenn Tamíltígra sem vörpuðu sprengjunni. 3.8.2006 12:03
Sérsveitin kölluð að Kvíabryggju Fangelsið að Kvíabryggju var í gjörgæslu víkingarsveitarmanna í gær eftir að utanaðkomandi maður hótaði að koma á staðinn og drepa tiltekinn fanga. Sérsveitin var kölluð til og stóð vakt í fangelsinu fram eftir degi. 3.8.2006 11:48
Ökumaður á áttræðisaldri tekinn fyrir hraðakstur Elsti ökumaðurinn, sem lögreglan í Reykjavík stöðvaði fyrir hraðakstur í gær, var á áttræðis aldri, en sá yngsti 17 ára og hafði einnig verið stöðvaður fyrir hraðakstur fyrir nokkrum dögum. 3.8.2006 09:11
Þinglýstum kaupsamningum fækkar Þinglýstum kaupsamningum vegna íbúðakaupa á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um tuttugu og tvö og hálft prósent í júlí,miðað við júní mánuð og voru þeir 36 prósentum færri en í júlí í fyrra. 3.8.2006 08:34
Vélhjólamaður missir stjórn Vélhjólamaður slapp nær ómeiddur þegar hann missti stjórn á hjólinu á Hringbraut á móts við BSÍ í gærkvöldi með þeim afleiðingum að maður og hjól féllu í götuna. 3.8.2006 08:26
Skutu 230 flugskeytum á Ísrael Liðsmenn Hizbollah-samtakanna skutu 230 flugskeytum á Ísrael í gær. Þeir hafa ekki skotið jafn mörgum flugskeytum á einum degi síðan átökin hófust fyrir tuttugu og þremur dögum. 3.8.2006 08:15
Mikil gæsla á Kárahnjúkum Sérsveitarmenn Ríkislögreglustjóra og víkingasveitarmenn frá Akureyri eru í hópi þeirra tuttugu lögreglumanna, sem nú halda uppi gæslu á Kárahnjúkasvæðinu vegna mótmæla þar. 3.8.2006 08:10
Vínbúð verður opin lengur Þjónusta ÁTVR hefur ákveðið að Vínbúðin í Vestmannaeyjabæ fái að standa opin til klukkan 16.00 föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi. Áður hefur verslunin verið lokuð frá föstudegi til og með mánudegi um verslunarmannahelgi. 3.8.2006 06:00
Tvöfalt dýrari íbúðalán Algengustu húsnæðislán á Íslandi eru mikið dýrari en algengustu húsnæðislán á evrusvæðinu. Björgvin Sigurðsson segir Íslendinga borga fórnarkostnað fyrir það að vera með sjálfstæðan gjaldmiðil. 3.8.2006 05:30
Fjórar konur handteknar á Kárahnjúkum Fjórar konur voru handteknar á Kárahnjúkum í kvöld, þar sem þær fóru inn að svæði þar sem gangnaopið sem vatnið mun streyma innum er staðsett. Þær fóru inn á svæðið í leyfisleysi og trufluðu atvinnustarfsemi á vinnusvæðinu. Þeim var gert að dvelja í fangageymslum lögreglu. 2.8.2006 22:35
Minni velta á fasteignamarkaði Nokkuð dró úr veltu á fasteignamarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu í júlí. Þinglýstum kaupsamingum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 22,5% frá júní til júlí. 2.8.2006 22:21
Vilja hefja sölu á lituðu bensínu Forráðamenn Atlantsolíu hafa sent fjármálaráðherra bréf þar sem skorað er á ráðherra að hann beiti sér fyrir því að heimilt verði að hefja sölu á lituðu bensíni. 2.8.2006 22:02
Mikið um að vera víða um land Útihátíð, innihátíð, fjölskylduhátíð og þjóðhátíð; hátíðaglaðir landsmenn hafa ýmsa kosti um komandi Verslunarmannahelgi. 2.8.2006 21:15
Heiðruðu minningu Einars Sigurðssonar Þrír Kanadamenn, sem björguðust úr sjóslysi við Viðey árið 1944, eru nú staddir hér á landi til að heiðra minningu Íslendingsins sem bjargaði þeim, ásamt 195 félögum þeirra, úr sökkvandi skipi. 2.8.2006 20:48
Leitað að karlmanni í Kollafirði Leit stendur yfir að einhverfum manni á þrítugsaldri sem varð viðskila við hóp á göngu um Kollafjörðinn um klukkan fjögur í dag. Búið er að kalla björgunarsveitina Dagrenningu á Hólmavík út og eru björgunarsveitarmenn að hefja leit. 2.8.2006 20:46
Neyðarástand vegna hitabylgju Neyðarástand hefur skapast í New York-borg í Bandaríkjunum þar sem hiti hefur farið upp í tæp fjörutíu stig. Þegar rakinn bætist við er erfitt að lifa. Sérstakar kælingarmiðstöðvar víðsvegar um borgina eru fjölsóttar þessa dagana. 2.8.2006 19:15
Eðlilegra að skerðingin sé í þrepum Formanni vinstri grænna finnst miður að örorkulífeyrir tæplega 2500 öryrkja verði skertur innan þriggja mánaða. Honum finnst eðlilegra að þetta sé gert í þrepum, ef skerðing er á annað borð óumflýjanleg. 2.8.2006 19:13
Eftirlitsmönnum á Srí Lanka fækkar um tvo þriðju Að öllu óbreyttu fækkar eftirlitsmönnum norrænu friðargæslusveitarinnar á Srí Lanka um tvo þriðju í byrjun september. Danir, Finnar og Svíar hafa ákveðið að kalla sína liðsmenn heim. Íslensk stjórnvöld ákveða síðar í mánuðinum hvort fleiri Íslendingar verði sendir til friðargæslu á Srí Lanka. 2.8.2006 19:00
Pólverji í sjálfheldu Pólskum ferðamanni var bjargað úr sjálfheldu í dag en hann sat fastur í fjallshlíð Gleiðarhjalla, sem liggur fyrir ofan Ísafjörð. 2.8.2006 18:58
190 flugskeytum skotið á Norður-Ísrael Ísraelskar hersveitir réðust um 100 kílómetra inn í Líbanon í dag og tóku þar 5 skæruliða Hizbolla höndum í einu höfuðvígi þeirra. Hizbolla-skæruliðar svöruðu með að skjóta um 190 flugskeytum á Norður-Ísrael í dag. 2.8.2006 18:45
Sprengingar á sparkvelli í Bagdad Tólf manns fórust þegar tvær sprengjur sprungu á sparkvelli barna í Bagdad í Írak nú fyrir stundu. Flestir hinna látnu eru börn sem voru að leika sér í fótbolta í einu af fátækrahverfum borgarinnar. 2.8.2006 18:30
Þota frá American Airlines lenti með veikan farþega Boeing 777 breiðþota frá American Airlines lenti á Keflavíkurlfugvelli nú síðdegis en einn farþegi í vélinni var meðvitundarlaus. Farþeginn sem er 15 ára gamall var einn á ferð en samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli var talið að hann væri sykursjúkur. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem hann fékk aðhlynningu. Eftir því sem komist verður næst þá hélt þotan áleiðis til Chicago í Bandaríkjunum stuttu síðar en hún var að koma frá London. 2.8.2006 17:42
Samtök gegn nauðgunum Karlahópur Femínistafélags Íslands og V-dags samtökin hafa tekið höndum saman gegn nauðgunum um Verslunarmannahelgina. 2.8.2006 17:09
Ók 50 km hraða yfir leyfilegum hraða 28 ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík á síðasta sólarhring. Meðal þeirra ökumanna sem stöðvaðir voru, var tvítug stúlka sem ók á rúmlega 100 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 kílómetra hraði. Stúlkan á yfir höfði sér sviptingu ökuleyfis í einn mánuð og 50 þúsund króna sekt fyrir athæfið. Þá voru þrír teknir fyrir ölvun við akstur og einn fyrir að aka undir áhdirum lyfja. 2.8.2006 16:45
Mikið eftirlit á Ein með öllu Lögreglan á Akureyri vill ítreka að unglingar inna átján ára aldurs fá ekki aðgang að tjaldstæðum nema í fylgd með forráðamönnum um helgina. Á Akureyri er haldin hátíðin Ein með öllu og á Laugum í Þingeyjarsýslu verður haldið unglingalandsmót UMFÍ, svo lögreglan gerir ráð fyrir miklum fjölda manns á ferð um Norðurlandið næstu daga. Lögreglan vill einnig koma því áleiðis til ferðamanna að þeir sýni aðgát við akstur og gefi sér nægan tíma til ferðalaga. 2.8.2006 16:30
Íraskar her- og lögreglusveitir munu taka við öryggisgæslu í Írak Jalal Talabani, forseti Íraks, segir að íraskar her- og lögreglusveitir muni taka við öryggisgæslu í öllum héruðum landsins, fyrir næstu áramót. Bandarískar og aðrar erlendar hersveitir gæta nú öryggis í sautján af átján héruðum Íraks. Írakar sjálfir stjórna aðeins einu héraði. 2.8.2006 16:15
Óásættanlegt að umsóknum sé hafnað Hagsmunaráð framhaldsskólanema og Stúdentaráð Háskóla Íslands telur það óásættanlegt að háskólar landsins hafi þurft að hafna 2.500 umsóknum um háskólanám fyrir komandi skólaár. Jafnvel þótt einn einstaklingur kunni að vera að baki fleiri en einni umsókn, sé ljóst að hlutfall þeirra sem hafnað er sé of hátt. 2.8.2006 16:15